Ferill 618. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1104 — 618. mál.
Svar
menntamálaráðherra við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur um einsetningu grunnskóla.
1. Hvaða sveitarfélög hafa samþykki ráðherra fyrir frestun á einsetningu grunnskóla?
Samkvæmt lögum nr. 104/1999, um breyting á lögum nr. 66/1995, um grunnskóla, með síðari breytingum, orðast 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum svo: Menntamálaráðherra er heimilt að veita sveitarfélögum sem þess óska frest til 1. september 2004 til að framkvæma ákvæði 3. gr. um einsetinn grunnskóla.
Þrjú sveitarfélög hafa samþykki ráðherra fyrir frestun á einsetningu grunnskóla, þ.e. Hafnarfjörður, Hveragerðisbær og Vestmannaeyjabær.
2. Hvaða sveitarfélög hafa farið leið einkafjármögnunar til að uppfylla lagaskyldu um einsetningu grunnskóla?
Menntamálaráðuneytið safnar ekki upplýsingum um með hvaða hætti skólar standa að einsetningu grunnskóla, þ.e. byggingu skólahúsnæðis til að unnt sé að uppfylla lagaskylduna um einsetningu grunnskóla. Ráðuneytinu er einungis kunnugt um að Hafnarfjarðarbær hefur farið leið einkafjármögnunar í tengslum við framangreinda lagaskyldu, þ.e. í tengslum við skólahald í Áslandsskóla í Hafnarfirði, enda er það eina málið sem komið hefur til kasta ráðuneytisins þar sem um er að ræða tilraun í samræmi við 53. gr. laga um grunnskóla, nr. 66/1995. Hafnarfjarðarbær samdi við einkaaðila um kennslu nemenda í Áslandsskóla í tilraunaskyni með samþykki ráðuneytisins og fór einnig leið einkafjármögnunar við byggingu skólans.
Önnur sveitarfélög kunna að hafa valið leið einkafjármögnunar við byggingarframkvæmdir vegna einsetningar grunnskóla en um slíkt liggja ekki fyrir upplýsingar í menntamálaráðuneytinu.