Ferill 472. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 754 — 472. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um réttarstöðu Byrgisins í Rockville á Miðnesheiði.
Frá Kristjáni Pálssyni.
1. Hver er núverandi réttarstaða Byrgisins í Rockville á Miðnesheiði?
2. Hvernig mun réttarstaða Byrgisins í Rockville breytast þegar Rockville verður afhent utanríkisráðuneytinu og hvenær verður það?
3. Hver ber ábyrgð á skuldbindingum sem gerðar hafa verið af hálfu Byrgisins vegna bygginga í Rockville?
4. Hefur verið rætt við Sandgerðisbæ um framtíðarstarfsemi Byrgisins í Rockville í Sandgerðisbæ?