Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 999  —  476. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um flutning fjarvinnsluverkefna og starfa út á land.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða fjarvinnsluverkefni og hversu mörg störf á vegum ráðuneytisins og stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins, sem heyra undir ráðuneytið, voru flutt út á land árið 2001, sundurliðað eftir ráðuneytinu, stofnunum og fyrirtækjum, svo og eftir stöðum sem verkefnin og störfin voru flutt til? Enn fremur er óskað eftir skilgreiningu á umræddum störfum.

Íbúðalánasjóður.
    Í samræmi við stefnu stjórnvalda um fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni var sett upp starfsstöð á Sauðárkróki við stofnun Íbúðalánasjóðs. Þar starfa nú um 12 manns í 10 stöðugildum.
    Árið 2001 bættist eitt stöðugildi í umsýslu með verðbréf við þau störf sem fyrir voru. Til viðbótar var þjónustuver Íbúðalánasjóðs flutt til Sauðárkróks haustið 2001 og við það fjölgaði stöðugildum á Sauðárkróki um eitt. Öll símsvörun Íbúðalánasjóðs er nú á Sauðárkróki.

Vinnumálastofnun.
    Á síðasta ári var bætt við starfsmanni í fullu starfi hjá Vinnumálastofnun í Vestmannaeyjum til að styrkja þjónustuna við það byggðarlag. Í sama tilgangi var starfshlutfall starfsmanns á Húsavík aukið úr hálfu starfi í fullt.
    Vinnumálastofnun er að gera tilraun með að flytja símavörslu stofnunarinnar til Stöðvarfjarðar. Það er rúmlega eitt starf. Ráðgert var að af þessu yrði 1. mars 2002 og ef vel gengur verður þetta fyrirkomulag notað til frambúðar. Í febrúar var unnið að því að leysa tæknileg vandamál en líkur á að úr leystist.
    Stofnunin hefur leitast við að nota þjónustu á landsbyggðinni ef hún er í boði. M.a. hefur grafískur hönnuður á Flateyri hannað kynningarveggspjöld fyrir stofnunina auk þess sem bæklingar stofnunarinnar hafa verið unnir og prentaðir á Akureyri og fréttabréfið sömuleiðis.
    Af um 80 starfsmönnum stofnunarinnar eru 35 á landsbyggðinni á tíu skrifstofum.

Vinnueftirlitið.
    Á vegum Vinnueftirlitsins fjölgaði stöðugildum á landsbyggðinni um tæp tvö árið 2001. Eitt stöðugildi bættist við í Vestfjarðaumdæmi, starf eftirlitsmanns með vélum og tækjum. Á þremur eftirlitssvæðum á landbyggðinni var hálft stöðugildi gert að 75% stöðu. Aukin umsvif í umdæmum úti á landi hafa einkum verið vegna vélaeftirlits.
    Hjá Vinnueftirlitinu er nú til skoðunar sá möguleiki að opna fjarvinnslustöð á landsbyggðinni til að annast skráningu og tölfræðiúrvinnslu vegna vinnuslysa og atvinnusjúkdóma. Þar yrðu tvö stöðugildi, þar af eitt nýtt.

Jafnréttisstofa.
    Eins og kunnugt er var ákveðið árið 2000 að Jafnréttisstofa skyldi hafa aðsetur á Akureyri og tók hún til starfa 1. september 2000. Þar eru nú 4,5 stöðugildi og við bættist 1/ 2 stöðugildi lögfræðings um síðustu áramót.

Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum.
    Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum var formlega opnað 30. júlí 2001 af félagsmálaráðherra. Þar starfar einn starfsmaður. Hlutverk setursins er fjölbreytt, meðal annars á það að greiða fyrir samskiptum Íslendinga og erlendra ríkisborgara, vinna með sveitarstjórnum að eflingu þjónustu fyrir erlenda ríkisborgara, fyrirbyggja vandamál í samskiptum fólks af margvíslegum menningarsvæðum og auðvelda erlendu fólki að aðlagast íslensku þjóðfélagi.

Svæðisskrifstofur.
    Starfsmannafjöldi svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á landsbyggðinni breyttist ekki árið 2001. Þó er vert að geta þess að á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, í Austur-Skaftafellssýslu og Vestmannaeyjum var rekstur málaflokksins alfarið í höndum sveitarfélaga.

Önnur verkefni.
    Á vegum Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri var unnið að því 2001 að athuga áhrif sameiningar sveitarfélaga síðastliðin ár. Hér er um tímabundið samstarfsverkefni félagsmálaráðuneytisins og Rannsóknarstofnunarinnar að ræða og verða niðurstöður kunngjörðar seinni hlutann í mars.