Ferill 514. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 812 — 514. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um skipan matvælaeftirlits.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
Hefur verið skoðuð sérstaklega og metin hagkvæmni þess að flytja allt matvælaeftirlit á vettvangi til stofnana sveitarfélaganna en sameina stjórnsýsluþátt málaflokksins í eina matvælastofnun? Ef svo er, hver var niðurstaða þeirrar athugunar? Ef ekki, mun ráðherra í samstarfi við sveitarfélögin beita sér fyrir því að hagkvæmni slíks fyrirkomulags verði athuguð?