Ferill 685. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Nr. 19/127.

Þskj. 1319  —  685. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2002.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2002 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 24. janúar og 28. febrúar 2002.

Samþykkt á Alþingi 20. apríl 2002.