Ferill 568. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 890 — 568. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um kennslu á réttargeðdeildinni að Sogni.
Frá Sigríði Jóhannesdóttur.
1. Mun ráðherra beita sér fyrir því að kennsla geti hafist að nýju nú þegar á réttargeðdeildinni að Sogni?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að gert verði ráð fyrir því í fjárlögum fyrir árið 2003 að kennsla á vegum Fjölbrautaskóla Suðurlands geti farið fram á réttargeðdeildinni að Sogni?