Ferill 673. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1089  —  673. mál.




Frumvarp til laga



um jöfnun kostnaðar við flutning og dreifingu raforku.

(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


1. gr.
Markmið.

    Markmið laga þessara er að stuðla að jöfnun kostnaðar við flutning og dreifingu raforku til almennra notenda.

2. gr.
Stjórnsýsla.

    Iðnaðarráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Hann getur í reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laganna.

3. gr.
Gjaldskrársvæði
.

    Gjaldskrársvæði er svæði þar sem sama gjaldskrá gildir fyrir dreifingu raforku samkvæmt ákvörðun ráðherra á grundvelli raforkulaga.

4. gr.
Skilyrði fyrir lækkun kostnaðar.

    Ef ákveðið er í fjárlögum að ráðstafa fé til að lækka kostnað almennra notenda vegna flutnings og dreifingar raforku skal hann greiddur niður á þeim gjaldskrársvæðum þar sem meðalkostnaður notenda í kr./kWst er umfram viðmiðunarmörk sem iðnaðarráðherra setur í reglugerð. Þeirri fjárhæð sem ákveðin er í fjárlögum skal skipt hlutfallslega niður á gjaldskrársvæði miðað við kostnað umfram þessi mörk.

5. gr.
Fjármögnun.

    Afla skal fjár til að lækka kostnað almennra notenda vegna flutnings og dreifingar með því að leggja sérstakt gjald á hverja kWst raforku sem fer um dreifikerfið og þann hluta flutningskerfis landsins sem er utan meginflutningskerfisins. Dreifiveitur og flutningsfyrirtæki greiða gjaldið af afhentri raforku sem fer til endanlegra nota frá dreifikerfi eða frá flutningskerfinu utan meginflutningskerfisins og nemur gjaldið 19 aurum á kWst. Uppgjörstímabil og gjalddagar eru hinir sömu og fyrir virðisaukaskatt. Dreifiveitur og flutningsfyrirtæki skulu eftir lok hvers uppgjörstímabils greiða til ríkissjóðs gjald það sem þeim ber að standa skil á samkvæmt lögum þessum.

6. gr.
Framkvæmd.

    Dreifiveita sem starfar á gjaldskrársvæði þar sem lækka á kostnað vegna flutnings og dreifingar skal fá greitt framlag í samræmi við innsendar upplýsingar um rekstur og þau viðmiðunarmörk sem ákvörðuð eru, sbr. 4. gr. Dreifiveita skal ákvarða gjaldskrár óháð framlaginu og lækkar gjaldið síðan út frá reiknuðu framlagi fyrir alla notendur á gjaldskrársvæðinu. Notendur skulu fá upplýsingar um hve mikið framlagið lækkar gjaldskrána í kr./kWst að meðaltali.

7. gr.
Eftirlit Orkustofnunar.

    Orkustofnun hefur eftirlit með framkvæmd laga þessara. Upplýsingar og gögn sem nauðsynleg eru vegna framkvæmdar þeirra skulu liggja fyrir hjá Orkustofnun.
    Dreifiveitum og flutningsfyrirtæki ber að veita Orkustofnun sundurgreindar upplýsingar um kostnað vegna flutnings og dreifingar á gjaldskrársvæði þegar stofnunin fer fram á slíkt.
    Orkustofnun skal ár hvert áætla kostnað stofnunarinnar við eftirlit samkvæmt lögum þessum og leggja fyrir iðnaðarráðherra til staðfestingar. Kostnaður við eftirlit Orkustofnunar samkvæmt staðfestri áætlun greiðist af því fé sem ákveðið er í fjárlögum til að lækka kostnað við flutning og dreifingu raforku til notenda.

8. gr.
Úrræði Orkustofnunar.

    Ef Orkustofnun telur að lækkun gjaldskrár á gjaldskrársvæði dreifiveitu hafi á síðasta ári verið minni en nemur framlagi til lækkunar kostnaðar við flutning og dreifingu raforku getur stofnunin krafist þess að frávikið framreiknað með byggingarvísitölu komi til lækkunar gjaldskrár á næsta ári.

9. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta, sem samið er í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, er lagt fram samhliða frumvarpi til nýrra raforkulaga. Markmið laganna er að stuðla að jöfnuði kostnaðar við flutning og dreifingu raforku til almennra nota.
    Kostnaður við flutning og dreifingu raforku til landsmanna er mismikill og á sumum svæðum er hann svo mikill að erfitt er fyrir notendur að standa undir honum. Þessi svæði eru að mestu leyti á orkuveitusvæði Rafmagnsveitna ríkisins en þó einnig hjá Orkubúi Vestfjarða. Þetta hefur valdið verulegum erfiðleikum í rekstri Rafmagnsveitna ríkisins undanfarin ár. Sú ábyrgð hvílir á fyrirtækinu að veita íbúum og fyrirtækjum strjálbýlli svæða sömu þjónustu og íbúum í þéttbýli. Margar framkvæmdir fyrirtækisins standast ekki eðlilegar arðsemiskröfur, en fyrirtækinu er eigi að síður skylt að ráðast í þær. Óarðbær framkvæmda-, rekstrar- og þjónustuverkefni, sem nauðsynlegt er að ráðast í til að fullnægja þjónustuskyldu, afhendingaröryggi og þjónustugæðum á strjálbýlum svæðum hafa oft verið kölluð félagslegur þáttur í starfsemi fyrirtækisins. Talið hefur verið nauðsynlegt að tryggja fullnægjandi raforkuafhendingu til slíkra svæða þrátt fyrir takmarkaða notkun, m.a. vegna byggðasjónarmiða. Á undanförnum árum hafa verið gerðar athuganir á því hve mikill þessi kostnaður hefur verið hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Þessar athuganir leiða í ljós að árlegur hallarekstur miðað við eðlilegar arðsemiskröfur í dreifikerfi fyrirtækisins nemur um 300–400 millj. kr. og að auki um 100 millj. kr. í flutningskerfi fyrirtækisins. Þennan halla hafa notendur á veitusvæði fyrirtækisins þurft að bera að hluta til í hærri gjaldskrá, en ekki dugað til. Því hefur ríkið þurft að styrkja frá upphafi rekstur dreifiveitna í strjálbýli og hefur á undanförnum áratugum veitt fjármunum til félagslegra framkvæmda og reksturs í raforkukerfinu. Á árunum 1966–1986 var lagt verðjöfnunargjald á raforkusölu til almennra nota sem síðan rann til Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða. Á þessum tuttugu árum voru á þennan hátt greiddir um 15 milljarðar kr. á verðlagi 1999 til verðjöfnunar sem kostuð var af öllum almennum raforkunotendum. Þegar verðjöfnunargjaldið var lagt af árið 1986 gáfu stjórnvöld út þá yfirlýsingu að þeim fyrirtækjum sem höfðu notið gjaldsins yrði bættur tekjumissirinn að fullu og var það meginástæða þess að ríkissjóður yfirtók að hluta skuldir þessara fyrirtækja, á árunum 1987 og 1989, en sú lausn hefur þó ekki nægt til að fyrirtækin stæðu jafnvel að vígi og áður. Hér er um að ræða samtals um 9,7 milljarða króna lækkun á skuldum fyrirtækjanna á verðlagi 1999. Einnig ber að nefna að á veitusvæðum Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða gildir sama gjaldskrá og íbúar þéttbýlissvæða þar hafa því í raun greitt í nokkrum mæli niður kostnað við dreifingu raforku á strjálbýlustu og óhagkvæmustu veitusvæðum þessara fyrirtækja. Þessum aðferðum til jöfnunar verður ekki beitt í nýju raforkulagaumhverfi þar sem miðað er við að gjaldtaka verði sem mest í samræmi við raunkostnað en félagslegum kostnaði verði haldið utan við gjaldskrá vegna flutnings og dreifingar.
    Iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði í febrúar 2001 sérstakan starfshóp til að meta kostnað af óarðbærum einingum í aðveitu- og dreifikerfi landsins og koma með tillögur um hvernig beri að mæta þeim kostnaði í breyttu skipulagi á raforkumarkaði svo að allir landsmenn taki sem jafnastan þátt í honum. Nefndin lauk störfum 9. maí 2001 og skilaði skýrslu til ráðherra með tillögum um þennan þátt. Þar er lagt til að framlag til þessara aðgerða verði allt að 500 millj. kr. á ári þannig að heildarumfang þeirra verði svipað og á undanförnum árum. Efri mörkin taka mið af því að krafa sé gerð um 6% arð af eigin fé dreifiveitnanna. Nefndin lagði til að aflað yrði fjár til þessara jöfnunaraðgerða annaðhvort með fjármagni af almennu skattfé eða lagt yrði á sérstakt gjald á almenna notkun raforku. Í frumvarpinu er miðað við að fjárins verði aflað með sérstöku gjaldi á raforku, sem fer um dreifiveitur og þann hluta flutningskerfisins sem er utan meginflutningskerfisins. Ýmsir möguleikar eru á því að innheimta slíkt gjald í raforkukerfinu. Starfshópur iðnaðarráðherra lagði til, eins og áður segir, að gjald yrði lagt á raforkuframleiðslu, enda er það á margan hátt auðvelt í framkvæmd. Áætla þyrfti þá skiptingu flutningstapa niður á stóriðju og almenna notkun sem er ókostur. Sú leið sem hér er farin leggur gjaldið á þann kerfishluta þar sem jafna á kostnaði og nær því til alls dreifikerfisins og flutningskerfisins utan meginflutningskerfisins. Sama gjaldskrá gildir alls staðar í meginflutningskerfinu og því nær þessi jöfnun ekki til þess þáttar.
    Samkvæmt frumvarpinu ber dreifiveitum að skila rekstrarlegum gögnum og upplýsingum varðandi einstök gjaldskrársvæði til Orkustofnunar. Jöfnun kostnaðar við aðveitu- og dreifikerfi miðast við hvert gjaldskrársvæði dreifiveitu. Þannig geta sum svæði einnar og sömu dreifiveitu fengið greitt jöfnunargjald en önnur svæði þar sem dreifingarkostnaður er innan viðmiðunarmarka fengju ekki jöfnunargjald. Jöfnunargjald fer eftir því hver raunkostnaður við rekstur gjaldskrársvæðisins hefur verið í samræmi við þau tekjumörk sem Orkustofnun hefur sett fyrir hvert gjaldskrársvæði í samræmi við ákvæði í 17. gr. frumvarps til raforkulaga sem lagt er fram á Alþingi samhliða frumvarpi þessu. Dreifiveitu ber að tilgreina á reikningi sínum til notenda hver raunkostnaður við rekstur aðveitu/dreifiveitu er á hverja kílówattstund og einnig þá lækkun er þeir fá í samræmi við það jöfnunarframlag sem hér er lagt til. Ekki er gert ráð fyrir því að gjaldtaka fyrir flutning og dreifingu sé breytileg eftir því til hvers orkan er notuð eins og nú er. Í dag er t.d. kostnaður við dreifingu raforku til húshitunar víðast hvar í lágmarki í gjaldskrám veitufyrirtækja og stendur vart undir rekstrarkostnaði. Í nýju raforkuumhverfi verður dreifikostnaður raforku óháður því til hvers hún er notuð og innan hvers gjaldskrársvæðis munu allir notendur njóta jafnræðis varðandi kostnað við flutning og dreifingu.
    Í samræmi við frumvarp til raforkulaga mun Orkustofnun sjá um eftirlit með flutningi og dreifingu raforku. Því þykir eðlilegt að stofnuninni verði falið að hafa eftirlit með framkvæmd þessara laga. Ber henni í störfum sínum að fara eftir stjórnsýslulögum, nr. 37/1993. Þær upplýsingar sem Orkustofnun þarf á að halda til að geta sinnt eftirlitshlutverki sínu munu liggja fyrir hjá stofnuninni.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.

    Samkvæmt greininni er markmið frumvarpsins að stuðla að jöfnun kostnaðar við flutning og dreifingu raforku til almennra notenda. Með almennum notendum er átt við alla raforkunotendur landsins að undanskildum stóriðjunotendum. Allur raforkuflutningur til stóriðju fer aðeins um meginflutningskerfið og sú notkun nær því ekki til annars hluta flutningskerfisins eða dreifikerfis landsins sem efni þessa frumvarps fjallar um.

Um 2. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 3. gr.

    Með gjaldskrársvæði er átt við landsvæði þar sem sama gjaldskrá gildir fyrir flutning og dreifingu raforku í samræmi við frumvarp til raforkulaga.

Um 4. gr.

    Rekstur raforkudreifingar á að standa undir sér alls staðar á landinu og ef það kallar á að gjaldskrá dreifiveitu verði það há á ákveðnu svæði að það geti valdið búseturöskun er talið rétt að greiða niður dreifingarkostnað með framlagi ríkisins til viðkomandi veitu. Þessar aðgerðir ná einungis til þeirra gjaldskrársvæða þar sem kostnaður við dreifingu er mestur. Setur iðnaðarráðherra í reglugerð viðmiðunarmörk sem þar skal miða við.
    Einungis skal litið til kostnaðar við flutning og dreifingu á forgangsorku. Framlag ræðst síðan af þeirri fjárhæð sem lögð er til þessa þáttar í fjárlögum.

Um 5. gr.

    Framlag til lækkunar kostnaðar vegna flutnings og dreifingar raforku skal fjármagnað með gjaldi á flutning utan meginflutningskerfisins eða dreifingu raforku. Í meginflutningskerfinu gildir sama gjaldskrá í öllum afhendingarstöðum og til að stuðla að jöfnuði í öðrum hlutum flutningskerfisins og dreifingu er gjald lagt á það kerfi sem jöfnunin á að ná til. Gjaldstofninn er afhent orka frá þessu kerfi og nær bæði til forgangsorku og ótryggðrar orku. Miðað er við að uppgjörstímabil sé það sama og fyrir virðisaukaskatt, þ.e. uppgjör verði á tveggja mánaða fresti.

Um 6. gr.

    Lagt er til í 1. mgr. að Orkustofnun verði falið eftirlit með framkvæmd laganna. Mun það einkum felast í skráningu upplýsinga um kostnað við flutning og dreifingu raforku og með því að fylgjast með því að framlag skili sér að fullu til lækkunar gjaldskrár á einstökum gjaldskrársvæðum. Augljóslega verður Orkustofnun að leita eftir upplýsingum frá dreifiveitunum við framkvæmd eftirlitsins og er lögð sú skylda á dreifiveiturnar að þær afhendi stofnuninni slík gögn.
    Orkustofnun þarf árlega að meta kostnað sinn við eftirlitið og ef ráðherra samþykkir þá áætlun er kostnaðurinn tekinn af því fé sem samþykkt er í fjárlögum til þessa þáttar.

Um 7. gr.

    Ef framlag til lækkunar kostnaðar við flutning og dreifingu skilar sér ekki til notenda að mati Orkustofnunar getur hún krafist þess að það sem á vantaði komi fram á næsta ári og að upphæðin verði þá framreiknuð með byggingarvísitölu.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um jöfnum kostnaðar
við flutning og dreifingu raforku.

    Tilgangur frumvarpsins er að stuðla að jöfnun kostnaðar við flutning og dreifingu raforku til almennra notenda. Frumvarpið gerir ráð fyrir að lagt verði 19 aura gjald á hverja kWst sem fer um dreifikerfið og þann hluta flutningskerfis landsins sem er utan meginflutningskerfisins. Áætlað er að gjaldið skili um 500 m.kr. í ríkissjóð en sömu fjárhæð verður varið til jöfnunar á kostnaði við flutning og dreifingu raforku vegna óarðbærra rekstrareininga.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum aukast tekjur og gjöld ríkissjóðs sem nemur hækkun á raforkuverði er af verðjöfnunargjaldinu leiðir. Talið er að gjaldið muni hækka meðalverð til almennings um 19 aura fyrir hverja kWst eða sem svarar til um 3% hækkunar á raforkuverði. Mun sú hækkun leiða af sér um 20 m.kr. hækkun á kostnaði ríkisins vegna raforkukaupa ríkisfyrirtækja í A-hluta ríkissjóðs.