Ferill 357. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1195  —  357. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um útflutning hrossa.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hákon Sigurgrímsson frá landbúnaðarráðuneyti, Kristin Guðnason frá Félagi hrossabænda og Harald Þórarinsson frá Landssambandi hestamannafélaga. Umsagnir um málið bárust frá Bændasamtökum Íslands, Félagi hrossabænda, Hagþjónustu landbúnaðarins og Landssambandi hestamannafélaga. Þá bárust nefndinni tilmæli frá Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindardóttur.
     Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlöggjöf um útflutning hrossa. Veigamestu breytingarnar frá gildandi löggjöf eru ítarlegri ákvæði um útgáfu sérstaks vottorðs, hestavegabréfs, sem gert er ráð fyrir að fylgi hrossinu alla tíð og er það í samræmi við skuldbindingar sem Ísland hefur tekið á sig sem upprunaland íslenska hestsins. Þá felst í frumvarpinu að útflutningsgjald verður fellt niður en í stað þess gert ráð fyrir að útflytjendur greiði allan kostnað við skoðun á útflutningshrossum og útgáfu hestavegabréfa en áfram verður þó innheimt gjald í stofnverndarsjóð.
    Við athugun nefndarinnar á málinu kom í ljós að þónokkur andstaða var við ákvæði frumvarpsins og gildandi laga um forkaupsrétt innlendra hrossaræktenda að úrvalskynbóta-gripum. Samkvæmt upplýsingum sem nefndin hefur aflað hefur forkaupsréttur aðeins verið nýttur einu sinni og virðist í ákveðnum tilfellum sem forkaupsrétturinn hafi haft hamlandi áhrif á viðskipti og útflutning hrossa. Nefndin telur því rétt að fella niður ákvæði um forkaupsrétt að úrvalskynbótagripum en leggja í stað þess til að hrossaútflytjendur skuli tilkynna Bændasamtökum Íslands um útflutning á slíku hrossi. Tilkynningarskyldan ætti þannig að auðvelda samtökunum að hafa yfirsýn yfir útflutning úrvalskynbótagripa frá Íslandi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er grein fyrir hér að framan og gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Guðjón A. Kristjánsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 10. apríl 2002.



Drífa Hjartardóttir,


form., frsm.


Sigríður Jóhannesdóttir.


Guðjón Guðmundsson.



Jónína Bjartmarz.


Karl V. Matthíasson.


Einar Oddur Kristjánsson.



Þuríður Backman.


Sigríður Ingvarsdóttir.


Kristinn H. Gunnarsson.