Ferill 571. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 894 — 571. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um fjarskiptasamband á Hólmavík og í nærsveitum.
Frá Jóni Bjarnasyni.
1. Hyggst ráðherra bregðast við vanda sem upp er kominn í öryggismálum á Hólmavík og ef til vill víðar þar sem boðkerfið sem áður var notað til boðskipta, t.d. milli lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita og sjúkrabíla, hefur verið lagt niður án þess að fullnægjandi eða aukið öryggi í boðsendingum komi í staðinn?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að SMS-boðkerfið verði einnig sett inn á NMT-fjarskiptakerfið?
3. Hverjar eru áætlanir um að styrkja GSM-símasambandið norður Strandir, um Hólmavík, Drangsnes og yfir Steingrímsfjarðarheiði?