Ferill 583. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1307  —  583. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 20. apríl.)

1. gr.

    Við 1. mgr. 28. gr. laganna bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
     18.      Grundartangi.
     19.      Skagaströnd.
     20.      Vopnafjörður.

2. gr.

    Í stað fjárhæðarinnar „75.000“ í 2. mgr. 139. gr. laganna kemur: 300.000.

3. gr.

    A-tollur tollskrárnúmersins 9401.2002 í viðauka I við lögin verður 0%.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 3. gr. tekur til allra vara sem eru ótollafgreiddar við gildistöku laganna.