Ferill 572. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 899  —  572. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um útboð og samninga um verkefni við vegagerð.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Hve mörg verkefni í vegagerð voru unnin á vegum Vegagerðar ríkisins síðustu þrjú ár og það sem af er þessu ári og hver var heildarkostnaður þeirra, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?
     2.      Hve mörg verkefni voru boðin út í opnum útboðum á þessum tíma og hver var heildarfjárhæð þeirra, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?
     3.      Hve mörg verkefni voru boðin út í lokuðum útboðum á sama tíma og hvaða aðilar fengu að taka þátt í þeim, hverjir fengu slík verkefni eftir lokuð útboð og hverjar voru upphæðir þeirra samninga sem gerðir voru, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?
     4.      Hvaða reglur gilda hjá Vegagerðinni þegar verktakar eru valdir til að taka þátt í lokuðu útboði eða beinum samningum um verk?
     5.      Um hve mörg verkefni sem kostuðu 1 millj. kr. eða meira var samið án útboðs á umræddu tímabili, við hvaða aðila var samið um 1 millj. kr. eða meira og hver var fjárhæðin, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?
     6.      Hvað er lagt til grundvallar við ákvörðun um hvort útboð eru höfð opin eða lokuð eða samið er beint við verktaka?


Skriflegt svar óskast.