Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 879 — 559. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um reglur um úthlutun „byggðakvóta“.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hefur ráðherra sett reglur um framkvæmd ákvæða 9. gr. laga um stjórn fiskveiða, sbr. lög nr. 129 20. desember 2001, um sérstaka úthlutun til krókaaflamarksbáta ,,sem gerðir eru út frá sjávarbyggðum sem að verulegu leyti eru háðar veiðum krókaaflamarksbáta“?
2. Hverjar eru þær reglur, hve margir bátar fá slíka viðbótarúthlutun, hvaðan eru þeir gerðir út og hvar eru þeir skráðir?
3. Hve mikið kemur í hlut þeirra sem mest fá?
4. Hvaða skilyrði setur ráðherra fyrir framsali aflamarks sem úthlutað er á þennan hátt?
Skriflegt svar óskast.