Ferill 712. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1174 — 712. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um gildi lands norðan Vatnajökuls fyrir náttúruvernd og þjóðgarð.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Hvernig verður farið með mat það sem umsjónarnefnd á vegum Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma skilaði iðnaðarráðuneyti í október 2001, um gildi lands norðan Vatnajökuls fyrir náttúruvernd og þjóðgarð?
2. Er fyrirhuguð sérstök kynning á skýrslu nefndarinnar eða útgáfa hennar og tengdra gagna?