Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1108  —  689. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um framkvæmd langtímaáætlunar í öryggismálum sjófarenda fyrir árin 2001–2003.

(Lögð fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


I. Langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda.
    Hinn 19. maí 2001 var samþykkt á Alþingi tillaga til þingsályktunar um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda sem samgönguráðherra lagði fram á Alþingi, en hún hefur verið birt í A-deild Stjórnartíðinda, nr. 99/2001. Í þingsályktuninni segir að samgönguráðherra skuli fyrir 1. apríl hvers árs, fyrst árið 2002, leggja fyrir Alþingi skýrslu um framgang áætlunarinnar og hvernig henni miðar í átt að settu marki.

II. Aðdragandi.
    Í byrjun ársins 2000 ákvað samgönguráðherra að hefja vinnu við að gera langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda. Skipuð var sérstök verkefnisstjórn 16. febrúar 2000 til að halda utan um verkið og var hún skipuð eftirfarandi fulltrúum, aðalmönnum og varamönnum: Frá samtökum sjómanna Guðjón Ármann Einarsson og Halldór A. Guðmundsson, frá samtökum útgerðarmanna Guðfinnur Johnsen og Örn Pálsson, frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu Hilmar Snorrason og Gunnar Tómasson, frá Siglingastofnun Íslands Jón Bernódusson og Ari Guðmundsson og frá samgönguráðuneyti Helgi Jóhannesson formaður og Jósef H. Þorgeirsson varaformaður.
    Langtímaáætlunin var unnin í samráði við hagsmunaaðila og kynnt á fundum siglingaráðs. Undirbúningur verksins fór fram innan Siglingastofnunar Íslands sem réð til sín tímabundið Ingimund Valgeirsson verkfræðing til að vinna að verkefninu. Á heimasíðu Siglingastofnunar Íslands, www.sigling.is/oryggi2000, var kynning á verkefninu og var öllum sem láta sig öryggismál sjómanna varða gefinn kostur á að koma eigin sjónarmiðum að. Til að geta betur metið leiðir sem þarf að fara til að bæta öryggi sjófarenda almennt var óskað eftir athugasemdum og tillögum frá sjómönnum, útgerðum og öllum sem málið varðar. Tekin voru saman ýmis sjónarmið sem fram hafa komið í skýrslum og almennri umræðu, svo sem í blöðum, tímaritum og á ráðstefnum. Sérsniðnar spurningar um öryggismál voru sendar til útgerðarfyrirtækja og sjómanna. Svör bárust frá um 120 starfandi sjómönnum og auk þess komu fram ýmsar aðrar skriflegar og munnlegar athugasemdir. Teknar voru saman upplýsingar úr þeim tilkynningum um slys á sjómönnum sem bárust Tryggingastofnun ríkisins árið 1999. Skoðaðar voru nýlegar sjóslysaskýrslur og rætt var við ýmsa aðila sem hafa góða þekkingu á ákveðnum sviðum öryggismálanna.
    Þegar athugasemdir og tillögur lágu fyrir kom í ljós að af ýmsu var að taka. Nauðsynlegt var að meta athugasemdir og velja úr og forgangsraða verkefnum eftir mikilvægi og umfangi. Í sumum athugasemdunum fólst talsverð gagnrýni á ákveðna aðila og sjálfsagt er hægt að grafast fyrir um hvort hún er á rökum reist en varast þarf að dæma heildina út frá einstaka tilvikum innan hvers málaflokks. Þegar áðurnefnd atriði höfðu verið skoðuð og metin dró verkefnisstjórn út atriði varðandi öryggismálin og tengd málefni sem skoða ætti sérstaklega.

III.     Tilgangur og markmið.
    Tilgangur með þingsályktun um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda er að hrinda af stað átaki í öryggismálum sjófarenda og að unnið verði eftir sérstakri áætlun í þeim málum á árunum 2001 til og með 2003. Markmið áætlunarinnar er að treysta öryggi íslenskra skipa og áhafna þeirra, sem og farþega á íslenskum skipum og skipum sem sigla í íslenskri efnahagslögsögu. Stefnt er að því að skilgreina hlutverk þeirra sem vinna að öryggismálum sjófarenda og að slysum til sjós fækki um að minnsta kosti þriðjung fram til ársins 2004.

IV. Fjármögnun.
    Í þingsályktun Alþingis um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda er gert ráð fyrir að veittar verði til hennar 10 millj. kr. á árinu 2001, 15 millj. kr. á árinu 2002 og 20 millj. kr. á árinu 2003, alls 45 millj. kr. á tímabilinu öllu.
    Í fjárlögum fyrir árið 2001 var ekki kveðið á um sérstaka fjárveitingu til áætlunarinnar á árinu 2001. Í ákvæði til bráðabirgða með lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001, sem samþykkt voru á Alþingi 20. maí 2001 kom eftirfarandi fram: „Undanþágusjóður, sem starfar skv. 3. mgr. 21. gr. laga um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 112/1984, með síðari breytingum, og 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, nr. 113/1984, með síðari breytingum, skal lagður niður. Andvirði sjóðsins skal notað til að standa straum af kostnaði við langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda.“
    Vegna þessa ákvæðis skrifaði samgönguráðuneytið bréf, dags. 15. maí 2001, til undanþágunefndar sem starfar samkvæmt fyrrnefndum ákvæðum laga um atvinnuréttindi skipstjórnar- og vélstjórnarmanna og vakti athygli nefndarinnar á nefndu ákvæði til bráðabirgða. Í bréfi ráðuneytisins kom þetta m.a. fram: „Í ljósi þessara breytinga telur ráðuneytið rétt að engar greiðslur eigi sér stað úr sjóðnum fram til 1. júlí nk. og að innheimt verði gjald fyrir veittar undanþágur til og með 30. júní nk. Svo fljótt sem verða má eftir þann tíma skal ganga frá uppgjöri sjóðsins og andvirði hans afhent Siglingastofnun Íslands til að standa straum af kostnaði við langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda.“ Undanþágunefnd lauk uppgjöri undanþágusjóðs með bréfi til samgönguráðuneytis, dags. 23. nóvember 2001. Andvirði sjóðsins 1. júlí 2001 þegar hann var lagður niður reyndist vera 6.086.234 kr. og barst sú fjárveiting Siglingastofnun í desember 2001. Það sem upp á vantaði að 10 millj. kr. fjárveitingu væri náð til verkefnisins ráðstafaði samgönguráðuneytið af fjárlagaliðnum 10.190.1.22 Fræðsluefni um öryggismál sjómanna.
    Fjárveiting til áætlunarinnar árið 2002 var ákveðin í fjárlögum fyrir það ár og sama verður gert vegna fjárveitingar ársins 2003.

V.     Framkvæmd áætlunarinnar.
    Samgönguráðuneytið fól Siglingastofnun Íslands með bréfi dags. 25. maí 2001 að annast framkvæmd áætlunarinnar, en í bréfinu segir m.a.:
    „Ráðuneytið felur Siglingastofnun hér með að fara með framkvæmd langtímaáætlunar í öryggismálum sjófarenda, sem samþykkt var á Alþingi 19. maí sl. Ráðuneytið leggur áherslu á að nú þegar verði hafist handa við að koma verkefnum samkvæmt áætluninni í framkvæmd. Sérstök athygli er vakin á því að samgönguráðherra skal fyrir 1. apríl hvers árs, fyrst árið 2002, leggja fyrir Alþingi skýrslu um framgang áætlunarinnar og hvernig henni miði í átt að settu marki.
    Ráðuneytið telur rétt að verkefnisstjórn sem vann að málinu komi jafnframt að framkvæmd hennar til að stéttarfélög sjómanna, útgerðir og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafi þar aðkomu og ábyrgð og verði hlutverk hennar að hafa ákveðið eftirlit með framgangi áætlunarinnar og stuðla að samstarfi þeirra aðila sem að málinu þurfa að koma.“
    Eins og áður er komið fram skipaði samgönguráðherra verkefnisstjórn 16. febrúar 2000 til að undirbúa og gera tillögur að langtímaáætlun. Verkefnisstjórn skilaði tillögum sínum til samgönguráðherra með bréfi dags. 19. desember 2000, sem urðu grunnur að tillögu til þingsályktunar um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda sem samgönguráðherra lagði fram á Alþingi í byrjun árs 2001.
    Siglingastofnun Íslands hefur, í samvinnu við verkefnisstjórn, gert sérstaka framkvæmdaáætlun um að koma einstökum verkefnum samkvæmt áætluninni í framkvæmd. Með bréfi dags. 21. desember 2001 óskaði Siglingastofnun Íslands eftir staðfestingu samgönguráðherra á þeirri framkvæmdaáætlun og staðfesti samgönguráðherra hana með bréfi dags. 19. febrúar 2002. Vegna þeirra tafa sem urðu við fjármögnun áætlunarinnar fyrir árið 2001 hefur dregist að setja sum verkefni af stað, en vonir standa til þess að á þessu ári takist að vinna upp þá seinkun. Meðfylgjandi er staðfest framkvæmdaáætlun sem hefur að geyma yfirlit um einstök verkefni áætlunarinnar, markmið þeirra, stöðu mála, ábyrgð og umsjón, fjármögnun, tímaramma, forgangsröðun og framvindu hvers verkefnis miðað við 15. mars 2002.

Framkvæmdaáætlun í öryggismálum sjófarenda 2001–2003.

1.1        Samræming sjómannamenntunar og aðlögun að alþjóðasamþykktum STCW og STCW-F
1.2        Endurmenntun skipstjórnarmanna
1.8        Ýmislegt fjarnám verði eflt og notað í eins miklum mæli og hægt er
Markmið
Að nám í íslenskum sjómannaskólum sé samræmt kröfum alþjóðasamþykkta. Að nám, þjálfun og endurmenntun skipstjórnar- og vélstjórnarmanna sé skipulagt þannig að það skili viðkomandi einstaklingi sem mestu, bæði í sjómannsstarfinu og í mati á náminu/þekkingunni innan almenna skólakerfisins og til annarra starfa í þjóðfélaginu. Að auka möguleika sjómanna á að afla sér menntunar samhliða starfi sínu.
Staða mála
Starfsgreinaráð um sjávarútvegsgreinar hefur unnið að endurskoðun námskráa fyrir skipstjórnar- og vélstjórnarmenntun. Vorið 2001 voru sett lög nr. 76/2001, um áhafnir farþega- og flutningaskipa, sem grundvallast á STCW-samþykktinni, samþykkt á Alþingi. Þingsályktun um fullgildingu á STCW-F var þá frestað.
    Stýrimannaskólinn, Endurmenntun vélstjóra, LHS Fossvogi og Slysavarnaskóli sjómanna hafa í boði ýmis námskeið og endurmenntun fyrir sjómenn og aðila sem þjónusta þá. Lög nr. 76/2001 gera kröfu um að þeir yfirmenn sem ekki hafa farið á sjó í fimm ár fari á endurmenntunarnámskeið vegna endurnýjunar atvinnuréttinda.
    Framboð á fjarnámi í ýmsum skólum hefur aukist síðustu ár og hafa sjómenn átt þess kost að stunda þannig nám. Notkun gervihnattasambands og farsíma gerir þetta mögulegt fyrir sjómenn sem eru á sjó en kostnaður við gagnaflutning er mjög hár við þessar aðstæður. Mikilvægt er að sjómenn hafi kost á fjarnámi á sem flestum sviðum og að kostnaði þeirra við það sé haldið í lágmarki.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun fer með ábyrgð og umsjón málsins.
    Sjómannaskólar hafi yfirumsjón með öllu skipulögðu námi, þjálfun og endurmenntun sjómanna, og stuðli að fjarnámi fyrir sjómenn á sem flestum sviðum.
Samstarfsaðilar
Menntamálaráðuneyti, starfsgreinaráð, sjómannaskólar, samgönguráðuneyti, hagsmunasamtök sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Vinna að þessum verkefnum sé fjármögnuð af menntamálaráðuneyti og viðkomandi stofnunum.
Langtímaáætlun styrki fjarnám sjómanna um:
    0,4 millj. kr. árið 2001,
    1,0 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Samstarfsaðilar vinni að útfærslu þessara mála og Siglingastofnun Íslands verði virkari í skipulagningu sjómannamenntunar.
    Námskrár sjómannaskóla þurfa að vera endurskoðaðar reglulega með tilliti til tækniframfara og alþjóðasamþykkta. Jafnframt skal stuðla að öflugri verklegri þjálfun og símenntun allra sjómanna.
    Áætlanir verði gerðar um fjarnám sérstaklega ætlað sjómönnum.
Tímasetningar
Þess er vænst að sjómannamenntun sé metin og endurskoðuð reglulega í framtíðinni. Jafnframt sé þörf fyrir endurmenntun metin árlega og í boði séu viðeigandi námskeið og þjálfun fyrir sjómenn.
Lög og reglugerðir
Lög um áhafnir íslenskra farþega- og flutningaskipa, nr. 76/2001, 3. og 5. gr.
Reglugerð um nám til skipstjórnarréttinda á skipi sem er 30 brúttótonn eða minna, nr. 531/2001.
Lög um framhaldskóla.
Lög um slysavarnaskóla sjómanna.
Reglugerð um lögskráningu sjómanna, nr. 880/2001.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 8, 9, 14, 15, 18, 20 og 21.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Lagt hefur verið fram frumvarp um breytingu á lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001, sem miðar að því að víkka gildissvið laganna og láta þau taka til allra skipa. Með frumvarpinu eru leidd í lög nauðsynleg ákvæði vegna alþjóðasamþykktar um menntun og þjálfun, vaktstöður og skírteini sjómanna á fiskiskipum, þ.e. STCW-F. Í frumvarpinu eru m.a. ákvæði um endurmenntun skipstjórnarmanna og vélstjórnarmanna vegna alþjóðasamþykktarinnar. Samhliða frumvarpinu mun utanríkisráðherra leggja fram tillögu til þingsályktunar um fullgildingu á alþjóðasamþykktinni (STCW-F).
    Siglingastofnun er að yfirfara námskrár sjómannaskóla með tilliti til alþjóðlegra krafna STCW og hefur lokið því fyrir Stýrimannaskólann í Reykjavík og Vélskóla Íslands.
    Siglingastofnun er einnig að yfirfara námskrár sjómannaskóla með tilliti til endurmenntunarnámskeiða samkvæmt STCW, sjá ákvæði 5. gr. laga nr. 76/2001. Stýrimannaskólinn, Endurmenntun vélstjóra, LHS Fossvogi og Slysavarnaskóli sjómanna hafa í boði ýmis námskeið og endurmenntun fyrir sjómenn og aðila sem þjónusta þá.
    Siglingastofnun Íslands mun leita eftir tillögum sjómannaskóla um fjarnám fyrir sjómenn.
1.3        Fræðsla og þjálfun í stöðugleika
3.1        Stöðugleikamál skipa og báta, hættur samfara ofhleðslu
Markmið
Að námskeið og fræðsla um stöðugleika smábáta séu sem aðgengilegust fyrir sjómenn um land allt og boðið verði upp á fjarnám á þeim vettvangi.
Staða mála
Samkvæmt rannsóknarnefnd sjóslysa hafa sjóslys oft verið rakin til ófullnægjandi þekkingar skipstjórnarmanna á stöðugleika eigin skipa (á einkum við um smábáta). Siglingastofnun hefur gert fræðsluefni og staðið fyrir átaksverkefnum í fræðslu um stöðugleika skipa, einnig eru í boði í Stýrimannaskólanum í Reykjavík sérstök námskeið í stöðugleika smábáta. Talin er þörf á að efla þessa fræðslu til muna.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun fer með ábyrgð og umsjón málsins.
Samstarfsaðilar
Stýrimannaskóli, Slysavarnaskóli sjómanna, Landssamband smábátaeigenda og tryggingafélög.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun kosti gerð fræðsluefnis og styrki námskeiðahald:
    1,0 millj. kr. árið 2001,
    1,5 millj. kr. árið 2002,
    1,0 millj. kr. árið 2003.
Jafnframt verði aflað viðbótarfjármagns hjá styrktaraðilum, svo sem með auglýsingum.
Framkvæmd
Gert verði fræðsluefni á myndbandi og DVD og bæklingur sem dreift verði til smábátasjómanna. Jafnframt verði haldið uppi áróðri í fjölmiðlum, svo sem fréttabréfum og boðið verði upp á verkleg námskeið í stöðugleika sem víðast. Samstarfsaðilar skilgreina og skipuleggja þetta verkefni nánar.
Tímasetningar
Gerð fræðsluefnis verði lokið fyrir ágúst 2002. Í framhaldi af því verði hafin áróðursherferð sem standi yfir í um tvo mánuði og verði síðan endurtekin að vori 2003. Námskeið verði í boði meðan áróðursherferðir standa yfir.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 7, 11, 13, 14 og 18.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Ákveðið hefur verið að fræðsluefni um stöðugleika verði útbúið og er undirbúningur þeirrar vinnu hafinn (tengist lið 4.1).
1.4        Verk- og öryggisstjórnunarfræðsla fyrir yfirmenn á skipum
Markmið
Að þekking yfirmanna í skipum um verkstjórn og vinnuhagræðingu sé almennt góð í öllum íslenska skipaflotanum. Að sem flestir yfirmenn í skipum sæki endurmenntun á námskeiðum í verkstjórn og öryggisstjórnun.
Staða mála
Nú er verkstjórnarfræðsla hluti af námi stýrimannsefna í Stýrimannaskólanum í Reykjavík en mikilvægt er að þeir sem luku námi áður en verkstjórnarfræðslan var tekin upp fái endurmenntun í þeim fræðum. Til að sjómenn og verkstjórnendur í skipum komi á slík námskeið þarf að vera fyrir hendi hvati þannig að eftirsóknarvert sé að fá slíka menntun.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Sjómannaskólar skipuleggi endurmenntunarnámskeið yfirmanna í þessum fræðum.
Samstarfsaðilar
Siglingastofnun Íslands.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun veiti styrk til námskeiðahalds um 0,5 millj. kr. árið 2002 og annar kostnaður greiðist af þátttakendum á námskeiðum.
Framkvæmd
Unnið verði fræðsluefni fyrir þátttakendur námskeiða í byrjun árs 2002 og verði námskeið síðan auglýst sem víðast.
Tímasetningar
Í boði verði nokkur námskeið á ári frá og með árinu 2002.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 8 og 15.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Slysavarnaskóli sjómanna býður upp á námskeið í öryggisstjórnun/verkstjórn í samvinnu við Endurmenntun vélstjóra og Öryggiskeðjuna.
1.5        Öryggisfræðsla sjómanna á fimm ára fresti
Markmið
Að sjómenn sæki öryggisfræðslunámskeið eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.
Staða mála
Í Slysavarnaskóla sjómanna eru haldin námskeið í öryggisfræðslu sjómanna sem standa í fimm daga vegna STCW-krafna en voru þau einungis fjórir dagar áður. Fræðsla og þjálfun skiptir miklu í öryggismálum og því nauðsynlegt að standa vel að þeim málum gagnvart sjómönnum. Það er staðreynd að ekki dugir að koma einu sinni á námskeið því fræðin sem kennd eru vilja falla í gleymsku og jafnframt er þróun öryggisbúnaðar í skipum sem betur fer nokkur og því þörf á að notkun nýrra tækja, búnaðar og aðferða sé kennd.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Samgönguráðuneyti setji kröfur um endurmenntun í öryggisfræðslu.
Samstarfsaðilar
Siglingastofnun og Slysavarnaskóli sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Kostnaður fjármagnast af þátttakendagjöldum á endurmenntunarnámskeiðum.
Framkvæmd
Sett verði reglugerð sem kveði á um þau skilyrði fyrir lögskráningu að skipverji sæki öryggisfræðslunámskeið eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.
    Slysavarnaskóla sjómanna verði falið að skipuleggja og halda endurmenntunarnámskeið í öryggisfræðslu. Siglingastofnun samþykki umfang og námsefni endurmenntunarnámskeiða.
Tímasetningar
Á árinu 2002 verði haldin endurmenntunarnámskeið í öryggisfræðslu sjómanna.
Lög og reglugerðir
Lög nr. 43/1987, um lögskráningu sjómanna.
Reglugerð um lögskráningu sjómanna, nr. 880/2001.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 15.
Framvinda verkefnis
Mars 2002
Reglugerð um lögskráningu sjómanna, nr. 880/2001, gerir kröfu um endurmenntun á öryggisfræðslu sjómanna á fimm ára fresti, sjá 2. mgr. 4. gr. Skipverjar sem gengust undir námskeið í öryggisfræðslu hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða hjá öðrum viðurkenndum þjálfunaraðila á árinu 1997 eða fyrr hafa frest til að gangast undir slíkt námskeið til 1. janúar 2005.
1.6        Námskeið í notkun og meðhöndlun búnaðar til hífinga (tengist 4.3)
Markmið
Í menntun sjómanna verði lögð aukin áhersla á þjálfun þeirra í stjórnun krana og vindu. Gerð verði krafa um sérstök réttindi þeirra sem sjá um stjórnbúnað krana eða vindu.
Staða mála
Í landi er þess krafist að stjórnendur krana sæki sérstök námskeið til að öðlast réttindi á þá, en í skipum er ekki gerð nein krafa um þjálfun eða réttindi þeirra sem hafa með höndum stjórnun krana eða vindu þrátt fyrir að stjórnun krana í skipum sé mun erfiðari en krana í landi vegna hreyfingar skips. Mikilvægt er að gera áætlun um fræðslu og þjálfun sjómanna í notkun krana og vindu.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Slysavarnaskóla sjómanna verði falið að gera tillögu að fyrirkomulagi námskeiða og að semja samræmt námsefni fyrir stjórnun krana og vindu í skipum.
Samstarfsaðilar
Samtök útgerða og stéttarfélaga sjómanna, Siglingastofnun, skipafélög og Vinnueftirlit ríkisins komi að þessu verkefni.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki gerð samræmds fræðsluefnis um:
    0,2 millj. kr. árið 2001,
    0,3 millj. kr. árið 2002,
    0,3 millj. árið 2003.
Aðrir kostnaðarliðir leggist á útgerðir viðkomandi skipa.
Framkvæmd
Samið verði sérstakt samræmt fræðsluefni um hífingar fyrir áhafnir skipa og haldin verði námskeið sem veiti þátttakendum réttindi til að stjórna krönum og vindum um borð í skipum.
    Hjá Vinnueftirliti ríkisins hafa verið í boði námskeið í notkun krana og mikilvægt er að gott samstarf náist við starfsmenn þess.
Tímasetningar
Gerð fræðsluefnis ljúki fyrri hluta ársins 2002 og frá júlí 2002 verði haldin nokkur námskeið á ári í stjórnun krana og vindu í skipum.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 8, 13 og 15.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að gerð fræðsluefnis um hífingar sem stefnt er að ljúka á fyrri hluta ársins 2002.
1.7        Námskeið fyrir leiðsögumenn/hafnsögumenn
Markmið
Að treysta öryggi íslenskra sem erlendra skipa á siglingu við land og inn á hafnir landsins.
Staða mála
Vandamál hafa komið upp varðandi leiðsögn skipa hér við land vegna misskilnings í samskiptum þar sem staðlað orðaval samkvæmt samþykkt IMO er ekki notað. Æskilegt er að leiðsögumenn/hafnsögumenn sæki sérstök námskeið og fái viðeigandi starfsþjálfun.
    Sérstök námskeið fyrir hafnsögumenn hafa verið í boði hjá Stýrimannaskólanum í Reykjavík.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Samgönguráðuneyti og Siglingastofnun skilgreini kröfur til hafnsögumanna/leiðsögumanna.
Samstarfsaðilar
Stýrimannaskóli, hafnir og hafnasamlög.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki námskeiðahald um 0,2 millj. kr. árið 2001.
Framkvæmd
Stýrimannaskóli skipuleggi og haldi námskeið fyrir leiðsögumenn/hafnsögumenn.
Tímasetningar
Haldin verði námskeið eftir þörfum hvert ár.
Lög og reglugerðir
Lög nr. 34/1993, um leiðsögu skipa.
Reglugerð um leiðsögu skipa.
Væntanlegt frumvarp um öryggi siglinga og öryggisþjónustu við skip.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 16.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Verið er að vinna að frumvarpi til laga um öryggi siglinga og fjarskipaþjónustu við skip þar sem m.a. verður fjallað um leiðsögu skipa og menntun og þjálfun leiðsögumanna.
    Siglingastofnun mun, í samstarfi við Stýrimannaskólann, fjalla um námskeið fyrir starfsmenn hafna.
2.1        Áhættumat á siglingaleiðum farþegaskipa
Markmið
Að auka öryggi við siglingu skipa sem flytja farþega við landið. Að hættulegar siglingaleiðir séu kortlagðar og að sigling farþegaskipa verði takmörkuð við öruggar siglingaleiðir. Jafnframt að gerð sé áætlun fyrir viðbragðsaðila ef neyðarástand verður um borð í innlendu eða erlendu farþegaskipi við landið.
Staða mála
Siglingar með farþega í skemmti- og skoðunarferðum hafa aukist mikið hér við land síðustu ár og einungis hluti skipanna fellur undir ströngustu öryggiskröfur laga og reglugerða varðandi farþegaskip og farþegabáta. Samkvæmt skýrslum rannsóknarnefndar sjóslysa hafa orðið óhöpp hjá farþegaskipum vegna vanhugsaðra siglinga í slæmu veðri á ókortlögðu svæði og þegar siglt er of nærri landi.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Hafnasvið og skipasvið Siglingastofnunar hafi forgöngu um að áhættumat sé gert.
Samstarfsaðilar
Útgerðir farþegaskipa, Landhelgisgæsla, Almannavarnir og björgunarsveitir.
Aðilar sem eru sérhæfðir í áhættugreiningu sambærilegra verkefna.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki verkefnið um:
    0,7 millj. kr. árið 2001,
    1,2 millj. kr. árið 2002,
    0,7 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Skipaður verði starfshópur sem vinni að áhættumati og tillögum til úrbóta. Helstu siglingaleiðir farþegaskipa og farþegabáta verði metnar með hliðsjón af farsviði hvers skips og ákvarðað hvort þörf sé á að takmarka eða banna siglingu þeirra á tilteknum svæðum og/eða árstímum. Starfshópurinn geri viðbragðsáætlanir vegna mismunandi neyðaraðstæðna hjá farþegaskipum á siglingaleiðum þeirra við landið.
Tímasetningar
Verkefninu verði lokið á árinu 2003.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 13.
Framvinda verkefnis
Undirbúningur að áhættumati á siglingaleiðum er hafinn hjá Siglingastofnun.
2.2        Námskeið í stjórnun farþega á neyðarstundu
Markmið
Þekkingu og þjálfun áhafna farþegaskipa og farþegabáta sé viðhaldið til að tryggja eins og unnt er öryggi við siglingu með farþega á íslenskum skipum.
Staða mála
Í lögum nr. 76/2001, um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, er kveðið á um að áhafnir farþegaskipa sæki námskeið um farþegaflutninga á skipum og stjórnun mannfjölda á neyðarstundu sem skipulagt sé af sjómannaskóla í samráði við Siglingastofnun.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Sjómannaskólar skipuleggi námskeið samkvæmt kröfum laga og reglugerða um slíkt nám.
Samstarfsaðilar
Útgerðir farþegaskipa og Siglingastofnun.
Áætluð fjármögnun
Námskeiðahald verði fjármagnað með þátttakendagjöldum.
Framkvæmd
Áhafnir allra farþegaskipa og farþegabáta skulu hafa sótt námskeið í stjórnun mannfjölda á neyðarstundu eigi síðar en 1. júní 2002 og síðan verði haldin slík námskeið að vori hvers árs fyrir nýja áhafnarmeðlimi og sem símenntun áhafna farþegaskipa.
    Setja þarf ákvæði í reglugerð um lögskráningu um að eftir 1. júní 2002 fái réttindamenn ekki lögskráningu á farþegaskip nema hafa farið á slíkt námskeið.
Tímasetningar
Námskeið verði haldin í þeim mæli að unnt sé að uppfylla kröfur laga nr. 76/2001.
Lög og reglugerðir
Lög nr. 76/2001, um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, 3. mgr. 9. gr. og ákvæði til bráðabirgða.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 14.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Slysavarnaskóli sjómanna hefur fengið viðurkenningu Siglingastofnunar á námskrá fyrir námskeið í „neyðarstjórnun“ og „hópstjórnun“ og hafa slík námskeið þegar verið haldin. Námskeið verða haldin í þeim mæli að unnt sé að uppfylla kröfur laga nr. 76/2001.
2.3        Úrbótatillögur vinnuhóps framkvæmdar o.fl.
Markmið
Að bæta öryggi farþegaskipa og farþegabáta með því að koma á og viðhalda skipulögðu fyrirkomulagi í öryggismálum þeirra.
Staða mála
Vinnuhópur starfsmanna Siglingastofnunar og Slysavarnaskóla sjómanna gerði úttekt á öryggismálum í skipum með leyfi til farþegaflutnings og kynnti tillögur til úrbóta í byrjun árs 2000 þar sem staða mála var ekki í nægilega góðum farvegi. Þörf er á að taka öryggismál farþegaskipa föstum tökum.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun skipuleggur aðgerðir sem stuðla að bættu fyrirkomulagi öryggismála farþegaskipa.
Samstarfsaðilar
Sjómannaskólar, útgerðir farþegaskipa, LHG, lögregla og lögskráningarstjórar.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki verkefni um:
    0,6 millj. kr. árið 2001,
    0,8 millj. kr. árið 2002,
    0,8 millj. kr. árið 2003.
Umframkostnaður greiðist af Siglingastofnun og útgerðum farþegaskipa.
Framkvæmd
     1.      Eftirlit Siglingastofnunar með skipum og búnaði verði aukið, t.d. tvær skoðanir á ári.
     2.      Öryggisbúnaður farþegaskipa verði skoðaður og metinn sérstaklega.
     3.      Áhafnamál séu metin og mönnun skoðuð með tilliti til öryggisþátta.
     4.      Markvisst verði unnið að eflingu sjálfshjálpar meðal farþega.
     5.      Farþegaskip og farþegabátar vinni samkvæmt gæðastaðli.
     6.      Í farþegaskipum haldi áhafnir æfingar með farþegum einu sinni eða oftar á sumri.
     7.      Öryggisplani sé viðhaldið og neyðaráætlun sé stöðugt uppfærð miðað við áhöfn hverju sinni.
     8.      Lýsandi merkingum við útgönguleiðir sé komið upp og þeim sé haldið við.
     9.      Í farþegaskipum sé fjórblöðungur um öryggismál viðkomandi skips.
Tímasetningar
Atriði í 5. tölul. verði lögleitt fyrir 2003 og vinna að öðrum atriðum hefjist í lok ársins 2001.
Lög og reglugerðir
Reglugerð nr. 463/1998, um leyfi til farþegaflutninga með skipum.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 14.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Hluta þessara verkefna verður framfylgt samhliða lögum nr. 76/2001 sem fjalla m.a. um menntun og þjálfun áhafnar, öryggismönnun og vaktstöður á farþegaskipum. Sett hefur verið reglugerð á grundvelli þeirra laga um vaktstöður um borð í íslenskum farþegaskipum og flutningaskipum nr. 599/2001 og gerðar hafa verið kröfur um að allir í áhöfnum farþegaskipa sæki námskeið um farþegaflutninga með skipum og stjórnun mannfjölda á neyðarstundu, sbr. verkefni 2.2.
    Í reglugerð nr. 666/2001 eru ítarleg ákvæði um smíði og búnað farþegaskipa í innanlandssiglingum sem taka til allra nýrra farþegaskipa og gamalla farþegaskipa sem eru 24 metrar að lengd og lengri.
    Siglingastofnun mun efla þennan þátt eftirlits í aðalskoðunum og skipulagi skyndiskoðana.
    Siglingastofnun mun gera drög að bæklingi fyrir farþega um öryggi farþegaskipa sem útgerðir skipanna gætu nýtt sér við gerð eigin bæklings.
3.2        Átak til að nýliðafræðslu sé betur sinnt
3.10    Frágangur og umgengni á neyðarbúnaði skipa
3.11    Mikilvægi skipulagðra æfinga og þjálfunar í skipum
Markmið
Að fækka slysum sem tengjast þekkingarleysi starfsmanna sem eru að hefja störf eða sinna nýju starfi um borð í skipi.
    Að tryggja gott ástand neyðarbúnaðar og að rétt sé brugðist við ef neyðarástand verður í skipi.
Staða mála
Nýliðafræðsla er lögbundin skv. 8. gr. sjómannalaga, nr. 35/1985, en samkvæmt heimildum er brotalöm á að þetta ákvæði sé virt í íslenskum skipum. Sama má segja um björgunar- og eldvarnaæfingar, þ.e. að reglur eru til en almennt er ekki farið eftir þeim. Frágangur og umgengni um neyðarbúnað skipa eru stundum gagnrýnd. Stuðla þarf að því að rétt sé gengið frá búnaðinum í skipum.
    Það er fullyrt að góð starfsþjálfun og nýliðafræðsla sé ein árangursríkasta leiðin til að fækka vinnuslysum til sjós og æfingar eru grundvöllur þess að rétt sé brugðist við raunverulegum neyðaraðstæðum og því mikilvægt að taka á þessum málum.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Slysavarnaskóla sjómanna verði falið að gera kynningarefni og halda uppi áróðri.
Siglingastofnun skipuleggi aðgerðir varðandi fyrirkomulag eftirlits.
Samstarfsaðilar
LÍU, SÍK, LHG og Slysavarnaskóli sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun ráðstafi fé til að gera kynningarefni og til áróðurs og auglýsingar:
    0,5 millj. kr. árið 2001,
    0,5 millj. kr. árið 2002,
    0,5 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Gert verði sérstakt kynningarefni og átaki komið af stað til þess að:
     –      nýliðafræðslu sé sinnt betur,
     –      neyðarbúnaður sé rétt settur upp í skipum,
     –      umgengni um neyðarbúnað skipa sé ávallt góð,
     –      æfingar og þjálfun í skipum séu skipulagðar og haldnar samkvæmt kröfum.
    Átakið feli í sér áróður sem beint verði til skipstjórnarmanna og áhafna. Jafnframt verði eftirlit Siglingastofnunar og Landhelgisgæslu aukið með þessum þáttum öryggismálanna.
Tímasetningar
Átaksverkefni fari fram á árunum 2001–2003.
Lög og reglugerðir
Sjómannalög, nr. 35/1985, 8. gr.
Reglur nr. 189/1994, um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa.
Reglugerð nr. 26/2000, um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða lengri.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 6, 7, 8 og 15.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að gerð fræðslubæklinga um ýmsa þætti öryggismála sem dreift verður til útgerða og sjómanna.
    Unnið er að því að auka eftirlit Siglingastofnunar og Landhelgisgæslu með þessum þáttum öryggismála, sbr. verkefni 13.2 og 13.5.
3.3        Leiðbeiningar fyrir öryggisfulltrúa
12.        Stuðla þarf að því að öryggistrúnaðarmannakerfi verði tekið upp til reynslu í fiskiskipum
13.4    Öryggisfulltrúar útgerða og áhafna séu skipaðir
Markmið
Að útgerðarmenn og áhöfn beri sameiginlega ábyrgð á því að fyrirkomulag öryggismála í skipum sé í góðu horfi. Að áhafnir skipa axli ábyrgð gagnvart öryggi og heilsu og verði virkari í mótun öryggismála og vinnuumhverfis í eigin skipum.
Staða mála
Í fyrirtækjum á landi hefur það tíðkast um langt skeið að sérstakir öryggisfulltrúar séu skipaðir og hafa þeir samstarf við Vinnueftirlitið sem gerir fræðsluefni og heldur námskeið fyrir þá. Slíkt fyrirkomulag hefur ekki tíðkast í skipum, en vert væri að stuðla að því. Í reglugerð nr. 786/1998, um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna í skipum, er meðal annars ákvæði um tilnefningu öryggis- og heilbrigðisfulltrúa. Gera þarf átak til að kynna reglugerðina og fylgja þarf eftir að unnið sé eftir kröfum hennar.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun Íslands.
Samstarfsaðilar
Útgerðir, LÍÚ, SÍK, SÍ, Slysavarnaskóli sjómanna, Vinnueftirlitið og samtök sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki gerð fræðsluefnis og ráðgjöf fyrir öryggisfulltrúa um 1,0 millj. kr. á árinu 2002.
Framkvæmd
Útbúa þarf fræðslu- og leiðbeiningarefni fyrir öryggis- og heilbrigðisfulltrúa þar sem ábyrgð og verksvið þeirra er skilgreint. Til hliðsjónar væri hægt að hafa fyrirkomulag Vinnueftirlitsins eða það sem notað er hjá nágrannaþjóðum, svo sem í dönskum skipum.
    Skipaðir öryggis- og heilbrigðisfulltrúar í skipum skulu tilkynntir til Siglingastofnunar.
    Huga þarf að því hvort þörf sé á að hafa í boði sérstök námskeið fyrir öryggis- og heilbrigðisfulltrúa.
    Meta þarf notagildi öryggistrúnaðarmannakerfis og hugsanlega taka upp slíkt kerfi til reynslu í íslenskum skipum.
Tímasetningar
Fræðsluefni verði útbúið á árinu 2002 og dreift til útgerða og skipaðra öryggisfulltrúa, t.d. á netinu.
Lög og reglugerðir
Reglugerð nr. 786/1998, um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna í skipum.
Forgangsröð: B.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 9, 12 og 15.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að samningu fræðslurits fyrir öryggisfulltrúa í skipum. Eftirlit með skipan öryggisfulltrúa verður hjá Siglingastofnun.
3.4        Skipulegt eftirlit áhafna með öryggisþáttum, svo sem búnaði
(3.5    Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn eldsvoða)
3.6        Kostir öryggisstjórnunarkerfa fyrir útgerðir og áhafnir
11.        Stuðla þarf að því að öryggis- og gæðastjórnunarkerfi séu notuð á sem flestum sviðum
Markmið
Útgerðarmenn og áhöfn beri sameiginlega ábyrgð á því að fyrirkomulag öryggismála í skipum sé í góðu horfi. Að hvetja útgerðir og áhafnir til að vinna saman að reglulegu og virku eftirliti með öryggisþáttum í skipum.
Staða mála
Vegna alþjóðakrafna eru útgerðir kaupskipa að innleiða öryggisstjórnunarkerfi samkvæmt ISM-staðli í skipum sínum. Vænlegt er að huga að sambærilegum leiðum varðandi öryggismál annarra skipa og sérstaklega fiskiskipa. Ljóst er að bæta má öryggismál í fiskiskipum með því að skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir, fræðslu og þjálfun fyrir áhöfn og eftirlit með búnaði skipa. Hinn 21. apríl 1998 staðfestu fulltrúar FFSÍ, LÍÚ, SSÍ, VSFÍ og SVFÍ samþykkt um að æskilegt væri að skipuleggja samræmt öryggiskerfi fyrir sæfarendur og hefur SVFÍ í samvinnu við áhafnir nokkurra fiskiskipa unnið drög að slíku kerfi.
    Í nýjustu reglugerðum er varða öryggismál fiskiskipa eru ákvæði um skipulagt forvarnarstarf, reglubundið eftirlit með búnaði og að notaðir séu gátlistar við eftirlit. Slíkar kröfur eru í samræmi við kröfur öryggisstjórnunarkerfa.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun setji fram kröfur til öryggisstjórnunarkerfa sem stofnunin mundi viðurkenna. Útgerðir sem velja að nota öryggisstjórnunarkerfi skipuleggi þau í samræmi við kröfur Siglingastofnunar.
    Slysavarnaskóla sjómanna verði falið að gera kynningarefni um öryggisstjórnunarkerfi.
Samstarfsaðilar
Útgerðir, LÍÚ, SSÍ, FFSÍ, VSFÍ og Slysavarnaskóli sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki gerð kynningarefnis, áróður og ráðgjöf um:
    0,2 millj. kr. árið 2001,
    0,5 millj. kr. árið 2002,
    0,5 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Unnið verði kynningarefni um öryggisstjórnunarkerfi sem samræmast kröfum Siglingastofnunar til slíkra kerfa sem yrðu viðurkennd af stofnuninni eða öðrum aðilum sem stofnunin viðurkennir.
    Velja þyrfti aðila sem tækju að sér að aðstoða útgerðarfélög við gerð öryggisstjórnunarkerfa og að koma þeim formlega á.
    Huga þyrfti að leiðum til að hvetja útgerðir til að taka upp öryggisstjórnunarkerfi og til að tryggja að áhafnir vinni eftir skipulagi þess.
Tímasetningar
Kröfur til öryggistjórnunarkerfa verði skilgreindar fyrri hluta ársins 2002 og kynning fari fram seinni hluta þess.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 6, 7, 15 og 20.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Hjá Slysavarnaskóla sjómanna er verið að þróa öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip og gætu útgerðir hugsanlega aflað fanga þar.Kynningarefni um öryggisstjórnunarkerfi almennt verður gert á árinu 2002.
3.5        Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn eldsvoða
3.8        Kynna að til sé margvíslegur öryggisbúnaður auk skyldubúnaðar
3.9        Kynning á öryggisbúnaði fyrir smábáta
3.13    Varnir gegn fallhættu
Markmið
Að sjómenn öðlist meiri vitneskju um áhættuþætti og fái betri upplýsingar um aðferðir og búnað sem hægt er að beita til að minnka áhættuna.
Staða mála
Oft er viðhorf áhafna skipa slíkt að ekki þurfi að huga að öryggismálum þar sem skipið sé skoðað einu sinni á ári af skoðunarmönnum í landi og því hljóti öll öryggisatriði að vera í góðu lagi á gildistíma haffærisskírteinis. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að skoðunarvottorð segir eingöngu til um hvernig ástand skips var á þeim degi þegar skoðað var og að lögbundinn öryggisbúnaður hafi verið um borð þann dag. Þess vegna þarf að leggja áherslu á að hvetja áhafnir til að viðhalda góðu ástandi skips og búnaðar milli skoðana og að hægt sé að gera betur í öryggismálum en eingöngu að uppfylla þær lágmarkskröfur sem tilgreindar eru í lögum og reglugerðum.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Slysavarnaskóla sjómanna verði falið að útbúa kynningarefni og halda uppi áróðri um áhættu og varnir.
Samstarfsaðilar
Útgerðir, SÍ og Slysavarnaskóli sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun ráðstafi fé til að gera kynningarefni og til áróðurs:
    1,0 millj. kr. árið 2001,
    1,0 millj. kr. árið 2002,
    1,0 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Samið verði sérstakt kynningarefni og hafið átak til þess að:
     –      kynna fyrirbyggjandi aðgerðir gegn eldsvoða, svo sem viðhald búnaðar, hreinlæti og umgengni,
     –      vekja áhafnir skipa til umhugsunar um fallhættu og varnir gegn henni,
     –      kynna ýmsar leiðir til að bæta öryggi um borð í skipum,
     –      kynna öryggisbúnað fyrir smábáta, svo sem líflínur, bárufleyg, öryggisslár.
    Átakið feli í sér áróður sem beint verði til útgerða og áhafna.
Tímasetningar
Átaksverkefni fari fram á árunum 2001–2003.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 7, 10, 11,12, 13 og 15.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að samningu fræðslubæklinga um ýmsa þætti öryggismála sem dreift verður til útgerða og sjómanna.
3.7        Kynning á lögum og reglum sem taka gildi
13.3    Fræða þarf útgerðarmenn og áhafnir um tilgang laga og reglna
Markmið
Að útgerðir og áhafnir skipa fái ávallt vitneskju um lög og reglugerðir sem taka gildi.
Staða mála
Lög og reglugerðir sem taka gildi eru birt í Stjórnartíðindum og oft hefur Siglingastofnun kynnt þau í fréttabréfi sínu „Til sjávar“. Komið hefur fyrir að Siglingastofnun haldi sérstaka kynningu um reglugerðir fyrir málsaðila. Í sjómannaalmanaki eru jafnframt lög og reglugerðir sem tengjast öryggi sjófarenda. Þrátt fyrir það virðist sem áhafnir skipa hafi almennt litla þekkingu eða vitneskju um mörg lög og reglur sem varða öryggismál þeirra. Finna þarf leiðir til að bæta þekkingu þeirra á lögum og reglum og tilgangi þeirra.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun Íslands.
Samstarfsaðilar
Samgönguráðuneyti.
Fjármögnun
Framkvæmd
Siglingastofnun skipuleggi og komi á formlegu fyrirkomulagi kynninga á lögum og reglugerðum og kynni þau mikilvægustu sem víðast.
    Lög og reglugerðir um öryggismál sjómanna séu aðgengileg á heimasíðu Siglingastofnunar.
Tímasetningar
Lög og reglugerðir séu kynnt þeim er málið varðar við gildistöku þeirra.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: B.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 12, 15, 18, 21, 22 og 23.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Innan Siglingastofnunar er unnið að því að einfalda og samhæfa laga- og reglugerðarumhverfi öryggismála og verða þau aðgengileg á heimasíðu stofnunarinnar.
3.12    Greining áhættu í vinnuumhverfi sjómanna
Markmið
Að áhafnir skipa séu hæfar til að vinna skipulega að greiningu áhættu í eigin vinnuumhverfi og að vinna markvisst að forvörnum gegn slysum, óhöppum og heilsutjóni.
Staða mála
Á grundvelli tilskipunar Evrópuráðsins nr. 89/391/EBE var sett reglugerð nr. 786/1998 um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna um borð í skipum. Í reglugerðinni er ákvæði um forvarnarvinnu gegn áhættu í skipum sem felur m.a. í sér að framkvæmt sé hættumat varðandi öryggi og heilsu á vinnustað.
    Í mörgum löndum Evrópusambandsins er þetta ákvæði tekið alvarlega og hafa stofnanir lagt metnað í að aðstoða áhafnir við gerð áhættumats í skipum, enda er tekið hart á þeim sem virða ekki þetta ákvæði. Mikilvægt er að stuðlað sé að því að áhættumat sé gert í íslenskum skipum samkvæmt reglugerðinni.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun ber ábyrgð á gerð áhættumats.
Samstarfsaðilar
Útgerðir, LÍÚ, SÍK og Slysavarnaskóli sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki gerð fræðsluefnis og ráðgjöf fyrir áhafnir um:
    1,0 millj. kr. árið 2002,
    1,3 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Útfærsla og umfang áhættumats sé skilgreint af Siglingastofnun, ásamt kröfum um upplýsingaskyldu til stjórnvalda og söfnun staðfestinga á að áhættumat hafi verið gert.
    Gerðar verði leiðbeiningar fyrir áhafnir um áhættumat og forvarnir.
    Kröfur reglugerðarinnar séu kynntar og því fylgt eftir að þær séu virtar í öllum viðkomandi skipum.
Tímasetningar
Áhættumat í skipum verði skilgreint og fræðsluefni gert á árinu 2002. Áhafnir skipa ljúki áhættumati um borð í eigin skipum á árinu 2003.
Lög og reglugerðir
Reglugerð nr. 786/1998, um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna um borð í skipum.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 9, 12, 13 og 15.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Árin 1998 og 1999 gerði SVFÍ tilraun með notkun viðurkenndrar áhættugreiningaraðferðar í samstarfi við áhafnir nokkurra fiskiskipa. Mögulega væri hægt að nýta reynslu sem fékkst við þá vinnu.
    Leiðbeiningar um áhættumat verða gerðar aðgengilegar fyrir útgerðir og áhafnir á árinu 2002.
4.1                Handbækur, bæklingar eða myndbönd um öryggismál
4.2–4.5    Fræðsluefni um æfingar, hífingarbúnað, frágang neyðarbúnaðar, vinnuöryggi o.fl.
Markmið
Að stuðla að auknum forvörnum gegn slysum og óhöppum til sjós. Að fræðsluefni og leiðbeiningar um öryggismál sjófarenda sé til á íslensku og sé aðgengilegt sjómönnum um borð í eigin skipum, þannig að skipuleg fræðsla geti farið fram um borð til að viðhalda og efla þekkingu sjómanna á öryggismálum þeirra.
Staða mála
Ýmislegt fræðsluefni hefur verið gert, en mikið af því er komið til ára sinna, er úrelt eða ekki hæft til fjölföldunar og dreifingar. Jafnframt hafa verið gerð drög að margs konar fræðsluefni sem ekki hefur tekist að klára vegna skorts á fjármagni o.fl. Myndbanki sjómanna hefur verið óvirkur um árabil og þyrfti að huga að breytingum á fyrirkomulagi hans og styrkja sem víðast gerð, útgáfu og dreifingu fræðsluefnis um öryggismál sjófarenda.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun felur aðilum að vinna eða semja um ákveðna verkhluta.
Samstarfsaðilar
SÍK, LÍÚ, LS, FFSÍ, VSFÍ, SSÍ, Slysavarnaskóli sjómanna, Stýrimannaskóli, Vélskóli, Myndbanki sjómanna, Endurmenntun vélstjóra, Vinnueftirlitið.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrkir gerð og útgáfu fræðsluefnis um:
    3,0 millj. kr. árið 2001,
    4,0 millj. kr. árið 2002,
    4,0 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
     –      Gerð verði samantekt á fræðsluefni sem gefið hefur verið út um öryggismál sjófarenda.
     –      Tekið verði saman hvaða efni er hæft til dreifingar og hvaða efni þyrfti að útbúa.
     –      Ákvarða skal hvaða nýtt fræðsluefni skuli gert og hverjir skuli vinna handrit og semja um útgáfu.
     –      Koma þyrfti sem mestu af góðu fræðsluefni, myndböndum og prentuðu máli, á tölvutækt form til dreifingar á tölvudiskum og á netinu.
     –      Semja þyrfti við erlenda framleiðendur fyrsta flokks fræðsluefnis um þýðingu efnis á íslensku og dreifingu þess hér á landi.
     –      Semja þarf við íslenska framleiðendur fræðsluefnis um söfnun, fjölföldun og dreifingu á efni frá þeim.
Tímasetningar
Ákvörðun um fræðsluefni sem á að vinna skal liggja fyrir í lok janúar 2002. Vinna að gerð fræðsluefnis og dreifing fari fram árin 2002 og 2003.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 6, 7, 8, 9, 15, 20 og 22.
Fundargerðir verkefnisstjórnar 2. og 3. fundur 2001.
Listi Siglingastofnunar um útgefið fræðsluefni.
Listi Slysavarnaskóla sjómanna um aðgengilegt og æskilegt fræðsluefni.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Ákveðið hefur verið að endurgera ýmislegt eldra fræðsluefni. Jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að útbúa margvíslegt nýtt fræðsluefni um öryggismál sjófarenda. Þetta efni verður aðgengilegt á sérstakri heimasíðu um öryggismál sjófarenda og verður jafnframt dreift til útgerða og sjómanna.
4.6        Merkingar á hættusvæðum í skipum
4.7        Viðvörunarspjöld og leiðbeiningar
Markmið
Að auka öryggi í skipum með betri merkingum/viðvörunum um áhættu og betri aðgangi að leiðbeiningum um öryggistæki og öryggisráðstafanir.
Staða mála
Víða í skipum leynast hættur sem nauðsynlegt er að merkja og/eða benda á til að vekja athygli skipverja á hættunni. Mikilvægt er að merkja vel öll hættusvæði í skipum.
    Kröfur um leiðbeiningar um notkun öryggisbúnaðar í skipum eru ekki uppfylltar í öllum tilvikum og þrýsta þarf á seljendur búnaðar og útgerðir um að leiðbeiningarnar séu aðgengilegar fyrir áhafnir skipa.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun hafi forgöngu um að hættusvæði í skipum séu merkt, að útbúin séu viðeigandi viðvörunarspjöld og að leiðbeiningar um meðferð öryggistækja séu aðgengilegar um borð í skipum.
Samstarfsaðilar
Útgerðir, stéttarfélög sjómanna, LHG, Slysavarnaskóli sjómanna, Vinnueftirlitið, söluaðilar öryggisbúnaðar.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki þessi verkefni um 2 millj. kr. af fjárframlagi ársins 2003.
FramkvæmdSiglingastofnun skipuleggi aðgerðir til að bæta úr merkingum og aðgengi áhafna skipa að leiðbeiningum, og sér til þess í samvinnu við málsaðila að merkingar og leiðbeiningar sem vantar séu gerðar og settar upp í skipum. Merkingar verða að þola það álag sem þær verða fyrir á hverju svæði þar sem þær eru settar upp, t.d. það að límmiðar endast stutt á vinnusvæðum í skipum.
Tímasetningar
Verkefnum ljúki á árinu 2003.
Lög og reglugerðir
Reglugerð nr. 786/1998, um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna um borð í skipum.
Reglur nr. 707/1995, um öryggis- og heilbrigðismerki á vinnustöðum.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 8, 9, 11, 14 og 20.
Listi Slysavarnaskóla sjómanna um aðgengilegt og æskilegt fræðsluefni.
Framvinda verkefnis
Mars 2001.
Gerð hefur verið tillaga að leiðbeiningum, viðvörunarspjöldum og merkingum sem þyrftu að vera til.
5.1        Slysa- og óhappaskráning í skipum
5.2        Sérstakt eyðublað í skip fyrir athugasemdir um öryggismál sjófarenda
5.5        Skráningarkerfi fyrir „næstum því slys og óhöpp“
Markmið
Að auka þekkingu á orsökum slysa og óhappa í íslenskum skipum og stuðla að bættri vitneskju um ástand öryggismála sjófarenda hverju sinni þannig að unnt sé að vinna markvisst að úrbótum.
Staða mála
Slysaskráningu hefur verið ábótavant og hingað til hafa upplýsingar um slys og orsakir þeirra ekki verið nægilega aðgengilegar þannig að óljóst hefur verið hvernig skuli standa að úrbótum í öryggismálum sjófarenda hér við land. Áhafnir mættu standa betur að skráningu slysa og óhappa í eigin skipum þannig að útgerðum gefist kostur á að bæta úr þeim atriðum sem aflaga hafa farið. Ábendingar sjófarenda um atriði sem þarfnast lagfæringar hafa ekki fengið formlega meðhöndlun hjá opinberum aðilum og því oft „týnst í kerfinu“. Nauðsynlegt er að bæta úr þessum atriðum og stuðla að meiri upplýsingasöfnun um þessi mál.
    Virkja ber sjófarendur í að benda á það sem betur má fara víðs vegar við landið.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Rannsóknarnefnd sjóslysa hafi forgöngu um að fyrirkomulag slysa- og óhappaskráningar sé skilgreint. Siglingastofnun skilgreini fyrirkomulag vegna athugasemda um öryggismál sjófarenda.
Samstarfsaðilar
Siglingastofnun, rannsóknarnefnd sjóslysa, Tryggingastofnun, landlæknisembættið, Slysaskrá Íslands, tryggingafélög, útgerðir og stéttarfélög sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Verkefnið verði kostað af fjárveitingum rannsóknarnefndar sjóslysa.
Framkvæmd
Komið verði upp gagnagrunni þar sem unnt verði að skrá öll slys og óhöpp sem verða á íslenskum skipum og þegar þörf er á verði upplýsingum miðlað aftur til útgerða og áhafna skipa, svo sem þegar alvarleg slys eða mörg sambærileg hafa orðið. Samhliða verði sendar út tillögur að úrbótum ef unnt er.
    Fyrirkomulag vegna ábendinga sjófarenda um atriði sem bæta þarf úr verði skipulagt, skráningu athugasemda verði komið á og meðhöndlun upplýsinga verði með formlegum hætti.
    Stuðlað verði að því að slysa- og óhappaskráning sé tekin upp í öllum skipum, úrbætur séu gerðar af áhöfnum og útgerðum og að upplýsingum sé miðlað til annarra sambærilegra skipa.
    Leggja þarf áherslu á að slys og óhöpp séu skráð í skipsbækur.
Tímasetningar
Fyrirkomulag skráninga verði ákvarðað 2002 og unnið verði samkvæmt skipulagi eftir að það liggur fyrir.
Lög og reglugerðir
Lög nr. 68/2000, um rannsókn sjóslysa.
Reglugerð nr. 133/2001, um rannsókn sjóslysa.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 9, 10, 16, 19 og 21.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Rannsóknarnefnd sjóslysa vinnur að gerð eyðublaðs fyrir slysa- og óhappaskráningu í skipum sem skal útfylla og senda til nefndarinnar þegar slys eða atvik verða.
5.3        Endurnýjuð sjókort séu gefin út og þau séu aðgengileg sem víðast
5.4        Ákvörðun þarf að taka um siglingaleiðir olíuskipa
Markmið
Að treysta öryggi skipa sem sigla í íslenskri efnahagslögsögu. Að minnka líkur á mengunarslysum við strendur Íslands.
Staða mála
Í nýjum mælingum hafa verulegar skekkjur komið fram í sumum sjókortum sem gerð voru eftir gömlum handlóðsmælingum. Mikilvægt er að siglingaleiðir við landið séu kortlagðar og úrelt kort séu endurnýjuð og gefin út.
    Nefnd sem skipuð var til að móta reglur um tilkynningarskyldu og afmörkun siglingaleiða olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning inn í íslenska efnahagslögsögu skilaði skýrslu í byrjun árs 2001. Mikilvægt er að ákvarðanir séu teknar um siglingaleiðir olíuskipa þannig að öryggi þeirra sé tryggt á siglingu við landið og komið sé í veg fyrir mengunarslys.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Landhelgisgæsla og Siglingastofnun geri áætlun um mælingar og útgáfu sjó- og hafnarkorta. Hollustuvernd ríkisins hafi frumkvæði að áhættugreiningu vegna siglinga skipa er flytja hættulegan farm.
Samstarfsaðilar
Siglingastofnun, Landhelgisgæsla, Sjómælingar, Hollustuvernd ríkisins, kaupskipaútgerðir, samgönguráðuneyti, umhverfisráðuneyti.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki þessi verkefni um 0,6 millj. kr. árið 2002 og 0,8 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Verkefni verði skipulögð af ábyrgðar-/umsjónaraðilum og viðkomandi samstarfsaðilum. Kostnaður vegna framkvæmda verði kynntur fyrir ráðuneytum sem gætu óskað fjármagns í næstu fjárlagafrumvörpum.
Tímasetningar
Verkefni verði skipulögð árið 2002 og síðan unnin samkvæmt gerðu skipulagi.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 17.
Skýrsla um niðurstöður nefndar um takmörkun siglinga við suðvesturströnd Íslands, janúar 2001.
Ráðstafanir til leiðarstjórnunar skipa við suðvesturströnd Íslands, skýrsla byggð á skýrslu DNV, febrúar 2001.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að frumvarpi um öryggi siglinga og öryggisþjónustu við skip. Umhverfisráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um verndun hafs og stranda.
    Siglingastofnun Íslands á tiltæk kort með dýptarmælingum við hafnir vegna framkvæmda við þær. Unnið er að því að setja þessi kort á netið.
    Undirbúningur að áhættumati á siglingaleiðum er hafinn hjá Siglingastofnun.
5.6        Aðgengi skipverja að upplýsingum um ástand skips
5.7        Sérstök heimasíða um öryggismál sjómanna
5.8        Upplýsingum dreift á netinu, með WAP-tækni og textavarpi
Markmið
Að allt aðgengi sjómanna að nauðsynlegum upplýsingum sem tengjast öryggi þeirra á sjó sé aukið.
Staða mála
Upplýsingar um ástand skipa, stöðugleika, athugasemdir skoðunarmanna, réttindamál áhafna o.s.frv. hafa ekki verið sérlega aðgengilegar fyrir áhafnir viðkomandi skipa. Nauðsynlegt er að þessar upplýsingar verði mun aðgengilegri en nú fyrir útgerðir, áhafnir og eftirlitsaðila, og jafnvel ætti að vera hægt að skoða þær á netinu.
    Upplýsingar um öryggismál sjómanna almennt þyrftu að vera aðgengilegar á netinu og þar þyrfti að vera hægt að sækja og fylla út sem flest eyðublöð er varða sjófarendur.
    Upplýsingakerfi SÍ um veður og sjólag er til bóta fyrir sjófarendur og skoða þarf möguleika á dreifingu upplýsinga sem víðast, svo sem í textavarpi sjónvarps og með nettengingu farsíma.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun hafi forgöngu um þessi mál.
Samstarfsaðilar
Siglingastofnun, Veðurstofa, Póst- og fjarskiptastofnun, Ríkisútvarpið o.fl.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki þessi verkefni um:
    0,7 millj. kr. árið 2001,
    0,4 millj. kr. árið 2002,
    1,0 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Siglingastofnun skipuleggi þessa vinnu í samráði við viðkomandi samstarfsaðila.
Tímasetningar
Unnið verði að þessum verkefnum árin 2001–2003.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A/B.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 10 og 18.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Ákveðið hefur verið að setja upp sérstaka heimasíðu um öryggismál sjófarenda. Útbúin hafa verið drög að veftré fyrir síðuna og verður hún opnuð síðar á árinu 2002.
    Unnið er að gerð nýrrar skipaskrár og er stefnt að því að upplýsingar um ástand skips verði aðgengilegar.
5.9        Úrbætur séu gerðar á farsímasambandi við land.
5.10    Skilgreind verði neyðarsímsvörun í 112 fyrir sjómenn
Markmið
Að öryggi skipa og báta á siglingu við landið verði aukið.
Staða mála
Víða nærri landi er farsímasamband lélegt og bæta þarf úr því á þeim svæðum þar sem það er mest aðkallandi með tilliti til öryggis sjófarenda.
    Smábátasjómenn nota oft farsíma til að láta vita ef hætta steðjar að og því þyrfti að athuga hvort skilgreina ætti símanúmerið 112 þannig að sú neyðarsímsvörun gæti tekið við neyðarhringingum frá sjómönnum.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun og Póst- og fjarskiptastofnun hafi forgöngu um þessi mál.
Samstarfsaðilar
Landhelgisgæsla, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Landssíminn, Gufunes, Neyðarlínan, lögregla.
Áætluð fjármögnun
Verður fjármagnað af fjárlögum hverju sinni.
Framkvæmd
Vitasvið Siglingastofnunar og Póst- og fjarskiptastofnun skipuleggi þessa vinnu í samráði við samstarfsaðila.
Tímasetningar
Unnið verði að þessum verkefnum árin 2002 og 2003.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 17.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að gerð frumvarps til laga um öryggi siglinga og fjarskiptaþjónustu við skip.
5.11    Veðurstöðvum sé fjölgað við land
5.12    Úrbætur vegna NAVTEX-sendinga
Markmið
Að bæta upplýsingasöfnun um veður við landið og bæta upplýsingastreymi um veður til skipa á hafsvæðum umhverfis allt land.
Staða mála
Veðurstöðvar þurfa að vera sem víðast við land og forgangsraða þarf uppsetningu þeirra eftir óskum sjófarenda.
    Mikilvægt er að úrbætur séu gerðar á skilyrðum fyrir NAVTEX-sendingar norður og austur af landinu.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Hafnasvið og vitasvið Siglingastofnunar og Póst- og fjarskiptastofnun geri áætlun um nauðsynlegar úrbætur vegna veðurupplýsinga til skipa á siglingu hér við land.
Samstarfsaðilar
Veðurstofa Íslands, Landssíminn, samgönguráðuneyti, umhverfisráðuneyti.
Áætluð fjármögnun
Lagt er til að fjár til þessara verka verði óskað sérstaklega í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2003 og síðari ára.
Framkvæmd
Verkefni verði skipulögð af ábyrgðar-/umsjónaraðilum og samstarfsaðilum. Kostnaður vegna framkvæmda verði kynntur fyrir viðkomandi ráðuneytum sem gætu óskað eftir fjármagni í næstu fjárlagafrumvörpum.
Tímasetningar
Verkefni verði skipulögð árið 2002 og síðan unnin samkvæmt gerðu skipulagi.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A/B.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 18.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að frumvarpi til laga um öryggi siglinga og fjarskiptaþjónustu við skip þar sem m.a. verður fjallað um NAVTEX-sendingar.
7.1        Gögn/ábendingar um stöðugleika séu á íslensku og stöðluð
7.2        Sérstakt leiðbeiningarspjald um hleðslu smábáta (sbr. 4.7 og 14.1)
7.3        Merkingar á dyrum og lúgum sem eiga að vera lokaðar á rúmsjó (sbr. 4.7)
7.4        Könnun á stöðugleika opinna báta (sbr. 14.3)
Skipuleggja þyrfti öryggisviku í kringum alþjóðasiglingadaginn í september.
Markmið
Að upplýsingar um stöðugleika allra íslenskra skipa og báta séu til og að þær séu aðgengilegar og augljósar skipstjórnarmönnum viðkomandi skipa.
Staða mála
Siglingastofnun varðveitir stöðugleikagögn fyrir öll íslensk þilfarsskip og vinnur að uppfærslu þeirra. Mikilvægt er að nákvæmar upplýsingar um stöðugleika liggi fyrir á hverjum tíma, svo sem vegna breytinga á skipum. Siglingastofnun og rannsóknarnefnd sjóslysa hafa lagt til ýmsar tillögur til úrbóta í stöðugleikamálum íslenskra skipa og þörf er á að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun tryggi að stöðugleiki skipa sé þekktur og stuðli að því að áhafnir þeirra viti hvaða annmarkar eru á stöðugleika eigin skips.
Samstarfsaðilar
Útgerðir.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki úrbætur í stöðugleika skipa og báta um:
    0,3 millj. kr. árið 2001,
    0,6 millj. kr. árið 2002,
    1,0 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Siglingastofnun skipuleggi framkvæmd úrbóta þannig að unnt sé að ljúka öllum nauðsynlegum verkefnum fyrir árslok 2003. Dæmi um atriði sem þarf að skoða:
     –      Reglur um hallaprófun allra skipa sem gerð eru út í atvinnuskyni.
     –      Reglur um hvernig gengið sé frá stöðugleikagögnum.
     –      Reglur um vatnsþétta niðurhólfun skips neðan og ofan aðalþilfars.
     –      Gögn/ábendingar um stöðugleika skipa séu á íslensku og stöðluð.
     –      Stöðugleikagögn fyrir smábáta – sérstakt leiðbeiningarspjald um hleðslu (sbr. 4.7 og 14.1).
     –      Reglur um stöðugleikaprófun opinna báta.
     –      Dyr og lúgur sem ekki má opna á rúmsjó á að merkja sérstaklega (sbr. 4.7).
     –      Könnun á stöðugleika opinna báta (sbr. 14.3).
     –      Hleðslumerki á bátum með mestu lengd allt að 15 metrum (sbr. 13).
     –      (Ábyrgð vélaverkstæða, skipasmiðja og dráttarbrauta vegna breytinga á skipum.)
Tímasetningar
Öllum nauðsynlegum verkefnum verði lokið á árinu 2003.
Lög og reglugerðir
Reglugerð nr. 26/2000, um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða lengri.
Reglur um stöðugleika báta með mestu lengd allt að 15 metrum.
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 7, 8, 11 og 23.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Innan Siglingastofnunar er verið að vinna að breytingum á reglugerð nr. 26/2000 um öryggi fiskiskipa sem felur það í sér að gildissvið reglugerðarinnar verður rýmkað í skip 15 metrar og lengri og taki einnig til gamalla skipa.
    Unnið er að gerð fræðsluefnis um stöðugleikamál.
    Hjá Siglingastofnun er verið að þróa stöðugleikagögn skipa með það að markmiði að gera þau einfaldari í notkun fyrir skipstjórnarmenn. Jafnframt er stefnt að því að tengja þau upplýsingakerfi stofnunarinnar um veður og sjólag og verða þau aðgengileg skipstjórnarmönnum þar.
11.1    Gæðastjórnunarkerfi séu notuð við skoðanir og eftirlit með skipum.
11.2–11.4    Öryggisstjórnunarkerfi séu notuð í öllum farþegaskipum og farþegabátum, við eftirlit með öryggi í höfnum, séu tekin upp í öllum íslenskum fiskiskipum o.fl.
Markmið
Að bæta skilvirkni og einsleitni opinbers eftirlits, sem og eftirlit einkaaðila með öryggisatriðum á stöðum sem þeir bera ábyrgð á.
Staða mála
Siglingastofnun hefur undanfarin ár unnið að gæðastjórnunarkerfi fyrir stofnunina sem stuðla á meðal annars að einsleitari skoðun eftirlits í öllum umdæmum. Mikilvægt er að þeirri vinnu miði vel áfram. Öryggisstjórnunarkerfi hafa verið að sanna gildi sitt við notkun á mörgum sviðum og því ætti að reyna notkun þeirra á öllum sviðum öryggismála sjófarenda.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun hafi forgöngu um að skilgreina kröfur til öryggisstjórnunarkerfa.
Samstarfsaðilar
Útgerðir farþegaskipa, SÍK, LÍÚ, hafnir og hafnasamlög og Slysavarnaskóli sjómanna.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki vinnu að gerð öryggisstjórnunarkerfa á ýmsum sviðum um:
    0,1 millj. kr. árið 2001,
    0,2 millj. kr. árið 2002,
    1,2 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Siglingastofnun ljúki vinnu við gerð gæðastjórnunarkerfis sem nær yfir starfsemi stofnunarinnar og skoðanir allra gerða skipa fyrir árslok 2002.
    Siglingastofnun skilgreini kröfur til öryggisstjórnunarkerfa í skipum og höfnum á árinu 2002.
Tímasetningar
Sjá framkvæmd.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 7, 14, 16, 19 og 20.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Unnið er að gerð gæðastjórnunarkerfa innan sjómannaskóla samkvæmt lögum nr. 76/2001. Siglingastofnun mun hafa eftirlit með að nám og kennsla í sjómannaskólum uppfylli kröfur alþjóðasamþykkta, þar á meðal kröfur um gæðastjórnunarkerfi.
    Siglingastofnun er að leggja lokahönd á gerð gæðastjórnunarkerfis fyrir stofnunina sem m.a. á að leiða til einsleitari skipaskoðana og unnið er að öryggishandbók fyrir hafnir.
13.1    Efla þarf skilvirkni og samstarf eftirlitsaðila
13.2    Skipuleggja þarf fyrirkomulag skyndiskoðana í íslenskum skipum
13.5    Reglubundnar athuganir á æfingahaldi og starfsþjálfun í skipum
13.6    Reglum um öryggisráðstafanir við hífingar sé betur fylgt eftir
13.7    Skilvirkara eftirlit með aðbúnaði í skipum
Markmið
Að stuðla að því að samstarf eftirlitsaðila sé eflt þannig að skilvirkni og hagkvæmni í eftirliti aukist og að meiri áhersla verði lögð á eftirfylgni með að lög og reglur séu virt.
Staða mála
Eftirlit um borð í skipum er á höndum margra aðila, SÍ, LHG, flokkunarfélaga, Póst- og fjarskipta-stofnunar, Hollustuverndar, Fiskistofu og einkaaðila. Mikilvægt er að allt eftirlit sé metið með tilliti til möguleika á aukinni samvinnu eftirlitsaðila þannig að hagkvæmni eftirlits og þjónusta við útgerðir skipa verði bætt. Eftirlit með öryggisatriðum þarf að bæta og fylgja þarf betur eftir að ástand skipa, búnaðar og áhafna sé samkvæmt lögum og reglum.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun skipuleggi aðgerðir er stuðla að bættu eftirliti og virðingu fyrir lögum og reglugerðum.
Samstarfsaðilar
SÍ, LHG, flokkunarfélög, Póst- og fjarskiptastofnun, Hollustuvernd, Fiskistofa, Vinnueftirlitið.
Áætluð fjármögnun
Verkefni verði kostuð af eftirlitsaðilum en langtímaáætlun styrki þau um:
    0,3 millj. kr. árið 2001,
    0,5 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Siglingastofnun hafi forgöngu um að eftirlitsaðilar geri samkomulag um samstarf sem stuðli að aukinni skilvirkni og hagkvæmni í eftirliti með búnaði og áhöfnum skipa. Samstarfsaðilar skipuleggi fyrirkomulag eftirlits og skyndiskoðana í skipum og við þá vinnu sé stuðst við ábendingar í þingsályktunartillögu um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda og ábendingar rannsóknarnefndar sjóslysa. Dæmi um atriði sem fylgja þarf eftir:
     –      Æfingahald og starfsþjálfun í skipum sé samkvæmt reglum.
     –      Öryggisráðstafanir við hífingar séu í samræmi við reglur.
     –      Aðbúnaður áhafna sé samkvæmt kröfum, svo sem loftræsting, hávaði, titringur.
     –      Skráning í skipsbækur sé samkvæmt lögum.
     –      Hleðslumerki séu á öllum fiskiskipum með mestu lengd allt að 15 metrum.
     –      Unnið sé samkvæmt þeim reglum sem gilda um vinnuöryggi almennt um borð í skipum.
     –      Frágangur stiga í lestum og landganga sé samkvæmt reglum.
     –      Öryggisatriði í höfnum séu samkvæmt reglum.
     –      Sigling, sjóbúnaður og viðhald skipa sé samkvæmt reglum þar að lútandi.
Tímasetningar
Vinna að þessum atriðum hefjist í byrjun árs 2002 og verði viðhaldið á komandi árum. Samkomulag um samstarf eftirlitsaðila liggi fyrir í lok ársins 2002.
Lög og reglugerðir
Öll lög og reglugerðir er varða öryggi sjófarenda.
Forgangsröð: A.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Gert er ráð fyrir að með notkun gæðastjórnunarkerfis Siglingastofnunar við eftirlit með skipum verði bætt úr flestum þessara atriða.
14.1    Auka þarf og festa í sessi samstarf Íslendinga og nágrannaþjóða í rannsóknar- og þróunarverkefnum sem tengjast öryggismálum sjómanna
14.2    Upplýsingum um ýmsar rannsóknir sem verið er að vinna að eða hafa verið gerðar ætti að safna saman á einn stað þannig að aðilar viti hver af öðrum
14.4    Rannsóknir á stjórnun stöðugleika fiskiskipa
Markmið
Að efla rannsóknir, þróun og hönnun á ráðstöfunum er aukið gætu öryggi sjómanna og stuðla að samstarfi sem víðast á þeim vettvangi. Að stuðla að því að upplýsingum um rannsóknir sé miðlað milli rannsóknaraðila til að efla samstarf og koma í veg fyrir tvíverknað.
Staða mála
Oft koma upp hugmyndir að lausnum er gætu stuðlað að auknu öryggi sjómanna, en oft vilja þær falla í dvala vegna tíma- eða fjárskorts. Einnig hafa verið unnar margar rannsóknir er tengjast öryggismálum sjómanna víða um heim, en talsvert vantar að upplýsingar um þessar rannsóknir séu aðgengilegar þannig að hætta er á að verið sé að endurtaka sömu hlutina margoft. Með því að safna saman og miðla upplýsingum um rannsóknir ásamt því að styrkja þær fjárhagslega er hægt að efla rannsóknarstarf til muna.
    Siglingastofnun hefur unnið að rannsóknum á hreyfistöðugleika skipa í samvinnu við innlendar verkfræðistofur og erlenda aðila. Ágætt væri að þessir aðilar héldu áfram með rannsóknirnar.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun meti tillögur að samstarfsverkefnum og fjármagni vænleg verkefni.
Samstarfsaðilar
Allir sem að öryggismálum sjófarenda koma:
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun ráðstafi fé til upplýsingasöfnunar og samstarfsverkefna:
    0,9 millj. kr. árið 2002,
    1,4 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Siglingastofnun meti tillögur að samstarfsverkefnum í rannsóknum, þróun og hönnun og samþykki styrkveitingu til vænlegra verkefna. Auglýsa mætti þennan styrk til að hvetja hugvitsmenn til að koma með tillögur að úrlausnum í öryggismálum sjómanna. Dæmi um verkefni:
     –      Stöðugleikagögn fyrir smábáta.
     –      Vaktafyrirkomulag í skipum.
     –      Öryggisbúnaður við línuveiðar smábáta.
     –      Öryggi vegna vinnu við toghlera og á togþilförum.
     –      Landgangar fyrir minni tvíþilja fiskiskip.
     –      Fjarlækningabúnaður og lækningatæki.
    Upplýsingum um rannsóknar- og þróunarverkefni sem varða öryggismál sjómanna verði safnað saman á heimasíðu Siglingastofnunar. Auglýsa þarf þessa söfnun sem víðast.
Tímasetningar
Ákvörðun um ráðstöfun fjár til verkefna skal liggja fyrir á fyrri hluta ársins 2002.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: B.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 7, 8, 10, 11, 13, 21 og 23.
Framvinda verkefnis
Mars 2002.
Borist hafa eftirfarandi erindi um rannsóknarverkefni:
     1.      Rannsókn á svefni, svefnmynstri og heilsu sjómanna.
     2.      Undirbúningur að verkefni um áhættu- og nertigreiningu.
     3.      Stöðugleikaforrit fyrir skip og báta.
14.3    Nauðsynlegt er að gerðar séu reglulega kannanir, úttektir og prófanir á ástandi og fyrirkomulagi öryggisbúnaðar í skipum og í höfnum
Markmið
Að stuðla að því að fyrirkomulag og ástand öryggisbúnaðar sé eins gott og mögulegt er hverju sinni.
Staða mála
Mörg atriði varðandi staðsetningu og frágang björgunar- og öryggisbúnaðar í skipum og í höfnum þarfnast skoðunar. Nauðsynlegt er að gera reglulega kannanir, úttektir og prófanir á ástandi og fyrirkomulagi öryggisbúnaðar og kynna fyrir málsaðilum niðurstöður og úrbótatillögur.
Ábyrgð og umsjón með framkvæmd
Siglingastofnun hafi forgöngu um að kannanir, úttektir og prófanir fari fram.
Samstarfsaðilar
Allir sem að öryggismálum sjófarenda koma.
Áætluð fjármögnun
Langtímaáætlun styrki þetta verkefni um:
    0,5 millj. kr. árið 2002 (af fjárframlögum 2001),
    1,0 millj. kr. árið 2003.
Framkvæmd
Setja þarf ákvæði í reglur þannig að hægt sé að standa vel að öllum könnunum, úttektum og prófunum, ásamt ákvæðum ef þörf er á að krefjast breytinga á fyrirkomulagi öryggisbúnaðar. Dæmi um atriði sem þarfnast skoðunar:
     –      Staðsetning björgunarbáta með losunar- og sjósetningarbúnaði.
     –      Frágangur gúmmíbjörgunarbáta í skipum.
     –      Staðsetning neyðarhandtalstöðva.
     –      Stærðir og gerð björgunarbúninga sem valdir eru í einstök skip.
     –      Staðsetning björgunarvesta og björgunarbúninga.
     –      Gerð, staðsetning, uppfærsla og kynning neyðaráætlana og öryggisplana.
     –      Fyrirkomulag neyðarútganga í skipum.
     –      Staðsetning og fyrirkomulag handslökkvitækja í skipum.
     –      Stöðugleiki opinna báta.
     –      Hálkuvarnir í skipum og á bryggjum og skóbúnaður sjómanna.
     –      Vinnuaðstæður við toghlera, í rennum, við frystitæki og í lestum.
     –      Aðstæður við landgöngu úr skipum.
     –      Öryggisbúnaður og aðstæður almennt í höfnum.
Tímasetningar
Verkefni verði unnin eftir því sem fjárhagur leyfir árin 2002 og 2003.
Lög og reglugerðir
Forgangsröð: A/B.
Tilvísanir
Þingsályktunartillaga um langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, bls. 6, 7, 11, 12, 13 og 16.
Framvinda verkefnis