Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 849  —  544. mál.




Skýrsla



Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA fyrir árið 2001.

I. Inngangur.
    Þingmannanefnd Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) var stofnuð árið 1977 og hafði það meginhlutverk að vera ráðgefandi fyrir ráðherraráð EFTA. Aðild að EFTA eiga nú Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss og sitja þjóðkjörnir fulltrúar þessara ríkja í þingmannanefndinni. Umsvif og starfsemi nefndarinnar jukust til muna þegar viðræður hófust um Evrópska efnahagssvæðið (EES) árið 1989 og mikilvægi nefndarinnar jókst enn þegar EES-samningurinn tók gildi hinn 1. janúar 1994. Með gildistöku samningsins varð nefndin að formi til tvískipt þar eð Svisslendingar ákváðu að standa fyrir utan Evrópska efnahagssvæðið. Nefndin skiptist því annars vegar í þau fjögur ríki sem aðild eiga að EFTA og hins vegar í þau þrjú aðildarríki EFTA sem heyra undir EES. Þingmannanefnd EFTA fundar þó ávallt í einu lagi, en Svisslendingar sitja sem áheyrnarfulltrúar þegar málefni sem varða EES-hluta nefndarinnar eingöngu eru tekin fyrir. Í frásögnum hér á eftir verður fjallað um þessi tvö andlit þingmannanefndar EFTA sem eina heild.
    Eins og þing annarra aðildarríkja á Alþingi fimm fulltrúa í þingmannanefnd EFTA. Nefndin heldur fundi fjórum til fimm sinnum á ári auk þess sem hún fundar tvisvar á ári með ráðherraráði EFTA. Nefndin fjallar um starfsemi EFTA, málefni EES og Evrópusambandsins (ESB), gerð og framkvæmd fríverslunarsamninga og efnahags- og viðskiptamál almennt. Nefndin á einnig samstarf við ríki sem EFTA hefur gert fríverslunar- eða samstarfssamninga við (t.d. ríki í Mið- og Austur-Evrópu, á Miðjarðarhafssvæðinu og í Suður-Ameríku). Þessi þáttur í starfi EFTA eykst stöðugt og eru fríverslunarsamningar við fleiri lönd og svæði í bígerð.
    Framkvæmdastjórn þingmannanefndarinnar hittist fyrir hvern fund og undirbýr starf nefndarinnar, hefur umsjón með verkefnum og gefur álit á fjárhagsáætlun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) auk þess að fjalla um aðkallandi mál. Í framkvæmdastjórn mega sitja tveir fulltrúar frá hverju EFTA-ríki en einungis annar þeirra hefur atkvæðisrétt á fundum. Auk formanns hefur af hálfu Íslandsdeildar einn fulltrúi stjórnarandstöðu sótt fundi framkvæmdastjórnarinnar.
    Í samvinnu við Evrópuþingið vann þingmannanefnd EFTA ötullega að því á sínum tíma að í EES-samningnum væri gert ráð fyrir sameiginlegri þingmannanefnd EES (95. gr. samningsins). Í sameiginlegu þingmannanefnd EES eru nú 24 þingmenn, tólf frá Evrópuþinginu og tólf frá hinum þremur EES-aðildarríkjum EFTA (EFTA-hluti sameiginlegu þingmannanefndar EES). Af þessum tólf fulltrúum á Ísland fjóra, Noregur sex og Liechtenstein tvo. Þingmannanefndin á að fylgjast með framkvæmd og þróun EES-samningsins og gefa álit sitt á EES-málum. Nefndin fundar tvisvar á ári en framkvæmdastjórn hennar hittist á milli funda. Í framkvæmdastjórninni sitja sex fulltrúar, einn frá hverju EES-aðildarríki EFTA og þrír frá Evrópuþinginu. EFTA-hluti sameiginlegu þingmannanefndar EES og Evrópuþingið skiptast á um formennsku í nefndinni á milli ára.
    Þegar í upphafi hafði sameiginlega þingmannanefnd EES frumkvæði að því að semja skýrslur um málefni sem hún vildi skoða sérstaklega. Fyrir hverja skýrslugerð eru tilnefndir tveir framsögumenn (rapporteurs), einn úr hópi EFTA-þingmanna og einn úr hópi Evrópuþingmanna. Á grundvelli þessara skýrslna leggja þingmennirnir jafnframt fram drög að ályktunum sem bornar eru undir atkvæði. Ályktanirnar eru sendar til ráðherraráðs EES, sameiginlegu EES-nefndarinnar, Evrópunefnda þjóðþinga ESB, Evrópuþingsins og utanríkisviðskiptanefndar þess og þjóðþinga EFTA/EES-ríkja. Bæði ráðherraráðið og sameiginlega EES-nefndin gera athugasemdir við ályktanir þingmannanefndarinnar. Þingmannanefndin fylgist náið með því hvernig þau mál sem hún hefur tekið fyrir þróast og þegar hún telur að framvinda mála sé ófullnægjandi tekur hún málin upp aftur. Nefndin beinir einnig sjónum sínum sérstaklega að áhrifum þjóðþinga EFTA-ríkjanna á EES-samninginn og lagasetningu í tengslum við hann. Við gagnaöflun og undirbúningsvinnu leitar þingmannanefndin upplýsinga hjá ráðherraráði EFTA og embættismönnum stofnana EFTA og ESB og kemur skoðunum og áherslum þingmanna á framfæri við þessa aðila.

II. Skipan Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA.
    Árið 2001 skipuðu Íslandsdeildina Vilhjálmur Egilsson formaður, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Kristinn H. Gunnarsson varaformaður, þingflokki Framsóknarflokks, Össur Skarphéðinsson, þingflokki Samfylkingarinnar, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks og Ögmundur Jónasson, þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Varamenn voru Gunnar Birgisson, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Bryndís Hlöðversdóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, Katrín Fjeldsted, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Jón Kristjánsson, þingflokki Framsóknarflokks, og Kolbrún Halldórsdóttir, þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Í október sl. tók Magnús Stefánsson sæti Jóns Kristjánssonar sem varamaður. Fulltrúar Íslandsdeildarinnar í framkvæmdastjórn þingmannanefndar EFTA voru Vilhjálmur Egilsson og Össur Skarphéðinsson. Fulltrúi Íslandsdeildarinnar í framkvæmdastjórn þingmannanefndar EES var Vilhjálmur Egilsson. Jóhanna Helga Halldórsdóttir var ritari Íslandsdeildar til 31. mars, Belinda Theriault gegndi starfinu til 8. ágúst en þá tók Guðfríður Lilja Grétarsdóttir við.

III. Starfsemi þingmannanefndar EFTA og þingmannanefndar EES árið 2001.
    Starfsemi nefndanna var með reglulegum hætti á árinu. Þingmannanefnd EES hélt tvo fundi og þingmannanefnd EFTA þrjá auk tveggja funda með ráðherraráði EFTA. Þingmannanefnd EFTA hélt einnig fjölsótta ráðstefnu um stækkun ESB. Þá má geta þess að þingmannanefnd EFTA átti sérstakan fund með ráðgjafanefnd EFTA, en samstarf nefndanna hefur í seinni tíð verið að styrkjast. Vilhjálmur Egilsson gegndi formennsku bæði í þingmannanefnd EFTA og þingmannanefnd EES á árinu og í heild var Íslandsdeildin mjög virk í störfum beggja nefnda. Fulltrúar Íslandsdeildar báru upp flestar fyrirspurnir innan nefndanna og knúðu á um meiri og ítarlegri umræðu um ýmis mál.
    Fjórar skýrslur voru teknar til umfjöllunar á fundum þingmannanefndar EES og ályktanir samþykktar á grundvelli þeirra. Skýrslurnar fjölluðu um nefndafræði ESB, ársskýrslu um framkvæmd EES-samningsins árið 2000, breytingar á stjórnarháttum ESB og nýjar reglur í samkeppnismálum. Vilhjálmur Egilsson kynnti auk þess vinnuskýrslu um áhrif EMU á EFTA/EES þar sem hann fjallaði m.a. um áhrif þess á íslenska gengið ef nágrannalöndin tækju upp evruna. Vilhjálmur var einnig annar höfunda vinnuskýrslu um Nice-sáttmálann. Þorgerður K. Gunnarsdóttir var annar höfunda skýrslu um samkeppnismál og flutti framsögu um þau mál auk þess að svara fyrirspurnum.
    Venja er að Íslandsdeildin fundi með Evrópunefnd þjóðþings þess ríkis sem næst tekur við forustu innan ESB, en nýtt forusturíki tekur við á sex mánaða fresti. Á þessum fundum kynnir Íslandsdeildin helstu þætti EFTA/EES. Sérstök áhersla er lögð á stöðu Íslands og þær skuldbindingar sem ESB hefur gagnvart EFTA/EES-ríkjunum, auk þess sem rætt er um helstu áhersluatriði viðkomandi ríkja í væntanlegri forsætistíð þeirra. Á síðari hluta árs hélt Íslandsdeild því fund með fulltrúum Evrópunefndar spænska þingsins, en Spánverjar tóku við forsæti í ráðherraráði ESB í ársbyrjun 2002.

IV.    Nokkur málefni í EFTA- og EES-samstarfi sem Íslandsdeild vill vekja athygli á.
    Evrópusambandið hefur tekið miklum breytingum síðan EES-samningurinn var undirritaður og í hverjum mánuði bætast við nýjar ákvarðanir sem hafa bein áhrif á EES-löndin. Ör þróun hefur orðið á Rómarsamningnum (stofnsáttmála ESB) bæði með ríkjaráðstefnunni í Maastricht og Amsterdam og nú síðast í Nice. Margar þessara breytinga verða ekki hluti af EES-samningnum en hafa þrátt fyrir það mikil áhrif á framkvæmd hans. Þetta getur leitt til ósamræmis í túlkun reglna innan ESB annars vegar og EFTA/EES hins vegar.

a.    Stækkun ESB.
    Stækkun ESB kallar á gífurlegar breytingar í evrópsku samstarfi. Þrettán ríki hafa formlega verið viðurkennd sem umsóknarríki og sérhvert nýtt ESB-ríki verður einnig aðili að EES-samningnum. Mikilvægt er að EFTA/EES-ríkin fylgist vel með samningaviðræðunum, sérstaklega þegar samið verður um aðlögunartíma ríkjanna í einstaka málum þar sem laga þarf EES-samninginn að undanþágum og breytingum. Þingmannanefnd EFTA og Íslandsdeildin hafa ítrekað minnt á mikilvægi þess að EFTA/EES-ríkin séu upplýst um gang samningaviðræðna og séu höfð með í ráðum þegar samið verður um aðlögunartíma og önnur mikilvæg mál.
    Möguleikar EFTA-ríkjanna til að hafa áhrif á ákvarðanaferlið og stefnumótun innan ESB og EES minnka væntanlega við stækkun ESB. Kerfið verður enn þyngra í vöfum en áður og tilkall EFTA-ríkjanna til sérstöðu minnkar í samræmi við það. Fyrirsjáanlegt er að ESB fari fram á það við EFTA-ríkin að þau auki fjárframlög í þróunarsjóði og styrki innan vébanda sambandsins. Spurningin er þá hvort EFTA-ríkin gangi þegjandi og hljóðalaust að þessum kröfum ESB eða fari fram á eitthvað í staðinn.
    Í þessu samhengi er ekki úr vegi að minna á þau áhrif sem stækkun ESB hefur á fríverslun EFTA við önnur ríki. Tvíhliða fríverslunarsamningar EFTA við hin nýju aðildarríki munu falla úr gildi um leið og ríkin ganga í ESB. Við munu taka samningsskilyrði sem kalla á tolla fyrir sjávarafurðir frá EFTA vegna viðskipta við nýju aðildarríkin. Fulltrúar Íslandsdeildar hafa bent á að EFTA eigi að fara fram á bætur fyrir þetta. Auk þess hefur verið bent á að slíkar bætur ætti að reikna með hliðsjón af mikilvægi þeirra markaða og viðskipta sem EFTA verður af með niðurfellingu núgildandi samninga, en miklir vaxtarmöguleikar eru á þessum mörkuðum.
    Ef marka má orð sem dr. Gerhard Sabathil, sendiherra ESB á Íslandi og í Noregi, lét falla á ráðstefnu EFTA um stækkun ESB sl. haust mun ekki verða hlaupið að því fyrir EFTA að semja um slíkar bætur eða önnur bætt skilyrði EFTA gagnvart ESB. Sabathil taldi að EFTA-ríkin gætu ekki gert kröfur um bætur á grundvelli reglna um Alþjóðaviðskiptastofnunina. Sabathil lýsti EES-samningnum sem „biðsal“ sem við stækkun ESB yrði enn fjær rás viðburðanna í Evrópu en nú væri. EFTA-ríkin yrðu að gera sér grein fyrir því að annaðhvort væru þau hluti af ESB eða ekki og mun minna tillit væri tekið til hagsmuna þeirra sem væru í „biðsalnum“ heldur en þeirra ríkja sem komin væru inn fyrir dyr. Það virðist því ljóst að róður EFTA til að ná eyrum ESB reynist þungur.

b.    Áhrif EFTA/EES á ákvarðanatöku og nefndavinnu.
    Ísland innleiðir nú um 80% af gerðum ESB um innri markaðinn í lög sín. Vald Evrópuþingsins hefur aukist mjög síðan skrifað var undir EES-samninginn og fara framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþingið nú með sameiginlegt löggjafarvald í flestum málum. Þar eð EFTA/EES-ríkin hafa samkvæmt samningnum engan formlegan aðgang að Evrópuþinginu hefur áhrifavald EFTA við mótun ákvarðana minnkað enn frekar en áður. Á fundum þingmannanefnda EFTA og EES hefur verið bent á mikilvægi þess að lagagerðir og ákvæði sem eru í deiglunni innan ESB fái pólitíska umræðu í EFTA-ríkjunum áður en ákvarðanir eru endanlega teknar. Einnig hefur verið bent á mikilvægi þess að sérfræðingar EFTA fái meiri aðgang að nefndum og geti aflað sér upplýsinga um þau mál sem eru í deiglunni, ekki síst svo hægt sé að verja hagsmuni EFTA-ríkjanna í málum sem eru enn á mótunarstigi. Þá hefur líka verið bent á að EFTA-ríkin virðast ekki nýta sér til fulls þau tækifæri til nefndasetu sem EES-samningurinn gefur kost á. Á fundum þingmannanefnda EFTA og EES hefur það einnig verið rætt að hvetja eigi þegna EFTA/EES-landanna til að draga þingmenn til ábyrgðar fyrir þau margþættu áhrif sem þróun EES-samningsins hefur á þjóðlíf og lýðræði heima fyrir.

c.    Endurskoðun EES-samningsins.
    Miklar umræður spunnust á fundum þingmannanefndanna um hugsanlega endurskoðun og uppfærslu EES-samningsins og möguleika EFTA-ríkjanna til að tryggja betur aðkomu sína að ákvarðanaferli og nefndasetu innan ESB. Mikið var rætt um hversu langt slík endurskoðun ætti að ganga og fulltrúar þingmannanefndar EFTA báðu um svör við því hjá ráðherraráði EFTA hvenær skýr skilgreining á slíku ferli ætti að liggja fyrir. Spurt var hvenær vænta mætti samræmdrar afstöðu EFTA-ríkjanna um hvernig endurskoðun skyldi háttað, en nokkurs misræmis gætti í áherslum og afstöðu ríkjanna til málsins. Ráðherrar svöruðu því til að samræmd afstaða ríkjanna ætti að liggja fyrir snemma árs 2002. Um tíma leit út fyrir að ESB væri nokkuð jákvætt í afstöðu sinni til uppfærslu á samningnum, en nú virðist vilji til slíks takmarkaður.

d. Frammistöðumat Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
    Frammistöðumat ESA um innleiðingu gerða í EES-löndunum bar nokkuð á góma á fundum þingmannanefndanna beggja. Á fundum fyrri hluta árs kom fram gagnrýni á EFTA/EES-ríkin fyrir að verma síðustu sæti EES-landanna á lista ESA yfir frammistöðu við innleiðingu og upptöku gerða. Formaður hvatti til þess að EFTA-ríkin legðu metnað sinn í að vera á meðal efstu ríkja hvað þetta varðaði. Slíkt væri nauðsynlegt til að styrkja innri markaðinn og auk þess mikilvægt fyrir EFTA-ríkin til að standa betur að vígi við stækkun ESB. Við frammistöðumat ESA sem gefið var út í nóvember sl. höfðu bæði Noregur og Ísland tekið sig allverulega á og bætt stöðu sína til muna. Næsta frammistöðumat sker betur úr um hvernig túlka megi frammistöðu Íslands.

e. Þriðju ríki – þróun fríverslunarsamninga.
    Samskipti við þriðju ríki eru ekki hluti af EES-samningnum. Hins vegar hefur stefna EFTA verið sú að gera fríverslunarsamninga við sömu ríki og ESB hefur samið við og koma þannig í veg fyrir mismunun af hálfu þessara ríkja gagnvart fyrirtækjum í EFTA-ríkjunum. Í byrjun gerði EFTA fjölda samninga við ríki í Mið- og Austur-Evrópu og Miðjarðarhafsríki. Á sl. árum hefur EFTA verið að færa út kvíarnar til annarra heimsálfa og lauk m.a. samningi við Mexíkó árið 2000. Á liðnu ári lauk EFTA svo viðræðum um víðtækan samning við Singapúr. Þetta er fyrsti samningur sem EFTA gerir við ríki í Austur-Asíu og er þess vænst að skrifað verði undir á miðju þessu ári. Eftir miklar tafir virðast viðræður um fríverslunarsamning við Kanada vera á lokastigi og viðræður standa sömuleiðis yfir við Chile. Íslandsdeildin hefur bent á nauðsyn þess að uppfæra fríverslunarsamninga sem EFTA hefur gert og tryggja viðhald þeirra, enda sé slíkt nánast jafnmikilvægt og gerð nýrra samninga.

V.    Frásagnir af fundum þingmannanefndar EFTA og þingmannanefndar EES á árinu.
    Hér verður gerð stuttlega grein fyrir helstu málum sem komu til umræðu á fundum þingmannanefndar EFTA og þingmannanefndar EES á árinu.

61./29. fundur þingmannanefndar EFTA í Brussel 27. febrúar 2001.
    Framkvæmd Lissabon-áætlunarinnar var í brennidepli á fundinum sem og aðgangur EFTA-sérfræðinga að nefndum ESB, en hvort tveggja hefur mikil áhrif á EES-samstarfið. Sérfræðingar EFTA fullyrtu að það væri eingöngu undir pólitískum vilja komið hvort EFTA-ríkin nýttu sér þær nýju aðferðir og stefnubreytingar sem felast í Lissabon-áætlun ESB. Ef EFTA-ríkin gerðu það ekki væri hins vegar hætta á að misræmi mundi í auknum mæli fara að gæta á innri markaðnum. Spurt var hvaða viðbragða mætti vænta við nýlegri útilokun sérfræðinga EFTA frá einni af nefndum ESB og sagðist yfirstjórn EFTA vera að skoða málið og meta hvort ástæða væri til alvarlegra pólitískra viðbragða. Að auki var fjallað um 111. gr. EES-samningsins sem tekur til deilna um túlkun og notkun samningsins. Ef deilumál koma upp sem varða EFTA/EES-ríki skal ESA, og hugsanlega EFTA-dómstóllinn, úrskurða í málinu áður en 111. gr. samningsins er gerð virk. Í tveimur málum sem upp höfðu komið hafði framkvæmdastjórn ESB hins vegar hafið aðgerðir skv. 111. gr. áður en ESA hafði úrskurðað um málin. Var mál manna að hér væri framkvæmdastjórnin að skipta sér af störfum ESA og vanvirða það vald sem ESA hefur samkvæmt EES-samningnum.

16. fundur þingmannanefndar EES, 62./30. fundur þingmannanefndar EFTA og 24. fundur þingmannanefndar EFTA með ráðherraráði EFTA dagana 19.–22. júní 2001 í Vaduz, Liechtenstein.
    Á fundi þingmannanefndar EES voru tvær skýrslur teknar til umfjöllunar og ályktanir samþykktar á grundvelli þeirra. Annars vegar var tekin fyrir greinargerð um ársskýrslu sameiginlegu EES-nefndarinnar fyrir árið 2000 og hins vegar skýrsla um nefndafræði ESB. Vilhjálmur Egilsson benti á seinagang við lögleiðingu EES-gerða og sagði brýnt að EFTA-ríkin stæðu skil á sínu í þeim efnum og bættu stöðu sína í frammistöðumati ESA. Ögmundur Jónasson lagði áherslu á að þingmönnum yrði gert kleift að ræða lagagerðir á undirbúningsstigi og varaði við þeirri þróun að umræða færi þá fyrst fram eftir að gerðirnar væru komnar á lokastig úrvinnslu. Össur Skarphéðinsson ítrekaði nauðsyn þess að finna framtíðarlausn á þeim vanda sem blasti við vegna áhrifaleysis EFTA/EES-ríkjanna í nefndum ESB.
    Í ályktun fundarins var bent á að einsleitni innri markaðar EFTA/EES væri ábótavant og slíkt gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér þegar ESB stækkar. Þá voru EFTA/EES-ríkin eindregið hvött til að leita leiða til að verða virkari þátttakendur í ákvarðanatöku ESB og þá helst á frumstigi lagasetningarferlisins. Í ályktun um nefndafræði ESB ítrekaði fundurinn gagnsemi þess að EFTA/EES-ríki tækju virkan þátt í ESB-nefndum og hvatti eindregið til að fundin yrði lausn á aðild EFTA/EES að fleiri mikilvægum nefndum ESB.
    Þá voru tvær vinnuskýrslur formanns og varaformanns kynntar til umræðu. Vilhjálmur Egilsson talaði fyrir vinnuskýrslu um áhrif EMU á EFTA/EES og fjallaði m.a. um margþætt áhrif þess á íslenska gengið ef nágrannalöndin tækju upp evruna. Vinnuskýrsla formanns og varaformanns um Nice-sáttmálann var einnig mikið rædd. Vald Evrópuþings á sviði lagasetningar hefur aukist mjög síðan EES-samningurinn var gerður og fara framkvæmdastjórn og þingið nú með sameiginlegt löggjafarvald í flestum málum. Þar eð EFTA hefur engan formlegan aðgang að Evrópuþinginu minnkar áhrifavald EFTA-ríkja við mótun ákvarðana. Geta EFTA-ríkjanna til að koma að ákvarðana- og lagasetningarferlinu minnkar væntanlega enn til muna við stækkun ESB, sem og bolmagn þeirra til að æskja breytinga. Þorgerður K. Gunnarsdóttir vakti í þessu sambandi athygli á vaxandi samvinnu í dóms- og löggæslumálum innan ESB með stofnun „Eurojust“ og spurði hvort hugsanlegt væri að auka samvinnu við ESB á þessu sviði. Svör voru á þá leið að slíkt væri eftirsóknarvert en erfitt mundi reynast fyrir EFTA-ríki að koma formlega að slíku samstarfi.
    Á fundi þingmannanefndar EFTA var aðallega fjallað um stöðu fríverslunarsamninga við „þriðju ríki“ og nýjustu þróun í þeim efnum. Össur Skarphéðinsson hvatti til þess að fríverslunarsamningur við Kanada yrði afgreiddur sem allra fyrst og sagði samningaviðræður hafa dregist fram úr hófi. Hann velti jafnframt upp þeirri spurningu hvort EFTA ætti ekki í framtíðinni að efla betur samskipti sín við lönd í Asíu, t.d. Japan. Á fundi þingmannanefndar EFTA með ráðherraráði EFTA var fyrst og fremst rætt um vandkvæði við yfirtöku EES-gerða og Vilhjálmur Egilsson ítrekaði nauðsyn þess að taka á þessum vanda sem fyrst til að samræma og styrkja innri markaðinn. Ögmundur Jónasson taldi að hér væri ekki bara um tæknilega örðugleika að ræða heldur væri einnig mikilvægur pólitískur áherslumunur á milli EFTA/EES og ESB. Ögmundur sagði að ekki mætti ganga fram hjá lýðræðislegu valdi einstakra ríkja í þessum efnum. Vilhjálmur Egilsson lagði að lokum áherslu á aukna þekkingu á löndum sem sækja nú um aðild að ESB og sagði mikilvægt að nota embættismannafundi til að efna til pólitískrar umræðu þar sem þingmenn geta skipst á skoðunum um stöðu mála. Að lokum fögnuðu ráðherrar og þingmenn sögulegri undirritun nýs EFTA-sáttmála.

63./31. fundur þingmannanefndar EFTA og 17. fundur þingmannanefndar EES í Brussel 15.–16. október 2001.
    Á fundi þingmannanefndar EES var lögð áhersla á að tryggja betri aðgang EFTA/EES-ríkjanna að upplýsingum um þau mál sem eru í deiglunni innan ESB og varað var við því að ónægt upplýsingaflæði ylli töfum og vandkvæðum, m.a. varðandi innleiðingu EES-gerða. Ákvarðanaferli og nefndaskipan ESB var aftur gert að umtalsefni og Vilhjálmur Egilsson benti m.a. á að ákvarðanir ESB um ríkisstyrki til flugfélaga hefðu bein áhrif á EFTA/EES-löndin. EFTA/EES-ríkin hefðu hins vegar engin áhrif á ákvarðanaferlið innan ESB og finna þyrfti lausnir sem tryggðu betri aðgang að nefndum sambandsins.
    Mikið var rætt um hugsanlega uppfærslu á EES-samningnum og nauðsyn þess að huga að skilgreiningu á væntanlegu ferli breytinga. Össur Skarphéðinsson ýtti á um skýr svör í þessum efnum og spurði hvort einungis yrði farið fram á þröngar „tæknilegar“ eða víðtækar efnislegar breytingar á samningnum. Af svörum Gunnars Snorra Gunnarssonar, sendiherra og fulltrúa Sameiginlegu EES-nefndarinnar, mátti ráða að það væri langur listi breytinga sem EFTA/EES-löndin vildu gjarnan ná fram, ferlið væri hins vegar langt og flókið og erfitt að gefa skýr svör í bráð. Fulltrúi ESB, Matthias Brinkmann, lýsti því yfir að allar breytingar á samningnum, ef einhverjar yrðu, mundu einungis verða tæknilegar og ættu að lúta að því að tryggja betur einsleitni innri markaðarins. Hann sagði jafnframt að halda þyrfti EES-svæðinu betur lagalega samræmdu og sagði eftirliti með slíku ábótavant. Bernd Hammermann, fulltrúi ESA, gerði frammistöðumat ESA að umtalsefni og Vilhjálmur Egilsson benti í því sambandi á að EFTA/EES-ríkin virtust vera að taka sig á í þeim efnum. Þá vakti Össur Skarphéðinsson athygli á því að við stækkun ESB féllu úr gildi fríverslunarsamningar EFTA við hin nýju aðildarlönd ESB og meta þyrfti þær bætur sem EFTA fengi í staðinn. Hann sagði mikilvægt að meta slíkar bætur á grundvelli þeirra framtíðarmöguleika sem markaðirnir bjóða upp á en ekki bara út frá núgildandi viðskiptatölum. Ögmundur Jónasson gagnrýndi fulltrúa ESB fyrir að sýna EFTA/EES-löndunum vanvirðingu og hroka í tilsvörum. Hann ítrekaði að samningurinn væri lagaleg samþykkt tveggja aðila sem báðir hefðu skyldum að gegna hvor gagnvart öðrum. Fulltrúar ESB fjölluðu hins vegar á stundum um samninginn og EFTA/EES eins og um miskunnsemi af þeirra hálfu væri að ræða.
    Tvær skýrslur voru teknar til umfjöllunar og ályktanir samþykktar á grundvelli þeirra. Annars vegar var tekin fyrir greinargerð um nýja stjórnunarhætti innan ESB og hins vegar skýrsla um nýjar reglur í samkeppnismálum. Lýðræðislegri stjórnarhættir eru eitt af fjórum helstu markmiðum framkvæmdastjórnar ESB í fyrirhuguðum umbótum í innra starfi sambandsins. Lagt er til að ákvarðanaferlið verði mun opnara og lýðræðislegra, fleiri þegnar og samtök fengin til að vera þátttakendur, hlutur þjóðþinga aukinn og skilin skerpt á milli löggjafar- og framkvæmdarvaldsins. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk stjórnmálamanna í framtíðarþróun sambandsins og að hvetja þurfi þegna til að krefjast ábyrgðar af kjörnum fulltrúum sínum fyrir þær ákvarðanir sem ESB tekur. Í greinargerðinni eru EFTA-ríkin eindregið hvött til að auka þekkingu og skilning almennings, dómstóla og lögfræðinga á stofnunum, lögum og reglugerðum ESB.
    Þá var tekin fyrir skýrsla um nýjar samkeppnisreglur sem Þorgerður K. Gunnarsdóttir mælti fyrir. Hinar fyrirhuguðu breytingar í samkeppnismálum lúta einnig að lýðræðislegri stjórnarháttum, en gert er ráð fyrir að valddreifing verði nú mun meiri en áður. Hingað til hefur einungis framkvæmdastjórn ESB haft vald til að veita undanþágur frá þeim ákvæðum Evrópusáttmálans sem kveða á um bann við samningum og viðskiptaháttum sem gætu hindrað samkeppni. Með hinum nýju reglugerðum verður vald til að veita slíkar undanþágur ekki einungis í höndum framkvæmdastjórnarinnar heldur einnig hjá dómstólum og samkeppnisstofnunum hvers ríkis fyrir sig. Tilgangurinn með þessum breytingum er að auka enn frekar eftirlit með að samkeppnisreglur séu ekki brotnar, vernda hag neytenda, skapa jafnari leikreglur og draga úr óþarfa skriffinnsku í viðskiptum. Þorgerður benti sérstaklega á þær breytingar sem þetta hefur í för með sér fyrir EFTA/EES-löndin og mikilvægi þess að ríkin beiti sér fyrir aðgengi að hinu fyrirhugaða evrópska samstarfi samkeppnisstofnana. Kom fram að þarft væri að koma ákvæðum þessu að lútandi inn í EES-samninginn og einnig ætti að huga að hlutverki ESA. Í ályktunum fundarins er það brýnt fyrir EFTA/EES-löndum að innleiða hinar nýju samkeppnisreglur og ríkin eru jafnframt hvött til að taka fullan þátt í samstarfi á þessu sviði.
    Á fundi þingmannanefndar EFTA vakti framkvæmdastjóri EFTA, William Rossier, sérstaka athygli á hinum svokölluðu „mjúku“ leiðum samkomulags og ákvarðana sem ætlað er að koma í stað laga- og reglugerða ESB í tilteknum málum. Aðstoðarframkvæmdastjóri EFTA, Per Mannes, minnti á að EFTA/EES-ríkin hefðu engan aðgang að mikilvægum nefndum ESB og að laga- og reglugerðir sem tækju til verndunar gagnvart félagslegri mismunun stæðu einnig fyrir utan samninginn. Mannes taldi afar brýnt að leggja áherslu á að uppfæra EES-samninginn. Vilhjálmur Egilsson og Össur Skarphéðinsson ítrekuðu spurningar um skýra áætlun varðandi endurskoðun samningsins og skilgreiningar á þeim sviðum þar sem beðið yrði um breytingar.
    Geir Bekkevold, forstöðumaður hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel, hélt erindi þar sem hann fjallaði m.a. um innleiðingu gerða í EFTA/EES-ríkjunum. Hann lagði áherslu á að ríkin gætu, ef þau gengju nógu fast eftir því, haft meiri áhrif innan nefnda ESB en þau gerðu nú. Tækifærin sem fyrir lægju væru ekki fullnýtt. Hann kallaði á betra innra skipulag og pólitíska umræðu sem knýði á um að EFTA/EES-ríkin legðu sig meira fram um að hafa áhrif. Bekkevold sagði jafnframt að þróun innri markaðarins væri svo yfirgripsmikil og hefði svo víðtæk áhrif á líf þegna og þjóðríkja að ómögulegt væri að tala bara um tæknileg atriði í þessu sambandi. Hann sagði að nauðsynlegt væri að halda uppi mun sterkari pólitískum viðbrögðum og almennri umræðu um stöðu samningsins í þjóðríkjunum en gert hefði verið hingað til. Ef slíkt væri ekki gert væru embættismönnum EFTA-ríkjanna, að sögn Bekkevold, stöðugt færð völd í hendur sem einungis þjóðkjörnir fulltrúar ríkjanna ættu að hafa.

64./32. fundur þingmannanefndar EFTA og 25. fundur þingmannanefndar EFTA með ráðherraráði EFTA í Genf 13. desember 2001.
    Fund þingmannanefndar EFTA ávörpuðu Alain Frank, forstöðumaður hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), og Harald E. Nybölet, forstöðumaður hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel.
    Frank fjallaði um þróun mála hjá WTO á síðustu mánuðum og beindi sjónum sínum einkum að ráðherrastefnunni í Katar. Hann sagði það vera stefnu WTO að auka hlutverk þjóðþinga og þingmanna og gera stjórnarhætti stofnunarinnar lýðræðislegri og gagnsærri. Ögmundur Jónasson dró í efa lýðræðislega hætti WTO og benti í því sambandi á hversu mörgum verkalýðshreyfingum og félagasamtökum hefði verið neitað um þátttöku í Katar. Hann spurði einnig hvort einkavæðing á félagslegri þjónustu væri á dagskrá. Frank sagði það eingöngu hafa verið af praktískum ástæðum að ómögulegt reyndist að bjóða fleiri samtökum til Katar og allt hefði verið gert til að halda stöðugu upplýsingaflæði til allra aðila. Hann sagði WTO ekki hafa í hyggju að einkavæða félagslega þjónustu. Þorgerður K. Gunnarsdóttir spurði um aðild Kína að WTO og helstu breytingar sem svo stórvægilegt skref hefði í för með sér. Frank sagði ljóst að Kína yrði að opna markaði sína mun meira en nú væri og að í framhaldinu mundi reyna á hvort Kínverjar gætu raunverulega staðið við skuldbindingar sínar. Hann sagði að ýmsar raddir hefðu verið uppi um að ekki ætti að veita Kína aðild vegna brota á mannréttindum, en auðveldara mundi reynast að hafa áhrif á kínversku stjórnina í þessum efnum ef Kínverjar væru hluti af WTO.
    Harald Nybölet hélt tölu um hugsanlega uppfærslu EES-samningsins, viðræður við ESB og hina ýmsu vankanta á samningnum í núverandi mynd. Hann skoraði á þingmenn að knýja betur á um hver stefna EFTA-ráðherranna væri varðandi uppfærslu og hversu metnaðarfull takmörk EFTA/EES-ríkin ættu að setja sér varðandi hugsanlegar breytingar á samningnum. Hann sagðist ekki hafa trú á að ESB mundi snúa baki við EFTA og EES þótt fastar væri gengið á eftir breytingum. Ríkin ættu ekki að vera hrædd við að ræða samninginn með „opnum huga“, ESB hefði skýrum lagalegum skyldum að gegna gagnvart EFTA/EES-ríkjum. Það væri hins vegar nauðsynlegt að embættismönnum og öðrum yrði gert ljóst hver stefna EFTA væri og hvað t.d. „tæknileg uppfærsla“ á EES-samningnum fæli í sér. EFTA-ríkin hlytu öll að vilja einarða stefnumótun í svo áríðandi máli.
    Margar spurningar voru bornar upp eftir tölu Nybölet bæði frá norsku og íslensku þingmannanefndinni. Vilhjálmur Egilsson spurði Nybölet hvað hann teldi mögulegt að gera til að auka áhrif EFTA-ríkjanna á ákvarðanaferlið innan þess ramma sem þau ný byggju við. Hann ítrekaði að ESB færi líklega fram á að gjöld EFTA til þróunarsjóða ESB yrðu hækkuð til muna og spurði hvort EFTA væri nógu vel undirbúið til að biðja um eitthvað í staðinn. Nybölet sagði að EFTA-ríkin þyrftu að vera mun aðgangsharðari hvað varðaði aðgang að nefndum og annars konar upplýsingaflæði sem þau ættu rétt á en nýttu sér ekki til fullnustu. Hann sagði einnig að síðast þegar ESB hefði farið fram á fjárframlög til þróunarsjóða hefðu EFTA-ríkin einfaldlega gengið að því án þess að fara fram á nokkuð í kaupbæti. Spurningin væri hvort slíkt ætti að endurtaka sig. Össur Skarphéðinsson knúði á um ítarlegri lýsingu á mismunandi mati EFTA-ríkjanna á uppfærslu samningsins og bað um skýringar á því hvað stæði í vegi fyrir sameiginlegri afstöðu ríkjanna allra. Nybölet sagðist vilja fara varlega í að lýsa ólíkum áhersluatriðum en að almennt mætti segja að Íslendingar væru metnaðarfyllstir og vildu ganga lengst en Norðmenn vildu sem minnst hreyfa við málum.
    Fundur þingmannanefndar með ráðherraráði EFTA snerist fyrst og fremst um innleiðingu EES-gerða, stöðu EES-samningsins og stækkun ESB. Í byrjun kynnti Vilhjálmur Egilsson helstu umræðuatriði. Hann benti á að þrátt fyrir að EFTA/EES-löndin hefðu sótt í sig veðrið í síðasta frammistöðumati ESA þá væri innri markaðurinn enn nokkuð brotakenndur. Slíkt væri íþyngjandi fyrir alla viðskiptaaðila. Hann sagði einnig mikilvægt að ráðherrarnir gerðu skýra grein fyrir afstöðu sinni til hugsanlegrar uppfærslu samningsins og minnti á þau orð G. Sabathil, sendiherra ESB á Íslandi og í Noregi, sem hann lét falla á ráðstefnu EFTA um stækkun ESB, að EES væri „biðsalur“. Vilhjálmur sagði að nokkur málefni a.m.k. yrðu að vera sérstaklega skýr hvað uppfærslu varðaði, eins og fjárframlög EFTA til þróunarsjóða ESB, aðgangur að mörkuðum nýrra aðildarríkja og landbúnaðarmál. Hann minnti einnig á að fulltrúar ESB hefðu látið þau orð falla á fundum að engin ástæða væri til að EFTA yrði bættur sá skaði sem fælist í niðurfellingu núgildandi fríverslunarsamninga við væntanleg ný aðildarríki ESB.
    Formaður ráðherranefndarinnar, Gabrielsen, sagði að ástæður þess að EFTA-ríkin stæðu sig ekki betur í frammistöðumati ESA væru tæknilegar en ekki af pólitískum toga. Hvað uppfærslu varðaði sagði hann enn ekki ljóst hvernig hún væri skilgreind. Halldór Ásgrímsson sagði að tæknileg uppfærsla ætti a.m.k. að taka til nokkurra meginþátta. Þannig mætti nefna aukið vægi EFTA-ríkjanna við ákvarðanatöku og undirbúning lagasetningar, sem þörf væri á m.a. vegna breytinga á uppbyggingu og stjórn ESB frá því að samningurinn var fyrst samþykktur, aðgengi að mörkuðum nýrra aðildarríkja, breytingar á ýmiss konar þjónustu og nýjar gerðir um félagsleg málefni. Önnur erfiðari mál gætu hins vegar einnig verið á dagskrá, eins og bókun 9. Hann sagði nefndina enn ekki hafa tekið ákvörðun um hvort EFTA ætti að fara sameiginlega til umræðna við ESB eða hvort einstök lönd vildu gera sérsamninga. Össur Skarphéðinsson lýsti yfir vonbrigðum sínum með að engin sameiginleg niðurstaða lægi fyrir og knúði á um svör hvenær slíks væri að vænta. Össur sagði helsta styrk EFTA vera hina sameiginlegu rödd landanna allra og nú væri sérlega mikilvægt að knýja á um breytingar gagnvart ESB. Staða EFTA/EES-landanna væri stöðugt að veikjast og tími væri til að vera metnaðarfullir og kröfuharðir. Að lokum spurði Vilhjálmur Egilsson um stöðu nýja EFTA- sáttmálans í einstaka ríkjum. Allir ráðherrar sögðu málið vera í góðu horfi og engra vandkvæða að vænta í því sambandi.

VI.    Helstu verkefni þingmannanefndar EFTA á árinu 2002.
    Þingmannanefndin mun fylgjast vel með áframhaldandi þróun ESB, sérstaklega stækkunarferlinu, og þróun EES-samningsins. Nefndin mun einnig fylgjast grannt með framkvæmd Lissabon-áætlunar ESB og aðgerðum EFTA/EES-ríkjanna til að tengjast henni. Þá mun nefndin einnig knýja á um að EES-samningurinn verði sem best kynntur fyrir fulltrúum hinna nýju aðildarríkja ESB.

Alþingi, 21. febr. 2002.



Vilhjálmur Egilsson,


form.


Kristinn H. Gunnarsson,


varaform.


Ögmundur Jónasson.



Össur Skarphéðinsson.


Þorgerður K. Gunnarsdóttir.