Ferill 462. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 742  —  462. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um óhefðbundnar lækningar.

Frá Gunnlaugi Stefánssyni.



     1.      Hefur ráðherra upplýsingar um umfang óhefðbundinna lækninga og árangur þeirra?
     2.      Hvað áætlar ráðherra að þessi starfsemi velti miklum fjármunum á ári?
     3.      Hvert er mat ráðherra á slíkum lækningum?
     4.      Hafa stjórnvöld eitthvert eftirlit með fyrrgreindri starfsemi?
     5.      Er fyrirhugað að sett verði sérstök löggjöf um óhefðbundnar lækningar?