Ferill 690. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1109  —  690. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2000.

(Lögð fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


INNGANGUR


    Framkvæmdir við hafnargerð á árinu 2000 urðu sem hér segir. Til samanburðar eru tölur fyrra árs.


2000
millj. kr.
1999
millj. kr.
Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir
652,7 1.191,9
Ferjubryggjur
19,6 4,7
Samtals
672,3 1.196,6

     Við gerð fjárlaga fyrir árið 2000 ákvað Alþingi að fresta um eitt ár tæplega 300 millj. kr. af þeirri upphæð sem verja átti af hálfu ríkisins til nýframkvæmda samkvæmt hafnaáætlun. Var þetta liður í aðgerðum stjórnvalda til að draga úr þenslu. Áður var haft samráð við heimamenn á þeim stöðum sem fyrir frestunum urðu.
    Í skýrslunni hér á eftir er stutt lýsing á framkvæmdum á hverjum stað og sérstakir kaflar um starfsemi Siglingastofnunar Íslands og rannsóknir á sviði hafnamála. Einnig er fjallað um framkvæmdir við landbrotsvarnir og sagt frá framkvæmdum í höfnum sem ekki hafa notið ríkisstyrks.

RÍKISSTYRKTAR HAFNARFRAMKVÆMDIR

Grundartangi.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem eru ekki ríkisstyrktar.)

Akranes.

    Lokið var frágangi vegna verks sem unnið var á síðasta ári við endurbyggingu fremsta hluta grjótvarnar á aðalhafnargarðinum, jöfnun á plönum o.fl.
    Framkvæmdakostnaður: 0,1 millj. kr.

Borgarnes.
    Engar framkvæmdir.

Snæfellsbær.
     Arnarstapi: Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að lengja viðlegukantinn með því að sprengja og dýpka lengra upp með bryggjunni. Horfið var frá því og í staðinn ákveðið að lengja bryggjuna eins og hægt var fram að grjótgarði og fara auk þess í venjubundna viðhaldsdýpkun. Í apríl var samið við Arnodd Erlendsson um að grafa burt sand sem borist hafði að bryggjunni og lauk hann því verki í mánuðinum.
    Í byrjun september var samið við Lárus Einarsson sf. um að lengja viðlegukantinn. Byggð var 8 m löng bryggja úr harðviði framan við bryggjuendann. Verkinu lauk skömmu fyrir mánaðamótin október–nóvember.
    Hafinn var undirbúningur vegna lengingar grjótgarðs.
    Rifshöfn: Áfram var unnið samkvæmt verksamningi frá í fyrra við Bjarna Vigfússon um að endurbyggja grjótvörnina á efsta hluta Norðurgarðs. Haft var samráð við minjavörð Vesturlands og Þjóðminjasafn Íslands um frágang kringum Rifsvör og tafðist verkið á meðan. Aðeins var unnið í um tvo mánuði á árinu og hluta verksins frestað fram á næsta ár. Samþykkt var á árinu 1998 að veita styrk úr Hafnabótasjóði, allt að 2,2 millj. kr. fyrir viðgerð á hluta af grjótvörn Norðurgarðs. Unnið var fyrir styrkinn í fyrra og að nokkru leyti í ár.
    Heimild fékkst til að flýta viðhaldsdýpkun í innsiglingu og höfn sem áætluð var árið 2002. Unnið var við mælingar og undirbúning og í október var samið við Björgun ehf. um dýpkunina, en ekki var byrjað að dýpka fyrir áramót.
    Áfram var frestað verki sem áætlað var á síðasta ári við malbikun tengibrautar að trébryggju og breikkun þekju við stálþil.
     Ólafsvík: Ákveðið var að fresta verki við björgunarstiga og lagnir á Bátabryggju. Verkið var boðið út í desember á síðasta ári og voru öll tilboð sem bárust yfir áætlun. Tilboðunum var því hafnað og ákveðið að endurskoða verkið og bjóða út síðar.
    Framkvæmdakostnaður: 9,5 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 0,5 millj. kr.

Grundarfjörður.
    Lenging Stórubryggju var eitt þeirra verkefna sem Alþingi ákvað að fresta að höfðu samráði við heimamenn. Þó var haldið áfram undirbúningi verksins og notuð til þess fjárveiting frá síðasta ári. Unnið var að botnrannsóknum, námurannsóknum, mælingum og hönnun verksins.
    Heimild fékkst til að flýta framkvæmd við smábátaaðstöðu sem var á áætlun 2002 og að nota til þess hluta af fjárveitingu sem veitt var í Stórubryggju á síðasta ári. Keypt var 30 m löng flotbryggja frá Króla ehf. og bætt við flotbryggjuna sem sett var upp árið 1997. Bryggjan er nú alls 65 m löng. Frágangi bryggjunnar var ekki að fullu lokið um áramót.
    Á síðasta ári var samþykkt að veita tjónastyrk til viðgerða á skjólgörðum norðan og sunnan hafnar. Viðgerðum lauk á þessu ári.
    Framkvæmdakostnaður: 11,7 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 0,4 millj. kr.

Stykkishólmur.
    Áfram var unnið við styrkingu á brúnni út í Stykkið, en samið var um það verk við Skipavík hf. á síðasta ári. Notuð var sérstök steypublanda til verksins þróuð af Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, svokölluð „súlpaksteypa“. Framleiðsla steypunnar var í höndum starfsmanna bæjarins undir handleiðslu RB. Alls voru framleiddir um 50 m³ af súlpaksteypu til verksins. Nauðsynlegt reyndist að endurnýja handrið og lýsingu á brúnni og annaðist verktakinn það til viðbótar við samningsverkið. Verkinu lauk í nóvember.
    Framkvæmdakostnaður: 9,2 millj. kr.

Dalabyggð.
    Í janúar var boðin út gerð smábátahafnar í Búðardal. Samið var við lægstbjóðendur, Víðimelsbræður ehf. Í byrjun febrúar var hafist handa við að sprengja og dýpka hafnarkvína og byggja skjólgarða. Flatarmál dýpkunarsvæða var alls um 1.400 m² og í skjólgarða fóru um 6.000 m³ af flokkuðu grjóti og kjarna. Auk framantalinna verkefna sá verktakinn um að steypa 4 x 30 m upptökubraut fyrir smábáta, landstöpul flotbryggju og endurröðun grjótvarnar á gamla hafnargarðinum. Grjót í skjólgarða var unnið að hluta í námu 6 km norðan við Búðardal og að hluta var notað efni sem kom úr dýpkun. Verkinu lauk 31. maí.
    Í mars var leitað til nokkurra aðila um smíði á flotbryggjum og frágang á lögnum og lýsingu við smábátahöfnina. Var samið um þessa verkþætti við lægstbjóðanda, Glerfell ehf. Smíðuð var 15 m löng flotbryggja úr timbureiningum, sett upp lýsing við höfnina og ljós á enda skjólgarða og vatnslögn lögð að flotbryggjunni. Framkvæmdum var að fullu lokið um mánaðamótin júní–júlí og 24. júní sigldi víkingaskipið Íslendingur úr höfn í Búðardal áleiðis til Vesturheims.
    Framkvæmdakostnaður: 21,6 millj. kr.

Reykhólahöfn.
    Engar framkvæmdir

Vesturbyggð.
    Engar framkvæmdir.

Tálknafjörður.
    Engar framkvæmdir

Bolungarvík.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir framkvæmd við breikkun og styrkingu grjótvarnar á Grundargarði en þessu verkefni var frestað eitt ár samkvæmt ákvörðun Alþingis.
    Engar framkvæmdir.

Ísafjarðarbær.
    Á árinu 1999 var veitt heimild til að vinna úrbætur á smábátaaðstöðu. Flotbryggja á Flateyri var lengd með einu timburfloti og settir upp rafmagnstenglar við smábátabryggjurnar á Flateyri, Suðureyri og Ísafirði. Þessi verk voru unnin haustið 1999. Kostnaður við þau var tilgreindur í töflu I í framkvæmdaskýrslu ársins 1999, en láðist að geta þeirra í texta.
     Þingeyri: Engar framkvæmdir.
     Flateyri: Í júní–júlí lauk Gáma- og tækjaleigan ehf. við að steypa kantbita, ganga frá fríholtum og stigum á stálþilið sem rekið var við hafnarkant á síðasta ári, en verkinu hafði verið frestað sl. haust þar til dregið hefði úr sigi á fremsta hluta bryggjunnar.
    Frágangi á lögnum og þekju við hafnarkant, sem gert var ráð fyrir í hafnaáætlun, var frestað um eitt ár samkvæmt ákvörðun Alþingis.
     Suðureyri: Boðin var út í júlí styrking grjótvarnar við Brjótinn og á Norðurgarði ásamt lengingu sjóvarnar við Aðalstræti. Samið var við lægstbjóðanda, Norðurtak ehf. Sauðárkróki, um verkið. Framkvæmdir hófust í byrjun september og var lokið um miðjan nóvember. Grjótvörn utan við Brjótinn og fremst við Norðurgarð var tekin upp að hluta, henni endurraðað og bætt í grjóti. Alls var bætt í garðana um 2.200 m³ af grjóti. Grjót til verksins var sótt í námuna í Dagverðardal Ísafirði.
     Ísafjörður: Í fjárlögum voru veittar 11 millj. kr. til að ljúka framkvæmdum við lengingu austurkants Sundabakka, ganga frá lögnum og steypa þekju, en heimamenn ákváðu að fresta verkinu.
    Samkvæmt ákvörðun Alþingis var frestað tveimur verkefnum sem gert hafði verið ráð fyrir í hafnaáætlun, bátahöfn við Olíumúla, endurbygging, og dýpkun við Olíumúla og viðgerðarbryggju.
    Heimild fékkst til að gera aðstöðu fyrir ferðaþjónustubáta. Sett var upp 3,5 x 4,5 m flotbryggja við endann á ferjubrúnni. Samið var við Eirík og Einar Val hf. um verkið og lauk því í apríl.
    Framkvæmdakostnaður: 14,5 millj. kr.

Súðavík.
    Engar framkvæmdir.

Norðurfjörður.
    Engar framkvæmdir.

Drangsnes.
    Engar framkvæmdir.

Hólmavík.
    Í september var samið við Grundarás ehf. um smíði upptökubrautar fyrir smábáta. Verkinu lauk um áramót. Steypt var rúmlega 15 m löng og 5 m breið skábraut.
    Framkvæmdakostnaður: 1,2 millj. kr.

Húnaþing vestra.
     Hvammstangi: Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir framkvæmdum við dýpkun í höfninni og innsiglingu. Heimamenn ákváðu að fresta verkinu.
    Engar framkvæmdir.

Blönduós.
    Í apríl var samið við GP krana ehf. um dýpkun. Grabbað var upp meðfram bryggju og úr innsiglingaropi um 1.000 m³ af grjóti og leðju. Efnið var sett í fyllingu upp af höfninni. Dýpkuninni lauk í maí, en dýptarmælingu og frágangi var ekki lokið um áramót.
    Í nóvember var boðin út hækkun á bryggjukanti og samið við lægstbjóðanda, Jón Eiríksson ehf. Sett var 150 x 200 mm asobe ofan á kantinn sunnan megin á bryggjunni á 102 m kafla. Verkinu lauk í desember.
    Framkvæmdakostnaður: 5,1 millj. kr.

Skagaströnd.
    Lokið var við kantsteypu, malbikuð þekja og sett upp lýsing á Skúffugarðinn. Í ágúst var samið við Helga Gunnarsson verktaka á Skagaströnd um að steypa 44 m kantbita efst við garðinn. Króksverk hf. annaðist malbikun á 2.184 m² þekju og Neistinn ehf. sá um raflögn og lýsingu. Frágangi við Skúffugarðinn lauk um mánaðamótin nóvember–desember.
    Framkvæmdakostnaður: 8,9 millj. kr.

Skagafjörður.
     Sauðárkrókur: Undirbúningur vegna stálþils Norðurgarði.
     Hofsós: Engar framkvæmdir.
     Haganesvík: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmdakostnaður: 0,1 millj. kr.

Siglufjörður.
    Samkvæmt ákvörðun Alþingis var frestað fjárveitingu sem gert var ráð fyrir í hafnaáætlun að rynni til endurbyggingar á Bæjarbryggju. Í samkomulagi sem gert við heimamenn um frestunina var veitt heimild til að breyta framkvæmdaröð. Í stað endurbyggingar Bæjarbryggju yrði farið í stækkun á Óskarsbryggju og dýpkun. Í lok ársins var hafin undirbúningur framkvæmda.
    Í desember var samið við Björgun ehf. um dýpkun innan skjólgarðs við Brjótinn og byrjað að dýpka en verkinu lauk ekki á árinu.
    Framkvæmdakostnaður: 1,1 millj. kr.

Hafnasamlag Eyjafjarðar.
     Ólafsfjörður: Gáma- og tækjaleiga Austurlands lauk við verkið styrking Norðurgarðs, sem boðið var út 1999. Verklok voru í nóvember. Reknar voru 52 stálþilsplötur utan um tvö fremstu kerin, steyptur 58 m kantur og 490 m² þekja. Enn fremur var rifin 92 m löng trébryggja innan á Norðurgarði og settur grjótflái í staðinn. Gert var við grjótvörn utan á Norðurgarði og hún lengd um 25 m. Magn í fyllingar og grjótvarnar var alls 6.700 m³. Efnið var sótt í grjótnámu Ólafsfjarðarbæjar. Veittur var tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði fyrir þeim hluta verksins sem fól í sér viðgerð á grjótvörn.
     Dalvík: Í mars var lokið við að reka stálþil og steypa kant við fremsta hluta Norðurgarðs, verk sem byrjað var á í september 1999.
     Árskógssandur: Nauðsynlegt var talið að bæta hafnaraðstöðu fyrir nýju Hríseyjarferjuna. Ekki var gert ráð fyrir þessu í hafnaáætlun, en heimild fékkst til að hefja framkvæmdir á árinu og í fjáraukalögum var ráðstafað 30 millj. kr. til verksins.
    Í júlí var boðin út bygging á um 55 m löngum skjólgarði við ferjubryggju og lenging á brimvarnargarði um 75 m. Samið var við lægstbjóðanda, Eyjólf Þ. Jónsson í Hrísey. Efni í garða var sótt í Helluhöfða í landi Hellu. Verkinu var ekki lokið á árinu.
    Í byrjun september var dýpkað við ferjubryggjuna. Hagtak hf. annaðist verkið. Fjarlægðir voru um 1.500 m³.
     Hrísey: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmdakostnaður: 88,6 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 13,0 millj. kr.

Grímsey.
    Áfram var unnið að styrkingu á grjótvörn aðalhafnargarðs, verki sem samið var um sl. haust við Jarðverk á Dalvík. Í júlí–ágúst voru fluttir frá Dalvík til Grímseyjar 114 steinar sem vógu 6–14 tonn hver og þeim komið fyrir í grjótvörninni á um 40 m kafla ofan við masturshúsið.
    Framkvæmdakostnaður: 8,9 millj. kr.

Hafnasamlag Norðurlands.
     Hjalteyri: Engar framkvæmdir.
     Akureyri: Í júní lauk Gáma- og tækjaleiga Austurlands samningsverki frá því í fyrra við vesturbakka fiskihafnarinnar. Rekið var niður 137 m langt þil, þar af 120 m með 9 m dýpi. Fylling að þili var alls 13.170 m³. Kom hún að hluta úr dýpkun en kjarnaefni var fengið úr Krossanesnámu. Steyptur var 127 m kantbiti á þilið og settir upp stigar og fríholt. Í ársbyrjun urðu nokkrar tafir á verkinu vegna veðurs og einnig var verktakinn fenginn til þess af hafnarsjóði að gera við Ísbryggjuna þar sem grafið hafði undan bakvegg.
    Í desember var hafin bygging á 36 m langri léttbyggðri furubryggju fyrir lóðsbáta í suðurenda Fiskihafnarinnar. Þetta verkefni var ekki í hafnaáætlun. Heimilað var að nota til þess hluta af fjárveitingu sem veitt var í vesturbakka fiskihafnarinnar, en kostnaður við það verk var undir áætlun. Samið var við Gáma- og tækjaleiguna um smíði bryggjunnar. Staurar voru keyptir frá Rarik, annað bryggjutimbur frá Bykó. Verkinu var ekki lokið um áramót.
Svalbarðseyri: Engar framkvæmdir.
     Grenivík: Í september var boðin út bygging á 116 m löngum skjólgarði við smábátahöfn og samið um verkið við lægstbjóðanda, Jarðverk ehf. á Dalvík. Efni í garðinn var sótt í grjótnámu við Bárðartjörn, alls 9.200 m³ af flokkuðu grjóti og sprengdum kjarna. Verkinu lauk í byrjun desember.
    Steyptur var landveggur og keypt 20 m löng flotbryggja og landgangur frá Króla ehf. og sett upp í smábátahöfninni. Boðin var út raflögn og lýsing við smábátaaðstöðuna og samið við Rafeyri ehf. Uppsetningu flotbryggjunnar var að mestu lokið fyrir áramót, en eftir var vinna við raflögn og lýsingu.
    Auk framkvæmdakostnaðar, sem talinn er hér að neðan, var veittur ríkisstyrkur að upphæð 8 millj. kr. til að gera upp gamla skuld við sveitarsjóð Grýtubakkahrepps frá því fyrir myndun HN. Var þetta samkvæmt ákvörðun samgönguráðuneytisins til að greiða fyrir stofnun Hafnasamlags Norðurlands á sínum tíma.
    Framkvæmdakostnaður: 69,5 millj. kr.

Húsavík.
    Fjárveitingu til brimvarnargarðs á Böku var frestað um eitt ár samkvæmt ákvörðun Alþingis. Áfram var þó unnið að undirbúningi verksins og fjármagnaði hafnarsjóður Húsavíkur kostnaðinn. Jarðfræðistofan Stapi ehf. rannsakaði grjótnám. Fyrri hluta árs voru boraðar könnunarholur í Kötlum, Hlíðarhorni og á Reykjaheiði. Unnið var úr niðurstöðum og í október lokið við skýrslu um grjótnám fyrir brimvarnargarðinn.
    Jarðfræðistofan Stapi og SÍ unnu að umhverfismati. Tillaga að matsáætlun varðandi efnisnám í Hlíðarhorni við Máná, af sjávarbotni við Héðinsvík og úr námu í Kötlum var lögð fram í september. Ákvörðun Skipulagsstofnunar varðandi tillöguna lá fyrir í seinni hluta október. Þar kom fram að efnisnám í Kötlum skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum en matsáætlun fyrir grjótnámu við Hlíðarhorn var samþykkt. Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum fyrir Hlíðarhornsnámu var lögð fram í nóvember en Skipulagsstofnun kvað ekki upp úrskurð sinn fyrr en eftir áramót. Hugmyndir voru um að nota uppdælt sjávarefni undir garðinn og var Björgun ehf. fengin til að leita að efni í Héðinsvík og fleiri stöðum í Skjálfanda en ekkert efni fannst.
    Framkvæmdakostnaður: 11,1 millj. kr.

Tjörneshöfn.
    Engar framkvæmdir.

Kópasker.
    Heimamenn voru með hugmyndir um að nýta fjárveitingu frá því í fyrra til lagfæringa á smábátaaðstöðu við Leirhöfn. Til að það væri hægt þurfti hafnarsjóður að fá umráð yfir landsvæði við höfnina og breytingu hefði þurft að gera á hafnareglugerð. Þetta var kannað en niðurstaðan varð að hætt var við þessi áform.
    Framkvæmdakostnaður: 0,1 millj. kr.

Raufarhöfn.
    Unnið var við frágang á stálþili sem rekið var árinu 1999 og undirbúningsvinna við lagnir og þekju á bryggjuna.
    Einnig var unnið að undirbúningi uppsetningar á upplýsingakerfi fyrir sjófarendur.
    Framkvæmdakostnaður: 1,2 millj. kr.

Þórshöfn.
    Unnið var að lokafrágangi vegna Suðurgarðs. Sett upp garðsendaljós og frágangur í námu.
    Lokið var við lengingu Norðurgarðs, sett upp garðsendaljós og gengið frá grjótnámu.
    Í febrúar var boðin út viðgerð á Norðurgarði. Tjón hafði orðið á grjótvörn garðsins á um 225 m kafla ofan við lenginguna og var samþykktur tjónastyrkur til verksins úr Hafnabótasjóði. Samið var um verkið við lægstbjóðanda, Norðurtak ehf á Sauðárkróki. Efni til viðgerðarinnar var sótt í grjótnámu í landi Þórshafnarhrepps, alls 5.300 m³ af flokkuðu grjóti og sprengdum kjarna. Verkinu lauk í lok maí.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir framkvæmd við tengibraut að hafskipabryggju meðfram botni bátahafnar. Heimamenn ákváðu að fresta því verkefni. Í staðinn var veitt heimild til að vinna endurbætur á raflögn á hafnarsvæðinu. Settir voru upp tenglaskápar á Bátabryggju og hafskipabryggju og lagðir rafstrengir að þeim.
    Í árslok var keypt stálþil, 43 tonn frá ARBED af gerð AZ18, og 11 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder fyrir lengingu hafskipabryggju. Þilið er hannað fyrir 6,5 m dýpi.
    Framkvæmdakostnaður: 22,9 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 9,1 millj. kr.

Bakkafjörður.
    Engar framkvæmdir.

Vopnafjörður.
    Unnið var að byggingu 80 m langrar stálþilsbryggju, löndunarbryggju, framan við fiskimjölsverksmiðju Tanga hf. Í mars var boðin út fylling að bryggjunni og samið við lægstbjóðanda, Eyjólf Jónsson frá Hrísey. Alls var ekið í fyllinguna 16.000 m³ af efni úr grjótnámunni á Kolbeinstanga, en þar af voru um 10.000 m³ utan styrkhæfnismarka bryggjunnar. Keypt voru 100 tonn af stálþili frá ARBED gerð AZ18+0,5 og 55 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder. Þilið var hannað fyrir 8 m dýpi. Rekstur þilsins, fylling að þili, steyptur kantur og bygging ljósamasturshúss var boðið út í júní. Samið var við lægstbjóðanda, Lúvís Pétursson frá Selfossi. Þann 19. september, þegar búið var að reka allt þilið en ólokið að setja stagbita á um 20 m kafla um miðhluta bryggjunnar, gerði sjógang og gengu 14 plötur upp á þeim kafla þar sem eftir var að setja bitann. Verktakanum tókst að koma plötunum niður aftur töluvert skökkum, fyllti síðan að þilinu, steypti kant og ljósamasturshús og var verkið langt komið um áramót. Grunur lék á að þilið hefði rifnað á þeim kafla þar sem það gekk upp, en ekki hafði gefist færi á því fyrir áramótin að skoða þilið neðansjávar né heldur var búið að mæla nákvæmlega hversu mikið plötur höfðu skekkst.
    Framkvæmdakostnaður: 66,0 millj. kr.

Borgarfjörður eystri.
    Þann 5. mars varð tjón á Skarfaskersgarði, en garðurinn hafði áður skemmst nokkuð í aftakabrimi um mánaðamótin febrúar/mars 1998. Gerð var úttekt á garðinum og lagt til að farið yrði í viðgerð. Samþykkt var heimild fyrir tjónstyrk úr Hafnabótasjóði, allt að 5 millj. kr. 21. október var samið við Jóhann H. Sigurðsson verktaka á Borgarfirði eystra um viðgerð á garðinum. Ekki var byrjað á verkinu um áramót.
    Engar framkvæmdir.

Seyðisfjörður.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að ljúka frágangi lagna á Mjölhúsbryggjuna sem byggð var 1995/96 og endurbæta lýsingu við smábátahöfn. Þessum verkefnum var frestað.
    Unnið var við lokafrágang dráttarbrautar. Vélsmiðjan Stál lagfærði skorður á sleða og gengið var frá raflögnum.
    Ekki varð af dýpkun meðfram trébryggjum sunnan fjarðar. Þegar til átti að taka reyndist ekki hægt að dýpka frá landi með krana eins og ætlað var. Samningur við Kranabílinn hf. á Seyðisfirði var því felldur úr gildi og dýpkuninni slegið á frest í bili. Á vormánuðum barst erindi frá Seyðisfjarðarbæ varðandi aðstöðu fyrir nýja ferju sem Smiril Line ætlar að láta smíða. Kannaðir voru tveir möguleikar. Annars vegar að nota núverandi aðstöðu í Fjarðarhöfn og gera þar nauðsynlegar endurbætur, hins vegar að byggja upp nýja aðstöðu á leirunum sunnan fjarðar. Niðurstaða úr samanburði var að mun fleira mælti með síðari kostinum. Sérstaklega vó þungt að nýtt svæði á uppfyllingu framan við ós Fjarðarár yrði utan snjóflóðahættu. Farið var í ýmsar undirbúningsrannsóknir vegna dýpkunar og mannvirkjagerðar á hafnarsvæðinu, botnsýnatöku, jarðvegsrannsóknir, mælingar og gerð skipulagsuppdrátta. Í nóvember lá fyrir úrskurður umhverfisráðuneytisins um að fram skyldi fara mat á umhverfisáhrifum nýrra hafnarmannvirkja. Hönnun hf. á Reyðarfirði var falið að vinna umhverfismat vegna dýpkunar og mannvirkjagerðar á leirunum framan við ós Fjarðarár. Þeirri vinnu var ekki lokið um áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 5,5 millj. kr.

Fjarðabyggð.
     Neskaupstaður: Engar framkvæmdir.
     Eskifjörður: Áfram var unnið við byggingu hafskipabryggju austan Bæjarbryggju. Í október lauk Guðlaugur Einarsson ehf. frágangi á stálþili og steypu kantbita á hafskipabryggju, verki sem frestað var á síðasta ári. Boðnar voru út lagnir og tæplega 3000 m2 þekja á bryggjuna og samið við lægstbjóðanda, Þorstein Bjarnason á Fáskrúðsfirði. Verklok voru í nóvember.
    Samið var við Björgun ehf. um dýpkun við hafskipabryggjuna og í september fjarlægði Perlan um 3300 m³ úr viðlegunni við þilið. Ekki náðist þó alls staðar 10 m dýpi á því svæði sem áætlað var að dýpka og er ráðgert að ljúka dýpkuninni þegar grafskip verður næst á ferðinni fyrir austan.
    Lokið var við að steypa þekju á Bræðslubryggju en verkið var boðið út á síðasta ári.
     Reyðarfjörður: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmdakostnaður: 60,7 millj. kr.

Fáskrúðsfjörður.
    Engar framkvæmdir.

Stöðvarfjörður.
    Á áætlun var að ganga frá lýsingu og slitlagi á tengibraut að nýju smábátahöfninni. Lítils háttar var unnið í undirbúningi en framkvæmdum að öðru leyti frestað.
    Framkvæmdakostnaður: 0,2 millj. kr.

Breiðdalsvík.
    Engar framkvæmdir.

Djúpivogur.
    Í febrúar lágu fyrir niðurstöður úr líkantilraunum af höfn í Innri-Gleðivík. Samkvæmt þeim verður í fyrsta áfanga dýpkað og byggð 75 m löng stálþilsbryggja með 9 m dýpi vestan megin í víkinni. Í öðrum áfanga er síðan gert ráð fyrir um 150 m löngum skjólgarði. Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hafnargerðar í Gleðivík var lögð fram í júlí og 10. október kvað Skipulagsstofnun upp úrskurð þar sem fallist var á byggingu hafnar í Innri-Gleðivík.
    Dýpkun og sprengdur skurður fyrir stálþil var boðinn út og tilboð opnuð 20. desember. Lægstbjóðandi var Sæþór ehf. en ekki var búið að ganga frá samningi fyrir áramót.
    Í árslok var keypt stálþil, 286 tonn frá ARBED af gerð AZ26, og 70 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder. Þilið er hannað fyrir 9 m dýpi. Rekstur þils, fyllingar og steyptur kantur var boðinn út, en tilboð ekki opnuð fyrir áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 34,1 millj. kr.

Höfn í Hornafirði.
    Unnið var að venjubundinni viðhaldsdýpkun innan hafnar með dýpkunarskipi hafnarinnar, Soffíu. Samkvæmt reynslu þarf 12–15 þús. m³ árlega viðhaldsdýpkun og er gert ráð fyrir því í hafnaáætlun. Í ár var dælt 15.000 m³ samkvæmt mælingum hafnarstarfsmanna með Birni lóðs.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að byrjað yrði á skjólgarði og dýpkun á nýju hafnarsvæði sunnan við Ósland, svonefndri Faxeyrarhöfn, en fjárveitingu til þessara verkefna var að mestu frestað samkvæmt ákvörðun Alþingis. Það lá fyrir að Faxeyrarhöfn væri matsskyld framkvæmd og verkfræðistofan Fjarhitun hf. hóf á árinu 1999 undirbúning að gerð umhverfismatsskýrslu. Í september lágu fyrir drög að matsáætlun. Eftir er að gera lífríkisrannsókn á Óslandsleiru (fuglatalning og rannsókn á botndýralífi) og botnrannsóknir á fyrirhuguðu hafnarstæði.
    Bygging Þinganesgarðs milli Austurfjöru og Þinganesskerja var boðin út og tilboð opnuð 13. júní. Suðurverk ehf. átti lægsta boð, 73,6% af áætlun. Málaferlum vegna eignarnáms á grjótnámi í landi Hálsenda lauk í ágúst og féll dómur landeiganda í vil, efnistakan var óheimil. Var þá reynt að ná samningum við landeigandann um heimild til efnistöku í námunni. Samningar höfðu ekki tekist um áramót og verkið ekki hafið.
    Framkvæmdakostnaður: 11,6 millj. kr.

Vestmannaeyjar.
    Lítils háttar var unnið í uppsetningu búnaðar fyrir upplýsingakerfið um veður og sjólag. Lagt var rör frá Skansfjöru að hafnarskrifstofu. Eftir er að setja upp vindmæli og sjávarhæðarnema við Skansfjöruna og tengja þessa mæla við tölvu á hafnarskrifstofunni.
    Í lok maí var boðin út þekjusteypa við Friðarhafnarkant og samið við lægstbjóðanda, Vélaþjónustu Þórðar Magnússonar ehf., um að leggja ídráttarrör fyrir rafmagn að tveimur tenglaskápum og steypa 1.404 m² þekju. Verkinu lauk í byrjun september. Þá voru malbikaðir um 1.100 m² þannig að þekjan í heild var rúmlega 2.500 m². Starfsmenn bæjarins sáu um malbikunina. Í lok nóvember var samið við raftækjaverkstæðið Faxa hf. um smíði rafmagnstöflu, raflagnir í tenglaskápa og lýsingu við Friðarhafnarkantinn. Verkinu var ekki að fullu lokið um áramót.
    Lokið var við dýpkun í smábátahöfninni innan Nausthamarsbryggju. Gröfufleki Hagtaks hf. vann verkið. Grafnir voru upp um 1.400 m³.
    Lokið var frágangi við lýsingu og raflögn á nýja stálþilinu austan Friðarhafnarkants. Samið var við Faxa ehf. um verkið og var því lokið í byrjun júní. Settur var upp einn ljósastaur, einn tenglaskápur og neyðarlýsing í stiga.
    Unnið var að endurbyggingu Nausthamarsbryggju. Í ársbyrjun lágu fyrir tilboð í byggingu 60 m stálþilsbakka til austurs frá NA-horni bryggjunnar. Ákveðið var að semja við Lárus Einarsson sf., en í lok mars féll hann frá verkinu. Samningum var þá slitið og uppgjör fór fram á því sem lokið var, en það var mót og járn í 30 akkerisplötur. 13. apríl var undirritaður samningur við AVT-verktaka ehf., en þeir áttu næstlægsta tilboð í útboðinu sem fram fór í desember á síðasta ári. Í byrjun október var lokið við að ganga frá þilinu, fylla að og steypa kant. Sprengja þurfti rás fyrir þilinu nema á um 5 m kafla næst horni gömlu bryggjunnar. Ætlunin var að grafskip Vestmannaeyjahafnar dældi ofan af klöpp í þillínunni, en þegar til kom reyndist vera mjög hörð sandsteins- eða vikurhella 1–2 m á þykkt í botni. Undir þessari hellu var síðan laust millilag ofan á fasta botninum. Eftir nokkrar tilraunir hætti grafskip Vestmannaeyjahafnar dælingu og lauk gröfufleki frá Hagtaki hf. við að hreinsa ofan af klöppinni. Efni í 2. áfanga endurbyggingar Nausthamarsbryggju var keypt skömmu fyrir áramót. Stálþil 630 tonn frá ARBED og 118 tonn af festingaefni frá Anker Schroeder. Á norðurhlið bryggjunnar er stálþilið af gerðinni AZ 26 m hannað fyrir 9 m dýpi, en á suðurhliðinni er AZ18 +0,5 hannað fyrir 5 m dýpi.
    Um mánaðamótin janúar febrúar var samið við 2–Þ ehf. um smíði á fjórum landstöplum fyrir flotbryggjur við smábátahöfnina innan Nausthamars. Tafir urðu m.a. vegna þess að í ljós kom að breyta þurfti staðsetningu stöplanna. Var verkinu ekki að fullu lokið um áramót.
Á síðasta ári fékkst heimild til að flýta dýpkun í innsiglingunni móts við Skansfjöru. Í ljós kom að efnið var of gróft og samþjappað til að hægt væri að dæla því. Samið var við Hagtak hf. um að dýpka með gröfufleka. Voru alls um 26.000 m³ fjarlægðir úr innsiglingunni, 2.500 m³ í maí og 23.500 m³ í september–október.
    Miklar framkvæmdir voru við Hringaskersgarð í Vestmannaeyjum vegna 1.000 ára afmælis kristnitöku. Heimild fékkst fyrir flotbryggju framan við stafkirkjuna, en þetta er nýtt verk sem ekki var á áætlun. Samið var við Króla ehf. um kaup og uppsetningu á 15 x 3 m flotbryggju.
    Dýpka þurfti við Hringaskersgarðinn þar sem flotbryggjan átti að koma og var samið við Hagtak hf. um framkvæmdina. Sprengt var og grafið tæplega 400 m² svæði í tveggja til þriggja metra dýpi. Áður en dýpkunin hófst var nauðsynlegt að staðsetja vatnsleiðslu sem þarna liggur í botni. Dýpkuninni og niðursetningu flotbryggju var lokið í júlí.
    Framkvæmdakostnaður: 168,3 millj. kr.

Þorlákshöfn.
    Engar framkvæmdir

Grindavík.
    Lokið var frágangi vegna leiðarmerkja fyrir nýju innsiglinguna. Verkið var að mestu unnið síðastliðið haust, en kostnaður færist allur á þetta ár.
    Fram fór undirbúningsvinna vegna hönnunar skjólgarða við innsiglinguna og vinna við mat á umhverfisáhrifum grjótnáms fyrir garðana.
    Framkvæmdakostnaður: 17,5 millj. kr.

Sandgerði.
    Samið var við Króla ehf. um kaup og uppsetningu á 40 m langri flotbryggju. Í byrjun desember var bryggjan sett niður framan við næstystu flotbryggjuna við Suðurgarð og er sú bryggja nú 80 m löng. Frágangi bryggjunnar var ekki að fullu lokið um áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 3,0 millj. kr.

Hafnasamlag Suðurnesja.
     Garður: Lýsing á bryggju var endurbætt og sett innsiglingarljós á bryggjuhaus. Bygging ljósamasturshúss var boðin út og samið við lægstbjóðanda, Braga Guðmundsson verktaka í Garði, um verkið. Sigurður Ingvarsson rafverktaki í Garði annaðist raflagnir og uppsetningu ljósabúnaðar.
    Reykjanesbær: Á árunum 1996–1997 var unnið að viðgerð á aðalhafnargarðinum í Keflavík eftir tjón sem varð í óveðri 30. september 1995. Í tengslum við viðgerðina var farið í byggingu á ljósamasturshúsi og lagðar nýjar lagnir fyrir vatn og rafmagn á bryggjuna. Í hafnaáætlun fyrir árin 1997–2000 var gert ráð fyrir að þetta verkefni kæmi til framkvæmda á árunum 1999–2000. Kostnaður við verkið ljósamasturshús og lagnir á aðalhafnargarð varð 11,5 millj. kr. og var samþykkt að taka þá upphæð til uppgjörs árið 2000.
    Tjónastyrkur var veittur úr Hafnabótasjóði vegna viðgerðar á aðalhafnargarðinum sem framkvæmd var á árunum 1996–1997. Lokið var við að greiða út styrkinn á árinu.
     Vogar: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmdakostnaður og uppgjör: 14,9 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir framkvæmdum við Háabakka, en þeim framkvæmdum var frestað.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem eru ekki ríkisstyrktar.)

Garðabær.
    Engar framkvæmdir.

Kópavogur.
    Engar framkvæmdir.

Reykjavík.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem eru ekki ríkisstyrktar.)

Óskipt fjárveiting.
    Óskipt fjárveiting var notuð til að styrkja ýmsar minni háttar framkvæmdir, svo sem til að lagfæra innsiglingarmerki, setja stiga á bryggjur, lýsingu og önnur öryggismál. Almennt er miðað við að einstakar framkvæmdir kosti ekki meira en um 1,0 millj. kr.
    Á árinu var samþykkt að styrkja dýpkun sem framkvæmd var á Kópaskeri. Hreinsað var upp efni sem borist hafði að bryggjunni framan við bátarennuna.
    Lokið var uppgjöri vegna innsiglingarljósa á Norðurfirði á Ströndum, en sú framkvæmd var samþykkt árið 1996.
    Framkvæmdakostnaður: 0,9 millj. kr.

HAFNARFRAMKVÆMDIR SEM ERU EKKI RÍKISSTYRKTAR

    Í höfnum landsins var unnið að ýmsum framkvæmdum sem ekki njóta ríkisstyrkja. Oftast eru þetta viðhaldsverkefni, eða minni háttar nýbyggingar. Þó var unnið að nokkrum stærri verkefnum í höfnum á síðastliðnu ári. Eftirfarandi hafnir hafa komið upplýsingum um framkvæmdir á framfæri.

Grundartangi.
    Lokið var lítils háttar frágangi vegna þekju og lagna á nýju bryggjunni og unnið við hönnun og rannsóknir.
    Framkvæmdakostnaður: 0,5 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Á árinu var lokið uppgjöri við Ístak hf. vegna brimvarnargarðs. Kostnaður við það 91 millj. kr. Unnið var að frágangi við Hvaleyrarbakka fyrir 51 millj. kr. Samið var um smíði á nýjum dráttarbát og var kostnaður á árinu vegna bátsins 49 millj. kr.
    Framkvæmdakostnaður: 191,0 millj. kr.

Reykjavík.
    Í fjárhags- og framkvæmdaáætlun hafnarinnar fyrir árin 2000–2002 var gert ráð fyrir að ráðstöfunarfé hafnarsjóðs yrði að meginhluta varið til uppbyggingar hafnarmannvirkja og lands í Sundahöfn og bættrar aðstöðu við farmstöðvar skipafélaga í áætlanasiglingum.
    Unnið var við lengingu Kleppsbakka í Vatnagörðum fyrir farmstöð Eimskips. Lokið var efnisskiptum og landfyllingum undir væntanlegum hafnarbakka og farg sett á svæðið til að ná fram landsigi áður en bygging bakkans gat hafist. Keypt var stálþil og stagefni og bygging hafnarbakka boðin út. Samhliða bakkagerð var unnið að landgerð og fergingu lands sunnan bakkans, en þar hefur Eimskip verið úthlutað 5 hektara viðbótarlandi.
    Lokið var lengingu Vogabakka til suðurs, en framkvæmdir við byggingu þessa bakka hófust 1999. Samhliða frágangi bakka var lokið dýpkun viðlegu og landgerð við bakkann. Með lengingu Vogabakka til suðurs hefur verið brugðist við aðstöðuþörfum flutningsaðila og byggður nýr og afkastamikill fjölnota bakki, sem nýtist ýmsum aðilum svo sem í innflutningi byggingarvöru. Mikil nýting er þegar orðin á þessum bakka og hröð uppbygging á aðstöðu notenda við bakkann.
    Unnið var við lengingu Vogabakka til norðurs fyrir farmstöð Samskipa í Kleppsvík. Lokið var efnisskiptum og landfyllingum undir væntanlegum hafnarbakka og farg sett á svæðið, en þar voru aðstæður varðandi botnlög svipaðar og við lengingu Kleppsbakka. Keypt var stálþil og stagefni og bygging hafnarbakka boðin út. Samhliða lengingu bakka var unnið að landgerð og fergingu lands á baksvæði bakka, en þar hefur Samskip verið úthlutað 2 hektara viðbótarlandi. Vegna aukinnar djúpristu skipa var hafinn undirbúningur að dýpkun nýrrar innsiglingar að Kleppsvík. Lokið var mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og fyrir liggur úrskurður skipulagsstjóra, þar sem framkvæmdir eru samþykktar. Um stórt dýpkunarverk er að ræða, sem alls er 500.000 m³ og verður unnið í áföngum á næstu þremur árunum. Allt efni sem upp kemur verður nýtt til landgerðar. Útboð á verkinu fór fram í lok árs 2000.
    Aðrar helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurhafnar á árinu voru ýmis verkefni við þróun hafnarlands og landgerð bæði í Gömlu höfninni og eins í Sundahöfn.
    Framkvæmdakostnaður: 554,7 millj. kr.

FERJUBRYGGJUR

    Um miðjan ágúst var lokið endurbótum á bryggju í Flatey á Breiðafirði, en samið var um það verk við Skipavík hf. í Stykkishólmi í september á síðasta ári.
    Unnið var að endurbótum á ferjubryggjum í Djúpi fyrir farþegabát Sjóferða ehf. sem nú annast ferjusiglingarnar. Í Vigur var smíðað og sett niður flotholt 2,5 m x 7,0 m utan á bryggjuna. Einnig var settur upp landgangur til að auðvelda móttöku ferðamanna. Í Ögri og Vatnsfirði var unnið að lítils háttar viðhaldi.
    Í byrjun febrúar var boðin út viðgerð á ferjubryggjunni í Mjóafirði og samið um verkið við Guðlaug Einarsson frá Sauðárkróki. Viðgerðin fólst í að reknir voru niður 32 nýir staurar undir bryggjuna og skipt um tangir og skástífur. Verkinu lauk um mánaðamótin nóvember –desember.
    Framkvæmdakostnaður: 19,6 millj. kr.

SJÓVARNARGARÐAR

     Akranes: Snemma á árinu lauk Suðurverk hf. samningsverki frá síðasta ári við gerð sjóvarnargarðs við Krókalón. Alls var í þessum áfanga byggður sjóvarnargarður á um 320 m kafla til norðurs frá gatnamótum við Grundartún. Í september var boðin út sjóvörn á Breiðinni, frá olíutönkum að ÞÞÞ og samið við lægstbjóðanda, Ísar ehf. Byggður var nýr sjóvarnargarður og styrkt eldri vörn á alls 292 m kafla frá horninu við Lambhúsasund að olíutönkum. Í sjóvörnina fóru 3.700 m³ af grjóti og kjarna. Efni var tekið úr grjótnámu í landi Kirkjubóls. Verkinu lauk í byrjun nóvember.
     Snæfellsbær: Lokið var frágangi og uppgjöri vegna sjóvarna sem unnið var að á síðasta ári við Keflavíkurgötu á Hellissandi og við verslunarmiðstöðina að Ólafsbraut 55 í Ólafsvík.
     Dalabyggð: Styrkt var sjóvörn framan við sláturhúsið á um 350 m kafla. Um 1600 m³ af grjóti og kjarna fóru í vörnina. Samið var við Víðimelsbræður ehf. um þetta verk, en þeir unnu að gerð smábátahafnar í Búðardal. Verkið var unnið í apríl–maí.
     Vesturbyggð: Unnið að undirbúningi vegna sjóvarnar á Bíldudal milli beitningahúss og saltfisksverkunar. Samið var um verkið við Norðurtak ehf. en framkvæmdir hófust ekki fyrr en eftir áramót.
     Ísafjarðarbær: Unnið var í sjóvörn á Suðureyri við Aðalgötu. Verkið var boðið út með verkinu ,,Grjótvörn við Brjót“ og samið við lægstbjóðanda, Norðurtak ehf. frá Sauðárkróki. Sjóvarnargarðurinn við Aðalgötu var lengdur um 140 m og fóru um 3.500 m³ af grjóti og kjarna í verkið. Grjótið var sótt í námuna á Ísafirði. Í verklok var ákveðið að keyra um 830 m³ af kjarna úr námunni í sjóvarnargarðinn við Sundstræti á Ísafirði en þar höfðu myndast tvö skörð.
     Hólmavíkurhreppur: Fylling ehf. lauk við sjóvarnir sem samið var um á síðasta ári við Fiskmarkaðshúsið Hafnarbraut, utan við Rifshaus og við Kópnesbraut. 2.500 m³ af grjóti og kjarna fóru í sjóvörnina. Efnið var tekið úr skriðu ofan við flugvöllinn. Afgangur var af fjármagni sem ætlað var til verksins og var samið við verktakann um að hann skyldi á næsta ári vinna við styrkingu á um 60 m kafla við Kópnesbraut.
     Blönduósbær: Undir árslok var veitt heimild til að bjóða út 135 m langa sjóvörn norðan við skólphreinsistöð sem byggð hefur verið norðan við ós Blöndu. Verkið var ekki hafið um áramót.
     Dalvíkurbyggð: Unnið var áfram í sjóvörn á Dalvík sunnan við Brimnesá, verk sem samið var um við Jarðverk ehf. á Dalvík á síðasta ári. Sjóvarnargarðurinn var lengdur til suðurs um 80 m. Eftir er nú að verja um 90 m kafla frá Blika að hafnargarði. Samið var við Eyjólf Þ. Jónsson um byggingu sjóvarnargarða við Árskógssand vestan við höfnina og við Brimnes, en þessi sjóvörn var boðin út um leið og endurbætur á ferjuaðstöðunni. Ekki var byrjað á sjóvörnum við Árskógssand á árinu.
     Hrísey: Lokið var uppgjöri við verktaka vegna sjóvarnargarðs sem unninn var á síðasta ári.
    Grýtubakkahreppur: Eyjólfur Þ. Jónsson lauk samningsverki frá því í fyrra við 165 m sjóvarnargarð norðan gömlu bryggjunnar. Þar sem tilboð verktakans var hagstætt var samið við hann að vinna áfram á sama verði fyrir þá fjárveitingu sem kom árið 2000. Var sjóvarnargarðurinn norðan gömlu bryggjunnar lengdur 130 m í viðbót og 130 m garður byggður sunnan við gömlu bryggjunnar. Alls voru því kláraðir 425 m af sjóvörn. Heildarmagn af grjóti var um 9000 m³.
     Raufarhafnarhreppur: Unnin var sjóvörn sunnan hafskipabryggju. Verktaki var Iðufell ehf. Lengd sjóvarnar var um 350 m, heildarmagn um 4100 m3.
     Sveitarfélagið Árborg: Bergbrot ehf. vann að sjóvörn við barnaskólann á Eyrarbakka og við Gamla-Hraun, verki sem samið var um í nóvember á síðasta ári. Sjóvarnargarður við barnaskólann var lengdur um 150 m til austurs og við Gamla-Hraun var byggður 240 m langur sjóvarnargarður. Að auki var samið við verktakann um að lagfæra sjóvarnargarð við Hraunsá vestan við Stokkseyri. Sjóvörnin þar var styrkt á um 65 m kafla og bætt í hana um 350 m³ af grjóti.
     Ölfushreppur: Unnið var að undirbúningi sjóvarna á Hafnarnesi og við Malir. Ákveðið var að bjóða allt verkið út á næsta ári þegar nægilegt fjármagn yrði fyrir hendi.
     Gerðahreppur: Byggður var um 200 m sjóvarnargarður frá gamla vitanum að byggða- og sjóminjasafninu. Við Lambastaði–Útskála var byggð 150 m sjóvörn. Alls fóru um 5.000 m³ af grjóti og kjarna í sjóvörnina. Efnið var tekið í Garðsnámu. Verktaki var Ellert Skúlason.
Alþingi samþykkti að veita 2,8 millj. kr. til sjóvarna við golfvöllinn í Leiru. Golfklúbburinn hefur undanfarin ár staðið þar í umtalsverðum framkvæmdum. Í ár var lokið við rúmlega 300 m kafla frá æfingarsvæði við Jóelinn að Hólmssundi. Verktaki var SEES ehf.
     Bessastaðahreppur: Suðurverk hf. vann áfram að sjóvörnum í Bessastaðahreppi. Unnið var á svæðinu vestur frá Blikastíg í átt að Sjávargötu. Um 6.500 m³ af grjóti og kjarna var ekið í sjóvörnina og tæplega 2.000 m³ af grjóti var endurraðað. Á þessu svæði er nú eftir að styrkja um 250 m kafla á móts við Kasthúsatjörn.
    Framkvæmdakostnaður: 72,4 millj. kr.

STARFSEMI SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS

    Starfsemi Siglingastofnunar skiptist í þrjá höfuðþætti: hafnamál, skipamál og vita- og leiðsögumál. Í þessari skýrslu er fjallað ítarlega um hafnamálin og verkefni Siglingastofnunar á því sviði. Hér á eftir er lítillega drepið á nokkra aðra þætti í starfsemi stofnunarinnar árið 2000.
    Á hverju ári gefur Siglingastofnun út skrá yfir þilfarsskip og opna báta miðað við 1. janúar. Útgáfan er samkvæmt lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985. Um síðustu áramót voru 2.428 skip á aðalskipaskrá Siglingastofnunar. Þilfarsskipin voru 1.067 en opnir bátar 1.361. Þilfarsskipum fjölgaði alls um 53 á milli ára en opnum bátum fækkaði samtals um 37. Í brúttótonnum talið hefur stærð skipaflotans minnkað um tæp 8 þúsund tonn.
    Skoðunarsvið Siglingastofnunar er með sjö umdæmisskrifstofur um land allt sem annast eftirlit með skipum. Árið 2000 voru gerðar samtals 9.386 skoðanir, 5.067 aðalskoðanir og 4.319 aukaskoðanir. Aðalskoðun skips skiptist í árlega búnaðar- og vélskoðun, bolskoðun sem gerð er annað hvert ár og öxulskoðun á fjögurra ára fresti. Aðrar skoðanir eru t.d. skyndiskoðanir, skoðanir á fjarskiptatækjum, brunavarnakerfum, hallaprófanir, rafmagnsskoðanir, skoðanir vegna nýsmíði o.fl.
    Ísland fékk fulla aðild að Parísarsamkomulaginu um hafnarríkiseftirlit á árinu. Tilgangur hafnarríkiseftirlitsins er að stemma stigu við siglingum skipa sem ekki uppfylla alþjóðakröfur um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti áhafna kaupskipa, atvinnuréttindi þeirra og mengun frá skipum. Reynt er að skoða a.m.k. 25% þeirra erlendu kaupskipa sem koma í höfn aðildarríkjanna árlega. Hér á landi voru 82 skip skoðuð sem er um það bil fjórðungur erlendra kaupskipa sem koma til landsins. Sjö skip voru sett í farbann. Skipin sem skoðuð voru hérlendis komu frá 19 fánaríkjum.
    Af öðrum verkefnum á sviði skipamála má nefna útgáfu atvinnuréttindaskírteina, þjónustu við mönnunar- og undanþágunefndir sjómanna og undirbúning og kynningu á laga- og reglugerðasetningu. Þá er alþjóðasamstarf á sviði siglingamála mikið og tekur Siglingastofnun m.a. þátt í starfi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, IMO.
    Á árinu 2000 ýtti samgönguráðherra úr vör vinnu við gerð langtímaáætlunar um öryggismál sjófarenda. Siglingastofnun var falin framkvæmd verksins og í desember var ráðherra afhent skýrsla um málið.
    Til að reka vita- og leiðsögukerfi við Ísland fær Siglingastofnun til ráðstöfunar vitagjald. Samkvæmt vitalögum, nr. 132/1999, greiða allir bátar sem sigla við Íslandsstrendur og hafa hér viðkomu vitagjald. Fjárhæð gjaldsins tekur mið af brúttótonnatölu skipsins.
    Árlega fara starfsmenn Siglingastofnunar í alla vita og baujur til eftirlits með búnaði. Að jafnaði er reynt að sinna viðhaldi á fimmtu hverri vitabyggingu árlega en alls rekur stofnunin 104 ljósvita meðfram strönd landsins. Á árinu 2000 var unnið að meiri háttar viðhaldi í rúmlega 20 vitum.
    Bandaríkjamenn hættu að rugla GPS-staðsetningarkerfið á árinu og er nú staðsetningarnákvæmni kerfisins 10 til 20 metrar. Leiðréttingarkerfið DGPS verður engu að síður rekið áfram þar sem það getur gefið aðvaranir ef skekkja verður í GPS-kerfinu eða ef gervihnöttur bilar.
    Rekstur upplýsingakerfisins um veður og sjólag gekk vel á árinu og var nýtt öldudufl sett út í vestanverðum Húnaflóa.
    Fréttabréf Siglingastofnunar, Til sjávar, og heimasíða stofnunarinnar, www.sigling.is, mynda kjarnann í upplýsingastarfsemi stofnunarinnar. Fimm tölublöð komu út af Til sjávar árið 2000. Fréttabréfinu er dreift til allra skráðra skipa og báta, útgerða, hafna, sveitarfélaga, alþingismanna, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Í blaðinu eru greinar og fréttir um það helsta sem er að gerast á vettvangi stofnunarinnar. Á www.sigling.is er einnig að finna allar helstu upplýsingar um starfsemina, lög og reglur, útboð, fréttabréf o.fl., að ógleymdu upplýsingakerfinu um veður og sjólag.

Tölur úr rekstri Siglingastofnunar 2000 (í millj. kr.).

Tekjur Almennir
viðskiptavinir
Af
fjárlögum
Tekjur
samtals
Ýmsar tekjur, bókhaldsþjónusta, þóknun, vaxtatekjur 22 6 28
Vitar og leiðsögukerfi, rekstur og stofnkostnaður 14 117 131
Rannsóknir 0 49 49
Hafnasvið, framkvæmdir og áætlanir 60 18 78
Skipaverkefni 6 50 56
Skoðunarsvið 42 83 125
Hafnarríkiseftirlit 0 13 13
Tækjaleiga og vörusala 10 0 10
Tekjur samtals 154 336 490

Gjöld
Launakostnaður 304
Önnur gjöld 166
Stofnkostnaður 25
Gjöld samtals 495
Rekstrarhalli -5
Samtals      490


RANNSÓKNIR Í HAFNAMÁLUM

    Á vegum Siglingastofnunar var unnið að rannsóknum á sviði hafnamála fyrir 45,7 millj. kr. Helstu verkefnisflokkar eru eftirfarandi:
     Frumrannsóknir. Kostnaður 3,0 millj. kr. Með frumrannsóknum er átt við öflun ýmissa grunnupplýsinga, mælingar og rannsóknir sem stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvörðunum við val á lausnum við mannvirkjagerð.
     Grunnkort af höfnum. Kostnaður 3,0 millj. kr. Dýptarmælingar voru gerðar utan Þorlákshafnar. Mældir voru inn grunnpunktar við Víkurfjöru, í Búðardal og mæld snið við Hornafjarðarós.
     Sjávarföll og sjávarflóð. Kostnaður 1,0 millj. kr. Unnið var að uppsetningu og prófun á sjávarfallalíkani Siglingastofnunar þannig að líkanið geti keyrt sjálfvirkt sem hluti af upplýsingakerfinu um veður og sjólag. Haldið var áfram að kvarða sjávarfallamæla sem settir hafa verið upp í höfnum í samstarfi við Landmælingar Íslands og tengingu þeirra við landshæðarkerfið.
     Líkantilraunir og frumáætlanir. Kostnaður 12,3 millj. kr. Lokið var við líkantilraunir af Djúpavogi. Byggt var líkan af Húsavíkurhöfn. Markmið tilraunanna var að kanna legu brimvarnargarðs til að skýla núverandi höfn. Niðurstaða tilraunanna var svonefndur Bökugarður sem er um 300 m langur og nær út á um 12 m dýpi. Með tilkomu garðsins fæst mun meiri kyrrð innan hafnar og betri nýting á núverandi höfn, auk þess verður hægt að byggja viðlegukant innan á garðinum með allt að 10 m dýpi. Ástæða fyrir þessari viðamiklu framkvæmd er sú mikla ókyrrð sem er inni í höfninni, bæði við norður- og suðurgarð. Það er einungis í smábátahöfninni á Húsavík sem kyrrð uppfyllir þá staðla sem Siglingastofnun vinnur samkvæmt. Frá náttúrunnar hendi er Húsavíkurhöfn erfið.
     Öldurannsóknir. Kostnaður 4,0 millj. kr. Unnið var að öldufarsreikningum fyrir iðnaðarhöfnina á Reyðarfirði og fiskihöfnina í Neskaupstað, auk viðbótarreikninga fyrir Húsavíkurhöfn. Unnið var að undirbúningi og uppsetningu á nýju öldusveigjuforriti, SWAN.
     Almennar rannsóknir í höfnum. Kostnaður 7,0 millj. kr. Unnar voru ýmsar rannsóknir í höfnum. Unnið var að frumkönnun á úrbótum á innsiglingunni til Rifshafnar. Í lok árs var samþykkt þingsályktunartillaga um rannsóknir á ferjuaðstöðu við Bakkafjöru undan Vestmannaeyjum. Unnið var að tillögum um bætta hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn, bæði tillögur að stórskipahöfn ásamt tillögum að stækkun fiskihafnarinnar.
     Reyðarfjörður. Unnið var fyrir 9,8 millj. kr., en stofnunin fékk tímabundið framlag 8,0 millj. kr. til að standa straum af kostnaði við undirbúningsrannsóknir vegna hafnargerðar við álvershöfn sem hugsanlega verður byggð í Reyðarfirði. Vegna aukinnar skipaumferðar stærri skipa var unnin skýrsla um hættumat á siglingaleið um Reyðarfjörð. Í henni eru settar fram tillögur til að auka öryggi á siglingaleiðinni um fjörðinn og mynni hans. Gerðir voru öldufarsreikningar frá hafi og inn Reyðarfjörð, allt að fyrirhugaðri höfn við Hraun. Gerðar voru rannsóknir á lausum jarðlögum með borunum og sýnatökur. Niðurstöðurnar voru notaðar til að ákveða gerð og legu hafnarkants. Unnið var að frumhönnun hafnarmannvirkja.
     Aðrar rannsóknir. Kostnaður 5,5 millj. kr.
    Unnið var áfram að áhættumati á siglingum stórra skipa við Suðvesturland. Nefnd sem samgönguráðherra skipaði um takmörkun siglinga skipa við suðvesturströnd Íslands skilaði niðurstöðu á árinu. Í nefndarálitinu er gert ráð fyrir að fram fari rannsóknir á öldufari og straumum og áhrifum þess á siglingaöryggi mismunandi tegunda skipa á siglingaleiðum við Suðvesturland. Stefnt er að því að vinna skýrslu um siglingaöryggi mismunandi skipa og samanburður gerður á siglingaleiðum. Þessi skýrsla verður unnin í samvinnu við þá aðila sem starfað hafa með Siglingastofnun að þróun upplýsingakerfis um hættulegar öldur og stöðugleika minni fiskiskipa.
    Í júní var haldin á vegum Siglingastofnunar ráðstefna alþjóðlegs sérfræðingahóps um öldurannsóknir. Þátttakendur vinna við ýmis ölduspálíkön, þróun líkana og notkun þeirra. Þátttakendur voru 60 frá 17 löndum.
    Lokið var við útgáfu heimildarrits um rannsóknir á siglingaleið um Hornafjarðarós.
    Á árinu var skýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra gefin út. Siglingastofnun vann einkum að köflunum um hækkun sjávarborðs og ágang sjávar annars vegar og um áhrif veðurfarsbreytinga á hönnun mannvirkja.
    Hönnun bermugarða var kynnt með rannsóknargreinum í samvinnu við jarðfræðistofuna Stapa. Á alþjóðlegu haf- og strandverkfræðiráðstefnunni ICCE'2000 í Ástralíu var birt greinin „Design Considerations of Berm Breakwaters“ og á norrænu jarðtækniráðstefnunni NGM-2000 var fluttur lykilfyrirlestur fyrir Íslands hönd „Quarry Yield Prediction as a Tool in Breakwater Design“. Þá var stofnuninni boðið að halda námskeið um bermugarða á alþjóðlegri haf- og strandverkfræðiráðstefnu í Ástralíu. Tekið var þátt í störfum alþjóðlegrar nefndar á vegum PIANC um gerð bermugarða.
    Birt var grein um upplýsingakerfi um veður og sjólag í Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000. Í samvinnu við starfsmenn norsku sjóslysanefndarinnar fyrir fiskiskip og háskólans í Þrándheimi var birt grein á ráðstefnunni World Fish Tech í Noregi, „The Relation Between Environment, Stability and Operation for Fishing Vessels“.
    Unnið var að uppbyggingu og innsetningu gagna í gagnagrunn upplýsingakerfis um veður og sjólag. Þá var unnið að úrvinnslu mælinga á hreyfistöðugleika fiskiskips og niðurstöður bornar saman við mælingar á hreyfistöðugleika líkans með sömu öldur í líkani og náttúru.

Tafla I. Hafnarframkvæmdir 2000 (fjárhæðir í millj. kr.).


Höfn

Verkefni
Styrk-
hlutfall

Heildarkostnaður

Ríkishluti
I. Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir
Akranes Aðalhafnargarður: Styrking 75% 0,1 0,1 0,1
Snæfellsbær Arnarstapi: Viðhaldsdýpkun 75% 0,9
Arnarstapi: Lenging grjótgarðs 75% 0,1
Arnarstapi: Lenging viðlegu 60% 6,8
Rif: Viðhaldsdýpkun í innsiglingu og höfn 75% 0,6
Rif: Skjólgarður 75% 0,5
Ólafsvík: Björgunarstigar og vatnslagnir 60% 0,1 9,0 5,7
Grundarfjörður Flotbryggja 60% 5,9
Lenging Stórubryggju 60% 5,4 11,3 6,8
Stykkishólmur Stykkisbryggja: Styrking landgangs, lýsing 60% 9,2 9,2 5,5
Dalabyggð Smábátaaðstaða: Flotbryggja 60% 3,5
Smábátaaðstaða: Grjótgarður, dýpkun 75% 18,1 21,6 15,7
Ísafjörður Ísafjörður: Ferjuaðstaða 60% 1,5
Flateyri: Stálþil 60% 6,2
Suðureyri: Grjótvörn við Brjót 75% 6,8 14,5 9,7
Súðavík Leiðrétting vegna eldri framkvæmda 75% 0,3 0,3 0,2
Hólmavík Upptökubraut 60% 1,2 1,2 0,7
Blönduós Dýpkun hafnar 75% 3,9
Hækkun kants 60% 1,2 5,1 3,6
Skagaströnd Skúffugarður: Steyptur kantur, þekja og lýsing 60% 8,9 8,9 5,3
Skagafjörður Sauðárkrókur: Stálþil 60% 0,1 0,1 0,1
Siglufjörður Óskarsbryggja, lenging 60% 0,2
Dýpkun 75% 0,9 1,1 0,8
Hafnasamlag Eyjafjarðar Dalvík: Norðurgarður. stálþil 60% 18,1
Ólafsfjörður: Norðurgarður, styrking 75% 28,7
Árskógssandur: Skjólgarður, Hríseyjarferja 75% 28,8 75,6 54,0
Grímsey Styrking aðalhafnargarðs 75% 8,9 8,9 6,7
Hafnasamlag Norðurlands Akureyri: Fiskihöfn, Vesturbakki, stálþil 60% 52,6
Akureyri: Lóðsbátabryggja 60% 4,4
Grenivík: Smábátaaðstaða, skjólgarður 75% 8,0
Grenivík: Flotbryggja 60% 4,5
Grenivík: Uppgjör skv. 23. gr. hafnalaga 100% 8,0 77,5 50,9
Húsavíkurhöfn Brimvarnargarður, umhverfismat 75% 11,1 11,1 8,3
Kópasker Viðlegubryggja smábáta 60% 0,1 0,1 0,1
Raufarhöfn Upplýsingakerfi 75% 0,1
Löndunarbryggja, stálþil 60% 1,1 1,2 0,7
Þórshöfn Suðurgarður 90% 0,9
Hafskipabryggja, stálþil 60% 4,6
Hafskipabryggja – Bátabryggja, raflagnir 60% 6,0
Norðurgarður, lenging 75% 1,5 13,0 8,3
Vopnafjörður Stálþil 60% 66,0 66,0 39,6
Seyðisfjörður Smábátahöfn 60% 0,1
Fjarðarhöfn: Dýpkun 75% 3,9
Dráttarbraut 60% 1,5 5,5 3,9
Fjarðabyggð Eskifjörður: Bræðslubryggja 60% 7,9
Eskifjörður: Stálþilsbryggja 60% 49,8
Eskifjörður: Dýpkun 75% 3,0 60,7 36,9
Stöðvarfjörður Slitlag á tengibraut 60% 0,2 0,2 0,1
Djúpivogur Gleðivík: Dýpkun 75% 7,1
Gleðivík: Stálþil 60% 27,0 34,1 21,5
Hornafjörður Dýpkun hafnar 75% 7,3
Þinganesgarður 75% 4,3 11,6 8,7
Vestmannaeyjar Friðarhafnarkantur, endurbyggt stálþil, lagnir, þekja 60% 24,7
Nýtt stálþil austan Friðarhafnarkants, lýsing, lagnir 60% 1,1
Nausthamarsbryggja, endurbygging 60% 104,4
Upplýsingakerfi 75% 0,3
Dýpkun innsiglingar 75% 21,8
Hringaskersgarður, flotbryggja 60% 3,8
Hringaskersgarður, dýpkun við flotbryggju 75% 7,9
Smábátaaðstaða innan Nausthamars, landstöplar o.fl. 60% 2,5
Smábátaaðstaða innan Nausthamars, dýpkun 75% 1,8 168,3 105,8
Þorlákshöfn Dýpkun hafnarsvæðis 75% 0,2 0,2 0,2
Grindavík Innsiglingarmerki 75% 15,7
Skjólgarðar vestan innsiglingar, undirbúningur 75% 1,8 17,5 13,1
Sandgerði Flotbryggja 60% 3,0 3,0 1,8
Hafnasamlag Suðurnesja Garður: Endurbætt lýsing 60% 3,4
Uppgjör vegna ljósahúss og lagna á aðalhafnargarði 60% 11,5 14,9 8,9
Af óskiptu fé Kópasker, dýpkun 75% 0,4
Leiðrétt vegna framkvæmda fyrri ára 90% 0,5 0,9 0,8
Alls ríkisstyrktar framkvæmdir 652,7 652,7 424,4
60% 448,5
75% 194,8
90% 1,4
100% 8,0
Samtals 652,7 652,7 424,4


II. Ferjubryggjur
Flatey á Breiðafirði 100% 3,9 3,9
Vigur 100% 3,4 3,4
Ögur 100% 0,6 0,6
Vatnsfjörður 100% 0,1 0,1
Reykjanes 100% 0,1 0,1
Arngerðareyri 100% 0,1 0,1
Æðey 100% 0,1 0,1
Mjóifjörður 100% 11,3 11,3
    Samtals ferjubryggjur 19,6 19,6


Tafla II. Framkvæmdir við sjóvarnir 2000 (fjárhæðir í millj. kr.).



Sveitarfélag
Famkvæmda-
kostnaður
Hluti
ríkisins
Akranes 10,0 8,8
Snæfellsbær 1,7 1,5
Dalabyggð 0,3 0,3
Vesturbyggð 0,4 0,4
Ísafjarðarbær 8,1 7,1
Hólmavíkurhreppur 2,8 2,5
Blönduós 0,4 0,4
Dalvík 3,3 2,9
Grenivík 15,3 13,3
Hrísey 1,4 1,2
Raufarhöfn 5,2 4,6
Eyrarbakki 0,4 0,4
Árborg 3,2 2,8
Ölfushreppur 2,1 1,8
Garður 8,2 7,2
Vogar 0,3 0,3
Bessastaðahreppur 9,3 8,1
Samtals 72,4 63,4

Tafla III. Rannsóknarverkefni 2000 (fjárhæðir í millj. kr.).
Almennar rannsóknir, óskipt 4,7
Ýmsar hafnarrannsóknir 3,4
Umhverfisrannsóknir 7,1
Skiparannsóknir 0,2
Líkantilraunir:
Húsavík 9,8
Djúpivogur 0,5
Hreyfistöðugleiki skipa 0,3
Sameiginlegur kostnaður 1,9 12,5

Rannsóknarverkefni í höfnum:
Reyðarfjörður 9,8
Höfn í Hornafirði 1,6
Snæfellsbær 1,2
Þorlákshöfn 1,0
Neskaupstaður 1,0
Húsavík 0,4
Djúpivogur 0,2
Lagarfljót 0,2
Árskógssandur 0,2
Vestmannaeyjar 0,1
Grindavík 0,1
Raufarhöfn 0,1
Akureyri 0,2
Hafnasamlag Eyjafjarðar 0,1
Rannsóknir í höfnum óskipt 1,7 17,8
Samtals :

45,7



Tafla IV. Staða ríkissjóðs vegna hafnargerðar 2000 (fjárhæðir í millj. kr.).
Höfn: Staða ríkissjóðs Ríkishluti Staða ríkissjóðs
í árslok 1999 framkvæmda Fjárveiting í árslok 2000
Vantar Ónotað 2000 2000 Vantar Ónotað
Akranes 6,7 0,1 6,7 0,1
Borgarnes 0,1 0,1
Snæfellsbær 5,5 5,7 3,1 2,9
Grundarfjörður 20,5 6,8 13,7
Stykkishólmur 4,4 5,5 9,9
Reykhólahöfn 0,1 0,1
Búðardalur 12,5 15,7 4,1 0,9
Vesturbyggð 3,2 3,6 0,4
Tálknafjörður 2,3 2,3
Bolungarvík 5,9 5,9
Ísafjarðarbær 28,0 9,7 11,0 29,3
Súðavík 7,5 0,2 8,3 0,6
Drangsnes 0,3 0,3
Hólmavík 7,5 0,7 6,8
Húnaþing vestra 4,7 8,4 13,1
Blönduós 3,6 5,2 1,6
Skagaströnd 0,1 5,3 4,4 1,0
Skagafjörður 2,3 0,1 2,2
Siglufjörður 4,6 0,8 3,8
Hafnasamlag Eyjafjarðar 23,7 54,0 70,8 6,9
Grímsey 1,4 6,7 6,4 1,7
Hafnasamlag Norðurlands 13,6 42,9 72,8 8,3
Sérstök fjárv. til HN skv. 23. gr. laga nr. 6/1996 8,0
Húsavík 32,4 8,3 40,7
Tjörnes
Kópasker 1,3 0,1 1,2
Raufarhöfn 5,5 0,7 11,2 5,0
Þórshöfn 3,0 8,3 14,0 8,7
Bakkafjörður
Vopnafjörður 0,3 39,6 43,4 3,5
Borgarfjörður-eystri
Seyðisfjörður 1,8 3,9 5,6 3,5
Fjarðabyggð 4,0 36,9 31,1 9,8
Fáskrúðsfjörður 0,7 0,7
Stöðvarfjörður 0,1 2,5 2,4
Breiðdalsvík 5,3 5,3
Djúpivogur 2,6 21,5 57,5 33,4
Höfn í Hornafirði 34,3 8,7 8,1 33,7
Vestmannaeyjar 4,6 105,8 76,1 34,3
Eyrarbakki 1,0 1,0
Þorlákshöfn 9,8 0,2 8,5 1,5
Grindavík 427,9 13,1 143,0 298,0
Sandgerði 52,7 1,8 32,8 21,7
Hafnasamlag Suðurnesja 42,7 8,9 35,5 16,1
Hafnarfjörður 9,0 9,0
Garðabær
Óskipt 10,4 0,8 0,6 10,2
Samtals 653,1 151,1 424,4 674,7 451,7 199,9


Tafla V. Fjárveitingar til hafnarframkvæmda 2000 (fjárhæðir í millj. kr.).

Almennar hafnir 674,7
Lendingarbætur:
Búðir á Snæfellsnesi 0,3
Hesteyri 0,4
Broddanes 0,2
Kleifar í Ólafsfirði 0,5
Lagarfljótsbrú 0,8
Breiðdalsvík 0,3 2,5
Ferjubryggjur:
Ferjubryggjur 5,5
Samtals fjárveitingar: 682,7




Tafla VI. Fjárveitingar til sjóvarna 2000 (fjárhæðir í millj. kr.).
Sjóvarnargarðar (fjárlagaliður 10-333):
Akranes 6,6
Dalabyggð 1,3
Reykhólahreppur 0,5
Vesturbyggð 6,9
Ísafjarðarbær 6,5
Hólmavíkurhreppur 3,6
Blönduós 0,1
Höfðahreppur 0,2
Dalvíkurbyggð 9,1
Hríseyjarhreppur 3,2
Arnarneshreppur 0,1
Grýtubakkahreppur 5,4
Raufarhafnarhreppur 4,6
Vopnafjarðarhreppur 0,4
Ölfushreppur 9,4
Gerðahreppur 8
Reykjanesbær 0,2
Bessastaðahreppur 7,5
Óskipt 0,2
73,8


Tafla VII. Úthlutanir Hafnabótasjóðs 2000 (fjárhæðir í millj. kr.).
Styrkir:
a) Styrkir til nýframkvæmda:
Blönduóshöfn 1,0
Búðardalur 3,4
Hafnasamlag Eyjafjarðar 4,0
Sandgerðishöfn 3,2
Skagastrandarhöfn     1,1
Súðavíkurhöfn     1,7
Vopnafjörður 8,0 22,4
b) Tjónastyrkir:
Hafnasamlag Suðurnesja 3,5
Hafnasamlag Eyjafjarðar 13,0
Hafnasjóður Snæfellsbæjar 0,5
Grundarfjarðarhöfn 0,4
Þórshöfn 9,1 26,5
Styrkir alls: 48,9
Lán:
a) Lán v/heimahluta í nýframkvæmdum:
Vopnafjarðarhöfn 8,0
b) Bráðabirgðalán út á væntanlega fjárveitingu:
Tálknafjarðarhöfn 0,6
Lán alls 8,6
Samtals lán og styrkir: 57,5