Ferill 692. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1111 — 692. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um niðurfellingu aðflutningsgjalda af hljóðmagnarasettum til kennslu.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
Áformar ráðherra að beita sér fyrir lagabreytingum sem heimila að aðflutningsgjöld verði felld niður af rafmagnshljóðmagnarasettum til kennslu í skólum, en slíkt magnarakerfi dregur mjög úr álagi á rödd kennara, nemendur heyra betur og það kemur heyrnarskertum börnum sérstaklega til góða?