Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 991  —  428. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um brottfall l. um kirkjubyggingasjóð, nr. 21 18. maí 1981.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Björgu Thorarensen og Hjalta Zóphóníasson frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti, Þórð Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sigríði Dögg Geirsdóttur, Þorvald Karl Helgason og Guðmund Þór Guðmundsson frá Biskupsstofu, Þórstein Ragnarsson frá Kirkjugarðasambandi Íslands, Valdimar Einarsson frá Rannsóknastofu Háskóla Íslands í meinafræði, Hjört Magna Jóhannsson frá Fríkirkjunni í Reykjavík, Ólaf Jóhannsson frá Prestafélagi Íslands og Sigurð Guðmundsson landlækni.
    Umsagnir um málið bárust frá Biskupsstofu, leikmannaráði þjóðkirkjunnar og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Með frumvarpinu er lagt til að kirkjubyggingasjóður verði lagður niður og renni í Jöfnunarsjóð sókna. Fé hefur ekki verið veitt til sjóðsins í fjárlögum um árabil og hefur hann því ekki sinnt hlutverki sínu undanfarin ár. Frumvarpið felur í sér einföldun og hagræðingu í stjórnsýslu kirkjunnar og leggur nefndin því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Katrín Fjeldsted og Lúðvík Bergvinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Þuríður Backman sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 15. mars 2002.



Þorgerður K. Gunnarsdóttir,


form., frsm.


Jónína Bjartmarz.


Guðrún Ögmundsdóttir.



Ásta Möller.


Guðjón A. Kristjánsson.


Kjartan Ólafsson.



Ólafur Örn Haraldsson.