Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 900  —  573. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um takmarkanir á tóbaksreykingum.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Var heilbrigðisnefndum falið að gera sérstakt átak eftir 1. ágúst 2001 til að framfylgja ákvæðum II. kafla laga um tóbaksvarnir um merkingar, auglýsingar og sölu tóbaks?
     2.      Var heilbrigðisnefndum falið að gera sérstakt átak skv. III. kafla sömu laga um takmörkun og verndun gegn tóbaksreyk?
     3.      Hve hátt hlutfall er þetta eftirlit af venjubundnum eftirlitsstörfum heilbrigðisfulltrúanna?
     4.      Hefur heilbrigðisfulltrúum verið fjölgað vegna þessa eftirlits?
     5.      Hefur verið gerð úttekt á veitinga- og skemmtistöðum og öðru húsnæði sem lögin taka til? Ef ekki, stendur til að gera slíka úttekt?
     6.      Hve margir staðir falla undir eftirlitsskyldu heilbrigðisnefndanna?
     7.      Hve margir staðir hafa staðist úttekt heilbrigðisfulltrúa?
     8.      Hvaða athugasemdir eru algengastar
                  a.      hjá heilbrigðisfulltrúum,
                  b.      frá neytendum?
     9.      Hefur komið til kæru vegna brota á þeim ákvæðum laganna sem snúa að hollustuvernd?


Skriflegt svar óskast.
















Prentað upp.