Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 840 — 464. mál.
Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um meint óeðlileg innherjaviðskipti.
1. Er ráðherra sammála Verðbréfaþingi Íslands um að ekki sé nauðsynlegt að aðhafast neitt varðandi kaup tíu stjórnenda Kaupþings hf. á hlutabréfum í Kaupþingi fyrir um 480 millj. kr. í tengslum við kaup fyrirtækisins á sænska verðbréfafyrirtækinu Aragon?
Viðskiptaráðherra hefur ekki aðrar upplýsingar um þetta mál en fram hafa komið opinberlega og getur ekki á grunni þeirra metið hvort um innherjasvik hafi verið að ræða. Ástæða er til að árétta að Verðbréfaþing Íslands hf. er hlutafélag sem hefur ekki einkarétt til kauphallarstarfsemi.
2. Hvaða rök lágu að baki því að Verðbréfaþing taldi ekki nauðsynlegt að gera athugasemdir við kaupin eða aðhafast neitt í málinu?
Viðskiptaráðherra hefur ekki aðrar upplýsingar um aðgerðir Verðbréfaþings í máli þessu en fram hafa komið opinberlega og hefur ekki heimild til að krefjast frekari upplýsinga.
3. Hvaða heimild hefur Verðbréfaþing Íslands til að láta fara fram sjálfstæða rannsókn þegar um meint óeðlileg fruminnherjaviðskipti er að ræða og hvaða úrræði hefur það þegar um slík tilvik er að ræða? Er eðlilegt að orð þeirra sem grunaðir eru um óeðlileg innherjaviðskipti séu forsenda þess að mál sé látið niður falla hjá Verðbréfaþingi?
Í 11. gr. laga nr. 34/1998, um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða, er hlutverk kauphallar afmarkað. Eitt af hlutverkum kauphallar er að hafa eftirlit með því að útgefendur skráðra verðbréfa og kauphallaraðilar starfi eftir lögum, reglum og samþykktum sem um kauphöllina gilda.
Verðbréfaþing hefur fyrst og fremst eftirlit með reglum sínum sem útgefendur og kauphallaraðilar (þingaðilar) hafa með samningum skuldbundið sig til að fylgja. Í 9. gr. laga nr. 34/1998 segir þó að kauphöllum beri að tilkynna það til Fjármálaeftirlitsins verði þær þess áskynja að lög um kauphallir eða önnur lög sem um starfsemina gilda, reglugerðir settar samkvæmt þeim eða reglur sem settar hafa verið og gilda fyrir kauphöll eða tilboðsmarkað hafi verið brotnar. Í frumvarpi því sem síðar varð að kauphallarlögum segir í athugasemdum við 9. gr.: „Ljóst er að starfsmenn í kauphöll og/eða skipulegum tilboðsmörkuðum kunna oft í starfi sínu að fá vitneskju eða grun um að markaðsaðili hafi brotið gildandi lög um viðskipti á skipulegum verðbréfamarkaði. Á þeim aðilum, sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt ákvæðum frumvarpsins, hvílir sú ótvíræða skylda að hafa vakandi auga með þeim viðskiptum sem þar fara fram. Hafi brot á reglum eða lögum verið framin fer það síðan eftir eðli og alvarleika brotsins hvort beitt verði viðurlögum á grundvelli þeirra ákvæða sem er að finna í frumvarpi þessu eða öðrum lögum, eftir því sem við getur átt. Jafnframt er rétt að í samþykktum og aðildarsamningum komi fram hvaða viðurlögum sé eðlilegt að beita til að knýja markaðsaðila til þess að fara eftir settum reglum ef þess gerist þörf. Einnig kann að vera að brot séu svo alvarleg að stjórn kauphallar ákveði að fella einhliða úr gildi aðildarsamning, sbr. heimild í 16. gr. frumvarpsins.“
Í þeim tilvikum sem Verðbréfaþing telur ástæðu til að skoðað verði hvort lagaákvæði um meðferð trúnaðarupplýsinga, viðskipti innherja og markaðsmisnotkun hafi verið brotin óskar það iðulega eftir upplýsingum frá kauphallaraðilum um aðila viðskipta. Ávallt er t.d. skoðað mögulegt samhengi á milli stórtíðinda á borð við fyrirhugaðan samruna við annað félag og hugsanlegra undangenginna innherjaviðskipta. Að þessum upplýsingum fengnum metur þingið hvort ástæða sé til að senda málið formlega til Fjármálaeftirlitsins. Í þeim tilvikum sem slík mál eru ekki send Fjármálaeftirlitinu formlega er eftirlitinu þó oftast gerð grein fyrir því að álitaefnið hafi vaknað. Slík upplýsingagjöf fer þá fram í gegnum síma eða á reglulegum fundum þeirra aðila innan Verðbréfaþings og Fjármálaeftirlits sem sinna markaðseftirliti.
Vakin skal athygli á því að Verðbréfaþing hefur ekki heimildir til þess að krefjast gagna frá öðrum en kauphallaraðilum og útgefendum og takmarkar það möguleika Verðbréfaþings á rannsókn mála er tengjast viðskiptum innherja. Skv. 6. mgr. 63. gr. laga um verðbréfaviðskipti, nr. 13/1996, getur Fjármálaeftirlitið hins vegar krafið einstaklinga og lögaðila um allar upplýsingar og gögn sem það telur nauðsynleg til rannsóknar máls, enda hafi það rökstudda ástæðu til að ætla að brotið hafi verið gegn ákvæðum um meðferð trúnaðarupplýsinga, viðskipti innherja og markaðsmisnotkun. Skv. 35. gr. laga um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða hefur Fjármálaeftirlitið sams konar heimildir vegna mála er tengjast yfirtökutilboðum og flöggun.
Fjármálaeftirlitið getur tekið mál til athugunar á verðbréfamarkaði að eigin frumkvæði. Að undanförnu hefur verið byggð upp markaðsvakt hjá Fjármálaeftirlitinu sem fylgist stöðugt með viðskiptum á markaði. Sakir nálægðar við markaðinn er Verðbréfaþingið hins vegar vel í stakk búið að fylgjast með einstökum viðskiptum og bregðast við ef grunsemdir vakna um að lög eða reglur á verðbréfamarkaði hafi verið brotin.
4. Hversu mikið hefur gengi hlutabréfa í Kaupþingi breyst frá því að fyrrgreindir stjórnendur fyrirtækisins áttu viðskiptin og hversu mikið hafa þeir hagnast á kaupunum miðað við það?
Þann 27. desember sl. birti Kaupþing hf. tilkynningu á Verðbréfaþingi Íslands þess efnis að 21. desember hefðu tíu stjórnendur hjá Kaupþingi keypt hlutabréf í félaginu að nafnvirði 3–8 millj. kr. hver á genginu 12,2. Gengi bréfa í Kaupþingi var 13,0 þann 12. febrúar, sem er 6,5% hækkun. Viðskiptaráðherra hefur ekki upplýsingar um skilmála samninganna sem Kaupþing gerði við starfsmenn sína og getur því ekki metið hvort viðkomandi starfsmenn hafi hagnast á kaupunum frá því að samningarnir voru gerðir.
5. Er ástæða til að herða enn frekar á ákvæðum laga um innherjaviðskipti að mati ráðherra?
Þróun skipulegs verðbréfamarkaðar hér á landi og aukin viðskipti með verðbréf hefur á undanförnum árum leitt til endurskoðunar á ákvæðum um innherjaviðskipti. Síðasta endurskoðunin var gerð með lögum nr. 163/2000, um breytingar á lögum um verðbréfaviðskipti. Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um verðbréfaviðskipti þar sem tekin eru af öll tvímæli um að gáleysi sé nægileg forsenda refsinæmis í innherjaviðskiptum.
Við skoðun á því hvort um ólögleg innherjaviðskipti sé að ræða verður ávallt að meta hvort fruminnherji hafi búið yfir trúnaðarupplýsingum þegar viðskiptin áttu sér stað. Þær upplýsingar sem fram hafa komið opinberlega um viðskipti stjórnenda hjá Kaupþingi benda ekki til þess að ákvæði laga hindri rannsókn málsins og telur ráðherra því ekki að málið kalli á endurskoðun laga.
6. Hversu mörg mál um meint óeðlileg innherjaviðskipti hafa Verðbréfaþing Íslands og Fjármálaeftirlitið tekið til athugunar á ári undanfarin þrjú ár og í hve mörgum tilvikum hefur málum verið vísað áfram til ríkislögreglustjóra vegna meintra brota á ákvæðum laga um innherjaviðskipti og fruminnherjaviðskipti? Svar óskast sundurgreint eftir atvinnugreinum.
Verðbréfaþing hefur sent mál tengd átta félögum til Fjármálaeftirlitsins með formlegum hætti frá 1. janúar 1999. Í allnokkrum fleiri málum hefur athygli Fjármálaeftirlitsins verið vakin á málum með óformlegum hætti.
Á sama tíma hefur Fjármálaeftirlitið tekið ellefu mál um meint innherjasvik til formlegrar rannsóknar. Markaðsvakt Fjármálaeftirlitsins hefur einnig athugað fleiri innherjaviðskipti óformlega og án þess að leita formlega eftir gögnum frá þeim sem athugun beindist að. Af ellefu málum hefur þremur verið vísað áfram til ríkislögreglustjóra. Tvö mál eru enn í vinnslu Fjármálaeftirlitsins. Af útgefendum verðbréfa sem rannsókn hefur beinst að eru fjórir í framleiðslu, fjórir í verslun, tveir í fjármálaþjónustu og einn í sjávarútvegi.