Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 775  —  490. mál.




Skýrsla



Sivjar Friðleifsdóttur samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2001.

(Lögð fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)



I. SKÝRSLA SAMSTARFSRÁÐHERRA UM STÖRF NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNAR 2001
1. Inngangur

    Í skýrslu þessari er gerð grein fyrir störfum Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2001. Það ár gegndu Finnar formennsku á þeim vettvangi. Að venju lögðu þeir í ársbyrjun fram áætlun þar sem lýst var helstu forgangsmálum og fyrirhuguðum aðgerðum.

Norðurlandabúi 2001.
    Yfirskrift áætlunar Finna, „Norðurlandabúi 2001“, gaf til kynna markmið þeirra, sem var að beina kastljósinu að einstaklingnum sem norrænum borgara. Í samræmi við það var þegar í upphafi árs hafist handa við könnun á réttarstöðu Norðurlandabúa er þeir flytja milli norrænu landanna og þeim hindrunum sem á vegi þeirra verða við búferlaflutninga og annars konar för milli landanna. Niðurstöðurnar, sem voru lagðar fram í október sl., sýndu að fjölmargir þættir í löggjöf landanna og framkvæmdinni gerir fólksflutninga til lengri eða skemmri tíma erfiðari en ætla hefði mátt. Jafnframt kom í ljós að þekkingu stjórnvalda á efni þeirra norrænu samninga, sem gerðir hafa verið til að auðvelda fólksflutninga milli landanna, er um margt ábótavant. Því var þegar í kjölfar skýrslunnar hafinn undirbúningur að upplýsingaátaki sem beint verður bæði að borgurum landanna og stjórnvöldum.
    Í því skyni að auðvelda Norðurlandabúum atvinnuleit utan heimalandsins er samkvæmt áætlun fyrir tímabilið 2001–2004 hafin vinna við að fella niður þær landamærahindranir sem skipta norrænu löndunum niður í mismunandi vinnumarkaðseiningar.
Starfsemi þjónustusímans „Halló Norðurlönd“ var styrkt á árinu með því að tekin var upp þjónusta í hverju landi, veitt á tungu heimalandsins. Nýting þjónustunnar hefur verið góð, sem sést af því að heimsóknir á heimasíðu þjónustunnar hér á Íslandi voru á árinu yfir 1000 og erindin hátt á annað hundrað.
    Á undanförnum árum hefur samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við frjáls félagasamtök á Norðurlöndum aukist og tekur það nú til mun breiðari hóps samtaka en áður. Nú er svo komið að samstarf á sér stað við frjáls félagasamtök á flestum sviðum norræna samstarfsins og um það bil tíundi hluti norrænu fjárlaganna rennur til samstarfs sem frjáls félagasamtök eiga aðild að á einn eða annan hátt. Þessi þróun opnar leið milli almennings og ráðherranefndarinnar fyrir upplýsingar á báða bóga og til áhrifa á störf ráðherranefndarinnar. Þá var á starfsárinu ákveðið að bæta upplýsingaflæði til almennings um dagleg störf ráðherranefndarinnar.

Ný norræn dagskrá.
    Þegar Íslendingar höfðu stjórnartauminn í Norrænu ráðherranefndinni áttu þeir frumkvæði að skipun nefndar sem leggja skyldi fram hugmyndir um nýjar áherslur í samstarfinu á grundvelli spár um framtíðarhorfur á Norðurlöndum og annars staðar í heiminum. Skýrsla nefndarinnar, „ Norðurlönd umleikin vindum veraldar“, var lögð fram síðla árs 2000 og mikið starf var á árinu lagt í að greina hverjar af þeim fjölmörgu hugmyndum, sem lagðar höfðu verið fram í skýrslunni, skyldu koma til framkvæmda. Norðurlandaráð og ráðherranefndin áttu með sér gott samráð um þetta verk. Niðurstöður beggja aðila voru lagðar í sameiginlegri skýrslu fyrir þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn haustið 2001 undir yfirskriftinni „ Ný norræn dagskrá“.
    Ráðherranefndin hyggst á grundvelli skýrslunnar veita fimm víðtækum samstarfssviðum, sem öll snerta efnahagslegar og pólitískar afleiðingar hnattvæðingarinnar, forgang í samstarfinu næstu ár. Þau eru:
     –      Tækniþróun, sérstaklega hvað varðar upplýsingasamfélagið og rannsóknasvið þar sem Norðurlöndin skara fram úr.
     –      Velferðarkerfi, þar með talin réttindi íbúa Norðurlanda og möguleikar þeirra til að búa, starfa og stunda nám í norrænu nágrannaríki, ásamt málefnum sem tengjast lýðþróun og fólksflutningum.
     –      Innri markaður á Norðurlöndum, að meðtöldu samstarfi sem beinist að afnámi landamærahindrana.
     –      Samstarf við nágrannalönd og -svæði.
     –      Umhverfismál og sjálfbær þróun.
    Norðurlandaráð brást m.a. við skýrslunni með gagngerum breytingum á nefndaskipan sinni. Vonir eru bundnar við að þessar breytingar, sem gengu í gildi í lok ársins, muni leiða til markvissari pólitískra samskipta ráðsins og ráðherranefndarinnar, því nú er efnisleg samsvörun betri en áður var milli fagnefnda ráðsins og fagráðherranefndanna.
    Á árinu varð sú breyting á starfsskipan ráðherranefndarinnar að ný ráðherranefnd tekur við hlutverki þeirra ráðherranefnda sem fóru með sjávarútvegs-, landbúnaðar-, skógræktar- og matvælamál.
    Þá kom í fyrsta sinn saman til fundar sú ráðherranefnd sem fer með upplýsingatæknimál, UT-ráðherranefndin. Hvort tveggja er mikilvægt skref, þar eð bæði matvæli og öryggi þeirra og upplýsingatæknin eru nú meðal forgangsmála í samstarfinu.
    
Sjálfbær þróun á Norðurlöndum.
    Samþykkt var á árinu áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum til ársins 2020, en áður höfðu ríkisstjórnir allra norrænu ríkjanna samþykkt hana. Áætlunin tekur til fjölda sviða og í henni eru skilgreind tímabundin markmið sem endurskoðuð verða á fjögurra ára fresti. Þar sem áætlunin er í eðli sínu þverfagleg fellur framkvæmdin undir samstarfsráðherra, en umhverfisráðherrarnir gegna meginhlutverki við alla eftirfylgni og ráðgjöf. Vonir eru bundnar við jákvæð áhrif áætlunarinnar innan sem utan Norðurlanda vegna þess fordæmisgildis sem hún hefur fyrir önnur svæði.

Samstarf við grannsvæði Norðurlanda í austri og vestri auk Norðurskautssvæðanna.
    Samþykkt var á árinu langtíma áætlun um norrænt samstarf við grannsvæðin undir yfirskriftinni „ Nær Norðurlöndum“ (Närmare Norden). Þar er lagt til að þungamiðja grannsvæðasamstarfsins muni er fram líða stundir flytjast frá Eystrasaltsríkjunum yfir á Barentssvæðið, Norðvestur-Rússland og rússnesk grannsvæði Eystrasaltsríkjanna. Einnig er ætlunin að áhrif Eystrasaltsríkjanna og ábyrgð á samstarfinu muni aukast með batnandi efnahag þeirra og fyrirhugaðri aðild að ESB.
    Í samræmi við áætlunina var svo á árinu samþykkt sérstök samstarfsáætlun um málefni Norðurskautssvæðanna. Auk náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar er þar lögð rík áhersla á bætt lífskjör og afkomumöguleika allra íbúa þessa strjálbýla svæðis. Þessi áætlun fellur vel að áherslum Íslendinga í samstarfinu, enda má vænta þess að ýmis verkefni áætlunarinnar verði áhugaverð með tilliti til málefna dreifbýlisins hér á landi.
    Þá eru í skýrslunni „Ný norræn dagskrá“ ráðagerðir um norrænt samstarf við vestlæg grannsvæði Norðurlanda á forgangssviðum norræns samstarfs. Ekki er ætlunin að taka upp formlegt samstarf við viðkomandi ríki, heldur að kannaðir verði möguleikar samstarfs um verkefni sem snúa að sameiginlegum hagsmunamálum. Í því sambandi hafa verið nefnd verkefni sem hafa að markmiði verndun lífríkis Atlantshafsins, auk menningar- og viðskiptamála.
    Vísir að norrænu samstarfi til vesturs er reyndar þegar fyrir hendi, því á árinu var haldin í Færeyjum ráðstefna um verndun sjávar og sjálfbæra nýtingu auðlinda Norður-Atlantshafsins með þátttöku þeirra norrænu landa sem eiga land að Norður-Atlantshafi, Skotlands, skosku eyjanna, Norður-Kanada og Írlands auk ESB. Af hálfu Íslands verður lögð á það áhersla að fylgja ráðstefnunni eftir á markvissan hátt.
    
Norrænt vísindasamstarf í fremstu röð.
    Að tillögu Norræna vísindastefnuráðsins (FPR), sem er ráðgjafi ráðherranefndarinnar um stefnumótun í vísinda- og tæknirannsóknum, var á árinu unnið að ýmsum rannsóknaáætlunum, sem m.a. snúa að vistfræði og mannlífi á Norðurslóðum, tungutækni, vestnorrænu hafveðurfari og kynbundnu ofbeldi.
    Norðurlönd sem heild standa sterk á sviði vísinda og tækni og mikilvægt er að þau þrói í sameiningu þekkingu á þeim sviðum þar sem þau standa framarlega á alþjóðavísu. Því var á starfsárinu hafinn undirbúningur stofnunar svonefndra norrænna öndvegissetra (Centres of Excellence), sem verður í formi netsamstarfs. Háskólastofnunum sem þykja skara framúr verður þannig veittur styrkur í því augnamiði að gera þeim kleift að ná enn meira forskoti.

Norðurlönd framtíðar.
    „ Norðurlönd framtíðar“ (Morgendagens Norden) er yfirskrift formennskuáætlunar Norðmanna fyrir árið 2002 sem lögð var fram á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í október sl. Samkvæmt henni hyggjast Norðmenn leggja megináherslu á málefni barna og unglinga á Norðurlöndum og grannsvæðunum í Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur-Rússlandi, á öryggi matvæla og sjálfbæra þróun.
    Eins og skýrsla þessi ber með sér er norrænt samstarf innan vébanda Norrænu ráðherranefndarinanr afar víðfeðmt. Allir ráðherrar í ríkisstjórninni koma að því sem og öll ráðuneytin, þó samstarf norrænu forsætis- og utanríkisráðherranna sé formlega séð utan ráðherranefndarinnar.
    Í inngangsorðum er drepið á nokkur þeirra verkefna sem unnið var að en á eftir fara greinargerðir frá ráðuneytunum um störfin á hinum fjölmörgu sviðum samstarfsins, upplýsingar um norrænu lánastofnanirnar og þær tvær norrænu stofnanir sem hafa aðsetur á Íslandi, Norræna húsið og Norrænu eldfjallastöðina.


2. Samstarf forsætisráðherra Norðurlanda

    Forsætisráðherrar Norðurlanda hittust til árlegs sumarfundar í byrjun júlí í Imatra í Finnlandi. Þar gaf forsætisráðherra Svía skýrslu um gang mála í ESB, en Svíar höfðu gegnt formennsku þar fyrri hluta árs. Þar var og ástand efnahagsmála í Evrópu til umræðu, EES-samstarfið, störf Norðurskautsráðsins, sjálfbær þróun og staða mála í norrænu samstarfi. Einnig var þar fjallað um samstarf ESB við Atlantshafsbandalagið og aðkomu þeirra evrópsku Atlantshafsbandalagsríkja, sem ekki eiga aðild að ESB, að ákvarðanatöku.
    Í Imatra ákváðu forsætisráðherrarnir og að endurskoða samstarfshætti sína þannig að dagskrármálum yrði fækkað og einungis yrðu á fundum þeirra rædd pólitískt mikilvæg mál.
    Á fundi forsætisráðherranna í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í lok október var fjallað um baráttuna gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Einnig var ákveðið að þeim sérfræðihópum, sem þegar væru að störfum um varnir gegn smitsjúkdómum og skipulagðri glæpastarfsemi í Eystrasaltsríkjunum, skyldi falið að fjalla um viðbrögð við hryðjuverkum.
    Málefni Evrópu og ESB voru að venju einnig til umræðu auk þess sem Paavo Lipponen, forsætisráðherra Finnlands skýrði frá helstu málum á dagskrá norræns samstarfs undir forustu Finna og nýskipaður forsætisráðherra Noregs, Kjell Magne Bondevik, lýsti áætlun þeirri sem Norðmenn voru í þann mund að leggja fram fyrir formennskuárið 2002 í norrænu samstarfi undir formerkjunum „Norðurlönd morgundagsins“. Þar kom fram að málefni barna og unglinga yrðu í fyrirrúmi í samstarfinu. Þannig yrði gripið til aðgerða til að glæða áhuga ungmenna á Norðurlöndum á norrænu samstarfi, menningararfi og tungu. Jafnframt yrði unnið að því að bæta kjör barna og unglinga í Norðvestur-Rússlandi og Eystrasaltsríkjunum. Þá voru matvælaöryggi og sjálfbær þróun nefnd sem forgangsmál í formennskuáætlun Norðmanna.
    Í tengslum við Norðurlandaráðsþingið áttu forsætisráðherrarnir fund með forsætisráðherrum Eystrasaltsríkjanna, þar sem stríðið gegn hryðjuverkaöflum í heiminum var til umræðu auk fjölgunar aðildarríkja NATO og ESB. Einnig var þar fjallað um Norðlægu víddina og orkumál á Eystrasaltssvæðinu.
    Þá áttu forsætisráðherrarnir að venju í tengslum við Norðurlandaráðsþingið fundi með stjórnarleiðtogum sjálfstjórnarsvæðanna og forsætisnefnd Norðurlandaráðs.


3. Störf samstarfsráðherra Norðurlanda


Hlutverk.
    Samstarfsráðherrar og forsætisráðherrar Norðurlanda setja samstarfinu pólitísk markmið og eitt mikilvægasta hlutverk samstarfsráðherranna er að stuðla að því, að starfsemin sé í samræmi við þau. Auk þessarar stefnumótunar, er norræna fjárlagagerðin og skipting fjárveitinganna milli samstarfsverkefna og samstarfssviða ríkur þáttur í starfi samstarfsráðherranna. Þeir fara og með upplýsingamálin og þau samstarfsmál, sem eru þverfagleg eða falla af öðrum ástæðum ekki að hlutverki neinnar fagráðherranefndar. Þverfaglegum verkefnum hefur fjölgað undanfarin ár en samstarfið við grannsvæði norrænu landanna er þó enn þeirra helst.
    Norræna samstarfsnefndin, sem starfar í umboði samstarfsráðherranna og undirbýr fundi þeirra, er stjórn aðalskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.

Fjárlögin.
    Árið 2001 voru fjárlög Norrænu ráðherranefndarinnar 774 millj. d.kr. á núvirði; 10 millj. d.kr. hærri en fjárlög ársins 2000. Sú hækkun var í samræmi við ákvörðun tekna árið 2000 um að færa fjárlögin í þrepum á greiðslugrunn og nýta jákvæða lausafjárstöðu til hækkunar fjárlaganna, þannig að ekki þyrfti að koma til hækkunar á framlögum landanna. Ef undan eru skilin árin 1995 og 1996 höfðu fjárlögin þá nánast staðið í stað frá árinu 1993, þrátt fyrir tilkomu samstarfsins við grannsvæði Norðurlanda í Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur-Rússlandi en upp undir 20% af fjárlögunum hafa undanfarin ár runnið til þess starfs.
    Árið 2000 fór fram endurskoðun á norrænu fjárlagagerðinni. Markmið hennar var m.a. að gera fjárlögin þannig úr garði að þau nýttust betur en fyrr til að beina fjármagni til pólitískra forgangsverkefna. Að lokinni umfjöllun um endurskoðunina á árinu 2001 ákváðu samstarfsráðherrarnir að gera gagngerar breytingar á fjárlagavinnunni. Þær breytingar koma til framkvæmda við gerð fjárlaga ársins 2003, en undirbúningur þeirra hófst í árslok 2001. Það er ætlun samstarfsráðherranna að þessi nýbreytni leiði til þess að forsendur Norðurlandaráðs til áhrifa á fjárlagagerðina aukist. Jafnframt verður ábyrgð fagráðherranefndanna aukin því ákvörðunarvald um innihald samstarfsins flyst frá samstarfsráðherrunum til viðkomandi fagráðherranefnda. Samstarfsráðherrarnir ákveða eftir sem áður skiptingu fjárveitinganna milli sviða og innihald þeirrar starfsemi, sem fellur efnislega undir starfssvið þeirra.

Samstarf um innri málefni Norðurlanda.
    Megnið af hefðbundnum samstarfsverkefnum ráðherranefndarinnar, þeim sem snúa að innra samstarfi landanna, heyra undir fagráðherranefndirnar. Undir samstarfsráðherrana heyra hins vegar þverfagleg verkefni og önnur þau mál sem af ýmsum ástæðum falla utan hefðbundinna samstarfssviða.
    Á árinu voru mörg mál á dagskrá samstarfsráðherranna sem horfa til stefnumótunar til lengri tíma og til aukinnar hagræðingar og skilvirkni í störfum ráðherranefndarinnar. Mikilvægast þeirra var umfjöllun og ákvörðun um viðbrögð við tillögum þeim sem árið 2000 voru lagðar fram í skýrslunni, „ Norðurlönd umleikin vindum veraldar“, en það starf fór fram í samráði við fulltrúa Norðurlandaráðs. Á grundvelli skýrslunnar var þegar í upphafi árs ákveðið að fela Ole Norrback, sendiherra og fyrrverandi samstarfsráðherra Finnlands, að skoða með tilliti til mismununar réttindi norrænna borgara sem flytja milli norrænu landanna. Í október lagði síðan Ole Norrback fram skýrsluna „ Réttindi Norðurlandabúa“, sem m.a. leiddi í ljós að vitneskju um og þekkingu á norrænum milliríkjasamningum, sem snúa að réttindum norrænna borgara, er ábótavant hjá opinberum stjórnvöldum á Norðurlöndum. Því var honum þegar í stað falið að undirbúa tillögur um kynningu, sem sérstaklega skyldi beint að stjórnvöldum.
    Á árinu var samþykkt áætlun sú um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum til ársins 2020, sem lögð var fram árið 2000. Á grundvelli hennar var hafin fjármögnun ýmissa þverfaglegra verkefna sem snúa að sjálfbærri þróun á Norðurlöndum og grannsvæðum þeirra.
    Ákveðið var á árinu að fela Norrænu æskulýðsnefndinni að hefja margþættar aðgerðir gegn útlendingaandúð á Norðurlöndum. Menntamálaráðherrunum var á árinu falið að undirbúa stofnun norrænna öndvegissetra (Centres of Excellence). Þá var ákveðið að Norræni málasamningurinn skyldi nú taka til færeysku, grænlensku og samísku auk finnsku og norrænu tungumálanna fjögurra.
    Ákvörðun var tekin um að leggja niður Norrænu lyfjanefndina. Norrænu knattspyrnusamböndunum var veittur styrkur vegna samnorrænnar umsóknar um að Evrópukeppni í knattspyrnu verði haldin á Norðurlöndum árið 2008. Málefni Norræna menningarsjóðsins voru á dagskrá og ýmis mál tengd rekstri og starfsemi Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.

Grannsvæðasamstarfið.
    Norræna ráðherranefndin rekur upplýsingaskrifstofur í höfuðborgum Eystrasaltsríkjanna þriggja og Pétursborg. Að ósk fulltrúa Eystrasaltsríkjanna hafa og verið ráðnir norrænir tengiliðir í Tartu og Narva í Eistlandi, í Daugavpils í Lettlandi og Klaipeida í Litháen. Í Rússlandi eru tengiliðir í Arkangelsk, Murmansk og Petrozavodsk. Til stendur að opna útibú frá Pétursborgarskrifstofunni í Kaliningrad og vonir standa til að samningar við Rússland takist á árinu 2002.
    Ný stefnumótun fyrir störf ráðherranefndarinnar um málefni grannsvæðanna, „ Nær Norðurlöndum“ (Närmare Norden), var samþykkt á árinu. Í samræmi við markmið hennar var norræna samstarfið um málefni Norðurskautssvæðanna skilið frá grannsvæðaáætluninni og sérstök áætlun fyrir Norðurskautssamstarfið samþykkt. Þar eru lögð að því drög að auka vægi Norðurskautssamstarfsins og beina sjónum að lífskjörum allra íbúa þessa strjálbýla svæðis en ekki bara frumbyggjanna. Verndun viðkvæmrar náttúru og sjálfbær nýting náttúruauðlinda svæðisins eru og áfram forgangsmál. Ætlunin er að utanríkisráðuneyti landanna aðstoði við verkefnaval til að samræmis verði gætt við tvíhliða og annað alþjóðlegt samstarf. Samstarf við Norðurskautsráðið, þar sem ráðherranefndin hefur stöðu áheyrnarfulltrúa, mun og styrkjast með nýju áætluninni.

Evrópu- og önnur alþjóðamál.
    Norrænt samráð um Evrópumál hefur aukist frá ári til árs bæði í hópi forsætis-, utanríkis- og varnarmálaráðherranna og í hópi ýmissa fagráðherranefnda. Í þeim viðbrögðum við skýrslunni „Norðurlönd umleikin vindum veraldar“, sem samstarfsráðherrarnir samþykktu á árinu undir formerkjunum „ Ný norræn dagskrá“, er það tímanna tákn að samstarfið um Evrópumál er tekið sem hluti samstarfsins við grannlönd og -svæði. Í skýrslunni er jafnframt bent á að mikilvægi svæðisbundins hlutverks Norðurlanda í ESB eftir fyrirhugaða stækkun muni aukast.
    Í skýrslunni „Ný norræn dagskrá“ eru jafnframt uppi fyrirætlanir um samstarf við grannsvæði Norðurlanda í vestri og lagt til að íhuguð verði samstarfsverkefni við strandsvæði þeirra grannríkja á forgangssviðum norræns samstarfs.
    Að venju áttu samstarfsráðherrarnir fund með sendiherrum norrænu ríkjanna í Brussel þar sem sendiherrarnir lýstu helstu dagskrármálum ESB og ráðherrarnir ræddu við þá um norræna hagsmuni tengda stöðu mála hjá ESB.
    

4. Norðurlandasamvinna utanríkisráðuneytisins
    

    Samvinna utanríkisráðherra Norðurlanda fer ekki fram innan ramma Norrænu ráðherranefndarinnar heldur milli norrænu utanríkisráðuneytanna beint.
    Á árinu 2001 voru haldnir þrír fundir utanríkisráðherra Norðurlanda.
    Fyrsti fundurinn var haldinn í Helsinki í febrúar. Á þeim fundi ræddu ráðherrarnir einkum stækkun Evrópusambandsins og hugsanleg áhrif hennar á samstarfið á Evrópska efnahagssvæðinu, svo og evrópsk öryggis- og varnarmál, sem utanríksráðherra Íslands hafði framsögu um. Hann lagði m.a. áherslu á nauðsyn náins samstarfs ESB við Atlantshafsbandalagið um framtíðarhlutverk ESB í sameiginlegu öryggi Evrópuríkja og áréttaði mikilvægi Atlantshafstengslanna í því sambandi.
    Sumarfundur utanríkisráðherranna var haldinn í Helsinki í lok ágústmánaðar og var í tengslum við hann haldinn sameiginlegur fundur með utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháens. Á þeim fundi var einkum rætt um stækkun ESB og Atlantshafsbandalagsins með tilliti til framtíðaraðildar Eystrasaltsríkjanna. Einnig var rætt um grannsvæðasamstarf, Norðlæga vídd ESB og umhverfismál. Ráðherrarnir samþykktu að þekkjast boð utanríkisráðherra Eistlands um að næsti fundur ráðherranna verði haldinn þar í landi, en það verður í fyrsta sinn sem reglubundinn fundur þessara ríkja verður haldinn utan Norðurlandanna.
    Í tengslum við 53. þing Norðurlandaráðs héldu utanríkisráðherrar Norðurlanda fund í Kaupmannahöfn í lok október. Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, sat fundinn í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra. Eðlilega voru það hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september sl. og viðbrögð alþjóðasamfélagsins við þeim sem hæst bar á góma á fundinum. Ráðherrarnir fögnuðu þeirri einstöku samstöðu þjóða sem myndaðist gegn hvers kyns hryðjuverkum í kjölfar árasanna á Bandaríkin. Stækkun ESB var einnig rædd og var af hálfu Íslands lögð sérstök áhersla á mikilvægi þess að Ísland og Noregur fái greiðan aðgang að upplýsingum varðandi framgang samningaviðræðna við umsóknarríkin vegna þeirra áhrifa sem stækkun ESB mun hafa á Evrópska efnahagsvæðið.
    Utanríkisviðskiptaráðherrar Norðurlanda héldu einnig fund í Kaupmannahöfn í tengslum við Norðurlandaráðsþingið í lok október. Á fundinum bar hæst málefni Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, í tengslum við ráðherrafund stofnunarinnar er þá stóð fyrir dyrum. Einnig var rætt um formennsku Dana og Svía í ESB þar sem Ísland lagði m.a. verulega áherslu á hagsmuni EFTA-ríkjanna.
    Varnarmálaráðherrar Norðurlanda halda tvo fundi á hverju ári. Sækja embættismenn utanríkisráðuneytisins jafnan þá fundi fyrir hönd ráðherra. Í maímánuði var auk þess haldinn óformlegur fundur varnarmálaráðherra Norðurlanda í Brussel, sem Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sótti. Á fundinum lagði hann megináherslu á mikilvægi þess að Norðurlönd innan ESB ynnu ötullega að því að ESB kæmi til móts við eðlilegar kröfur Atlantshafsbandalagsríkjanna sex utan ESB um samráð varðandi aðgerðir hraðliðsins enda væri gert ráð fyrir að ESB fengi aðgang að búnaði og getu Atlantshafsbandalagsins til að ráðast í slíkar aðgerðir.
    Fundur norrænna þróunarmálaráðherra var haldinn í Finnlandi í ágúst. Embættismenn frá utanríkisráðuneytinu sóttu fundinn fyrir hönd ráðherra. Af málum sem á dagskrá fundarins voru má nefna umhverfis- og orkumál með tilliti til þróunarsamstarfs og fjármögnun þróunar með hliðsjón af leiðtogafundi sem haldinn verður í Mexíkó í mars 2002.
    Auk ráðherrasamstarfs skal þess getið að embættismenn utanríksráðuneyta Norðurlanda hafa gott og náið samstarf og samráð varðandi flesta málaflokka sem undir ráðuneytin heyra.
    

5. Menningarmál

    Norrænt menningarsamstarf einkennist nú um stundir af menningarlegri hnattvæðingu. Á þessu ári hefur norræna ráðherranefndin um menningarmál lagt sérstaka áhersla á að styðja við hið norræna fjölmenningarsamfélag, verkefni sem ætlað er að styrkja norræna menningarlega sjálfsvitund, sem byggist á menningarlegri fjölbreytni, umburðarlyndi og tillitssemi. Einnig er lögð aukin áhersla á stefnumótun á sviði fjölmiðlunar og upplýsingasamfélagsins. Embættismannanefnd um norrænt menningarsamstarf er nánasti samráðsvettvangur ráðherranna.
    Á vegum norrænu ráðherranefndarinnar um menningarmál starfa 8 stofnanir, Norræna húsið í Reykjavík (sjá nánar um Norræna húsið, kafla 25.1.), Norðurlandahúsið í Færeyjum, Norræn stofnun í Grænlandi, Norræn stofnun á Álandseyjum, Norræn fjölmiðlamiðstöð, gagnamiðstöð um fjölmiðlarannsóknir, listamannasetur í Dalsåsen og stofnun fyrir samtímalist í Sveaborg. Tveir sjóðir eru starfandi, Norræni menningarsjóðurinn og kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn. Stjórnar- og vinnunefndir eru 9, stjórnarnefnd um menningarverkefni erlendis, stjórnarnefnd um samstarf um fjölmiðla og menningarmál, samstarfsnefnd um Norðurlandafræðslu erlendis, stjórnarnefnd um samstarf um barna- og æskulýðsmenningu, æskulýðsnefnd, bókamennta- og bókasafnanefnd, tónlistarnefnd, leiklistar- og listdansnefnd og úthlutunarnefnd um ferðastyrki til ungs listafólks (SLEIPNIR).
    Á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar var haldin ráðstefna í Helsinki í október sl. sem bar heitið „Í byggingu“. Ráðstefnuna sóttu 200 þátttakendur frá norrænum menningarstofnunum og listalífi til að ræða um menningarleg gæði og menningarlega fjölbreytni sem hluta af starfsemi menningarstofnana og í öðru atvinnulífi.
    Á sviði kvikmynda og fjölmiðlunar komu út á árinu tvær skýrslur, annars vegar um framtíð sjónvarps í almannaþágu og hins vegar um sjónvarpssendingar milli norrænu landanna, unnin fyrir Norðurlandaráð. Ráðstefnan „Stafræn Norðurlönd“ var haldin í Helsinki í október sl., þar sem fjallað var um stafræna framleiðslu efnis, hvort sem um er að ræða fyrir kvikmyndir, sjónvarp eða tölvur. Í framhaldi af ráðstefnunni er nú unnið að stofnun norræns fjölmiðlunarsjóðs, sem m.a. verður ætlað að styðja við slíka framleiðslu.
    Á vettvangi norræns samstarfs er unnið að tillögum um breytingar á höfundalögum er varðar notkunarrétt á efni sem hljóðvarps- og sjónvarpsstöðvarnar eiga í söfnum sínum. Til að varpa frekara ljósi á þessa umræðu var að frumkvæði stjórnarnefndar um norrænt menningar- og fjölmiðlasamstarf haldin ráðstefna um tilskipun ESB um höfundarétt í upplýsingasamfélaginu í september sl. í Stokkhólmi.
    Málþing um þátttöku barna og ungs fólks í samfélögum lýðræðisríkja var haldið að frumkvæði norrænu æskulýðsnefndarinnar í Kajana í Finnlandi í apríl. Á málþinginu var m.a. rætt um hvernig hægt sé að auka þátttöku og áhrif ungs fólks á öllum stigum samfélagsins og hvernig hægt sé að auka þekkingu og upplýsingarstreymi milli þátttakenda í norrænu samstarfi. Þá var haldin ráðstefna um börn og ungt fólk í hinum dreifðu byggðum í Vaasa í Finnlandi í október í samstarfi við stjórnarnefnd um barna- og unglingamenningu. Sú nefnd stóð m.a. að þriðju listahátíð ungs fólks á Norðurlöndum, Ung i Norden, sem haldin var í Karlstad í Svíþjóð í samvinnu við sænsk stjórnvöld. Samstarf norrænu æskulýðsnefndarinnar og stjórnarnefndar um barna- og unglingamenningu er sífellt að aukast og er stefnt að enn nánara samstarfi á komandi árum. Gerð sérstakrar starfsáætlunar um barna- og unglingamenningu er á lokastigi og verður lögð fyrir ráðherranefndina um menningarmál á fyrri hluta árs 2002.
    Víkingasýningin Víkingar: Saga Norður-Atlantshafsins var á árinu sýnd í New York, Denver, Houston og Los Angeles og hefur alls staðar hlotið mikla umfjöllun og góða aðsókn. Árið 2002 verður hún sýnd í Ottawa í Kanada og í Minneapolis. Jafnframt hefur hönnunarsýningin Generation X New Nordic Design verið sýnd víða í Bandaríkjunum og í norrænu sendiráðsbyggingunni í Berlín.
    Í ár hófst norræn menningarkynning í Skotlandi, Írlandi og Englandi undir heitinu Network North, en hún hefur sem markmið að kynna norræna samtímalist á sviði bókmennta, kvikmynda, myndlistar og tónlistar og mynda tengsl á milli listamanna í þessum löndum og á Norðurlöndum. Meginþungi þessarar menningarkynningar verður á árinu 2002 og hefur stjórnarnefndin falið ýmsum norrænum samstarfsnefndum og stofnunum að sjá um hana. Sérstök áhersla er lögð á samstarf við sjálfsstjórnarsvæðin og eru norrænu húsin í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi með sérstaka sýningu um þá menningu sem tengist veiðum.
    Sinfóníuhljómsveitin í Prag hefur hlotið styrk til að hafa norræna tónlist á verkefnaskrá sinni í vetur. Verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson verður flutt af hljómsveitinni.
    Á árinu var samþykkt breyting á reglum um Norræna menningarsjóðinn, þannig að nú eiga sjálfsstjórnarsvæðin, Færeyjar, Grænland og Álandseyjar hvert sinn fulltrúa í stjórn sjóðsins. Í undirbúningi er að breyta reglum um Menningarsjóðinn enn frekar, þannig að hann fái meira sjálfstæði en nú er. Þá hefur reglum um stjórnarnefnd um norrænt menningar- og fjölmiðlasamstarf verið breytt, þannig að nú er fulltrúum sjálfsstjórnarsvæðanna heimilt að sækja fundi nefndarinnar og taka þátt í störfum nefndarinnar.
    Samstarfsnefnd um Norðurlandafræðslu erlendis stóð fyrir þremur ráðstefnum og málþingum á árinu. Í Búdapest var í október haldin ráðstefnan „Norræna tungumálaárið“ sem fjallaði um tungumálasamstarf Norðurlanda. Til ráðstefnunnar var boðið þeim lektorum sem kenna norræn tungumál í Austur-Evrópu. Ráðstefnunni var ætlað að auka þekkingu í samfélaginu um norræn tungumál og bókmenntir. Þá var haldin ráðstefna í Finnlandi í nóvember um gæði í kennsluefni í norrænum tungumálum á rafrænu formi. Einnig var að frumkvæði samstarfsnefndarinnar haldið málþing í Japan um norrænt samfélag og menningu.
Á samráðsfundi milli vestnorrænu menningarmálaráðherranna og Vestnorræna ráðsins, sem haldinn var í Kaupmannahöfn í lok október, var ákveðið að stofna til vestnorrænna barnabókaverðlauna sem veitt verði annað hvert ár. Tekur ráðherranefndin að sér að greiða fyrir þýðingar á bókunum.
    Verkefni sem falla innan ramma samstarfssamnings milli Færeyja, Grænlands og Íslands um mennta-, menningar- og vísindamál, hafa gengið vel. Námskeið um eflingu íþróttasamstarfs var haldið í Syðra Straumsfirði á Grænlandi í september. Markmiðið með námskeiðinu var að skapa persónuleg tengsl á milli ungra íþróttaleiðtoga þessara landa, ásamt því að koma á samskiptaneti, sem gæti leitt til aukinnar samvinnu þeirra á milli á sviði íþrótta. Norræna skólaíþróttanefndin hefur fengið nokkurn stuðning frá Norrænu ráðherranefndinni og hefur hún haldið ráðstefnur og íþróttadaga í skólum, auk þess sem ráðuneyti íþróttamála á Norðurlöndum halda árlega samráðsfundi um málefni íþrótta og um byggingar og rekstur íþróttamannvirkja.
    Meginverkefni ársins innan ramma samningsins var samstarf grunnskóla á sviði upplýsingatækni. Í því skyni var haldinn fundur í Reykjavík í september sl. með kennurum í þátttökuskólum vestnorræns samstarfs grunnskóla á sviði upplýsingatækni. Hugmyndir eru uppi um að þróa slíkt samstarf milli framhaldsskóla þessara landa.

6. Menntamál og rannsóknir

    Samstarf um menntamál og rannsóknir er umfangsmikið innan Norrænu ráðherranefndarinnar og tekur til grunn- og framhaldsskólastigs, fullorðinsfræðslu, háskóla og rannsókna. Samstarfið felst einkum í starfsemi stofnana, föstum styrkjakerfum og verkefnum sem stjórnað er af tilteknum stjórnarnefndum, sem hafa m.a. umsjón með faglegum vinnuhópum, sem skipaðir eru tímabundið. Að jafnaði er lögð áhersla á samfellu í starfseminni og verkefnum sem mótuð hafa verið af fyrrverandi formennskulöndum fylgt eftir. Undir forustu Íslands árið 1999 var unnið að mótun heildarstefnu um Norðurlönd, sem forgangssvæði í þróun mannauðs sem nær til tímabilsins 2000–2004.
    Ráðherranefndin um menntamál og rannsóknir lagði tillöguna um stefnumótun fyrir tímabilið 2000–2004 fram á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í nóvember 1999 og var hún samþykkt á þinginu. Leiddu Danir samstarfið á grundvelli heildarstefnunnar árið 2000 og Finnar árið 2001.
    Megináhersla er lögð á miðlun reynslu og samvinnu um þróunarstarf á vettvangi menntunar og rannsókna, aukinn hreyfanleika nemenda, kennara og vísindamanna milli landanna auk þess sem sérstök áhersla er lögð á símenntun.
    Markmiðið er að stuðla að því að hið norræna samfélag í menntamálum og rannsóknum verði virkur vettvangur fyrir pólitíska úrvinnslu þeirra málefna sem á döfinni eru, vettvangur þar sem menn geta lært af reynslu hvers annars og þróað samnorrænar aðgerðir. Lögð er áhersla á skýrari verkaskiptingu milli landanna og að áfram verði skilgreind betur þau verkefni sem skynsamlegra þykir að vinna að sameiginlega á norrænum vettvangi en í hverju landi fyrir sig.
    Áfram er stefnt að því að formennskulandi sé falið aukið hlutverk hvað varðar tillögur um málaflokka og verkefni til úrvinnslu. Gert er ráð fyrir að á tímabilinu verði mat lagt á starf ráðgjafanefnda og fastra stjórnarnefnda sem undir ráðherranefndina heyra og hlutverk þeirra endurskoðað.
    Lögð er áhersla á að skapa beri meiri breidd og heildstæðari skilning á hæfni af sjónarhóli símenntunar og frumkvæði haft um viðræður um þessi atriði við fulltrúa atvinnulífsins á Norðurlöndum. Unnið er að auknum samskiptum ráðherra menntamála og rannsókna og menningarmálaráðherra við Norðurlandaráð. Með því er hugað að langtímaskipulagningu þannig að norræna samstarfið svari betur kröfum tímans.
    Á sviði menntamála og rannsókna er þannig áfram unnið að því að efla samstarf norrænu landanna jafnframt því að styrkja samstarf við önnur Evrópuríki sem og við grannsvæði Norðurlanda. Lögð er áhersla á að styrkja norræn viðhorf í alþjóðasamstarfi og sjónum áfram beint sérstaklega að eflingu tengsla milli hinna vestlægu Norðurlanda og annarra ríkja á Norðurlöndum. Stefnt er að því að jafnauðvelt verði að mynda tengsl, skiptast á hugmyndum og flytjast frá einu fræðslu- og rannsóknarumhverfi til annars á Norðurlöndum og innan eigin lands.
    Áhersla er lögð á sjálfbært samfélag á Norðurlöndum, sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og málefni hafsins. Þessir áhersluþættir hafa skírskotun til verkefna á sviði menntunar og rannsókna.
    Haldið var áfram öflugu samstarfi um tungumál, kennslu í raungreinum og tækni, þróun upplýsingatækni á sviði menntunar og rannsókna, og sjónum var beint að gæðum í skólastarfi, hlutverki menntunar á vinnumarkaði og fullorðinsfræðslu. Málefni barna og unglinga voru einnig í brennidepli. Unnið er að fjölmörgum verkefnum á þessum sviðum á vegum ráðherranefndarinnar. Ráðherranefnd menntamála og rannsókna heldur þrjá fundi árlega. Frá 1998 hafa ráðherrarnir tekið tiltekin þemu til umræðu á fundum sínum. Taka þemun mið af þeim málefnum sem ráðherrarnir leggja áherslu á að vinna að á norrænum vettvangi. Hafa ráðherrar rætt um mat og gæði í skólastarfi á öllum skólastigum að háskólastigi meðtöldu, stöðu norrænna málsamfélaga í ljósi hraðfara þróunar upplýsingatækni og æðri menntun á Norðurlöndum, lagskiptingu nemenda í háskólum á Norðurlöndum, fjármögnun og þróun háskóla á Norðurlöndum.
    Á árinu ræddu ráðherrarnir Dakar-yfirlýsingu Unesco sem samþykkt var í Senegal árið 2000. Miðast Dakaryfirlýsingin m.a. við að árið 2015 verði öllum börnum, sérstaklega stúlkum, minnihlutahópum og börnum sem búa við erfiðar aðstæður, búin góð menntunarskilyrði. Þá er stefnt að því með Dakar yfirlýsingunni að 50% fullorðinna í heiminum verði læsir og hljóti viðunandi menntun. Sérstök áhersla er þar lögð á konur og minnihlutahópa. Ráðherrarnir ræddu sérstaklega þróunaraðstoð landanna og möguleika á norrænu samstarfi í því sambandi.

Norrænar stofnanir.
    Á vettvangi ráðherranefndar menntamála og rannsókna eru starfandi níu norrænar stofnanir þar af ein á Íslandi, Norræna Eldfjallastöðin (NORDVULK) (sjá nánar kafla 25.2).

Fastar nefndir.
    Á vegum ráðherranefndar um menntamál og rannsóknir starfa auk embættismannanefndarinnar, sem m.a. undirbýr ráðherrafundi auk annarra verkefna sem henni eru falin af ráðherranefndinni, þrjár stjórnarnefndir, NSS (samstarf um skólamál), HÖGUT (samstarf um æðri menntun) og FOVU (samstarf um fullorðinsfræðslu). Í stjórnarnefndunum NSS og FOVU eiga sæti einn fulltrúi frá hverju norrænu landanna en tveir í stjórnarnefndinni HÖGUT. Verksvið nefndanna spannar grunnskóla og framhaldsskóla auk skóla á háskólastigi og fullorðinsfræðslu. Auk stjórnarnefndanna starfa vinnuhópar að tilteknum verkefnum. Á vegum stjórnarnefndanna hafa verið haldnar fjölmargar ráðstefnur á árinu um þau málefni sem undir þær heyra auk þess sem þær hafa staðið að ýmsum útgáfum.

Samstarf um skólamál.
    NSS-stjórnarnefndin hefur umsjón með norrænu samstarfi um skólamál á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Verksvið NSS tekur til leik-, grunn- og framhaldsskóla og er unnið eftir starfsáætlun sem tekur til áranna 2000–2004. Áherslurnar í starfi nefndarinnar beinast að því að bæta skólastarf á Norðurlöndum og í því skyni tekur nefndin til umfjöllunar mál sem eru efst á baugi á hverjum tíma, ber saman lausnir og aðferðir sem beitt hefur verið í einstökum löndum og miðlar upplýsingum um skóla og skólastarf til þeirra sem hlut eiga að máli.
    Samkvæmt starfsáætlun byggist samstarfið á þremur megin þáttum.
    Í fyrsta lagi samstarfi milli norrænu landanna, í öðru lagi samstarfi við grannsvæðin og í þriðja lagi er lögð áhersla á tengsl við verkefni á vettvangi ESB.
    Í samræmi við heildarstefnu norrænu mennta- og vísindamálaráðherranna var á árinu, að frumkvæði Finna sem fóru með formennsku í norrænu samstarfi á árinu, lögð áhersla á að endurmeta starfshætti nefndarinnar og móta nýjar áherslur. Stefnt er að því að starfsemin verði innan fjögurra meginsviða, þ.e. taki til símenntunar, gilda, sýnileika og gæða í skólastarfi. Öll helstu verkefni sem komið hafa upp í samstarfinu má fella undir eitthvert þessara sviða.
    Eins og fyrr hefur samstarfið verið mjög gagnlegt fyrir Ísland og hefur gert það kleift að fylgjast með því sem er að gerast annars staðar á Norðurlöndum og víðar og haft áhrif á umræður um skólamál hér á landi. Vandamál sem koma upp í skólastarfi eru yfirleitt ekki bundin við eitt einstakt land heldur eru þau flest sameiginleg með fleiri löndum og hvetur þetta til náins samstarfs á þessu sviði.

IDUN II.
    IDUN II er norrænt samstarfsverkefni um breytingar í námi og kennslu með aukinni notkun Netsins í skólastarfi. IDUN II er þriggja ára verkefni sem hófst haustið 1999 og lýkur vorið 2002. Það heyrir beint undir ráðherranefndina en NSS, FOVU og HÖGUT hafa haft umsjón með framkvæmdinni. Verkefnið byggist á notkun Netsins til samskipta milli skóla þar sem fjallað er um mismunandi þætti skólastarfsins. Markmið verkefnisins er að safna og miðla reynslu um breytt hlutverk kennarans á tímum nýrrar tækni með því að birta upplýsingar á vef verkefnisins.

Norræn málnefnd.
    Norræna málnefndin hélt þrjá fundi á árinu og úthlutaði styrkjum til ýmissa samtaka til þess að halda námskeið, efna til ráðstefna eða gefa út bækur. Unnið var að bók um Sama, mál þeirra og menningu. Bókin er nú í prentun. Nefndin veitti fé til þess að láta rannsaka áhrif ensku á öll norrænu tungumálin og voru niðurstöður kynntar á ráðstefnu í Pargas í Finnlandi í nóvember sl. Fyrirhugað er að birta útdrátt úr niðurstöðunum.

Samstarf um fullorðinsfræðslu.
    FOVU stjórnunarnefndin hefur umsjón með norrænu samstarfi um fullorðinsfræðslu. Nefndin hefur unnið í samræmi við verkefnaáætlun til fimm ára, 2000–2004. Í verkefnaáætluninni er lögð áhersla á fullorðinsfræðslu og símenntun almennt og hvernig meta megi hæfni, reynslu og þekkingu sem fullorðið fólk hefur aflað sér á vinnumarkaði bæði sem ígildi náms í skóla og hvernig meta megi slíka reynslu og þekkingu sem grundvöll til áframhaldandi náms. Í verkefnaáætluninni er einnig lögð mikil áhersla á að finna leiðir til að koma til móts við fullorðið fólk með stutt nám að baki. Þá er lögð mikil áhersla á að þróa og efla áfram þátt lýðfræðslunnar sem hornsteins lýðræðis á Norðurlöndum. Lögð er áhersla á að fylgst verði með þátttöku fullorðinna á Norðurlöndum í símenntun og hún borin saman á milli landanna og einnig við lönd utan Norðurlanda.
    Af helstu verkefnum sem nefndin hefur unnið að á árinu má nefna eftirfarandi:
    Á árinu 2000 skipaði FOVU nefnd til þess að kortleggja og bera saman hvernig löndin standa að mati á hæfni og óformlegu námi fullorðinna. Nefndin skilaði skýrslu um málið í mars og í ágúst stóð FOVU fyrir ráðstefnu um mat á færni og óformlegu námi fullorðinna. Áætlað er að vinna áfram að þessum málaflokki.
    Á árinu 2001 var unnið að könnun á þátttöku fullorðinna í símenntun og var staða þeirra mála borin saman innan norrænu landanna jafnframt því sem samanburður var gerður við aðildarlönd OECD. Þetta verkefni hófst árið 2000 og lauk með útgáfu viðamikillar skýrslu sem kom út haustið 2001 (NOMAD). Með könnuninni átti m.a. að finna út hvort hægt sé að tala um sérstakt módel í fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum. Niðurstaðan er sú að þátttaka fullorðinna í símenntun á Norðurlöndum er mjög mikil og mun meiri en í flestum öðrum löndum OECD en ekki er hægt að tala um neitt sérstakt módel í fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum. Lítill munur reyndist vera milli norrænu landanna á þátttöku fullorðinna í símenntun.
    Stjórnunarnefndin ákvað á árinu að gera könnun á aðgengi fullorðinna að tölvum og í hve miklum mæli þeir nota sér þær. Starfshópur um verkefnið hefur verið skipaður og er þess vænst að hann skili af sér á fyrrihluta ársins 2002.
    Á árinu hefur eins og á undanförnum árum verið unnið að því að styrkja og styðja lýðfræðslu á grannsvæðum Norðurlanda. Í því sambandi hefur norræna lýðfræðslustofnunin (NFA) staðið fyrir námskeiðum fyrir þátttakendur frá Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur–Rússlandi. Þar er um að ræða námskeið fyrir einstaklinga og stofnanir. Námskeiðin hafa bæði farið fram við NFA og í löndunum sjálfum. Þessu verkefni lýkur á árinu en stjórnunarnefndin mun á næsta ári fjalla um hvernig hægt er að halda þessu starfi áfram.
    Í alþjóðlegu starfi hefur stjórnunarnefndin ákveðið að bjóða þeim aðilum sem fjalla um Grundtvigáætlun ESB til ráðstefnu á næsta ári.
    Stór þáttur í starfi stjórnunarnefndar um fullorðinsfræðslu er að veita styrki til félaga, stofnana, samtaka og einstaklinga í þeim tilgangi að auka og efla menntun og samstarf fullorðinna á Norðurlöndum. Fjármagn til þessara samstarfsstyrkja hefur aukist á undanförnum árum og sérstök áhersla hefur verið lögð á að veita þeim sem starfa að fullorðinsfræðslu á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum ferðastyrki til þess að auðvelda þeim samstarf við önnur ríki Norðurlanda.

Samstarf um æðri menntun.
    HÖGUT-stjórnarnefndin hefur umsjón með samstarfi um æðri menntun á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Helsta hlutverk HÖGUT er að stuðla að eflingu norræns samstarfs um æðri menntun m.a. með athugunum, sérstökum verkefnum, ráðstefnum og samráði við háskóla. Á verksviði nefndarinnar eru meðal annars verkefni á sviði grunnmenntunar og rannsókna og auk þess hefur HÖGUT umsjón með NORDPLUS-áætluninni sem felst í stúdenta- og kennaraskiptum. Á hverju ári taka alls um 5000 nemendur og kennarar á Norðurlöndum þátt í áætluninni. Í NORDPLUS gefst námsmönnum tækifæri til að stunda hluta af námi sínu, allt að eitt ár, við háskóla annars staðar á Norðurlöndum og fá námið metið að fullu til eininga í heimalandi sínu. Þá er gefinn kostur á kennaraskiptum og fleiru er lýtur að kennslustörfum.
    HÖGUT hefur samþykkt nýja starfsáætlun fyrir árin 2002–2004. Forgangsverkefni verða valin með hliðsjón af eftirfarandi sviðum:
     –      Norðurlönd sem leiðandi á sviði aukinnar hæfni og ævilangrar menntunar.
     –      Auknir möguleikar upplýsingatækni.
     –      Aukin gæði æðri menntunar.
     –      Alþjóðavæðing og stuðningur við hreyfanleika.
    Embættismannanefndin um menntamál og rannsóknir hefur áætlunina til umfjöllunar. Á grundvelli starfsáætlunar mun HÖGUT vinna nákvæmari verkefnaáætlun sem lögð verður fyrir embættismannanefndina til staðfestingar fyrri hluta árs 2002.
    Gildistími samnings um aðgang að æðri menntun hefur verið framlengdur til ársins 2003. Meginatriði samningsins er að allir norrænir stúdentar hafi jafnan aðgang að öllum háskólum á Norðurlöndum. Í samningnum eru ákvæði um greiðslukerfi sem Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa tekið upp sín á milli. Samkvæmt þessu kerfi skulu þau ríki sem senda frá sér fleiri stúdenta en þau taka á móti greiða ákveðið gjald fyrir mismuninn. Ísland hefur verið undanþegið þessum ákvæðum.
    Þá verður jafnframt áfram í gildi samkomulag milli Noregs og Danmerkur um kvóta á fjölda námsmanna í ákveðnum greinum. HÖGUT hefur undirbúið skjal sem á að vera umræðugrunnur fyrir ráðherranefndina áður en tekin verður endanleg afstaða til þess hvort hentugra þykir að viljayfirlýsing komi í stað samnings. Skjal þetta er til umfjöllunar hjá embættismannanefndinni.

Norrænt rannsóknarsamstarf.
    Á sviði norrænu ráðherranefndarinnar um menntamál og rannsóknir starfar ráðgefandi norrænt vísindastefnuráð FPR (Nordisk Forskningspolitisk Råd). Er það jafnframt ráðgefandi um stefnumörkun í vísinda- og tæknirannsóknum á öðrum fagsviðum ráðherranefndarinnar eftir því sem við á. Helsta hlutverk ráðsins er að leggja tillögur fyrir ráðherranefndina um norræna rannsóknarstefnu til að stuðla að markvissri forgangsröðun verkefna, með þverfaglegt samstarf í huga þar sem tekið er tillit til áherslna einstakra aðildarlanda. Að tillögu FPR er unnið að norrænum rannsóknaáætlunum á eftirfarandi rannsóknarsviðum:
     –      Netsamstarf um þjóðfræðirannsóknir.
     –      Vistfræði og mannlíf á Norðurslóðum.
     –      Kynbundið ofbeldi.
     –      Tungutækni.
     –      Velferðarþjóðfélagið.
     –      Varnarmál
     –      Vestnorrænt hafveðurfar.
    Auk ofangreindra rannsóknaráætlana eru norrænar stofnanir á starfssviði ráðsins Nordisk Forskeruddannelsesakademi (NorFA), sem veitir styrki til vísindalegs framhaldsnáms og til erlendra vísindamanna til starfa á Norðurlöndum. Þá gegnir Norræni iðnaðarsjóðurinn (NI) mikilvægu hlutverki í stuðningi við rannsóknir og þróun á sviði vísinda og tækni í þágu atvinnulífisins og hefur m.a. veitt verulegan stuðning við þróun upplýsingatækni, matvælatækni og líftækni á Íslandi með norrænum samstarfsverkefnum.
    Athugun á vísindalegum afköstum og fjármagni sem veitt er til rannsókna leiðir í ljós að Norðurlönd sem heild standa mjög sterk á sviði vísinda og tækni og geta sameiginlega boðið umheiminum upp á „framúrskarandi vísindasamstarf“ sem væri áhugavert fyrir önnur lönd.
    Undir lok ársins var að tillögu FPR samþykkt sameiginleg tilraunaáætlun ráðherranefndarinnar og samstarfsnefnda norrænna rannsóknarráða á sviði náttúruvísinda (NOS-N) um stuðning við netsamstarf um „öndvegissetur“ (Centres of Excellence) á sviði „hnattrænna breytinga“ sem fjalla um áhrif mannsins á veðurfar á jörðinni, ekki síðst á Norðurslóðum. Áætlunin verður sett af stað á árinu 2002.

Ráðgjafanefnd um upplýsingatækni.
    Frá því árið 1996 hefur verið starfandi sérstök ráðgjafarnefnd um stefnumótun í upplýsingatækni fyrir ráðherranefndina um menntamál og rannsóknir. Á árinu 1998 samþykkti ráðherranefndin þriggja ára rannsóknar- og þróunaráætlun sem nefnist NORDUnet2. Markmið áætlunarinnar var að viðhalda og efla samkeppnishæfni norrænu þjóðanna á sviði menntunar og rannsókna með því að þróa ný samvinnu- og samskiptaform byggð á aðferðum upplýsingatækninnar. Þannig var stefnt að því að Norðurlönd héldu þeirri forustu í notkun háþróaðra tölvuneta (með Internettækni) sem þau höfðu í upphafi þessa áratugar þegar norræna samnetið, NORDUnet, var stofnað.
    Ávinningur af þátttöku í NORDUnet2 fyrir Íslendinga hefur meðal annars falist í þátttöku sérfræðinga á sviði háskóla og rannsókna í vinnuhópum um fjarlækningar, fjarkennslu, rafræn bókasöfn og tæknimál til samskipta á Netinu. Beinan ávinning hafa iðnfyrirtæki, netþjónustufyrirtæki, rannsóknabókasöfn, skólar, opinberir fjölmiðlar og fleiri vegna verkefna sem hafa verið styrkt undir hatti áætlunarinnar. Íslensk fyrirtæki, sem framarlega standa, t.d.í margmiðlun, hafa fengið tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri á álitlegu markaðssvæði og íslenskir notendur Netsins hafa fengið aðgang að nýjum nýtingarmöguleikum jafnskjótt og aðrir Norðurlandabúar. Verkefnið fór hægt af stað en árangur af síðasta ári var góður. Umræður um framhald verkefnisins fóru fram á árinu.
    

7. Upplýsingatækni


Vinnuhópur/embættismannanefnd.
    Á árinu 2001 vann sérstakur vinnuhópur háttsettra embættismanna að því að koma samstarfi norrænu landanna á sviði upplýsingatækni í fastan farveg og undirbúa fund norrænna upplýsingatækniráðherra. Í kjölfar ráðherrafundarins var ákveðið að samstarfið á sviði upplýsingatækni yrði framvegis með sama sniði og annað norrænt samstarf og yrði því stofnuð formleg embættismannanefnd (ÄK-IT) sem ynni með ráðherranefnd um upplýsingatækni (MR-IT).

Ráðherrafundur um upplýsingatækni.
    Þann 27. september sl. var haldinn ráðherrafundur í Helsinki. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra sótti fundinn sem var fyrsti formlegi fundur UT-ráðherranefndarinnar (MR-IT) sem stofnuð var árið 1999.
    Löndin lögðu hvert um sig fram skjöl sem voru grundvöllur þeirrar umræðu sem fram fór. Ísland lagði fram skjal um öryggismál. Í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum eru öryggismál tengd upplýsingakerfum tekin mun fastari tökum en áður. Lagt var til að öryggismálin yrðu eitt af samstarfsverkefnum Norðurlandanna á sviði upplýsingatækni og fékk sú tillaga góðar undirtektir.
    Einnig ræddu ráðherrarnir ýmis mál sem miklu varða fyrir þróun upplýsingasamfélags á Norðurlöndum svo sem skipting samfélagsins í þá sem hafa aðgang að og hafa tileinkað sér upplýsingatæknina og hina sem sitja hjá. Ljóst er að aðgengi almennings að Interneti og tölvutækninni almennt er gott í öllum norrænu löndunum, ekki síst Íslandi, en ákveðnir hópar, svo sem eldri kynslóðin og dreifðustu byggðirnar nýta sér tæknina í minna mæli en aðrir. Bent var á að ekki hafa allir áhuga á eða vilja til að tileinka sér tæknina. Nú þykir tímabært að leggja áherslu á aukið öryggi og uppbyggingu þekkingar og færni í notkun tækninnar fremur en aukið aðgengi.
    Þá var fjallað um hvernig litlum og meðalstórum fyrirtækjum gengur að tileinka sér upplýsingatæknina og fjarskiptamál í víðu samhengi.
    Rafræn stjórnsýsla, kunnátta og hvatning til almennings til að nýta sér þá rafrænu þjónustu sem í boði er var einnig til umræðu og ljóst að á þessu sviði er mikill áhugi fyrir samstarfi og upplýsingamiðlun milli landanna.
    Á fundinum samþykktu ráðherrarnir tillögu frá hagstofum norrænu landanna um að setja af stað norrænt samstarfsverkefni varðandi tölfræði upplýsingasamfélagsins.
    

8. Samstarf við grannsvæði Norðurlanda

    Samstarfið við grannsvæðin á árinu hefur verið í samræmi við rammaáætlun ráðherranefndarinnar um grannsvæðasamstarfið árin 2000–2002, og tekur til eftirfarandi starfsemi: upplýsingamiðlun og samskipti, þ.m.t. rekstur norrænna upplýsingaskrifstofa á grannsvæðunum, styrkjakerfi og verkefni á ýmsum sviðum.

Verkefni.
    Fjárveitingar ráðherranefndarinnar til grannsvæðasamstarfsins námu 70,22 millj. d.kr. á árinu. Auk þess runnu u.þ.b. 65 millj. d.kr. frá öðrum samstarfssviðum til starfsemi og verkefna í samstarfi við grannsvæðalöndin.
    Af fjárlögum grannsvæðasamstarfsins var veitt um 2,7 millj. d.kr. til samstarfsins um málefni Norðurskautssvæðisins. Norðurskautssamstarfið er þáttur í grannsvæðaáætluninni og verkefni innan þess varða málefni frumbyggja, lífskjör og afkomu íbúa og sjálfbæra nýtingu auðlinda á Norðurskautssvæðinu.

Upplýsingaskrifstofurnar, upplýsingamiðlun og samskipti.
    Starfsemi upplýsingaskrifstofanna í Tallinn, Ríga, Vilníus og Pétursborg hefur tekið breytingum en þær koma nú í ríkari mæli að framkvæmd verkefna fyrir ráðherranefndina. Markmiðið með því er að sníða verkefnin sem best að þörfum grannsvæðalandsins.

Styrkja- og dvalarkerfi.
    Norræna styrkjakerfið vegna Eystrasaltsríkjanna og Rússlands var stofnað árið 1991 og markmið þess og áherslur hafa tekið breytingum á tímabilinu. U.þ.b. 85% styrkjanna eru veitt til uppbyggingar tengslanets kennara, vísindamanna og námsmanna, með áherslu á norræn tungumál, menningu og samfélag og umhverfistækni en 15% er veitt til að byggja upp tengslanet frjálsra félagasamtaka, með áherslu á heilbrigðis- og velferðarmál, börn og ungmenni, konur og jafnrétti. Gerð var úttekt á styrkjakerfinu á árinu og það framlengt til ársloka 2002.
     Starfsmannaskipti eru í umsjón upplýsingaskrifstofanna á grannsvæðunum, sem eykur skilvirkni við val á þátttakendum og úrvinnslu og möguleikana á að mæta breytilegum þörfum. Markmiðið með styrkveitingum til Eystrasaltsríkjanna er uppbygging tengslanets og þekkingar sem liður í undirbúningi landanna fyrir inngöngu í ESB. Við styrkveitingar til Rússlands er leitast við að stuðla að þróun í átt að lýðræði og stöðugleika með því að styrkja þróun stjórnunartækja og stjórnkerfis í opinberri stjórnsýslu.
     Þingmannaskipti: Styrkja- og skiptidvalarkerfi þingmanna er í umsjón Norðurlandaráðs. Markmiðið er að miðla reynslu af norrænu þingmannasamstarfi og fulltrúalýðræði. Styrkjakerfið var endurskoðað á árinu og í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um hvort þörf sé á breyttum áherslum í rammaáætluninni fyrir tímabilið 2003–2005.

Ný stefnumótun.
    Norðurlandaráð samþykkti í október samstarfsáætlun fyrir Norðurskautssamstarfið og nýja stefnumótun um grannsvæðasamstarfið, „Nær Norðurlöndum“. Meginmarkmiðum stefnumótunarinnar verður því beitt í starfsáætluninni fyrir árið 2002 sem nær til grannsvæðanna í austri og Norðurskautssvæðisins.
    Nýja stefnan í grannsvæðasamstarfinu hefur í reynd þegar tekið gildi, þar sem sumar tillögur hennar hafa verið framkvæmdar á árinu í takt við þróunina á grannsvæðunum. Stefnan verður framkvæmd að fullu í rammaáætlunni fyrir árin 2003–2005.
    Meginmarkmið nýrrar stefnumótunar um grannsvæðasamstarfið „Nær Norðurlöndum“ eru:
     –      Áherslu ætti að leggja á fá, stór verkefni, sem hafa sýnileg áhrif og pólitískt vægi.
     –      Aukna áherslu ætti að leggja á Norðvestur-Rússland.
     –      Aðgerðir ættu að mæta þörfum þess grannsvæðalands sem þær eiga að gagnast og hafa ber í huga mismunandi þarfir og óskir landanna.
     –      Tryggja ætti upplýsingamiðlun milli upplýsingaskrifstofanna, stjórnvalda og norrænna sendiráða í löndunum.
     –      Tryggja ætti betri samhæfingu við aðgerðir norrænu landanna hvers um sig.

Norðurskautssamstarfið.
    Norðurlandaráð samþykkti í október samstarfsáætlun fyrir Norðurskautssamstarfið. Markmið norræns samstarfs um málefni Norðurskautssvæðisins eru að þróa og bæta lífsgæði íbúanna og samgöngur á svæðinu auk efnahagslegra forsenda fyrir áframhaldandi búsetu. Sérstök áhersla verður lögð á fjárhagslega, félagslega og menningarlega stöðu frumbyggja og umhverfi þeirra.
    Samstarfsáætlunin hefur einnig sem markmið að varðveita óbyggðirnar, náttúrugæði og fjölbreytileika náttúrunnar sem og að tryggja ábyrga og sjálfbæra nýtingu auðlinda á svæðinu í samræmi við hagsmuni þeirra landa sem eiga landsvæði á Norðurskautssvæðinu og í samræmi við takmarkanir vistkerfisins. Mikil áhersla er lögð á að takmarka og fjarlægja orsakir mengunar lands, sjávar, jökla og umhverfis þeirra með sameiginlegum aðgerðum. Um leið er leitast við að þróa hentugar samstarfsaðferðir og samstarfsstofnanir Norðurskautslandanna og leggja þá skyldu á löndin að þau fylgi eftir þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið en það er gert með sameiginlegri fjármögnun, verkefnastjórnun o.s.frv. Samkvæmt rammaáætluninni skiptist Norðurskautssamstarfið í þrjú svið:
     –      Frumbyggjar, þ.e.a.s. úttekt á og upplýsingar um lífskjör þeirra og tekjumöguleika, svo og uppbygging þekkingar og afnám hindrana fyrir framleiðslu hefðbundinna afurða frá Norðurskautssvæðinu. Almenn atvinnuþróun og möguleikar á tekjuöflun í dreifðum byggðum.
     –      Velferð og lífsgæði íbúa Norðurskautssvæðisins, einkum ákvarðanir sem stuðla að bættu heilbrigði, nýjar leiðir í uppbyggingu heilbrigðiskerfisins t.d. með fjarlækningum, og uppbygging tengslanets milli kvenna sem starfa að rannsóknum og milli hinna mismunandi samtaka kvenna.
     –      Sjálfbær þróun á Norðurskautssvæðinu, á grundvelli skýrslunnar „Sjálbær þróun, ný stefna fyrir Norðurlönd“. Hér má m.a. nefna samstarfsáætlun um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurskautssvæðinu, líffræðileg fjölbreytni, vistvæn ferðaþjónusta o.fl.
    Norræna ráðherranefndin á nú áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu. Í samræmi við samstarfsáætlunina fyrir Norðurskautssamstarfið mun sérfræðinganefnd, sem samanstendur af starfsmönnum utanríkisráðuneyta landanna sem hafa með höndum málefni Norðurskautsins, koma að verkefnavali og framkvæmd samstarfsáætlunarinnar.

9. Orkumál


Inngangur.
    Markmiðið með samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála er að stuðla að sjálfbærri, skilvirkri, samkeppnishæfri og öruggri orkuöflun á Norðurlöndum og grannsvæðunum. Lögð er áhersla á að orkulindir og orka sé nýtt með skilvirkum hætti til að efla atvinnulíf og styrkja efnahag og stóraukin áhersla hefur verið lögð á nýtingu endurnýjanlegra orkulinda á síðustu árum eins og víðast hvar annars staðar í heiminum. Áherslur í samstarfinu og þau verkefni sem unnið er að eiga að hafa pólitíska þýðingu fyrir Norðurlönd.
    Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála hefur eflst á síðustu árum. Áherslum var talsvert breytt á fundi forsætisráðherra Norðurlanda um sjálfbæra orkuöflun á Eystrasaltssvæðinu í Bergen árið 1997. Í kjölfarið hefur starf embættismannanefndarinnar í auknum mæli beinst að grannsvæðunum og þá einkum Eystrasaltsríkjunum. Á árinu samþykktu orkuráðherrarnir rammaáætlun fyrir samstarf á sviði orkumála þar sem gerð er grein fyrir starfinu og lagðar meginlínur fyrir framhald þess, en drög að samstarfsáætluninni voru kynnt á fundi ráðherranna í Grænlandi haustið 2000. Áætlunin tekur mið af þeim öru breytingum sem eiga sér stað í orkumálum á alþjóðavettvangi, ekki síst innan ESB og nágrannalandanna í austri.

Stefnumótunaráætlun fyrir norrænt samstarf á sviði orkumála.
    Orkuráðherrarnir samþykktu stefnumörkun um samvinnu á sviði orkumála á fundi sínum í Helsinki í september sl. Í stefnumörkuninni er gert ráð fyrir því að leggja áherslur í samstarfinu á þrjú kjarnasvið. Í fyrsta lagi opnun raforkumarkaðarins, í öðru lagi loftslagsmál og í þriðja lagi svæðisbundna samvinnu. Í áætluninni er lögð áhersla á samstarf við aðra málaflokka í norrænu samstarfi, og einnig er lögð áhersla á að vinna að sérverkefnum, t.d. þróun vetnissamfélags á Norðurlöndum og hvernig beri að leysa orkuvandamál strjálbýlli svæða. Þá er í áætluninni fjallað um hlutverk NEFP (Norrænu orkurannsóknaáætlunarinnar) við að styðja við rannsóknir á kjarnasviðum áætlunarinnar og raunar var gerð breyting á skipulagi áætlunarinnar á árinu til að styrkja tengsl hennar við embættismannanefndina. Þá var lögð fram og samþykkt ný orkurannsóknaráætlun fyrir tímabilið 2003–2006.
    Samstarfið við grannsvæðin í austri grundvallast á því starfi sem unnið hefur verið í samræmi við Bergenyfirlýsinguna og niðurstöðum fundar norrænu orkuráðherranna og starfsbræðra þeirra handan Eystrasaltsins sem haldinn var í Stafangri árið 1998 og í Helsinki árið 1999.
    Loks ber að nefna að samvinna Norðurlanda á sviði orkumála hefur meðal annars beinst að framkvæmd tilskipana ESB um innri markað á sviði raforku og innri markað á sviði jarðgass. Þar hefur samstarfið gagnast okkur Íslendingum vel þar eð við höfum fengið upplýsingar um þróun mála innan ESB á embættismannafundum. Hið sama hefur gilt um samstarf innan undirnefndar um loftslagsmálin, þar hafa fundir með öðrum Norðurlöndum komið okkur að góðu gagni hvað varðar upplýsingagjöf.
    
Opni norræni raforkumarkaðurinn.
    Innan Norðurlanda er löng hefð fyrir samvinnu á sviði raforkumála bæði á pólitískum og tæknilegum vettvangi auk samstarfs fyrirtækja. Á þessum áratug hafa átt sér stað miklar breytingar á skipan raforkumála á Norðurlöndum. Norðmenn hófu fyrstir breytingar og gáfu viðskipti með raforku frjáls. Síðan hafa bæði Svíar og Finnar og nú síðast Danir komið á markaðsbúskap í viðskiptum með raforku, meðal annars til þess að hrinda í framkvæmd tilskipun ESB um innri markað á sviði raforku. Hér á landi mun tilskipun ESB væntanlega taka gildi á árinu 2002 og við höfum notið góðs af reynslu Norðurlandaþjóða við undirbúning á nýrri löggjöf um raforkumál.
    Í áætluninni er fjallað um þau svið sem samstarf þarf að beinast að m.a. í því skyni að tryggja öryggi í framleiðslu og flutningi og til að draga úr notkun orkugjafa er valda losun gróðurhúsalofttegunda sem og að örva fyrirtæki til að nota endurnýjanlegar orkulindir.
    Á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á að kanna forsendur fyrir aukinni samtengingu raforkumarkaðarins umhverfis Eystrasalt og meta afleiðingar þess. Er í áætluninni bent á nauðsyn þess að raforkumarkaðurinn á Norðurlöndum tengist í auknum mæli markaði annarra Evrópuríkja og þá sérstaklega í Eystrasaltsríkjunum og Austur-Evrópu. Sérstakur starfshópur ráðherranefndarinnar sinnir þessu verkefni.
    
Orka og loftslagsmál.
    Allt frá 1994 hafa loftslagsmálin verið mál, sem orkuráðherrarnir hafa fjallað reglulega um í ljósi þess að orkuframleiðsla og orkunotkun er veigamikill þáttur í losun gróðurhúsalofttegunda. Undanfarin ár hefur starfað sameiginlegur starfshópur ráðherranefndanna um orkumál og umhverfismál. Verkefni starfshópsins hafa fyrst og fremst snúist um viðfangsefni sem tengjast rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Starf þessa hóps hefur verið öflugt og vakið athygli og mikilvægi þessa samstarfs hefur komið í ljós undanfarið í tengslum við undirbúning loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna á sl. árum.
    Unnið hefur verið að undirbúningi að því að Eystrasaltssvæðið verði eins konar tilraunasvæði (testing ground) í viðskiptum með losunarheimildir, en á ráðherrafundinum í Reykjavík 1999 samþykktu orkuráðherrarnir að leggja til að það verkefni yrði kannað. Í áætlun ráðherranna er lögð áhersla á þetta atriði og lagt til að gerður verði rammasamningur um tilraunasvæði og jafnframt að gerður yrði rammasamningur við Eystrasaltsríkin um sameiginleg verkefni til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
    
Svæðisbundin samvinna – lykill að sjálfbærri þróun.
    Á árinu 1998 samþykktu forsætisráðherrar Norðurlanda yfirlýsingu um sjálfbær Norðurlönd og á aukaþingi Norðurlandaráðs í Oslo í apríl sl. var fjallað sérstaklega um það efni. Í áætlun orkuráðherranna er lögð áhersla á að efla samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði orkumála þar sem m.a. verði lögð áhersla á að bæta skilyrði fyrir nýjar fjárfestingar þar, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með notkun hreinni orkugjafa. Á því sviði er lögð áhersla á samvinnu við Rússland og þá sérstaklega norðvestursvæði landsins.

Orkurannsóknir.
    Norræna orkurannsóknaráætlunin (NEFP) hefur frá árinu 1987 verið skipulögð sem markáætlun til þriggja eða fjögurra ára í senn. Markmiðið hefur verið að styrkja grunnþekkingu og efla samstarf háskóla, rannsóknastofnana o.fl. með það fyrir augum að stuðla að bættri samkeppnisstöðu landanna. Núgildandi áætlun nær til áranna 1999–2002, en á fundi orkuráðherranna í Helsinki í september var samþykkt ný áætlun fyrir árin 2003–2006 og í þeirri áætlun beinast áherslur í rannsóknum að þeirri pólitísku stefnumörkun um áherslusvið, sem staðfest var á sama fundi.
    Áherslur orkurannsókna munu beinast að 5 höfuðverkefnum, þ.e.a.s. orkumarkaðsmálum, endurnýjanlegum orkulindum, orkunýtni, vetnissamfélaginu og áhrifum loftslagsbreytinga á orkubúskap Norðurlanda.
    Unnið er í sjö faghópum á ýmsum sviðum orkurannsókna. Íslendingar taka þátt í þremur faghópanna, á sviði orku- og samfélagsmála.
    
ESB, EES og alþjóðaorkumál.
    Á fundum ráðherranefndarinnar, embættismannanefndarinnar og starfshópa á hennar vegum er að jafnaði fjallað um mál er varða EES og þróun orkumála innan ESB. Fyrir fundi í ráðherraráði ESB um orkumál eru haldnir óformlegir fundir Norrænu orkuráðherranna og sitja fulltrúar Íslands og Noregs þá fundi. Þessir fundir eru afar mikilvægir fyrir okkur Íslendinga, sem ekki eigum möguleika á að taka af fullum þunga þátt í umfjöllun mála á vettvangi ráðherraráðs ESB.

Samstarf við grannsvæði Norðurlanda.
    Í yfirlýsingu sem forsætisráðherrar Norðurlanda samþykktu í Bergen 1997 um aukið samstarf við Eystrasaltsríkin fólu þeir orkuráðherrunum að vinna að tilteknum verkefnum.
    Framkvæmd Bergenyfirlýsingarinnar og undirbúningur ráðherrafundar orkuráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hefur verið í höndum svonefnds Bergenhóps skipuðum fulltrúum allra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og óformlegrar samráðsnefndar skipuðum Bergenhópnum og fulltrúum annarra landa við Eystrasalt ásamt fulltrúum ESB. Um þessi mál er einnig náið samstarf við framkvæmdastjórn ESB, svið það sem fjallar um orkumál.
Styrkur hefur verið veittur úr svonefndri Synenergi-áætlun til að stuðla að nánara samstarfi við grannsvæðin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og Eystrasaltsráðsins.
    Á vettvangi Norðurlandasamstarfsins hefur verið unnið að þessum verkefnum á vegum Bergenhópsins og svokallaðs Eystrasaltshóps en þar eiga sæti auk fulltrúa Eystrasaltsríkjanna og Norðurlandaþjóðanna fulltrúar Þýskalands, Póllands og Rússlands. Á þessum vettvangi hefur mest áhersla verið lögð á raforkumarkað, gasmarkað, orkustefnu og loftslagsmál svo og orkusparnað. Sérstakur gaumur hefur verið gefinn að fjárfestingum á sviði orkumála og var sérstaklega fjallað um þann þátt á fundi á Borgundarhólmi í ágúst sl. Sérstök nefnd embættismanna frá löndunum hefur unnið að framkvæmd þessa máls. Tveir sérfræðingar hafa unnið að samstarfsorkuverkefnum á Eystrasaltssvæðinu og hafa haft aðstöðu á skrifstofu Eystrasaltsráðsins (Baltic Sea State Council, BSSC) í Stokkhólmi.
    
Niðurlag.
    Starf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála er gagnlegt fyrir Ísland, þó svo að aðstæður okkar séu nokkuð ólíkar því sem er að finna annars staðar á Norðurlöndum. Mikilvægt er um þessar mundir að fylgjast með þróun raforkumarkaðarins í löndunum og læra af reynslu þeirra um skipan þessa málaflokks meðal annars vegna þeirrar endurskoðunar á löggjöf um orkumál sem nú er unnið að hér á landi. Starf undirnefndar ráðherranefndarinnar í tengslum við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar hefur komið okkur að góðu gagni í baráttunni fyrir hinu svokallaða íslenska ákvæði loftslagssamningsins. Íslendingar hafa notið góðs af orkurannsóknaráætluninni og hefur af Íslands hálfu verið lögð áhersla á að því samstarfi verði haldið áfram.
    

10. Umhverfismál.

    Samstarf norrænu umhverfisráðherranna (MR-Miljö) endurspeglar þá grósku sem er í umhverfismálum á alþjóðavettvangi. Starfið byggist á norrænu umhverfisáætluninni, en ný umhverfisáætlun var samþykkt á fundi umhverfisráðherranna í nóvember 2000 og er gildistími hennar 2001–2004. Í áætlunninni er sett fram stefna um samstarfið bæði innan Norðurlanda, við grannsvæðin og heimskautssvæðin, ESB og um önnur alþjóðleg málefni. Framkvæmd áætlunarinnar er í höndum undirnefnda ráðherranefndarinnar sem vinna að tilteknum verkefnum.
    Á vettvangi samstarfsráðherra Norðurlanda var á árinu samþykkt áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum til ársins 2020, en áður höfðu ríkisstjórnir allra norrænu landanna samþykkt áætlunina. Við þá vinnu gegndi umhverfisgeirinn því mikilvæga hlutverki að stýra starfinu og samhæfa þau svið sem áætlunin tekur til. Áætlunin um sjálfbæra þróun tekur til eftirtalinna sviða: samgöngumála, landbúnaðar og skógræktar, sjávarútvegs og fiskeldis, orkumála og atvinnulífs. Auk þess fjallar áætlunin um loftlagsbreytingar, líffræðilega fjölbreytni, hafið, efnavörur og öryggi matvæla. Skilgreind eru tiltekin tímabundin markmið sem ætlunin er að endurskoða á fjögurra ára fresti en langtímamarkmið eru sett til 20 ára. Umhverfisgeiranum er áfram ætlað mikilvægt hlutverk við að fylgja eftir þeim markmiðum um sjálfbæra þróun sem sett eru fram með áætluninni. Í umhverfisáætluninni 2001–2004 eru jafnframt sett fram markmið og tillögur um verkefni sem tengja umhverfismálin við þau markmið sem sett eru fram í áætluninni um sjálfbæra þróun.
    Í tengslum við gildistöku norrænu umhverfisáætlunarinnar og áætlunarinnar um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum fór fram á árinu mikið endurskipulagningarstarf á starfsemi vinnunefnda innan umhverfissviðs Norrænu ráðherranefndarinnar. Með endurskipulagningunni var leitast við að tengja starf vinnunefndanna nánar hinni nýju norrænu umhverfisáætlun og áætluninni um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum. Vinnan við endurskipulagninguna er langt komin og er ráðgert að ganga endanlega frá hinu nýja skipulagi í ársbyrjun 2002.
    Síðastliðin tvö ár hafa allir norrænir ráðherrar umhverfismála jafnframt verið ráðherrar skipulagsmála. Á formennskuári Dana árið 2000 var tekin upp sú nýlunda að ráðherrar skipulagsmála funduðu sérstaklega og að tilhlutan þeirra var safnað saman í rafræna útgáfu tólf dæmum frá löndunum fimm um framkvæmd skipulagsmála með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Á fundi sínum í september 2000 samþykktu ráðherrarnir þetta vinnuplagg sem undirstöðu að frekara samstarfi landanna á sviði skipulagsmála. Á árinu var unnin sérstök verkefnaáætlun á sviði skipulagsmála sem er ætlað að fylgja eftir stefnumiði Norðurlanda: Sjálfbær þróun, ný stefna fyrir Norðurlönd og hlaut samþykki ráðherra skipulagsmála í nóvember sl.
    Þverfaglegt samstarf umhverfisgeirans við önnur svið verður æ umfangsmeira og mikilvægara. Þegar er unnið eftir sérstökum samstarfsáætlunum um umhverfis- og sjávarútvegsmál svo og umhverfis-, landbúnaðar- og skógræktarmál. Nýja umhverfisáætlunin 2001–2004 hefur að geyma tillögur um að á næstu árum verði efnt til samstarfs um heilbrigðismál og samgöngumál. Á sumarfundi umhverfisráðherranna voru málefni sem tengjast umhverfi og heilsu til sérstakrar umfjöllunar. Á árinu var sett á laggirnar þverfagleg nefnd sem ætlað er að fjalla um aukið öryggi matvæla, en hér er um að ræða samstarfsverkefni ráðherra umhverfis-, sjávarútvegs- og landbúnaðarmála. Framkvæmd áætlunar um sjálfbæra þróun byggist á því að vel takist til með samstarf um ýmis þverfagleg málefni og að í þeim málaflokkum sem áætlunin tekur til verði umhverfissjónarmið höfð að leiðarljósi við alla stefnumótun.
Málefni ESB eru fastur liður á dagskrá umhverfisráðherra. Þar eru rædd helstu mál á döfinni innan ESB og eftir atvikum mótuð sameiginleg norræn afstaða til ýmissa mála. Af öðrum alþjóðlegum málefnum sem ráðherranefndin hefur fjallað um á undanförnum árum bar hæst á árinu undirritun alþjóðlegs samnings um þrávirk lífræn efni í Stokkhólmi þann 23. maí. Samningurinn, sem var undirritaður af fulltrúum 91 ríkis heims, tekur til 12 manngerðra efnasambanda sem sýnt er að valda mjög alvarlegum áhrifum í náttúrunni, ekki síst heilsu fólks. Málefni endurvinnslustöðvarinnar í Sellafield og flutningur á geislavirkum úrgangi voru mikið í umræðunni á árinu. Norrænu umhverfisráðherrarnir sendu sameiginlegt bréf til breskra stjórnvalda þar sem áhyggjur norrænu landanna í tengslum við Sellafield voru ítrekaðar auk þess sem umhverfisráðherrarnir áttu fund með breska umhverfisráðherranum varðandi málið.
     Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) heyrir undir samstarfið um umhverfismál (sjá nánar um NEFCO, kafla 26.2.).

Störf vinnunefnda.
Vinnunefnd um umhverfi hafs og lofts.
    Viðfangsefni nefndarinnar skiptast í þrjá aðalflokka sem allir snerta annan eða báða af tveim meginþáttum umhverfisins, haf og loft. Unnið er að því að setja fram líkön sem eiga að segja fyrir um þróun og meta árangur aðgerða sem gripið hefur verið til í því skyni að minnka streymi næringarefna til sjávar og útbreiðslu þessara efna í hafinu. Stefnt er að því að nota sömu líkön á önnur mengandi efni sem berast til hafsins og berast með straumum.
Lögð er áhersla á að fá fram betri gögn og áreiðanlegri líkön til að geta metið árangur aðgerða sem þegar hafa verið ákveðnar til að sporna við loftborinni mengun. Einnig er unnið að því að kanna áhrif og þátt reikulla lífrænna efna í myndun jarðlægs ósóns.
    Unnið er að ýmsum verkefnum sem snúast um hættuleg efni, m.a. um flutning þrávirkra efna og milli þátta (lofts, lagar og sets) og áhrif þeirra á lífverur.

Efnavörunefndin.
    Vinnunefndin um efnavörur er í forsvari fyrir norrænu samstarfi á sviði eiturefna og hættulegra efna. Hún starfar á grundvelli Norrænu umhverfisverndaráætlunarinnar fyrir árin 2001–2004 og með hliðsjón af áætluninni um Sjálfbæra þróun, bæði hvað varðar skammtímamarkmið fyrir árin 2001–2004 og langtímamarkmið fram til ársins 2020. Unnið er að öflun og úrvinnslu gagna sem leggja grunn að stefnumótun, ákvörðunum og aðgerðum heima fyrir, í Evrópusamstarfi og á alþjóðavettvangi. Nefndin stuðlar að samstarfi stjórnvalda og samræmingu verkefna þannig að tiltækt fjármagn nýtist sem best.
    Nefndin hefur unnið að verkefnum sem nýtast Norðurlandaþjóðunum sérstaklega svo sem varðandi fræðsluefni. Megin áherslan hefur þó beinst að verkefnum sem nýtast í alþjóðlegri samvinnu, ekki síst verkefnum er nýtast Norðurlandaþjóðunum vegna aðildar þeirra að ESB eða EES-samningnum.
    Markmið efnavörunefndarinnar er að notkun efna hafi ekki í för með sér óæskileg áhrif á heilsu og umhverfi og að losun skaðlegra efna verði hætt innan næstu 25 ára. Verkefnin skiptast í fjóra meginflokka, þ.e. varðandi þróun aðferða til að greina og mæla áhættu vegna efnanotkunar, flokkun og merkingar hættulegra efna, mat á áhættu vegna efnanotkunar og um takmörkun áhættu. Undir vinnunefndinni starfa ráðgefandi verkefnahópar og átti Ísland fulltrúa í tíu þeirra á árinu.
    Niðurstöður úr verkefnum vinnuhópanna eru m.a. birtar sem viðurkenndar prófunaraðferðir á vegum OECD, haldnar hafa verið ráðstefnur og gefnar út verkefna- og ráðstefnuskýrslur ásamt fleira fræðslu- og kynningarefni. Aukin áhersla hefur undanfarin ár verið á gerð ólíkra gagnabanka. Þar má nefna gagnabanka fyrir upplýsingar um efni sem eru hættuleg fyrir heilsu fólks, áframhaldandi þróun svipaðs gagnabanka fyrir efni sem eru skaðleg fyrir umhverfið, þróun gagnagrunns yfir efni sem geta haft skaðleg áhrif á lífríki vatns og sjávar svo og undirbúningsvinnu og samræmingu gagna fyrir væntanlegan sameiginlegan norrænan gagnagrunn yfir efni sem eru á markaði á Norðurlöndum.

Vinnunefnd um náttúruvernd, útivist og menningarumhverfi.
    Náttúrverndar- og útivistarnefndin hefur það hlutverk að fylgja eftir samþykktum ráðherranefndarinnar um náttúruvernd, útivist og verndun menningarumhverfis. Mikil stefnumótunarvinna hefur átt sér stað innan nefndarinnar undanfarin tvö ár. Í upphafi árs var starfssvið nefndarinnar víkkað töluvert og nú heyra málefni í tengslum við menningarminjar undir nefndina. Samsetning nefndarinnar breyttist nokkuð í samræmi við það þannig að inn í nefndina kom fólk tengt þjóðminjavörslu. Nefndin hefur einnig starfað sem verkefnahópur í tengslum við verkefnið „Natur i Nord“ en afrakstur verkefnisins mun koma út á árinu 2002. Er þar reynt að lýsa í máli og myndum helstu náttúruverndarsvæðum tuttugustu aldarinnar á Norðurlöndum.
    Meðal annarra áhersluatriða á árinu má nefna verkefni tengd framkvæmdaáætluninni um vernd náttúru- og menningarminja á norðurheimskautssvæðunum (Íslandi, Grænlandi, Svalbarða). Þau verkefni sem unnið er að samkvæmt áætluninni eru m.a. Staðardagskrá 21, náttúruvernd og ferðaþjónusta, umhverfisfræðsla og áhrif botnvörpu- og togveiða á lífríki sjávar.
    Síðastliðin tvö ár hefur Ísland gegnt formennsku í nefndinni.

Vinnunefnd um vörur og úrgang.
    Verkefni vinnunefndarinnar um vörur og úrgang eru á sviði framleiðsluvara, úrgangsmála, hreinni framleiðslutækni og framleiðslumiðaðrar umhverfisstefnu. Nefndin tekur fyrst og fremst mið af hlutverki norrænna stjórnvalda á framangreindum sviðum og byggist starfið á norrænu umhverfisáætluninni fyrir árin 2001 til 2004 og starfsáætlun nefndarinnar. Vinnan tengist inn á önnur fagsvið, svo sem loftlagsmál, efni og efnavörur og staðbundna umhverfisstjórnun. Nefndinni er m.a. falið að fjalla um sorphirðu á norðlægum slóðum og þá sérstaklega í smáum samfélögum og dreifðum byggðum. Sérstök áhersla hefur verið lögð á málefni framleiðslumiðaðrar umhverfisstefnu.
    Vinna í nefndinni fer að stærstum hluta fram í verkefna- og tengiliðahópum. Þessir undirhópar stýra tilteknum verkefnum og vinna að því að efla norræna samvinnu og auka upplýsingastreymi milli aðila sem vinna innan málaflokksins. Þá tekur vinna í nefndinni og undirhópum hennar einnig mið af EES-samningnum og ræddar eru nýjar gerðir, framkvæmd samningsins og sameiginlegar áherslur norrænu landanna komið á framfæri á þeim vettvangi.
Á árinu var fjallað um ýmsa málaflokka og unnið að fjölmörgum verkefnum, sem m.a. beindust að framleiðslumiðaðri umhverfisstefnu, umhverfissjónarmiðum varðandi staðla vegna framleiðsluvara, umhverfismerkingum, umhverfisskaðlegum efnum í úrgangi, bestu fáanlegri tækni í sláturhúsum, mjólkurstöðvum og fiskeldi, Staðardagskrá 21 í litlum byggðum, sorphirðugjöldum, byggingarúrgangi, kvikasilfri, söfnun á gasi á urðunarstöðum, sorphirðumálum, seyru, grænum innkaupum, urðun úrgangs, brennslu úrgangs, jarðgerð, líftímagreiningu og umhverfisstjórnun, rafeindaúrgangi, menguðum jarðvegi og bílflökum.
    Ísland fór með formennsku í nefndinni á árinu.

Vinnunefnd um umhverfisvöktun og meðferð gagna.
    Vinnunefndin skiptir verkefnum sínum í þrjá flokka. Í flokki eitt eru verkefni með norrænar áherslur. Í flokki tvö eru verkefni sem snúa að Norðurskautssvæðinu og Eystrasaltsríkjunum auk Rússlands og í flokki þrjú eru verkefni sem hafa víðari skírskotun í Evrópu.
    Flest verkefnin falla undir fyrsta flokkinn um norrænar áherslur. Þar á meðal er stærsta verkefnið útgáfa skýrslu um fjölbreytni náttúrunnar. Skýrslan tekur ekki einungis til Norðurlanda, heldur einnig Eystrasaltsríkjanna, Rússlands og Skotlands. Skýrslan mun koma út á árinu 2002. Önnur verkefni á vegum nefndarinnar sem Ísland tekur þátt í eru: verkefni varðandi líffræðilega vöktun í fersku vatni sem tengist rammatilskipun ESB á sviði vatnsmála, verkefni sem tengist fráveitumálum og er stýrt af Náttúrustofu Vestfjarða og Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða, verkefni um vöktun hættulegra efna í landumhverfi, verkefni um kortlagningu búsvæða í sjó, verkefni um vöktun náttúru- og menningarminja og þróun aðferða til að meta umhverfisgæði. Í flokki tvö eru verkefni sem hafa það að markmiði að styrkja umhverfisvöktun fyrir botni Eystrasaltsins og þátttaka í Norðurskautsverkefnum. Í þriðja flokki eru verkefni sem hafa víðari skírskotun í Evrópu og má nefna sem dæmi verkefni um mælingar á þungmálmum í mosa, en safnað er mosa á fimm ára fresti, m.a. víða á Íslandi vegna þessa verkefnis.

Samstarfsnefnd um umhverfis- og orkumál.
    Nefndin er vettvangur fyrir samráð umhverfis- og orkuráðuneyta Norðurlanda. Mest áhersla hefur verið lögð á málefni sem tengjast loftslagssamningnum og Kyoto-bókuninni.
Umfangsmesta verkefni nefndarinnar á árinu var undirbúningur þess að Eystrasaltssvæðið verði notað sem tilraunasvæði vegna viðskipta með losunarkvóta og sameiginlegrar framkvæmdar innan loftslagssamningsins. Þetta verkefni er unnið í nánu samstarfi við Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) og Norræna fjárfestingarbankann (NIB). Á árinu var unnið að undirbúningi rammasamnings um verkefnið. Einnig stóð nefndin fyrir ráðstefnu og gaf út lokaskýrslu um tilraunasvæðið.
    Á vegum nefndarinnar komu einnig út skýrslur um undirbúning viðskipta með losunarkvóta innan Norðurlanda og milli þeirra og tengsl þeirra við raforkuviðskipti, um endurnýjanlega orku, bindingu kolefnis með ræktun, leiðir til að draga úr losun flúorkolefna og leiðir til að taka tillit til sérstöðu þjóða þegar losunarmarkmið eru sett í alþjóðasamningum.

Samstarfsnefnd um norræna umhverfis- og sjávarútvegsáætlun 1999–2002.
    Nefndin er vettvangur fyrir samráð og samstarf umhverfis- og sjávarútvegsráðuneyta Norðurlanda. Nefndin starfar á grundvelli norrænnar umhverfis- og sjávarútvegsáætlunar 1999–2002. Áætlunin tekur til hafsins, auðlinda þess, umhverfis og strandsvæða. Tilgangur samstarfsins er að stuðla að því að aukið tillit sé tekið til umhverfissjónarmiða í sjávarútvegi, að finna leiðir til að bæta umgengni og stuðla að sjálfbærri þróun í nýtingu auðlinda sjávar.
    Hlutverk nefndarinnar er að vinna að framgangi og framkvæmd þeirra stefnumála sem sett eru fram í áætluninni. Er það m.a. gert með því að veita fé til samnorrænna verkefna sem samræmast þeim áherslusviðum sem sett eru fram í áætluninni en verkefnin eru alls 28.

Samstarfsnefnd um norræna umhverfis- og landbúnaðaráætlun.
    Nefndin er vettvangur fyrir samráð umhverfis- og landbúnaðarráðuneyta Norðurlanda. Nefndin starfar á grundvelli nýrrar áætlunar sem hefur gildistíma frá 2001–2004. Nýja áætlunin byggir á reynslu og mati á fyrri áætlun en gildistími hennar var 1996–2000. Jafnframt tengist áætlunin þeim áhersluatriðum sem sett eru fram í áætluninni um sjálfbæra þróun. Megináhersla er lögð á að bæta stjórnun og nýtingu auðlinda í löndunum, jafnframt því sem sjónum er beint að rannsóknum og hvernig nýta má niðurstöður rannsókna í hagnýtum tilgangi fyrir landbúnað og skógrækt.
    Hlutverk nefndarinnar er að vinna að framgangi og framkvæmd þeirra stefnumála sem sett eru fram í áætluninni. Er það m.a. gert með því að veita fé til samnorrænna verkefna sem samræmast þeim áherslum sem sett eru fram í áætluninni.

Samstarfsnefnd um umhverfis- og neytendamál.
    Nefndin er samstarfsvettvangur ráðuneyta umhverfis- og neytendamála á Norðurlöndum og byggist á tímabundnu verkefni við að gera úttekt á norræna umhverfismerkinu, Svaninum. Verkefninu er skipt í áfanga sem m.a. felast í því að kanna viðhorf neytenda til umhverfisvænni lífsstíls, sérstaklega með tilliti til norræna umhverfismerkisins og að mæla óbein umhverfisáhrif merkisins og bein áhrif á nokkra vöruflokka sem eru merktir með því.
    Viðmiðunarreglur varðandi Svaninn verður að endurskoða með reglulegu millibili og á árinu fór fram endurskoðun á viðmiðunarreglum fyrir iðnaðarhreinsa, en Ísland var í forsvari fyrir því starfi. Eftir vandlega skoðun var ákveðið að framlengja viðmiðunarreglurnar fyrir iðnaðarhreinsa til ársins 2004.
    Á Íslandi var á árinu efnt til kynningar fyrir almenning á norræna umhverfismerkinu og fólk hvatt til þess að kaupa vörur með umhverfismerkingum.

11. Efnahags- og fjármál.
    

Ráðherrafundir.
    Fjármálaráðherrar Norðurlanda héldu þrjá formlega fundi á árinu, í Reykjavík í janúar, í Helsinki í júní og í Kaupmannahöfn í október. Fundurinn í Helsinki var haldinn samhliða ársfundi Norræna fjárfestingarbankans en á þeim fundi var framtíðarhlutverk bankans m.a. til umræðu. Á öllum fundunum var fjallað um þróun og horfur efnahagsmála í heiminum og á Norðurlöndum sérstaklega. Enn fremur fjölluðu ráðherrarnir um ýmis sérstök mál sem hafa verið til skoðunar á vegum þeirra. Þeir fjölluðu um ýmis skattamál og staðfestu samkomulag milli norrænu landanna um gagnkvæm upplýsingaskipti og aukið samráð á því sviði. Þá ræddu þeir um vinnu sem er í gangi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um sjálfbæra þróun efnahagslífsins, jafnt á vettvangi Norðurlanda sem og innan OECD og ESB. Þá var staða mála gagnvart Kyoto-samkomulaginu til umræðu. Ráðherrarnir voru á einu máli um að styrkja beri norrænt samstarf á sviði ESB/EES-mála og ákváðu að skoða nánar hvernig slíku starfi verði best hagað.

Helstu nefndir, skýrslur o.fl.
     a)      Embættismannanefndin og ýmsir vinnuhópar. Nefndina skipa háttsettir embættismenn í fjármálaráðuneytum landanna, einn frá hverju landi. Verkefni nefndarinnar eru fjölþætt. Meginverkefnið er að undirbúa ráðherrafundi og vera ráðgefandi í öllum málefnum sem varða starf ráðherranna á norrænum vettvangi. Nefndin hefur þannig yfirumsjón með skýrslugerð og greinargerðarskrifum fyrir ráðherrafundina. Jafnframt hafa gjarnan starfað sérstakir vinnuhópar á vegum nefndarinnar til að sinna ákveðnum verkefnum. Auk þess eru málefni Norræna fjárfestingarbankans mikið til umfjöllunar. Þá hafa eftirfarandi verkefni verið í athugun hjá sérstökum vinnuhópum á vegum nefndarinnar:
         Framtíð norræna velferðarkerfisins, fjármögnun þess, skilvirkni og samkeppnishæfni. Í framhaldi af norrænni athugun á fjármögnun lífeyrissjóðakerfa á Norðurlöndum var settur á laggirnar vinnuhópur til þess að gera nánari úttekt á framtíðarhorfum varðandi fjármögnun velferðarkerfisins á Norðurlöndum. Sérstaklega hefur hópurinn kannað áhrif breyttrar aldurssamsetningar á þróun útgjalda og líklega tekjuþróun m.t.t. hugsanlegrar skattasamkeppni í tengslum við aukna alþjóðavæðingu.
         Norræna velferðarkerfið, fjármögnun og skattastefna. Í þessum vinnuhópi er einnig verið að huga að framtíð norræna velferðarkerfisins en þó með öðrum hætti en í fyrri hópnum. Aðaláherslan er á stefnuna í skattamálum og hvort sú alþjóðavæðing sem nú á sér stað gerir það að verkum að erfitt verður fyrir norrænu löndin að halda uppi því velferðarkerfi sem byggt hefur verið upp og fjármagnað með tiltölulega háum sköttum. Hreyfanleiki fjármagnsins og breytt viðhorf til skattlagningar gera það að verkum að líklegt má telja að heildarskattbyrðin fari lækkandi þegar fram í sækir. Slíkar breytingar skapa óvissu um fjármögnun velferðarkerfisins í framtíðinni.
         Nýja hagkerfið; áhrif þess á framleiðni og hagstjórn. Verkefni hópsins eru í fyrsta lagi að skilgreina hugtakið nýja hagkerfið og hvort þær atvinnugreinar sem settar hafa verið í samband við „nýja hagkerfið“ hafa náð að setja mark sitt á efnahagslíf Norðurlanda. Sérstaklega mun hópurinn kanna framleiðniþróun í einstökum löndum og hugsanleg áhrif nýrra atvinnugreina á þá þróun. Hópurinn mun einnig kanna breyttar áherslur í hagstjórn og áhrif þeirra á mikilvægustu hagstærðir.
         Athugun á norrænum kauphöllum. Á árinu var fram haldið sérstakri athugun vinnuhóps sem fjallaði um áhrif aukinnar alþjóðavæðingar á starfsemi norrænna kauphalla og verðbréfaþinga. Meðal annars var rætt um aukið samstarf á þessu sviði jafnframt því að huga að frekari samræmingu skráningarreglna.
     b)      Eystrasaltsnefndin (Baltikumudvalget). Árið 1992 samþykkti Norðurlandaráð norræna fjárfestingaráætlun fyrir Eystrasaltsríkin sem miðaði að því að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum og koma á fót sérstökum fjárfestingarbönkum í þessum ríkjum með árlegum fjárframlögum frá Norðurlöndum. Hlutverk þessarar nefndar hefur verið að hafa eftirlit og yfirumsjón með þessu verkefni og hana skipa að mestu sömu fulltrúar og sitja í embættismannanefndinni. Í þessu skyni hefur nefndin haft náin samskipti við fulltrúa Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Evrópubankans í London (EBRD) og Norræna verkefnaútflutningssjóðsins (Nopef). Nefndin hefur sent árlegar skýrslur til Norðurlandaráðs um stöðu og framkvæmd fjárfestingaráætlunarinnar. Þessari áætlun lauk formlega árið 2000, en nefndin hefur þó áfram fylgst með einstökum þáttum hennar eftir því sem ástæða er til.
     c)      Efnahagsnefndin (Konjunkturgruppen). Helsta verkefni þessarar nefndar er að fjalla um ástand og horfur í efnahagsmálum, einkum á Norðurlöndum. Auk þess hefur nefndin iðulega fjallað um afmörkuð verkefni á sviði efnahagsmála sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Nefndin hittist tvisvar á ári og hana skipa embættismenn úr fjármálaráðuneytum landanna. Á hverju hausti skilar nefndin sérstakri skýrslu til fjármálaráðherranna sem síðan er gefin út á vegum Norðurlandaráðs.
     d)      Norrænu-baltnesku ráðgjafanefndirnar. Haustið 2000 var ákveðið að styrkja samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna til undirbúnings funda á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Settar voru á laggirnar tvær embættismannanefndir með þátttöku frá efnahags- og fjármálaráðuneytum og seðlabönkum landanna. Önnur nefndin – Norræna-baltneska fjármálanefndin – er skipuð ráðuneytisstjórum og bankastjórum, en í hinni nefndinni – Norrænu-baltnesku fulltrúanefndinni – sitja yfirmenn þeirra efnahags- og alþjóðaskrifstofa sem sinna málefnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þessar tvær nefndir tóku við því starfi sem áður hafði verið sinnt af Ráðgjafarnefnd um fjármál (NFU) og annarri, óformlegri nefnd sem var skipuð norrænum og baltneskum embættismönnum. Þessi nýskipan hefur þær meginbreytingar í för með sér að efnahags- og fjármálaráðuneyti landanna koma með ákveðnari og markvissari hætti inn í þetta starf en verið hefur. Helstu verkefni nefndanna eru að undirbúa fundi í hinni nýju Efnahags- og fjármálanefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMFC), en hún tók við af gömlu Interim-nefndinni. Einnig er nefndunum ætlað að skoða hvernig megi efla starf norrænu-baltnesku skrifstofunnar í Washington og gera tengsl hennar við stjórnvöld heima fyrir markvissari. Loks er nefndunum falið að fylgjast náið með öllu starfi innan sjóðsins, með milligöngu skrifstofunnar í Washington, og undirbúa þær ákvarðanir sem þar þarf að taka.
     e)      Vinnuhópur á sviði umhverfismála (Miljø- og økonomigruppen). Sérstakur vinnuhópur starfar á vegum þeirra embættismannanefnda sem fjalla um efnahagsmál (ÄK-Finans) og umhverfismál (ÄK-Miljö). Meginverkefni hópsins eru almenn skoðanaskipti um umhverfismál út frá hagrænu sjónarmiði og notkun á hagrænum stjórntækjum í umhverfismálum. Nefndin hittist alla jafna tvisvar á ári og hana skipa embættismenn úr fjármála- og umhverfisráðuneytum landanna. Á tímabilinu 2000 og 2001 hefur Ísland farið með formennsku í þessum vinnuhópi. Gefnar voru út þrjár skýrslur á vegum vinnuhópsins á árinu. Ein fjallaði um hagrænt virði umhverfisins (The Economic Value of the Environment) og var rituð af tveim íslenskum hagfræðingum, þeim Magnúsi Harðarsyni og Páli Harðarsyni. Önnur skýrsla fjallaði um mat á áhrifum svokallaðra grænna skatta á Norðurlöndum (An Evaluation of the Impact of Green Taxes in the Nordic Countries). Aðalhöfundur hennar var prófessor Mikael Skou Andersen við Árósarháskóla. Þá var lokið við skýrslu um markaðsdrifið endurheimtukerfi á umbúðum sem komið hefur verið á í Bretlandi og hvernig megi beita því á Norðurlöndum (A Nordic PRN System). Höfundur þess er breskur sérfræðingur Ian MacPherson. Þá var hrundið af stað rannsókn sem fara mun fram á næstu þremur árum og fjallar um hvernig má aftengja hagvöxt frá umhverfishömlum (The decoupling of economic growth from environmental constraints). Enn fremur hyggst vinnuhópurinn kanna hvort hægt sé að koma á markaðsdrifnu endurheimtukerfi fyrir rafhlöður, og hefur könnun þess efnis verið hafin í Svíþjóð á vegum hópsins.
     f)      Nefnd norrænna skattahagfræðinga. Nefndin fjallar um það sem efst er á baugi í skattamálum í hverju Norðurlandanna fyrir sig. Auk þess eru áhrif alþjóðavæðingar á norrænu skattkerfin til umfjöllunar í nefndinni. Nefndin hittist einu sinni á ári.
     g)      Sérfræðinganefnd um norræn fjárlög (Budgetexpertgruppen). Hlutverk nefndarinnar er að skila faglegri umsögn um tillögu samstarfsráðherra um frumvarp til norrænu fjárlaganna, bæði tæknilegri og efnislegri. Nefndin tekur einnig til umfjöllunar afmörkuð mál sem samstarfsráðherrar vísa til hennar. Auk embættismanna fjármálaráðuneyta viðkomandi landa sitja starfsmenn frá Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar fundi nefndarinnar.
     h)      Norræna launa- og starfsmannanefndin (Løne- och personaleutskottet). Nefndin er ráðgefandi fyrir ráðherranefndina (samstarfsráðherra Norðurlanda) og stjórnarnefnd Norðurlandaráðs í launa-, ráðningar- og lífeyrismálum þeirra starfsmanna sem starfa við norrænar stofnanir ráðherranefndarinnar svo og starfsmanna á skrifstofum Norðurlandaráðs og ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Nefndin fær þessi mál til umfjöllunar frá skrifstofunni í Kaupmannahöfn og annast starfsmannastjóri hennar undirbúning fundanna, en nefndin getur einnig að eigin frumkvæði skotið málum varðandi ráðningar- og starfskjör til ráðherranefndar og stjórnarnefndar. Enn fremur á nefndin að tryggja að um málefni er varða stofnanirnar, fari eftir 5. gr. sáttmála þjóðanna frá 9. des. 1988 um réttarstöðu norrænna stofnana, og að starfsmannafélög njóti umsagnarréttar áður en ákvörðun er tekin. Helstu mál sem fjallað var um á árinu eru: ákvörðun og breytingar á launum stjórnarmanna stofnananna; áfram var fylgst með breytingum á ráðningarformi og launasetningu starfsmanna á skrifstofunum í Kaupmannahöfn og vinnu við að koma upp leiðbeiningum/handbók fyrir starfsmenn á tölvutæku formi; enn fremur breytingum á samkomulagi um samræmingu lífeyrisréttinda ríkisstarfsmanna innan Norðurlanda sem fjármálaráðuneyti/ríkis-lífeyrissjóðir landanna eru að vinna að – þeirri vinnu er um það bil að ljúka og ætti samkomulagið að taka gildi fyrri hluta árs 2002.
     i)      Samstarf yfirmanna skattamála í fjármálaráðuneytum á Norðurlöndum. Samstarfið hófst 1989 að frumkvæði fjármálaráðherra Norðurlanda í þeim tilgangi að skapa vettvang til upplýsingamiðlunar og skoðanaskipta milli landanna um þróun í skattamálum. Samstarfið er fólgið í einum árlegum fundi yfirmanna skattamála og á milli þeirra er upplýsingum miðlað meðal annars með því að send eru milli ráðuneytanna frumvörp og skýrslur um skattamál. Á hinum árlegu fundum er gerð grein fyrir þeim breytingum á skattalögum, sem gerðar hafa verið í hverju landi um sig og unnið er að á hverjum tíma. Annar fastur liður er greinargerð um breytingar í skattamálum innan ESB, einkum með tilliti til áhrifa þeirra á Norðurlöndin, og er sjónarmiðum landanna utan ESB þá komið á framfæri. Í þriðja lagi eru rædd þau skattamál sem eru til umfjöllunar á vettvangi OECD og afstaða landanna til þeirra samræmd eftir atvikum. Að lokum er á fundum þessum fjallað um einstök stærri mál á sviði skatta, sem einstök lönd óska eftir að ræða.
     j)      Norræna skattrannsóknaráðið. Ráðið var stofnað 1973 með samningi milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Að undangengnum nokkrum samskiptum við ráðið ákvað ríkisstjórnin á árinu 1999 að leita eftir því að Ísland gerðist aðili að samningi þessum. Verkefni ráðsins eru að efla fræðilegar rannsóknir á skattamálum á Norðurlöndum á sviði lögfræði og hagfræði. Er verkefninu annars vegar sinnt með því að úthluta styrkjum til fræðimanna og annarra til að vinna tiltekin rannsóknarverkefni sem sótt er um styrk til og hins vegar með því að halda árlega ráðstefnu þar sem tekin eru fyrir með fræðilegum hætti skattamál sem höfða til allra landanna. Á síðasta fundi var fjallað um skaðlega skattasamkeppni.
     k)      Samstarf fjárlagastjóra Norðurlandanna. Fjárlagastjórar, það er, forstöðumenn þeirra skrifstofa í fjármálaráðuneytum Norðurlandanna sem hafa umsjón með fjárlögum hittast alla jafna tvisvar á ári. Á þessum fundum er fjallað um ýmis þau málefni sem eru efst á baugi í fjárlagagerð landanna hverju sinni. Enn fremur eru tiltekin mál tekin til umræðu sem hafa áhrif á fjárlagagerðina, stjórn ríkisfjármála, ríkisreksturinn og ákvörðun útgjaldaramma til lengri eða skemmri tíma. Tekin eru fyrir ákveðin áherslumál í ríkisrekstri hjá hverju ríki svo sem breytt fjármögnun sjúkrahúsa, árangursmælingar og önnur þau atriði sem efst eru á baugi hverju sinni.

Norræni fjárfestingarbankinn.
    Norræni fjárfestingarbankinn var stofnaður 1975 til að styrkja norræna samvinnu og efnahag Norðurlanda. Með aukinni alþjóðavæðingu atvinnulífs á Norðurlöndum og stuðningi eigenda hans hefur starfsemi bankans orðið alþjóðlegri. Lán og ábyrgðir eru nú ekki aðeins veitt til verkefna á Norðurlöndum heldur og utan þeirra. Þannig er hlutverk bankans nú að nýta traust lánshæfi á alþjóðamarkaði til að veita lán á almennum bankakjörum til fjárfestingarverkefna einkaaðila og opinberra aðila í þágu bæði Norðurlanda og þeirra ríkja utan Norðurlanda, sem fá lán eða ábyrgðir frá bankanum. Bankinn hefur lagt aukna áherslu á lán til Eystrasaltsríkjanna og til norðvesturhluta Rússlands. Í ljósi aukinnar alþjóðlegrar starfsemi bankans og þeirrar auknu áhættu sem því fylgir var talið mikilvægt að treysta með formlegum hætti alþjóðlega stöðu bankans. Í því skyni tók árið 1999 gildi nýtt samkomulag um bankann sem miðar að því að styrkja stöðu hans sem alþjóðlegrar fjármálastofnunar. (Sjá nánar um Norræna fjárfestingarbankann í kafla 26.3.).

Norræn starfsmannaskipti (nordisk tjenestemandsudveksling).
    Fyrirkomulag starfsmannaskiptanna á árinu var með líkum hætti og verið hefur á undanförnum árum. Hlutdeild Íslendinga nam 108.000 d.kr. af heildarfjárveitingu ráðherranefndarinnar. Styrkþegar voru fjórir talsins og hlaut hver um sig styrk til eins til tveggja mánaðar dvalar auk ferðakostnaðar. Umsóknir voru mun fleiri en m.a. vegna erfiðleika við að finna húsnæði drógu nokkrir umsækjenda umsóknir sínar til baka.
    Flestir styrkþegarnir fóru enn sem fyrr til Kaupmannahafnar. Styrkþega er getið í greinargerð fjármálaráðuneytisins til Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar um styrkveitingar hverju sinni. Að lokinni skiptidvöl, eða eigi síðar en þremur mánuðum eftir að henni er lokið, skila styrkþegarnir skýrslu um dvölina til fjármálaráðuneytisins svo og ráðuneytis eða stofnunar viðkomandi styrkþega.
    Upplýsingar um starfsmannaskiptin er að finna á heimasíðu fjármálaráðuneytisins svo og auglýsingu um norræn starfsmannaskipti. Einnig er auglýsingin birt í Fréttabréfi fjármálaráðuneytisins fyrir stjórnendur ríkisstofnana.
    
Önnur starfsemi á vegum fjármálaráðherra.
    Auk þeirra verkefna sem hér hafa verið nefnd er rétt að vekja athygli á að fjármálaráðherrar Norðurlanda hafa um árabil haft náin samráð á vettvangi ýmissa alþjóðastofnana. Þannig hafa ráðherrarnir samráð fyrir fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eins og áður hefur verið minnst á. Enn fremur má nefna hliðstætt samráð vegna funda á vegum OECD. Meginlínurnar eru gjarnan lagðar á norrænum ráðherrafundum og þeim er fylgt eftir á hinum ýmsu fundum innan OECD, jafnt ráðherrafundum sem öðrum. Þá má nefna aðild ráðherranna að Eystrasaltsráðinu, ásamt fjármálaráðherrum Þýskalands, Póllands og Eystrasaltsríkjanna, en þessir aðilar halda að jafnaði einn fund á ári. Á fundi þessara aðila síðastliðið vor var meðal annars fjallað um skattamál í ljósi hugsanlegrar samræmingar skattlagningar innan ESB. Loks má nefna starfsemi Evrópubankans í London. Norðurlöndin eiga þrjá fulltrúa í stjórn bankans sem hafa náið en óformlegt samráð þar sem leitast er við að samræma norræn sjónarmið.

12. Byggðamál.
    


Norræna embættismannanefndin um byggðamál (NERP).
    Nefndin er samstarfsvettvangur embættismanna þeirra ráðuneyta norrænu landanna sem fara með byggðamál. Markmið samstarfsins er að miðla upplýsingum, byggja upp þekkingu og stuðla að samstarfi á milli svæða án tillits til landamæra.
    Í upphafi ársins kom í ljós að flest löndin voru að vinna að mótun nýrrar byggðastefnu. Af því tilefni var ákveðið að efna til sérstaks verkefnis „verksted for nordisk regionalpolitikk“. Tilgangur verkefnisins er tvíþættur. Annars vegar að miðla reynslu og þekkingu milli landanna af hinum ýmsu aðgerðum sem stjórnvöld hafa gripið til í því skyni að efla svæði og byggðalög. Hins vegar að ræða nýjar hugmyndir á sviði byggðamála. Í janúar 2002 verður haldinn fundur í verkefnisstjórninni á Akureyri. Á þeim fundi verður sérstaklega fjallað um þróun byggðamála á Íslandi.
    Á næstu árum mun stærri hluti samstarfsins snúa að verkefnum á vettvangi „Northern Periphery“ áætlunarinnar. Aðilar að þessari áætlun eru Finnland, Noregur, Svíþjóð, Skotland, Færeyjar og Grænland. Til að sinna þátttöku framangreindra landa í Northern Periphery þá var á árinu sett á stofn skrifstofa í Kaupmannahöfn. Af hálfu iðnaðarráðuneytisins er stefnt að því að Ísland gerist aðili að þessari áætlun á árinu 2002 enda hefur komið í ljós að mikill áhugi er til staðar hjá sveitarfélögum, háskólum, atvinnuþróunarfélögum og fleirum á því að taka þátt í áætluninni.
    NERP tók upp samstarf við norrænu embættismannanefndina um upplýsingatækni og hefur þegar verið ákveðið að styrkja eitt verkefni um hagskýrslugerð fyrir einstök landsvæði. Bundar eru vonir við að hægt verði að styrkja fleiri samstarfsverkefni á þessu sviði á næstu árum. Á árinu lauk verkefni sem nefndin styrkti, þar sem gerður var ítarlegur samanburður á þeim aðferðum og reglum sem gilda í löndunum um jöfnun tekna á milli sveitarfélaga.
    Stór hluti af fjárveitingum embættismannanefndarinnar rennur til svæðastofnana. Embættismannanefndin gerir samstarfssamninga við átta svæðastofnanir á Norðurlöndum. Þar á meðal er Norræna Atlantshafsnefndin (NORA) sem starfar fyrir Ísland, Færeyjar, Grænland og Norður- og Vestur-Noreg.
    Nefndin stóð fyrir ráðstefnu í Birstonas í Litháen á árinu. Auk fulltrúa Norðurlanda sóttu ráðstefnuna fulltrúar frá öllum Eystrasaltsríkjunum auk Rússlands og Póllands. Á ráðstefnunni var fjallað um reynslu landanna af samstarfi svæða yfir landamæri. Í framhaldi af ráðstefnunni ákvað NERP að kosta ráðgjafa til starfa í Eystrasaltsríkjunum í tvö ár. Ráðgjafanum verður falið að aðstoða ríkin við að byggja upp svæðastofnanir að norrænni fyrirmynd. Þá gerði nefndin samstarfssamning við Skotland á árinu en þar er gert ráð fyrir víðtæku samstarfi um ýmis verkefni, sérstaklega á vettvangi Northern Peripery áætlunarinnar.

Nordregio.
    Nordregio, norræna rannsókna- og fræðslustofnunin í skipulags- og byggðamálum, var stofnuð árið 1997 en stendur á gömlum merg norræns samstarfs á þessu sviði. Stofnunin hefur eflst mjög á starfstíma sínum. Þar eru stundaðar rannsóknir sem tengjast skipulags- og byggðamálum á Norðurlöndum. Þá vinnur stofnunin ýmis verkefni fyrir Evrópusambandið. Meðal annars hafa verið haldin námskeið fyrir þá sem starfa að áætlanagerð í Eystrasaltsríkjunum og unnið að öflun upplýsinga um svæðisbundin málefni þar. Nordregio hefur verið kölluð til ráðgjafar við undirbúning stefnumótunar í byggðamálum í löndunum, m.a. hér á landi, og íslenskir aðilar taka í vaxandi mæli þátt í rannsóknaverkefnum á vegum stofnunarinnar. Haldin hafa verið endurmenntunarnámskeið þar sem Íslendingar hafa verið meðal þátttakenda. Nordregio annast um samstarf norrænu landanna varðandi mat á umhverfisáhrifum. Hjá Nordregio, sem staðsett er í Stokkhólmi starfar nú einn Íslendingur.
    
Norræna Atlantsnefndin (Nordisk Atlantsamarbejde – NORA).
    Norræna Atlantsnefndin NORA er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja, Grænlands og Norður- og Vestur-Noregs og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Skrifstofa nefndarinnar er í Þórshöfn á Færeyjum. Einnig eru starfandi fulltrúar/skrifstofur NORA í hverju aðildarlandi. Á Íslandi annast Byggðastofnun umsýslu fyrir NORA.
    NORA veitir styrki til samstarfsverkefna er tengjast þróun atvinnulífs, nýsköpun og rannsóknasamstarfi á starfssvæði sínu. NORA hóf starfsemi í núverandi mynd árið 1996. Þrír fulltrúar frá hverju landi eiga sæti í nefndinni og eru fulltrúar Íslands skipaðir af iðnaðarráðherra. Framkvæmdaráð, þar sem hvert aðildarland á einn fulltrúa, undirbýr ákvarðanir í samstarfi við starfsmenn í hverju landi, leggur fram tillögur og veitir framkvæmdastjóra leiðsögn í einstökum málum.
    NORA hefur samþykkt áætlun fyrir árin 2001–2006. Meginmarkmið með starfi nefndarinnar er að hvetja til og efla samvinnu innan svæðisins með áherslu á sjávarútveg, umhverfismál sjávar, ferðaþjónustu, landbúnað, jarðrækt, samgöngur, upplýsingatækni, verslun og iðnað. Þá leitast nefndin við að koma á samstarfi milli nefndarinnar og annarra aðila sem vinna að hliðstæðum og tengdum verkefnum innan samstarfssvæðisins. Einkum hefur verið lögð áhersla á samvinnu við atvinnuþróunar- og rannsóknarstofnanir í löndunum fjórum. Einnig er miðlað reynslu og þekkingu í byggða- og atvinnumálum milli landanna og stuðlað að rannsóknum og þróun á framangreindum sviðum þar sem löndin geta notið góðs af reynslu hvers annars með því að koma á samskiptum stofnana, fyrirtækja og fólks.
    Í nóvember sl. stóð NORA fyrir tveggja daga ráðstefnu í Þórshöfn í Færeyjum undir heitinu vaxtarmöguleikar í atvinnulífi á starfssvæði stofnunarinnar. Á ráðstefnunni var rætt um samgöngur á sjó og í lofti, áhrif stórra framkvæmda á þróun atvinnulífs á aðliggjandi svæðum og bætta nýtingu aukaafurða í sjávarútvegi. Alls sóttu um 170 manns ráðstefnuna en í lok hennar var fjallað um fjölmarga möguleika á samstarfi á þeim sviðum sem voru til umfjöllunar á ráðstefnunni og hvernig NORA getur stutt við slík samstarfsverkefni.
    Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári, að jafnaði síðla vetrar og eru umsóknir afgreiddar að vori. Styrkfjárhæðir geta numið allt að 500.000 d.kr. á ári. Einungis er greitt fyrir hluta af kostnaði við hvert verkefni og aldrei meira en 50% af heildarkostnaði.
    Á árinu bárust 48 umsóknir og voru tíu umsóknir styrkhæfar. Íslendingar eru þátttakendur í fimm af þeim tíu verkefnum sem fengu stuðning. Verkefnin eru af ýmsum toga eins og t.d. vöruþróun, menningartengd ferðaþjónusta, rannsóknir og menntun í sjávarútvegi, og á sviði landfræðilegs upplýsingakerfis.
    Fjárveiting til NORA á árinu var 5,8 millj. d.kr. Norræna ráðherranefndin leggur til 4,3 millj. d.kr. og Lánasjóður Vestur-Norðurlanda 1,5 millj. d.kr. Úthlutað var 3,6 millj. d.kr. til þróunarverkefna og 650 þús. d.kr. til ráðstefnunnar „Verðmætasköpun á norðurslóðum“.

13. Samgöngumál.

    Eins og fram hefur komið í fyrri skýrslum samstarfsráðherra fer norrænt samstarf um samgöngumál að mestu fram í norrænni embættismannanefnd um samgöngumál (NET), en í henni eiga sæti ráðuneytisstjórar samgönguráðuneytanna á Norðurlöndum, ásamt staðgenglum og ráðgjöfum. Nefndin hefur að jafnaði haldið tvo fundi á ári og svo var einnig á þessu ári. Samgönguráðherrar Norðurlanda héldu einn fund á árinu og í tengslum við þann fund var haldinn sérstakur fundur með samgönguráðherrum Eystrasaltsríkjanna um samstarf á sviði samgöngumála.

Sumarfundur samgönguráðherra Norðurlanda.
Fundurinn var haldinn í Björneborg í Finnlandi í ágúst sl. Helstu mál fundarins voru þessi:
     a)      ESB og EES. Í fyrsta lagi var rætt um formennskutímabil Svía í ESB, sem var fyrri hluti ársins. Sænski samgönguráðherrann gerði grein fyrir þeim málum sem hann hafði lagt áherslu á á tímabilinu, en þau voru:
                  –      umferðaröryggismál,
                  –      skipulag samgangna,
                  –      umhverfismál samgangna.
        Meðal annars hafði ESB á tímabilinu samþykkt lækkun á leyfilegu áfengismagni í blóði ökumanna niður í 0,5 promill sem gildi á að taka í öllum ESB-löndunum. Einnig höfðu Svíar stuðlað að framgangi tillagna um hámarkshraða minni vöruflutningabifreiða, tillagna um bætt flugöryggi og framgangi Galileo-verkefnisins en þar er um að ræða evrópskt gervihnattakerfi til nota fyrir leiðsögu- og staðsetningarákvörðun í samgöngum. Á tímabilinu samþykktu ríkin að koma á sameiginlegu evrópsku flugumferðarstjórnarsvæði.
        Í öðru lagi var á dagskrá umræða um formennskutíma Belga sem var síðari hluta ársins. Sænski samgönguráðherrann hóf umræðuna og sagði að forgangsmál Belga hefðu í aðalatriðum verið þau sömu og Svía. Þó hefðu Belgar lagt meiri áherslu á félags- og atvinnuréttindamál í samgöngugeiranum á kostnað innri markaðarins, t.d. er varðar járnbrautarsamgöngur í Evrópu. Belgar legðu áherslu á hina sameiginlegu samgöngustefnu og umræðu um Hvítbókina sem gefin var út í september, en sérstök námstefna (workshop) var haldin um efni hennar í tengslum við fund NET í Helsinki í nóvember, sem nánar verður greint frá hér á eftir. Jafnframt legðu Belgar eins og Svíar mikla áherslu á umhverfismál samgangna.
        Niðurstaða ráðherranna var að efla enn frekar samstarf um sameiginleg Evrópumál og lagði Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra Íslands, m.a. til að lögð verði áhersla á nánara samstarf Norðurlandanna varðandi siglingamál.
        Í þriðja lagi ræddi danski samgönguráðherrann um áhersluatriði í formennsku Dana í ESB en Danir verða í forustu þess seinni hluta árs 2002. Hann sagði að eftirtalin mál yrðu að líkindum ofarlega á blaði hjá Dönum, (i) endurskoðun umhverfisstefnunar í samgöngumálum, (ii) sameiginleg flugumferðarstjórn í Evrópu (Single European Sky), (iii) ný tilskipun um járnbrautarsamgöngur og (iv) endurskoðun sameiginlegrar samgöngustefnu ESB. Hann sagði að Danir myndu leitast við að hafa mikið og gott samstarf við norrænu þjóðirnar á formennskutíma sínum.
     b)      Fundur með samgönguráðherrum Eystrasaltsríkjanna. Á fundinum var farið yfir tilefni og dagskrá fundarins sem boðað var til daginn eftir og sagði finnski samgönguráðherrann að mikill áhugi væri fyrir þessum fundi af hálfu samgönguráðherra Eystrasaltsríkjanna.
        Danski samgönguráðherrann greindi frá samantekt um þau verkefni í samgöngum sem unnið hefur verið að í Eystrasaltsríkjunum. Greinargerðin sýnir að ESB hefur fjármagnað flest verkefnin og lagt fram stærstu fjárhæðirnar. Af norrænu þjóðunum hafa Danir lagt mest fram til þessara verkefna.
     c)      Skýrsla „aldamótanefndar“. Lögð voru fram drög að umsögn NET til Norðurlandaráðs um samgönguþáttinn í skýrslu svokallaðrar „aldamótanefndar“, sem sett var á fót á árinu 1999 af samstarfsráðherrum Norðurlanda, en verkefni hennar var „að kortleggja þá þróunarþætti sem sameiginlegir eru norrænum samfélögum og leggja mat á áhrif þeirra á þróun í norrænu löndunum og framtíðarskipulag norræns samstarfs“. Nefndin skilaði skýrslu sinni til samstarfsráðherranna í október 2000. Umsögn NET var samþykkt á fundinum.

Sameiginlegur fundur samgönguráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
    Í tengslum við sumarfund norrænu samgönguráðherranna var haldinn sameiginlegur fundur þeirra og samgönguráðherra Eystrasaltsríkjanna. Þetta var fyrsti fundur þessara aðila. Hann var haldinn að frumkvæði finnska samgönguráðherrans, Olli-Pekka Heinonen sem stýrði fundinum. Tvö mál voru til umræðu, annars vegar „þróun landssamgangna í ljósi stækkunar ESB og breytt sameiginleg samgöngustefna þess í framtíðinni“ og hins vegar „þróun sjósamgangna og siglinga í Eystrasaltsríkjunum“.
    Í lok fundarins var haldinn blaðamannafundur og niðurstaða fundarins kynnt. Samgönguráðherrar ríkjanna:
     –      ræddu sameiginleg samgöngumál Eystrasaltssvæðisins;
     –      töldu vera augljósa þörf fyrir nánara samstarf um samgöngur á þessu svæði;
     –      staðfestu þá skoðun sína að fyrirhuguð stækkun ESB muni bjóða upp á mörg tækifæri og möguleika, bæði fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin, auka hagvöxt, velsæld og efla samskipti milli fyrirtækja og einstaklinga á svæðinu;
     –      lögðu áherslu á að vegna samræmdra samgangna á sameiginlegum markaði, skipulagningar flutninga, þróunar samgöngukerfa og afkastamikilla flutninga á milli landanna væri mikilvægt að innganga þessara ríkja í ESB gengi hratt fyrir sig;
     –      samþykktu að veita fjármagn til að koma á afkastamiklum og sjálfbærum samgöngum sem byggðar yrðu á tilskipunum ESB að teknu tilliti til sérkenna hvers ríkis á svæðinu;
     –      vöktu athygli á þeirri staðreynd að stækkun ESB muni auka samkeppni í samgöngum en lögðu jafnframt áherslu á nauðsyn þess að samkeppnisreglur yrðu virtar;
     –      samþykktu að bæta samvinnu og miðlun upplýsinga um framvindu mála innan ESB er varðar sameiginlega samgöngustefnu sambandsins og stuðla að breytingum á henni á jákvæðan hátt fyrir löndin;
     –      lögðu til, vegna vaxandi mikilvægis samþættingar samgöngugreina (intermodality) og einnig til þess að leggja áherslu á mikilvægi sjálfbærra sjósamgangna og stefnu Eystrasaltsríkjanna í hafnamálum, að komið verði á virku samstarfi háttsettra embættismanna frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum til þess að skiptast á skoðunum um þessi mál;
     –      samþykktu að halda áfram og efla samstarf á sviði umferðaröryggismála og lýstu yfir ánægju með skipulag „umferðaröryggisdaga“ á svæðinu í september sl.;
     –      ákváðu, ef þörf krefði, að koma á reglulegum fundum ráðherranna og virkja bæði tvíhliða og marghliða samskipti ríkjanna, m.a. með miðlun upplýsinga um sameiginleg samgöngumál.

Efst á baugi í samgöngumálum Norðurlanda.
    Á ráðherrafundinum og á fundum NET kynnir hvert land það sem efst er á baugi í samgöngumálum hvers lands.
    Í ár voru umferðaröryggismál, fjárfestingar í vega- og járnbrautarsamgöngum, veggjöld, umhverfismál og fast vegasamband milli Danmerkur og Þýskalands ofarlega á blaði í Danmörku, veggjöld og fjárfestingar í vegum og járnbrautum, einkafjármögnun framkvæmda og umferðaröryggismál í Svíþjóð, fjármögnun samgönguframkvæmda, þar á meðal einkafjármögnun þeirra, siglingamál og umferðaröryggismál í Finnlandi og fjárfestingar í samgöngum, veggjöld og einkafjármögnun framkvæmda, umferðar-öryggismál, skipulag norsku Vegagerðarinnar og yfirtaka SAS á Braathens flugfélaginu í Noregi.
    Ísland gerði grein fyrir samræmdri samgönguáætlun fyrir árin 2003–2014, fyrirhugaðri kjölfestusölu á eignarhlut ríkisins í Landssímanum, endurbyggingu Reykjavíkurflugvallar, áherslum á aukið öryggi í flugi og umhverfismálum í samgöngugeiranum.

Störf vinnuhópa.
    Á árinu störfuðu vinnuhópar á vegum NET að eftirtöldum verkefnum:
     a)      Umferðaröryggismál á Norðurlöndum. Þetta er eitt af mikilvægustu verkefnunum sem unnið er að á þessum vettvangi. Markmið þessa starfs er að löndin skiptist á upplýsingum um umferðaröryggismál, m.a. til að læra af reynslu hvers annars og til að koma í veg fyrir tvíverknað. Þetta starf er á ábyrgð Norðmanna. Stefnt er að málþingi um þessi mál í Ósló í byrjun næsta árs. NET samþykkti á fundi sínum í nóvember vinnutilhögun starfshópsins fyrir árið 2002.
     b)      Upplýsingatækni í samgöngumálum. Verkefnið hefur verið unnið á ábyrgð Dana og gerði danski fulltrúinn í NET grein fyrir starfinu. Verkefni vinnuhópsins skiptist í þrennt 1) að setja upp sameiginlegt ferðaskipulagskerfi, 2) að gera úttekt á stöðu einstaklingsins í umhverfi þar sem upplýsingatækni verður nýtt til að auðvelda samgöngur og 3) að setja upp tölvukerfi sem fylgist með flutningi á hættulegum vörum. Á ráðherrafundinum var verkefnum forgangsraðað þannig að lögð var höfuðáhersla á 2) þ.e. upplýsingatæknina í þágu einstaklingsins. Lögð var áhersla á að vinnuhópurinn starfi sjálfstætt og láti ekki stjórnast um of af sérfræðingum. Samþykkt var að Finnland fari með formennsku í vinnuhópnum frá ársbyrjun 2002.
     c)      Sjálfbærar samgöngur á Norðurlöndum. Þetta verkefni er eitt af forgangsverkefnum NET. Þetta starf er unnið á ábyrgð Svíþjóðar og gerði sænski fulltrúinn í NET grein fyrir því á árinu. Kom m.a. fram að starf þessa vinnuhóps styrkti pólitíska umræðu um þennan málaflokk og væri gott innlegg í umræðuna innan ESB og EES. Á fundi NET í nóvember kom fram tillaga um að skipaður verði, tímabundið, vinnuhópur með tveimur fulltrúum frá hverju landi, einn frá samgönguráðuneyti og einn frá umhverfisráðuneyti, til að styrkja samstarfið milli aðila í þessum málaflokki. NET samþykkti á fundinum þetta fyrirkomulag og þá vinnutilhögun sem Svíar lögðu fram vegna ársins 2002.
     d)      Samstarfið á Eystrasaltssvæðinu. Finnland kynnti á fundi NET í nóvember drög að vinnufyrirkomulagi fyrir árið 2002, sem m.a. hefur að geyma tillögu um að skipulagt verði málþing um hvítbók ESB um samgöngustefnu sambandsins. Af öðrum samstarfsverkefnum má nefna i) samstarf Eystrasaltsríkjanna og Rússlands um umferðaröryggismál og ii) samstarf um samgöngurannsóknir. Norðmenn munu taka ákvörðun um það hvort efnt yrði til sérstaks ráðherrafundar ríkjanna á árinu 2002. NET samþykkti á fundinum umrætt vinnufyrirkomulag vegna þessa starfs á árinu 2002. Jafnframt var samþykkt að Danmörk hafi forustu í þessu starfi frá ársbyrjun 2002.

Samstarfið í framtíðinni – formennskuáætlun Noregs 2002.
    Það er sameiginlegt álit samgönguráðherra Norðurlanda að áhugi sé fyrir og þörf á að viðhalda norrænu samstarfi á sviði samgöngu- og umferðarmála. Þetta samstarf getur átt sér stað annað hvort innan vébanda Norrænu ráðherranefndarinnar eða milli einstakra landa.
    Samgöngumál snerta alla þætti þjóðlífsins og ekki óeðlilegt að þau séu vistuð á einum stað þótt þau gangi þvert á verkefni annarra ráðuneyta. Þetta á einkum við um umhverfismál samgöngugeirans, svo og upplýsingatækni í samgöngum.
    Noregur kynnti á fundi NET í nóvember sl. formennskuáætlun sína fyrir árið 2002. Í áætlun Noregs er lögð áhersla á eftirfarandi málefni, auk þeirra viðfangsefna sem norrænu samgönguráðherrarnir og NET hafa unnið að á undanförnum árum:
     a)      Norræn umferðaröryggismál.
     b)      Umhverfismál samgöngukerfisins.
     c)      Aukið samstarf um Evrópumál í ljósi norðlægrar víddar.
     d)      Upplýsingatækni í samgöngugeiranum og aukið samstarf í samgöngurannsóknum, byggt á þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið í Norður-Evrópu.
    

14. Landbúnaður og skógrækt.

    Norrænt samstarf á sviði landbúnaðar og skógræktar stendur á gömlum merg en er í sífelldri endurskoðun. Samstarfið innan Norrænu ráðherranefndarinnar byggist á þessum arfi og það hefur stöðugt þróast og ný viðfangsefni verið tekin upp. Starfsemin á árinu mótaðist af þeirri gerjun og breyttu áherslum sem eru að verða í norrænu samstarfi. Einnig einkenndist starfið af skipulagsbreytingum í starfi ráðherranefndarinnar þar sem leitað er eftir samþættingu samstarfsins þvert á ráðuneytaflokka enda skipan þeirra að nokkru ólík í löndunum fimm. Megináherslur í samstarfsáætluninni innan landbúnaðargeirans sem samþykkt var árið 2000 eru á verkefni sem hafa tengsl og skírskotun til eftirfarandi fjögurra sviða:
     –      Sjálfbær landbúnaður og sjálfbær skógrækt.
     –      Varðveisla erfðaefnis og líffræðilegs fjölbreytileika.
     –      Öryggi matvæla.
     –      Byggðaþróun á landsvæðum sem eru sérstaklega háð landbúnaði og skógrækt.
    Í samstarfsáætluninni er lögð rík áhersla á sjálfbærni allra þátta sem áætlunin tekur til innan landbúnaðar og skógræktar, með tilliti til erfðaefnis, öryggis matvæla og þróunar landsbyggðar. Embættismannanefndin, NÄJS, hélt á árinu þrjá fundi um forgangsröðun verkefna innan samstarfsáætlunarinnar. Finnland fór með formennsku á árinu og mótuðust áherslur í útfærslu samstarfsáætlunarinnar nokkuð af þeirri forgangsröðun sem Finnar lögðu fram á síðasta ári en hún beindist einkum að samstarfinu við grannsvæðin, varðveislu og notkun erfðalinda, norrænni þátttöku í alþjóðlegu skógræktarstarfi og öryggi matvæla.
    Ráðherrafundur eftir hinni nýju skipan, þar sem saman komu ráðherrar landbúnaðar, sjávarútvegs og matvæla, var haldinn í Reykjavík í júní en jafnframt hélt hver embættismannanefnd fund um sín málefni.
    Á fundi NÄJS í júni var samstaða um myndun nýrrar ráðherranefndar um landbúnað og skógrækt, sjávarútveg og matvæli og jafnframt að leggja niður ráðherranefndina fyrir landbúnað og skógrækt. Þessi breyting skyldi engin áhrif hafa á skipulag og verkefni NÄJS og því áfram unnið eftir samþykktri starfsáætlun nefndarinnar. Þýðingarmikið væri að halda sambandi við frjálsa geirann með því samskiptaformi sem verið hefur og að hafa á dagskrá sameiginlegra funda með frjálsa geiranum málefni sem væru áhugaverð fyrir báða aðila. Þá var lögð áhersla á að þessi breyting skerti á engan hátt heildarframlög til sviðanna þriggja og að embættismannanefndirnar, sem að þessu samstarfi kæmu, héldu fjárveitingum og ráðstöfun fjármuna hver fyrir sig.
    Þau föstu verkefni sem heyra undir landbúnaðarnefndina (NÄJS) eru:
     –      Norræni genbankinn fyrir nytjaplöntur (NGB).
     –      Norræni genbankinn fyrir húsdýr (NGH).
     –      Norræna samstarfsráðið fyrir landbúnaðarrannsóknir (NKJ).
     –      Samstarfsnefndin um norrænar skógræktarrannsóknir (SNS).
     –      Samstarf landbúnaðarháskólanna (NOVA).
     –      Norræna dýralæknasamstarfið (NKVet).
     –      Samstarfsnefnd um plöntusjúkdóma.
     –      Samstarfsráð um erfðalindir.
    Auk þessa stendur NÄJS fyrir margvíslegum stökum verkefnum og úttektum í ýmsum málaflokkum annað hvort eitt sér eða í samvinnu við embættismannanefndina í umhverfismálum ÄK-Miljö og embættismannanefndina í matvælum ÄK-Livs.
    Í samræmi við formennskuáætlun Finna var mikil áhersla lögð á málefni sem lúta að varðveislu og sjálfbærri notkun erfðalinda. Erfðaráðið (Genresursrådet), sem hóf formlega störf á árinu hélt þrjá fundi og hóf vinnu við samræmda stefnumörkun á þessu sviði. Vinnuhópur var settur á laggirnar til að kanna réttarstöðu þjóðanna gagnvart sínu erfðaefni, þar með talið því sem er í vörslu Norræna genbankans, í framhaldi af sáttmála sem náðist um þann málaflokk á vegum FAO en hann er hluti af því ferli sem hófst með samþykkt Umhverfissáttmála SÞ. Norrænu löndin þurfa öll að vinna að lagasetningu gagnvart réttarstöðu þeirra til eigin erfðalinda og verður mikið gagn af því að þjóðirnar hafi samráð í þeim efnum.
    Meginhlutverk Norræna genbankans er að varðveita og tryggja sjálfbæra nýtingu erfðalinda nytjajurta sem upprunnar eru á Norðurlöndum. Á síðasta ári, sem og endranær, var þessi þáttur fyrirferðamestur í starfsemi stofnunarinnar. Aukinn tími fer þó í að sinna ýmsum ráðgjafar- og þjónustuverkefnum af ýmsu tagi. Má þar nefna sérfræðiaðstoð við uppbyggingu genbanka í Afríku og í Eystrasaltsríkjunum. Einnig aðstoðar bankinn við uppbyggingu landsáætlana vegna varðveislu erfðalinda í landbúnaði sem verið er að koma á í framhaldi af Ríósáttmálanum.
    Norræni genbankinn fyrir húsdýr (NGH) starfar samkvæmt starfsáætlun fyrir tímabilið 2001–2003 og er aðalmarkmið starfseminnar að vera þekkingarmiðstöð fyrir verndunarstarf og sjálfbæra nýtingu erfðalinda í norrænu búfé. Fjárveiting ráðherranefndarinnar til starfsemi NGH hefur verið aukin frá og með 2001 og auk þess fær NGH beint framlag frá norska ríkinu. Á árinu var lögð áhersla á að efla tengsl milli aðila sem tengjast ræktun búfjár og varðveislu erfðalinda á Norðurlöndum og haldnir voru þrír fundir með fulltrúum allra landanna, um ræktunarstefnur, samstarf erfðanefnda og rannsóknaþörf. Auk þess er unnið áfram að rannsóknaverkefnum, sem hafa verið í gangi, m.a. í samstarfi við Eystrasaltsríkin.
    Samstarfsnefndin um norrænar skógræktarrannsóknir (SNS) stuðlar að samstarfi rannsóknaraðila á sviði skógræktar og nýtingar skógarafurða, veitir styrki til sameiginlegra rannsóknaverkefna skógvísindamanna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum, auk þess að vera Norrænu ráðherranefndinni til ráðgjafar um mál sem lúta að skógi og skógræktarrannsóknum. Í nýrri stefnumörkunaráætlun (strategiplan) SNS fyrir árin 2001–2003 er m.a. lögð aukin áhersla á norrænt netsamstarf á sérhæfðum sviðum rannsókna (nätverksgrupp) og aukna samnýtingu aðstöðu norrænna rannsóknastofnana. Í samræmi við þessa stefnumörkun hefur starfshópur unnið undanfarið ár að gerð gagnagrunns, sem hefði að geyma upplýsingar um allar langtímatilraunir í skógrækt á Norðurlöndum. Starfshópurinn hélt lokafund sinn á Íslandi sl. vor og í framhaldi var gagnagrunnurinn formlega opnaður á veraldarvefnum (http://noltfox.metla.fi). Þar er að finna upplýsingar um 12.000 langtímatilraunir, þar af 165 á Íslandi.
    Norræna samstarfsráðið fyrir landbúnaðarrannsóknir (NKJ) stuðlar að samstarfi á sviði landbúnaðarrannsókna. Fjármagn frá ráðherranefndinni beinist einkum að því að vinna að úttektum og stuðla að því að koma á samstarfi um verkefni á áhugaverðum sviðum. Meðal verkefnaflokka sem lögð er áhersla á í nýlegri starfsáætlun er að stuðla að rannsóknum á þeim vandamálum sem landbúnaður á við að glíma á norðlægri jaðarslóð og hefur verið unnin úttekt á því sviði. Komið hefur verið á starfshópi sem tekst á við gerð bygginga við erfið veðurfarsskilyrði á norrænni jaðarslóð. Einnig er hafin vinna við úttekt á sviði líftækni og erfðafjölbreytni með hliðsjón af hugsanlegu norrænu átaki á því sviði.
    Auk viðfangsefna sem unnin eru innan ofangreindra stofnana og nefnda stuðlar NÄJS að margvíslegum verkefnum með beinum fjárframlögum í framhaldi af gerð sérstakra áætlana, svo sem á sviði umhverfismála en sú áætlun er unnin og fjármögnuð í samstarfi við Norrænu embættismannanefndina um umhverfismál, ÄK-Miljö. Starfsemi Erfðalindaráðsins (Genresursrådet) fellur undir það samstarf. Á vegum NÄJS hófst á árinu úttekt á rannsóknasamstarfinu innan geirans sem væntanlega mun liggja fyrir á sumarfundi ráðherranefndarinnar sem verður í Grænlandi um miðjan ágúst.

15. Sjávarútvegsmál.

    Ákveðið var á árinu að norrænir ráðherrafundir sjávarútvegs-, landbúnaðar- og matvælageiranna yrðu héðan í frá sameiginlegir. Embættismannanefndir hvers geira starfa þó með óbreyttu sniði og fjárhagur norræna samstarfsins á þessum sviðum aðgreindur. Ákvörðunin kom í framhaldi af mikilli alþjóðlegri umræðu undanfarin ár um öryggi matvæla. Formennskuár Dana í norrænu samstarfi árið 2000 markaðist mjög af áhuga þeirra og norrænu ríkjanna í ESB á að fella saman í einn málaflokk hvaðeina er viðkemur matvælum, en matvælaöryggisfár sem gengu yfir í stærstu markaðslöndum norrænu ríkjanna, skerptu sýn á nauðsyn þess að taka matvælaöryggismál föstum tökum. Ákveðið var að fara bil beggja, en vestnorrænu ríkin töldu miklu skipta að sjávarútvegur héldi þeim sessi sem hann hefur haft í norrænu samstarfi. Þar væri ekki aðeins rætt um fisk sem matvæli heldur einnig um fisk sem auðlind. Hætt yrði við að landbúnaðarmál yfirgnæfðu sjávarútvegsmálin ef alltaf ætti að ræða þau samtímis. Í júní var haldinn annar sameiginlegur fundur ráðherra þessara mála í Reykjavík, þar sem ákveðið var að festa þessa skipan mála í sessi, en fyrsta tilraun með þetta form var árið áður á Svalbarða.
    En árið 2001 var einnig minnisvert vegna umhverfis- og sjávarútvegssamstarfs sem leiddi til Norður-Atlantshafsráðstefnunnar um hafið sem haldin var í Færeyjum í sumar. Þar kom saman umhverfisverndar- og sjávarútvegsfólk, þar á meðal nokkrir ráðherrar, frá ríkjum og svæðum umhverfis Norður-Atlantshaf og ræddu fjölmargt er varðar hafið svo sem áhrif loftslagsbreytinga, mengun og fiskveiðistjórnun. Ákveðið var að hittast aftur árið 2003 á Hjaltlandseyjum til að ræða það sem efst er á baugi í málefnum hafsins.
    Á matvælaráðherrafundinum í Reykjavík í júní voru tvö meginfundarefni, annars vegar merkingar og rekjanleiki matvæla og timburafurða í alþjóðlegri verslun, hins vegar vistkerfi hafa og vatna og sjálfbær auðlindanýting. Afar athyglisverðar umræður urðu á fundinum um þessi efni enda eru þessir árlegu ráðherrafundir, með þeim mörgu sem þá sækja, eins konar efnisleg uppskeruhátíð samstarfsins.
    Áætlunin um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum hefur sett mikinn svip á sjávarútvegssamstarfið eins og víðar. Norðurlandaráð efndi til sérstaks þemafundar um áætlunina í Ósló í apríl. Íslenski sjávarútvegsráðherrann hafði þar framsögu um það sem snertir hafið í áætluninni, og sænski landbúnaðarráðherrann, sem jafnframt er sjávarútvegsráðherra, gerði að umtalsefni evrópsk viðbrögð til að tryggja matvælaöryggi. Sjávarútvegsráðherra Íslands kom reyndar víðar við í norrænu samstarfi en á norrænni jafnréttisráðstefnu karla, sem haldin var í Kaupmannahöfn í haust, sagði hann frá reynslu sinni af feðraorlofi hér á landi.
    Í nýrri samstarfsáætlun sjávarútvegssamstarfsins sem gildir til 2004 kemur fram að markmið þess eru að stuðla að sjálfbærri þróun í sjávarútvegi og fiskeldi í norrænu ríkjunum, svo og vernd hafsins, enda eru heilbrigð höf forsenda hins fyrrnefnda. Tryggja á sem kostur er að neytendum gefist kostur á að velja holl, góð og örugg matvæli. Mikilvægt er talið að styðja verkefni sem varða þau svæði sem háðust eru sjávarútvegi. Tekið er fram að grundvöllur norræna sjávarútvegssamstarfsins sé í sjávarútvegsstefnu hvers lands, en samstarfinu sé ætlað að finna lausnir á sviðum þar sem sameiginlegar lausnir gefast betur en að hver þjóð fyrir sig taki á málum.
    Sérstök vísindanefnd starfar í sjávarútvegssamstarfinu sem velur þau verkefni sem styrkt eru. Í samræmi við samstarfsáætlunina var sem fyrr reynt að styrkja innviði sjávarútvegsins í löndunum með stuðningi við ýmiss konar rannsóknir sem tengjast honum. Þessi áhersla hefur verið rauður þráður í samstarfinu undanfarin ár. Meðal verkefna sem styrkt voru í haust eru gerð myndbands um kjörhæf veiðarfæri, samanburður og þróun í matsaðferðum fyrir uppsjávarfiska, rannsóknir á atferli lúðu þar sem notuð eru rafmerki, vinnusmiðja vísindamanna og stjórnvalda um brottkast, svo nokkur séu nefnd. En verkefnum er skipt í þrjár megingreinar, verkefni er varða sjálfbærar veiðar og eldi, neytendatengd verkefni og þverfagleg verkefni.
    Norræna samstarfið á sjávarútvegssviðinu fellur undir efnahags- og atvinnusamstarf í samræmi við breytingar sem gerðar voru á heildarskipulagi Norrænu ráðherranefndarinnar árið 1996. Sjávarútvegssamstarfið heldur ekki sínum hlut nú í fjárveitingum frá fyrra ári. Þá fékk það tæplega 7,4 millj. d.kr. á fjárlögum norræna samstarfsins en fær rúmlega 7,1 til ársins 2002. Þess ber þó að geta að samstarfsgeirarnir geta sótt í sérstakan pott, að upphæð 4 millj. d.kr., sem tekinn er frá til verkefna til að fylgja eftir áætluninni um sjálfbæra þróun og á sjávarútvegsgeirinn aðild að þremur umsóknum þar. Frá því að þverfaglegu samstarfi umhverfis- og sjávarútvegsgeiranna var komið á, hefur framlag sjávarútvegssamstarfsins til þess numið einni milljón króna árlega og má ætla að svo verði enn.
    Ætla má að norræna sjávarútvegssamstarfið muni áfram að stórum hluta verða helgað því að svara með ýmsum hætti kröfum um að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi í sjávarútvegi og hvernig neytendur geti sannreynt það. Áhugi á að efla matvælaþátt norræna samstarfsins mun setja svip á næsta ár enda er sá þáttur eitt áhersluatriði í formennskuáætlun Norðmanna fyrir árið 2002.
    Þrír fundir voru á árinu í embættismannanefndinni um sjávarútvegsmál: í Helsinki í mars, í Reykjavík í júní og í Kaupmannahöfn í október. Sjávarútvegssamstarfið hefur orðið pólitískara, í breiðum skilningi þess orðs, undanfarin ár. Gildi þess felst m.a. í því að fólk þekkist og getur talað saman og borið saman bækur sínar þegar á reynir. Það sem gerist í markaðslöndum sjávarafurða í Evrópu hefur mikil áhrif í framleiðslulöndum sjávarfangs og er norræna samstarfið m.a. mikilvægt vegna þess að þar vinna stærstu sjávarvöruframleiðsluríkin og ríki, sem einnig starfa innan ESB, saman að verkefnum og hugmyndum er varða sjávarútveg. Veigamikill þáttur í samstarfinu er og verður starf fiskveiðiráðgjafa Norrænu ráðherranefndarinnar sem sér um daglegan rekstur verkefna og samræmingu.

16. Norrænn vinnumarkaður og vinnuvernd.

    Samstarfið byggist á samstarfsáætlun í vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismálum sem tekur til áranna 2001–2004. Fjögur meginmarkmið ráðherranefndarinnar fram að árslokum 2004 eru:
     –      full atvinna – jafnvægi framboðs og eftirspurnar á vinnuafli;
     –      góða vinnan – öryggi á vinnustað og á vinnumarkaði;
     –      afnám landamærahindrana á Norðurlöndum – þróun norræns samstarfs;
     –      efling norræna velferðarþjóðfélagsins, Evrópusamstarfsins og samstarfs við grannsvæði Norðurlanda.
    Starfshópar, embættismannanefndir og aðrar samráðsnefndir sem embættismannanefndin á sviði vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismála (ÄK-A) felur framkvæmd áætlunarinnar skulu gefa árlegar skýrslur um framgang mála. Í umboði ráðherranefndarinnar (MR-A) á ÄK-A að tryggja að samstarfsáætluninni verði hrint í framkvæmd og gera reglulega grein fyrir stöðu mála til ráðherranefndarinnar. Á árinu voru gefin út tvö tölublöð af Arbejdsliv i Norden og Nordic Labour Journal.

Vinnumarkaðssamstarf.
     Vinnumarkaðsnefndin er vettvangur fyrir umræðu um atvinnumál, vinnumarkaðsmál og vinnumarkaðsrannsóknir í norrænu samstarfi. Nefndin styrkti ýmis verkefni á árinu m.a. ráðstefnur, útgáfu og vinnslu skýrslna um efni tengd vinnumarkaðsmálum og rannsóknum.
    Helstu verkefni sem voru styrkt af nefndinni:
     –      Rannsókn um samspil vinnumarkaðar og atvinnuleysisbóta;
     –      Vinnufærni vinnuafls á vestnorræna svæðinu, er þá sérstaklega verið að rannsaka Grænland í þessu samhengi;
     –      Skipulag virkrar vinnumarkaðsstefnu;
     –      Þróun starfslegrar hæfni á Norðurlöndum;
     –      Mat og úrelding þekkingar og hæfni;
     –      Vinnumarkaðurinn í Eystrasaltslöndum og flutningur vinnuafls til Norðurlanda.
    Verkefni vinnumarkaðsnefndarinnar er einnig að sjá til þess að unnin sé skýrsla um atvinnumál á Norðurlöndum sem lögð er fyrir þing Norðurlandaráðs ár hvert. Skýrsla var unnin í Finnlandi um hreyfanleika vinnuafls milli Eystrasaltsríkjanna og Norðurlanda.
     Samstarfshópur um vinnumarkaðsþjónustu. Samstarfshópurinn annast m.a. vinnumiðlun, starfsmenntun í atvinnulífinu og atvinnuleysistryggingar og veitir enn fremur faglega ráðgjöf á vinnumálasviðinu gagnvart vinnumarkaðsnefndinni.
    Meðal verkefna sem unnið er að eru: þjónusta vinnumiðlunar við innflytjendur á Norðurlöndum, en seminar var haldið um málefnið í Reykjavík sl. haust; verkefni um símaþjónustukerfi á Norðurlöndum; gefin var út handbók fyrir starfsfólk vinnumiðlana á Norðurlöndum sem á að auka þekkingu í vinnumiðlunartækni í vinnumiðlunum á Norðurlöndum; haldið var seminar á Álandseyjum um hlutverk vinnumarkaðsstefnunnar á svæðum þar sem efnahagslífið er einhæft.
    Meðal verkefna sem fyrirhugað er að vinna áfram að eru: símaþjónustukerfi, starfssvið opinberra og einkarekinna vinnumiðlana, samband vinnumiðlunar við menntakerfið; norræn og alþjóðleg vinnumiðlun; þýðing upplýsingatækninnar fyrir vinnumiðlun; hlutverk vinnumiðlunar á þróunarsvæðum; vinnumiðlun og félagsþjónusta sveitarfélaga, ábyrgð vinnumiðlunar á vinnumarkaði þar sem eru jaðarhópar (langtímaatvinnulausir, fatlaðir o.s.frv.), samskipti vinnumiðlana og atvinnurekenda, gæði þjónustu vinnumiðlunar; sjálfsafgreiðsla og internetmiðlun og stefna vinnumiðlunar gagnvart hópum sem eiga erfitt með að fá störf.
    Atvinnuskipti ungs fólks. Eitt helsta norræna samstarfsverkefnið á sviði vinnumarkaðar er NORDJOBB, sem byggir á atvinnuskiptum ungs fólks milli norrænu landanna, en Norrænu félögin annast nú þessi samskipti á Norðurlöndum. Á árinu 2001 fóru 144 ungmenni héðan í vinnu á Norðurlöndum á vegum NORDJOBB og 113 norræn ungmenni komu hingað til lands til vinnu.
    Á vegum NORDPRAKTIK verkefnisins komu 18 einstaklingar frá Eystrasaltsríkjunum á árinu.
     Atvinnuleysistryggingar. Norrænt samstarf vegna atvinnuleysistrygginga hefur farið fram í tveim nefndum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, þ.e. í norrænum samstarfshóp um atvinnuleysistryggingar og fastanefndinni vegna ráðstefna um atvinnuleysistryggingar.
Á árinu var haldin norræn ráðstefna um atvinnuleysistryggingar í Noregi, en ráðstefna þessi er haldin til skiptis í löndunum á tveggja ára fresti.
    Fjallað var um ýmis málefni, m.a sveigjanlegar eða þröngar reglur m.t.t. atvinnuleysisdagpeninga og menntunar, samanburð á bótastigi í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og atvinnuleysistryggingar í Eystrasaltsríkjunum.
     Atvinnulíf og vinnuréttur (NAU). Norrænu samstarfsnefndinni um vinnurétt og atvinnulíf er ætlað að vera vettvangur fyrir kynningu, umræður og samræmingu norrænna sjónarmiða í málefnum á sviði vinnuréttar og atvinnulífs bæði innan og utan Norðurlanda.
    Nefndin hefur lagt megináherslu á að fjalla um áhrif nýrra tillagna á sviði vinnuréttar sem hafa verið til umfjöllunar hjá ESB og framkvæmd annarra sem þegar hafa verið samþykktar af ESB og fyrirhugað er að nái til Evrópska efnahagssvæðisins. Þá hefur umfjöllun innan nefndarinnar einnig náð til annarra þátta í alþjóðlegu vinnumálasamstarfi, svo sem á vettvangi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
    Fjölmörg mál komu til umfjöllunar á árinu. Sem dæmi má nefna tilskipanir ESB um bann við mismunun í atvinnulífinu og víðar og starfsáætlun til að vinna gegn slíkri mismunun, tilskipun um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum, tilskipun um upplýsingar og samráð á vettvangi Evrópufélagsins (SE), breytingar á jafnréttistilskipun ESB, tilskipun um vernd starfsmanna við gjaldþrot fyrirtækja og fyrirkomulag á greiðslu launa í formi kaupréttar að hlutabréfum á Norðurlöndum.
    Þá hélt nefndin einn samráðsfund með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins á Norðurlöndum um evrópsk vinnuréttarmál.
     Innflytjendamál. Hlutverk norrænu samstarfsnefndarinnar um innflytjendamál er að skiptast á upplýsingum um hvaðeina er varðar innflytjendur og flóttafólk, svo sem um löggjöf, tölfræði, skýrslur um rannsóknir o.fl.
    Nefndin stóð fyrir námstefnu í Finnlandi um hlutverk atvinnulífs vegna aðlögunar innflytjenda og fyrirhugað er að halda ráðstefnu um vandamál ungra innflytjenda. Einnig hefur verið ákveðið að kanna aðlögun þeirra innflytjenda sem koma til landanna á grundvelli fjölskyldutengsla.

Norræna rannsóknanefndin á vinnuverndarsviði og stjórn NIVA.
    Fundir eru haldnir tvisvar á ári og skiptast Norðurlöndin á um að vera í gestgjafahlutverki. Helstu mál voru umræður um verkefni sem notið hafa styrkja rannsóknanefndarinnar, fyrirhugaður samráðsfundur með öðrum nefndum á vinnuverndarsviði, sem starfa á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, og ráðning nýs forstjóra NIVA (Norrænu endurmenntunarstofnunarinnar í vinnuvernd).
    Forsvarsmenn hinna ýmsu rannsóknaverkefna höfðu sent greinargerð um starf sitt og þar kom fram að nokkrum verkefnum var lokið, önnur töldust í viðunandi horfi. Lokaskýrsla um fund framámanna á vinnuverndarsviði (top level seminariet) sem haldinn var í Svíþjóð er komin út (TemaNord 2000:602). Eintak af skýrslunni er til á bókasafni Vinnueftirlitsins. Norrænn spurningalisti um andlegt álag í vinnunni liggur nú fyrir og þegar hefur verið hafist handa um að búa til gagnabanka þar sem safnað verður saman upplýsingum sem fást með notkun spurningalistans. Intervention Studies in the Health Care Work Environment (Íhlutandi rannsóknir meðal starfsmanna í heilbrigðisþjónustunni) er verkefni sem lauk með greinargerð sem kom úr í tímaritinu Arbete och Hälsa 2000:10. Sagt var frá því helsta sem er að gerast í rannsóknum á vinnuverndarsviði á Norðurlöndum.
    Gerð var grein fyrir helstu áherslum á vinnuverndarsviði á árinu þegar Finnar voru í forsvari nefnda á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Norræna sérfræðingahópnum, sem hefur frá árinu 1978 haft umsjón með ritun sérfræðirita um áhrif efna sem notuð eru á vinnustöðum, hafði áður verið falið að benda á utanaðkomandi sérfræðinga sem gætu metið störf hópsins og gagnsemi starfseminnar. Hópurinn tilnefndi prófessor Victor J. Feron og Henrik Nordman sem heppilega sérfræðinga til þessa verks og hafði rannsóknarnefndin ekkert við það val að athuga.
    Á fundinum í stjórn NIVA kom fram að nokkur ágóði var af starfseminni síðastliðið ár en Norræna ráðherranefndin hefur látið í ljós þá ósk að stofnunin hafi einhvern sjóð upp á að hlaupa þegar þrengir að. Farið var yfir fyrirhuguð námskeið á þessu ári og því næsta og tveim frestað, öðru milli ára.
    Á námskeiðunum sem haldin voru á árinu var m.a. fjallað um líkamleg áhrif líkamlegrar og andlegrar vinnu, vinnuskipulag, vinnuumhverfi aldraðra, dreifingu rannsókna-upplýsinga, öryggismál, einelti og áreitni í vinnu, faraldsfræði, atvinnuheilbrigði, mengunarmörk og vinnutengda húðsjúkdóma.

17. Heilbrigðis- og félagsmál.

Ráðherrafundur.
    Árlegur fundur heilbrigðis- og félagsmálaráðherra Norðurlanda var haldinn í Mariehamn á Álandseyjum í ágúst sl. Á fundinum ákváðu ráðherrarnir að Norræna lyfjanefndin yrði lögð niður í lok mars 2002. Forsvarsmenn ráðuneytanna í lyfjamálum á Norðurlöndum munu hins vegar hittast áfram á fundum um lyfjamál. Á fundinum var samþykkt að breyta áherslum NIOM (Norrænu tannlækningastofnunarinnar) og beina starfseminni fyrst og fremst að rannsóknum og þróunarstarfi.
    Á ráðherrafundinum spunnust umræður um hvernig best væri að standa að útgáfu vottorða fyrir þá sjúklinga sem ferðast á Schengen-svæðinu og þurfa að hafa með sér lyf sín sem innihalda örvandi efni. Norrænu ráðherrarnir eru almennt sammála um að auðvelda sjúklingum sem nota lyf, sem í eru örvandi efni, að ferðast á Schengen-svæðinu.
    Eitt meginþema fundarins var hvernig almennt má auka velferð barna og hvernig koma má í veg fyrir að tilteknir hópar barna og ungmenna lendi á refilstigum, og hvaða aðferðir dygðu best í því sambandi. Ráðherrarnir lögðu ríka áherslu á að ræða þessi mál á vettvangi norræns samstarfs í heilbrigðis- og félagsmálum meðal annars með tilliti til vaxandi ofbeldis, fíkniefnaneyslu ungmenna og félagslegrar einangrunar tiltekinna hópa ungmenna.

Embættismannanefndin.
    Norræna embættismannanefndin á sviði heilbrigðis- og félagsmála (ÄK-S) hélt þrjá fundi á árinu. Á fundi nefndarinnar í Lillehammer í mars var fjallað um formennskuáætlun Finna, Evrópumálefni, skýrslu nærsvæðanefndarinnar, Norrænu lyfjanefndina, Norrænu tannheilsustofnunina (NIOM), NOPUS og skýrslur um starfsemi annarra stofnana innan samstarfsgeirans. Á fundi embættismannanefndarinnar í tengslum við ráðherrafundinn í ágúst var, auk undirbúnings fundar ráðherranna, sérstaklega fjallað um stefnumörkun varðandi sjálfbæra þróun á Norðurlöndum. Á dagskrá haustfundar, sem haldinn var í nóvember í Rovaniemi í Finnlandi, voru m.a. fjárlagatillögur fyrir árið 2002, formennskuáætlun Norðmanna, nýir samningar við stofnanir samstarfssviðsins, fjármögnunarkerfi Norræna heilbrigðisfræðaháskólans og evrópsk og alþjóðleg málefni.

Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn (NHV).
    Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn í Gautaborg, Svíþjóð, er samnorræn menntastofnun fyrir æðri menntun og rannsóknir innan heilbrigðisfræði.
    Á árinu hefur verið unnið að ýmis konar breytingum á starfsemi skólans í samræmi við ábendingar ASPHER (Association of Schools of Public Health in the European Region) sem gerði úttekt á skólanum árið 1999. Felast þessar breytingar m.a. í því að verið er að styrkja samstarf við háskóla annars staðar á Norðurlöndum, breyta skipuriti skólans, auka möguleika á fjarnámi og gefa nemendum möguleika á að skipuleggja nám sitt lengra fram í tímann. Einnig hefur verið unnið að nýrri stefnumörkun fyrir skólann í samræmi við þessar breytingar og þróun sem orðið hefur í kennslu í heilbrigðisfræði á Norðurlöndum og annars staðar. Þá var hafin athugun á möguleikum á að breyta fyrirkomulagi á skiptingu kostnaðar milli landanna.
    Fjórtán Íslendingar stunduðu nám við skólann á árinu. Sá fjöldi er ákvarðaður út frá samkomulagi milli norrænu landanna um fjölda nemenda frá löndunum hverju sinni. Þá tók Ísland þá ákvörðun að við val á nemendum inn í skólann skyldi reynt að gefa fleiri framkvæmdastjórum og stjórnarformönnum heilbrigðisstofnana möguleika á að stunda nám við skólannn með það að markmiði að efla stjórnun heilbrigðisstofnana á Íslandi. Verður reynt að hafa það sem grunnviðmið á næstu tveimur árum.
    Eins og nokkur undanfarin ár átti skólinn samstarf við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands um kennslu í rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Var eitt slíkt námskeið haldið hér á landi á árinu.

Norræna tannlækningastofnunin (NIOM).
    Fyrir íslenska tannlækna eru tengslin við NIOM hagkvæm vegna upplýsinga um gæði og aukaverkanir efna til tannlækninga, ekki síst til þess að koma í veg fyrir að verið sé að nota efni áður en þau eru fullreynd. Verkefnum NIOM er skipt í fjóra meginþætti: (1) stöðlun („standariseringu“), (2) prófun efna, (3) rannsóknir og (4) fræðslu. Á alþjóðlegum vettvangi tekur NIOM þátt í mótun staðla varðandi gæði og öryggi í tannlækningum með þátttöku í ISO (International Organization for Standardization), CEN (Comité Européen de Normalisation) og FDI (Federation Dentaire Internationale). NIOM starfar nú ekki aðeins á norrænum vettvangi heldur hefur stofnunin fengið heimild til starfsemi á öllu Evrópska efnahagssvæðinu.
    Á árinu var unnið að endurskipulagningu NIOM og ákveðið að leggja meiri áherslu á rannsóknir og þróunarstarfsemi á næstu árum. NIOM Cert hlutinn verður skilinn frá meginstarfseminni og gerður að sjálfstæðri stofnun.

Norræna lyfjanefndin (NLN).
    Norræna lyfjanefndin er samstarfsvettvangur Norðurlanda í lyfjamálum. Kostnaður við störf nefndarinnar er að mestu greiddur af fjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefni nefndarinnar undanfarin ár hafa verið sem hér segir:
     –      að stuðla að samræmingu laga, reglugerða og lyfjamála á Norðurlöndum;
     –      að stuðla að norrænni samvinnu um samstarf Evrópu um lyfjamál, Evrópsku lyfjaskrárnefndarinnar, EFTA, ESB og Lyfjamálastofnun Evrópu (EMEA);
     –      að stuðla að norrænum rannsóknum og samvinnu um lyfjamál og vera ráðgjafi ríkisstjórna Norðurlanda og Norrænu ráðherranefndarinnar;
     –      að gera reglulega samanburð á lyfjanotkun og lyfjakostnaði Norðurlanda, þar sem stuðst er við ATC-lyfjaflokkunarkerfið og DDD, sem eru verkefni, sem NLN hefur unnið ötullega að úbreiðslu á undanfarin ár og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur nú tekið það upp og hvetur til notkunar þess um allan heim;
     –      að halda ráðstefnur/námsstefnur um mál, er tengjast lyfjum.
    Norræna ráðherranefndin ákvað á árinu að leggja niður starfsemi NLN og mun skrifstofa nefndarinnar starfa út marsmánuð 2002. Jafnframt hefur verið ákveðið að forsvarsmenn lyfjamála á Norðurlöndum þingi í framtíðinni árlega um sín mál.

Norræna rannsóknarnefndin á sviði vímuefna (NAD).
    NAD (Nordiska nämnden för alkohol och drogforskning) hefur það markmið að efla og þróa þverfaglega samvinnu á sviði áfengis- og vímuefnarannsókna. Starfsemin miðast að verulegu leyti við samfélagslegar rannsóknir, samfélagslækningar og samfélagsgeðlækningar. NAD er ætlað að auka þekkingu manna á neyslu vímuefna, forvörnum, stefnumótun og meðferð á fíklum. Helsta verkefni NAD er að stuðla að öflugum sameiginlegum rannsóknum á þessu sviði og miðla upplýsingum. NAD á að vera vettvangur skoðanaskipta og upplýsinga fyrir norræna þegna sem hafa áhuga á áfengis- og vímuefnamálum. NAD gefur út eigið blað (NAT) og rekur skrifstofu í Helsinki.
    NAD hélt tvo reglulega stjórnarfundi á árinu. Á þessum fundum var rekstur NAD ræddur, ákvarðanir teknar um styrkveitingar og þau verkefni sem fyrir hendi eru.
    NAD hefur til þessa gegnt mikilvægu hlutverki fyrir íslenska vísindamenn á sviði áfengisrannsókna og virðist nýtast íslenskum hagsmunum vel. Að mati fulltrúa Íslands í stjórn NAD eru framtíðarverkefni NAD vel til þess fallin að glæða áhuga íslenskra vísindamanna enda er um málaflokk að ræða sem við þekkjum vel.

Norræna samstarfsmiðstöðin um málefni fatlaðra (NSH).
    Norrænt samstarf um málefni fatlaðra (NSH) er stofnun, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Helstu verkefni NSH eru að stuðla að því að markmið hinna einstöku Norðurlanda um jafnrétti og fulla þátttöku fatlaðra í samfélaginu verði að veruleika. NSH styrkir fjölda verkefna sem stefna að því að auka og bæta þjónustu við fatlaða á Norðurlöndum og auðvelda þeim aðgang að upplýsingasamfélaginu. NSH gefur einnig gaum að stöðu fatlaðra innan heildarstefnumótunar velferðarsamfélagsins.
    Starfsmenn hins norræna samstarfs um málefni fatlaðra (NSH) veita Norræna ráðinu um málefni fatlaðra (NHR, Nordiska Handikapppolitiska Rådet) ýmsa þjónustu bæði á sviði stjórnsýslu og skrifstofuhalds.
    NSH er samstarfsmiðstöð Norðurlanda varðandi málefni fatlaðra og þá sérstaklega á starfssviði félagsmálaráðuneyta landanna. Samstarfinu er ætlað að stuðla að því að markmiðum landanna er varða jafnrétti og þátttöku fatlaðra í þjóðfélaginu verði náð.

Norræna menntamiðstöðin á sviði daufblindu (NUD).
    Meginmarkmið með starfsemi NUD er að vinna að framgangi og þróun norrænnar samvinnu á sviði daufblindu. NUD á að stuðla að því að styrkja faglega þróun starfsfólks og þeirra stofnana eða samtaka sem starfsfólkið tengist. Norræna samvinnan á að auka gæðin á tilboðum til daufblindra og skapa sameiginlega norræna sjálfsmynd meðal starfsfólks á þessu sviði.
    Verkefni NUD eru að:
     –      sjá starfsfólki, sem vinnur með daufblindum, fyrir norrænni menntun sem styður og bætir upp menntun í hverju landi,
     –      þjóna sem þekkingarmiðstöð á sviði daufblindu,
     –      vinna að söfnun og þróun þekkingar, viðhalda tengslaneti og sinna alþjóðlegu samstarfi á sviði daufblindu, og
     –      koma á og stýra starfi við þróun og skráningu grunnþekkingar á þessu sviði.
    Haldin voru fjögur grunnnámskeið, tvö þemanámskeið, ein ráðstefna og eitt „workshop“. Samtals var 141 þátttakandi og þar af 10 íslenskir. Sjö fyrirlestrar voru fluttir frá NUD í fjarkennslu (videokonferencer) til samstarfslandanna.

Norræna hagskýrslunefndin á sviði félagsmála (NOSOSKO).
    Meginverkefni NOSOSKO er að vinna að samanburðarhæfri skýrslugerð um velferðarmál á Norðurlöndum og gefa árlega út skýrslu um það efni. Af öðrum verkefnum má nefna að nefndinni ber að fylgjast með alþjóðlegu samstarfi í hagskýrslugerð og vinna að samræmingu upplýsinga sem frá þátttökulöndunum koma. Allar Norðurlandaþjóðirnar fimm eru aðilar að samvinnu Evrópulanda á sviði hagskýrslugerðar, Eurostat, ýmist vegna aðildar sinnar að ESB eða EES. Eurostat vinnur að bættri hagskýrslugerð á sviði heilbrigðis- og félagsmála og sundurliðun útgjalda eftir svonefndri ESSPROS-flokkun. Á árinu gaf NOSOSKO út rit um þróun heilbrigðis- og tryggingamálaútgjalda á Norðurlöndum á áratugnum 1990–2000.

Norræna heilbrigðistölfræðinefndin (NOMESKO).
    Meginmarkmið NOMESKO er að vinna að samræmingu og söfnun tölfræðilegra upplýsinga um ýmsa þætti heilbrigðisþjónustunnar, sjúkdóma, dánarorsakir ásamt tengdum þáttum.
    Starf þetta fer að töluverðu leyti fram með samræmingu skilgreininga, skráninga og afmörkunar innan einstakra þátta til þess að tryggja að um sé að ræða sem líkastar upplýsingar og til þess að þær verði sem best sambærilegar.
    NOMESKO kemur niðurstöðum sínum á framfæri aðallega í gegnum megin útgáfu sína, „Health Statistics in the Nordic Countries“, en einnig í sérútgáfum og öðrum upplýsingum sem eru birtar á heimasíðu nefndarinnar.
    Samræming flokkunarkerfa hefur í auknum mæli verið unnin af Norrænu skrifstofunni fyrir flokkun á sjúkdómum í Uppsölum, en mjög náið samstarf er milli þessara stofnana.
    Helstu verkefni sem unnið hefur verið að á árinu hafa verið athugun á mannafla og fjármagni innan heilbrigðisþjónustunnar, staðtölur fyrir sjúklinga sem ekki eru lagðir inn, dánarorsakaflokkun, lyfjanotkunarupplýsingar, gæðamat á flokkun aðgerða og fleira.
    Frá árinu 1974 hefur NOMESKO átt mikið samstarf við Eystrasaltsríkin og hefur m.a. unnið að útgáfumálum og námskeiðshaldi fyrir þau lönd. Áfram er unnið á því sviði.
    Fulltrúi Íslands í NOMESKO er formaður nefndarinnar.
    Norræna stofnunin um sjúkdómaflokkanir (Nordiskt Center för klassifikation av sjukdomar) í Uppsölum starfar í nánu samstarfi við NOMESKO og eru fundir stjórna gjarnan haldnir sameiginlega.

Norræna menntamiðstöðin fyrir þróun félagsþjónustu (NOPUS).
    NOPUS er norræn stofnun á sviði eftir- og framhaldsmenntunar á háskólastigi fyrir starfsfólk félagsþjónustu. Markmið starfseminnar er að auka færni og kunnáttu starfsmanna í lykilstöðum innan félagsþjónustunnar. NOPUS er miðstöð fyrir miðlun reynslu, þróun hugmynda og framhaldsnáms á hinu félagslega sviði ásamt því að stuðla að myndun samstarfshópa um mikilvæg málefni. Miðstöðinni er sömuleiðis ætlað að gera grein fyrir þekkingu á sínu starfssviði og taka frumkvæði og samhæfa ýmiss konar rannsóknar- og þróunarverkefni á Norðurlöndum.
    NOPUS var starfrækt sem sérstakt verkefni frá árinu 1989 til 1993 þegar því var breytt í sjálfstæða stofnun sem rekin var sem tilraun til loka ársins 2000. Á árinu var aðallega unnið að endurskipulagningu starfseminnar og ráðningu nýs framkvæmdastjóra fyrir stofnunina.

Norðurlandasamningur um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna.
    Samningurinn fjallar um gagnkvæmar viðurkenningar prófskírteina ákveðinna starfsstétta innan heilbrigðis- og dýralæknaþjónustunnar og á að tryggja aðgang norrænna ríkisborgara að norrænum vinnumarkaði á þessum sviðum. Samningurinn nær nú í heild til 22 faghópa en Ísland er einungis aðili varðandi 19 hópa. Eftirlitsnefnd samningsins hefur ekki aðeins eftirlit með framkvæmd samningsins heldur tekur einnig saman upplýsingar um flutning heilbrigðisstarfsmanna milli norrænu landanna, svo og um fjölda innritaðra og útskrifaðra nemenda á þeim sviðum er undir samninginn heyra. Nefndin fylgist auk þess með framkvæmd á tilkynningarskyldu vegna sviptingu eða takmarkana starfsleyfa á Norðurlöndum.
    Á árinu var haldinn einn fundur í nefndinni og var þar fjallað um mál er varða framkvæmd samningsins. Evrópsk málefni, einkum tengsl við regluverk ESB, eru einnig ávallt til umfjöllunar á fundum nefndarinnar.
    

18. Jafnréttismál.

    Ísland tekur virkan þátt í fjölda norrænna nefnda og verkefna á sviði jafnréttismála. Hér verður gerð grein fyrir því starfi sem tengist Norrænu ráðherranefndinni sérstaklega.

Ráðherranefnd jafnréttismála (MR-JÄM).
    Ráðherranefndin hélt tvo fundi á árinu, annan óformlegan, í tengslum við ráðstefnuna Konur og lýðræði, – Reykjavík–Vilnius í júní og hinn formlegan í Helsinki í nóvember sl.
    Á fundinn í Vilnius voru einnig boðaðir þeir ráðherrar Eystrasaltsríkjanna, sem fara með jafnréttismál. Á dagskrá var framkvæmdaáætlun um samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í jafnréttismálum, og tillaga Svía um sérstakt kynningar- og fræðsluátak til að vinna gegn mansali til kynlífsþrælkunar.
    Jafnréttisráðherra Svíþjóðar fylgdi tillögu Svía úr hlaði og var henni vel tekið. Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra lagði áherslu á mikilvægi samstarfs dóms- og jafnréttisyfirvalda, ef vinna á markvisst gegn mansali. Allir fundarmenn lýstu sig sammála tillögunni og áherslu dómsmálaráðherra í grundvallaratriðum og samþykktu að fylgja málinu eftir hver í sínu landi.
    Í nýrri samstarfsáætlun norrænu og baltnesku ríkjanna fyrir 2001–2003 er lögð áhersla á eftirfarandi þætti:
     –      Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í norræn/baltnesk verkefni og áætlanir;
     –      Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í fjárlagagerð;
     –      Atvinnurekstur kvenna;
     –      Ofbeldi gagnvart konum;
     –      Karlar og jafnrétti;
     –      Ungt fólk og jafnrétti.
         Á ráðherrafundinum í Helsinki í nóvember var umræðunni um baltneska samstarfið og mansal fylgt eftir með áhugaverðum erindum og umræðum um rannsókn á ofbeldi gegn konum í Eistlandi, annars vegar, og hlutverk landamæraeftirlitsins í að sporna gegn mansali, hins vegar. Einnig var fjallað um samþættingu jafnréttissjónarmiða í fjárlagagerð.

Embættismannanefnd jafnréttismála (ÄK-JÄM).
    Embættismannanefndin hélt fimm fundi á árinu.
    Stærsta verkefni ársins var án efa ráðstefnan WoMen and Democracy – Reykjavík–Vilníus, sem haldin var í Litháen í júní. Ráðstefnan þótti afar vel heppnuð og af Íslands hálfu sóttu hana tæplega 40 konur og 2 karlar.
     Ný framkvæmdaáætlun, fyrir árin 2001–2005, var samþykkt á árinu, og er þar lögð áhersla á eftirfarandi þætti, sem hafist var handa við að framkvæma:
     –      Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í fjárlagagerð.
              –      Skipaður var starfshópur um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í fjárlagagerð, í samstarfi fjármála- og jafnréttisnefndanna norrænu. Stefnt er að fyrsta fundi hópsins í byrjun árs 2002.
              –      Norræna ráðherranefndin, í samvinnu við OECD, UNIFEM og belgísku ríkisstjórnina, stóð fyrir ráðstefnu um kynjaviðmið í fjárlagagerð, sem haldin var í Brussel í október.
     –      „Kvinnofrid“ – Mansal til kynlífsþrælkunar.
        Eitt af aðaláhersluatriðum nýju framkvæmdaáætlunarinnar er að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Áætlunin gengur undir nafninu „Kvinnofrid“ eða „Kvennafriður“.
              –      Á árinu var aðaláherslan á að vinna gegn auknu mansali og kynlífsþrælkun kvenna, sem ekki síst eru lokkaðar eða seldar til slíkra starfa frá Eystrasaltsríkjunum til Norðurlanda. Starfshópur var skipaður um aðgerðir í þessu sambandi. Hópurinn lagði m.a. fram tillögu að kynningarátaki því sem jafnréttisráðherrarnir ræddu á fundi sínum í Vilníus. Hópurinn lauk störfum í nóvember og skilaði áliti til nefndarinnar, en heldur áfram sem hluti nýs starfshóps, í samstarfi norrænna og baltneskra dómsmála- og jafnréttisnefnda.
     –      Karlar og jafnrétti.
        Áætluninni Karlar og jafnrétti, frá síðustu framkvæmdaáætlun, var haldið áfram á árinu. Karlar og jafnrétti verða áfram eitt af aðaláherslusviðum norræna jafnréttisstarfsins.
              –      Samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænu verkalýðshreyfingarinnar um verkefnið Karlar og jafnrétti í atvinnulífinu lauk formlega. Fjögurra manna hópur vann að hugmyndariti um sviðið, tveir frá hvorum aðila, tveir Norðmenn, Svíi og Íslendingur. Hugmyndaritið ber heitið Kan menn? Menn og likestilling i arbeidslivet. Bókin er gefin út af Norrænu ráðherranefndinni (NORD 2000:24). Í framhaldi af útgáfunni var haldin ráðstefna í Kaupmannahöfn undir heitinu Menn kan þar sem þema bókarinnar lá til grundvallar. Þar flutti meðal annarra sjávarútvegsráðherra, Árni Mathiesen, erindi um íslensku fæðingar- og foreldraorlofslögin. Ráðstefnan var bæði vel sótt og vel heppnuð.
              –      Þá var í Kaupmannahöfn haldin fjórða ráðstefna norrænna karlarannsakenda undir yfirskriftinni Tin Tin på eventyr. Ríflega 80 manns tóku þátt og er þetta langfjölmennasta ráðstefnan fram að þessu, komust raunar færri að en vildu. Þó nokkur þátttaka var af Íslands hálfu, á báðum ráðstefnunum, Menn kan og Tin Tin.
              –      Unnið var að undirbúningi bókar um kynjamótun í skólum og leikskólum, þar sem sérstaklega verður miðað við sjónarhorn karla.
              –      Málþing var haldið í Ósló 21. maí þar sem hittust tveir norrænir hópar. Annars vegar þeir sem sérstaklega hafa lagt sig eftir að rannsaka kynbundið ofbeldi og hins vegar þeir sem (með sálfræðilegum aðferðum) reyna að aðstoða þá karla sem vilja hætta ofbeldisbeitingu. Spurningar málþingsins voru einfaldar en mikilvægar. Hvað vilja meðferðaraðilar fá frá rannsakendum (hvað þarf að rannsaka betur) og hvað vilja rannsakendur fá frá meðferðaraðilum (að hverju hafa þeir komist í meðferðarferlinu)? Málþingið var þokkalega sótt en þó hefðu fleiri rannsakendur mátt vera með.
              –      Í tengslum við ráðstefnuna WoMen and Democracy in Vilníus, var komið á tengslum við þá karla sem andæfa ofbeldi gegn konum í Eystrasaltsríkjunum í gegnum White Ribbon Campaign. Tekist hefur að mynda tengsl við karlahópa allra Eystrasaltsríkjanna.
     –      Jafnlaun.
        Skipaður var starfshópur um launamál kynjanna, í samstarfi norrænu vinnumála- og jafnréttisnefndanna. Fulltrúi Íslands er Kristján Jósteinsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu. Hópurinn hélt einn fund á árinu.
     –      NIKK – norræna rannsóknarstofan um kvenna- og kynjarannsóknir.
        Gerður var nýr þriggja ára samningur um starfsemi NIKK. Stofan gefur út tímarit, sem hefur vakið mikla eftirtekt og vakið athygli á mikilvægum málefnum, eins og stöðu erlendra kvenna á Norðurlöndum.
     –      Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í starfi Norrænu ráðherranefndarinnar.
              –      Skýrsla var unnin um markmið og leiðir til að ná samþættingu jafnréttissjónarmiða á hinum ýmsu sviðum Norrænu ráðherranefndarinnar. Skýrslan er byggð á svörum frá sviðunum.
              –      Áætlun var sett fram um þjálfun almenns starfsfólks Norrænu ráðherranefndarinnar, í hugmynda- og aðferðafræði samþættingar.
     –      Önnur áherslusvið í nýju framkvæmdaáætluninni.
              –      Unglingar og jafnrétti.
              –      Söfnun og skráning tölfræðilegra upplýsinga.
              –      Jafnrétti kynjanna meðal minnihlutahópa.
              –      Þróun og áhrif viðhorfa.
              –      Kynferði og völd, í efnahagslífi og stjórnmálum.
    
Norræna vísindaakademían (NorFA).
    Á vegum NorFA er starfrækt áætlunin Kön och våld, sem ætlað er að rannsaka umfang, eðli og leiðir til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi á Norðurlöndum. Í júní var styrkjum úthlutað í annað sinn og í nóvember var ráðstefna um rannsóknir á kynbundnu ofbeldi haldin í Køge í Danmörku.

Vestnorrænt samstarf.
    Í maí 2000 var samþykkt þingsályktun um nokkur vestnorræn samstarfsverkefni, flest á jafnréttissviði. Aðeins eitt þessara verkefna er komið í framkvæmd. Það er starfshópur um aðgerðir til að vinna gegn ofbeldi gagnvart konum. Í hópnum eiga sæti tveir fulltrúar frá hverju landanna þriggja, einn frá jafnréttissviðinu og einn frá þeim sem starfa að stuðningi við konur sem beittar eru ofbeldi. Hópurinn tók til starfa í febrúar og mun skila niðurstöðum sínum í byrjun árs 2002.
    

19. Vímuefnamál.

    Fundur var haldinn í embættismannanefndinni um vímuefnamál (ÄK-Narko) í Saariselkä í apríl sl. Þar sem Finnar gegndu formennsku í nefndinni mátti telja eðlilegt að þeirra mál væru nokkuð ráðandi á fundinum. Lá þeim þyngst á hjarta nábýlið við Rússland og hið mikla smygl á fíkniefnum sem berst úr þeirri átt, en efnin eru yfirleitt lengra að komin. Einnig áttu Finnar, ásamt Norðmönnum og Svíum, frumkvæði að umræðu um ástand þessara mála í Eystrasaltsríkjunum. Fulltrúar Íslands greindu frá gangi mála á Íslandi, svo sem starfsemi þeirra ráðuneyta sem fara með fíkniefnamál, framgöngu Áfengis- og vímuvarnarráðs, en það kemur með ýmsum hætti að framkvæmd kannana, svo sem vegna ESPAD (European School Survey Project on Alcohol and Drugs) og WHO. Þá var minnst á störf ECAD 2002 (European Cities against Drugs 2002), sem hafa verið mjög umfangsmikil og náð til allra landsmanna, svo það helsta sé nefnt.
    Á fundinum lagði Ísland fram styrkbeiðni vegna rannsóknarverkefnis sem næði til eyjasamfélagsins, þ.e.a.s. Álands, Færeyja, Íslands og Grænlands. Um er að ræða könnun á lífsvenjum ungmenna og neyslu þeirra á vímuefnum, en einnig áfengi og tóbaki. Í lok fundarins var þess óskað að fulltrúarnir sendu til höfuðstöðvanna í Kaupmannahöfn lista yfir þau lyf, sem ferðamönnum er heimilt að taka með milli landa og skráningareyðublöð þau, er þeir verða að hafa með í farteski sínu eftir að Schengen-sáttmálinn var undirritaður. Hefur þeirri beiðni verið sinnt.
    Í september var síðari fundur ársins haldinn á Álandseyjum. Þar voru styrkir afgreiddir og skýrslur landanna kynntar ásamt yfirlitum frá nefndum og verkefnum eins og frá ESB, EMCDDA (European Monitoring Centre for Drugs and Drug-addiction), CDN (Centre for Drugs and Narcotics) og Dublin- og Pompidou-hópunum. Að venju tók fulltrúi NAD (Nordisk Alkohol og Drogforskning) til máls og notuðu Íslendingar og fleiri tækifærið til að gera athugsemdir við að styrkþegi eins og NAD hefði verið beðinn um að dæma umsóknir til ÄK-Narko. Var því sæmilega tekið og álitið réttlætanleg kvörtun.
    Þrátt fyrir þetta fékk eyjasamfélagið umbeðinn styrk og hefur rannsóknarhópurinn þegar hafið störf.
    Í ritinu „Social och hälsovårdsnytt i Norden“ var fundinum á Álandseyjum gerð góð skil og er þar m.a. komið inn á eyðnihættuna sem er oft fylgifiskur fíkniefnaneyslunnar, en á fundinum var haldinn góður fyrirlestur um þann vágest. Voru þetta gagnlegir fundir og Finnum til sóma, sem og starfsfólki á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.

20. Iðnaðar- og atvinnumál.

    Bætt samkepppnisstaða norrænu þjóðanna var meginviðfangsefni ráðherranefndarinnar um iðnaðar- og atvinnumál á árinu. Málefni þekkingariðnaðar voru einnig talsvert til umfjöllunar og er talið að norrænu þjóðirnar geti styrkt stöðu sína með auknu samstarfi á þessu sviði.
    Á formennskuári Dana, árið 2000, var komist að þeirri niðurstöðu að til þess að samstarfið nái meiri árangri þyrfti að móta stefnu um það til nokkurra ára þannig að áhersluatriði formennskulandsins á hverjum tíma byggðist á skýrri framtíðarsýn til lengri tíma. Á fundi ráðherranna í Helsinki í júní var tillaga að nýrri framtíðarsýn lögð fram og samþykkt. Hún nefnist Framkvæmdaáætlun um norrænt samstarf í iðnaðar- og atvinnumálum 2002–2005 ( Nordiskt näringspolitiskt samarbetsprogram 2002–2005).
    Framkvæmdaáætlunin tekur mið af þeim mikilvægu breytingum sem atvinnulífið fer nú í gegnum og er athyglinni fyrst og fremst beint að innri markaði Norðurlanda og samnýtingu ákveðinna grunnþátta, eins og þekkingar, rannsókna, nýsköpunar og myndun stefnumótandi samstarfsneta. Að því er stuðlað að Norðurlönd verði einn samfelldur markaður án hindrana, með eins samræmdum ytri stjórnvaldsreglum og unnt er. Á grundvelli þessa er í frakvæmdaáætluninni lögð áhersla á tvö meginatriði. Í fyrsta lagi að efla innri markað Norðurlanda án landamæra og stuðla að betra samkeppnis- og þróunarumhverfi fyrirtækja. Í öðru lagi að stofna til sérhæfðari aðgerða til að efla alþjóðlega samkeppnisstöðu norrænna fyrirtækja á vissum sviðum og auðvelda aðgengi þeirra að markvissu þróunarumhverfi.
    Þessi meginatriði eru umfangsmikil og taka m.a. til aðgerða sem ná til verkefna sem falla undir verkefnasvið annarra ráðuneyta. Mikilvægt er því að þessi atriði verði tekin til umfjöllunar á vettvangi annarra ráðherra og hafa komið fram hugmyndir um að til að norræna samstarfið beri tilætlaðan árangur þurfi þjóðirnar að móta sameiginlega atvinnu- og efnahagspólitíska stefnu. Í þessu sambandi má benda á að skilvirkni og samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja krefst oft samræmingar á reglum og lögum ríkjanna, t.d. fyrirtækja- og samkeppnislög, vinnumálalöggjöf, skattalög og hugverkarétt. Einnig þarf að samræma margs konar tækniviðmið eins og gæða-, umhverfis- og öryggisreglur.
    Ráðherrarnir ákváðu að veita þremur málum forgang. Í fyrsta lagi sameiginlegri nýsköpunarstefnu sem miðar að sameiginlegum norrænum þekkingarmarkaði og miðlun tækniþekkingar á milli landanna. Í öðru lagi samstarfsnetum milli fyrirtækja á sviðum sem standa sérstaklega sterkt á Norðurlöndum, eins og t.d. í sjávarútvegi, upplýsingatækni og líftækni. Í þriðja lagi samstarfsverkefni um margvíslegar aðgerðir sem stuðlað geta að bættri samkeppnisstöðu landanna á alþjóðamarkaði og snerta jafn ólík mál eins og innri skipulagningu fyrirtækja, umhverfisstjórnun og viðskiptasiðferði, svo nokkuð sé nefnt.
    Nokkrir vinnuhópar voru starfandi á árinu á vegum embættismannanefndarinnar. Starfshópur um hagnýtingu upplýsingatækni í atvinnulífinu ( Næringssektorens ad hoc arbejdsgruppe for elektronisk handel og næringsrelaterede IT-spørgsmål) fylgist m.a. með framvindu rafrænna viðskipta á alþjóða vettvangi og miðlar reynslu um hagnýt úrlausnarefni sem þýðingu geta haft við innleiðingu þeirra. Samstarf hefur verið við aðrar norrænar vinnunefndir sem fjalla um málefni er tengjast upplýsingatækni og upplýsingasamfélaginu.
    Á sameiginlegum fundi iðnaðarráðherra og neytendamálaráðherra í júní var ákveðið að setja á fót samstarfshóp með þátttöku fulltrúa frá atvinnulífinu og neytendum. Þessum hópi er ætlað að fjalla um rafræn viðskipti út frá hagsmunum neytenda og atvinnulífs þar sem til grundvallar lægi að byggja upp traust borgaranna á rafrænum viðskiptum ( Nærings- og konsumentsektorens ad hoc arbejdsgruppe for elektronisk handel og IT-spørgsmål). Starfshópurinn um hagnýtingu upplýsingatækni í atvinnulífinu mun ganga inn í þetta nýja verkefni ásamt fulltrúum frá embættismönnum á sviði neytendamála.
    Frá árinu 2000 hefur verið starfandi starfshópur um ferðamál ( Næringssektorens ad hoc arbejdsgruppe for turisme). Ferðamál heyra undir iðnaðar- og atvinnumálaráðuneyti víða erlendis þótt svo sé ekki hérlendis, enda er málaflokkurinn nátengdur annarri atvinnuþróun. Starfshópurinn hefur m.a lagt áherslu á sjálfbæra ferðamennsku og norræn sérkenni í alþjóðlegri markaðssetningu.
    Á árinu var samþykkt umhverfisstefna fyrir atvinnustarfsemi ( Tværsektoriel productorienteret miljøstrategi) sem er samstarfsverkefni málaflokka um atvinnumál, umhverfismál og neytendamál. Ákveðið var að starfshópurinn sem sinnt hefur þessu verkefni ( POMS-gruppen; tværsektoriel gruppe mellem miljø-, konsument- og næringssektorerne) héldi starfi sínu áfram. Markmið hans er að móta tillögur um aðgerðir sem eru til þess fallnar að koma í veg fyrir og lágmarka neikvæð áhrif atvinnustarfsemi á umhverfið og heilsu manna og stuðla að hagkvæmari nýtingu náttúruauðlindanna á sérhverju framleiðslu- og þjónustustigi.
    Auk þessa voru í gangi fjölmörg verkefni sem embættismannanefndin kom að. Meðal annars var aðilum á Íslandi falið að koma á norrænu samstarfsneti fyrirtækja sem starfa á sviði heilbrigðistækni og verður unnið að því á næsta ári.
    Norræna iðnaðarsjóðnum var falið að veita mörgum vinnuhópum, sem starfað hafa á vegum embættismannanefndarinnar, aðstoð þar sem sérfræðiþekking starfsmanna sjóðsins kom að miklu gagni.
    
Norræni iðnaðarsjóðurinn.
    Norræni iðnaðarsjóðurinn ( Nordisk Industrifond – senter for innovation og næringsutvikling) er stofnun á vegum ráðherranefndarinnar um iðnaðar- og atvinnumál. (Sjá nánar um Norræna iðnaðarsjóðinn, kafla 26.5.)

Nordtest.
    Á árinu var haldið áfram með breytingar í starfsemi Nordtest, sem byrjað var á árið 2000 í samræmi við úttekt Norrænu ráðherranefndarinnar árið 1999. Helsta breytingin er sú að horfið er frá megináherslu á prófanir en í staðinn kemur „conformity assessment“ (CA) eða samræming krafna og prófana. Tilgangur þessarar áherslubreytingar er að gæta hagsmuna norræns iðnaðar með því að fjarlægja tæknilegar hindranir í viðskiptum, sér í lagi til hagsbóta litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
    Settir voru á fót þrír markaðshópar sem hafa það að markmiði að finna hvaða þörf markaðurinn hefur fyrir Nordtest verkefni um CA og koma með ábendingar um hvar helst ætti að leggja áherslur á styrkveitingar. Þessir hópar eru á sviði byggingariðnaðar (building and construction), orku og umhverfis (energy and environment) og vélaiðnaðar (metallic and machine industries). Í hverjum hópi eru tveir frá hverju landi, fulltrúar bæði fyrirtækja og stofnana og viðkomandi hafa þekkingu á CA. Nú þegar hafa tveir fyrrnefndu hóparnir hist og verða áætlanir þeirra kynntar snemma árs 2002 og þær síðan notaðar við að auglýsa eftir nýjum verkefnum á vegum Nordtest.
    Gerðar voru nýjar starfslýsingar fyrir sérfræðingahópana sem vinna með Nordtest við val verkefna (expertgroups) og miðast þær nú við breyttar áherslur í starfi Nordtest.
    Haldinn var sameiginlegur stjórnarfundur Norræna iðnaðarsjóðsins og Nordtest í nóvember í Espoo, Finnlandi. Ákveðið var að þessar tvær stofnanir hafi með sér samvinnu á sviði mælitækni, pre-normatívra rannsókna og staðla og í stefnumótun iðnþróunar á Norðurlöndum 2002–2005.
    Helstu viðfangsefnin á árinu voru verkefnavinna – um 45 ný verkefni hófu starfsemi, önnur 7 héldu áfram og yfir 32 verkefnum lauk á árinu. Fjölmargar skýrslur voru birtar og prófunaraðferðir samþykktar. Heildarstyrkur til verkefna á árinu nam 1,13 millj. EUR.
    Önnur verkefni fólust í ráðstefnuhaldi og þátttöku í alþjóðlegu starfi á sviði CA, prófana og staðla. Mikilvægur þáttur í starfi Nordtest er einmitt að hafa áhrif á þróun staðlamála og prófana þeim tengdum. Góður árangur náðist á þessu sviði á árinu.

21. Húsnæðis- og byggingarmál.

    Húsnæðisráðherrar Norðurlanda og Norðurlandaráð samþykktu á árinu samstarfsáætlun um samstarf landanna á sviði húsnæðis- og byggingarmála á tímabilinu 2002–2005. Samstarfsáætlunin leggur til grundvallar samstarf um félagsleg húsnæðismál, sjálfbæra þróun húsnæðis- og byggingarmála auk borgarstefnu.
    Innihald og markmið samstarfsins byggist á húsnæðisstefnu landanna. Samstarfið á að vera verkfæri landanna til að styrkja framkvæmd stefnumótunar með því að miðla reynslu, þekkingu og upplýsingum um húsnæðismál.
    Nýr þáttur í samvinnu landanna hófst á árinu með verkefnum og rannsóknum varðandi borgarstefnu. Umgjörð borga og bæja hefur víðtæk áhrif á lífsgæði íbúanna. Markmið samstarfsins er að miðla reynslu um þróun borgarsamfélagsins og að leggja grunn að sjálfbærri þróun sem byggist á samþættingu efnahags-, atvinnu- og félagsmála auk umhverfismála.
    Ríkari áhersla hefur verið lögð á að tengja rannsóknarverkefni ráðstefnum og fundum. Þau viðfangsefni sem fjallað var um voru m.a. aðskilnaður þjóðfélagshópa í íbúðarhverfum, almenn borgarstefna, vandkvæði vegna félagslegra íbúða sem standa auðar, húsnæðisskortur, húsnæðiskostnaður, vandamál húsnæðislausra, breytingar á lögum um húsnæðismál, aðgerðir til að auka aðgengi og önnur mikilvæg atriði á vettvangi húsnæðismála.
    Félagsleg aðlögun í íbúðahverfum og aðskilnaður þjóðfélagshópa var áfram mikilvægt umfjöllunarefni. Rannsóknarverkefnið „Framgångsrika exempel i det nordiska integrationsarbetet“ var kynnt á húsnæðisráðherrafundi í nóvember 1999 og var þá ákveðið að afla frekari gagna og undirbúa ráðstefnu um viðfangsefnið. Það starf hefur verið unnið í samráði við sambönd sveitarfélaga á Norðurlöndum undir forustu Sambands sveitarfélaga í Svíþjóð. Ráðstefnan var haldin í Stokkhólmi í febrúar sl.
    Á árinu kom út skýrslan „Boende och bostadspolitik i Norden“. Í skýrslunni er viðamikil greining á húsnæðiskerfum landanna. Skýrslan verður einnig gefin út á ensku undir heitinu „Housing in the Nordic Countries“. Í samvinnu við norrænt samstarf á sviði neytendamála var rannsóknarverkefninu „Nordens bostadskonsumenter och det uthålliga boendet“ lagt lið en það fjallar um íbúa sem neytendur og möguleika þeirra til að stuðla að sjálfbærri þróun í húsnæðismálum. Unnið var að nýju verkefni um grannsvæði Norðurlanda undir heitinu „De retslige rammer for brugerejede boliger i de tre baltiske lande“. Þar er fjallað um það lagaumhverfi sem gildir um eignaríbúðir í Eystrasaltsríkjunum. Skýrslan var kynnt á ráðstefnu í Ríga í desember sl.
    Rannsóknir á húsnæðiskostnaði fóru fram á árinu og voru niðurstöður kynntar á ráðstefnu undir heitinu „Boendekostnaderna i Norden“. Þessar rannsóknir eru á byrjunarreit og voru viðfangsefnin að samræma skilgreiningar og leggja grunn að samræmdri upplýsingaöflun á þessu sviði. Fyrirhugað er að leggja í frekari rannsóknir á næstu árum.
    Staða félagslegra íbúðarmála hefur verið í brennidepli. Unnið er að greinargerð um stöðu og horfur varðandi félagslegar íbúðir sveitarfélaga og félagasamtaka í verkefni sem ber heitið „Almennyttige og sociale boligers fremtid i Norden“. Greinargerð verður lögð fram á árinu 2002 á ráðstefnu með sama heiti.
    Þróun húsnæðismála á árinu einkenndist af umframeftirspurn á vaxtarsvæðum sem oftast eru höfuðborgarsvæðin og umframframboð húsnæðis á svæðum í dreifðari byggðum þar sem atvinnutækifærum hefur fækkað. Í byrjun ársins var haldin ráðstefna í Finnlandi um þessa stöðu undir heitinu „Bostadsbyggande i tillväxtregioner“.
    Einnig var hafinn undirbúingur að rannsóknum og ráðstefnu um húsnæðisleysi á Norðurlöndum. Veittur var stuðningur við verkefni sem hefur það markmið að gera grein fyrir hlutverkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga varðandi einstaklinga sem eiga erfitt uppdráttar á húsnæðismarkaði. Niðurstöður verða kynntar á ráðstefnu sem hefur vinnuheitið „Goda bostäder för alla – kommunernas arbete med svaga hushåll“.
    Finnar, sem leiddu samstarfið, upplýstu um samstarf á vettvangi ESB. Húsnæðismálin eru ekki formlegur samstarfsvettvangur á vegum sambandsins en húsnæðisráðherrar ESB hafa með sér óformlegt samstarf og var greint frá fundi þeirra í október. Fram kom að húsnæðismálin hafa fengið aukið vægi á síðustu árum í tengslum við félagslega þætti húsnæðismála.

22. Neytendamál.

    Samstarfið á árinu fylgdi í öllum meginatriðum formennskuáætlun Finna sem leiddu starfið.
    Norræna ráðherranefndin (MR-Konsument) samþykkti á árinu ýmsar stefnu- og verkefnaáætlanir. Ráðherranefndin samþykkti til að mynda samnorræna stefnuáætlun sem ætlað er að stuðla að umhverfisvænni framleiðsluvörum (sbr. sn. Nordisk Produktorienterad Miljöstrategi – POMS strategien). Samþykkt var áætlun sem á að leggja til grundvallar við stjórnmálalegt samstarf Norðurlanda og varðar börn og unglinga. Ráðherranefndin beitti sér einnig fyrir því að innan 6. rammaáætlunar ESB verði tekið aukið tillit til rannsókna á sviði neytendamála og ritaði formaður nefndarinnar framkvæmdastjórunum David Byrne og Philippe Busquin bréf í byrjun ársins þar sem framangreindri ósk ráðherranna var komið á framfæri.
    Norræna ráðherranefndin hélt árlegan fund sinn í Helsinki í júní sl. Á fundinum var m.a. fjallað um með hvaða hætti Norðurlönd gætu stutt enn frekar við norræna umhverfismerkið (græna svaninn). Ráðherrarnir samþykktu að beita sér fyrir því að fjárframlög yrðu aukin enda hefur merkið hlotið almenna viðurkenningu á Norðurlöndum. Samþykkt var að norræna stefnuáætlunin um umhverfisvænar framleiðsluvörur ( POMS-strategien) yrði framlag Norrænu ráðherranefndarinnar til stefnuáætlunar Norðurlanda um sjálfbæra þróun. Á fundi ráðherranna var einnig rætt um hvernig auka megi áhrif neytenda á Norðurlöndum við gerð alþjóðlegra staðla. Var embættismannanefndinni (ÄK-Konsument) falið að gera drög að áætlun um það efni og leggja fyrir næsta fund ráðherranna. Á fundinum voru einnig kynntar nýjar áherslur er varða siðfræði ( etik) og neysluvenjur. Í Danmörku hefur t.d. verið unnið að gerð gagnagrunns sem neytendur hafa opinn aðgang að og geta leitað eftir upplýsingum um hvaða aðferðir eru notaðar við framleiðslu vöru og hvort þær standist almennar siðferðilegar kröfur sem neytendur gera að þessu leyti. Jafnframt hefur verið unnið að skýrslu þar í landi um með hvaða hætti eigi að taka tillit til siðfræðilegra sjónarmiða við setningu alþjóðlegra reglna um líftækni. Loks kynntu umboðsmenn neytenda í Finnlandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð nýlegan samstarfsamning sem þeir hafa gert um eftirlit á grundvelli nýrra laga um lögbann og dómsmál til verndar heildarhagsmunum neytenda. Aukin markaðsfærsla yfir landamæri á hinum sameiginlega innri markaði krefst jafnframt aukins samstarfs milli þeirra aðila sem hafa með höndum eftirlitið í hverju ríki fyrir sig. Framangreindur samningur er fyrsti samstarfssamningurinn sem gerður hefur verið milli umboðsmanna neytenda á Norðurlöndum. Ráðherrar lýstu ánægju sinni með samstarfsamninginn enda er hann til þess fallinn að stuðla að betri og virkari neytendavernd í ríkjunum. Í framhaldi af fundi ráðherranefndarinnar á sviði neytendamála (MR-Konsument) var haldinn sameiginlegur fundur með ráðherranefnd sem fer með iðnaðar- og atvinnumál (MR-Näring). Viðskiptaráðherra ræddi þar um aukin tækifæri sem felast í notkun upplýsingatækninnar í þágu viðskipta yfir Netið. Forsenda þess er þó sú að neytendur hafi fullnægjandi traust á slíkum viðskiptum og að það verði í framtíðinni ekki minna en þegar kaup eru gerð með hefðbundum hætti. Ráðherra lagði fram tillögu um að norrænu löndin könnuðu í sameiningu hvernig netverslanir uppfylltu kröfur neytenda og neytendalöggjafar. Samþykkt var að stofna þverfaglegan vinnuhóp á vegum ráðherranefndanna tveggja sem m.a. er ætlað að taka framangreinda tillögu viðskiptaráðherra til frekari úrvinnslu.
    Á vegum norrænu embættismannanefndarinnar var nú sem fyrr unnið að ýmsum verkefnum sem varða lagaleg réttindi neytenda, réttindi neytenda til upplýsinga svo og mál sem varða framleiðsluferli vöru og vöruöryggismál. Loks má geta þess að á vegum grannsvæðanefndarinnar hafa margvísleg verkefni verið unnin á árinu sem miða að því að styrkja uppbyggingu á sviði neytendamála í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Fjárhagslegur stuðningur hefur verið veittur til uppbyggingu frjálsra og óháðra samtaka, til uppbyggingar neytendafræðslu svo og kynningar á norrænum rétti á sviði neytendaverndar. Auk þess hafa nokkur verkefni verið unnin sem miða að því að kynna norrænan rétt á sviði neytendaverndar innan grannsvæða í Rússlandi.

23. Matvæli.

    Norræna embættismannanefndin um matvælamál (ÄK-Livs) og fastanefndir á hennar vegum sem eru nefndir um örverufræði, manneldi, eiturefnafræði, matvælaeftirlit og löggjöf, hafa á árinu unnið að verkefnum sem lúta að matvælaöryggi og efni því tengdu.
    Í lok júní var í Reykjavík haldinn fundur matvælaráðherra Norðurlanda með embættismannanefndunum ÄK-Fisk, ÄK-Jord/skog og ÄK-Livs. Fundurinn var haldinn í framhaldi af fundi matvælaráðherra Norðurlanda í Kaupmannahöfn sumarið 2000, en á honum var ákveðið að umræðuefni ársins 2001 yrði öryggi matvæla. Á fundinum í Reykjavík var samþykkt að stofnuð yrði ein sameiginleg ráðherranefnd fyrir matvælamálaflokkinn. Áður höfðu fagráðherrar ÄK-Fisk og ÄK-Jord/skog komið að málum en samstarfsráðherra Norðurlanda komið að málefnum ÄK-Livs. Nefndirnar munu starfa undir sameiginlegri nefnd matvælaráðherra frá 1. janúar 2002.
    Í formennskutíð Íslands í norrænni samvinnu 1999 var lögð áhersla á að koma ÄK-Livs undir fagráðherranefnd. Með þessu var fengin niðurstaða í málið. Hafinn er undirbúningur að ráðherrafundi á Grænlandi í ágúst 2002 þar sem ætlunin er að ræða matvælaöryggi og mál því tengd. Starf ÄK-Livs og umræða um þessi mál hefur í auknum mæli tekið mið af samræmdri matvælalöggjöf ESB sem er í burðarliðnum og væntanlegri matvælastofnun ESB (European Food Safety Authority). Mikilvægt er að öll norrænu löndin taki þátt í því starfi sem fara mun fram þar. Verkefni fastanefndanna hafa og tekið mið af væntanlegri löggjöf.
    Það helsta sem unnið var að hjá nefndum á árinu var eftirfarandi:
     –      Norræna vinnunefndin um örverur og áhættumat (NNM) lauk við 12 verkefni á árinu sem hvert um sig styður vinnu við matvælaörverufræði og rannsóknir því tengdar.
     –      Norræna vinnunefndin um manneldi (NKE) lauk við átta verkefni er snerta manneldismál. Viðamesta verkefnið var endurskoðun norrænna næringarráðlegginga.
     –      Norræna vinnunefndin um eiturefnafræði (NNT) vann að verkefnum til að bæta upplýsingar til neytenda um næringarinnihald vara.
     –      Norræna vinnunefndin um matvælaeftirlit (NNK) fjallaði um og vann að verkefnum um matvælaeftirlit að teknu tilliti til krafna sem gerðar eru til matvæla innan ESB, á hinu Evrópska efnahagssvæði (EES) og hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni.
     –      Norræna vinnunefndin um löggjöf (NNL) hefur unnið að samræmingu laga og reglugerða á matvælasviðinu og samhæfingu ákvarðana sem taka þarf á hinu Evrópska efnahagssvæði.
    Væntanleg rammalöggjöf ESB um matvæli var til umræðu með einum eða öðrum hætti í nefndunum öllum allt frá því að hvítbók ESB kom út. Starf nefndanna mun í enn ríkari mæli taka mið af þeirri hugmyndafræði sem samhæfð löggjöf byggir á. Verkefni, þar sem lagarammi og núverandi fyrirkomulag matvælamála á Norðurlöndum mun verða skoðað með tilliti til nýrrar löggjafar um matvæli ESB, hefst á næsta ári. Að því verkefni munu allar vinnunefndir ÄK-Livs koma og spegla þá sérstöðu sem hver og ein vinnunefnd hefur fram að færa gagnvart svo veigamikilli breytingu sem ný löggjöf hefur í för með sér.
    Þeir sem koma að norrænum matvælamálum eru sammála því að efla þurfi samstarf innan Codex Alimentarius sem talinn er raunhæfasti alþjóðlegi samstarfsvettvangurinn á sviði matvælamála. Í starfi á vegum ÄK-Livs hefur verið lögð áhersla á að efla þverfaglegt samstarf við ÄK-Miljö og ÄK-Konsument með nánari tengsl við sjálfbæra þróun. Auk þessa hafa verið sett af stað verkefni til styrktar annars vegar faglegu fræðslustarfi vegna matvælaeftirlits í Eystrasaltsríkjunum og hins vegar til að styðja við samstarf þeirra sem vinna að matvælamálum í norður- og vesturbyggðum Norðurlanda.

24. Málefni dómsmálaráðuneytis.

Samstarf um löggjafarmál.
    Norrænt samstarf dómsmálaráðuneytanna byggist aðallega á samstarfsáætlun um löggjafarsamstarf sem dómsmálaráðherrarnir gengu frá 1996, svo og á árlegri framkvæmdaáætlun sem henni fylgir og endurskoðuð er árlega, en þar eru tilgreind forgangsverkefni sem liggja til grundvallar samstarfi komandi árs.
    Dómsmálaráðherrarnir áttu fund á Álandseyjum í ágústmánuði. Á þeim fundi var að venju fjallað um mál sem hafa sameiginlega þýðingu fyrir norrænu löndin og lögð var fram skýrsla um verkefni Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði dómsmála undir formennsku Dana. Á fundinum var gerð grein fyrir starfi starfshóps um aðgerðir vegna brotastarfsemi sem einkennist af nasistiskum viðhorfum eða kynþáttafordómum. Starfshópurinn var settur á fót í framhaldi af fundi dómsmálaráðherranna sumarið 2000 og mun hann skila skýrslu á árinu 2002. Gerð var grein fyrir skýrslu um afbrot barna og ungmenna sem norræna refsiréttarnefndin hafði tekið saman. Einnig var rætt um verslun með konur og aðgerðir til að koma í veg fyrir slíka starfsemi á grundvelli skýrslu um það efni. Ákveðið var í því sambandi að efla samstarf lögreglu yfir landamæri, með sérstakri áherslu á Eystrasaltssvæðið, að koma á nánari samhæfingu varðandi frumkvæði á sviði löggjafar með því að norræna refsiréttarnefndin tryggi að löndin láti jafnharðan í té upplýsingar um fyrirhugaðar lagabreytingar, hvort heldur er varðandi forsendur fyrir starfsaðferðum lögreglu eða refsilöggjöf, og að taka þátt í upplýsingastarfsemi til að vinna gegn verslun með konur sem taki til Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í samstarfi með jafnréttisráðherrunum. Þá var rætt um óeirðir þær sem urðu í sambandi við fund leiðtoga ESB í Gautaborg fyrr á árinu og um viðbrögð við slíkum atburðum, m.a. af hálfu lögreglu. Svíar gerðu grein fyrir formennsku sinni í ESB á fyrra missiri ársins og hverju þeir teldu sig hafa komið þar til leiðar. Loks var rætt um nauðsyn þess að vernda vitni og kæranda (brotaþola), einkum konur, vegna hugsanlegs ofbeldis, svo og um aðgerðir gegn barnaklámi á Netinu á grundvelli skýrslu norrænu refsiréttarnefndarinnar.
    Á fundinum samþykktu dómsmálaráðherrarnir nýja framkvæmdaáætlun fyrir árin 2001– 2002 sem m.a. byggist á þeim áherslum sem fram komu í umræðum á fundinum. Þar eru tilgreind ný forgangsverkefni sem athygli verður beint að, sérstaklega réttarstaða kæranda (brotaþola) samkvæmt refsiréttarfarinu og skoðun refsiviðurlaga og annarra viðurlaga. Jafnframt verður fram haldið verkefnum frá fyrra ári. Þannig er gert ráð fyrir að áfram verði haldið starfi við að vinna gegn afbrotum barna og ungmenna og samstarfi varðandi innheimtu skulda. Sama er um starfshópinn um brotastarfsemi sem einkennist af nasistiskum viðhorfum eða kynþáttafordómum. Sérstök áhersla verður og lögð á baráttu gegn verslun með konur.
    Hin sérstöku forgangsverkefni eru:
     a)      Brotastarfsemi sem einkennist af nasistiskum viðhorfum eða kynþáttafordómum. Brotastarfsemi þessi verður sífellt alvarlegri og augljósari. Þeir sem að henni standa eru af ólíku þjóðerni en hittast reglulega í tengslum við tónleika, stjórnmálafundi og mótmælaaðgerðir. Tónlist þessu mótuð („tónlist hvíta valdsins“) og annar áróður á sér ekki landamæri. Hópur sérfræðinga starfar að því að greina hvernig samstarf lögreglu og dómsmálayfirvalda á þessu sviði virkar og hvernig það þurfi eða megi auðvelda.
     b)      Réttarstaða kæranda (brotaþola) samkvæmt refsiréttarfari. Ákveðið var að halda málþing um stöðu kærandans samkvæmt opinbera réttarfarinu en mismunandi reglur gilda um þetta á Norðurlöndum. Markmiðið er að greina veika hlekki og/eða sterka í löggjöf landanna þannig að gera megi tillögur um norrænar aðgerðir.
     c)      Refsiviðurlög á Norðurlöndum. Dæmd refsing í einstökum tilvikum kallar með vissu millibili fram gagnrýni almennings. Ætlunin er að kanna hver eru í reynd refsiviðurlög á Norðurlöndum í tilteknum megin brotaflokkum, svo sem manndráp, misþyrmingu, kynferðisbrot, þjófnað og fíkniefnabrot. Tilgangurinn er að taka saman sameiginlegt norrænt efni sem getur orðið grundvöllur aðgerða í hverju landi fyrir sig.
     d)      Frá árinu 1998 hefur verið unnið að rannsókn á norrænni löggjöf á sviði fjölskylduréttar, m.a. til að draga fram hverjir eru í reynd annmarkar þeirra mismunandi reglna sem nú eru í gildi. Niðurstaða þessarar rannsóknar er væntanleg í þremur bókum sem hver fyrir sig mun fjalla um a) hjúskaparlöggjöfina, b) foreldra og börn og c) erfðarétt, erfðaskrár og búskipti. Þá er unnið að rannsókn á reglum sem gilda um foreldra og börn í Ástralíu, Kanada og Bretlandi. Verður gerð grein fyrir kostum og göllum þessara reglna með samanburði við norrænar reglur. Ætlunin er síðan að meta hvort rétt sé að færa eitthvað af þessum reglum inn í norrænar reglur.
     e)      Löggjafarstefna. Bera á þátt norræns samstarfs í löggjafarstefnu saman við markmið Helsingforssamningsins sem verður 40 ára á árinu 2002. Samanburður þessi ásamt tillögum um hvernig koma megi á samræmdari löggjafarstefnu verður lagður fram á norrænu málþingi sem halda á í Finnlandi vorið 2002 og síðan gefinn út á bók ásamt erindum sem flutt verða á málþinginu. Litið verður til þess hvert sé athafnafrelsi löggjafarvaldsins, m.a. með tilliti til alþjóðlegra dómstóla. Þá er áhugavert að greina hvaða takmarkanir EB- og EFTA-dómstólarnir og Mannréttindadómstóll Evrópu setja löggjafarvaldinu. Sama er um þá gagnrýni sem komið hefur fram á notkun undirbúningsgagna við túlkun norrænnar löggjafar (sem er víðtækari en í mörgum ESB löndum).
    Dómsmálaráðherrarnir áttu einnig fund með starfsbræðrum sínum í Eystrasaltsríkjunum. Fór fundurinn fram í Tallinn í nóvember mánuði. Var þar rætt almennt um samstarf landanna á sviði dómsmála, þar á meðal um viðbrögð gegn hryðjuverkum. Þá var rædd upplýsingatækni til að auka aðgengi almennings að réttarkerfinu og tölvuvæðing dómstóla. Einnig var rætt um framkvæmd Lúganó samningsins, samstarf dómstóla og lögreglu og verslun með konur til kynlífsþjónustu. Stefnt er að áframhaldandi samstarfi landanna á þessu sviði og ákveðið að halda ráðherrafund árið 2003.
    Löggjafarsamstarf Norðurlanda er hefðbundið og mun halda áfram. Það starf fer fram í sérstökum vinnuhópum, sem óformlegt samstarf ýmist milli ráðuneytanna eða einstakra embættismanna. Hið hefðbundna löggjafarsamstarf er fyrirferðarmest á sviði einkamálaréttarins, fyrst og fremst á sviði sifjaréttar, félagaréttar, skaðabótaréttar og neytendamála. Samstarf á sviði refsiréttarins hefur á síðustu árum fengið æ meira gildi svo sem sýnt hefur sig í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum í september. Auk eiginlegs löggjafarsamstarfs nær norrænt samstarf einnig til annarra þátta dómsmálaráðuneytanna, þar á meðal lögreglu og ákæruvalds, forvarna og viðurlagastefnu.
    Auk hinna sérstöku forgangsverkefna vinna löndin saman, m.a. að verkefnum sem varða afbrot barna og ungmenna, aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og peningaþvætti, kynferðislega misnotkun barna og skuldamál. Í framhaldi af skýrslu starfshópsins um aðgerðir gegn brotastarfsemi barna og ungmenna mun verða staðið að upplýsingaskiptum um, og eftir atvikum mati á, aðgerðum einstakra landa á því sviði.
    Gert er ráð fyrir að starfshópur um norrænt samstarf við innheimtu skulda ljúki störfum á árinu 2002 og kunna niðurstöður hópsins að verða lagðar til grundvallar frekari aðgerða á löggjafarsviðinu. Veturinn 2001–2002 verður haldið málþing um neytendavernd í Helsingfors og norræn ráðstefna um tjáningarfrelsi verður haldin í Noregi haustið 2002.
    Samstarf dómsmálaráðuneytanna fer einkum fram undir yfirstjórn norrænu embættismannanefndarinnar um löggjafarsamstarf (ÄK-Lag) þar sem unnið er að samræmingu samstarfsins og sameiginleg hagsmunamál eru rædd. Í því skyni að tryggja rétt tök við að útfæra og fylgja eftir pólitískri forgangsröðun starfa auk þess sérstakir starfshópar skipaðir fulltrúum landanna.
    Á árinu störfuðu formlegir starfshópar, sem hver fyrir sig hefur til ráðstöfunar tiltekna fjárveitingu af norrænu fjárlögunum:
     a)      Starfshópur um aðgerðir til að berjast gegn brotastarfsemi sem einkennist af nasisma eða kynþáttafordómum.
     b)      Starfshópur um rannsóknir á Evrópurétti.
     c)      Starfshópur um samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
     d)      Starfshópur um norrænt samstarf varðandi innheimtu skulda.
    Af óformlegum starfshópum ber einkum að nefna sérfræðingahóp um sifjarétt og sérfræðingahóp um refsirétt.
    Á árinu var ákveðið að taka, ásamt jafnréttissviðinu, þátt í starfshópi norrænu landanna og Eystrasaltsríkjanna um upplýsingastarfsemi gegn verslun með konur.
    Gengist var fyrir nokkrum málþingum og ráðstefnum:
     –      Málþing um Evrópurétt og jafnréttislöggjöf (Reykjavík í mars).
     –      Málþing um barnaklám á Netinu (Stokkhólmi í mars).
     –      Málþing um brotastarfsemi sem einkennist af nasistiskum viðhorfum eða kynþáttafordómum (Reykjavík í nóvember).
    Á árinu komu út nokkrar skýrslur:
     –      Skýrsla um afbrot barna og ungmenna (Nord 2000:30).
     –      Skýrsla um refsiákvæði um rasisma og kynþáttafordóma (TemaNord 2000:513).
     –      Skýrsla um breytingar á norræna löggjafarsamstarfinu vegna ESB/EES (TemaNord 2000:614).
     –      Skýrsla um ábyrgð á bótum til brotaþola (TemaNord 2001:587).
     –      Skýrsla um aðgerðir gegn barnaklámi á Netinu (TemaNord 2001:28).

Málefni flóttamanna.
    Samráðsnefnd æðri embættismanna um málefni flóttamanna (NSHF) fjallar um stefnumótun í málum flóttamanna. Fara þar einnig fram upplýsingaskipti milli stjórnvalda um þróun löggjafar um málefni útlendinga almennt, um móttöku flóttamanna, um breytingar á framkvæmd mála er varða flóttamenn, ákvarðanatöku í slíkum málum, heimflutning o.fl. Samstarf er einnig um öflun upplýsinga vegna aðstæðna í löndum þaðan sem flóttamenn koma, m.a. með miðlun skýrslna sem sendinefndir einstakra landa gera. Þá er haft samráð um ýmis atriði er varða útlendingaeftirlit, m.a. með hliðsjón af norræna vegabréfasambandinu og Schengen- samstarfinu, sem kom að fullu til framkvæmda á Norðurlöndum í mars sl., og þar með atriði er varða framkvæmd Dyflinnarsamnings ESB-ríkjanna sem Ísland og Noregur eru nú einnig aðilar að. Þá hafa verið rædd á fundunum atriði sem varða verslun með konur og um innflutning vinnuafls.

Björgunarsamstarf.
    Norræn samvinna um björgunarsamstarf (NORDRED) tekur til samstarfs yfir landamæri og miðar að því að koma í veg fyrir eða takmarka tjón á mönnum, eignum eða umhverfi vegna slysa eða óhappa. Markmiðið er að veita gagnkvæma aðstoð og auðvelda að hjálparlið og búnaður komist sem allra fyrst á vettvang. Ísland hefur tekið þátt í þessu samstarfi undanfarin ár en það byggist á rammasamningi um björgunarþjónustu (NORDRED) frá árinu 1989 milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Ísland hefur nú gerst formlegur aðili samningsins.
    Starf NORDRED á árinu fólst einkum í tveimur fundum tenglanefndarinnar sem m.a. hefur komið því til leiðar að sett hefur verið upp heimasíða fyrir NORDRED hjá viðkomandi ráðuneytum, þar á meðal dómsmálaráðuneytinu. Upplýsingaskipti eru mikilvægur þáttur í samstarfinu, og senn líður að því að undirbúningur að næstu ráðstefnu sem verður í Danmörku árið 2003 hefjist og verður aðalþema hennar áhættugreining.

25. Norrænar stofnanir á Íslandi.

25.1. Norræna húsið.
    Hlutverk Norræna hússins er að efla og miðla þekkingu um norrænt samstarf og styrkja norræn samskipti. Húsinu er ætlað að vera norræn menningarmiðstöð og tengiliður á milli Íslands og annarra norrænna landa. Því er jafnframt ætlað að efla áhuga landsmanna á því sem norrænt er og miðla þekkingu um Ísland til annarra Norðurlandabúa.
    Í Norræna húsinu er starfandi kennsluráðgjafi sem hefur það hlutverk að miðla upplýsingum um norræna tungu og menningu og standa fyrir námskeiðum sem varða norræn tungumál, tungumálakennslu og norræna samvinnu. Hann tekur á móti nemendahópum og fræðir þá um norræna tungu og menningu og hefur einnig samskipti við kennara. Í haust stóð kennsluráðgjafinn fyrir túlkanámskeiði fyrir Íslendinga í samvinnu við NIFCA.
    NORÐURLÖNDIN Í FÓKUS er tilraunaverkefni til tveggja ára á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem einkum er lögð áhersla á að miðla norrænni menningu og upplýsingum um það sem er efst á baugi hverju sinni í þjóðfélagsmálum á Norðurlöndum. Norræna húsið skrifaði undir samning um að taka þátt í þessu verkefni í apríl sl. NORÐURLÖNDIN Í FÓKUS leggur áherslu á að miðla upplýsingum til almennings um norrænt samstarf og þá ekki síst til stjórnmálamanna, fjölmiðlafólks og fulltrúa atvinnulífsins. Bókasafn Norræna hússins starfrækir almenna upplýsingaþjónustu en með þessu átaki ætti þjónustan að verða sýnilegri og skilvirkari en áður.
    Upplýsingaþjónustan svarar fyrirspurnum og miðlar útgefnu fræðslu- og kynningarefni frá Norrænu ráðherranefndinni. Jafnframt er stefnt að því að bjóða almenningi að sækja fyrirlestra um þjóðfélagsmál. Norrænu sendikennararnir hafa eftir sem áður skrifstofur sínar og kennslurými í Norræna húsinu.
    Dagskrá ársins hefur verið afar fjölbreytt en þar hefur einkum verið lögð áhersla á þrennt: jaðarsvæði og smáþjóðir, fjölmenningu og börn og unglinga.
    Stærsta verkefnið á vordagskránni voru Norðurbotnsdagar, sem haldnir voru fyrstu vikuna í apríl. Boðið var upp á fjölbreytta menningardagskrá frá þremur sveitarfélögum í Norðurbotni; Luleå, Piteå og Kiruna. Opnuð var samsýning listamanna úr Norðurbotni þar sem sýnd voru fjölbreytt verk; ljósmyndir, grafík, skúlptúrar, textílar og innsetningar. Í anddyri var sett upp ljósmyndasýning frá Kiruna auk minni sýninga af ýmsu tagi. Einnig var boðið upp á tvenna tónleika, kvikmyndasýningar, bókmenntadagskrá og barnadagskrá frá barnamenningarhúsinu Kotten.
    Í mars stóð Norræna húsið fyrir norrænni kvikmyndahátíð í samstarfi við norrænu sendikennarana og Háskólabíó. Gestir hátíðarinnar voru kvikmyndaleikstjórarnir: Søren Kragh Jacobsen, Taru Mäkelä, Friðrik Þór Friðriksson, og Berit Nesheim auk þess sem tveir af aðalleikurum úr mynd Lucas Moodysson komu í hans stað. Að hátíðinni lokinni fóru fram pallborðsumræður í Norræna húsinu þar sem nemendur í norrænu tungumálunum voru meðal áheyrenda, en dagskráin var hluti af námsskrá þeirra á vorönn.
    Í febrúar var opnuð ljósmyndasýningin Þrá eftir þrá, í samstarfi við Museet for Fotokunst, Brandts klædefabrik í Óðinsvéum, þar sem sex norrænir ljósmyndarar sýndu verk sín. Á svipuðum tíma var sett upp sýning á vatnslitamyndum eftir álenska listamanninn Kjell Ekström. Af öðrum dagskrárliðum á vormissiri má nefna harmonikutónleika, dagskrá í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars þar sem fram fóru pallborðsumræður um ný-feminisma, tónleika með dönsku leik- og söngkonunni Ceciliu Zwick Nash, tónlistarmanninum Poul Halberg og dansaranum Steen E. Koerner, sýningu á kirkjuteikningum færeyska arkitektsins J.P. Gregoriussen, þjóðdansakvöld og fyrirlestur Nönnu Hermansson f.v. borgarminjavarðar í Stokkhólmi.
    Sumarsýningin bar yfirskriftina „Norrænir hlutir – Nordic Objects“ – Farið yfir landamæri. Þar var um að ræða samsýningu tíu listamanna sem búa og starfa á Norðurlöndum. Innsetningar þeirra gefa til kynna vangaveltur og sýn norrænna listamanna, bæði innfæddra og aðfluttra, á hvað er líklegast til að vera norrænn hlutur. Sýningin var sett upp í samstarfi við NIFCA. Haldið var málþing í tengslum við opnun sýningarinnar – „Norrænar hugmyndir – Nordic Subjects“. Sýningin og málþingið var liður í átakinu „Hin nýju Norðurlönd“.
    Í tilefni Menningarnætur í Reykjavík í ágúst hélt danska jazztríóið KAK tónleika fyrir fullu húsi og spilaði það einnig annars staðar í Reykjavík. Tónleikarnir voru jafnframt hluti af dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur. Af öðrum dagskrárliðum sumarsins má nefna fyrirlestur Lisu Storm Villadsen, prófessors við Kaupmannahafnarháskóla, um trílógíu norska rithöfundarins Jan Kjærstads, fyrirlestraröð um íslenska menningu, tungu og samfélag sem haldin var í tengslum við sumarnámskeið fyrir útlendinga og listkynningu ætlaða æskunni, sem nefndist „Hraun, ís, skógur“ og var samstarfsverkefni Akureyrarbæjar og Rovaniemi í Finnlandi.
    Segja má að Norræna húsið hafi þjófstartað Menningarhátíð Eystrasaltsríkjanna á Norðurlöndum með opnun tveggja sýninga í ágúst, annars vegar á ljósmyndum Hendrik Relves af fornum trjám í Eistlandi og hins vegar á bókbandi, rafi og vefjarlist frá Eistlandi, Litháen og Lettlandi. Á menningarhátíðinni komu fram margir af þekktustu listamönnum landanna en í boði var metnaðarfull dagskrá með tónlist af ýmsum toga, kvikmyndum, bókmenntakvöldi og leikhúsi fyrir börn.
    Hápunktur haustsins var Köttur úti í mýri... Norræn barna- og unglingabókahátíð 2001, fjölbreytt dagskrá fyrir börn og fullorðna þar sem norrænir höfundar lásu úr verkum sínum, fræðimenn þinguðu og börnunum var boðið á myndlistarsýningar, tónleika og leiksýningar. Þema hátíðarinnar var „ferðin“ sem speglaðist vel í Ævintýrasýningunni þar sem gestir brugðu sér í ferð um ævintýraheim norrænna bókmennta. Margir aðilar komu að undirbúningi hátíðarinnar og lögðu sitt af mörkum til að hún mætti verða að veruleika. Af öðrum dagskrárliðum haustsins má nefna þjóðdansakvöld þar sem gestir fengu tilsögn í og fræðslu um gamla íslenska marsinn og sýninguna Villt dýr í norðri, sem opnuð var í desember, þar sem danska veflistarkonan Anne-Mette Holm sýndi rýjateppi.
    Af föstum dagskrárliðum má nefna sýningar á norrænum barnakvikmyndum en hefð hefur skapast fyrir því að sýna myndir frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi með jöfnu millibili í Norræna húsinu.
    Bókasafnið hélt uppi reglubundinni starfsemi á árinu. Vegna slæmrar gengisþróunar íslensku krónunnar lítur út fyrir að draga verði úr innkaupum safnsins á næstunni. Leitað var til fjármálaráðuneytisins um niðurfellingu á aðflutningsgjöldum af innkaupum safnsins.
    Kaffistofan hefur gengið vel þetta árið og óhætt er að segja að hún laðar að marga gesti í húsið. Húsið hefur að venju leigt úr tónleika- og ráðstefnusal auk 16 manna fundarherbergis og hefur orðið marga fasta viðskiptavini. Má þar nefna Sagnfræðingafélag Íslands, Kalak, Garðyrkjufélag Íslands, Vísindafélag Íslendinga, Rannsóknastofu í kvennafræðum og eins og undanfarin ár hafa verið haldnir háskólatónleikar hálfsmánaðarlega á vor- og haustmissiri. Að venju heimsóttu margir húsið til að fræðast um sögu þess, starfsemi og norrænt samstarf; jafnt skólahópar, erlendir ráðstefnugestir sem almennir ferðamenn.
    Norræna húsið opnaði nýja útgáfu af heimasíðunni á vetrarmánuðum þar sem mikill metnaður er lagður í að veita góðar upplýsingar um það sem er að gerast í húsinu hverju sinni auk almennra upplýsinga um alla starfsemi í húsinu.

25.2. Norræna eldfjallastöðin (NORDVULK).
    Rannsóknir í jarðvísindum og sérhæfð framhaldsmenntun ungra vísindamanna frá Norðurlöndum eru meginmarkmið Norrænu eldfjallastöðvarinnar. Á árinu var lögð áhersla á að samhæfa sem best þessi tvö meginmarkmið. Þátttaka ungra norrænna vísindamanna var aukin í áhersluverkefnum sem unnið er að, m.a. um myndun bergkviku, hreyfingar hennar í átt að yfirborði jarðar, jarðskjálfta, eldgos og umhverfisáhrif þeirra. Lögð er áhersla á túlkun og skilning þannig að rannsóknirnar hafi þýðingu á alþjóðlegum vettvangi. Fjárveitingar til stofnunarinnar koma að mestu frá Norrænu ráðherranefndinni og lögð er áhersla á að stofnunin nýtist öllum norrænu löndunum, bæði með menntun norrænna vísindamanna og eins með því móti að Ísland sé notað sem tilraunastofa í jarðvísindum í þágu allra Norðurlanda.
    Starfsmenn voru samtals 21 seinni hluta ársins, þar af voru 10 íslenskir og 7 annars staðar að á Norðurlöndum. Fimm starfsmenn eru kostaðir af styrkjum og sértekjum, og er það mikil aukning frá fyrri árum. Um er að ræða þrjá vísindamenn frá Bandaríkjunum, einn frá Ítalíu, og auk þess er fyrrverandi forstöðumaður með starfsaðstöðu á stofnuninni. Þessir starfsmenn eru mikilvægur hluti af rannsóknarhópi Norrænu eldfjallastöðvarinnar.
    Norræna ráðherranefndin fjármagnaði Norrænu eldfjallastöðina í samræmi við þriggja ára rammasamning sem gildir 2000–2002. Alls nam fjárveiting frá ráðherranefndinni um 79 millj. ísl.kr. Hluti af upphæðinni er aukafjárveiting upp á 6,5 millj. ísl.kr. vegna reksturs á massagreini, tæki til rannsókna í jarðefnafræði sem keypt var 1998. Þessi aukafjárveiting er tryggð áfram á árinu 2002, en óvissa ríkir um hana eftir það. Framlag frá íslenska menntamálaráðuneytinu nam 15,8 millj. ísl.kr. á árinu, og í viðbót námu styrkir og sérfjárveitingar um 7 millj. ísl.kr. Mestu munaði þar um fjárveitingu til vöktunar á Mýrdals- og Eyjafjallajökli, og eins vegna rannsókna á Suðurlandsskjálftum.
    Hafist var handa við undirbúning á nýjum rammasamningi milli stofnunarinnar og Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir tímabilið 2003–2005. Á þessu tímabili er áætlað að Eldfjallastöðin flytji í nýtt Náttúrufræðahús Háskóla Íslands, en menntamálaráðuneytið hefur greitt byggingarkostnað fyrir stofnunina. Í tengslum við undirbúning fyrir nýjan rammasamning kallaði Norræna ráðherranefndin eftir tillögum um framtíð stofnunarinnar. Það er álit stjórnar Eldfjallastöðvarinnar að mikilvægt sé að stofnunin haldi sjálfstæði sínu og að samstarf við íslenskar og norrænar jarðvísindastofnanir verði viðhaldið og það eflt. Fyrirhugaður flutningur í Náttúrufræðahúsið er litinn mjög jákvæðum augum, vegna aukinna möguleika á samvinnu og samstarfi við Háskóla Íslands, og betra rannsóknarumhverfis.
    Margir vísindamenn heimsóttu Norrænu eldfjallastöðina um skemmri eða lengri tíma á árinu og fluttu fyrirlestra sem voru opnir öllum jarðvísindamönnum á Íslandi. Einnig heimsótti forseti danska þingsins stofnunina í apríl og sjávarútvegsráðherra Noregs í desember.

Norræn verkefni og samstarf.
    Sex vísindamenn frá öðrum norrænum löndum störfuðu á Eldfjallastöðinni á árinu og norræn verkefni snúast að miklu leyti um verkefni þeirra. Í jarðefnafræði var m.a. unnið að rannsóknum á efnasamsetningu bergs frá Öræfajökli. Markmiðið er m.a. að prófa róttækar hugmyndir um að undir Öræfajökli og á hafsvæðinu austan og norðan við Ísland sé að finna brot úr gamalli meginlandsskorpu, frá því að Atlantshafið opnaðist. Hugmyndin byggir á aldursgreiningu á kristal sem fannst í hrauni frá Öræfajökli, niðurstöðum mælinga á hlutföllum á samsætum frumefna sem reynast óvenjulegar, og einnig líkani af plötuhreyfingum í Atlantshafi. Þetta gefur til kynna að hugsanlegt sé að brot úr gamalli meginlandsskorpu hafi skilist frá Grænlandi og Noregi, þegar þessi lönd rak í sundur fyrir um 60 milljónum ára. Safnað hefur verið fleiri bergsýnum og í samvinnu við Norðmenn er unnið að frekari mælingum.
    Af verkefnum yngri vísindamanna annars staðar að á Norðurlöndum má nefna rannsókn á umhverfisáhrifum og hættum frá sprengigosum, og rannsóknir á uppbyggingu Heimaeyjar, verkefni sem unnið er í samvinnu við Náttúrustofu Suðurlands.
    Eldfjallastöðin tók þátt í að undirbúa Norrænt vetrarmót jarðfræðinga sem Jarðfræðafélag Íslands stóð fyrir í byrjun janúar árið 2002, og stuðlaði þar með að eflingu tengsla stofnunarinnar við norræna jarðvísindamenn.

Alþjóðleg verkefni.
    Fleiri erlendir starfsmenn eru nú á Norrænu eldfjallastöðinni en áður, og alþjóðleg tengsl fara vaxandi. Í upphafi ársins var send inn umsókn í 5. rammaáætlun ESB um styrk til rannsókna á tengslum jarðskjálfta, kvikuhreyfinga, og skriðufalla. Verkefnið sem kallast RETINA (Realistic Evaluation of Temporal Interaction of Natural Hazards) fékk styrk sem nemur um 1,4 milljónum evra til rannsókna á næstu fjórum árum. Verkefnið verður unnið í samvinnu norrænna, franskra, breskra og portúgalskra vísindamanna.
    Af öðru samstarfi má nefna margvísleg tengsl við vísindamenn í Bandaríkjunum. Meðal annars er þar um að ræða jarðefnafræðilegar rannsóknir á uppruna bergkviku og magni vatns í henni, en magn uppleysts vatns í bergkviku hefur mikil áhrif á eiginleika hennar.
    Vísindamenn Norrænu eldfjallastöðvarinnar tóku þátt í vinnufundi um gerð jarðskorpu og jarðmöttuls undir Íslandi sem haldin var í Svartsengi í september. Einnig kynntu starfsmenn Norrænu eldfjallastöðvarinnar nýjar niðurstöður á haustfundi Ameríska jarðeðlisfræðifélagsins, sem er með stærstu ráðstefnum í jarðvísindum.

Íslensk verkefni og samstarf.
    Áfram var lögð áhersla á samvinnu við aðrar íslenskar jarðvísindastofnanir. Umfangsmiklar mælingar voru gerðar á jarðskorpuhreyfingum á Suðurlandi og Reykjanesskaga. Nýjar niðurstöður um jarðskjálftana á Suðurlandi árið 2000 voru birtar í alþjóðlegum vísindatímaritum, en út frá mælingum á jarðskorpuhreyfingum á yfirborði hefur nú mátt meta stærð sprunguflatanna sem hreyfðust, og tilfærslu á þeim en hún var mest rúmir 2 metrar.
    Rannsóknir á Heklu voru kynntar á opnum fundi sem Eldfjallastöðin stóð fyrir í nóvember. Starfsmenn stofnunarinnar og fleiri kynntu stöðu rannsókna við Heklu. Rannsóknaniðurstöður voru einnig kynntar í forsíðugrein vísindatímaritsins Geology, en rannsókn sem unnin var í samvinnu við Raunvísindastofnun Háskólans sýnir hver áhrif öskufalls í síðasta Heklugosi voru á lífríki í sjónum.
    Aðferðir sem byggja á nýtingu gervitungla til mælinga á jarðskorpuhreyfingum voru áfram þróaðar og nýttar til mælinga og kortlagningar á atburðum sem urðu í jarðskorpu Íslands árið 2000, en það er eitt mesta umbrotatímabil í jarðskorpunni á Suðurlandi í langan tíma. Á árinu bættust við nýjar upplýsingar um jarðskorpuhreyfingar á Reykjanesskaga árið áður, en í ljós kom að umbrot þar voru umtalsvert meiri en áður var ætlað. Mestar hreyfingarnar virðast hafa verið undir og við Kleifarvatn, en gervitunglamyndir sýna að þar hefur orðið um 60 sentimetra tilfærsla á um 6 km langri jarðskjálftasprungu. Færslan svarar til tilfærslu í jarðskjálfta af stærðinni 5.8 en samsvarandi jarðskjálftabylgjur hafa ekki mælst. Niðurstöðurnar benda til þess um sé að ræða hægan jarðskjálfta (e. slow earthquake), þar sem brot jarðskorpunnar hefur tekið mun lengri tíma en venjulega gerist og jarðskjálftabylgjur því minni en í venjulegum jarðskjálftum. Niðurstöðurnar hafa mikla þýðingu fyrir skilning á hegðun jarðskorpunnar, og eins fyrir byggð á jarðskjálftasvæðum, því hægir atburðir valda minna tjóni en snöggir jarðskjálftar.

26. Norrænir sjóðir og peningastofnanir.

26.1. Norræni menningarsjóðurinn.
    Norræni menningarsjóðurinn var stofnaður árið 1966 og hlutverk hans er að efla menningarsamstarf norrænu landanna. Sjóðurinn styrkir verkefni af ýmsum toga á sviði rannsókna, menntunar og menningar í víðri merkingu. Fjárveiting til sjóðsins á árinu var rúmlega 26 millj. d.kr. sem er hækkun frá fyrra ári. Stjórnarfundir á árinu voru fjórir.
    Umsóknarfrestur til sjóðsins er tvisvar á ári. Á árinu bárust sjóðnum alls 826 umsóknir en þar af voru 135 óstyrkhæfar af ýmsum ástæðum. Veittir voru styrkir til 247 verkefna. Styrkhæfar umsóknir voru að upphæð u.þ.b. 150,4 millj. d.kr. en til úthlutunar voru 27,5 millj. d.kr.
    Á árinu bárust 28 styrkhæfar umsóknir frá Íslandi sem er svipað og fyrri ár. Styrkveitingar til íslenskra verkefna voru 14, að upphæð alls 1,8 millj. d.kr. Hér eru ekki talin með norræn verkefni sem styrkt eru af menningarsjóðnum og fela í sér samstarf við eða heimsókn til Íslands.
    Á árinu var fram haldið samstarfi sjóðsins við annars vegar norrænu svæðisupplýsingaskrifstofurnar sem eru átta talsins og hins vegar tvíhliða norræna sjóði, sem eru alls 12 talsins. Ein upplýsingaskrifstofanna er staðsett á Akureyri og Ísland á aðild að fjórum tvíhliða sjóðum, þ.e. sjóðnum fyrir danskt-íslenskt samstarf, dansk-íslenska sjóðnum, menningarsjóði Íslands og Finnlands og sænsk-íslenska samstarfssjóðnum.
    Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu www.nordiskkulturfond.dk hjá Norræna menningarsjóðnum.
    Ákveðið hefur verið að leggja sérstaka áherslu á norræn sýningarverkefni. Annaðhvert ár verður því auglýstur styrkur að upphæð allt að 3 millj. d.kr. til yfirgripsmikils verkefnis sem verður „norræna sýning ársins“. Verður þessi styrkur viðbót við þá styrki sem eru nú veittir til minni sýninga.
    Enn fremur var á árinu ákveðið að gera sérstakt átak varðandi norrænt tungumálasamstarf. Fjárveiting að upphæð 3 millj. d.kr. hefur verið ákveðin til yfirgripsmikillar rannsóknar sem varpa á ljósi á þróun norræns málskilnings á siðastliðnum 25 árum.
    Að frumkvæði Norðurlandaráðs hafa á árinu farið fram umræður um lagalega stöðu sjóðsins. Á fundi norrænu menningarmálaráðherranna í október var þess vegna ákveðið að í reglum sjóðsins verði skýrt kveðið á um að sjóðurinn sé sjálfstæður lögaðili. Markmiðið er að skýra réttindi og skyldur sjóðsstjórnar. Tillaga menningarmálaráðherra að breyttum starfsreglum sjóðsins verður á árinu 2002 lögð fyrir Alþingi og þjóðþingin annars staðar á Norðurlöndum til staðfestingar.
    
26.2. Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO).
    Árið 2001 var ellefta starfsár Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO). Núverandi stofnfé félagsins er 80 millj. ekna, en á árinu var samþykkt að hækka stofnfé félagsins um 40 millj. ekna á sex ára tímabili, 2002–2007. Í lok árs 2007 mun því stofnfé félagsins nema 120 millj. ekna. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar úttektar á starfsemi NEFCO sem hafa skyldi til hliðsjónar við framtíðarstefnumótun fyrir félagið. Til verksins valdist danska ráðgjafarfyrirtækið Kvistgaard Consult sem skilaði skýrslu í lok ársins 2000. Skýrslan gefur almennt mjög jákvæða mynd af starfsemi og árangri NEFCO, en auk þess eru í henni ýmsar tillögur um framtíðarstefnu og áherslur félagsins.
    Megintilgangur félagsins skv. stofnsamningi norrænu landanna er að stuðla að umhverfisbótum, svo sem bættum mengunarvörnum í löndum Mið- og Austur-Evrópu. NEFCO tekur þátt í verkefnum með því að leggja fram fjármagn í formi hlutafjár eða lána til fyrirtækja. Þátttaka NEFCO er ákveðin á grundvelli mats á umhverfisáhrifum verkefna og efnahagslegra forsenda þeirra. Almenn skilyrði fyrir þátttöku NEFCO í umhverfisverkefnum eru að fyrirtæki eða einstaklingar í því landi þar sem verkefnið er unnið og frá einu norrænu landanna eigi aðild að verkefninu og leggi til þess fjármagn. Hlutdeild NEFCO nemur að jafnaði ekki meiru en 25% af heildarhlutafé eða stofnkostnaði.
    Í árslok 2001 hafði stjórn NEFCO samþykkt þátttöku í alls 60 verkefnum með fjármögnun í formi hlutafjár og lána að upphæð 73 millj. ekna en áætluð heildarfjárfesting í þessum verkefnum er um 774 millj. ekna.
    Verkefnin skiptast þannig eftir löndum: Pólland 14, Slóvakía 2, Eistland 13, Lettland 18, Litháen 3, Tékkland 1 og Rússland 9. Aðild norrænna fyrirtækja skiptist þannig eftir löndum: Ísland 2, Danmörk 14, Finnland 13, Noregur 12 og Svíþjóð 19. Verkefnin með íslenskri aðild eru bæði á sviði jarðhitanýtingar í Slóvakíu. Annars vegar er um að ræða ráðgjafarfyrirtæki á því sviði, Slovgeoterm, þar sem íslenska fyrirtækið Virkir-Orkint er eignaraðili, hins vegar orkuveitu á sviði jarðhita, Galantaterm, þar sem Orkuveita Reykjavíkur er meðeigandi auk Slovgeoterm.

Norræni umhverfisþróunarsjóðurinn (NMF).
    Árið 1996 var ákveðið að stofna styrktarsjóð við NEFCO og starfrækja hann næstu þrjú ár. Árið 1998 var ákveðið að halda starfsemi sjóðsins áfram næstu 5 árin með hliðsjón af þeirri reynslu sem fengist hafði af starfsemi sjóðsins. Framlög til sjóðsins á árinu námu 38 millj. d.kr., 26 millj. d.kr. frá norrænu löndunum og 12 millj. d.kr af norrænum fjárlögum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni til umhverfisbóta á sama landsvæði og hefðbundin starfsemi NEFCO, en fyrst og fremst verkefni sem ekki hafa sömu fjárhagslegar forsendur og NEFCO gerir kröfu til. Þátttaka sjóðsins í verkefnum er annars vegar í formi styrkja en hins vegar í formi lána á hagstæðum kjörum. Stjórn NEFCO sem er einnig stjórn Norræna umhverfisþróunarsjóðsins hafði í árslok samþykkt þátttöku í 22 verkefnum, sem skiptast þannig eftir löndum: Eistland 1, Lettland 1, Litháen 16 og Rússland 4.
    
26.3. Norræni fjárfestingarbankinn (NIB).
Starfsemi og afkoma.
    Afkoma Norræna fjárfestingarbankans hefur verið góð á undanförnum árum og sömu sögu er að segja af rekstri bankans fyrstu átta mánuði ársins 2001. Hreinar vaxtatekjur námu þessa mánuði EUR 98 milljónum, en fyrir sama tímbil í fyrra EUR 94 milljónum. Hagnaður á tímabilinu nam EUR 88 milljónum í samanburði við EUR 85 milljónir á sama tíma í fyrra. Efnahagsreikningur bankans óx um 5% og nam EUR 14,5 milljörðum í lok tímabilsins, í samanburði við EUR 13,8 milljarða í árslok 2000. Lausafé í lok tímabilsins nam EUR 3.421 milljón í samanburði við EUR 2.913 milljónir í árslok 2000.
    Spurn eftir lánum NIB innan og utan Norðurlanda var meiri fyrstu 8 mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Þriðjungur lána bankans innan Norðurlanda á tímabilinu voru veitt til orkugeirans. Á tímabilinu fjármagnaði NIB nokkrar fjárfestingar í orkuverum sem knúin eru með lífrænum orkugjöfum og stækkun raforkuflutningskerfa. Umhverfisfjárfestingar í stál- og málmframleiðslu eru nú einn viðamesti þátturinn í lánveitingum bankans til iðnfyrirtækja. Um 40% af lánum NIB utan Norðurlanda voru veitt til Eystrasaltsríkjanna og Mið- og Austur-Evrópu en 27% lánanna runnu til Asíu. Nokkrir rammasamningar um lánveitingar voru einnig undirritaðir á tímabilinu, meðal annars var undirritaður áttundi rammasamningurinn við Kína.
    Lán til iðnaðar eru sem fyrr fyrirferðarmest í lánasafni bankans á Norðurlöndum. Á síðari árum hefur orðið aukning í lánum til fjármálastofnana í öllum fimm löndunum til endurlána til smárra og meðalstórra fyrirtækja.
    Í október sl. ákváðu fjármála- og efnahagsráðherrar Norðurlanda að svigrúm bankans til almennra útlána skyldi framvegis miðast við 250% af stofnfé að viðbættum óbundnum varasjóðum sem myndast hafa af hagnaði af starfsemi hans. Þessi ákvörðun jók svigrúm NIB til lána innan Norðurlanda úr 10 milljörðum evra í rúmlega 12 milljarða evra.
    
Lykiltölur NIB (í milljónum evra).
1–8/2001 1–8/2000 1–12/2000
Hreinar vaxtatekjur 98 94 143
Hagnaður 88 85 130
Útborguð lán 927 689 1 104
Samningsbundin lán 953 620 1 026
Tekin lán (ný) 1 889 1 288 1 865
Hagnaður/eigið fé (%) 9,7 10,1 10,3
31/8 2001 31/8 2000 31/12 2000
Útistandandi lán 9 428 9 449 9 288
Niðurstaða efnahagsreiknings 14 540 14 488 13 850
Handbært fé 3 421 3 387 2 913
Fjöldi starfsmanna 135 129 129
    Góð afkoma á fyrstu átta mánuðum ársins og síðari vísbendingar gefa til kynna að vænta megi góðrar afkomu fyrir árið í heild.
    
Umhverfisbætur í austurvegi.
    Í lok ársins 2001 var skrifað undir lánssamning að fjárhæð 30 milljónir bandaríkjadala til umfangsmikilla lagfæringa á nikkelbræðslum í Murmanskhéraði á Kólaskaga. Heildarkostnaður við verkefnið er 93,5 milljónir bandaríkjadala. Verkefnið er m.a. stutt af norska ríkinu með 270 milljónum norskra króna. Þegar fjárfestingunni er lokið mun losun á brennisteinsdíoxíði og þungmálmaögnum frá bræðslunni minnka um meira en 90%. Losun nikkelbræðslunnar á brennisteinsdíoxíði er í dag þrisvar sinnum meira en öll losun brennisteinsdíoxíðs í Svíþjóð.
    
Forusta um samvinnu á sviði umhverfisfjárfestingar.
    NIB hefur tekið að sér forustu í stýrihópi NDEP, Northern Dimension Environmental Partnership, og er Jón Sigurðsson aðalbankastjóri NIB formaður stýrihópsins. Aðilar að NDEP eru alþjóðafjármögnunarstofnanir, framkvæmdastjórn ESB og löndin á því svæði sem hér um ræðir. Hlutverk NDEP er að fjármagna brýn umhverfisverkefni í löndunum kringum Eystrasalt og við Barentshaf.
    Markmið NDEP er að samhæfa og efla fjármögnun brýnna umhverfisverkefna sem hafa áhrif yfir landamæri á norðlægum slóðum. Í upphafi mun NDEP einbeita sér að verkefnum í norðvesturhluta Rússlands. Í stýrihópnum eiga fast sæti fulltrúar EBRD, EIB, NIB, Alþjóðabankans og framkvæmdastjórnar ESB.
    Auk þess að vera í forustu fyrir NDEP mun NIB sjá um að leiða greiningu og framgang níu mikilvægra fjárfestingarverkefna til umhverfisbóta við Eystrasalt og Barentshaf. Bankinn hefur sett á laggirnar sérstaka starfsdeild sem mun einbeita sér að þessum verkefnum.
    
Starfsemi NIB á Íslandi.
    Útistandandi lán til íslenskra lántakenda námu ríflega ISK 58 milljörðum í árslok 2001, sem er 8% af heildarlánveitingum bankans til lántaka á Norðurlöndum. Þessu til viðbótar koma umsamin en óútborguð lán til Íslands að jafnvirði ISK 2 milljarða. Lán NIB til Íslands námu 9% af erlendum skuldum Íslendinga í heild.
    Útborguð lán til Íslands námu um ISK 6,5 milljörðum sem er svipað og árin á undan. Samþykkt ný en óútborguð lán á árinu námu 1200 milljónum króna. Útborguð eða samþykkt voru ný lán til 13 verkefna á árinu.
    Samstarf NIB við íslenskar fjármálastofnanir við fjármögnun verkefna hefur vaxið á undanförnum árum og nær öll verkefni sem NIB lánar til í einkageiranum eru í samstarfi við innlenda banka.
    Lán bankans til sveitarfélaga voru fyrirferðarmikil á árinu. Reykjavíkurborg var veitt lán vegna uppbyggingar Orkuveitu Reykjavíkur að Nesjavöllum að upphæð 1,5 milljarði króna. Þá bættist Akureyrarbær í hóp íslenskra viðskiptamanna bankans en bærinn fékk 400 milljóna króna lán frá NIB til uppbyggingar hjá Norðurorku. Loks var Lánasjóði sveitarfélaga veitt lán til endurlána til þrettán sveitarfélaga. Lánað var m.a. til frárennslismála hjá Akraneskaupstað, Austur-Héraði, Árborg, Borgarbyggð, Garðabæ og Grindavíkurkaupstað.
    Bankinn tók þátt í tveimur útrásarverkefnum íslenskra fyrirtækja á árinu.Veitt var lán til Opinna kerfa að fjárhæð 40 milljóna sænskra króna vegna kaupa fyrirtækisins á sænska fyrirtækinu Datapoint Svenska. Þá var Össuri hf. veitt lán að fjárhæð 5 milljónum evra vegna kaupa fyrirtækisins á Flexfoot í Bandaríkjunum. Þá má nefna að samstarf NIB við fyrirtækin Eimskip hf. og Marel hf. heldur áfram og hefur bankinn samþykkt að veita Marel 300 milljóna króna lán vegna byggingar nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins í Garðabæ og bankinn hefur jafnframt greitt út lán til Eimskips að fjárhæð 15 milljónir evra fyrst og fremst til uppbyggingar fyrirtækisins á flutningaþjónustu milli Íslands og annarra landa.
    NIB tók þátt í fjármögnun verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar í Kópavogi í samstarfi við Íslandsbanka og Landsbanka og lánaði bankinn jafnvirði 500 milljóna íslenskra króna til verkefnisins. Þá má nefna að bankinn lánaði Olíudreifingu hf. 3 milljónir bandaríkjadala til kaupa á nýju olíuflutningaskipi.
    Lán til byggðamála nema um 9% af útlánum bankans til Íslands og á árinu 2000 var veitt eins milljarðs króna lán til Byggðastofnunar til endurlána í ýmis verkefni á landsbyggðinni. Bankinn lánaði jafnframt Límtré hf. tæpar 200 milljónir króna til fræmkvæmda á Flúðum en Byggðastofun ábyrgist lánið. Þá var Ferðamálasjóði veitt 100 milljón króna lán vegna endurlána sjóðsins.
    
26.4. Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef).
Samstarf um útflutningsverkefni.
    Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef) hefur það að markmiði að efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja og stuðla að þátttöku þeirra í verkefnum á alþjóðavettvangi. Sjóðurinn sinnir hlutverki sínu með því að styðja við útflutning fyrirtækja á skilgreindum verkefnum og með stuðningi við fyrirtæki sem vilja koma á fót starfsemi erlendis. Þau verkefni sem sjóðurinn kemur að verða að liggja utan EFTA- og ESB-landanna.
    Stuðningur sjóðsins felst m.a. í þátttöku í kostnaði við for- og hagkvæmniathuganir, gerð viðskiptaáætlana, lögfræðiaðstoð, samningagerð o.fl. Lán til alþjóðavæðingar geta numið allt að 40% af viðurkenndum kostnaði og er hægt að fara fram á að láninu verði breytt í styrk liggi fyrir skýrsla um árangur verkefnisins og samþykkt kostnaðaruppgjör. Í þeim tilfellum þar sem alþjóðavæðingunni er hrundið í framkvæmd er hægt að sækja um viðbótarstyrk upp á 20% af undirbúningskostnaðinum. Lán vegna verkefnaútflutnings eru 50% af samþykktum kostnaði og greiðast til baka verði af sölu verkefnisins og eru lánin vaxtalaus. Misheppnist verkefnið er hægt að sækja um niðurfellingu á láninu og breytist það þá í styrk.
    Sjóðurinn leggur áherslu á samstarfsverkefni norrænna og baltneskra fyrirtækja sem stuðla að alþjóðavæðingu í Eystrasaltsríkjunum: Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Svipuð tilhögun gildir gagnvart grannsvæðum í Norðvestur-Rússlandi.
    Helstu forsendur fyrir stuðningi Nopefs eru:
     –      Verkefnið verður að vera vel skilgreint og byggt á viðskiptalegum grunni.
     –      Verkefnið verður að tengjast löndum utan ESB og EFTA.
     –      Norrænir hagsmunir þurfa að liggja að baki verkefninu.
     –      Raunhæf fjárhagsáætlun vegna verkefnisins þarf að liggja fyrir.
    Á árinu 2000 var lögð fram tillaga starfshóps um framtíð Nopef en nefndin var skipuð af Norrænu samstarfsnefndinni (NSK). Tillögur starfshópsins voru staðfestar af norrænu samstarfsráðherrunum og þar með var rekstur Nopef tryggður til ársins 2004.
    Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta skilyrðum fyrir stuðningi við minni og meðalstór fyrirtæki við alþjóðavæðingu. Þannig gilda nú almennt hin hagstæðu kjör, sem fram til þessa hefur eingöngu verið hægt að fá vegna verkefna í Eystrasaltsríkjunum. Eins og áður eru EFTA- og ESB-löndin undanskilin.
    Stjórn sjóðsins er skipuð fimm fulltrúum, einum frá hverju norrænu landanna. Nopef, sem sett var á stofn árið 1982, er systurstofnun Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Norræna þróunarsjóðsins (NDF) og Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO). Þessar stofnanir eru allar með aðsetur í Helsinki í Finnlandi. Upplýsingar um starfsemi sjóðsins er að finna á vefsíðu hans, www.nopef.com.

Verkefni.
    Nopef fékk 235 umsóknir á árinu en þær voru 204 árið 2000. Samþykktar umsóknir voru samtals 141 (112 árið 2000). Tvær íslenskar umsóknir voru samþykktar á árinu 2001 en engin árið 2000. Verkefnin sem samþykkt voru hjá Nopef í ár fara fram í Rússlandi (24), Litháen (21), Eistlandi (19), Lettlandi (16), Kína (13), Póllandi (11), Úkraínu (8), Bandaríkjunum (3), Ungverjalandi (2) Slóvakíu (2) og 22 verkefni voru í öðrum löndum.
    Hlutfallsleg skipting verkefna sjóðsins milli aðildarlanda hans hefur verið sem hér segir:

2001 1996–2001
Danmörk 28,5% 30%
Finnland 25,0% 25%
Ísland 1,4% 2%
Noregur 19,6% 17%
Svíþjóð 25,5% 26%
    
    Á árinu lagði Ísland fram 1,1% af heildarframlagi til Nopef. Á sama tíma var framlag Nopef til íslenskra verkefna 3% af heildarfjárframlagi til verkefna.
    Stefnt er að því að gera átak í því að kynna sjóðinn sérstaklega á Íslandi á árinu 2002 og með því hvetja íslensk fyrirtæki til að nýta sér þjónustu sjóðsins. Í þeirri kynningu verður sérstaklega höfðað til fyrirtækja sem eru að hugsa um að efla starfsemi sína erlendis á þeim svæðum sem starfsemi Nopef nær til.
    
26.5. Norræni iðnaðarsjóðurinn (NI).
    Norræni iðnaðarsjóðurinn ( Nordisk Industrifond – senter for innovation og næringsutvikling) er stofnun á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um iðnaðar- og atvinnumál. Starfsemi sjóðsins hefur tekið nokkrum breytingum í áranna rás og hefur hún verið aðlöguð að þörfum norræns atvinnulífs á hverjum tíma. Á seinustu 30–40 árum hefur norrænt atvinnulíf gengið í gegnum tvö þróunar- og samstarfsstig og nú stendur það við upphaf þess þriðja. Það sem einkenndi fyrsta stigið var að norrænu þjóðirnar skilgreindu Norðurlönd í heild sem hluta af heimamarkaði sínum fyrir framleiðslu sína og þjónustu. Annað stigið einkenndist af tilkomu innri markaðar Evrópu. Þriðja stigið lýtur fyrst og fremst að því að styrkja hina norrænu ímynd og að til verði sameiginlegt norrænt þekkingarsamfélag þar sem hvatt er til virks samstarfs um uppbyggingu og miðlun þekkingar sem er til þess fallin að styrkja samkeppnisstöðu Norðurlanda á markaði alþjóðaviðskipta ( Norden som et grenseløst indre marked med en felles ressursbase).
    Fjárveitingar til einstakra rannsókna- og nýsköpunarverkefna hafa minnkað en aukin áhersla verið lögð á að styðja vísinda- og tæknisamstarf þjóðanna, samstarf lítilla og meðalstórra fyrirtækja og rannsóknastofnana. Stofnunin tekur þátt í fjármögnun verkefna sem eru til þess fallin að efla mannauð þjóðanna og sem stuðla að uppbyggingu nýrra fyrirtækja sem tengjast þekkingariðnaði. Sérstök áhersla er lögð á miðlun þekkingar og að niðurstöður allra verkefna sem sjóðurinn kemur að verði dreift til skilgreinds markhóps. Að auki eru niðurstöður aðgengilegar í opnum gagnagrunni sem í auknum mæli er að finna á vefsíðunni www. nordicinnovation.net hjá Norræna iðnaðarsjóðnum.
    Á árinu var gert sérstakt átak í því að kynna starfsemi sjóðsins í Norðvestur-Rússlandi og var fjölsóttur kynningarfundur haldinn í Leníngrad í september. Áður hefur sjóðurinn stutt við verkefni í Eystrasaltsríkjunum. Jafnframt hefur þátttökuskilyrðum verið breytt til að auðvelda þátttöku þessara nágrannaþjóða í austri í verkefnum á vegum sjóðsins.
    
26.6. Norræni þróunarsjóðurinn (NDF).
    Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) tók formlega til starfa árið 1989 og er í eigu norrænu landanna fimm, Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. NDF hefur aðsetur við hlið Norræna fjárfestingarbankans (NIB) í Helsinki og nýtur samrekstrar með honum og öðrum norrænum stofnunum í Helsinki að mörgu leyti.
    Markmið NDF er að styrkja efnahagslegar og félagslegar framfarir í fátækustu þróunarríkjum í samvinnu við aðrar lánastofnanir. Lánakjörin eru með þeim bestu sem þekkjast: lán eru til 40 ára, afborganalaus fyrstu 10 árin, vaxtalaus, en bera 0,75% þjónustugjald á ári fyrir þann hluta láns, sem er útgreiddur, og 0,5% staðfestingargjald fyrir þann hluta láns, sem ekki hefur verið greiddur. Lánin eru að öðru jöfnu veitt til ríkissjóða viðkomandi landa en til afmarkaðra verkefna í samstarfi við aðrar alþjóðlegar lánastofnanir. Helstu samstarfsaðilar NDF eru Alþjóðabankinn í Washington, þróunarbankarnir í Ameríku (IADB), Asíu (AsDB) og Afríku (AfDB), auk tvíhliða þróunarstofnana á Norðurlöndum, þ.m.t. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ).
    Stofnfé sjóðsins, sem greiðist samkvæmt norræna deililyklinum, er 515 milljón SDR og 330 milljón EUR, eða alls um 1 milljarður EUR (um 91 milljarður íslenskra króna). NDF tók Evruna (EUR) sem mynteiningu 1. janúar 2001. Á árinu undirritaði NDF 11 lánasamninga að fjárhæð 90,1 milljón EUR (um 8,2 milljarðar ísl. kr.). Frá stofnun hefur sjóðurinn þar með veitt lán að fjárhæð 762 milljón EUR (um 69 milljarðar ísl. kr.) til um 150 verkefna í 33 þróunarlöndum. Um 49% lánsfjárins hefur farið til landa í Afríku, 35% til Asíu og 16% til Rómönsku Ameríku. Alþjóðastofnanir flokka þróunarlöndin eftir vergri þjóðarframleiðslu á íbúa og er yfirleitt miðað við Bandaríkjadali (USD) á ári. Um 42% lána NDF hafa farið til fátækustu landanna (LLDC, <380 USD/ári), 42% til lágtekjulanda (LIC, <760 USD/ári), og 15% til lægri meðaltekjulanda (LMC, 761-3030 USD/ári). Þjóðarhagur hefur sem betur fer batnað í allmörgum lántökulöndum NDF frá fyrstu árum sjóðsins og hafa þau ekki lengur möguleika á að taka lán hjá sjóðnum. Á árinu samþykkti stjórn sjóðsins að takmarka lán sjóðsins næstu árin við um tuttugu samstarfslönd. Stærstu lántakendur sjóðsins eru Senegal, Mósambík, Úganda, Ghana, Malaví, Laos, Nepal, Bólivía og Níkaragúa. NDF tekur fullan þátt í að létta lánabyrðir skuldsettustu lántökulanda sinna í samræmi við ramma og reglur sem alþjóðlegar lánastofnanir setja til aðstoðar fátækustu ríkjum heims. Sjóðurinn hefur þegar tekið á sig slíkar skuldbindingar vegna Bólivíu, Eþíópíu, Malaví, Mósambík, Níkaragúa, Senegal, Tansaníu og Úganda.
    Norræna ráðherranefndin ákvað á árinu að breyta samþykktum NDF þannig að nú getur sjóðurinn veitt áhættulán til einkafyrirtækja í lántökulöndum sínum án ríkisábyrgðar. Slík lán verða þó aðeins lítill hluti heildarlána sjóðsins á hverju ári. Áhættulánin verða veitt á þrenna vegu: a) beint til fjárfestingarverkefna; b) með lánaramma í samstarfi við þróunarbanka; c) með eignaraðild að áhættulánasjóðum í viðkomandi löndum. Þessi lán munu væntanlega auka möguleika íslenskra útrásarfyrirtækja til samstarfs við fyrirtæki í þróunarlöndunum. Íslensk fyrirtæki hafa mun lakari aðgang að áhættulánum í þróunarlöndunum en samkeppnisaðilar í flestum iðnríkjum vegna þess að Ísland á ekki aðild að þróunarbönkum Afríku, Asíu og Rómönsku Ameríku.
    Íslensk fyrirtæki hafa tekið beinan þátt í sjö verkefnum NDF, fimm fiskveiðiverkefnum (í Malaví, Mósambík, Namibíu, Grænhöfðaeyjum og Úganda) og hitaveituverkefni í Kína. Fiskveiðiverkefnin á Grænhöfðaeyjum, í Malaví og Mósambík voru í samvinnu við ÞSSÍ. Meðal fiskveiðiverkefnanna má nefna endurfjármögnun fyrirtækisins Seaflower í Namibíu í samvinnu við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins á Íslandi og íslenskt fyrirtæki. NDF veitti fyrirtækinu áhættulán að fjárhæð 800 þúsund SDR (um 103 milljón kr.). Heildarlán til verkefna með beinum íslenskum hagsmunum eru u.þ.b. 17 milljón EUR (tæpir 2,4 milljarðar ísl. kr.). Íslensk fyrirtæki hafa unnið samninga sem nema um 1,3% af heildarfjárhæð samninga við norræn fyrirtæki sem sjóðurinn hefur fjármagnað frá stofnun. Hlutdeild Íslands í fjármögnun sjóðsins er aðeins lægri (1,1%). Auk þess hefur sjóðurinn í nokkrum tilvikum keypt íslenska sérfræðiþjónustu til verkefnaundirbúnings og eftirlits.
    Í stjórn NDF sitja fulltrúar Norðurlandanna fimm. Starfsmenn sjóðsins eru 14.
    
26.7. Lánasjóður Vestur-Norðurlanda.
Útlán.
    Lánasjóður Vestur-Norðurlanda hefur á árinu veitt níu lán, þrjú til Færeyja og sex til Grænlands.
    Tvö af þessum lánum eru veitt til samstarfsverkefna. Annað milli færeyskra og íslenskra frumkvöðla, hitt milli íslenskra og grænlenskra fyrirtækja. Af þessum lánum hafa þrjú verið greidd út, öll til Grænlands.
    Í byrjun árs 2002 verða sex lán greidd út, bæði til Færeyja og Grænlands.

Rekstur.
    Samkvæmt ársreikningum var eigið fé sjóðsins um áramót 2000/2001 117,5 MDKK og á sama tíma námu útlán samtals 69 MDKK.
    Breytingar á samþykktum er tóku gildi um áramótin 1997/98 kveða svo á um að Lánasjóður Vestur-Norðurlanda skuli styrkja NORA um allt að 1,5 MDKK á ári.

Stjórn.
    Stjórn Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda skipa sjö menn, einn frá hverju aðildarlandi, og hefur hver þeirra einn varamann. Stjórnarmaður og varamaður hvers aðildarlands eru skipaðir af ríkisstjórn þess.
    Nánari upplýsingar má finna á slóð: www.vestnorden.is.


II. MEGINÞÆTTIR NORRÆNU FJÁRLAGANNA 2002

    Með fjárlögum ársins 2002 er fjárhagsramma starfseminnar haldið óbreyttum frá árinu 2001 og heildarupphæð þeirra er 787,22 millj. d.kr. Jafnframt er ákvörðuð fjárstreymisáætlun (likviditetsbudget) að fjárhæð 777,22 millj. d.kr. sem er 10 millj. d.kr. lægri en fyrrnefndur fjárhagsrammi starfseminnar, 787,22 millj. d.kr. Þær 10 millj. d.kr. sem eru ekki greiddar inn standa sem krafa á löndin.
    Norrænt samstarf á að einkennast af sveigjanleika og hæfileika til að breyta forgangsröðun þannig að unnt sé að beina athyglinni að sviðum sem hafa mikið pólitískt vægi og sem mest norrænt notagildi. Sú úttekt sem gerð var árið 2000 á norrænu fjárlögunum sýndi að á undanförnum áratug hefur verið unnt að veita nýjum starfssviðum forgang í norrænu samstarfi án þess að fjárlögin hafi verið hækkuð. Það hefur hins vegar leitt til þess að ,,þrýstingur“ á norrænu fjárlögin er mikill.
    Forgangsröðun á fjárlögum ársins tekur bæði mið af tilmælum Norðurlandaráðs og af þeim forgangsverkefnum sem ráðast af formennskuáætlunum landanna. Stofnaður hefur verið fjárlagaliðurinn „ráðstöfunarfé ráðherranefndarinnar“ (áður varasjóður ráðherranefndarinnar) að fjárhæð 9,7 millj. d.kr. Í fjárlagaliðnum er því ítarlega lýst hvernig fjármununum skuli varið en „ráðstöfunarfé ráðherranefndar“ skal að meginreglunni varið til stakra verkefna fremur en langtímaverkefna. Ákvarðanir um að verja fjármunum til mála af varanlegra tagi skulu einnig taka til fjármögnunar í framtíðinni.
    Áðurnefnd úttekt á fjárlögunum var gerð af framkvæmdastjórn ráðherranefndarskrifstofu að beiðni samstarfsráðherranna. Tilgangurinn var að meta norrænu fjárlögin sem stjórnunartæki og verkfæri í fjárlagaferlinu. Í úttektinni er að finna tillögur sem varða fjárlagaferlið, fjármögnun stofnana og aðgerðir í því skyni að auka gagnsæi fjárlaganna í tæknilegu tilliti. Tæknilegu tillögurnar koma til framkvæmda í fjárlögum ársins 2002. Þau fela því í sér:
     –      Sérstakar fjárveitingar, annars vegar hvað varðar það fjármagn sem er til ráðstöfunar í formi styrkveitinga og hins vegar það fjármagn sem er varið til reksturs og stjórnunar styrkjafyrirkomulagsins.
     –      Upplýsingar verða veittar um hvaða fjárhæðir eru fyrirhugaðar annars vegar til stjórnunar og hins vegar til verkefna á vegum samstarfsstofnunarinnar.
     –      Veittar verða upplýsingar um fyrirhuguð útgjöld til stjórnunar og skipulags hjá stofnunum.
    Í ár er einnig kynntur skipulagsrammi til lengri tíma í því skyni að auka innsýn og sýna hver sveigjanleiki fjárlaganna er fyrir nýja starfsemi, svo og til að sýna þær kröfur sem þegar eru komnar fram um nýja forgangsröðun á næstu árum. Ramminn endurspeglar þær ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar en sýnir aðra starfsemi óbreytta.
    Í fjárlögunum er einnig sérstök lýsing á starfsemi ráðherranefndarinnar að viðfangsefnunum „frjáls félagasamtök“ og „börn & unglingar“. Ástæðan er sá pólitíski forgangur sem þessi tvö þverfaglegu svið hafa. Einnig er í fjárlögunum birt yfirlit yfir fyrirhugaða þróun rannsóknaráætlananna vegna þess að þær binda tiltölulega stóran hluta fjárlaganna til lengri tíma.
    Í júnímánuði 2000 samþykktu samstarfsráðherrarnir að samþætta jafnréttis- og kynjasjónarmið starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar. Fagsviðunum hefur verið falið að auka jafnrétti á sínu sviði og setja fram markmið í jafnréttismálum. Ráðherranefndin hyggst halda áfram að flétta þennan þátt inn í starfið á öllum fagsviðum starfseminnar.
    
Þróunin varðandi óráðstafaða fjármuni 1999–2000.

Svið (þús. d.kr.) Óráðst. 31.12.99 Óráðst. 31.12.00 Breyting 99-00
Menningarsamstarf 12.082 13.288 1.206
Menntamál og rannsóknir 12.601 2.920 -9.681
Ráðherranefndin um upplýsingatækni (Stofnuð 2000 ) 1.020 1.020
Grannsvæðin 4.417 2.900 -1.517
Orkumál 202 610 408
Umhverfismál 2.874 559 -2.315
Efnahagsmál 472 36 -436
Byggðamál 5.613 2.035 -3.578
Samgöngur 166 206 40
Landbúnaður og skógrækt 3.151 164 -2.987
Sjávarútvegur 102 41 -61
Vinnumarkaður, vinnuumhverfi 1.365 1.432 67
Félags- og heilbrigðismál 541 447 -94
Jafnréttismál 37 284 247
Samstarf í vímuefnamálum 403 46 -357
Aðgerðir í velferðarmálum 2.075 718 -1.357
Atvinnumál 732 152 -580
Bygginga- og húsnæðismál 0 282 282
Neytendamál 1.131 868 -263
Matvæli 0 478 478
Löggjöf 757 851 94
Önnur starfsemi 4.989 2.109 -2.880
Samtals fyrir Norrænu ráðherranefndina 53.710 31.446 -22.264

    Í tengslum við fjármuni til verkefna og styrkja sem nema samtals 55% af fjárlögum ráðherranefndarinnar eru á hverju ári yfirfærðir einhverjir óráðstafaðir fjármunir. Á árinu 2000 hafa óráðstafaðir fjármunir í ráðherranefndinni lækkað um 22 millj. d.kr., eða um 41%. Óráðstafaðir fjármunir eru skilgreindir sem fjármunir sem ekki hefur verið varið á tiltekinn hátt. Í lok árs 2000 var minna um það á flestum sviðum að verulegum fjármunum væri óráðstafað, borið saman við lok árs 1999. Undanskilið er þó menningarsviðið, því við upphaf árs 2001 var um 40% af óráðstöfuðu fé ráðherranefndarinnar þar að finna. Í þessu sambandi skal tekið fram að 5,5 millj. d.kr. af óráðstöfuðum fjármunum á sviði menningarmála er innan fjárveitinga til Norræna menningarsjóðsins.
    Við vinnslu fjárlaga ársins 2002 var við ákvörðun fjárlagaramma fyrir samstarfssviðin og fjárveitinga til fjárlagaliðanna tekið tillit til óráðstafaðra fjármuna frá árinu 2000. Þrátt fyrir niðurskurð á einstökum fjárlagaliðum í fjárlögum ársins 2002 tekst því að hluta að halda uppi starfsemi á borð við starfsemina fjárlagaárið 2001 þar sem óráðstafaðir fjármunir eru færðir milli ára. Ráðherranefndin hyggst vinna að því að draga enn frekar úr yfirfærslu milli fjárlagaára. Raunhæft markmið til lengri tíma er að lækka óráðstafaða fjármuni í 3–5% af fjármunum á fjárlögum til verkefna og styrkja.
    
Yfirlit yfir alla fjárlagaliðina.

Verð á hverjum tíma í þús. d.kr Fjárlög Fjárlög Mismunur
2002 2001 +/- %
Menningarsamstarfið 147.330 146.980 350 0,2%
Almennt framlag til menningarmála 33.395 33.328 67 0,2%
1-2203-2 Framlag til sérstakra menningarmála 6.840 7.319 -479 -6,5%
1-2204-2 Ráðstöfunarfé – Menning 0 0 0
1-2205-1 Norræni menningarsjóðurinn 26.555 26.009 546 2,1%
Börn og unglingar 13.054 12.686 368 2,9%
Verkefnafé og almennir styrkir 13.054 12.686 368 2,9%
1-2210-2 Norrænt íþróttasamstarf 1.203 1.378 -175 -12,7%
1-2212-2 Norræna æskulýðsnefndin 5.955 5.533 422 7,6%
1-2214-2 Stjórnarnefndin um norræna barna- og unglingamenningu 5.896 5.775 121 2,1%
1-2216-2 Börn og unglingar við árþúsundamót 0 0 0
Kvikmyndir og fjölmiðlar 31.108 31.978 -870 -2,7%
Verkefnafé og almennir styrkir 26.308 27.267 -959 -3,5%
1-2220-2 Stjórnarnefndin um menningar- og fjölmiðlasamstarf 5.985 3.241 2.744 84,7%
1-2222-1 Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn 20.323 19.905 418 2,1%
1-2224-2 Annað framlag til kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfs á Norðurlöndum 0 4.121 -4.121 -100,0%
Stofnanir 4.800 4.711 89 1,9%
1-2228-3 NORDICOM 1.577 1.548 29 1,9%
1-2229-3 Norræna blaðamannamiðstöðin (NJC) 3.223 3.163 60 1,9%
Listsviðið 34.891 34.374 517 1,5%
Verkefnafé og almennir styrkir 18.193 18.018 175 1,0%
1-2230-2 Norræna bókmennta- og bókasafnsnefndin (NORDBOK) 7.415 7.062 353 5,0%
1-2238-1 Sleipnir 2.612 2.558 54 2,1%
1-2239-2 Norræn menningararfleifð 1.160 1.536 -376 -24,5%
1-2244-1 Sérstök starfsemi á sviði lista 0 0 0
1-2246-2 Norræna listamannaheimilið í Róm 809 792 17 2,1%
1-2256-2 Norræna tónlistarnefndin (NOMUS) 6.197 6.070 127 2,1%
Stofnanir 16.698 16.356 342 2,1%
1-2255-3 Leiklist og dans á Norðurlöndum 6.817 6.690 127 1,9%
1-2257-3 Norræna listamannamiðstöðin (Dalsåsen) 1.517 1.472 45 3,1%
1-2258-3 Norræna stofnunin um samtímalist 8.364 8.194 170 2,1%
Norræn menningarhús (stofnanir) 23.114 23.088 26 0,1%
1-2270-3 Norræna húsið Reykjavík 6.239 6.602 -363 -5,5%
1-2272-3 Norðurlandahúsið í Færeyjum 9.751 9.569 182 1,9%
1-2274-3 Norræna stofnunin á Álandseyjum 1.725 1.620 105 6,5%
1-2277-3 Norræna stofnunin á Grænlandi (NAPA) 4.311 4.231 80 1,9%
1-2279-2 Viðhald menningarhúsa 1.088 1.066 22 2,1%
Annað menningarstarf 11.768 11.526 242 2,1%
Verkefnafé og almennir styrkir 11.768 11.526 242 2,1%
1-2234-2 Samískt samstarf 3.983 3.901 82 2,1%
1-2296-2 Norræn menningarverkefni erlendis 6.797 6.657 140 2,1%
1-2298-2 Aðgerðir gegn útlendingaandúð 0 0 0
1-2299-2 Menningardagskrá þinglandanna 0 0 0
1-2545-1 Kennsla um Norðurlönd erlendis 988 968 20 2,1%
Menntun, rannsóknir og upplýsingatækni 198.183 195.485 2.698 1,4%
Menntun og rannsóknir 197.845 194.954 2.891 1,5%
Almenn mennta- og rannsóknarstarfsemi 2.023 1.981 42 2,1%
1-2505-2 Ráðstöfunarfé – Menntamál og rannsóknir 2.023 1.981 42 2,1%
Menntunarsamstarf 90.722 92.499 -1.777 -1,9%
Skólasamstarf 22.374 21.885 489 2,2%
Verkefnafé og almennir styrkir 22.374 21.885 489 2,2%
1-2510-1 Norrænt skólasamstarf (NSS) 5.061 5.428 -367 -6,8%
1-2512-1 NORDPLUS-junior 9.783 9.382 401 4,3%
1-2514-1 Nemendaskipti á Vestur-Norðurlöndum 1.744 1.708 36 2,1%
1-2516-1 NORDPLUS-mini (tilraunaverkefni) 5.786 5.367 419 7,8%
Alþýðumenntun og fullorðinsfræðsla 16.935 17.131 -196 -1,1%
Verkefnafé og almennir styrkir 10.745 10.524 221 2,1%
1-2520-2 Stjórnarnefndin um alþýðumenntun og fullorðinsfræðslu 2.156 2.912 -756 -26,0%
1-2522-1 Styrkjafyrirkomulag vegna norrænnar alþýðumenntunar og fullorðinsfræðslu 8.589 7.612 977 12,8%
Stofnanir 6.190 6.607 -417 -6,3%
1-2524-3 Norræni lýðháskólinn (NFA) 6.190 6.607 -417 -6,3%
Æðri menntun 34.820 34.104 716 2,1%
Verkefnafé og almennir styrkir 34.820 34.104 716 2,1%
1-2530-2 Stjórnarnefndin um æðri menntun – HÖGUT 2.553 1.066 1.487 139,5%
1-2532-1 NORDPLUS 31.179 31.972 -793 -2,5%
1-2534-2 Framlag til Norræna sumarháskólans (NSU) 1.088 1.066 22 2,1%
Tungumálasamstarf 15.572 15.252 320 2,1%
Verkefnafé og almennir styrkir 10.437 10.222 215 2,1%
1-2540-2 Norræn málnefnd 1.982 1.941 41 2,1%
1-2542-2 Norræn námskeið í tungumálum og bókmenntum (NORDKURS) 2.037 1.995 42 2,1%
1-2543-1 Tungumálasamstarf á Norðurlöndum (NORDMÅL) 6.418 6.286 132 2,1%
Stofnanir 5.135 5.030 105 2,1%
1-2548-3 Norræna stofnunin í Finnlandi 5.135 5.030 105 2,1%
Almennar áætlanir – öll stig upplýsingatækni 1.021 4.127 -3.106 -75,3%
1-2550-2 Stefnumótunarhópur ráðherranefndarinnar (MR-U) í upplýsingatækni 532 521 11 2,1%
1-2552-2 Upplýsingatækni og tölvukennslufræði í kennslu 0 3.127 -3.127 -100,0%
1-2554-2 Þróunarverkefnið NORDUnet2 489 479 10 2,1%
Samstarf um rannsóknir og vísindi 105.100 100.474 4.626 4,6%
Verkefnafé og almennir styrkir 21.648 17.493 4.155 23,8%
1-3110-2 Norræna vísindastefnuráðið (FPR) 2.326 778 1.548 199,0%
1-3111-2 Norræn öndvegissetur, tilraunaverkefni 3.063 0 3.063
1-3120-2 Rannsóknaráætlunin Norðurlönd og Evrópa 0 0 0
1-3125-2 Norrænt tengslanet um þjóðhætti 0 1.090 -1.090 -100,0%
1-3130-2 Norræna Norðurskautsrannsóknaráætlunin 6.386 6.255 131 2,1%
1-3131-2 Norræn vísindaáætlun um kyn og ofbeldi 3.726 3.649 77 2,1%
1-3132-2 Norræn rannsóknaráætlun um tungutækni 4.977 4.875 102 2,1%
1-3135-2 Framkvæmd vísindastefnu 0 0 0
1-3140-2 Norræna lífsiðfræðinefndin 1.170 846 324 38,3%
Stofnanir 83.452 82.981 471 0,6%
1-3115-3 Norræna vísindaakademían (NorFA) 36.021 35.965 56 0,2%
1-3180-3 Norræna kjarnfræðistofnunin (NORDITA) 18.463 18.119 344 1,9%
1-3181-3 Norræna sjóréttarstofnunin (NIfS) 2.723 2.644 79 3,0%
1-3182-3 Norræna stofnunin um Asíurannsóknir (NIAS) 6.908 6.779 129 1,9%
1-3183-3 Norræna samstarfsnefndin um vísindaupplýsingar 5.377 5.267 110 2,1%
1-3184-3 Norræna eldfjallastöðin (NORDVULK) 7.487 7.923 -436 -5,5%
1-3185-3 Norræna samíska stofnunin (NSI) 6.473 6.284 189 3,0%
Ráðherranefndin um upplýsingatækni 338 531 -193 -36,3%
1-3410-2 Verkefnafé – samstarf í upplýsingatækni 338 531 -193 -36,3%
Umhverfismál, auðlindamál og grannsvæðin 190.651 189.426 1.225 0,6%
Grannsvæðin 83.695 81.502 2.193 2,7%
2-0810-3 Upplýsingastarfsemi og samskipti 12.725 11.988 737 6,1%
2-5280-3 Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef) 15.822 11.282 4.540 40,2%
2-0820-1 Styrkjaáætlunin fyrir Eystrasaltsríkin og Rússland 15.561 15.741 -180 -1,1%
2-0825-2 Nýjar aðgerðir á grannsvæðunum 0 1.042 -1.042 -100,0%
Verkefnafé 39.587 41.449 -1.862 -4,5%
2-0830-2 Lýðræði og málefni þegnanna 16.327 14.991 1.336 8,9%
2-0840-2 Menningarmiðlun 4.081 4.497 -416 -9,3%
2-0850-2 Markaðsbúskapur 5.644 8.528 -2.884 -33,8%
2-0860-2 Sjálfbær auðlindabúskapur 10.454 10.739 -285 -2,7%
2-0870-2 Samstarf á Norðurskautsvæðinu 3.081 2.694 387 14,4%
Orkumál 6.135 6.285 -150 -2,4%
2-3210-2 Verkefnafé – Orkumál 5.105 5.212 -107 -2,1%
2-3220-2 Norrænar orkurannsóknir (Nefp) 1.030 1.073 -43 -4,0%
Umhverfismál 38.405 38.200 205 0,5%
2-3310-2 Verkefnafé – Umhverfismál 32.853 32.762 91 0,3%
2-3320-2 Umhverfisþróunarsjóður NEFCO 5.552 5.438 114 2,1%
2-3330-2 Norræn auðlindanýting Stuðull 4/10 0 0 0
2-3340-2 Umhverfisgæðamál 0 0 0
Efnahags- og fjármál 1.536 1.553 -17 -1,1%
2-5210-2 Verkefnafé – Efnahags- og fjármál 1.536 1.553 -17 -1,1%
Byggðamál 29.116 29.379 -263 -0,9%
2-6110-2 Verkefnafé – Byggðamál 19.300 18.903 397 2,1%
Stofnanir 9.816 10.476 -660 -6,3%
2-6180-3 Norræn miðstöð um rannsóknir og þróun í byggðamálum (NORDREGIO) 9.816 10.476 -660 -6,3%
Samgöngur 1.021 1.022 -1 -0,1%
2-6210-2 Verkefnafé – Samgöngur 1.021 1.022 -1 -0,1%
Landbúnaður og skógrækt 23.471 24.138 -667 -2,8%
Verkefnafé 15.216 15.328 -112 -0,7%
2-6510-2 Verkefnafé – Landbúnaður og skógrækt 4.363 4.698 -335 -7,1%
2-6520-2 Norræna samstarfsráðið fyrir landbúnaðarrannsóknir (NKJ) 1.088 1.066 22 2,1%
2-6530-2 Norræn framkvæmdaáætlun um matvælaöryggi 1.064 1.042 22 2,1%
2-6540-2 Norræni genbankinn fyrir húsdýr 3.130 3.066 64 2,1%
2-6581-2 Samnorrænar skógarrannsóknir (SNS) 5.571 5.456 115 2,1%
Stofnanir 8.255 8.810 -555 -6,3%
2-6580-3 Norræni genbankinn (NGB) 8.255 8.810 -555 -6,3%
Sjávarútvegur 7.272 7.347 -75 -1,0%
2-6610-2 Verkefnafé – Sjávarútvegur 7.272 7.347 -75 -1,0%
Velferðar- og atvinnumál 146.125 145.292 833 0,6%
Vinnumarkaður og -umhverfismál 12.814 12.851 -37 -0,3%
Verkefnafé 10.108 10.200 -92 -0,9%
3-4110-2 Verkefnafé – Vinnumarkaður og -umhverfi 6.327 6.197 130 2,1%
3-4120-2 Nordjobb 2.529 2.777 -248 -8,9%
3-4130-2 Upplýsingaverkefnið 1.252 1.226 26 2,1%
Stofnanir 2.706 2.651 55 2,1%
3-4180-3 Stofnunin um framhaldsmenntun á vinnuumhverfissviði (NIVA) 2.706 2.651 55 2,1%
Félags- og heilbrigðismál 34.557 35.804 -1.247 -3,5%
Verkefnafé 5.211 4.904 307 6,3%
3-4310-2 Verkefnafé – Félags- og heilbrigðismál 4.253 3.966 287 7,2%
3-4320-2 Norræna ráðið um málefni fatlaðra (NHR) 958 938 20 2,1%
3-4330-2 Styrkjafyrirkomulag vegna táknmálstúlkunar 0 0 0
Stofnanir 29.346 30.900 -1.554 -5,0%
3-4380-3 Norræna lyfjanefndin (NLN) 2.034 3.171 -1.137 -35,9%
3-4381-3 Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn (NHV)* 32.354 34.528 -2.174 -6,3%
3-4382-3 Stofnun fyrir prófun tannviðgerðarefna (NIOM) 9.194 8.924 270 3,0%
3-4383-3 Norræna nefndin um áfengis- og vímuefnarannsóknir (NAD) 2.633 2.579 54 2,1%
3-4384-3 Norræn samstarfsnefnd um málefni fatlaðra (NSH) 7.188 7.971 -783 -9,8%
3-4385-3 Norræna menntamiðstöðin á sviði daufblindu (NUV) 6.987 6.857 130 1,9%
3-4386-3 Norræn menntaáætlun fyrir félagslega þjónustu (NOPUS) 1.310 1.398 -88 -6,3%
Jafnrétti 7.983 7.674 309 4,0%
3-4410-2 Verkefnafé – Jafnrétti 2.956 2.795 161 5,8%
Stofnanir 5.027 4.879 148 3,0%
3-4480-3 Norræn rannsóknarstofnun í kvenna- og kynjafræðum (NIKK) 5.027 4.879 148 3,0%
Samstarf í vímuefnamálum 1.185 1.161 24 2,1%
3-4510-2 Verkefnafé – Samstarf í vímuefnamálum 1.185 1.161 24 2,1%
Aðgerðir í velferðarmálum 4.301 4.063 238 5,9%
3-4610-2 Verkefnafé – Velferðarmál 0 0 0
3-4620-2 Velferðarrannsóknir 4.301 4.063 238 5,9%
Atvinnumál 69.598 67.775 1.823 2,7%
3-5110-2 Verkefnafé – Atvinnumál 1.370 1.042 328 31,5%
3-5120-2 Samstarf lítilla og meðalstórra fyrirtækja á sviði upplýsingatækni 0 0 0
Stofnanir 68.228 66.733 1.495 2,2%
3-5180-3 Norræni iðnaðarsjóðurinn 56.539 55.082 1.457 2,6%
3-5181-3 Nordtest 11.689 11.651 38 0,3%
*    Starfsemi heilbrigðisfræðaháskólans er fjármögnuð beint af löndunum og íþyngir því ekki fjárlögum í félags- og heilbrigðismálum.
Verð á hverjum tíma í þús. d.kr Fjárlög Fjárlög Mismunur
2002 2001 +/- %
Bygginga- og húsnæðismál 768 852 -84 -9,9%
3-5310-2 Verkefnafé – Bygginga- og húsnæðismál 768 852 -84 -9,9%
Neytendamál 8.462 8.688 -226 -2,6%
3-6710-2 Verkefnafé – Neytendamál 6.240 6.512 -272 -4,2%
3-6720-2 SVANURINN – Norrænt umhverfismerki 2.222 2.176 46 2,1%
Matvæli 5.437 5.325 112 2,1%
3-6810-2 Verkefnafé – Matvæli 5.437 5.325 112 2,1%
Löggjöf 1.020 1.099 -79 -7,2%
3-7110-2 Verkefnafé – Löggjöf 1.020 1.099 -79 -7,2%
Önnur starfsemi 104.931 97.212 7.719 7,9%
4-0180-3 Skrifstofa ráðherranefndarinnar (NMRS) 62.257 61.096 1.161 1,9%
4-0410-2 Samband Norrænu félaganna 2.880 2.821 59 2,1%
4-0425-2 Framlag til Vestur-Norðurlanda 2.613 2.559 54 2,1%
4-0430-2 Norrænt tölfræðisamstarf 1.654 1.597 57 3,6%
4-0435-2 Vararáðstöfunarsjóður framkvæmdastjóra 565 576 -11 -1,9%
4-0445-2 Ráðstöfunarfé ráðherranefndarinnar (Varasjóður ráðherranefndarinnar) 9.700 4.616 5.084 110,1%
4-0450-2 Styrkur til frjálsra félagasamtaka 973 953 20 2,1%
4-0460-2 Sjálfbær Norðurlönd 4.174 4.088 86 2,1%
4-0461-2 Norræn vísindaáætlun um öryggismál 1.565 1.533 32 2,1%
4-0462-2 Norræn vísindaáætlun um haffræði 2.609 2.555 54 2,1%
4-1010-2 Upplýsingastarfsemi 3.672 3.596 76 2,1%
4-1020-2 Upplýsingastarfsemi utan Norðurlanda 940 1.022 -82 -8,0%
4-1025-2 Norðurlönd í brennidepli (upplýsingagluggarnir) 4.697 4.701 -4 -0,1%
4-1030-2 Halló Norðurlönd 3.063 1.022 2.041 199,7%
4-1040-2 Þýðingar og túlkun 1.043 1.022 21 2,1%
4-1050-2 Starfsmannaskipti 2.042 2.091 -49 -2,3%
4-8030-2 Útgáfustarfsemi 484 1.364 -880 -64,5%
Samtals 787.220 774.395 12.825 1,7%


Skipting fjárlaga 2001 eftir sviðum innan samstarfssviða.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Skipting milli sviða 1999–2002.

Niðurstaða 1999 – Skipting fjárlaga milli sviða.    Niðurstaða 2000 – Skipting fjárlaga milli sviða.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Fjárlög 2001 – Skipting fjárlaga milli sviða.    Fjárlög 2002 – Skipting fjárlaga milli sviða.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Þróun fjárlaganna á árunum 1992–2002.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Ráðstöfunarfé starfseminnar.

þús. d.kr.
1997**
1998
1999
2000
2001
2002
Rekstrarafgangur* 2500 1689 3616 1399 6310
Þar af:
endurgreitt löndunum 0 1689 3616 1399 6310
til ráðstöfunar fyrir Norrænu ráðherranefndina 2.500 0 0 0 0 0
Fjárlög 702.636 716.931 732.308 741.512 774.395 787.220
Til ráðstöfunar fyrir Norrænu ráðherranefndina 705.136 716.931 732.308 741.512 774.395 787.220

*    Afgangurinn er frá síðasta þekkta reikningsuppgjöri fyrir fjárlagaárið, þ.e. varðandi 1997 er það afgangur ársins 1995. Frá og með árinu 1998 hefur þessu verið breytt þannig að afgangur ársins er frá fyrra ári, þ.e. 1997. Þetta gerðist í tengslum við að fjárhagsreglunum var breytt árið 1998 á þann veg að afgangur er alltaf endurgreiddur til landanna.
**    Halli að fjárhæð 2,314 millj. d.kr. frá 1996 var bættur upp árið 1997 með endurgreiðslum af fé þeirra stofnana sem höfðu verið lagðar niður.
    
    Afgangur hefur minnkað á 10. áratugnum. Þetta stafar fyrst og fremst af því að dregið hefur úr vaxtatekjum. Afgangur er í þessu samhengi skilgreindur sem munurinn á þeim tekjum sem gert var ráð fyrir á fjárlögunum og raunverulegum tekjum.
    

Samanburður á fjárlögum 2002 og 2001.

Verð á hverjum tíma í þús. d.kr. FJÁRLÖG
Hlutdeild
FJÁRLÖG
Hlutdeild
mism. 02-01
2002 2001 +/- %
Menningar-, menntamál og rannsóknir 345.513 43,9% 342.465 44,2% 3.048 0,9%
Menningarsamstarf 147.330 18,7% 146.980 19,0% 350 0,2%
Menntamál og rannsóknir 197.845 25,1% 194.954 25,2% 2.891 1,5%
Ráðherranefndin um upplýsingatækni 338 0,0% 531 0,1% -193 -36,3%
Umhverfis- og auðlindamál og grannsvæðin 190.651 24,2% 189.426 24,5% 1.225 0,6%
Grannsvæðin 83.695 10,6% 81.502 10,5% 2.193 2,7%
Orkumál 6.135 0,8% 6.285 0,8% -150 -2,4%
Umhverfismál 38.405 4,9% 38.200 4,9% 205 0,5%
Efnahagsmál 1.536 0,2% 1.553 0,2% -17 -1,1%
Byggðamál 29.116 3,7% 29.379 3,8% -263 -0,9%
Samgöngur 1.021 0,1% 1.022 0,1% -1 -0,1%
Landbúnaður og skógrækt 23.471 3,0% 24.138 3,1% -667 -2,8%
Sjávarútvegur 7.272 0,9% 7.347 0,9% -75 -1,0%
Velferðar- og atvinnumál 146.125 18,6% 145.292 18,8% 833 0,6%
Vinnumarkaður, vinnuumhverfi 12.814 1,6% 12.851 1,7% -37 -0,3%
Félags- og heilbrigðismál 34.557 4,4% 35.804 4,6% -1.247 -3,5%
Jafnrétti 7.983 1,0% 7.674 1,0% 309 4,0%
Samstarf í vímuefnamálum 1.185 0,2% 1.161 0,1% 24 2,1%
Aðgerðir í velferðarmálum 4.301 0,5% 4.063 0,5% 238 5,9%
Atvinnumál 69.598 8,8% 67.775 8,8% 1.823 2,7%
Bygginga- og húsnæðismál 768 0,1% 852 0,1% -84 -9,9%
Neytendamál 8.462 1,1% 8.688 1,1% -226 -2,6%
Matvæli 5.437 0,7% 5.325 0,7% 112 2,1%
Löggjöf 1.020 0,1% 1.099 0,1% -79 -7,2%
Önnur starfsemi 104.931 13,3% 97.212 12,6% 7.719 7,9%
SAMTALS 787.220 100,0% 774.395 100,0% 12.825 1,7%



Skipting fjárveitinganna á stofnanir og verkefni 2002 og 2001.

Verð á hverjum tíma í þús. d.kr. 2002 Hlutdeild 2001 Hlutdeild
þús. d.kr. % þús. d.kr. %
Menning 147.330 18,7% 146.980 19,0%
Fjármunir til verkefna, áætlanir og styrkir 103.806 70,5% 103.891 70,7%
Stofnanir 43.524 29,5% 43.089 29,3%
Menntun, rannsóknir og upplýsingatækni 198.183 25,2% 195.485 25,2%
Fjármunir til verkefna, áætlanir og styrkir 103.406 52,2% 100.867 51,6%
Stofnanir 94.777 47,8% 94.618 48,4%
Umhverfismál og auðlindamál 190.651 24,2% 189.426 24,5%
Fjármunir til verkefna, áætlanir og styrkir 143.003 75,0% 145.797 77,0%
Stofnanir 47.648 25,0% 43.629 23,0%
Velferð og atvinnumál 146.125 18,6% 145.292 18,8%
Fjármunir til verkefna, áætlanir og styrkir 40.818 27,9% 40.129 27,6%
Stofnanir 105.307 72,1% 105.163 72,4%
Önnur starfsemi 104.931 13,3% 97.212 12,6%
Fjármunir til verkefna, áætlanir og styrkir 42.674 40,7% 36.116 37,2%
Stofnanir 62.257 59,3% 61.096 62,8%
Samtals 787.220 100,0% 774.395 100,0%
Fjármunir til verkefna, áætlanir og styrkir 433.707 55,1% 426.800 55,1%
Stofnanir 353.513 44,9% 347.595 44,9%

    Stofnanir eru skilgreindar út frá skipulagi en ekki inntaki starfseminnar. Það leiðir af sér að styrkjafyrirkomulag á borð við Norrænu vísindaakademíuna, Norræna iðnaðarsjóðinn og Norræna verkefnaútflutningssjóðinn (NOPEF) fellur undir hlutdeild stofnunarinnar. Enn fremur eru fjárveitingar til skrifstofu ráðherranefndarinnar og upplýsingaskrifstofanna í Pétursborg og Eystrasaltsríkjunum skilgreindar sem rekstur stofnana. Þetta er í samræmi við venju. Breyting á hlut stofnana frá 2001 til 2002 stafar fyrst og fremst af hækkun á fjárveitingu til NOPEF svo og að heildarfjárveiting ráðherranefndarinnar er hluti af fjárveitingu til nefndrar stofnunar. Áður fyrr var hluti af fjármunum NOPEF veittur á fjárlagaliðnum Markaðsbúskapur í grannsvæðaáætluninni.

Yfirfærsla og samruni fjárlagaliða.
    Miðað við fjárlög 2001 eru einstakir fjárlagaliðir fluttir og lagðir við aðra fjárlagaliði. Eftirfarandi tafla sýnir hvaða fjárlagaliðir þetta eru og hvert þeir hafa verið færðir. Síðasti dálkurinn sýnir breytinguna í „nýja“ sameinaða fjárlagaliðnum, þ.e. nettóáhrif samrunans, miðað við upphæð fjárlagaliðarins í fjárlögunum 2001.

Fjárlagaliður Samtals til fjárlagaliðar Breyting
í þús. d.kr. á verðlagi 2001
1-2220-2 Stjórnarnefndin um menningar- og fjölmiðlasamstarf 1-2220-2 Stjórnarnefndin um menningar- og fjölmiðlasamstarf -1500
1-2224-2 Framlög til kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfs á Norðurlöndum – forgangsverkefni.

Tekjur á fjárlögum.
    Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar er fyrst og fremst fjármögnuð með beinum framlögum frá löndunum og er skipting þeirra ákveðin samkvæmt sérstakri skiptireglu. Skiptireglan miðast við hlutdeild hlutaðeigandi lands í vergum þjóðartekjum á Norðurlöndum miðað við framleiðsluverð tveggja síðustu ára sem upplýsingar liggja fyrir um, þ.e. 1998 og 1999.

Tekjur uppgjör Skiptiregla Fjárlög Skiptiregla Fjárlög Skiptiregla
þús. d.kr. 2000 2000 2001 2001 2002 2002
Launatengd gjöld (sem renna til reksturs starfseminnar) 8.715 7.000 7.000
Vaxtatekjur 12.203 8.000 9.120
Aðrar tekjur/ (e.t.v. tap) 192 800 800
Framlög landanna ***758.595 ***770.300
þar af:
     –      Danmörk 181.678 25,0% 184.339 24,3% 189.494 24,6%
     –      Finnland 129.355 17,8% 138.823 18,3% 142.505 18,5%
     –      Ísland 7.267 1,0% 8.344 1,1% 8.473 1,1%
     –      Noregur 163.510 22,5% 166.891 22,0% 166.385 21,6%
     –      Svíþjóð 244.902 33,7% 260.198 34,3% 263.443 34,2%
Samtals 748.693 100,0% 774.395 100,0% 787.220 100,0%
– afgangur **6.310
hreinar tekjur 741.512
**        Endurgreiðist til landanna samkvæmt skiptireglunni, á næstkomandi ári.
***    Árin 2001 og 2002 aflar ráðherranefndin fjárhæðar sem er 10 millj. d.kr. lægri en eiginlegt framlag frá löndunum. Þetta er vegna þess að skera verður niður handbært fé ráðherranefndarinnar. Að öðru leyti er vísað til greinargerðar á næstu blaðsíðu.

Athugasemdir.
     Launatengd gjöld: Byggja á gjaldskyldri launafjárhæð starfsmanna á skrifstofunni.
     Vaxtatekjur: Reiknað er með vaxtatekjum að fjárhæð 9,12 millj. d.kr., sem eru áætlaðar á grundvelli þess að væntanlegir meðalvextir fjárfestinga nemi 3,8% árið 2002 og meðalgreiðslugetu á því ári sem nemi 240 millj. d.kr.
     Aðrar tekjur: Undir þennan tekjulið eru væntanlegar endurgreiðslur óráðstafaðra verkefnafjármuna frá ýmsum stjórnsýslustofnunum.

Kröfur gagnvart löndunum.
    Vegna þeirrar fjárstreymisskerðingar sem ákveðin hefur verið fyrir 2001 og 2002 verða til kröfur gagnvart löndunum. Skiptingin milli landanna ræðst af skiptireglunni vegna viðkomandi fjárlagaárs. Þetta felur í sér að löndin koma til með að standa í skuld við Norrænu ráðherranefndina sem ber enga vexti og ekki er tiltekinn endurgreiðslutími. Kröfurnar dreifast á löndin eins og segir í eftirfarandi töflu. Einnig er tiltekið hve miklar heildarkröfur verða við árslok 2002.
    

Kröfur miðað við einstök lönd og fjárlagaár (þús. d.kr.) Kröfur
2001
Kröfur
2002
Samtals
31.12.2002
Danmörk 2.430 2.460 4.890
Finnland 1.830 1.850 3.680
Ísland 110 110 220
Noregur 2.200 2.160 4.360
Svíþjóð 3.430 3.420 6.850
Skerðing fjárstreymis 10.000 10.000 20.000

Meiri háttar breytingar.
    Í fjárlögunum eru hækkanir á fjárlagaliðum sem nema samtals um 24,402 millj. d.kr. á verðlagi ársins 2001. Notað er verðlag ársins 2001 (fyrir hækkun vegna væntanlegra verðhækkana) til þess að gera yfirlitið samanburðarhæft við fjárlög ársins 2001. Í töflunni hér fyrir neðan er sýnt hvernig mestu hækkanirnar skiptast á viðeigandi fjárlagaliði á verðlagi ársins 2001. Einnig er sýnt hvar var skorið mest niður. Til samanburðar námu tilfærslur í fjárlögunum 2001 36,436 millj. d.kr. (að meðtaldri 10 millj. d.kr. hækkun fjárlaganna).

Fjárlög Fjárlög
Meiri háttar hækkanir (þús. d.kr.) 2002 2001 Breyting
1-2220-2 Stjórnarnefndin um menningar- og fjölmiðlasamstarf 5.862 3.241 2.621
1-2530-2 Stjórnarnefndin um æðri menntun – HÖGUT 2.500 1.066 1.434
1-3110-2 Norræna vísindastefnuráðið (FPR) 2.278 778 1.500
1-3111-2 Öndvegissetur 3.000 0 3.000
2-0830-2 Lýðræði og málefni þegnanna 15.991 14.991 1.000
2-5280-3 Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef) 15.500 11.282 4.218
4-0445-2 Varasjóður ráðherranefndarinnar 9.500 4.616 4.884
4-1030-2 Halló Norðurlönd 3.000 1.022 1.978
Aðrar minni háttar hækkanir 3.767
Samtals hækkanir 24.402

Fjárlög Fjárlög
Meiri háttar niðurskurðir (þús. d.kr.) 2002 2001 Breyting
1-2224-2 Framlög til kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfs á Norðurlöndum – forgangsverkefni. 0 4.121 -4.121
1-2532-1 NORDPLUS 30.538 31.972 -1.434
1-2552-2 Upplýsingatækni og tölvunotkun í kennslu 0 3.127 -3.127
1-3125-2 Norrænt tengslanet um þjóðhætti 0 1.090 -1.090
1-3115-1 Norræna vísindaakademían (NorFA) 34.965 35.965 -1.000
2-0825-2 Nýjar aðgerðir á grannsvæðunum 0 1.042 -1.042
2-0850-2 Markaðsbúskapur 5.528 8.528 -3.000
3-4380-3 Norræna lyfjanefndin (NLN) 2.171 3.171 -1.000
Aðrir minni háttar niðurskurðir -8.588
Samtals niðurskurður -24.402
*    Hækkun fjárlagaliðar 1-2220-2 Stjórnarnefndin um menningar- og fjölmiðlasamstarf ber að skoða í tengslum við niðurskurð á fjárlagalið 1-2224-2 Framlög til kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfs á Norðurlöndum, þar eð fjárlagaliðunum hefur verið steypt saman. Heildarlækkun á fjárveitingum til kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfsins nemur því 1,5 millj. d.kr.

Skipulagsrammi til lengri tíma fyrir Norrænu ráðherranefndina.
    Skipulagsramminn til lengri tíma sýnir, miðað við 3 ára tímabil, þróun fjárlaga ef gert er ráð fyrir að aðstæður sem voru þekktar við samningu fjárlaga standist þann tíma sem spá vegna fjárlaganna nær yfir (spátímabilið).
    Varðandi einstaka fjárlagaliði eru forsendur skipulagsrammans til lengri tíma sem hér segir:
     –      Ef ekki er annað ákveðið eða skipulagt er áætluðu umfangi starfseminnar í fjárlögunum 2002 haldið óbreyttu út spátímabilið 2003 og 2004.
     –      Fjármögnun starfsemi sem samkvæmt áætlun fellur niður er ekki reiknuð með inn í spátímabilið.
    Upplýsingar um spátímabilið eru aðeins leiðbeinandi og sýna hvernig þróunin verður miðað við óbreytt fjárlög næstu tvö ár, að teknu tilliti til ákveðinna eða fyrirhugaðra breytinga. Hér er því ekki um að ræða fjárlög til margra ára, þar sem ákvörðun liggur fyrir um fjárhæðir á spátímabilinu. Til ráðstöfunar er eingöngu árleg fjárveiting í samþykktum fjárlögum viðkomandi árs. Heildarrammi fjárlaga er ákveðinn árlega og er ekki þekktur fyrir spátímabilið. Í töflunni er gert ráð fyrir að rammarnir á spátímabilinu séu þeir sömu og á fjárlagaárinu 2002.
    Yfirlitið á næstu blaðsíðu er samantekt fjárlagaliða fyrir sviðin.
    Hugtakið „Ekki áætlað innan fjárlagarammans“ er mismunur milli summu einstakra fjárlagaliða og fjárlagarammans. Ef talan er neikvæð merkir það að ófullnægð fjármögnunarþörf er fyrir hendi. Jákvæð tala merkir að fjármunir eru til ráðstöfunar.
    Að óbreyttum heildarramma að fjárhæð 787,22 millj. d.kr. á spátímabilinu verður ófullnægð fjármögnunarþörf að fjárhæð 1,2 millj. d.kr. árið 2003 og 6,7 millj. d.kr. til ráðstöfunar árið 2004 að gefnum þeim forsendum sem getið er að ofan.
    Í yfirlitinu er starfseminni skipt niður á 4 meginsamstarfssvið og byggt á óbreyttum fjárlagaramma fyrir samstarfssviðin.
    Fyrir „Menningu, menntun og rannsóknir“ verður 1 millj. d.kr. til ráðstöfunar og 6,7 millj. d.kr. hvort árið 2003 og 2004. Ástæða þessa er að Norðurskautsrannsóknaráætluninni er að ljúka (fjárlagaliður 1-3130-2) en síðasta fyrirhugaða fjárveiting vegna hennar verður árið 2003.
    Á samstarfssviðinu „Umhverfismál, auðlindamál og grannsvæðin“ nemur ófullnægð fjármögnunarþörf 0,5 millj. d.kr. árið 2003 og 2,0 millj. d.kr. árið 2004. Ástæðan er samningur landanna frá árinu 2000 um fjármögnun á starfsemi NOPEF (fjárlagalið 2-5280-3). Efni hans er að fjárveitingar ráðherranefndarinnar til NOPEF verði auknar um 1,5 millj. d.kr. á hverju ári á spátímabilinu.
    Á samstarfssviðinu „Velferð og atvinnumál“ er ófullnægð fjármögnunarþörf að upphæð 1,7 millj. d.kr. og 2,7 millj. d.kr. hvort árið um sig 2003 og 2004. Ástæða þessa er hin fyrirhugaða hækkun á fjárveitingum til velferðarrannsóknaráætlunarinnar (fjárlagaliður 3-4620-2).
    Fjárhæðin sem er til ráðstöfunar undir liðnum „Önnur starfsemi“ árið 2004 er vegna þess að ekki hefur verið tekin ákvörðun um starfsemi upplýsingaglugganna Norðurlönd í brennidepli (fjárlagaliður 4-1025-2) eftir árið 2003. Ákvörðun liggur einungis fyrir um starfsemina á 3 ára reynslutímabili og skal hún metin á þeim tíma. Ákvörðun um framtíð starfseminnar verður tekin á grundvelli þess mats.
    

Skipulagsrammi í heild til lengri tíma eftir sviðum (þús. d.kr.).

Fjárlög Fjárlög
Fjárlög Fjárlög Áætlun Áætlun
2001 2002 2003 2004
Menningar-, menntamál og rannsóknir 342.465 345.513 345.513 345.513
Menningarsamstarf 146.980 147.330 147.330 147.330
Menntamál og rannsóknir 194.954 197.845 196.887 191.159
Upplýsingatækni 531 338 338 338
Ekki áætlað innan fjárlagarammans 958 6.686
Umhverfis- og auðlindamál og grannsvæðin 189.426 190.651 190.651 190.651
Grannsvæðin 81.502 83.695 84.195 85.695
Orkumál 6.285 6.135 6.135 6.135
Umhverfismál 38.200 38.405 38.405 38.405
Efnahags- og fjármál 1.553 1.536 1.536 1.536
Byggðamál 29.379 29.116 29.116 29.116
Samgöngur 1.022 1.021 1.021 1.021
Landbúnaður og skógrækt 24.138 23.471 23.471 23.471
Sjávarútvegur 7.347 7.272 7.272 7.272
Ekki áætlað innan fjárlagarammans -500 -2000
Velferðar- og atvinnumál 145.292 146.125 146.125 146.125
Vinnumarkaður og -umhverfismál 12.851 12.814 12.814 12.814
Félags- og heilbrigðismál 35.804 34.557 34.557 34.557
Jafnrétti 7.674 7.983 7.983 7.983
Samstarf í vímuefnamálum 1.161 1.185 1.185 1.185
Aðgerðir í velferðarmálum 4.063 4.301 6.000 7.000
Atvinnumál 67.775 69.598 69.598 69.598
Bygginga- og húsnæðismál 852 768 768 768
Neytendamál 8.688 8.462 8.462 8.462
Matvæli 5.325 5.437 5.437 5.437
Löggjöf á sviði dómsmála 1.099 1.020 1.020 1.020
Ekki áætlað innan fjárlagarammans -1699 -2699
Önnur starfsemi 97.212 104.931 104.931 104.931
Önnur starfsemi samtals 97.212 104.931 104.931 100.234
Ekki áætlað innan fjárlagarammans 0 4.697
SAMTALS 774.395 787.220 787.220 787.220
Ekki áætlað innan fjárlagarammans -1241 6.684

Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við frjáls félagasamtök.
    Í því skyni að fylgja eftir þeirri áætlun um samstarf við frjálsu félagasamtökin sem var til meðferðar á þingi Norðurlandaráðs í Ósló 1998 hefur Norræna ráðherranefndin samþykkt eftirfarandi viðmiðunarreglur:
       –      „Markmið Norrænu ráðherranefndarinnar er að koma á opnum, gagnsæjum og skipulegum tengslum við frjáls félagasamtök/hagsmunasamtök til þess að fá fram sjónarmið, þekkingu og hæfni þeirra áður en ákvarðanir eru teknar.
       –      Samskiptin skulu vera samkvæmt áætlunum, þ.e. hagsmunasamtökin skulu vera viðbúin samskiptum af þessu tagi og þau skal síðan vera unnt að staðfesta.
       –      Þau frjálsu félagasamtök/hagsmunasamtök sem höfð eru samskipti við skulu vera viðurkenndir fulltrúar viðkomandi hóps, og tengsl milli samtakanna og hagsmuna–„baklands“ þeirra sýnileg og vel skilgreind.
       –      Samskiptin við frjálsu félagasamtökin/hagsmunasamtök skulu eiga sér stað á viðkomandi fagsviðum. Í tengslum við vinnslu tillagna á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, mótun framkvæmdaáætlana á einstökum sviðum, sem og við úrvinnslu á meðmælum og tilmælum Norðurlandaráðs ber fagdeildum Norrænu ráðherranefndarinnar með reglubundnum hætti að meta:
             –      Hvort frjáls félagasamtök koma þegar að málinu eða ættu að koma að málinu.
             –      Hvernig haga megi hugsanlegri áframhaldandi eða aukinni aðkomu frjálsra félagasamtaka með hagkvæmum hætti.
             –      Hvernig sviðið hefur stuðlað að auknu samspili við frjálsu félagasamtökin.
             –      Til hvaða árangurs tengslin/samspilið við frjálsu félagasamtökin hafa leitt.
     –      Heildarskýrslu um samstarfið við frjálsu félagasamtökin/hagsmunasamtökin skal gefa í fjárlögum og ársskýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar og á heimasíðu ráðherranefndarinnar.
     –      Frjálsu félagasamtökin taka ekki þátt í ákvörðunum ráðherranefndarinnar og embættismannanefndanna.
     –      Þegar stjórnsýsluverkum er úthlutað til frjálsra félagasamtaka er það gert á grundvelli mats á því hver geti leyst verkefnið af hendi á sem bestan og ódýrastan hátt. Styrkur er þannig ekki veittur til samtakanna gegnum verkefnið“.
    Viðmiðunarreglunum verður beitt af sviðunum í Norrænu ráðherranefndinni með hliðsjón af þeirri meginstefnu að samstarfið höfði til alls almennings, það sé traustvekjandi og stuðli að árangursríku samspili. Viðmiðunarreglurnar veita möguleika á kerfisbundnum efldum samskiptum og ávinningi, auk þekkingarmiðlunar milli frjálsu félagasamtakanna og hins opinbera norræna samstarfs. Á allnokkrum sviðum í Norrænu ráðherranefndinni hefur þegar skapast hefð fyrir samstarfi við frjálsu félagasamtökin, en framkvæmd viðmiðunarreglna Norrænu ráðherranefndarinnar táknar hins vegar að ráðherranefndin hyggist beina enn meiri athygli að samstarfinu á árinu 2002.
    Hin breytta íbúasamsetning á Norðurlöndum er sérstakt úrlausnarefni, sem fást þarf við í hinum lýðræðislegu kerfum til þess að tryggja almenna aðkomu almennings að áframhaldandi þróun sameiginlegrar lýðræðishefðar. Fyrsta skrefið í átt að aukinni þekkingu er að á árinu 2001 var hafist handa við norræna greinargerð, sem tekur mið af tengslunum milli frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum og einstaklinga úr hópi innflytjenda og annarra minnihlutahópa svo og frjálsra samtaka innflytjenda.
    Gert er ráð fyrir að þegar á árinu 2002 verði unnt að meta í fyrsta sinn niðurstöðurnar af þeim aðgerðum sem Norræna ráðherranefndin hefur beitt sér fyrir í því skyni að efla möguleika frjálsra félagasamtaka á samstarfi við opinberan geira hins norræna samstarfs.
Staða frjálsra félagasamtaka á grannsvæðunum og möguleikar á samstarfi við þau verða metnir á árinu 2002.
    Samkvæmt fjárlögum ársins 2002 verður framhald á skiptifyrirkomulaginu fyrir fulltrúa frjálsu félagasamtakanna, ferðastyrkjunum og túlkastyrknum, en þessar aðgerðir voru hluti af samstarfsáætlun ársins 1998. Fyrirkomulagið verður tekið til endurskoðunar að afloknu 3 ára gildistímabili.
    Hér fara á eftir upplýsingar frá fagsviðunum um samstarf við frjáls félagasamtök:
    Norræna ráðherranefndin hefur gert samninga við svæðisskrifstofur Norræna félagsins sem fela í sér nánara samstarf um framkvæmd á upplýsingahlutverki norrænu svæðisskrifstofanna í samfélaginu á hverjum stað. Samstarfið við Norræna félagið sam hefur umsjón með Nordjobb-áætluninni og NORDPLUS-mini heldur áfram á árinu 2002.
    Á vettvangi frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum er samstarf um málefni tengd íþróttum og menningu hvað algengast. Á menningarsviði Norrænu ráðherranefndarinnar er það talið mikilvægt verkefni að eiga stöðugt gagnkvæm samskipti sem einnig ná til frjálsra félagasamtaka, í því skyni efla norrænt menningarlegt samstarf í ljósi aukinnar hnattvæðingar. Drjúgum hluta þeirra fjármuna sem varið er til samstarfsins á listasviði er beint að verkefnum sem ná til óháðra listamanna með því að styðja myndun tengslaneta, með verkefnastuðningi og í formi ferðastyrkja og vinnustofustyrkja. Listamannasamtökin eiga formlega séð ekki fulltrúa í stjórnum norrænna nefnda og sjóða, en ýmsir listamenn sem telja má að tilheyri frjálsum félagasamtökum, koma að stjórnarnefndum/stjórnum með sérfræðiþekkingu. Tengsl við listamannasamtökin myndast enn fremur óbeint þegar fulltrúar landanna í norrænum stofnunum eru skipaðir með því að ráðuneytin leita samráðs hjá listamannasamtökum í sínu landi við skipunina.
    Á íþróttasviðinu hafa menningarmálaráðherrarnir veitt stuðning til þriggja stórra viðburða: „Norrænnar umhverfisráðstefnu um íþróttir“, „Íþrótta- og menningarhátíðar“ í Færeyjum og samstarfsverkefninu „Women and Sport in Estonia“. Innan Norræns íþróttasamstarfs er megni þess fjár sem rennur til styrkveitinga varið til ferðastyrkja fyrir börn og unglinga í frjálsum íþróttasamtökum á Vestur-Norðurlöndum og til íþróttamóta og -búða fyrir börn og unglinga á vegum íþróttasamtaka og unglingaíþrótta á samíska svæðinu.
     Æskulýðsmál einkennast af nánu samstarfi við frjálsu félagasamtökin þar sem veittir eru styrkir til allmargra samtaka og verkefna og frjáls félagasamtök á því sviði eiga fulltrúa í ráðgjafanefnd Norrænu ráðherranefndarinnar, Norrænu æskulýðsnefndinni. Verkefnin, sem eru styrkt, eru skipulögð og framkvæmd af norrænum æskulýðssamtökum.
     Norrænu húsin/stofnanir starfa með listamannasamtökum í mörgum af verkefnum húsanna. Norrænu húsin og stofnanir á Vestur-Norðurlöndum, en þau eru þrjú talsins, ráðstafa auk þess ferðastyrknum til frjálsra félagasamtaka, en þar með næst samband við breiðan hóp frjálsra félagasamtaka – ekki einungis á menningarsviðinu. Á kvikmynda- og fjölmiðlasviðinu tekur frjálsi geirinn þátt í starfseminni m.a. með þátttöku í athugunum og skýrslum, annað hvort með því að annast gagnasöfnun og skýrslugerð, eða með ráðgjöf. Námstefnur eru oftast ætlaðar einstökum listamönnum og iðkendum á sviði kvikmynda og sjónvarps. Áhrifa frjálsra félagasamtaka á starfsemina gætir að öðru leyti fyrst og fremst heima fyrir í löndunum með fundum og samskiptum ráðuneytanna við samtök listamanna og listamennina sjálfa auk annarra.
    Starfið að Norrænni kynningu utan Norðurlanda er þess eðlis að oft er það forsenda fyrir framkvæmd verkefnis að frjáls félagasamtök taki þar þátt sem samstarfsaðilar. Þegar stjórnarnefndin skipar starfshópa og undirbúningshópa að öðru leyti og útdeilir hagnýtum verkefnum koma frjáls félagasamtök að mörgum þáttum þess.
     Norræni menningarsjóðurinn veitir nú þegar verulegt framlag til samstarfsins við frjáls félagasamtök. Sjóðurinn hefur á undanförnum 3 árum úthlutað helmingi styrkfjárins til frjálsra félagasamtaka. Jákvætt viðhorf sjóðsins til þess að tengja frjáls félagasamtök norrænu menningarsamstarfi endurspeglast í úthlutunarreglum/forgangsröðun sjóðsins. Frjálsu félagasamtökin koma þó ekki beint að ákvörðunarferlinu. Með skipulegu föstu samstarfi sem hafið er við tvíhliða sjóði á Norðurlöndum, koma hins vegar frjáls félagasamtök á Norðurlöndum óbeint að því. Þetta samstarf leiðir jafnframt til þess að sjóðurinn verður stöðugt þekktari meðal frjálsra félagasamtaka. Enn fremur vinnur menningarsjóðurinn að því koma sér upp starfsreglum þannig að sveigjanleiki verði meiri og frjáls félagasamtök eigi auðveldara með að leita til sjóðsins.
     Í umhverfisgeiranum er hefð fyrir samstarfi við frjáls félagasamtök og þátttöku þeirra að vissu marki í ákvarðanatöku. Þannig var áætlunin um sjálfbæra þróun send til umsagnar víða meðal frjálsra félagasamtaka um öll Norðurlönd og þau fengu einnig tækifæri til að koma með athugasemdir við umhverfisframkvæmdaáætlunina. Þróun upplýsingaáætlunar fyrir norrænt umhverfissamstarf tengist beint óskinni um aukna upplýsingamiðlun og nánara samstarf við hin frjálsu félagasamtök. Ein forsenda þess að framkvæmd áætlunarinnar um sjálfbæra þróun takist er að frjálsu félagasamtökin verði virk í ferlinu.
     Á sviði neytendamála á sér stað formlegt samstarf við neytendageirann á vettvangi Norrænu neytendanefndarinnar (NKU). Hún er samstarfsvettvangur stjórnvalda, vísindamanna og fulltrúa frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum á sviði neytendamála og er óháð ráðgjafarstofnun Norrænu ráðherranefndarinnar, neytendamálaráðherranna.
    Höfuðmarkmið Norrænu neytendanefndarinnar eru:
     –      að vera hugmyndavettvangur; að endurnýja og viðhalda umræðu um stefnu á sviði neytendamála,
     –      að þróa samstarf stjórnvalda og neytendasamtaka,
     –      að styðja norrænt samstarf stjórnvalda í neytendamálum,
     –      að styðja starf neytendasamtaka í einstökum löndum, á norrænum og alþjóðlegum vettvangi,
     –      að styðja og hvetja til rannsókna á sviði neytendamála.
    Frjáls félagasamtök eiga fulltrúa í verkefnahópum margra verkefna á sviði neytendamála. Þar má t.d. nefna verkefni sem hófst árið 1993 um hagsmuni norrænna neytenda með tilliti til matvæla. Í norrænu framkvæmdaáætluninni um örugg matvæli sem var til meðferðar á þingi Norðurlandaráðs 1997, er lögð áhersla á að þátttaka almennings sé forsenda þess að ná markmiðinu um örugg matvæli. Árið 2000 var haldin þverfagleg ráðherraráðstefna „ Öruggur matur“, með breiðri þátttöku samtaka á þessu sviði; neytendasamtökum, umhverfissamtökum og hinum ýmsu samtökum matvælaframleiðenda, en slíkt var unnt vegna framlags af norrænu fjárlögunum.
    Á sviði sjávarútvegs var veittur styrkur til Norræna samstarfsráðsins fyrir sjómannskonur og konur sem búsettar eru við sjávarsíðuna á grannsvæðunum til stofnunar tengslanets. Enn fremur var veittur styrkur til Norræna fisksalaráðsins og Norræns ráðs útgerða- og fiskimanna. Loks hefur verið veitt fé til sjávarútvegssamtaka til merkingar á fiski sem nýttur er með sjálfbærum hætti.
    Á árunum 1996–2000 lagði Landbúnaðar- og skógræktarsviðið alls 500.000 d.kr. til upplýsingaverkefnis hjá frjálsum félagasamtökum. Þetta verkefni verður nú fjármagnað beint af löndunum. Í norræn-baltnesku ráðherrayfirlýsingunni um þróun landsbyggðar (Copenhagen Declaration 2000) er lögð áhersla á mikilvægi hins borgaralega samfélags fyrir þróunina, en það er í samræmi við Árósarsáttmálann. Leitað verður til frjálsra félagasamtaka um ráðgjöf þegar slíkt á við. Í samstarfinu um erfðaefni húsdýra og ræktaðra plantna er lögð áhersla á samskipti og stuðning við myndun tengslaneta við hin mörgu frjálsu samtök svo og þorra þeirra manna sem lætur sig varðveislumál varða. Í norrænu samstarfsráði fyrir landbúnað og skógrækt hafa talsmenn hagsmunasamtaka á sviðinu möguleika á að skiptast á skoðunum við stjórnmálamenn og stjórnsýsluna um þau pólitísku málefni sem hæst ber hverju sinni. Samtökin tóku þátt í því að undirbúa og móta dagskrá fundar samstarfsráðsins árið 2001. Samstarfsráðið er fjármagnað af hverju landi fyrir sig.
    Á sviði menntamála og rannsókna hefur Stjórnarnefndin um alþýðumenntun og fullorðinsfræðslu, FOVU, prýðilegt samstarf við margvíslega notendur, m.a. námsmannasamtök og lýðháskólafélög. Samtökin eiga fulltrúa í mörgum af starfshópum FOVU (samanburðarhópi, alþjóðlegum samstarfshópi, ritnefnd fyrir FOVU-Dialog) og taka þátt í samráðsfundum og þemaráðstefnum/-námstefnum. Enn fremur er þeim boðin þátttaka í tilteknum verkefnum, t.d. verkefni um Lýðræðisþróun árið 2000. Í styrkjafyrirkomulaginu er eyrnamerkt fjárveiting til norrænna námsflokkasambanda (blokkstyrkur), enn fremur er meiri hluti annarra fjármuna fyrirkomulagsins veittur til verkefna sem eru skipulögð af lýðháskólum og námsflokkafélögum.
    Mikilvægt áherslusvið Norræna lýðháskólans er þróun afburðahæfni sem er til þess fallin að efla tilrauna- og þróunarstarf á sviðinu milli norrænna almannasamtaka, formlega menntakerfisins og vinnumarkaðssviðsins. NSU (Norræni sumarháskólinn) eru frjáls félagasamtök sem fá stuðning til verkefnastarfsemi frá ráðherranefndinni.
    Samstarf félags- og heilbrigðismálageirans og frjálsra félagasamtaka skiptist aðallega í tvo flokka; framlög til verkefna af almennu verkefnafé, og tiltölulega myndarleg framlög sem veitt eru til samstarfs norrænna samtaka fatlaðra.
    Samstarf við bæði norræn kvennasamtök og kvennasamtök í einstökum löndum og tengslanetin teljast eðlilegur hluti starfsemi jafnréttissviðsins. Fulltrúum samtakanna og tengslanetanna er boðin þátttaka í ráðstefnum, námstefnum og ýmsum viðburðum. Samtökin taka einnig þátt í mótun samstarfs- og framkvæmdaáætlana og samningu umsagna um veigamikil pólitísk málefni. Á jafnréttissviðinu fer fram samstarf við fjölda norrænna samtaka og tengslaneta kvenna:
    Samtök norrænna kvennahreyfinga, NOKS, eru norræn regnhlífarsamtök fyrir kvennasamtök á Norðurlöndum. Samtökin kynntu starfsemi sína á ráðstefnunni „Women's World“ í Tromsö í júnímánuði 1999 í „Norræna herberginu“, og halda einn fund á ári í því landi sem gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni hverju sinni. Í tengslum við þá eru haldnir kynningarfundir með kvennasamtökum og tækifæri gefast til að kynnast þeim störfum í grannlöndunum sem teljast til fyrirmyndar („good practises“). Árið 2002 kemur NOKS til með að hefja samstarf við samsvarandi regnhlífarsamtök á grannsvæðunum. NOKS starfar einnig með Women's Lobby í ESB. QUIN – er tengslanet fyrir uppfinningakonur á Norðurlöndum. Þær hafa kynnt starfsemi sína á kaupstefnum á Norðurlöndum. QUIN heldur sameiginlega norræna fundi og hefur hafið samstarf við uppfinningakonur á grannsvæðunum. Árið 2000 stofnaði MIRA, sem er þekkingarmiðstöð fyrir innflytjendur og flóttakonur, tengslanet fyrir innflytjendur og flóttakonur á Norðurlöndum. Tengslanet fyrir fatlaðar konur á Norðurlöndum – tekur þátt í ýmsum norrænum viðburðum og hefur skipulagt eigin verkstæði og sýningar í tengslum við fundi Norrænu ráðherranefndarinnar.


Frjáls félagasamtök (þús. d.kr.).

Fjárlagaliður Fjárlög 2002 Fjárlög
2001
Ráðstafa ð 2000 Viðtakendur framlaga
1-2203-2 Framlag til sérstakra menningarmála 1.000 900 0 Samtök
1-2204-2 Ráðstöfunarfé – Menning 0 - 491
1-2205-1 Norræni menningarsjóðurinn 14.000 10.000 14.021
1-2210-2 Norrænt íþróttasamstarf 1.203 1.225 1.148 Íþróttasamtök
1-2212-2 Norræna æskulýðsnefndin 4.500 3.950 3.937 Samtök barna og unglinga
1-2214-2 Stjórnarnefndin (BUK) 2.500 2.000 635 Félög, stofnanir o.fl.
1-2220-2 KM-hópurinn 1.000 200
1-2224-2 Forgangsverkefni á sviði kvikmynda og fjölmiðla 1.300 Filmkontakt Nord
1-2228-3 NORDICOM 200
1-2230-2 NORDBOK 0 Norrænu félögin
1-2234-2 Menningarstarfsemi Sama 3.983 2.500 2.500 Frjáls félagasamtök Sama og listamenn
1-2231-1 SLEIPNIR 2.612 2.558 2.609 Ferðastyrkir listamanna
1-2246-2 Listamannaheimilið í Róm 809 792 653 Dvöl listamanna
1-2255-3 Leiklist og dans 774 1.460 760 Áhugamannaleikfélög
1-2256-3 NOMUS 400 0 397 Orkester Norden
1-2257-3 Norræna listamannamiðstöðin Dalsåsen 700 700 700 Vinnustofustyrkir
1-2258-3 NIFCA 700 3.000 700 Vinnustofustyrkir
1-2270-3 Norræna húsið í Reykjavík 200 300 250 Óháðir listamenn
1-2272-3 Norðurlandahúsið í Færeyjum 300 300 300 Óháðir listamenn
1-2274-3 Norræna stofnunin á Álandseyjum 200 200 200 Óháðir listamenn
1-2277-3 Norræna stofnunin á Grænlandi 200 200 250 Óháðir listamenn
1-2296-2 Menningarverkefni á erlendri grund 50 0 750 Óháðir listamenn
Samtals menning 35.131 31.785 30.301
1-2514-1 Nemendaskipti á Vestur-Norðurlöndum 1.744 1.708 1.671 Norrænu félögin
1-2526-1 NORDPLUS-mini 5.786 5.367 3.251 Norrænu félögin
1-2520-2 FOVU 1.300 1.700 1.200 Fræðslusambönd o.fl.
1-2522-1 Styrkjakerfi FOVU 4.900 4.900 4.800 Fræðslusambönd, lýðháskólar
1-2524-3 Norræni lýðháskólinn (NFA) 2.500 2.500 2.400 Fræðslusambönd/ lýðháskólar
1-2534-2 Norræni sumarháskólinn 1.088 1.066 1.043 NSU er frjáls félagasamtök
1-2543-1 NORDMÅL 1.700 1.300 1.000 Nordspråk
Samtals menntun og rannsóknir 19.018 18.541 15.365
2-0810-3/-2-0860-2 Grannsvæðaáætlunin 14.000 11.700 13.000 Frjáls samtök, ferða- og námsdvalaráætlun
Samtals grannsvæðaáætlunin 14.000 11.700 13.000
2-6510-2 Verkefnafé – Landbúnaður og skógrækt 0 450 260
2-6530-2 Norræn framkvæmdaáætlun um matvælaöryggi 0 0 320
Samtals landbúnaður og skógrækt 0 450 580
2-6610-2 Verkefnafé – sjávarútvegur 210 610 248 Samtök sjávarútvegsins
Samtals sjávarútvegur 210 610 248
3-6710-2 Verkefnafé – neytendamál 410 1.500 410 Samtök neytenda o.fl.
Samtals neytendamál 410 1.500 410
3-4120-2 Nordjobb 2.529 2.777 2.200 Norrænu félögin
Samtals vinnumarkaður og umhverfismál 2.529 2.777 2.200
3-4310-2 Verkefnafé – Félags- og heilbrigðismál 450 0 300
3-4384-3 Norræn samstarfsnefnd um málefni fatlaðra (NSH) 1.700 0 1.463 Styrkjafyrirkomulag til samtaka fatlaðra
Samtals heilbrigði og félagsmál 2.150 0 1.763
3-4410-2 Verkefnafé – jafnrétti 250 300 200 Kvennasamtök
Samtals jafnrétti 250 300 200
4-0410-2 Samband Norrænu félaganna 2.880 2.821 2.760 Norrænu félögin
4-0450-2 Stuðningur við frjálsu félögin 973 953 932 Sviðið almennt
Samtals önnur starfsemi 3.853 3.774 3.692
Samtals frjáls félagasamtök hjá Norrænu ráðherranefndinni 77.551 71.437 67.759

Starfsemi í þágu barna og unglinga.
    Eitt mikilvægasta verkefnið í norrænu samstarfi er að tryggja börnum og unglingum góð uppvaxtarskilyrði, góð lífskjör og jafnrétti. Norræna ráðherranefndin hefur lagt verulega áherslu á málefni barna og unglinga síðastliðinn áratug. Áherslunni má skipta í fjögur víðtæk svið:
     –      Þekking á aðstæðum barna og unglinga.
     –      Þróun fyrirkomulags um gagnkvæmar heimsóknir, verkefni og tengslanet á norrænum vettvangi, jafnt og í einstökum löndum.
     –      Starfsemi sem beinist að börnum og unglingum á Norðurlöndum og á grannsvæðum.
     –      Efling barna- og unglingamenningar, sem nær til þeirrar menningar sem börn og unglingar skapa, og þeirrar menningar sem fullorðnir skapa handa markhópnum börn og unglingar.
    Norræna ráðherranefndin hefur samþykkt þrjár framkvæmdaáætlanir sem hafa börn og unglinga að markhópi og snerta daglegt líf þeirra. Víðtækust þeirra er „ Norðurlönd inn í nýtt árþúsund“, þverfagleg framkvæmdaáætlun fyrir samstarf að málefnum barna og unglinga 2001– 2005. Hún nær til tillagna sem tengjast mörgum mismunandi sviðum í starfsemi ráðherranefndarinnar og varpar ljósi á sameiginleg markmið fyrir barna- og unglingasamstarfið. Meginmarkmið samstarfsins er að veita börnum og unglingum möguleika á að kynnast og að hafa áhrif á mótun velferðarsamfélags á Norðurlöndum og að taka þátt í því.
    Jafnréttissjónarmiða skal gætt í allri starfsemi. Í alþjóðlegum samanburði standa Norðurlöndin framarlega hvað varðar jafnrétti kynjanna. Á sama hátt er það markmið að norrænt samstarf að málefnum barna og unglinga leiði til aukinnar meðvitundar um norræna samkennd og efli gagnkvæman áhuga, þekkingu og virðingu meðal fólks á Norðurlöndum sem hefur ólíkan félagslegan og þjóðlegan bakgrunn.
    Framkvæmdaáætlunin fyrir norrænt samstarf að málefnum barna og unglinga beinist að sex sameiginlegum meginmarkmiðum:
     –      Þátttaka og áhrif barna og unglinga.
     –      Eigin menningarleg tjáning barna og unglinga og efling norrænnar ímyndar.
     –      Réttur unglinga til að öðlast hæfni.
     –      Jafnrétti milli kynslóða, kynja og svæða á Norðurlöndum.
     –      Umburðarlyndi og þjóðernisleg margbreytni.
     –      Áhersla á börn og unglinga sem eru í áhættuhópi.
    Í framkvæmdaáætluninni er tekið fram að mikilvægt sé að beita sameiginlegum áhrifamætti sem þegar er fyrir hendi í norrænu samstarfi. Þar er m.a. einnig átt við þróun sameiginlegs þekkingargrunns sem byggður er á rannsóknum á málefnum barna og unglinga, auk samræmingar norrænna rannsókna á þessu sviði. Einnig er mikilvægt að skapa sameiginlegar lífskjaravísbendingar sem veita möguleika á að mæla þróunina og skapa nýja þekkingarstöðu.
    Mikilvægur liður í því að þróa og bæta lífskjör barna og unglinga er að styrkja þau í að hafa áhrif á stefnu Norrænu ráðherranefndarinnar í málefnum barna og unglinga og að þróa þá möguleika sem þau hafa til þess að hafa áhrifa á eigið líf.
    Stuðningur við hreyfanleika og verkefni er áfram mjög mikilvægur í norrænu samstarfi á sviði barna- og unglingamála.
    Fyrir mörg börn og unglinga er þátttaka í norrænu samstarfi forsmekkurinn að þátttöku í alþjóðamálum. Því er mikilvægt að innan norræns samstarfs verði börnum og unglingum veittur möguleiki á að komast að raun um gæði norræns samstarfs, jafnframt því sem stefnt er að því að undirbúa víðtækari þátttöku barna og unglinga í starfsemi á alþjóðavettvangi.

Framkvæmdaáætlun um norrænt samstarf að skólamálum 2000–2004.
    Samstarf að skólamálum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar hefur að markmiði að gera skólann á Norðurlöndum betri. Grunnurinn að samstarfinu verður eftir sem áður skólaþróun og nytsemi hennar í norrænu og alþjóðlegu samhengi. Þetta á einkum við þau forgangssvið og þau tilvik þar sem unnt er að skapa norræn verðmæti. Enn fremur er það markmið skólasamstarfsins að efla heildarsýn á menntun barna og unglinga frá forskóla til framhaldsskóla.
    Í framkvæmdaáætluninni eru skilgreind eftirfarandi áherslusvið:
     –      Nýjar kröfur um hæfni í þekkingarsamfélaginu.
     –      Símenntun.
     –      Mat.
     –      Verðmæti og menning í skólanum.
     –      Opin skoðanaskipti um samhengi og heild.
     –      Áhersla á þverfaglega starfsemi í Norrænu ráðherranefndinni, t.d. upplýsinga- og samskiptatækni, gæði, nám, tungumálaskilningur og að gera norrænt skólasamstarf sýnilegt.

Framkvæmdaáætlun fyrir börn og unglinga á grannsvæðum Norðurlanda 1999–.
    Meginmarkmið framkvæmdaáætlunarinnar er að bæta lífskjör barna og unglinga á grannsvæðum Norðurlanda. Hún undirstrikar mikilvægi þess að samræma núverandi starfsemi á sviðinu, yfirfærslu á hæfni milli Norðurlanda og grannsvæðanna og að hleypa af stokkunum verkefnum af menningarlegum toga. Þar má t.d. nefna stuðning við stofnun æskulýðsráða og opinberra bókasafna á einstökum stöðum. Framkvæmdaáætlunin er þverfagleg og félags- og heilbrigðismálasviðið, menningarsviðið og skólasviðið eru í sameiningu ábyrg fyrir því að tillögum framkvæmdaáætlunarinnar sé fylgt eftir.
    Með þessum framkvæmdaáætlunum er grundvöllur fyrir því að á næstum öllum sviðum innan Norrænu ráðherranefndarinnar sé í meiri eða minni mæli starfsemi sem beinist að börnum og unglingum.
    Á menningarsviði er sérstök framkvæmdaáætlun fyrir barna- og unglingamenningu á tímabilinu 1996–2000, en á komandi árum mun starfið á menningarsviðinu byggja á grunni hennar. Á lista- og menningarsviðinu njóta börn og unglingar ótvíræðs forgangs í starfinu. Markmiðin mynda kjölfestu í öllum áætlunarskjölum og í meginhluta samþykkta hinna ýmsu stofnana og sérfræðistofnana.
    Þrír fjárlagaliðir á menningarfjárlögunum eru eingöngu ætlaðir starfsemi í þágu barna og unglinga.
    Kvikmynda- og fjölmiðlasvið hefur með fjárveitingum sínum styrkt mörg viðamikil verkefni ætluð börnum og unglingum sem miða t.d. að því að þróa sameiginlega framleiðslu á hágæðaefni fyrir þennan markhóp.
    Norræni menningarsjóðurinn ver um 20% af fjárveitingum ársins til verkefna fyrir börn og unglinga.
     Skólasviðið. Í grannsvæðafjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árin 1999 og 2000 voru 3 millj. d.kr. á ári ætlaðar til áætlunarinnar „Development of a School for all“ og fyrir árið 2001 2,8 millj. d.kr. Stjórnarnefndin um norrænt samstarf á sviði skólamála leggur áherslu á að ráðherranefndinni beri að líta á þetta samstarf sem langtímaverkefni. Í samræmi við þarfir og óskir Eystrasaltsríkja er meginmarkmið áætlunarinnar að styðja við menntun á mismunandi stigum í því augnamiði að bæta forsendur nemenda sem þurfa sérstakan stuðning til að geta notið góðrar menntunar í almenna skólakerfinu í löndunum. „Stofnun ríkisins um málefni fatlaðra í skólum“, SIH, er verkefnastýringarstofnun fyrir áætlunina, sem er mótuð fyrir tilstilli norræns samstarfshóps og fulltrúa ráðuneyta Eystrasaltsríkja. Áætluninni er stýrt af norrænum stýrihópi sem nýtur aðstoðar fulltrúa frá ráðuneytum Eystrasaltsríkjanna, en það er til að tryggja að framkvæmdin verði í samræmi við forgangsröðun í einstökum löndum. Kröftunum er beint að þrem megináherslusviðum: „Co-operation“, „Teacher training/Classroom practice“ og „Transition“, og á hverju sviði er aðalverkefni í einu Eystrasaltsríki og tvö minni í hinum tveim.
     Húsnæðissviðið. Á húsnæðissviðinu er markmiðið að skapa gott húsnæði og lífskjör handa öllum hópum samfélagsins. Norrænt samstarf í húsnæðismálum ungs fólks tekur mið af því að aðstæður þeirra sem eru að koma sér upp húsnæði í fyrsta sinn eru mjög mismunandi eftir því hvað land á í hlut. Unnið er að því að upplýsingar um ástandið í húsnæðismálum við æðri menntastofnanir verði aðgengilegri, m.a. á Netinu.
     Sjávarútvegssviðið. Árið 1999 var haldin norræn ráðstefna þar sem ein niðurstaðan var sú, að nánara samstarf við samstarfssvið mennta- og skólamála og samstarfssviðið um málefni barna og unglinga væri forsendan fyrir auknu samstarfi um æðri menntun, t.d. með gagnkvæmri viðurkenningu á námi í matvælagreinum og gjarnan þannig að sameiginlegt norrænt grunnár gæti veitt aðgang að því að ljúka náminu annars staðar á Norðurlöndum. Ein aðferðin til að auka áhugann meðal unglinga gæti verið að nýta margmiðlunartækni bæði við heimanám og í skólanum.
     Landbúnaður og skógrækt styrkti árið 2000 Kultur & Ungdom, en það var fjölsótt æskulýðsráðstefna sem haldin var í Reykjavík. „Skógurinn í skólanum“ er núverandi samnorrænt verkefni sem beinist að unglingum. Áframhald verkefnisins á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem hófst árið 2000 er í athugun.
     Neytendamál. Meginmarkmið norræns samstarfs á sviði neytendamála er að tryggja góða og rétta merkingu vara á Norðurlöndum. Samstarfið á einnig að stuðla að því að auka meðvitund neytenda, gefa af sér skilvirkar upplýsingar og keimlíkar reglur á Norðurlöndum. Á sviði neytendamála eru börn og unglingar neytendahópur sem er afar viðkvæmur gagnvart auglýsingum og vörulýsingum, og því er einkum áríðandi að móta neytendakröfur sem tryggja að börn og unglingar séu þess umkomin að velja sjálfstætt og meðvitað hvað varðar eigin neyslu.
     Löggjafarsviðið. Allnokkur sameiginleg úrlausnarefni á sviði löggjafar tengjast málefnum barna- og unglinga. Samstarf um þau er þegar hafið og þess er vænst að það eflist frekar. Skipaður hefur verið starfshópur sem fjallar um afbrotamál unglinga. Þar er skiptst á reynslu milli Norðurlanda og sjálfstjórnarsvæðanna. Með skipun hópsins varð til vettvangur þar sem hægt var að skiptast á reynslu varðandi refsiréttarlegar ráðstafanir og önnur viðurlög. Þar verður einnig fjallað um nýjar hugmyndir um fyrirbyggjandi aðgerðir. Í samstarfi við félagsmálasvið hefur löggjafarsviðið samið skýrslu og staðið fyrir námstefnu um kynferðislega misnotkun á börnum. Barátta gegn barnaklámi á Netinu hefur verið forgangs- og átaksverkefni undanfarin ár.
    Eftirfarandi tafla sýnir þá fjarlagaliði þar sem framlög í þágu barna og unglinga er að finna. Tilgreind fjárhæð er byggð á mati á væntanlegu umfangi starfsemi tengdri börnum og unglingum árið 2002 á grundvelli reynslu fyrri ára. Er því ekki um nákvæmt uppgjör að ræða.
    
Börn og unglingar (þús. d.kr.).

Fjárlagaliður Fjárlög
2002
Fjárlög
2001
Ráðstafað 2000
1-2203-2 Framlag til sérstakra menningarmála 2.000 900 0
1-2204-2 Ráðstöfunarfé – Menning 0 0 350
1-2205-1 Norræni menningarsjóðurinn 5.000 5.000 5.000
1-2210-2 Norrænt íþróttasamstarf 1.203 1.378 1.148
1-2212-2 Norræna æskulýðsnefndin 5.955 5.533 5.278
1-2214-2 Stjórnarnefndin (BUK) 5.896 5.775 6.042
1-2216-2 Börn og unglingar við árþúsundamót 0 - 1.043
1-2220-2 KM-hópurinn 1.600 0 0
1-2222-1 Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn 450 450 0
1-2224-2 Forgangsverkefni á sviði kvikmynda og fjölmiðla 0 1.600 2.329
1-2230-2 NORDBOK 500 50 500
1-2234-2 Menningarstarfsemi Sama 300
1-2255-3 Leiklist og dans 400 0 374
1-2256-3 NOMUS 1.500 1.000 1.464
1-2270-3 Norræna húsið í Reykjavík 500 200 980
1-2272-3 Norðurlandahúsið í Færeyjum 400 395 200
1-2274-3 Norræna stofnunin á Álandseyjum 350 500 131
1-2277-3 Norræna stofnunin á Grænlandi 500 1.000 783
1-2296-2 Menningarverkefni á erlendri grund 2.000 100 2.300
Samtals menning 28.254 24.181 27.922
1-2510-1 NSS 5.061 5.428 4.911
1-2512-1 NORDPLUS-junior 9.783 9.382 9.180
1-2514-1 Nemendaskipti á Vestur-Norðurlöndum 1.744 1.708 1.671
1-2516-1 NORDPLUS-mini 5.786 5.367 3.251
1-2542-2 NORDKURS 2.037 1.995 1.842
1-2543-1 NORDMÅL 2.500 3.500 2.300
1-2548-3 NIFIN 2.000 2.000 2.000
1-2552-2 IDUN 1.000 918 1.000
Samtals menntun og rannsóknir 29.911 30.298 26.155
2-6510-2 Verkefnafé – Landbúnaður og skógrækt 0 0 200
Samtals landbúnaður og skógrækt 0 0 200
2-6610-2 Verkefnafé – sjávarútvegur 450 600 75
Samtals sjávarútvegur 450 600 75
3-6710-2 Verkefnafé – neytendamál 450 300 600
Samtals neytendamál 450 300 600
3-4310-2 Verkefnafé – Heilbrigðis- og félagsmál 500 500 500
3-4384-3 NSH 1.500 1.500 1.500
3-4385-3 NUD 2.500 2.500 2.500
3-4386-3 NOPUS 300 200 200
Samtals heilbrigði og félagsmál 4.800 4.700 4.700
3-4620-2 Velferðarrannsóknir 2.000 2.000 0
Samtals velferð 2.000 2.000 0
2-0830-2 Lýðræðismál og stefna í málefnum íbúa 2.500 1.500 2.500
Samtals grannsvæðaáætlunin 2.500 1.500 2.500
Samtals Starfsemi í þágu barna og unglinga hjá Norrænu ráðherranefndinni 68.365 63.579 62.152

Aðgerðir á sviði vísinda.
    Á vísindasviði einkennist þróunin á alþjóðavettvangi af auknum fjárfestingum í rannsóknum, sem ætlað er að tryggja áframhaldandi þróun þekkingarsamfélaga. Slíkt leiðir til aukinnar samkeppni meðal háskóla, rannsóknarstofnana og vísindafyrirtækja um fjármagn og mannauð og um að ná til sín bestu námsmönnum, vísindamönnum og öðru starfsfólki. Á Evrópuvettvangi er verið að kanna möguleika á því að stofna evrópskt rannsóknarsvæði (European Research Area) og Norðurlöndin standa andspænis sama úrlausnarefni, þ.e.a.s. að þróa möguleika svæðisins hvað varðar framþróun á sviði vísinda.
    Norrænt samstarf um rannsóknir og menntun vísindamanna á því að beinast út á við og hafa það að markmiði að styrkja stöðu norrænna vísindamanna á alþjóðavettvangi. Það ætti að efla samkeppnismátt Norðurlanda til langframa að koma á laggirnar alþjóðlega viðurkenndum miðstöðvum fyrir afburða rannsóknir sem laða til sín vísindamenn í háum gæðaflokki utan úr heimi. Norrænt samstarf á sviði vísinda á að vera til þess fallið að auka verðmæti innlendra fjárfestinga. Slíku má hrinda í framkvæmd með samstarfi um betri menntun vísindamanna, sameiginlegri kennslu og lausn á vandamálum, betri norrænni nýtingu mannauðs og fjármagns og með því að styrkja samkeppnismátt Norðurlanda.
    
Norrænu fjárlögin.
    Norrænt vísinda- og þróunarsamstarf (FoU) býr við mjög takmörkuð fjárframlög sem nema minna en 1% af því heildarfjármagni sem varið er til rannsókna á Norðurlöndum. Áherslur ráðherranefndarinnar á rannsóknir verða því einkum að stuðla að prófun nýrra hugmynda og örvun norrænnar starfsemi sem fellur að og samrýmist forgangsverkefnum landanna.
    Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði FoU skiptist í neðangreind þrjú svið:
     –      tímabundnar rannsóknaráætlanir,
     –      norrænar rannsóknarstofnanir,
     –      sjóðir og styrkjafyrirkomulag (Norræna vísindaakademían, NorFA).
    Hlutverk Norræna vísindastefnuráðsins (FPR) er m.a. að vera til ráðgjafar og brydda upp á nýjum hugmyndum um rannsóknarsamstarf. Viðmiðunarreglur fyrir starfið eru gefnar í Norrænu vísindastefnuáætluninni sem var samþykkt árið 1999. Auk þess hefur FPR lagt fram skýrsluna ,„Norðurlönd – vettvangur fyrir afburða rannsóknir, 2000“ sem hefur að geyma greiningu á þeim úrlausnarefnum sem vænta má í framtíðinni.

Rannsóknaráætlanir 1999–2006 í þús. d.kr.

Rannsóknaráætlanir 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
Norðurlönd og Evrópa 10.093 5.936
Tengslanet um þjóðhætti 2.000 1.067 1.090
Norðurskauts-rannsóknir 500 6.120 6.255 6.386 5.728
Velferðarrannsóknir 1.637 4.476 4.063 4.301 6.000 7.000 7600
Kyn og ofbeldi 3.570 3.649 3.726 3.726 3.726
Tungutækni 3.570 4.875 4.977 4.977 4.977
Faraldsfræði 500 500 500 500 500
Rannsóknir í öryggismálum 1.533 1.565 1.565
Vestnorrænt hafveðurfar 2.555 2.609 2.609 2.609 2.609
Norræn öndvegissetur, tilraunaverkefni 3.063 3.063 3.063 3.063 3.063
Ný starfsemi 1.832 8.125 16.228 26.437
Samtals 14.230 24.739 24.020 27.127 30.000 30.000 30.000 30.000

Yfirlit yfir rannsóknaráætlanir sem eru komnar til framkvæmda eða eru áformaðar fyrir tímabilið 1999–2006 í þús. d.kr. á verði hvers tíma 1999–2001 og á verðlagi 2002 fyrir tímabilið 2002–2006. Við gerð skipulagsramma fyrir 2003–2006 er gengið út frá því að fjárlagarammi Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir 2002 verði óbreyttur á komandi árum.

Rannsóknaráætlanir.
    Norrænum rannsóknaráætlunum er hrint í framkvæmd á forgangssviðum þar sem Norðurlöndin hafa sérþekkingu og hagsmuna að gæta. Norrænu rannsóknaráætlununum er ætlað að stuðla að því að:
     –      efla myndun tengslaneta og hreyfanleika vísindamanna,
     –      tryggja skilvirkari nýtingu norrænna auðlinda,
     –      stuðla að verkaskiptingu og sérhæfingu á Norðurlöndum,
     –      efla norræna þátttöku í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi á sviði rannsókna og þróunar.
    Heildarfjárlög vegna þátttöku í fjármögnun á rannsóknaráætlununum er að fjárhæð 24,1 millj. d.kr. árið 2002, sjá töflu hér að framan. Auk þess eru til ráðstöfunar 3 millj. d.kr., vegna tilraunaverkefnis um Norræn öndvegissetur (norræn öndvegissetur fyrir afburða rannsóknir, e: Centres of Excellence).
    
Norrænar rannsóknarstofnanir.
    Norrænar rannsóknarstofnanir eru stofnanir sem búa yfir einstakri sérfræðiþekkingu á sviðum þar sem Norðurlönd telja samstarf vera hagkvæmt. Af 34 stofnunum ráðherranefndarinnar verja 14 stofnanir meira en 50% af fjárveitingunum í rannsóknir og nýsköpun, og 6 stofnanir verja milli 10 og 50% af fjárveitingum sínum í rannsóknir. Sem dæmi um hreinar rannsóknarstofnanir má nefna: Norræna stofnunin um Asíurannsóknir (NIAS), Norræna sjóréttarstofnunin og Norræna kjarnfræðistofnunin (NORDITA).
    
Norræna vísindaakademían (NorFA).
    Norræna vísindaakademían (NorFA) sér um þróun og skipulagningu samstarfsverkefna og styrkjafyrirkomulags þar sem megináherslan liggur á menntun vísindamanna og hreyfanleika vísindamanna.

Skipting fjárlaganna eftir meginsviðunum þrem.
(Vísað er í skýringarmyndir á bls. 77 og 78.)

Samstarf á Norðurlöndum.
    Á árinu 2002 er gert ráð fyrir að verja um 74% af fjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar til samstarfs innan Norðurlandanna. Aðeins er um 1% lækkun að ræða miðað við áætlaða skiptingu árið 2001. Einstakar minni háttar tilfærslur til hækkunar eru á sviðunum neytendamál og menning og minni háttar tilfærslur til lækkunar á sviðunum vinnumarkaður og vinnuumhverfi, landbúnaður og skógrækt, orkumál, svo og menntamál og rannsóknir.
    Eins og endranær eru það hins vegar menningarmál, menntamál og rannsóknir ásamt félags- og heilbrigðismálum, bygginga- og húsnæðismálum að viðbættum atvinnumálum sem standa fyrir stærstum hluta starfseminnar á meginsviðinu „Samstarf á Norðurlöndum“.

Samstarf við grannsvæði Norðurlanda.
    Samkvæmt fjárlögum verður um 144 millj. d.kr. varið í samstarf við grannsvæðin. Samkvæmt því verða heildarfjárveitingar til grannsvæðasamstarfsins um það bil eins og á árinu 2001.
    Fjárlögin vegna grannsvæðaáætlunarinnar sjálfrar hækka um hér um bil 11 millj. d.kr. vegna þess að fjárveitingarnar til Norræna verkefnaútflutningssjóðsins NOPEFs verða nú hluti af fjárveitingunum til grannsvæðasamstarfsins. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að sú tillaga að nýrri stefnu fyrir grannsvæðasamstarfið sem kynnt var í skýrslunni „Nær Norðurlöndum“ og staðfest var af samstarfsráðherrunum í tillögu ráðherranefndarinnar um endurskoðaða norræna stefnu fyrir grannsvæðasamstarfið í mars 2001, leiði af sér vissar tilfærslur í starfsáætlun ársins 2002 um samstarf við grannsvæðin. Á grundvelli nýju stefnunnar fyrir grannsvæðasamstarfið verður á fjárlagaárinu mótuð ný rammaáætlun fyrir tímabilið 2003–2005.
    
Evrópusamstarfið.
    Nokkur svið, þar sem norrænt samráð um Evrópumál, upplýsingamiðlun og sameiginleg starfsemi nýtur sérstaks forgangs, hafa lagt drög að verkefnum varðandi Evrópu og ESB/EES samstarfið. Þessi verkefni verða fjármögnuð af ráðstöfunarfé sviðanna og keppa við önnur forgangsverkefni um fjárveitingar af ráðstöfunarfé sviðanna.
    Á fjárlagaárinu 2002 er þess vænst að um 8% verði varið til ESB/EES-verkefna. Þetta ber að skoða í ljósi þeirrar niðurstöðu ársins 2000 varðandi skiptingu milli meginsviða sem sýnir að ráðherranefndin hefur í starfsemi sinni varið um 6% af fjármunum á fjárlögum til starfsemi sem tengist beint ESB/EES samstarfinu. Pólitískt samráð og upplýsingamiðlun einkennir hið óformlega norræna samstarf mun meira þegar ESB/EES meginsviðið er annars vegar en í samstarfi Norðurlandanna innbyrðis eða í samstarfi þeirra við grannsvæðin. Þetta endurspeglast síðan í fjárveitingunum. Varðandi fjárlögin 2002 skal einkum vakin athygli á matvæla-, dómsmála-, fíkniefna- og umhverfissviðunum þar sem fjármunir eru áætlaðir í sérstakar átaksaðgerðir. Á sviðum neytendamála, matvæla og dómsmála er síðan áætlað að verja 40% af almennum fjármunum á fjárlögum til Evrópusamstarfsins. Enn fremur ber að nefna 29% á sviði jafnréttismála og 25% á sviði fíkniefnamála. Hins vegar er staðan sú á sviði atvinnumála, byggingar- og húsnæðismála, samgöngumála, mennta- og vísindamála, svo og á sviði menningarmála, að í mesta lagi 6% verður varið í starfsemi vegna ESB/EES.