Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 802 — 393. mál.
Svar
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um útdrátt og endurgreiðslu húsbréfa.
1. Hversu mörg húsbréf hefur Íbúðalánasjóður innleyst og endurgreitt frá upphafi og hvað nema endurgreiðslurnar háum fjárhæðum?
Frá upphafi húsbréfakerfisins hafa 143.538 húsbréf verið innleyst. Heildarinnlausnarverð þeirra bréfa er 70.737.665.540 kr.
2. Hversu mörg útdregin húsbréf hafa ekki verið innleyst af eigendum frá stofnun húsbréfakerfisins, hve hátt hlutfall er það af útdregnum húsbréfum frá upphafi og hver er samanlögð fjárhæð þeirra, uppfærð til núgildandi verðlags?
Alls eru 2.204 húsbréf óinnleyst og er innlausnarverð þeirra samtals 794.674.481 kr. eða sem nemur 847.738.834 kr. á verðlagi nú í janúar 2002. Óinnleyst húsbréf eru 1,51% af heildarfjölda útdreginna bréfa en innlausnarverð þeirra er 1,1% af heildarinnlausnarverði útdreginna bréfa.
3. Hvernig hefur það fé verið varðveitt, hve há er ávöxtun þess, ef um hana er að ræða, og hvert hefur hún runnið?
Fjármagn þetta er hluti af lausu fé Íbúðalánasjóðs (áður Húsnæðisstofnunar ríkisins) og hefur verið ávaxtað með sama hætti og það. Þegar húsbréfakerfið var sett á laggirnar 1989 var Húsnæðisstofnun ríkisins skylduð til að geyma allt laust fé sitt hjá Seðlabanka Íslands og naut þar einungis sömu vaxta og almennt gerðist á innlánsreikningum viðskiptastofnana. Var sú ávöxtun yfirleitt þónokkuð undir verðbólgu hverju sinni. Með breytingalögum nr. 12/1994, á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 97/1993, var stofnuninni heimilað að varðveita fé sitt á annan tryggan hátt að fengnu samþykki félagsmálaráðherra. Á árinu 1996 heimilaði félagsmálaráðherra Húsnæðisstofnun ríkisins að ávaxta hluta af lausu fé sínu með kaupum á skammtímaríkisvíxlum og jókst þá ávöxtunin þónokkuð. Þegar Íbúðalánasjóður tók til starfa voru engin ákvæði í lögum um að sjóðnum væri skylt að geyma laust fé sitt á ákveðnum stað. Síðan hefur sjóðurinn leitast við að fá sem besta ávöxtun fyrir þetta fé hverju sinni. Ávöxtunin hefur verið nokkuð misjöfn og hefur farið eftir því til hversu langs tíma sjóðurinn hefur getað bundið féð og hvernig aðstæður hafa verið á markaði hverju sinni. Hefur ávöxtun fjárins verið sem hér segir: 1999 var ávöxtunin um 9,3% sem samsvarar um 3,5% raunvöxtum, 2000 var ávöxtunin um 11,7% sem samsvarar um 7,2% raunvöxtum og 2001 var ávöxtunin um 13,4% sem samsvarar um 4,4% raunvöxtum. Ávöxtun þessa fjár er hluti af tekjum Íbúðalánasjóðs og kemur fram í afkomu hans.
4. Hve mikið er vaxtatap þeirra sem ekki hafa innleyst útdregin húsbréf miðað við meðalávöxtun húsbréfa, sundurliðað eftir árum útdreginna húsbréfa og vaxtafært frá útdrætti til 1. janúar 2002?
Áætlað vaxtatap þeirra sem eiga þau húsbréf sem eru óinnleyst kemur fram í töflunni, að teknu tilliti til verðbóta.
| Innleysanlegt á árinu |
Áætlað vaxtatap, millj. kr. |
|
1991
|
0,005 |
|
1992
|
1,2 |
|
1993
|
2,7 |
|
1994
|
0,773 |
|
1995
|
1,4 |
|
1996
|
2,2 |
|
1997
|
21,5 |
|
1998
|
4,0 |
|
1999
|
5,5 |
|
2000
|
5,4 |
|
2001
|
9,8 |
|
Alls áætlað vaxtatap
|
54,478 |
5. Hversu hátt hlutfall útgefinna húsbréfa (utan rafrænna bréfa) er í vörslu fyrirtækja sem annast viðskipti með húsbréf?
Þar sem öll fyrirtæki sem annast viðskipti með húsbréf falla undir reglur um þagnarskyldu varðandi umsýslu með fjármuni viðskiptavina er ómögulegt að segja til um þetta. Leiða má þó að því líkur að stór hluti húsbréfanna sé í vörslu þeirra.
6. Hvernig hafa Íbúðalánasjóður eða ráðuneytið vakið athygli á útdregnum, óinnleystum húsbréfum og stendur til að bæta eða breyta aðferðum sem beitt hefur verið?
Kynning númera útdreginna bréfa hefur frá upphafi húsbréfakerfisins verið á þann veg að númerin eru auglýst þegar þau hafa verið dregin út. Þar að auki hafa númerin verið send í tölvutæku formi til allra fjármálafyrirtækja og reiknistofa, sem annast hafa tölvumál lífeyrissjóða, þannig að fyrirtækin hafa getað borið númer útdreginna bréfa vélrænt saman við númer þeirra bréfa sem þau hafa umsjón með. Enda hefur komið í ljós við nýlega rafvæðingu húsbréfaflokka sem gefnir voru út á pappír að mjög sjaldgæft er að óinnleyst útdregin húsbréf séu í umsjón fjármálafyrirtækja. Auk þessarar kynningar á útdregnum númerum húsbréfa eru númer óinnleystra áður útdreginna húsbréfa auglýst á sama tíma í viðkomandi flokkum. Númer allra óinnleystra áður útdreginna húsbréfa eru send í tölvutæku formi til fjármálafyrirtækja mánaðarlega þannig að hægt sé að bera númerin saman við bréf sem fyrirtækin hafa í vörslu sinni.
Fyrir utan þessa auglýsingu hefur Íbúðalánasjóður (áður Húsnæðisstofnun ríkisins) notað hvert tækifæri sem gefist hefur, bæði í viðtölum og blaðagreinum, til að vekja athygli á óinnleystum húsbréfum og hvernig menn geti nálgast upplýsingar um númer þessara bréfa og jafnframt hvaða þýðingu það hefur að menn vitji ekki útdreginna húsbréfa.
Í byrjun síðasta árs var tekin ákvörðun um að í framtíðinni yrðu allir flokkar húsbréfa gefnir út eignarskráðir í rafrænu formi. Jafnframt var ákveðið að gera rafræna eignarskrá þriggja stærstu flokka húsbréfa, sem áður höfðu verið gefnir út á pappír og eru þessir þrír flokkar um helmingur þeirra húsbréfa sem útgefin hafa verið frá upphafi. Það að húsbréf eru rafvædd hefur í för með sér að eigendur bréfanna eru þekktir og þar af leiðandi er andvirði bréfanna lagt beint inn á bankareikning viðkomandi eiganda en ef bankareikningurinn er ekki þekktur er eigendum sent bréf um útdráttinn með leiðbeiningum um það hvernig þeir geti nálgast féð. Þetta gerist án þess að eigendur bréfanna þurfi að hafa fyrir því að fylgjast með útdrættinum. Óinnleyst útdregin húsbréf ættu því varla að vera til í framtíðinni og ætti þeim að fækka verulega á næstunni.
Varðandi flokka sem ekki hefur verið ákveðið að taka í rafræna eignarskráningu er beðið með ákvörðun eftir áliti nefndar sem fjármálaráðherra skipaði en hlutverk hennar er að skoða form og tilhögun á verðbréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs með tilliti til endurskipulagningar á verðbréfaútgáfum ríkissjóðs. Í ljósi þess að lítil sem engin viðskipti eru með þessa flokka á verðbréfamarkaðnum þótti rétt að bíða með ákvörðun þar til álitið lægi fyrir, þannig að ekki væri lagt í kostnað sem síðan nýttist ekki ef hugmyndir nefndarinnar fela í sér einhverjar breytingar í verðbréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs.