Ferill 547. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1171  —  547. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 2/1995, um hlutafélög, með síðari breytingum (hlutafé í erlendum gjaldmiðli).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón Ögmund Þormóðsson og Tryggva Axelsson frá viðskiptaráðuneyti. Umsagnir bárust frá Samtökum banka og verðbréfafyrirtækja, Verslunarráði Íslands, Þjóðhagsstofnun, Seðlabanka Íslands, Samtökum atvinnulífsins, Hyrnu ehf., ríkisskattstjóra og Ríkisendurskoðun.
    Frumvarpið er lagt fram í tengslum við 546. mál þar sem lögð er til breyting á lögum um einkahlutafélög, sem og 347. mál þar sem lögð er til breyting á lögum um bókhald, lögum um ársreikninga og lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Öll frumvörpin snúa að heimild íslenskra fyrirtækja til að nota erlenda gjaldmiðla í rekstri fyrirtækja sinna, annars vegar að því að heimilt verði að skrá hlutafé í hlutafélögum og einkahlutafélögum í erlendum gjaldmiðli og hins vegar að því að heimilt verði að færa bókhald og semja ársreikninga félaga í erlendum gjaldmiðli.
    Nefndin leggur til breytingu á frumvarpinu þess efnis að í stað þess að tilgreina að við umreikning úr íslenskum krónum í annan gjaldmiðil eða annan umreikning skuli miða við kaupgengi samkvæmt opinberu viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands samkvæmt nánari reglum verði reglan útfærð nánar á þá lund að ef um er að ræða skráð félag á skipulegum verðbréfamarkaði sem hefur ekki við útgáfu hlutabréfa aflað heimildar til að færa bókhald og semja ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skuli við umreikning í annan gjaldmiðil miða við lokagengi samkvæmt opinberu viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands í lok næsta reikningsárs á undan því ári þegar ákvörðunin er tekin eða það gengi sem gilti þegar innborganir hlutafjár fóru fram. Hafi félag fengið heimild til að færa bókhald og semja ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skuli nafnverð hlutafjár við útgáfu hlutabréfa vera í samræmi við ákvæði laga um ársreikninga varðandi umreikninginn.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Í stað 3. málsl. 2. efnismgr. b-liðar 1. gr. komi tveir nýir málsliðir sem orðist svo: Ef um er að ræða skráð félag á skipulegum verðbréfamarkaði sem hefur ekki við útgáfu hlutabréfa aflað heimildar til að færa bókhald og semja ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skal við umreikning í annan gjaldmiðil miða við lokagengi samkvæmt opinberu viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands í lok næsta reikningsárs á undan því ári þegar ákvörðunin er tekin eða það gengi sem gilti þegar innborganir hlutafjár fóru fram. Hafi félag fengið heimild til að færa bókhald og semja ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skal nafnverð hlutafjár við útgáfu hlutabréfa vera í samræmi við ákvæði laga um ársreikninga varðandi umreikninginn.

    Hjálmar Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. apríl 2002.



Vilhjálmur Egilsson,


form., frsm.


Jóhanna Sigurðardóttir.


Einar K. Guðfinnsson.



Kristinn H. Gunnarsson.


Össur Skarphéðinsson.


Sigríður A. Þórðardóttir.



Ögmundur Jónasson.


Gunnar Birgisson.