Ferill 701. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1120  —  701. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um starfsemi Fjárfestingarstofu – orkusviðs.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hver eru helstu verkefni Fjárfestingarstofu – orkusviðs? Að hve miklu leyti tók stofan við hlutverki markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjunar þegar sú skrifstofa var lögð niður og hvaða ný verkefni komu til sögunnar?
     2.      Hvernig er háttað fjárhagslegum rekstri Fjárfestingarstofu – orkusviðs?
     3.      Hver hefur hlutur ríkissjóðs verið í rekstri hennar frá því að hún var stofnuð, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hver hefur heildarkostnaður af rekstri stofunnar verið frá því að hún var stofnuð, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.