Ferill 613. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1079  —  613. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartardóttur um sauðfjárframleiðslu.

     1.      Hver var fjöldi ásettra líflamba hvert haust árin 1998–2001?

Líflömb 1998–2001.


Ár Fjöldi
1998 78.400
1999 89.230
2000 80.289
2001 84.403 *
*     Tölur vantar úr Garðabæ, Reykjavík og Bessastaðahreppi.

     2.      Hvaða fjármunum hefur ríkissjóður varið til leigu eða uppkaupa á búmarki, fullvirðisrétti og greiðslumarki í sauðfé á árunum 1990–94, árunum 1995–99 og árlega síðan?
    Eftirfarandi tölur sýna fjármuni sem var ráðstafað úr ríkissjóði til uppkaupa. Fjárhæðir eru allar uppfærðar til verðlags í janúar 2002 með vísitölu neysluverðs í janúar 2002 frá ársmeðaltali vísitölu neysluverðs fyrir viðkomandi ár.


Fjármunir til uppkaupa, 1990–2002.

Ár

Þús. kr.

1990–94
3.210.363
1995–99 594.010
2000 8.715
2001 871.380
2002 166.658
Alls á tímabilinu 4.851.126

    Fjárhæðir eru skráðar á því ári sem þær eru greiddar út. Greiðslur árin 2001 og 2002 eru vegna samninga sem gerðir voru seinni hluta árs 2000 og 2001 en komu til greiðslu í janúar árið eftir.

     3.      Liggja fyrir upplýsingar um heimaslátrun sauðfjárframleiðenda, m.a. um gærusölu bænda umfram gærusölu frá sláturleyfishöfum?
    Gögnum hefur ekki verið safnað. Upplýsingar um heimanot bænda hafa byggst á meðalfallþunga og fjárfjölda hverju sinni.