Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1032  —  600. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 84/1997, um búnaðargjald, með síðari breytingum.

Frá landbúnaðarnefnd.



1.    Við bætist ný grein, 1. gr., svohljóðandi:
             Í stað „2,55%“ í 1. gr. laganna kemur: 2,00%.
2.    Við 3. gr. er verði 4. gr. Greinin orðist svo:
             Í stað „2,65%“ í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: 2,00%.
3.    Við 4. gr. er verði 5. gr. Greinin orðist svo:
              Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 2. og 3. gr. koma til framkvæmda við álagningu búnaðargjalds á árinu 2003 vegna búvöruframleiðslu á árinu 2002. Ákvæði 1. og 4. gr. koma til framkvæmda við ákvörðun fyrirframgreiðslu á árinu 2003 og við álagningu búvörugjalds á árinu 2004 vegna búvöruframleiðslu á árinu 2003. Við ákvörðun fyrirframgreiðslu búvörugjalds á árinu 2002 skal innheimta 2,55% af gjaldstofni.