Ferill 463. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 743 — 463. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um innheimtu skuldar við LÍN.
Frá Sigríði Jóhannesdóttur.
Telur ráðherra samræmast góðum stjórnsýsluháttum að innheimta skuld MS-sjúklings við Lánasjóð íslenskra námsmanna hjá sjúklingnum og aðstandendum hans sem hafa gengið í ábyrgðir, þegar mál hans hefur að nýju verið sent málskotsnefnd LÍN í kjölfar úrskurðar umboðsmanns Alþingis?