Ferill 610. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 957  —  610. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um skipan nefndar um verkaskiptingu hins opinbera og einkaaðila.

Frá Ögmundi Jónassyni.



    Hvað hefur verið gert til þess að hrinda í framkvæmd þingsályktun Alþingis frá 9. maí 2000 um skipan nefndar um verkaskiptingu hins opinbera og einkaaðila „sem í verði m.a. fulltrúar allra þingflokka, sem geri samanburð á þróun og reynslu af breytingum í tengslum við einkavæðingu og einkaframkvæmd og fjalli um framtíðarkosti í þeim efnum“?