Ferill 687. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1106  —  687. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um framkvæmd flugmálaáætlunar 2000.

(Lögð fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


I. ÁÆTLUN UM FJÁRÖFLUN OG GJÖLD



1.1 Flugmálaáætlun.
    Þingsályktun um flugmálaáætlun fyrir árið 2000 gerði ráð fyrir að heildartekjur vegna flugmálaáætlunar ársins yrðu 654 millj. kr., en tekjurnar verða eingöngu til af flugvallargjaldi í innan- og utanlandsflugi. Þá var einnig gert ráð fyrir lántöku upp á 203 millj. kr. og frestun framkvæmda um 100 millj. kr., eða 757 millj. kr. til ráðstöfunar.
    Gert var ráð fyrir að gjöld samkvæmt áætluninni yrðu enn fremur 757 millj. kr. sem skiptast á eftirfarandi hátt:

Til rekstrar flugvalla 66 millj. kr.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar 64 millj. kr.
Reykjavíkurflugvöllur 319 millj. kr.
Aðrir flugvellir o.fl. 308 millj. kr.
Samtals 757 millj. kr.

     Tekjur. Heildartekjur ársins 2000 af flugvallargjöldum urðu 715 millj. kr., eða 9,3% hærri en gert var ráð fyrir í áætluninni og 15,6% hærri en árið áður. Munar þar mest um aukningu tekna af utanlandsflugi, um 100 millj. kr.
    Eftirfarandi tafla og mynd sýna þróun tekna flugmálaáætlunarinnar árin 1996–2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.







Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Gjöld. Heildarútgjöld vegna flugmálaáætlunarinnar fyrir árið 2000 urðu 1.017 millj. kr., eða 302 millj. kr. útgjöld umfram tekjur. Alls 109 millj. kr. voru til ráðstöfunar frá fyrra ári, þannig að brúa þurfti bilið með lántökum upp á 193 millj. kr.
    Eftirfarandi tafla sýnir útgjöld flugmálaáætlunarinnar fyrir árið 2000 og samanburð við fyrra ár:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Eins og sést á töflunni er helsta breytingin að framkvæmdakostnaður hækkar úr 344 millj. kr. á fyrra ári í 827 millj. kr. árið 2000 og skýrist af miklum endurbótum sem nú eiga sér stað á Reykjavíkurflugvelli, en framkvæmt var á árinu fyrir 624 millj. kr.

1.2 Flugmálastjórn.
    Þingsályktunin um flugmálaáætlun fyrir árið 2000 gerði ráð fyrir að heildartekjur og gjöld Flugmálastjórnar yrðu 1.109 millj. kr. Gerð verður grein fyrir tekjum og gjöldum Flugmálastjórnar samkvæmt niðurstöðum úr ársreikningi ársins 2000, en þær upphæðir eru á öðru verðlagi en því sem gert er ráð fyrir í þingsályktuninni og því ekki að öllu samanburðarhæft.
     Tekjur. Heildartekjur Flugmálastjórnar á árinu 2000 urðu 1.390 millj. kr. og jukust um 12,9% frá árinu áður.
    Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu tekna Flugmálastjórnar árið 2000 og samanburð við fyrra ár:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og fram kemur í töflunni hefur framlag til rekstrar Flugmálastjórnar af flugmálaáætlun lækkað nokkuð, en á móti hefur framlag úr ríkissjóði hækkað sem skýrist af meiri fjármunum til endurbóta á Reykjavíkurflugvelli.
     Gjöld. Útgjöld Flugmálastjórnar árið 2000 urðu 1.383 millj. kr., en voru 1.225 millj. kr. árið 1999 og höfðu því hækkað um 12,9% milli ára. Þess ber að geta að vegna góðrar afkomu stofnunarinnar á undanförnum árum var hægt að framkvæma ýmis nauðsynleg viðhaldsverkefni á árinu sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögunum, að upphæð 33 millj. kr. Afkoma ársins 2000 varð því þannig að tekjur umfram gjöld urðu 7,4 millj. kr.
    Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á gjöldum Flugmálastjórnar 1999 og 2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Taflan sýnir að launakostnaður hefur aðeins hækkað um 2,6% milli ára, en annar rekstrarkostnaður um 28,6% sem skýrist af því sem fyrr er getið um ýmis nauðsynleg viðhaldsverkefni sem voru framkvæmd á árinu.
    Eftirfarandi tafla sýnir útgjöld flugmálastjórnar árið 2000 sundurliðuð samkvæmt uppsetningu í þingsályktun um flugmálaáætlun:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


1.2.1 Rekstur flugvalla.
    Útgjöld flugvallanna fyrir árið 2000 urðu 627 millj. kr. og hækkuðu um 4,1% frá árinu áður. Rekstrartekjur flugvallanna urðu 132 millj. kr. og höfðu lækkað um 4,5% frá fyrra ári.
    Eftirfarandi tafla og mynd sýna rekstrarafkomu flugvallanna árið 2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Fram kemur í töflunni að gjöld umfram tekjur í rekstri flugvallanna eru 495 millj. kr., sem er 6,9% hækkun frá árinu áður.
    Sem hlutfall af gjöldum eru tekjur flugvallanna aðeins 21,1%, en voru 23% á fyrra ári. Meðaltal framlegðar á hvern farþega sem fór um áætlunarflugvellina og aðra þjónustuflugvelli árið 2000 er 543 kr. og hefur hækkað um 59 kr. milli ára.
    Hér á eftir verður gerð sundurliðuð grein fyrir rekstri fimm stærstu áætlunarflugvallanna, þ.e. Reykjavíkur-, Akureyrar-, Vestmannaeyja-, Egilsstaða- og Ísafjarðarflugvalla. Aðrir minni áætlunar- og þjónustuflugvellir verða teknir saman með einni niðurstöðutölu í töflum 17 og 18.

1.2.1.1 Reykjavíkurflugvöllur.
    Þegar á heildina er litið gekk rekstur Reykjavíkurflugvallar nokkuð vel á árinu 2000. Heildarútgjöld allra rekstrarþátta fóru rúmlega 17 millj. kr. fram úr rekstraráætlun, eða 7,8%. Af því eru um 10 millj. kr. sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum en var hluti ráðstöfunar á hagnaði fyrri ára. Tekjur fóru hins vegar 9 millj. kr. fram úr áætlun sem varð til þess, að teknu tilliti til ráðstöfunar hagnaðar fyrri ára, að flugvöllurinn var gerður upp með 2 millj. kr. umfram áætlanir sem verður að teljast nokkuð vel viðunandi.
    Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld eftir stjórnunarsviðum og samanburð við áætlun ársins 2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Rekstur flugvallasviðs fer nokkuð úr böndum, þó að tekið sé tillit til ráðstöfunar hagnaðar fyrri ára um 10 millj. kr. eru tæplega 18 millj. kr. umfram rekstraráætlun, eða 12,1%. Mjög góð rekstrarafkoma flugturnsins á árinu bætir þetta að nokkru, en þar urðu útgjöldin tæpum 10 millj. kr. undir áætlun, eða sem svarar 10,4%.
    Í töflu 8 er sýndur samanburður á rekstrarútgjöldum og tekjum ýmissa verkefna í starfsemi flugvallarins árin 2000 og 1999.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan sýnir eru gjöld umfram tekjur 164 millj. kr., eða 11% hærri en á árinu 1999. Hlutfall tekna af gjöldum er 31,6% og hefur lækkað frá árinu áður og framlegð á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu 2000 er 372 kr., eða 14% hærra en árið 1999, en þá fóru 12.082 fleiri farþegar um Reykjavíkurflugvöll og skýrir það þennan mismun að hluta.

1.2.1.2 Akureyrarflugvöllur.
    Niðurstaða rekstrarreiknings Akureyrarflugvallar fyrir árið 2000 er ekki viðunandi því að rekstrarútgjöld fóru tæplega 5 millj. kr. fram úr áætlunum, eða um 5,5%. Rekstrarniðurstaða flugleiðsögusviðs og flugumferðarsviðs er nokkuð góð, en flugvallasviðið fer fram úr áætlunum á árinu, með 11,4% umframeyðslu.
    Þá varð á árinu 2000 veruleg lækkun tekna frá fyrra ári, eða 16,7%. Skýringin er væntanlega minni samkeppni í innanlandsflugi sem leitt hefur til færri lendinga á flugvellinum og að starfsemi Íslandsflugs í flugstöðinni var hætt.
    Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöldin árið 2000 eftir stjórnunarsviðum og samanburð við áætlun ársins:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og fram kemur í töflunni kostar rekstur Akureyrarflugvallar tæplega 94 millj. kr. á árinu 2000, án fjármagns- og stofnkostnaðar.
    Taflan hér á eftir sýnir samanburð á rekstrarútgjöldum og tekjum milli áranna 1999 og 2000, ásamt hlutfalli tekna af gjöldum og framlegð á hvern farþega sem um flugvöllinn fóru árið 2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í töflunni kemur fram að gjöld umfram tekjur urðu 72,5 millj. kr. á árinu og höfðu hækkað um 15,2% frá fyrra ári. Hlutfall tekna af gjöldum var á árinu 2000 22,7% og hafði lækkað verulega frá fyrra ári. Framlegð á hvern farþega sem um flugvöllinn fór á árinu var 380 kr. og hefur hækkað um 55 kr. frá árinu áður.

1.2.1.3 Vestmannaeyjaflugvöllur.
    Rekstrarútgjöld flugvallasviðs vegna Vestmannaeyjaflugvallar fóru verulega úr böndum á árinu 2000, eða tæpar 8 millj. kr. fram úr áætlun, sem er 36,7%. Hins vegar gekk rekstur flugumferðarsviðs á flugvellinum nokkuð vel miðað við rekstraráætlun, varð 14,4% undir áætlun sem lagar nokkuð heildarrekstrarniðurstöðu flugvallarins á árinu, en hún varð engu síður 10,6% umfram áætlanir.
    Næsta tafla sýnir rekstrarútgjöldin á árinu 2000 ásamt samanburði við áætlanir:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan sýnir urðu heildarútgjöld Vestmannaeyjaflugvallar rúmar 52 millj. kr. og fóru tæpar 5 millj. kr. fram úr áætlun.
    Í eftirfarandi töflu er sýndur samanburður á gjöldum og tekjum ársins 1999 og 2000 ásamt ýmsum öðrum upplýsingum:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Taflan sýnir að rekstur flugvallarins, þ.e. flugbrauta og bygginga, er 29,6% hærri á árinu 2000 en árið áður, en eins og fyrr er getið hefur náðst verulegur árangur í rekstri flugturnsins sem gerir þennan samanburð milli ára þegar á heildina er litið vel viðunandi.
    Þá sýnir taflan einnig að hlutfall tekna af gjöldum hefur lækkað í 18,4% úr 20,5% árið áður og að framlegð á hvern farþega er 506 kr., eða 12% hærri en á fyrra ári.

1.2.1.4 Egilsstaðaflugvöllur.
    Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld Egilsstaðaflugvallar fyrir árið 2000 og samanburð við rekstraráætlun ársins:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan sýnir fóru heildarrekstrarútgjöld flugvallarins 6,4% fram úr áætlun og munar þar mestu um rekstur flugvallasviðs sem fór 11,2% fram úr áætlun, eða um 4 millj. kr.
    Næsta tafla sýnir samanburð gjalda og tekna milli áranna 1999 og 2000, ásamt framlegð á hvern farþega sem um flugvöllinn fór.
    Eins og fram kemur í töflunni hækkar rekstrarkostnaður flugbrauta og bygginga um 18,4% milli áranna 1999 og 2000, sem má að mestu leyti rekja til verulegs viðhalds sem ekki var gert ráð fyrir í áætlun en nauðsynlegt var að framkvæma á árinu. Þegar á heildina er litið er hækkunin 12,2%.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Taflan sýnir einnig að gjöld umfram tekjur hafa hækkað um 16,3% milli ára og hlutfall tekna af gjöldum hefur lækkað úr 16,4% árið 1999 í 13,4% árið 2000, sem skýrist af því að tekjur flugvallarins hafa lækkað nokkuð frá fyrra ári ásamt auknum rekstrarútgjöldum. Framlegð á hvern farþega hefur þannig hækkað um 22,6% frá árinu áður og er nú 661 kr.

1.2.1.5 Ísafjarðarflugvöllur.
    Rekstur Ísafjarðarflugvallar gekk mjög vel á árinu eins og sjá má á töflunni hér að neðan:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan sýnir urðu heildarrekstrarútgjöld flugvallarins 4,6% undir rekstraráætlunum þar sem rekstur bæði flugleiðsögu- og flugumferðarsviðs varð verulega undir áætlunum, en rekstur flugvallasviðs fór 7,2% fram úr áætlun, sem er nokkuð lægra en á hinum stærri áætlunarflugvöllum.
    Í töflu 16 er sýndur samanburður á útgjöldum og tekjum árin 1999 og 2000 ásamt öðrum upplýsingum. Þar kemur fram að rekstrarútgjöld ársins 2000 urðu 8,2% lægri en árið áður, eða sem svarar 3,5 millj. kr. Tekjur flugvallarins hækkuðu milli ára um 11,1%. Þetta gerði það að verkum að gjöld umfram tekjur lækkuðu um 4,3 millj. kr. frá árinu áður, eða um 12%, og hlutfall tekna af gjöldum ársins 2000 varð 20%, en var 16,6% árið áður. Framlegð á hvern farþega lækkaði frá árinu áður um 8,6% og er nú 605 kr.
    Eins og fram hefur komið og töflurnar sýna var rekstur Ísafjarðarflugvallar á árinu 2000 mjög vel viðunandi.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


1.2.1.6 Aðrir áætlunarflugvellir.
    Þegar á heildina er litið gekk rekstur annarra áætlunarflugvalla í innanlandsflugi nokkuð vel á árinu 2000 miðað við rekstraráætlanir.
    Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á heildarútgjöldum flugvallanna og áætlun ásamt tekjum og öðrum upplýsingum á árinu 2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og sést á töflunni urðu heildarrekstrarútgjöld flugvallanna 3,6 millj. kr. undir áætlun sem er 3,1%. Tekjur þessara flugvalla eru mjög litlar, eða tæpar 10,4 millj. kr., og því hlutfall tekna af gjöldum aðeins 10,1%. Framlegð á hvern farþega sem um flugvellina fór var að jafnaði 1.574 kr. Eins og taflan sýnir er framlegðin óheyrilega há á þeim flugvöllum sem hafa mjög litla flutninga en eru í fullum rekstri eins og flugvellirnir á Gjögri og Patreksfirði.

1.2.1.7 Aðrir flugvellir og lendingarstaðir.
    Aðrir flugvellir og lendingarstaðir skiptast í svokallaða þjónustuflugvelli annars vegar og lendingarstaði hins vegar. Þjónustuflugvellirnir eru alls 13 og hafa flestir verið áður áætlunarflugvellir þar sem áætlun hefur verið aflögð. Lendingarstaðir sem Flugmálastjórn rekur eru nú 38 talsins.
    Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu útgjalda milli þjónustuflugvalla og lendingarstaða á árinu 2000, ásamt samanburði við rekstraráætlanir:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan sýnir eru útgjöld vegna þessara flugvalla 24,5 millj. kr., en tekjur nánast engar.

1.2.2 Annar rekstur.
    Annar rekstur Flugmálastjórnar en rekstur flugvalla er flugöryggissvið, flugleiðsögusvið, flugumferðarsvið og yfirstjórn. Undir yfirstjórn heyrir fjárvarsla og bókhald, alþjóðamál og skrifstofa flugmálastjóra.
    Þegar tekið hefur verið mið af tekjuaukningu ársins 2000 umfram áætlun, gekk þessi rekstur mjög vel. Rekstrarútgjöld fóru reyndar 6,1% fram úr áætlun, en tekjur urðu 25,1% hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þannig að afkoma þessara rekstrarsviða varð jákvæð um 61 millj. kr.
    Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á rekstrarkostnaði og tekjum við áætlanir rekstrarsviðanna:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Taflan sýnir að samanlagt hlutfall tekna af gjöldum þessara rekstrarsviða er 70,2%, en var árið áður 63,1% þannig að afkoman hefur verulega batnað.
    Eftirfarandi töflur sýna laun og önnur rekstrargjöld ársins 2000, borin saman við árið 1999:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Rekstur yfirstjórnar hefur aukist nokkuð milli áranna, bæði hvað varðar útgjöld og tekjur, en gjöld umfram tekjur hafa lækkað um tæpar 8,5 millj. kr. frá árinu áður.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan sýnir hefur rekstur flugöryggissviðsins einnig aukist milli áranna og afkoman aðeins versnað á árinu 2000 miðað við fyrra ár, en þá var hún jákvæð um tæpar 3,8 millj. kr.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Rekstur flugleiðsögusviðsins gekk nokkuð vel á síðasta ári þegar tekið er mið af tekjum og gjöldum. Rekstrargjöld urðu reyndar 10,4% hærri en árið áður, en tekjur hækkuðu verulega milli ára, eða um 30,1%.
    Tafla 23 sýnir rekstur flugumferðarsviðsins á árunum 1999 og 2000. Í töflunni kemur fram að verulegar sveiflur eru í rekstrinum milli ára, launaútgjöld lækka aðeins frá árinu áður, en önnur rekstrarútgjöld hækka um tæp 100%. Samtals hækka rekstrarútgjöldin um 26,9% frá árinu áður, en á móti kemur veruleg tekjuaukning, eða 47,6%, sem gerir það að verkum að gjöld umfram tekjur hækka aðeins um 9,5% frá árinu 1999.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og fyrr er getið varð afkoma A-hluta Flugmálastjórnar jákvæð um 7,4 millj. kr. á árinu 2000. Þess ber að geta að árið 2000 var varið til nauðsynlegra viðhaldsverkefna um 33 millj. kr. sem ekki voru á fjárlögum ársins og þar með örlítið gengið á eigið fé stofnunarinnar. Þannig er hagnaður af reglulegri starfsemi um 42 millj. kr.
    Tafla 24 sýnir afkomu A-hluta Flugmálastjórnar árin 1999 og 2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



II. SKIPTING ÚTGJALDA

    Á árinu 2000 urðu útgjöld flugmálaáætlunarinnar 1.016,5 millj. kr. Samtals 61,4% af útgjöldunum fór í endurbætur á Reykjavíkurflugvelli, eða 624 millj. kr. Til framkvæmda á öðrum innanlandsflugvöllum var varið 163 millj. kr., eða um 16%. Alls 66 millj. kr. fóru til reksturs flugvalla sem er 6,5% og veruleg lækkun frá fyrra ári. Til flugstöðvar Leifs Eiríkssonar var varið 64 millj. kr., sem er 9 millj. kr. hærra framlag en árið 1999. 5,1% fóru í flugumferðar- og flugleiðsögubúnað og 4,7% í annan kostnað, tækjasjóð o.fl.
    Eftirfarandi töflur sýna útgjöld flugmálaáætlunar eftir verkefnaflokkum annars vegar og umdæmum hins vegar:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



III. FLOKKUN FLUGVALLA OG ÞRÓUN FLUTNINGA


3.1 Flokkun flugvalla.
    Með þingsályktun um flugmálaáætlun 2000–2003 breyttist flokkun innanlandsflugvallanna og eru þeir nú flokkaðir á eftirfarandi hátt:

3.1.1 Flokkur 1. Áætlunarflugvellir.
     Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöllur. Í þessum flokki eru flugvellir sem þjóna innanlands- og utanlandsflugumferð á flugvélum af stærðunum Boeing 757, Boeing 737, Fokker 50 og ATR-42.

3.1.2 Flokkur II. Áætlunarflugvellir.
     Vestmannaeyja-, Ísafjarðar-, Hornafjarðar-, Húsavíkur-, Sauðárkróks-, Bíldudals- og Þórshafnarflugvöllur. Í þessum flokki eru flugvellir sem þjóna innanlandsumferð á flugvélum af stærðunum Fokker 50 og ATR-42 eða öðrum sambærilegum.

3.1.3 Flokkur III. Áætlunarflugvellir.
     Grímseyjar-, Siglufjarðar-, Vopnafjarðar-, Gjögurs-, Þingeyrar-, Patreksfjarðar- og Bakkaflugvöllur. Í þessum flokki eru flugvellir sem þjóna innanlandsflugumferð á 19 farþega flugvélum, t.d. Dornier 228.

3.1.4 Flokkur IV. Þjónustuflugvellir.
     Kópaskers-, Mývatns-, Norðfjarðar-, Raufarhafnar- og Rifsflugvöllur. Í þessum flokki eru þjónustuflugvellir sem þjóna minnstu flugvélunum. Á þessa flugvelli er ekki flogið reglubundið áætlunarflug, en þeir eiga að vera með flugvallarstjórn og mannaðir þegar þeir þjóna leigu- eða áætlunarflugi.

3.1.5 Flokkur V. Kennslu- og æfingaflugvellir.
     Blönduóss-, Borgarness-, Dagverðarár-, Flúða-, Hellu-, Húsafells-, Sandskeiðs-, Selfoss-, Stóra-Kropps- og Stykkishólmsflugvöllur. Í þessum flokki eru æfinga- og kennsluflugvellir sem þjóna minnstu flugvélunum. Flugvellirnir eru án flugvallastjórnar, en þá á að vera hægt að manna þegar á þarf að halda.

3.1.6 Flokkur VI. Lendingarstaðir.
    Í þessum flokki eru 48 sjúkraflugvellir og aðrir lendingarstaðir sem þjóna minnstu flugvélunum. Flugvellirnir eru án flugvallarstjórnar og ekki mannaðir.

    Á undanförnum árum hefur áætlunarflugvöllum fækkað verulega. Nú eru áætlunarflugvellir í innanlandsflugi 17 talsins, þegar Bakkaflugvöllur er meðtalinn, en á þann flugvöll er nánast eingöngu flogið leiguflug milli lands og Vestmannaeyja. Þingeyrarflugvöllur er varaþjónustuflugvöllur fyrir Ísafjarðarflugvöll og er því ekki beinlínis skilgreindur sem áætlunarflugvöllur þó að hann sé í flokki III. Fyrir rúmum áratug voru áætlunarflugvellir í innanlandsflugi 31 talsins og hefur þeim því fækkað um 45% samhliða því að farþegum í innanlandsflugi hefur fjölgað mjög mikið á sama tíma.

3.2 Þróun flutninga.
    Á undanförnum árum hefur farþegum í innanlandsflugi fjölgað jafnt og þétt. Á árunum 1982–2000 hefur aukningin orðið um 60%. Þróunin hefur orðið sú að farþegum sem fara um stærri flugvellina hefur fjölgað verulega, enda ferðatíðni meiri. Á móti hefur farþegum sem nota minni flugvellina fækkað, en það hefur leitt til þess að áætlunarflugi hefur verið hætt til margra áfangastaða undanfarin ár. Betri vegir út frá Reykjavík um Vesturland og norður í land hefur fyrst og fremst gert það að verkum að áætlunarflugi til flugvallanna á Snæfellsnesi, Hólmavík og Blönduósi var hætt, þar sem flugið gat ekki keppt við einkabílinn. Þá hefur einnig bætt vegakerfi milli byggða í einstökum landshlutum stuðlað að þessari þróun, t.d. á Vestfjörðum og Austurlandi. Einnig hefur arðsemiskrafa flugrekenda nú á allra síðustu árum leitt til þessarar þróunar, sbr. stöðu áætlunarflugs til Húsavíkur.
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda farþega sem fóru um áætlunarflugvellina árin 1982 annars vegar og 2000 hins vegar:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og fram kemur í töflunni halda fjórir stærstu áætlunarflugvellirnir ríflega hlutfalli sínu í farþegaflutningunum þegar árin 1982 og 2000 eru borin saman. Aðrir flugvellir halda í horfinu eða farþegum hefur fækkað mjög mikið. Bíldudalsflugvöllur sker sig úr en þar hefur orðið veruleg aukning, aðallega á kostnað Patreksfjarðarflugvallar, en eins og kunnugt er er jafnlöng vegalengd frá kaupstaðnum á Vatneyri til Patreksfjarðar- og Bíldudalsflugvalla.
    Árið 1998 hófst skráning á farþegum sem fóru um Bakkaflugvöll í Austur-Landeyjum, en verulegt leiguflug fer um flugvöllinn frá Vestmannaeyjum, eða um og yfir 17.000 farþegar á ári.
    Mynd 3 sýnir þróun farþegaflutninga í innanlandsflugi á árunum 1982–2000:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þegar þróun farþegaflutninga í innanlandsflugi frá árinu 1982 er skoðuð eftir landshlutum kemur eftirfarandi í ljós:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan sýnir er hlutfallslega mest aukning farþega sem fóru um flugvellina á Suðurlandi, þ.e. Vestmannaeyja- og Bakkaflugvöll. Norðurland eystra og Austurland halda sínu, en farþegaflutningar um flugvelli á Vestfjörðum eru á undanhaldi, enda hefur verið nokkur fólksfækkun í landshlutanum á undanförnum árum.
    Eftirfarandi tafla sýnir þróun flutninganna eftir flugvallaflokkum:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Eins og sést á töflunni fara 77% farþegaflutninganna um áætlunarflugvelli í flokki I, en það eru Reykjavíkur-, Akureyrar-, og Egilsstaðaflugvöllur.
    Vöru- og póstflutningar með flugi hafa verið á stöðugu undanhaldi á undanförnum árum, eins og sést á myndinni hér að neðan:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Á töflunni hér að neðan sést hvernig þróunin hefur verið frá árinu 1982 eftir landshlutum:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Taflan sýnir að hlutfallslega sama þróun á sér stað í öllum landshlutum nema á Suðurlandi, þ.e. Vestmannaeyjaflugvelli, sem á sér eðlilegar skýringar.

IV. SUNDURLIÐUN FRAMKVÆMDA

    Árið 2000 var framkvæmt á innanlandsflugvöllunum fyrir 787 millj. kr. Þar af fóru 624 millj. kr. til endurbóta á Reykjavíkurflugvelli, en á árinu hófust framkvæmdir við 1. áfanga verksins. Framkvæmdir á flugvöllum skiptast í þrjá eftirfarandi verkefnaflokka:
     1.      Flugbrautir og hlöð. Undir þennan verkefnaflokk heyrir uppbygging flugbrauta, bundið slitlag, öryggissvæði, flughlað, bílastæði og lóð.
     2.      Byggingar. Flugstöð, farþegaskýli, tækja- og sandgeymsla.
     3.      Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Flugvallarlýsing og aðflugs- og raforkukerfi.
    Fjárveitingar ársins 2000 til flugmálaframkvæmda eru þær hæstu sem verið hafa frá upphafi þingsályktunar um flugmálaáætlun, framreiknað til aprílmánaðar þessa árs eftir byggingarvísitölu, eða 732 millj. kr. (sjá fylgiskjal II).
    Eftirfarandi tafla sýnir stöðu hvers verkefnaflokks árið 2000:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í fremsta dálki er flugmálaáætlun ársins 2000 samkvæmt þingsályktun. Næsti dálkur sýnir þær breytingar sem orðið hafa frá fyrra ári, hvort um er að ræða inneign eða skuld á viðkomandi verkefnaflokki, eða aðrar tilfærslur. Í þriðja dálkinum kemur svo fram hversu mikið fé er til ráðstöfunar í einstakar framkvæmdir ársins. Fjórði dálkurinn sýnir framkvæmdakostnað ársins samkvæmt bókhaldi í árslok. Þá kemur fram greiðslustaða hvers verkefnaflokks í árslok 2000. Hafa ber í huga að verkefnum er oft ekki lokið í árslok og færast því fjármunir yfir á næsta ár og einnig að gerðar eru ýmsar skuldbindingar sem ekki koma til greiðslu fyrr en árið eftir.

4.1 Reykjavíkurflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Á árinu 2000 var unnið að endurbótum á austur–vestur flugbrautinni, þ.e. jarðvegsskiptum og malbikun. Um haustið árið 1999 var verkið í heild boðið út og samið við lægstbjóðanda sem var Ístak hf. Helstu undirverktakar eru: Hlaðbær-Colas hf. sem sér um malbikun, Björgun hf. sem er með efnisútvegun úr sjó, JVJ ehf. sem sér um efra burðarlag og Hefilverk sf./Fínverk ehf. sem sjá um jöfnun og frágang utan brauta.
    Aðalhönnun verksins hefur verið í höndum Almennu verkfræðistofunnar hf. Aðrir hönnuðir eru Rafhönnun hf. sem sér um alla hönnun rafkerfa vegna flugbrautarljósa og Kjartan Mogensen landslagsarkitekt hefur séð um landslagsráðgjöf á svæðinu. Eftirlit með verkinu var boðið út og samið á grundvelli tilboðs við VSÓ ráðgjöf.
    Vinna við verkið hófst í janúar 2000 við gerð sjóvarnargarðs og nokkru síðar við frárennslislagnir meðfram A–V flugbrautinni. Jarðvegsskipti hófust svo 15. mars og var byrjað frá vesturenda flugbrautarinnar. Verkið gekk í byrjun samkvæmt áætlun, en það sem helst tafði var efnisútvegun fyllingarefnis sem gekk nokkuð hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir og var það viðvarandi vandamál allan verktímann. Vinna við strandvörn lagðist einnig af um tíma vegna mun meira sigs í garðinum en gert hafði verið ráð fyrir. Vinna við sjóvarnargarð var því stöðvuð á meðan mesta sigið átti sér stað.
    Hinn 11. júlí hófust svo framkvæmdir við malbikun og var sem fyrr byrjað á vesturenda flugbrautarinnar. Verkið dróst nokkuð miðað við áætlun og var ekki lokið fyrr en 24. ágúst, en áætlun gerði ráð fyrir að verkinu yrði lokið 10. ágúst. Við undirbúning og endurbyggingu Reykjavíkurflugvallar hefur sérstök áhersla verið lögð á að miklu skipti fyrir gæði verksins að malbikun tækist vel og uppfyllti þær kröfur sem settar voru fram. Við malbikun þess hluta sem lokið er nú hefur að mörgu leyti tekist að ná þeim markmiðum sem að var stefnt í upphafi. Sléttleiki brautarinnar og afvötnun er nokkuð góð. Þar sem verktíminn dróst nokkuð fram yfir áætlun óskaði verktakinn eftir því að fá að fresta lagningu efra malbikslags á austurenda brautarinnar frá brautarmótum, vegna þess að veðurskilyrði væru þannig að erfitt gæti reynst að uppfylla gæðakröfur og verður því malbiksyfirlagið sett á árið 2001. Til þess að verktaki gæti uppfyllt kröfur um þjöppun á neðra lagi malbiks á A–V flugbrautinni var fallist á að það yrði 5 cm í stað 4 cm eins og áætlað var.
    Þá hófst vinna við jarðvegsskipti og malbikun brautarmóta A–V og N–S flugbrautanna sem átti samkvæmt áætlun að taka um 14 sólarhringa. Sú áætlun raskaðist lítillega, en framkvæmdum var lokið 8. september, eða aðeins tveim sólarhringum seinna en áætlun gerði ráð fyrir, sem telja verður mjög gott þar sem þetta er einn viðkvæmasti framkvæmdaþáttur verksins hvað flugumferð varðar.
    Verktaki afhenti flugbrautina tilbúna til notkunar 21. október, eða um þremur vikum eftir áætlaðan tíma.
    Í verki af þessari stærðargráðu má alltaf búast við að upp komi mál á framkvæmdatíma sem ekki eru fyrirséð við upphaf framkvæmda. Þetta kemur ekki á óvart, sérstaklega þegar litið er til þess að verkið er unnið í nágrenni við viðkvæman hluta borgarinnar og íbúðahverfi í tiltölulega lítilli fjarlægð frá vinnusvæðinu.
    Ráðgert hafði verið að ýmsir hlutar verksins yrðu unnir allan sólarhringinn, en fljótlega eftir að byrjað var að brjóta upp steypu á A–V flugbrautinni komu kvartanir frá nágrönnum og var því ákveðið að hætta næturvinnu.
    Í umhverfismati og áætlunum vegna framkvæmdarinnar er gert ráð fyrir að fyllingarefni í flugbrautir sé að hluta til flutt sjóleiðina og því dælt inn að vinnusvæðinu. Einnig er gert ráð fyrir að óburðarhæfu efni sem tekið er upp úr brautarstæðum sé komið fyrir á flugvallarsvæðinu til þess að draga sem mest úr þungaumferð gegnum borgina. Með þetta í huga og einnig til þess að draga úr meintum hávaða á íbúðasvæði í Skerjafirði var uppgröfnu efni komið fyrir í mönum við Einarsnes sunnan við A–V flugbrautina. Fram kom nokkur óánægja meðal íbúa á svæðinu með áðurnefndar hljóðmanir, sem þeir töldu óþarfar og skertu útsýni þeirra til norðurs. Einnig hafði verið gert ráð fyrir að nýta mætti stór svæði við Vatnsmýrarveg til losunar á jarðefnum. Eftir að framkvæmdir hófust óskuðu borgaryfirvöld þess að þessi fyllingarsvæði við Vatnsmýrarveg yrðu ekki nýtt, þar sem þau væru að verulegu leyti á lóð Landspítalans. Ef ekki fæst leyfi til þess að losa efni innan flugvallarsvæðisins eins og ráð var fyrir gert mun það hafa í för með sér verulegt óhagræði og aukakostnað. Unnið er að lausnum á báðum þessum málum í samráði við borgaryfirvöld.
    Framkvæmdin var kynnt sérstaklega fyrir nágrönnum flugvallarins á þremur kynningarfundum sem boðað var til bréflega í ákveðnum hverfum. Sá fyrsti var fyrir íbúa í Skerjafirði, síðan var fundur fyrir íbúa í Norðurmýri og Hlíðahverfi, en sá síðasti fyrir íbúa í Þingholtum og Kvosinni. Á fundunum var farið yfir áætlaðar framkvæmdir og framkvæmdatíma, en einnig voru kynnt sjónarmið fulltrúa flugrekenda við völlinn.
    Á framkvæmdatímanum hefur rekstur flugvallarins gengið betur en gert var ráð fyrir. Ekki kom til þess að flytja þyrfti flugumferð til Keflavíkur eins og flugrekendur óttuðust í upphafi framkvæmda.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Samhliða jarðvegsskiptum var unnið að ídráttarkerfi fyrir ljósabúnað. Uppsetningu flugbrautarljósa á A–V flugbrautinni var lokið 27. október en ráðgert var að vinnu við uppsetningu flugleiðsögu- og leiðbeiningaskilta sem setja á upp í þessum verkáfanga lyki árið 2001. Starfsmenn Flugmálastjórnar sjá um þann verkþátt.
    Eftirfarandi tafla sýnir áætlaðan heildarkostnað verksins, áætlun verkhlutans og kostnað sem féll til árið 2000, framreiknað til núvirðis samkvæmt byggingarvísitölu í apríl 2001:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þess ber að geta að kostnaður og áætlun við 1. verkhluta er ekki alveg samanburðarhæfur þar sem framkvæmdur var á árinu hluti úr seinni áföngum.

4.2 Akureyrarflugvöllur.
     Byggingar. Lokið var við þriðja og síðasta áfanga vegna stækkunar og endurbóta á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli á árinu 2000. Verkið var boðið út og var samið við lægstbjóðanda, sem var Trétak ehf. Verkið gekk vel og stóðust allar verkáætlanir og var verkhlutinn sem eru endurbætur og stækkun á miðhluta hússins tekinn í notkun í byrjun nóvember sl.
    Byrjað var á endurbótum á starfsaðstöðu í flugturni og slökkvistöð á árinu 2000 að kröfu Vinnueftirlitsins, en þeim verkefnum er ekki lokið.
    Samtals var unnið við byggingar á Akureyrarflugvelli á árinu fyrir 62,7 millj. kr., þar af breytingar á flugstöðinni vegna Schengen að upphæð 2,5 millj. kr.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Unnið var áfram á árinu við endurnýjun flugbrautarljósa á flugvellinum og er verkinu ekki lokið, en endurbyggða ljósakerfið verður samkvæmt CAT-1 aðflugsstaðli. Framkvæmt var fyrir 10,8 millj. kr. á árinu í ljósakerfunum.
    Þá var keyptur á árinu nýr upptökubúnaður fyrir flugturninn og er kostnaður 1,7 millj. kr.

4.3 Vestmannaeyjaflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Á árinu 2000 var lagt út nýtt klæðningaryfirlag á flugbrautirnar í Vestmannaeyjum. Eldra klæðningaryfirlagið var frá árinu 1990 og þurfti því nauðsynlegrar endurnýjunar við. Samið var við Vestmannaeyjabæ um efnisvinnslu, en klæðningarútlögnin var boðin út. Samið var við Klæðningu hf. sem átti lægsta tilboð, en Almenna verkfræðistofan sá um hönnun og eftirlit. Verkið var unnið fyrri hluta sumars og skilað á áætlun. Heildarkostnaður við verkið varð 34,6 millj. kr.
     Byggingar. Lokið var á árinu mjög nauðsynlegum endurbótum á flugturninum í Vestmannaeyjum. Kostnaður sem til féll á árinu 2000 varð 8,8 millj. kr. Heildarkostnaður verksins er því 14,8 millj. kr.
    Endurnýjaðir voru á árinu 2000 að hluta innanstokksmunir í flugstöðinni. Kostnaður var 1,3 millj. kr.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Unnið var við endurnýjun flugbrautaljósa á Vestmannaeyjaflugvelli á árinu fyrir 1,5 millj. kr. Verkinu er ekki lokið.

4.4 Egilsstaðaflugvöllur.
     Byggingar. Lokið var við stækkun tækjageymslu á Egilsstaðaflugvelli. Samið var við Tréiðjuna Eini hf. um verkið á grundvelli einingarverða úr fyrra tilboði frá árinu áður. Kostnaður við verkið á árinu 2000 varð 3,4 millj. kr.

4.5 Ísafjarðarflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Hafin var undirbúningur að stækkun flughlaðsins á Ísafjarðarflugvelli. Kostnaður sem til féll á árinu 2000 er 1,4 millj. kr., en framkvæmdir hefjast væntanlega á árinu 2001.

4.6 Hornafjarðarflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Lokið var fyllingum í öryggissvæði flugvallarins og er þá eftir jöfnun og ræktun. Kostnaður á árinu varð 3,4 millj. kr.
     Byggingar. Byrjað var á verulegum endurbótum á flugstöðinni á Hornafirði árið 2000. Lokið var þakendurbótum. Verkið var boðið út og samið við lægstbjóðanda sem var Imstak ehf. Áætlanir stóðust vel og kostnaður á árinu varð 1,9 millj. kr. Áfram verður unnið að endurbótunum á árinu 2001.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Lokið var í upphafi ársins 2000 við svokallað aðflug úr norðri. Framkvæmt var á árinu fyrir 2,7 millj. kr.

4.7 Bíldudalsflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Lokið var við gerð endaöryggissvæðis á norðurenda flugbrautarinnar á Bíldudal. Verkið var boðið út og samið við Norðurtak ehf., en fyrirtækið átti lægsta tilboð. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. á Ísafirði sá um hönnun og eftirlit. Verkáætlanir stóðust og varð kostnaður við verkið 11,1 millj. kr. Ráðgert er að sett verði bundið slitlag á öryggissvæðið til þess að það megi nýtast í flugtak til suðurs.

4.8 Siglufjarðarflugvöllur.
     Byggingar. Kostnaður vegna viðhalds flugstöðvar og tækjageymslu á Siglufjarðarflugvelli árið 2000 var 1,6 millj. kr.

4.9 Þórshafnarflugvöllur.
    Engar framkvæmdir voru á Þórshafnarflugvelli árið 2000.

4.10 Vopnafjarðarflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Unnið var við flugbrautina á Vopnafjarðarflugvelli á árinu 2000 fyrir 0,9 millj. kr.

4.11 Gjögursflugvöllur.
     Byggingar. Lokið var á árinu við verulegar endurbætur á flugstöðinni á Gjögri. Húsið var einangrað og klætt að utan, þakjárn var endurnýjað, skipt um gólfefni, málað að innan og skipulagi innanhúss breytt til hagræðis fyrir starfsmann. Kostnaður við endurbæturnar varð 3,1 millj. kr.

4.12 Bakkaflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Á árinu 2000 var hafinn undirbúningur að uppbyggingu flugbrautanna á Bakkaflugvelli í Austur-Landeyjum. Núverandi flugbrautir eru með grasyfirborði og nánast engri undirbyggingu. Fyrirhugað er að hafa jarðvegskipti í brautunum og koma upp nokkuð burðarþolnum malarflugbrautum. Almenna verkfræðistofan hf. annast hönnun verksins og ráðgert er að verkið verði boðið út á þessu ári. Kostnaður við undirbúning verksins á árinu 2000 varð 2,1 millj. kr.

4.13 Stóri-Kroppur.
     Flugbrautir og hlöð. Á árinu var malarslitlag á flugvellinum á Stóra-Kroppi endurnýjað. Samið var við Borgarverk hf. um framkvæmdina og skilaði fyrirtækið verkinu á tilsettum tíma. Kostnaður á árinu 2000 varð 2,4 millj. kr.

4.14 Æfingaflugvöllur.
    Fjárveitingar og framkvæmdir við nýjan kennslu- og æfingaflugvöll á höfuðborgarsvæðinu eru fyrirhugaðar árið 2003, samkvæmt þingsályktun um flugmálaáætlun árin 2000–2003. Engu síður hafa nú þegar farið fram nokkrar athuganir á staðsetningu slíks flugvallar í nágrenni þéttbýlisins og varð kostnaður á slíkum athugunum á árinu 2000 alls 1,2 millj. kr.

4.15 Flugumferðar- og flugleiðsöguþjónusta.
     Upplýsingakerfi. Hér er um að ræða sérstakan búnað til útgáfu Flugmálahandbókar og til hönnunar og teikninga aðflugsferla. Búnaðurinn sem varð fyrir valinu var keyptur frá breska fyrirtækinu SERCO. Kostnaður á árinu 2000 var 14,9 millj. kr.
     GPS/WAAS/NAAN/ADS/LAAS. Þessi liður greiðir kostnað Flugmálastjórnar við þátttöku í gerfihnattaleiðsögu. Hönnun, flugprófanir og útgáfa GPS-aðflugs er rekin af þessum lið. Einnig er þáttur Íslands í samstarfsverkefni bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA), Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og Íslands við víðáttustoðkerfið (WAAS) greiddur af þessum lið. Kostnaður á árinu 2000 var 9,8 millj. kr.
     Veðurupplýsingakerfi. Unnið hefur verið að því að koma upp stöðluðum búnaði sem safnar saman veðurupplýsingum frá flugvöllum. Fyrir valinu varð búnaður frá finnska fyrirtækinu VAISALA. Kostnaður vegna þessa verkefnis á árinu 2000 var 10,4 millj. kr.
     Rannsóknarverkefni. Þau rannsóknarverkefni sem unnið er að eru hávaðamælingar umhverfis Reykjavíkurflugvöll og athuganir vegna næturaðflugs inn til Ísafjarðarflugvallar. Kostnaður á árinu 2000 var 7,0 millj. kr.
     Flugstjórnarmiðstöð. Af þessum lið er greiddur hlutur Íslands í hinum ýmsu framkvæmdum á vegum Alþjóðaflugþjónustunnar hér á landi. Á árinu 2000 var þessi kostnaður 5,0 millj. kr.
     Ýmis búnaður. Á árinu 2000 var 4,9 millj. kr. varið í ýmsan tilfallandi tækjabúnað til flugleiðsögu- og flugumferðarþjónustu. Algengt er að búnaður sem ekki var ráðgert að endurnýja á tímabilinu bili þannig að viðgerð verði ekki komið við og endurnýjun sé nauðsynleg.

Fylgiskjal I.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.






Fylgiskjal II.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Fylgiskjal III.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Fylgiskjal IV.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Fylgiskjal V.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.