Ferill 572. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1226  —  572. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar um útboð og samninga um verkefni við vegagerð.

     1.      Hve mörg verkefni í vegagerð voru unnin á vegum Vegagerðar ríkisins síðustu þrjú ár og það sem af er þessu ári og hver var heildarkostnaður þeirra, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?
    Samkvæmt bókhaldi Vegagerðarinnar voru nýbyggingarverkefni í vegagerð þar sem kostnaður var 5 millj. kr. eða meiri 78 talsins árið 1999, þau voru 95 árið 2000 og 104 árið 2001.

Verkefni og kostnaður skipt eftir umdæmum Vegagerðarinnar 1999–2001.


Fjöldi verkefna

Heildarkostnaður, millj. kr.

    1999
Suðurlandsumdæmi
10 258
Reykjanesumdæmi
13 1.094
Vesturlandsumdæmi
11 555
Vestfjarðaumdæmi
11 378
Norðurlandsumdæmi vestra
7 167
Norðurlandsumdæmi eystra
13 536
Austurlandsumdæmi
13 503
Samtals
78 3.491
    2000
Suðurlandsumdæmi
15 529
Reykjanesumdæmi
14 536
Vesturlandsumdæmi
15 684
Vestfjarðaumdæmi
16 531
Norðurlandsumdæmi vestra
10 313
Norðurlandsumdæmi eystra
8 520
Austurlandsumdæmi
17 628
Samtals
95 3.741
    2001
Suðurlandsumdæmi
16 397
Reykjanesumdæmi
13 1.669
Vesturlandsumdæmi
12 623
Vestfjarðaumdæmi
16 600
Norðurlandsumdæmi vestra
9 248
Norðurlandsumdæmi eystra
13 541
Austurlandsumdæmi
25 1.256
Samtals
104 5.343

    Tölur um fjölda verkefna taka bæði til verkefna sem hófust á viðkomandi ári og verkefna frá fyrra eða fyrri árum. Árið 2002 er hér ekki tekið með enda svo skammt á það liðið að upplýsingar um fjölda verkefna og kostnað gefa enga mynd af árinu.
     2.      Hve mörg verkefni voru boðin út í opnum útboðum á þessum tíma og hver var heildarfjárhæð þeirra, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?
    Á árunum 1999–2001 var fjöldi opinna útboða á nýbyggingarverkefnum og samningsupphæðir eins og fram kemur í eftirfarandi töflu. Þar eru tilgreindar samningsfjárhæðir, en ekki kostnaður við viðkomandi verkefni. Til viðbótar við samningsfjárhæð verktaka kemur kostnaður við undirbúning, hönnun og eftirlit. Auk þess er kostnaður við efni sem Vegagerðin leggur til úr öðrum útboðum og eru stærstu liðirnir unnið steinefni, ræsarör og asfalt. Þess utan telst til kostnaðar við verkefnin ýmis kostnaður, svo sem landbætur, námugjöld, landgræðsla og merkingar á vegum og vegyfirborði.

Útboð á nýbyggingarverkefnum og samningsupphæðir 1999–2001.


Fjöldi útboða Samningsfjárhæð, millj. kr.
1999
Suðurlandsumdæmi
7 177
Reykjanesumdæmi
9 910
Vesturlandsumdæmi
6 363
Vestfjarðaumdæmi
8 273
Norðurlandsumdæmi vestra
5 43
Norðurlandsumdæmi eystra
3 237
Austurlandsumdæmi
8 308
Samtals
46 2.311
2000
Suðurlandsumdæmi
7 221
Reykjanesumdæmi
9 235
Vesturlandsumdæmi
4 253
Vestfjarðaumdæmi
9 271
Norðurlandsumdæmi vestra
7 288
Norðurlandsumdæmi eystra
6 289
Austurlandsumdæmi
9 447
Samtals
51 2.004
2001
Suðurlandsumdæmi
6 282
Reykjanesumdæmi
5 1.436
Vesturlandsumdæmi
5 387
Vestfjarðaumdæmi
6 611
Norðurlandsumdæmi vestra
7 74
Norðurlandsumdæmi eystra
9 627
Austurlandsumdæmi
14 906
Samtals
52 4.323

    Árið 1999 var unnið við 25 útboðsverk sem boðin höfðu verið út árið 1998 eða fyrr. Árið 2000 var unnið við 26 útboðsverk sem boðin höfðu verið árið áður eða fyrr. Á árinu 2001 var unnið við 32 slík útboðsverk sem boðin höfðu verið út á árinu 2000 eða fyrr.

     3.      Hve mörg verkefni voru boðin út í lokuðum útboðum á sama tíma og hvaða aðilar fengu að taka þátt í þeim, hverjir fengu slík verkefni eftir lokuð útboð og hverjar voru upphæðir þeirra samninga sem gerðir voru, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?

    Lokuð útboð, í nýframkvæmdum, á tímabilinu 1999–2001 voru sjö og var skipting þeirra milli ára, umdæma Vegagerðarinnar og verktaka samkvæmt eftirfarandi yfirliti.

Lokuð útboð í nýframkvæmdum skipt eftir umdæmum og verktökum, 1999–2001.


1999
Vestfjarðaumdæmi
Verkefni: Grjótkassar í Óshlíð 1999
Samningsaðili: Stígur Arnórsson, Ísafirði
Samningsupphæð: 1,88 millj. kr.
Þátttakendur í útboði: Stígur Arnórsson, Ísafirði Barði Önundarson, Ísafirði
     Afrek ehf., Flateyri Brautin, Þingeyri

     Græðir ehf., Flateyri Elvar Sigurgeirsson, Bolungarvík
     Jónbjörn Björnsson, Súðavík Vesturvélar, Súðavík
Austurlandsumdæmi
    Verkefni: Niðurrekstrarstaurar fyrir Eskifjarðará
    Samningsaðili: Brúnás, Egilsstöðum
    Samningsupphæð: 1,13 millj. kr.
Þátttakendur í útboði: Brúnás, Egilsstöðum Guðmundur Ármannsson, Egilsstöðum
Trévangur, Reyðarfirði Einar Dalberg, Eskifirði
2000
Suðurlandsumdæmi
Verkefni: Ræsi í Hrunaveg
Samningsaðili: Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., Selfossi
Samningsupphæð: 2,21 millj. kr.
Þátttakendur í útboði: Vélgrafan ehf., Selfossi Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf.
Verkefni: Bílastæði við Skálholtskirkju
Samningsaðili: Verktækni ehf., Selfossi
Samningsupphæð: 6,89 millj. kr.
Þátttakendur í útboði: Verktækni ehf., Selfossi Malbikunarstöðin Hlaðbær – Colas hf.
Loftorka, Reykjavík ehf.
Norðurlandsumdæmi vestra
Verkefni: Tindastólsvegur
Samningsaðili: Sigurður Eiríksson og Sigurður Hansen, Sauðárkróki
Samningsupphæð: 1,68 millj. kr.
Þátttakendur í útboði: Steypustöð Blönduóss, Blönduósi Króksverk ehf., Sauðárkróki
Steypustöð Skagafjarðar ehf., Sauðárkróki Sigurður Eiríksson, Sauðárkróki
Steingrímur Ingvarsson, Litlu-Giljá, Austur-Húnavatnssýslu Fjörður sf., Sauðárkróki
Norðurtak ehf., Sauðárkróki Sigurður Hjálmarsson, Blönduósi
Snæbjörn Hólm Guðmundsson, Sauðárkróki Þórður Hansen, Sauðárkróki
2001
Vestfjarðaumdæmi
Verkefni: Valþjófsstaðavegur
Samningsaðili: Græðir sf., Flateyri
Samningsupphæð: 0,83 millj. kr.
Þátttakendur í útboði: Jónas Jónbjörnsson, Súðavík Græðir ehf., Flateyri
Hólsvélar, Bolungarvík Kubbur, Ísafirði
Vesturvélar, Súðavík Brautin, Þingeyri
Norðurlandsumdæmi vestra
Verkefni: Blöndudalsvegur
Samningsaðili: Steingrímur Ingvarsson, Litlu-Giljá, Austur-Húnavatnssýslu
Samningsupphæð: 1,00 millj. kr.
Þátttakendur í útboði: Steypustöð Blönduóss Króksverk ehf, Sauðárkróki
Steypustöð Skagafjarðar ehf., Sauðárkróki Sigurður Eiríksson, Sauðárkróki
Steingrímur Ingvarsson, Litlu-Giljá Fjörður sf., Sauðárkróki
Norðurtak ehf., Sauðárkróki Bás ehf., Siglufirði
Eik ehf., Blönduósi Vörubílstjórafélag V-Húnavatnssýslu

     4.      Hvaða reglur gilda hjá Vegagerðinni þegar verktakar eru valdir til að taka þátt í lokuðu útboði eða beinum samningum um verk?
    Lokuð útboð eru mjög lítið notuð hjá Vegagerðinni og þá fyrst og fremst þegar um lítil verkefni er að ræða og stuttan undirbúnings- og framkvæmdatíma. Í þeim tilvikum er yfirleitt leitað til aðila á viðkomandi starfssvæði sem hafa yfir að ráða tækjabúnaði og reynslu til að vinna viðkomandi verkefni.

     5.      Um hve mörg verkefni sem kostuðu 1 millj. kr. eða meira var samið án útboðs á umræddu tímabili, við hvaða aðila var samið um 1 millj. kr. eða meira og hver var fjárhæðin, sundurliðað eftir árum og starfssvæðum?
    Á árinu 1999 voru gerðir án útboðs samningar hærri en 1 millj. kr. um 23 verkefni, árið 2000 um 22 verkefni og árið 2001 um 20 verkefni vegna nýframkvæmda. Mörg þessara verkefna eru hluti af öðrum verkum sem boðin voru út en samið við verktaka, stofnanir og sveitarfélög um lausn afmarkaðra sérhæfðra verkhluta. Hér á eftir fylgir yfirlit yfir samningsverk samkvæmt bókhaldi Vegagerðarinnar á umræddu tímabili sundurliðuð eftir umdæmum.

Samningsverk sundurliðuð eftir umdæmum 1999–2001.

Verkefni

Kr.

1999
Suðurlandsumdæmi
Landvegur Hagabraut ny. – Múli, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. 1.217.052
Meðallandsvegur Hringvegur – Fossar, Slitlag ehf., Hellu 6.425.030
Þingvallavegur Miðfell – Gjábakkavegur, Geir Baldursson 4.316.775
Þingvallavegur Miðfell – Gjábakkavegur, Fossvélar ehf. 4.065.960
Reykjanesumdæmi
Reykjanesbraut Nesbraut – Faxagata ferja, Reykjavíkurborg 13.902.488
Hafravatnsvegur Hringvegur – Úlfarsfellsvegur, Jónas Guðmundsson 3.203.560
Mislæg gatnamót, Miklabraut/Skeiðarvogur,Orkuveita Reykjavíkur 3.735.000
Bráðabirgðatenging, Miklabraut/Skeiðarvogur, Orkuveita Reykjavíkur 1.867.500
Bráðabirgðatenging, Miklabraut/Skeiðarvogur, Reykjavíkurborg 1.058.637
Grindavíkurvegur Reykjanesbraut – Grindavík, Gerðavellir, Einar Svavarsson 1.887.450
Reykjanesbraut Breiðholtsbraut – Vífilsstaðavegur, Orkuveita Reykjavíkur 6.231.076
Hringvegur Úlfarsfellsvegur – Hafravatnsvegur, Orkuveita Reykjavíkur 2.992.856
Hringvegur Úlfarsfellsvegur – Hafravatnsvegur, Rafmagnsveita Reykjavíkur 3.735.000
Vesturlandsumdæmi
Vestfjarðavegur Búðardalur, Sunnubraut – Klofningsvegur, Tak ehf. 11.153.000
Vestfjarðaumdæmi
Tálknafjarðavegur Tálknafjörður, Hólsá – St. Laugard., Orkubú Vestfjarða hf. 3.242.217
Norðurlandsumdæmi vestra
Fagranesá á Reykjaströnd, Fjörður sf., Sauðárkróki 1.094.850
Norðurlandsumdæmi eystra
Hólsfjallavegur Hringvegur – Dældarás, Iðufell ehf., Raufarhöfn 7.284.400
Grenivíkurvegur Ystavík – Fnjóskadalsvegur ey., Rafmagnsveitur ríkisins 1.888.158
Ólafsfjarðarvegur Hóll – sýslumörk, Ólafsfjarðarkaupstaður 2.300.000
Hlíðarvegur Hringvegur – Ásláksstaðir, Möl og Sandur hf. 1.785.700
Veigastaðavegur Hringvegur – Eyjafjarðarbraut ey., Eiríkur Rafnsson 3.348.500
Austurlandsumdæmi
Hringvegur breikkun Bauluhvammur, SG-vélar ehf., Djúpavogi 1.069.432
Hringvegur Skóghlíð – Fellabær Upphéraðsvegur, Hjörtur Hlíðar Friðriks 1.425.000
2000
Suðurlandsumdæmi
Landvegur Hagabraut ny. – Múli Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. 3.287.500
Hringvegur Vík Víkurprjón – Vík Mýrarvegur, Rafmagnsveitur ríkisins 1.607.482
Gjábakkavegur Laugarvatnsvegur – Þingvallavegur, Arnardalur sf. 3.600.000
Reykjanesumdæmi
Hringvegur Úlfarsfellsvegur – Hafravatnsvegur, Völur hf. 4.176.000
Mislæg gatnamót, Miklabraut/Skeiðarvogur, Orkuveita Reykjavíkur 8.547.231
Grafningsvegur ef. Nesjavellir – Þingvallavegur, Jón Ingi Sigursteinsson 1.045.800
Hringvegur Nesbraut – Úlfarsfellsvegur, Orkuveita Reykjavíkur 4.726.728
Reykjanesbraut Breiðholtsbraut – Vífilsstaðavegur, Vegmerking ehf. 1.206.108
Meðalfellsvegur Hvalfjarðarvegur – Kjósarskarðsvegur, Fossvélar ehf. 1.520.000
Vesturlandsumdæmi
Hringvegur Akrafjallsvegur – Akrafjallsvegur, Malbikunarstöðin Hlaðbær – Colas hf. 1.320.000
Borgarfjarðarbraut Uxahryggjavegur – Flókadalsvegur ny., Jörvi ehf. 1.638.375
Brákarsund, Tak-Malbik ehf. 1.113.218
Snæfellsnesvegur Grundarfjörður, Grundargata – Höfði, Myllan ehf. 1.441.523
Snæfellsnesvegur Grundarfjörður, Grundargata – Höfði, Vöruflutningar Leifs Guðjónssonar ehf.
1.897.185
Vestfjarðaumdæmi
Vestfjarðavegur Ingjaldssandsvegur – Önundarfjarðarvegur, Orkubú Vestfjarða hf. 9.586.500
Strandavegur Djúpavík – Gjögur, Varða ehf. 2.300.000
Norðurlandsumdæmi vestra
Svínvetningabraut Hringvegur – Reykjabraut, Rafmagnsveitur ríkisins 2.202.430
Norðurlandsumdæmi eystra
Ólafsfjarðarvegur Dalvegur barnaskóli – Dalvegur Brimnesá, Vélar og þjónusta hf. 3.064.630
Aðaldalsvegur Hringvegur – Staðarbraut, Rafmagnsveitur ríkisins 3.423.750
Hlíðarfjallsvegur Hringvegur – Hlíðarbraut, Akureyrarkaupstaður 1.405.322
Austurlandsumdæmi
Austurland þéttbýlisst. lagfæring þjóðvega, Malarvinnslan hf. 1.047.664
Hringvegur Skóghlíð – Fellabær Upphéraðsvegur, Hjörtur Hlíðar Friðriks 1.041.432
2001
Suðurlandsumdæmi
Skógavegur Hringvegur – kennarabústaður, Arnardalur, sf. 3.967.500
Skógavegur Hringvegur – kennarabústaður, Ræktunarmiðstöðin sf. 1.313.950
Landvegur Hagabraut ny. – Múli, Geir Baldursson 2.499.000
Hrunamannavegur Langholtsvegur – Haukholt, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. 1.357.460
Sólheimavegur Biskupstungnabraut – Sólheimar, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. 1.581.590
Hrunavegur Hrunamannavegur – Hrunamannavegur, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. 5.152.230
Hrunamannavegur Langholtsvegur – Haukholt, Vélgrafan ehf., Selfossi 1.465.273
Vestfjarðaumdæmi
Drangsnesvegur Strandavegur – Drangsnes, Landssími Íslands hf. 1.057.335
Hafnarvegur Ísafjörður Djúpvegur – hafnarsv. Mjósund, Rörtækni ehf. 5.299.212
Hafnarvegur Ísafjörður Djúpvegur – hafnarsv. Mjósund, Orkubú Vestfjarða hf. 1.518.397
Hafnarvegur Ísafjörður Djúpvegur – hafnarsv. Mjósund, Trésmiðjan ehf., Hnífsdal 1.569.100
Hafnarvegur Ísafjörður Djúpvegur – hafnarsv. Mjósund, Malbikunarst. Hlaðbær – Colas hf. 2.881.200
Norðurlandsumdæmi vestra
Borgarvegur Síðuvegur – Vatnsnesvegur, Þorbjörn Ágústsson 1.295.930
Norðurlandsumdæmi eystra
Lónsós, Sandöx ehf. 3.940.169
Hólsfjallavegur Hafursstaðir – Norðausturvegur, Sandöx ehf. 3.823.593
Svarfaðardalsvegur Ólafsfjarðarvegur – Tunguvegur, Steypustöðin Dalvík ehf. 3.499.695
Þverá, Sandöx ehf. 1.642.240
Hringvegur Brún – Mývatnsvegur, Arnarfell ehf. 6.117.380
Hólsá, Sandöx ehf. 1.152.340
Austurlandsumdæmi
Hringvegur Norðausturvegur – Möðrudalsleið Arnarfell ehf. 1.460.950

     6.      Hvað er lagt til grundvallar við ákvörðun um hvort útboð eru höfð opin eða lokuð eða samið er beint við verktaka?
    Yfirleitt eru útboð Vegagerðarinnar opin. Lokuð útboð (fyrirspurnir) og beinir samningar eru yfirleitt einungis notuð þegar um er að ræða lítil verkefni þar sem áætlaður kostnaður er lægri en útboðsskylda segir til um (nú 12,5 millj. kr.), kostnaður við verkhönnun og gerð útboðsgagna er metinn hátt hlutfall af kostnaði og undirbúnings- og framkvæmdatími skammur, eða samkeppni lítil eða engin vegna eðlis framkvæmdar.