Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 765 — 422. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur um framlög til þróunarmála.
1. Hver voru framlög íslenska ríkisins til þróunarmála, sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu (VÞF), á árunum 1997–2001?
Framlög íslenska ríkisins til þróunarmála sem hlutfall af VÞF á árunum 1997–2001 1 voru eftirfarandi:
| Ár | Millj. kr. | % af VÞF |
| 1997 | 509,6 | 0,10 |
| 1998 | 505,9 | 0,09 |
| 1999 | 566,3 | 0,09 |
| 2000 | 647,8 | 0,10 |
| 2001 | 889,2 | 0,12 |
2. Hver voru framlög íslenska ríkisins til tvíhliða þróunarverkefna á vegum Þróunarsamvinnustofnunar, sem hlutfall af VÞF, fyrir hvert þessara ára?
Umsvif Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hafa vaxið umtalsvert í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að þrefalda fjárveitingar til stofnunarinnar á árabilinu 1998–2003. Framlögin fyrir umrætt tímabil voru eftirfarandi:
| Ár | Millj. kr. | % af VÞF |
| 1997 | 172,0 | 0,03 |
| 1998 | 177,0 | 0,03 |
| 1999 | 228,4 | 0,04 |
| 2000 | 298,6 | 0,04 |
| 2001 | 459,5 | 0,06 |
3. Hver voru framlög íslenska ríkisins til marghliða þróunarverkefna, sem hlutfall af VÞF, fyrir hvert þessara ára?
Framlög íslenska ríkisins til marghliða þróunarverkefna á umræddu tímabili voru eftirfarandi:
| Ár | Millj. kr. | % af VÞF |
| 1997 | 276,0 | 0,05 |
| 1998 | 299,2 | 0,05 |
| 1999 | 306,2 | 0,05 |
| 2000 | 332,9 | 0,05 |
| 2001 | 428,0 | 0,06 |
1 Allar tölur fyrir árið 2001 eru samkvæmt fjárlögum þar sem enn hefur ekki farið fram lokauppgjör á ríkisreikningi. Aðrar tölur eru samkvæmt ríkisreikningi.