Ferill 552. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1126 — 552. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um einkavæðingu ríkisfyrirtækja.
1. Hvaða ríkisfyrirtækjum hefur verið breytt í hlutafélög frá ríkisstjórnarskiptum 1991?
Svar þetta er byggt á upplýsingum sem einstök ráðuneyti hafa látið í té um breytingu á rekstrarformi fyrirtækja sem undir þau heyra eða hafa heyrt á því tímabili sem fyrirspurnin tekur til. Auk þeirra fyrirtækja sem nefnd eru í svari þessu hefur verið unnið að einkavæðingu fyrirtækja sem breytt hafði verið í hlutafélög fyrir umrætt tímabil eða voru stofnuð sem slík.
Utanríkisráðuneyti.
Árið 2000 voru fyrirtækin Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli og Flugstöð Leifs Eiríkssonar sameinuð og breytt í hlutafélagið Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Sjávarútvegsráðuneyti.
Ríkismati sjávarafurða var breytt í hlutafélagið Rýni hf. í desember 1992, sbr. lög nr. 91/1992.
Síldarverksmiðjum ríkisins var breytt í hlutafélagið SR-mjöl hf. 1. ágúst 1993, sbr. lög nr. 20/1993.
Samkvæmt lögum nr. 43/1998 var síldarútvegsnefnd lögð niður og stofnað hlutafélagið Íslandssíld hf. 70% af eignum nefndarinnar runnu til félagsins. Afgangur eignanna rann til tveggja sjóða – annars vegar til síldarrannsókna á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar og hins vegar til vöruþróunar og markaðsöflunar fyrir síldarafurðir.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
Í ársbyrjun 2001 var apótek Landspítala – háskólasjúkrahúss sameinað Sjúkrahússapótekinu ehf. sem Sjúkrahús Reykjavíkur hafði áður rekið.
Fjármálaráðuneyti.
Hlutafélag um rekstur Lyfjaverslunar Íslands hf. var stofnað með lögum nr. 75/1994.
Hlutafélag um rekstur Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar (Skýrr hf.) var stofnað í september 1995 og tók til starfa 1. janúar 1996.
Samgönguráðuneyti.
Hlutafélag var stofnað um rekstur Póst- og símamálastofnunar og tók það til starfa í ársbyrjun 1997. Var það í fyrstu rekið undir heitinu Póstur og sími hf. en var síðar skipt í Landssíma Íslands hf. og Íslandspóst hf.
Iðnaðarráðuneyti.
Frá 1991 hefur rekstrarformi Sementsverksmiðju ríkisins, Orkubús Vestfjarða og Hitaveitu Suðurnesja verið breytt í hlutafélag. Ríkið átti Sementsverksmiðjuna að fullu, en hlut í hinum félögunum.
Viðskiptaráðuneyti.
Frá 1991 hefur rekstrarformi Landsbanka Íslands, Búnaðarbanka Íslands og Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum verið breytt í hlutafélag en ríkið átti þessi fyrirtæki að fullu. Þá voru Fiskveiðasjóður, Iðnlánasjóður, Iðnþróunarsjóður og Útflutningslánasjóður sameinaðir í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. annars vegar og hins vegar Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
2. Hver þeirra hafa verið seld að hluta eða öllu leyti frá því að breytingin átti sér stað?
Rýni hf., SR-mjöl hf., Lyfjaverslun Íslands hf., Skýrr hf., Landssími Íslands hf., Landsbanki Íslands hf., Búnaðarbanki Íslands hf., Samábyrgð Íslands á fiskiskipum og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.
3. Hver þeirra er fyrirhugað að selja á næstunni?
Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar verður haldið áfram að einkavæða fyrirtæki í eigu ríkisins, einkum þau sem keppa við fyrirtæki í einkaeigu. Á það sérstaklega við um Landssíma Íslands hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.
4. Hver hefur verið beinn kostnaður af breytingu á rekstrarformi ríkisfyrirtækja á ári hverju reiknað á núvirði (svo sem söluþóknun, greiðsla til ráðgjafarfyrirtækja, kynning innan lands og utan, auglýsingar og ferðakostnaður)? Svarið óskast sundurliðað eftir fyrirtækjum og helstu útgjaldatilefnum.
Kostnaður við að breyta rekstrarformi ríkisstofnana er mismikill. Í sumum tilvikum er um viðamikla undirbúningsvinnu að ræða en í öðrum er kostnaður óverulegur. Kostnaður sem fallið hefur á fyrirtækin sjálf er ekki talinn með.
Utanríkisráðuneyti.
Samkvæmt bókum utanríkisráðuneytisins nam kostnaður sem féll á ríkissjóð vegna sameiningar Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og breytingar þeirra í hlutafélag 153 þús. kr. og féll til vegna ráðgjafar við gerð lagafrumvarps um stofnun hlutafélagsins.
Sjávarútvegsráðuneyti.
Þar sem langur tími er liðinn síðan Ríkismati sjávarafurða var breytt í hlutafélagið Rýni hf. árið 1992 hefur reynst ómögulegt að finna um hvaða beina kostnað var að ræða. Samkvæmt tegundarmerkingu í BÁR-kerfinu virðist þó sem þessi kostnaður sé óverulegur. Á þetta einnig við um Síldarverksmiðjur ríkisins sem var breytt í SR-mjöl árið 1993.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
Ekki um beinan kostnað að ræða.
Fjármálaráðuneyti.
Upplýsingar um kostnað af breytingu á rekstrarformi Lyfjaverslunar ríkisins liggja ekki fyrir. Hins vegar er ljóst að beinn útlagður kostnaður var óverulegur þar sem undirbúningur var unninn af starfsmönnum ráðuneytisins og stofnunarinnar. Kostnaður við breytingu á rekstrarformi Skýrr var óverulegur.
Samgönguráðuneyti.
Samkvæmt bókhaldi var útlagður kostnaður við formbreytingu Póst- og símamálastofnunar án virðisaukaskatts 13.036 þús. kr. Núvirði þess kostnaðar er 16.196 þús. kr.
Iðnaðarráðuneyti.
Beinn kostnaður vegna hlutafélagavæðingar Sementsverksmiðjunnar, Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum, Orkubús Vestfjarða og Hitaveitu Suðurnesja var óverulegur.
Viðskiptaráðuneyti.
Kostnaður við breytingu ríkisviðskiptabankanna og fjárfestingarlánasjóðanna í hlutafélögin Landsbanka Íslands hf., Búnaðarbanka Íslands hf. og Fjárfestingarbanka atvinnulífsins nam samtals tæpum 64 millj. kr. á árunum 1997–1998 samkvæmt svari fjármálaráðherra við fyrirspurn á 123. löggjafarþingi, 215. mál. Kostnaður við hlutafélagavæðingu Landsbankans var 10,7 millj. kr. Kostnaðurinn samanstendur af kostnaði vegna hlutafjárskrár og starfsleyfis, sérfræðiþjónustu, kynningarfundum fyrir erlenda banka og þóknun til nefndarmanna og bankaráðsmanna. Kostnaður við hlutafélagavæðingu Búnaðarbankans var 17,9 millj. kr. Kostnaðurinn samanstendur af kostnaði vegna kynningarmála, auglýsinga og óhjákvæmilegra breytinga á ýmsum skjölum, tékkheftum o.fl. Kostnaðurinn við stofnun Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og breytingu á gömlu sjóðunum í hlutafélag nam 35,1 millj. kr. Kostnaður skiptist í skráningargjöld í fyrirtækjaskrá, kostnað vegna lögfræðiráðgjafar við gerð samþykkta félagsins og að stærstum hluta í stimpilgjöld af hlutabréfum í bankanum.
5. Eru enn einhver ríkisfyrirtæki sem ríkisstjórnin hyggst breyta í hlutafélög og selja síðan?
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins. Ekki er gert ráð fyrir heimild til sölu í því frumvarpi. Einnig er rétt að nefna ákvæði í sameignarsamningi ríkisstjórnarinnar, Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar um Landsvirkjun, dags. 28. október 1996. Þar segir: ,,Eignaraðilar eru sammála um að fyrir 1. janúar 2004 skuli fara fram endurskoðun á sameignarsamningi þessum, þ.m.t. á því hvort ástæða sé til að stofna hlutafélag um Landsvirkjun.“
Þá er stöðugt til skoðunar hvort rétt sé að nýta hlutafélagaformið við rekstur fyrirtækja eða einstakra hluta stofnana ríkisins.