Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1356  —  359. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð, lögum um málefni aldraðra, lögum um heilbrigðisþjónustu og sóttvarnalögum.

Frá Jónínu Bjartmarz.



    Við 14. gr.
     a.      E-liður 1. efnismgr. falli brott.
     b.      Við bætist ný málsgrein er verði 2. efnismgr. og orðist svo:
                  Þá skal Tryggingastofnun greiða kostnað vegna psoriasissjúklinga sem að mati sérfræðinga þurfa að leita læknishjálpar á meðferðarstofnunum psoriasissjúklinga sem komi í stað sjúkrahúsvistar.