Ferill 728. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1241  —  728. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um stuðning við frjáls félagasamtök á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



    Hefur menntamálaráðuneytið veitt frjálsum félagasamtökum á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála fjárstuðning árin 1998–2001? Ef svo er, hvernig hefur þeim stuðningi verið háttað? Óskað er eftir því að í svarinu komi fram til hvers konar verkefna styrkir hafa verið veittir, hversu háir styrkir og hverjir ábyrgðaraðilar verkefnanna hafa verið, sundurliðað eftir fjárlagaliðum og árum.


Skriflegt svar óskast.