Ferill 720. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1227 — 720. mál.
Frumvarp til laga
um veitingu ríkisborgararéttar.
Frá allsherjarnefnd.
1. gr.
Ríkisborgararétt skulu öðlast:
1. Ástþór Mario Corado Grant, f. 10. október 1989 á Íslandi.
2. Christina Judith Schnellmann, f. 19. apríl 1974 í Sviss.
3. Jan-Henrik Winter, f. 3. febrúar 1982 í Finnlandi.
4. Kevin Shawn Grandberg, f. 1. febrúar 1972 í Kanada.
5. Monica Ósk Corado Grant, f. 18. desember 1992 á Spáni.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Allsherjarnefnd hafa borist 19 umsóknir um ríkisborgararétt frá því að fyrra frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar var lagt fram í desember 2001, sbr. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952.
Nefndin leggur til að fimm einstaklingum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur að þessu sinni.