Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1180  —  315. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 10. apríl.)

1. gr.

    8. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna orðast svo: Sala á matvörum og öðrum vörum til manneldis samkvæmt nánari afmörkun í viðauka við lög þessi. Sala veitingahúsa, mötuneyta og annarra hliðstæðra aðila á tilreiddum mat og þjónustu er þó skattskyld skv. 1. mgr. þessarar greinar. Fjármálaráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um virðisaukaskattsskylda sölu á vörum til manneldis.

2. gr.


    3. mgr. 35. gr. laganna orðast svo:
    Kaupandi, sem skyldugur er til að greiða virðisaukaskatt skv. 1. mgr., skal ótilkvaddur gera skattstjóra grein fyrir kaupum á þjónustu í sérstakri skýrslu í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar frá lokum þess almenna uppgjörstímabils sem viðskiptin falla undir. Greiðslu ásamt skýrslu skal skila til innheimtumanns ríkissjóðs eigi síðar en á gjalddaga. Um skattverð, uppgjör, álagningu, áætlun, endurákvörðun, álag, dráttarvexti og kærur skal, eftir því sem við getur átt, fara með eins og í viðskiptum innan lands. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar.

3. gr.


    7. tölul. 1. mgr. 36. gr. laganna fellur brott.

4. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:
     a.      Orðin „og vera verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.
     b.      Á eftir 3. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Endurgreiðsla vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald skal gerð á grundvelli framlagðra reikninga eins fljótt og auðið er, þó aldrei síðar en 14 dögum eftir að skattstjóra barst erindið.
     c.      Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd endurgreiðslu samkvæmt þessari málsgrein.
     d.      Við greinina bætast tvær nýjar málsgreinar, 7. og 8. mgr., svohljóðandi:
                  Endurgreiða skal virðisaukaskatt af tækjum og búnaði sem mannúðar- og líknarstofnanir fá að gjöf eða kaupa fyrir styrkfé, enda sé um að ræða vöru sem nýtt er beint til viðkomandi starfsemi. Endurgreiðsluheimild samkvæmt þessari málsgrein er bundin sömu skilyrðum og gilda um gjafir til mannúðar- og líknarstarfsemi og koma fram í b-lið 8. tölul. 1. mgr. 5. gr. tollalaga, nr. 55/1987, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 797/2000 um undanþágu aðflutningsgjalda í ýmsum tilvikum.
                  Endurgreiða skal virðisaukaskatt af innflutningi eða kaupum á ökutækjum sem ætluð eru fyrir starfsemi björgunarsveita, enda liggi fyrir staðfesting landssamtaka björgunarsveita á því að viðkomandi ökutæki verði einungis notuð í þágu björgunarsveita. Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd endurgreiðslu skv. 7. og 8. mgr.

5. gr.


    Á eftir 43. gr. laganna kemur ný grein, 43. gr. A, svohljóðandi:
    Réttur til sérstakra endurgreiðslna skv. XIII. kafla og ákvæðum til bráðabirgða í lögum þessum fellur niður ef umsókn um endurgreiðslu berst viðkomandi stjórnvaldi eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist.

6. gr.


    Í stað viðauka við lögin kemur nýr viðauki sem orðast svo ásamt fyrirsögn:

Viðauki.


    
Af vörum til manneldis í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 14% virðisaukaskatt:
0201.1000–0210.9090    Kjöt og ætir hlutar af dýrum.
0302.1101–0307.9920    Fiskur, krabbadýr, lindýr og aðrir vatna- og sjávarhryggleysingjar.
0401.1000–0401.3000    Mjólk og rjómi. Þó skal greiða 24,5% virðisaukaskatt af ógerilsneyddum vörum í þessum tollflokkum.
0402.1000–0410.0000    Mjólkurafurðir, fuglaegg, náttúrulegt hunang og ætar vörur úr dýraríkinu, ót.a.
0504.0001–0504.0009    Þarmar, blöðrur og magar úr dýrum (þó ekki úr fiski), heilt og í stykkjum.
0511.9901    Dýrablóð.
0701.1000–0714.9000    Matjurtir og tilteknar rætur og hnýði.
0801.1100–0814.0000    Ætir ávextir, hnetur og hýði af sítrusávöxtum eða melónum.
0901.1100–0910.9900    Kaffi, te, maté og krydd.
1001.1001–1004.0009    Hveiti, meslín, rúgur, bygg og hafrar.
1005.9001–1008.2009    Maís (annar en fræ), rís, dúrra, bókhveiti og hirsi.
1008.9009    Annað korn, ót. a.
1101.0010–1105.2009    Malaðar vörur (korn, mjöl, bögglar og flögur).
1106.1000    Mjöl úr þurrkuðum belgávöxtum.
1106.2009    Mjöl úr sagó, rótum eða hnýðum.
1106.3000    Mjöl úr ávöxtum og hnetum.
1107.1000–1202.2000    Malt, sterkja, inúlín, hveitiglúten, sojabaunir og jarðhnetur.
1204.0000    Línfræ (hörfræ).
1206.0000–1208.9000    Sólblómafræ, önnur olíufræ, olíurík aldin og mjöl úr þeim vörum.
1211.9001–1211.9002    Plöntur og plöntuhlutar til manneldis (basilíkum, borasurt, mynta, rósmarín, rúturunni, salvía og malurt).
1212.1000    Fuglatrésbaunir (jóhannesarbrauð).
1212.2009    Sjávargróður og þörungar (söl o.fl.).
1302.2001 og 1302.2009    Pektínefni, pektínöt, pektöt, jurtaslím og hleypiefni.
1501.0011 og 1501.0021    Svína- og alifuglafeiti.
1502.0011 og 1502.0021    Fita af dýrum af nautgripaætt, kindum eða geitum.
1503.0001    Svínafeitisterín, svínaolía, tólgarsterín, oleóolía og tólgarolía.
1504.1001 og 1504.1002    Þorskalýsi.
1504.1004    Lýsi úr fisklifur, ót.a.
1507.1001 og 1507.9001    Sojabaunaolía.
1508.1001 og 1508.9001    Jarðhnetuolía.
1509.1001 og 1509.9001    Ólívuolía.
1510.0001    Aðrar olíur.
1511.1001 og 1511.9001    Pálmaolía.
1512.1101 og 1512.1901    Olía úr fræi sólblóma eða körfublóma.
1512.2101 og 1512.2901    Olía úr fræi baðmullar.
1513.1101 og 1513.1901    Kókoshnetuolía.
1513.2101 og 1513.2901    Pálmakjarna- eða babassúolía.
1514.1101 og 1514.1901    Repju-, kolsa- eða mustarðsolía.
1514.9101 og 1514.9901    Repju-, kolsa- eða mustarðsolía.
1515.2101, 1515.2901,
1515.5001 og 1515.9001    Maísolía, sesamolía og önnur olía eða feiti, ót.a.
1516.1001–1516.2002,
1516.2009    Feiti eða olíur, hertar.
1517.1001–1517.9009    Smjörlíki og blöndur eða framleiðsla til manneldis úr jurtafeiti eða -olíum.
1601.0010–1605.9029    Framleiðsla úr kjöti, fiski eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahryggleysingjum.
1701.1100–1702.9009    Sykur (þó ekki skrautsykur).
1703.1002 og 1703.1009    Reyrmelassi.
1703.9009    Melassi, ót.a.
1801.0000–1804.0000    Kakaóvörur, svo sem kakaóbaunir, kakaódeig og kakaósmjör (þó ekki kakaóduft).
1806.2002 og 1806.9021    Búðingsduft, búðingar og súpur sem innihalda kakaó.
1806.9011–1806.9019    Efni til framleiðslu á drykkjarvörum sem innhalda kakaó.
1806.9022    Fæða sem inniheldur kakaó, sérstaklega tilreidd fyrir sjúka.
1806.9027 og 1806.2007    Morgunverðarkorn sem inniheldur kakaó.
1901.1000–1904.9009    Framleiðsla úr korni, fínmöluðu mjöli, sterkju eða mjólk.
1905.1000    Hrökkbrauð.
1905.3122    Sætakex og smákökur sem innihalda minna en 20% af sykri.
1905.4000    Tvíbökur, ristað brauð og áþekkar ristaðar vörur.
1905.9011 og 1905.9019    Brauð.
1905.9020    Ósætt kex.
1905.9030    Saltkex og kryddkex.
1905.9040    Kökur og konditorstykki.
1905.9051 og 1905.9059    Bökur, þ.m.t. pítsur (pizza).
1905.9060    Nasl (snack), ót.a.
1905.9090    Brauðvörur, ót.a.
2001.1000–2008.9909    Framleiðsla úr matjurtum, ávöxtum, hnetum eða öðrum plöntuhlutum.
2101.1100 –2101.3009    Kjarni, kraftur og seyði úr kaffi, tei eða maté.
2102.1001–2102.2002    Ger og bökunarduft.
2102.2009–2102.3009    Ger og bökunarduft.
2103.1000–2104.2009    Sósur, súpur og seyði og framleiðsla í það, blönduð bragðefni og bragðbætiefni, jafnblönduð samsett matvæli.
2105.0011–2105.0029    Rjómaís og annar ís til manneldis.
2106.1000    Próteinseyði og textúruð próteinefni.
2106.9023    Blöndur jurta eða jurtahluta til lögunar á seyði.
2106.9024    Drykkjarvara, sérstaklega tilreidd fyrir börn og sjúka.
2106.9025    Tilreidd drykkjarvöruefni sem innihalda prótein o.fl.
2106.9026    Tilreidd drykkjarvöruefni úr gingsengkjörnum o.fl.
2106.9041–2106.9049    Búðingsduft, ót.a.
2106.9051    Blöndur úr kemískum efnum og fæðu, svo sem sakkaríni og laktósa, notaðar sem sætuefni.
2106.9059    Létt smjörlíki o.fl. að meginstofni úr feiti og vatni.
2106.9062    Ávaxtasúpur og -grautar.
2106.9064    Búðingsduft með kjötinnihaldi sem að magni til er 3%, til og með 20%, miðað við þyngd.
2106.9069    Ýmis matvælaframleiðsla, ót.a.
2201.9011–2201.9029    Drykkjarvatn, annað en ölkelduvatn.
2202.1021–2202.1029    Drykkjarvara, sérstaklega tilreidd fyrir börn og sjúka.
2202.9021–2202.9029    Drykkjarvara, sérstaklega tilreidd fyrir börn og sjúka.
2202.9011–2202.9019    Blönduð mjólk (25% eða minna blönduð miðað við rúmmál).
2501.0001    Matarsalt í smásöluumbúðum, 5 kg eða minna.
2836.1001    Ammoníumkarbónat (hjartarsalt) í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2836.3001 og 2836.4001    Karbónöt í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2836.9902    Pottaska í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2918.1200–2918.1300    Vínsýra.
2922.4201    Glútamínsýra í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2925.1101    Sakkarín og sölt þess í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
3203.0001    Matarlitur.
3302.1010    Blöndur af ilmandi efnum til matvælaiðnaðar.
3501.9001    Kaseínöt.
3502.1101 og 3502.1901    Albúmín.
3502.2001 og 3502.9001    Albúmín.
3503.0011 og 3503.0021    Matarlím (gelatín o.fl.).
3824.9008    Blanda úr sakkaríni og kemískum efnum í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.

7. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2002.