Ferill 363. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1162  —  363. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 8. apríl.)



1. gr.

    1. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna orðast svo: afla eða ráðstafa verðbréfum, fyrir eigin reikning eða annarra, búi þeir yfir trúnaðarupplýsingum.

2. gr.


    Við 69. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Brot gegn lögum þessum varða refsingu hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.