Ferill 625. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 985 — 625. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um val kvenna við fæðingar.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur og Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hvaða möguleika sér ráðherra til að auka val kvenna á fæðingaraðstæðum?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir fleiri möguleikum, t.d. með áherslu á heimafæðingar og fæðingar á minni stofnunum utan hátæknisjúkrahúsa?