Ferill 707. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1144  —  707. mál.




Frumvarp til laga



um Lýðheilsustöð.

(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


1. gr.
Markmið.

    Markmið laga þessara er að efla lýðheilsu. Með eflingu lýðheilsu er átt við aðgerðir sem ætlað er að viðhalda og bæta heilbrigði þjóðarinnar eða tilgreindra hópa í þjóðfélaginu með skipulegum og viðurkenndum aðferðum.

2. gr
Yfirstjórn.

    Starfrækja skal Lýðheilsustöð til að vinna að markmiðum laga þessara. Lýðheilsustöð skal vera undir yfirstjórn heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Ráðherra skipar forstjóra Lýðheilsustöðvar til fimm ára í senn. Forstjóri ber ábyrgð á rekstri og fjárreiðum stöðvarinnar og ræður aðra starfsmenn hennar.

3. gr.
Hlutverk.

    Hlutverk stöðvarinnar er að samræma lýðheilsustarf, annast fræðslu til almennings um heilbrigði og heilsueflingu í samstarfi og samvinnu við landlækni og aðra eftir því sem við á og styðja starfsemi stofnana og frjálsra félagasamtaka til eflingar lýðheilsu. Lýðheilsustöð skal einnig hafa samstarf við ráðuneyti og sveitarfélög. Forgangsröðun verkefna skal vera í samræmi við stefnu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sbr. ákvæði 3. mgr. 42. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. Stöðin fylgist með árangri af lýðheilsustarfi og stuðlar að rannsóknum á sviði lýðheilsu í samvinnu við landlækni og mennta- og rannsóknastofnanir.
    Helstu verkefni Lýðheilsustöðvar eru:
     a.      að stuðla að bættri lýðheilsu og glæða áhuga á forvörnum og heilsueflingu,
     b.      að kanna árangur heilsueflingar hér á landi og gera samanburð við aðrar þjóðir,
     c.      að miðla heilbrigðisstéttum, heilbrigðisstofnunum, félagasamtökum og öðrum, eftir því sem við á, þekkingu á aðferðum til heilsueflingar.
    Ráðherra er heimilt að skilgreina verkefni stöðvarinnar á sviði lýðheilsu nánar með reglugerð.
    Lýðheilsustöð er heimilt, í samráði við ráðherra, að semja við aðra um að sinna starfsemi sem stöðinni er falið að annast samkvæmt lögum eða reglugerðum.

4. gr.
Landsnefnd um lýðheilsu.

    Landsnefnd um lýðheilsu er ráðgjafarnefnd Lýðheilsustöðvar um fagleg málefni. Nefndin er skipuð af ráðherra til fjögurra ára í senn. Formenn sérfræðiráða skv. 5. gr. og landlæknir eða fulltrúi tilnefndur af honum skulu eiga sæti í nefndinni. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipar formann hennar án tilnefningar. Ráðherra skal kveða nánar á um skipan og hlutverk nefndarinnar í reglugerð. Þar skal m.a. kveðið á um tilnefningu félaga og stofnana sem vinna að lýðheilsu.

5. gr.
Sérfræðiráð.

    Áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð og tóbaksvarnaráð skulu gegna hlutverki sérfræðiráða Lýðheilsustöðvar, hvert á sínu sérsviði, og vera henni til ráðuneytis. Heimilt er, með reglugerð, að fela þeim víðtækari verkefni en kveðið er á um í 6.–9. gr.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skal setja reglugerð um skipan og hlutverk annarra sérfræðiráða. Sérfræðiráð skulu skipuð sérfræðingum á viðkomandi sviði og skal einn þeirra tilnefndur af landlækni.

6. gr.
Áfengis- og vímuvarnaráð.

    Hlutverk áfengis- og vímuvarnaráðs er að efla og styrkja áfengis- og vímuvarnir, sérstaklega meðal barna og ungmenna, og hafa eftirlit með að ákvæðum laga og reglugerða um áfengis- og vímuvarnir sé framfylgt. Ráðið skal vera Lýðheilsustöð og öðrum sem starfa að áfengis- og vímuvörnum til ráðuneytis.
    Ráðið skal stuðla að samvinnu og samræmingu milli þeirra sem starfa að áfengis- og vímuvörnum, svo sem heilsugæslu og annarra heilbrigðisstofnana, félagsmálayfirvalda í sveitarfélögum, löggæslu, menntakerfis, refsivörslukerfis og félagasamtaka.
    Lýðheilsustöð skal ráðstafa fé úr Forvarnasjóði skv. 7. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi, til verkefna á sviði áfengis- og vímuvarna í samráði við ráðherra að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs.
    Heilbrigðisráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er á um skipan ráðsins og starfsemi þess, m.a. ráðstöfun fjár úr Forvarnasjóði.

7. gr.
Manneldisráð.

    Hlutverk manneldisráðs er að stuðla að heilsusamlegu matarræði þjóðarinnar í samræmi við manneldismarkmið. Ráðið skal vinna að samræmingu rannsókna og fræðslu á sviði manneldisfræði í samráði við skóla, heilsugæslu og stofnanir á sviði matvælaeftirlits. Ráðið skal vera Lýðheilsustöð, heilbrigðisyfirvöldum og öðrum til ráðuneytis um manneldismál.
    Heilbrigðisráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er á um skipan ráðsins og starfsemi þess.

8. gr.
Slysavarnaráð.

    Hlutverk slysavarnaráðs er að stuðla að fækkun slysa. Ráðið skal vera Lýðheilsustöð, heilbrigðisyfirvöldum og öðrum til ráðuneytis um allt sem lýtur að slysavörnum.
    Samræmd slysaskrá skal varðveitt hjá landlækni.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er á um skipan ráðsins og starfsemi þess.

9. gr.
Tóbaksvarnaráð.

    Tóbaksvarnaráð skal starfa innan Lýðheilsustöðvar. Hlutverk þess er fyrst og fremst að vera Lýðheilsustöð, heilbrigðisyfirvöldum, Hollustuvernd ríkisins, Vinnueftirliti ríkisins og öðrum opinberum aðilum til ráðuneytis um allt er að tóbaksvörnum lýtur.
    Fjármálaráðuneytið skal hafa samráð við tóbaksvarnaráð um stefnumörkun varðandi innflutning og verðlagningu tóbaks.
    Leita skal álits ráðsins um allar reglugerðir sem snerta tóbaksvarnir og tóbakssölu.
    Lýðheilsustöð skal fá 0,9% af brúttósölu tóbaks til ráðstöfunar til tóbaksvarnastarfs og skal fénu ráðstafað í samráði við ráðherra að fengnum tillögum tóbaksvarnaráðs.
    Ráðherra skal setja nánari ákvæði um skipan og hlutverk tóbaksvarnaráðs í reglugerð.

10. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003.
    Við gildistöku laga þessara falla eftirtalin lög og lagaákvæði úr gildi: Lög um slysavarnaráð, nr. 33/1994, lög um manneldisráð, nr. 45/1978, lög um áfengis- og vímuvarnaráð, nr. 76/1998, með síðari breytingum, og 5. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    20. maí 2001 var samþykkt á Alþingi þingsályktunartillaga um heilbrigðisáætlun til ársins 2010. Þar er lögð áhersla á heilbrigðismarkmið til langs tíma sem miða að því að bæta heilsufar þjóðarinnar. Forgangsverkefni heilbrigðisáætlunarinnar eru m.a. áfengis-, vímuefna- og tóbaksvarnir, að dregið verði úr slysum og slysadauða barna, mjaðmar- og hryggbrotum eldri borgara verði fækkað, tannheilsa barna og eldri borgara verði bætt, dauðsföllum af völdum hjarta- og æðasjúkdóma og heilablóðfalla verði fækkað, dregið verði úr tíðni geðraskana og sjálfsvíga, dauðsföllum vegna krabbameins fækki og að slysum og dauðaslysum verði fækkað.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur látið vinna frumvarp það sem hér er lagt fram með það í huga að fylgja eftir markmiðum heilbrigðisáætlunar um forvarnir sem ætlað er að bæta heilsufar þjóðarinnar. Við samningu frumvarpsins hefur landlæknir verið kallaður til funda í ráðuneytinu auk fulltrúa ýmissa nefnda og ráða sem nú starfa að forvörnum í landinu, svo sem tóbaksvarnanefndar, áfengisvarnaráðs, manneldisráðs og Árvekni – átaksverkefnis um slysavarnir barna og unglinga og var hugmyndum um stofnun Lýðheilsustöðvar almennt vel tekið.
    Helsta markmið heilbrigðisyfirvalda á hverjum tíma er að stuðla að heilbrigði allra landsmanna. Þetta markmið er m.a. að finna í 1. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. Hlutverk heilbrigðisstarfsmanna og heilbrigðisstofnana er þó ekki einskorðað við að veita þjónustu þegar eftir henni er leitað, oftast vegna heilsuvanda, heldur er það miklu víðtækara. Þótt aldrei verði lögð nógu mikil áhersla á ábyrgð fólks á eigin heilbrigði er ljóst að samfélagið og stofnanir þess bera einnig ábyrgð og hafa víðtæk áhrif á heilsufar þjóðarinnar og einstakra hópa á hverjum tíma. Þannig hafa ákvarðanir og aðgerðir stjórnvalda bein og óbein áhrif á líf þegnanna og heilbrigði þeirra þótt áhrifin séu ekki alltaf ljós þegar ákvörðun er tekin. Heilsufar verður að teljast almennt gott á Íslandi og heilbrigðisþjónustan stenst fyllilega samanburð við þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Því má spyrja hvort þörf sé frekari aðgerða. Því er til að svara að þótt unnið sé mjög gott starf á ýmsum sviðum heilsueflingar og forvarna er ástæðulaust að ætla annað en að unnt sé með aukinni samhæfingu að efla þetta starf enn frekar til að bæta heilsu landsmanna.
    Benda má á þá sérstöðu Íslendinga að aldurssamsetning þjóðarinnar er töluvert frábrugðin því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum. Hér er hlutfall barna og ungmenna talsvert hærra en hlutfall eldri og aldraðra að sama skapi lægra. Spár um mannfjölda fram til ársins 2030 benda til að svo verði enn á þeim tíma þótt gert sé ráð fyrir að úr þessum mun dragi. Því má ætla að ávinningur af skipulögðum aðgerðum til að efla heilbrigði og draga úr sjúkdómum og slysum geti haft enn meiri áhrif hér á landi en meðal nálægra þjóða.
    „Lýðheilsa“ er í vaxandi mæli notað sem þýðing á enska heitinu „public health“. Með lýðheilsu er átt við aðgerðir hins opinbera og annarra í þeim tilgangi að viðhalda og bæta heilbrigði þjóðarinnar eða tilgreindra hópa í þjóðfélaginu með skipulegum viðurkenndum og vísindalega sannreyndum aðferðum. Til þeirra teljast aðgerðir eða ráðstafanir sem stuðla að fækkun sjúkdóma og slysa, svo og aðgerðir er stuðla að forvörnum og heilsueflingu.
    Þrátt fyrir öflugt og árangursríkt heilsuverndarstarf um margra áratuga skeið er ljóst að breytingar kalla á endurskoðun. Þau heilbrigðisvandamál sem nú ber hæst eru önnur en áður. Lífslíkur Íslendinga hafa aukist jafnt og þétt og eru með þeim mestu sem þekkjast, en á sama tíma hafa bæði dánarorsakir og sjúkdómatíðni breyst þannig að vægi svokallaðra langvinnra sjúkdóma hefur aukist verulega. Þessir sjúkdómar eiga það sammerkt að þá er sjaldan hægt að lækna svo að aðgerðir miða helst að því að draga sem mest úr neikvæðum áhrifum sjúkdómanna á einstaklinga, nánasta umhverfi þeirra og félagslega stöðu. Annað sem er sammerkt með langvinnum sjúkdómum er að orsaka þeirra er oftast að leita í samspili áhættuþátta sem saman leiða frekar til sjúkdóms en hver um sig. Þar má nefna áhættuþætti eins og reykingar, offitu, kyrrsetu, ofneyslu áfengis og neyslu annarra vímuefna og streitu. Samspil áhættuþátta og áhrif lífsstíls á þróun lýðheilsunnar kallar á nýjar aðferðir þar sem áhersla er lögð á samræmdar aðgerðir, samþættingu og samvinnu. Færa má fyrir því rök að lýðheilsustarf sé í eðli sínu teymisvinna fjölmargra aðila, sérfróðra jafnt sem leikmanna og sjálfboðaliða. Bestur árangur næst þegar saman fer skýr stefnumörkun og markmið, vandað val viðfangsefna, náið samráð og samstarf við samstarfsaðila, jafnt opinbera sem einkaaðila, félagasamtök og fjölmiðla. Annars staðar á Norðurlöndum hafa verið settar á stofn sérstakar stofnanir sem hafa það meginmarkmið að vera frumkvöðlar og samræmingarafl í lýðheilsustarfi, síðast var það Statens institut for folkesundhed í Danmörku sem sett var á laggirnar í janúar 2001.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að komið verði á fót stofnun, Lýðheilsustöð, til að vinna að eflingu lýðheilsu. Henni er m.a. ætlað að samræma lýðheilsustarf, annast fræðslu til almennings, styðja starfsemi þeirra sem vinna að eflingu lýðheilsu, stuðla að rannsóknum og fylgjast með árangri heilsueflingar, sbr. 3. gr. frumvarpsins. Gert er ráð fyrir að Lýðheilsustöð þjóni fyrst og fremst þeim tilgangi að vera frumkvöðull og samræmingarafl. Eftir sem áður verður þungamiðja heilsuverndar- og forvarnastarfs annars vegar hjá heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki og hins vegar hjá frjálsum félagasamtökum eins og verið hefur. Það sem breytist er að Lýðheilsustöð veitir öflugan stuðning hvers konar lýðheilsustarfi, á frumkvæði að samstarfi og samvinnu við þá fjölmörgu aðila sem starfa á þessum vettvangi og samræmir og samhæfir lýðheilsustarfið.
    Gert er ráð fyrir að Lýðheilsustöð verði ríkisstofnun undir yfirstjórn heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, en henni verði að öðru leyti stjórnað af forstjóra sem skipaður verði af ráðherra. Lagt er til að núgildandi lög um áfengis- og vímuvarnaráð, nr. 76/1998, lög um manneldisráð, nr. 45/1978, lög um slysavarnaráð, nr. 33/1994, og ákvæði 5. gr. laga nr. 6/2002, um tóbaksvarnir, verði felld úr gildi, en starf þessara ráða falli undir Lýðheilsustöð. Gert er ráð fyrir að fyrrgreind ráð og tóbaksvarnaráð verði svonefnd sérfræðiráð, sbr. 5. gr. frumvarpsins, og verði Lýðheilsustöð og öðrum til ráðgjafar hvert á sínu sviði.
    Í frumvarpinu eru ákvæði um helstu verkefni áfengis- og vímuvarnaráðs, manneldisráðs, slysavarnaráðs og tóbaksvarnaráðs, en gert er ráð fyrir að nánari ákvæði um skipan þeirra og hlutverk verði í reglugerðum. Þá er gert ráð fyrir að annað heilsueflingar- og forvarnastarf á vegum ríkisins verði flutt til Lýðheilsustöðvar, t.d. starf tannverndarráðs, gigtarráðs og starf Árvekni að slysavörnum barna. Þá er gert ráð fyrir að starfsmönnum fyrrgreindra ráða/aðila verði boðið starf innan Lýðheilsustöðvar.
    Eins og fram kemur í 1. og 3. gr. frumvarpsins er Lýðheilsustöð ætlað að sinna heilsueflingu á öllum sviðum. Í frumvarpinu eru þó ekki sérstök ákvæði um starfsemi sem tengist öðru en áfengis- og vímuvörnum, manneldi, slysavörnum og tóbaksvörnum. Ástæður þess eru þær að forvarnir á þessum sviðum eru þegar bundnar í lög og ekki þótti fært að fella ákvæði um fyrrgreinda starfsemi alfarið úr lögum. Hins vegar þótti ekki heppilegt að binda í lög ákvæði um heilsueflingu og forvarnir á öðrum sviðum, enda gæti verið erfitt að ákveða hvaða svið ætti að taka með. Þá eru þarfir fyrir forvarnir síbreytilegar og og ástæða getur verið til að gera sérstakt tímabundið átak á tilteknum sviðum. Því var ákveðið að leggja til að Lýðheilsustöð verði ekki bundin við að sinna tilteknum sviðum heldur geti hún sinnt heilsueflingu og forvörnum á öllum sviðum í samræmi við stefnu ráðherra um forgangsröðun verkefna á sviði heilsueflingar á hverjum tíma. Eins og fram kemur í 5. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að skipuð verði sérfræðiráð á öðrum sviðum og að formenn þeirra, auk formanna áfengis- og vímuvarnaráðs, manneldisráðs, slysavarnaráðs og tóbaksvarnaráðs, fulltrúa landlæknis og fulltrúa ráðherra, skipi landsnefnd um lýðheilsu sem verði ráðgjafarnefnd Lýðheilsustöðvar um fagleg málefni.
    Skipta má fyrirhugaðri starfsemi Lýðheilsustöðvar í nokkra þætti:
     a.      að stuðla að eflingu lýðheilsustarfs í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa,
     b.      að annast það starf sem nú er unnið samkvæmt sérstökum lögum um áfengis- og vímuvarnir, manneldi, slysavarnir, tóbaksvarnir og sjá um önnur forvarna- og heilsueflingarverkefni á vegum ríkisins,
     c.      að fylgjast með og koma á framfæri nýrri þekkingu og reynslu sem að gagni mætti koma í lýðheilsustarfi,
     d.      að meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera saman við sett markmið,
     e.      að efla þekkingu og færni þeirra sem starfa að eflingu lýðheilsu,
     f.      að miðla upplýsingum og fræðslu til landsmanna og einstakra hópa í samfélaginu, eftir því sem við á, í samvinnu við landlækni og aðra,
     g.      að stuðla að eflingu kennslu og rannsókna á sviði lýðheilsu og samstarfi við háskóla og aðrar menntastofnanir.
    Gert er ráð fyrir að það fé sem nú er veitt til ráðanna verði framvegis veitt til Lýðheilsustöðvar, en þó er tekið fram að fé samkvæmt sérmerktum tekjustofni til tóbaksvarna, þ.e. 0,9% af brúttósölu tóbaks, verði ráðstafað til tóbaksvarnastarfs, sbr. 4. mgr. 9. gr. frumvarpsins, og fé úr Forvarnasjóði skv. 7. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi, verði varið til verkefna á sviði áfengis- og vímuvarna, sbr. 3. mgr. 6. gr. frumvarpsins. Þá er gert ráð fyrir að fjárveitingar til gigtarráðs, tannverndarsjóðs, fé sem flutt hefur verið til landlæknis vegna heilsueflingar og fé sem veitt hefur verið til Árvekni – átaksverkefnis um slysavarnir barna og unglinga renni framvegis til Lýðheilsustöðvar. Loks er gert ráð fyrir að hluti af því fé sem veitt hefur verið vegna slysavarnaráðs renni til stöðvarinnar en hluti af því verði áfram veittur landlæknisembættinu vegna slysaskrár. Gert er ráð fyrir að starfsmönnum sem greidd eru laun af fyrrgreindum liðum verði boðið starf hjá Lýðheilsustöð, en auk þess er gert ráð fyrir að skipaður verði forstjóri og fjármálastjóri.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.

    Hér er gerð grein fyrir því meginmarkmiði laganna að efla lýðheilsu og nánar skilgreint hvað átt sé við með eflingu lýðheilsu.

Um 2. gr.

    Hér kemur fram að starfrækja skuli sérstaka stofnun, Lýðheilsustöð, til að framfylgja markmiðum laganna um eflingu lýðheilsu. Tekið er fram að stöðin skuli vera undir yfirstjórn heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Þá er gert ráð fyrir að ráðherra skipi stöðinni forstjóra til fimm ára í senn í samræmi við meginreglu 23. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, um skipun embættismanna.

Um 3. gr.

    Hér er fjallað um hlutverk stöðvarinnar og lögð áhersla á að hún skuli samræma lýðheilsustarf, styðja starfsemi stofnana og frjálsra félagasamtaka og hafa samstarf við landlækni, önnur ráðuneyti, sveitarfélög og mennta- og rannsóknastofnanir á sviði lýðheilsu. Eftir sem áður er gert ráð fyrir að þungamiðja heilsuverndar- og forvarnastarfs verði annars vegar hjá heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki og hins vegar hjá frjálsum félagasamtökum eins og verið hefur. Hlutverk Lýðheilsustöðvar er að styðja og samræma hvers konar lýðheilsustarf og eiga frumkvæði að samstarfi og samvinnu við þá fjölmörgu aðila sem starfa á þessum vettvangi.

Um 4. gr.

    Hér er lagt til að skipuð verði landsnefnd um lýðheilsu sem verði ráðgjafarnefnd Lýðheilsustöðvar um fagleg málefni. Í henni eigi sæti formaður, sem skipaður verði af ráðherra án tilnefningar, landlæknir eða fulltrúi tilnefndur af honum og formenn sérfræðiráða skv. 5. gr., þ.e. formenn áfengis- og vímuvarnaráðs, manneldisráðs, slysavarnaráðs, tóbaksvarnaráðs og sérfræðiráða á öðrum sviðum sem gert er ráð fyrir að skipuð verði skv. 2. mgr. 5. gr. Loks er gert ráð fyrir að í reglugerð verði kveðið á um tilnefningu félaga og stofnana sem vinna að lýðheilsu í nefndina.

Um 5. gr.

    Hér er gert ráð fyrir að sérfræðiráð á ýmsum sviðum heilsueflingar og forvarna verði Lýðheilsustöð til ráðgjafar. Þá er lagt til að áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð og tóbaksvarnanefnd gegni hlutverki sérfræðiráða hvert á sínu sérsviði. Gerð er tillaga um að nafni tóbaksvarnanefndar verði breytt í tóbaksvarnaráð til samræmis við nöfn fyrrgreindra ráða. Tekið er fram að heimilt sé að fela fyrrgreindum ráðum víðtækari verkefni en gert er ráð fyrir í 6.–9. gr. Þá væri hægt að fela einhverju ráðanna verkefni sem tengjast starfsemi þess með einhverjum hætti eða verkefni sem æskilegt væri talið að féllu undir sama ráðið, t.d. mætti hugsa sér að um manneldi og hreyfingu væri fjallað í einu sérfræðiráði. Kveðið er á um að ráðherra skuli setja reglugerð um skipan og hlutverk annarra sérfræðiráða, en gert er ráð fyrir að eðlilegt og nauðsynlegt sé að setja á laggirnar sérfræðiráð á fleiri sviðum en að framan greinir og/eða fela ráðum sem nú eru starfandi hlutverk sérfræðiráða. Slík ráð eru t.d. gigtarráð og tannverndarráð. Telja verður eðlilegt að stefnt verði að því að starfandi verði sérfræðiráð á ýmsum öðrum sviðum sem fjalli til dæmis um geðvernd og varnir gegn sjálfsvígum, fræðslu um kynlíf og varnir gegn ótímabærri þungun ungra stúlkna, krabbameinsvarnir o.fl.

Um 6. gr.

    Hér eru tekin upp meginatriði laga um áfengis- og vímuvarnaráð, nr. 76/1998, en gert er ráð fyrir að þau falli úr gildi við gildistöku laga þessara. Gert er ráð fyrir að tekjur Forvarnasjóðs, sbr. 7. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi, renni til Lýðheilsustofnunar, en þeim verði eftir sem áður varið til áfengis- og vímuvarna í samráði við ráðherra og að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs. Þá er gert ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð þar sem kveðið verði á um skipan áfengis- og vímuvarnaráðs og sett nánari ákvæði um hlutverk þess og um ráðstöfun fjár úr Forvarnasjóði.

Um 7. gr.

    Hér eru tekin upp meginatriði laga um manneldisráð, nr. 45/1978, en gert er ráð fyrir að þau falli úr gildi við gildistöku laga þessara. Þá er gert ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð þar sem kveðið verði á um skipan manneldisráðs og sett nánari ákvæði um hlutverk þess.

Um 8. gr.

    Hér eru tekin upp meginatriði laga um slysavarnaráð, nr. 45/1978, en gert er ráð fyrir að þau falli úr gildi við gildistöku laga þessara. Þá er gert ráð fyrir að nánari ákvæði um starfsemi ráðsins verði sett með reglugerð.

Um 9. gr.

    Hér eru tekin upp meginatriði ákvæðis 5. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, en gert er ráð fyrir að fyrrgreind ákvæði falli úr gildi við gildistöku laga þessara. Gert er ráð fyrir að þau 0,9% af brúttósölu tóbaks sem nú renna til tóbaksvarnanefndar samkvæmt ákvæðum tóbaksvarnalaga renni til Lýðheilsustofnunar, en þeim verði eftir sem áður varið til tóbaksvarna í samráði við ráðherra og að fengnum tillögum tóbaksvarnaráðs. Þá er gert ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð þar sem kveðið verði á um skipan tóbaksvarnaráðs og sett nánari ákvæði um hlutverk þess.

Um 10. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um Lýðheilsustöð.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að stofnuð verði Lýðheilsustöð í þeim tilgangi að efla lýðheilsu sem er að viðhalda og bæta heilbrigði þjóðarinnar eða tilgreindra hópa með skipulegum og viðurkenndum aðferðum.
    Lýðheilsustöð er m.a. ætlað að samræma lýðheilsustarf, annast fræðslu til almennings, styðja starfsemi þeirra sem vinna að eflingu lýðheilsu, stuðla að rannsóknum og fylgjast með árangri heilsueflingar. Gert er ráð fyrir að Lýðheilsustöð þjóni fyrst og fremst þeim tilgangi að vera frumkvöðull og samræmingarafl og að heilsueflingar- og forvarnastarf á vegum ríkisins verði flutt til Lýðheilsustöðvar. Í frumvarpinu er lagt til að núgildandi lög um áfengis- og vímuvarnaráð, nr. 76/1998, með síðari breytingum, lög um manneldisráð, nr. 45/1978, lög um slysavarnaráð, nr. 33/1994, og ákvæði 5. gr. laga nr. 6/2002, um tóbaksvarnir, sem fjalla um tóbaksvarnanefnd, verði felld úr gildi, en starf þessara ráða og nefndar falli undir Lýðheilsustöð. Þá er lagt til að starf tannverndarráðs, gigtarráðs og heilsueflingar og starf Árvekni að slysavörnum barna verði flutt til stöðvarinnar og að starfsmönnum fyrrgreindra aðila verði boðið starf innan Lýðheilsustöðvar. Gert er ráð fyrir að fjárveitingar til framangreindra verkefna verði færðar til stöðvarinnar en þær nema 165 m.kr. í fjárlögum fyrir 2002. Í frumvarpinu eru hvorki lagðar til breytingar á mörkuðum tekjum Forvarnasjóðs né lögbundnum framlögum til tóbaksvarnastarfs.
    Samkvæmt frumvarpinu skal Lýðheilsustöð vera undir stjórn forstjóra og í athugasemdum við frumvarpið er gert ráð fyrir að öðrum sem þegar starfa við framangreind verkefni verði boðið starf hjá stofnuninni. Áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð og tóbaksvarnaráð skulu starfa sem sérfræðiráð innan Lýðheilsustöðvar. Auk þeirra skal skipuð landsnefnd um lýðheilsu en í henni sitji a.m.k. formenn sérfræðiráðanna auk formanns.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti gerir ráð fyrir í kostnaðaráætlun sinni að viðbótarkostnaður vegna launa forstjóra nemi 8,3 m.kr., 5,7 m.kr. þurfi til ráðningar fjármálastjóra og 4 m.kr. til skrifstofurekstrar. Þá verði tímabundinn 5 m.kr. stofnkostnaður árið 2003. Verði frumvarpið óbreytt að lögum og gangi framangreind áætlun eftir eykur það útgjöld ríkissjóðs varanlega um 18 m.kr. á ári auk 5 m.kr. stofnkostnaðar árið 2003. Að auki er ekki hægt að útiloka að þessar breytingar leiði til þess að biðlaunaréttur myndist, en kostnaður vegna hans gæti orðið 2–3 m.kr.