Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 851 — 451. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um undirbúning og þátttöku Íslands í heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg.
1. Hvernig verður háttað þátttöku Íslands í heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg 2.–11. september nk.?
Fundurinn ber yfirskriftina Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (e. World Summit on Sustainable Development). Gert er ráð fyrir að forsætisráðherra og umhverfisráðherra sæki hann fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands. Ekki hefur þó verið gengið formlega frá ákvörðun um sendinefnd Íslands á þessu stigi.
2. Taka íslensk stjórnvöld þátt í undirbúningsfundunum (PrepCom) sem haldnir eru í aðdraganda ráðstefnunnar eða í samstarfi Evrópuríkja (ECE Regional meeting)?
Íslensk stjórnvöld hafa tekið virkan þátt í tveimur undirbúningsfundum (PrepCom) sem haldnir hafa verið hingað til fyrir leiðtogafundinn. Fulltrúar Íslands sóttu einnig svæðisbundinn undirbúningsfund ríkja Evrópu og Norður-Ameríku, sem haldinn var í Genf í október–nóvember 2001. Sett hefur verið á laggirnar sérstök undirbúningsnefnd til að sjá um og skipuleggja þátttöku íslenskra stjórnvalda á leiðtogafundinum og undirbúningsferli hans. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar þriggja ráðuneyta, forsætisráðuneytis, umhverfisráðuneytis og utanríkisráðuneytis. Fulltrúar sjávarútvegsráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis hafa einnig tekið þátt í þessu starfi. Íslensk stjórnvöld gengust ásamt Norðmönnum og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) fyrir fundi um skynsamlega nýtingu auðlinda sjávar, sem lið í undirbúningsferli fundarins í Jóhannesarborg í september 2001. Þeim fundi lauk með samþykkt svokallaðrar Reykjavíkur-yfirlýsingar um ábyrga nýtingu lifandi auðlinda hafsins. Reykjavíkur-yfirlýsingin var sérstaklega kynnt á öðrum undirbúningsfundi leiðtogafundarins í New York um mánaðamótin janúar–febrúar 2002 og er vísað til hennar í drögum að einu af meginskjölum fundarins í Jóhannesarborg.
3. Hafa íslensk stjórnvöld haft milligöngu um eða hvatt til þátttöku sveitarstjórna, frjálsra félagasamtaka eða samtaka atvinnulífsins í verkefnum sem tengjast ráðstefnunni eða undirbúningsferli hennar, svo sem veggspjaldasamkeppni barna og ritgerðasamkeppni um sýn til sjálfbærrar framtíðar?
Íslensk stjórnvöld hafa til þessa ekki haft milligöngu um þátttöku sveitarstjórna eða aðila utan stjórnkerfisins í verkefnum tengdum leiðtogafundinum í Jóhannesarborg eins og þeim sem um er getið í fyrirspurninni. Leiðtogafundurinn og undirbúningur hans hefur verið kynntur við nokkur tækifæri, m.a. á reglulegum samráðsfundum umhverfisráðuneytisins og félagasamtaka. Í samstarfsyfirlýsingu ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka er ákvæði um að ráðuneytið muni veita umhverfissamtökum fjárhagslegan stuðning til þátttöku í stefnumarkandi alþjóðlegum fundum um umhverfismál samkvæmt nánara samkomulagi. Verið er að ganga frá nánari útfærslu á fjárhagslegum stuðningi ráðuneytisins við félagasamtök.
4. Er að vænta skýrslu frá íslenskum stjórnvöldum fyrir ráðstefnuna um árangur af áætlun um sjálfbæra þróun sem þjóðir heims skuldbundu sig til að framkvæma samkvæmt sáttmálum heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó de Janeiro 1992?
Íslensk stjórnvöld hafa reglulega gefið skýrslu um framkvæmd Íslands á ákvæðum Dagskrár 21 til Nefndar Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (CSD) á undanförnum árum. Í tilefni leiðtogafundarins óskaði skrifstofa CSD eftir því að ríkin uppfærðu þessar upplýsingar, sem sumar voru fimm ára gamlar eða eldri, þannig að fyrir lægi yfirgripsmikið og uppfært yfirlit yfir framkvæmd Dagskrár 21 í hverju landi. Íslensk stjórnvöld sendu skrifstofunni þessar upplýsingar í nóvember 2001. Að auki vinna íslensk stjórnvöld að nýrri stefnumörkun um sjálfbæra þróun, sem ætlunin er að ljúka fyrir fundinn í Jóhannesarborg.
5. Hvers vænta íslensk stjórnvöld af ráðstefnunni í Jóhannesarborg?
Heimsráðstefna Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó árið 1992 markaði tímamót. Áherslan í Jóhannesarborg verður einkum á að efla Ríó-ferlið og sýna pólitískan vilja til þess að hrinda nýjum verkefnum í framkvæmd og beina kröftunum að nokkrum forgangsverkefnum í ljósi þeirra breytinga sem átt hafa sér stað í heiminum frá Ríó-ráðstefnunni. Setja á meginniðurstöður fundarins í Jóhannesarborg fram í þremur skjölum: 1. pólitískri yfirlýsingu leiðtoganna, 2. skjali um eflingu á framkvæmd Dagskrár 21, 3. lista yfir ný fjölþjóðleg samvinnuverkefni sem einstök ríki og stofnanir skuldbinda sig til þess að vinna að á næstu árum. Einnig er búist við því að fundurinn skoði alþjóðlegt stjórnkerfi umhverfismála og sjálfbærrar þróunar og leggi til umbætur á því. Á undirbúningsfundum hafa fulltrúar ríkja heims lagt áherslu á að ekki sé ástæða til þess að endurskoða samþykktir Ríó-ráðstefnunnar, heldur eigi fremur að efla framkvæmd þeirra og leggja línurnar um forgangsmál á næsta áratug í ljósi reynslunnar.
Íslensk stjórnvöld telja að fundurinn í Jóhannesarborg sé ákaflega mikilvægur í því skyni að efla framkvæmd sjálfbærrar þróunar á heimsvísu. Margt hefur áunnist frá því í Ríó, ekki síst það að lagður hefur verið grunnur að yfirgripsmikilli samvinnu þjóða heims í glímunni við hnattræn umhverfisvandamál, svo sem á sviði loftslagsbreytinga, líffræðilegrar fjölbreytni og mengunar hafsins. Á síðastnefnda sviðinu hafa á undanförnum árum verið samþykktir samningar og framkvæmdaáætlanir sem íslensk stjórnvöld hafa lengi barist fyrir. Nægir þar að nefna Stokkhólmssamninginn um bann við losun þrávirkra lífrænna efna og Washington-áætlunina um aðgerðir gegn mengun hafsins frá landi. Það háir þó þessum og öðrum samningum á sviði umhverfismála að ónógt fjármagn er veitt til þess að hrinda þeim í framkvæmd. Fundurinn í Jóhannesarborg getur ráðið miklu um það hvort framkvæmdir á þessum sviðum verða efldar eða ekki og hvort baráttan gegn fátækt í heiminum verður efld, en sú barátta er óaðskiljanleg baráttunni fyrir verndun náttúrunnar og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Meðal þeirra mála sem íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á í undirbúningsferlinu er skynsamleg nýting lifandi auðlinda hafsins, m.a. sem liður í baráttu gegn fátækt. Einnig hafa íslensk stjórnvöld lagt til að gerð verði heildarúttekt á mengun hafsins og afleiðingum hennar. Þá hafa fulltrúar Íslands lagt áherslu á mikilvægi endurnýjanlegra orkugjafa í því skyni að aftengja efnahagsvöxt og neikvæð umhverfisáhrif og að veita hreinni og öruggri orku til þeirra tveggja milljarða manna sem ekki búa við rafmagn eða aðra nútímaorkuveitu.