Ferill 659. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1069  —  659. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um starfsmannafjölda hjá Fasteignamati ríkisins og Landskrá fasteigna.

Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.



     1.      Hver var þróun starfsmannafjölda og stöðugilda hjá Fasteignamati ríkisins sl. fimm ár og hver var þróun starfsmannafjölda á umdæmisskrifstofum Fasteignamats ríkisins á sama tíma?
     2.      Hver er menntun þeirra sem hafa verið ráðnir hjá Fasteignamati ríkisins sl. fimm ár?
     3.      Hvernig er skipurit Fasteignamats ríkisins og hvaða breytingar hafa orðið á því að undanförnu?
     4.      Hverjar voru fjárfestingar í húsnæði og búnaði hjá Fasteignamati ríkisins sl. fimm ár?
     5.      Hvað líður flutningi Landskrár fasteigna til Akureyrar?
     6.      Hversu margir starfa hjá Landskrá fasteigna í Reykjavík?


Skriflegt svar óskast.