Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1338, 127. löggjafarþing 547. mál: hlutafélög (hlutafé í erlendum gjaldmiðli).
Lög nr. 62 2. maí 2002.
Þingskjal 1338, 127. löggjafarþing 547. mál: hlutafélög (hlutafé í erlendum gjaldmiðli).
Lög nr. 62 2. maí 2002.
Lög um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, með síðari breytingum (hlutafé í erlendum gjaldmiðli).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- 3. málsl. 3. mgr. orðast svo: Þessari fjárhæð getur ráðherra breytt í samræmi við breytingar á gengi evru.
- Við bætast þrjár nýjar málsgreinar, 4.–6. mgr., sem orðast svo:
Auk íslensku krónunnar má ákveða hlutafé í eftirtöldum erlendum gjaldmiðlum: evru, bresku pundi, dönskum, norskum og sænskum krónum, Bandaríkjadal, japönskum jenum og svissneskum frönkum. Í ákvörðun hluthafafundar skal greina frá nafnverði í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðli. Ef um er að ræða skráð félag á skipulegum verðbréfamarkaði sem hefur ekki við útgáfu hlutabréfa aflað heimildar til að færa bókhald og semja ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skal við umreikning í annan gjaldmiðil miða við lokagengi samkvæmt opinberu viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands í lok næsta reikningsárs á undan því ári þegar ákvörðunin er tekin eða það gengi sem gilti þegar innborganir hlutafjár fóru fram. Hafi félag fengið heimild til að færa bókhald og semja ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skal nafnverð hlutafjár við útgáfu hlutabréfa vera í samræmi við ákvæði laga um ársreikninga varðandi umreikninginn.
Ráðherra getur sett reglur um að miða megi við aðra gjaldmiðla, svo og kveðið nánar á um skilyrði fyrir því að hlutafé sé ákveðið í öðrum gjaldmiðli en íslensku krónunni og hvenær sú breyting megi fara fram.
2. gr.
Í stað orðanna „lög um rafræna skráningu verðbréfa“ í 2. mgr. 27. gr. laganna kemur: lög um rafræna eignarskráningu verðbréfa. Í hlutafélögum skal við breytingu á gjaldmiðli hlutafjár innkalla útgefin hlutabréf og gefa ný út í stað þeirra í nýjum gjaldmiðli. Gera skal sambærilegar breytingar sé um rafræna skráningu að ræða.3. gr.
Við 2. tölul. 153. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Sama gildir um brot á reglum um hlutafé í erlendum gjaldmiðli skv. 4. mgr. 1. gr.4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2002.Samþykkt á Alþingi 22. apríl 2002.