Ferill 617. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 969 — 617. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um lyfjakostnað lífeyrisþega.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hver var meðallyfjakostnaður árin 2000 og 2001 hjá
a. ellilífeyrisþegum,
b. örorkulífeyrisþegum?
Óskað er eftir upplýsingum um allan lyfjakostnað, bæði fyrir lyf sem Tryggingastofnun tekur þátt í að greiða og lyf sem lífeyrisþegar greiða að fullu.
2. Hversu mikinn afslátt fá lífeyrisþegar hjá lyfjaverslunum að meðaltali?