Ferill 735. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1358  —  735. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2001.

(Lögð fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


INNGANGUR

    Í þessari skýrslu er að finna stuttorðar lýsingar á ríkisstyrktum hafnarframkvæmdum 2001 á hverjum stað fyrir sig og tölur um fjárveitingar til hafnarframkvæmda og ráðstöfun þeirra í töflum I–VII. Einnig er fjallað um varnir gegn landbroti af ágangi sjávar og greint frá verkum sem unnin hafa verið í höfnum án ríkisstyrkja. Þá er í skýrslunni stutt samantekt um það helsta í rannsóknum Siglingastofnunar Íslands á sviði hafnamála og greinargerð fyrir megindráttum í starfsemi hennar á árinu 2001 og birtar eru tölur úr rekstri.
    Árið 2001 var eftirgreindum fjárhæðum varið til ríkisstyrktra framkvæmda við hafnir. Til samanburðar eru tölur fyrra árs.

2001
millj. kr.
2000
millj. kr.
Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir
1.164,5 652,7
Ferjubryggjur
0,1 19,6
Samtals
1.164,6 672,3

RÍKISSTYRKTAR HAFNARFRAMKVÆMDIR

Grundartangi.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. Sjá kafla um framkvæmdir sem voru ekki ríkisstyrktar.

Akranes.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Borgarnes.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Snæfellsbær.
     Arnarstapi: Grjótgarður lengdur og gert við hann. Í verkinu felst að grjótgarður verður lengdur um því sem næst 45 m og gert við þann hluta hans sem fyrir var með því að bæta grjóti utan á hann og styrkja hann þannig. Er þetta gert í samræmi við hafnaáætlun. Í viðgerðina fara um 2.600 m3 af grjóti og kjarna en í lengingu garðsins er áætlað að fari um 10.000 m3 af grjóti og kjarna. Einnig er innifalið í verkinu að sprengja og fjarlægja tvö–þrjú sker við enda garðsins og fjarlægja laust efni innst í höfninni.
    Verkið var boðið út í júlí 2001 og mun ekki ljúka fyrr en vorið 2002.
    Í fjárlögum ársins 2001 voru veittar 38 millj. kr. til verksins og í hafnaáætlun er gert ráð fyrir öðru eins framlagi árið 2002.
     Rifshöfn: Innsiglingin þar var dýpkuð, en í fyrra var heimild veitt til að flýta því verki. Í framkvæmdinni fólst að dælt var upp um 14.500 m3 af efni. Verkið var boðið út í október 2000 og tekið tilboði Björgunar ehf. Dýpkunarskip fyrirtækisins, d/s Perlan, vann verkið sem hófst í apríl 2001 og lauk í maí sama ár.
    Áætlaðar voru 5,7 millj. kr. til verksins. Það fór nokkuð fram úr fjárhagsáætlun sem m.a. skýrist af því að efnismagn var aukið frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir.
    Lokið var við að endurbyggja grjótvörn á efsta hluta Norðurgarðs. Þetta verk fólst í því að Norðurgarður var lengdur til landsins um 180 m frá staurakistu að verbúðum. Einnig var í fyrsta áfanga gert við garðinn framan við staurakistu að verbúðum. Á um 50 m bili næst landi vísar garðurinn nokkru utar en sá sem fyrir var og er skarð á garðinum þar sem sá nýi og sá sem fyrir var mætast. Þar innan við er svokölluð Rifsvör og var þessi ráðstöfun gerð til að vernda hana.
    Verkið var boðið út í nóvember 1998, tilboð opnuð 10. desember og síðan gengið til samninga við lægstbjóðanda, Bjarna Vigfússon á Kálfárvöllum. Verkið var unnið á árunum 1999–2001 og lauk að fullu í maí 2001.
    Í lengingu garðsins fóru um 5.800 m3 af kjarna og grjóti. Efnið var unnið úr grjótnámu við Efri Höfða við Rif. Aukaverk voru nokkur þar eð tafir urðu vegna fornminjafundar og ýmis konar frágangsverk varð að vinna í tímavinnu.
    Heildarkostnaður við verkið varð 13,7 millj. kr.
    Slitlag var lagt á tengibraut í Rifshöfn, verk sem var á hafnaáætlun 1999, en var frestað. Það verk fólst í því að steypt þekja var breikkuð, tengibraut steypt og lagfært í kringum löndunarkrana með því að steypa þar þekju sem alls er um 880 m2.
    Verkið var ekki boðið út heldur samið við Þorgeir Árnason eiganda steypustöðvarinnar, sem bauð steinsteypuna á mjög hagstæðu verði niðurlagða. Verkinu lauk í september 2001.
     Ólafsvík: Lenging flotbryggju og klæðning. Í verkinu fólst að flotbryggjan næst Suðurgarði var lengd um 20 m og steypt 335 m2 þekja ofan við landgang. Verkið var unnið í samræmi við hafnaáætlun. Floteiningin, ásamt vinnu við að koma henni fyrir, var boðin út og var Króli hf. eini tilboðsgjafinn. Var gengið til samninga við Króla hf. á grundvelli tilboðs fyrirtækisins.
    Framkvæmdakostnaður: 29,0 millj. kr.

Grundarfjörður.
    Þar var unnið að lengingu Stórubryggju samkvæmt hafnaáætlun. Í fyrsta áfanga var dælt um 115.000 m3 af efni undir garðinn. Þessi hluti verksins var framkvæmdur með d/s Perlu á vegum Björgunar ehf. Síðan var um 50.000 m3 af kjarna og grjóti ekið út og að svo búnu rammað niður 125 m langt stálþil, þar af 100 m framkantur og 25 m gafl, alls 99 plötur.
    Vinnan við þilið og garðinn var boðin út í júní 2001 og lauk ekki á árinu. Tekið var tilboði lægstbjóðanda í þennan verkhluta, sem var Ísar ehf. í Hafnarfirði, er bauð 66.536.400 kr. Ísar ehf. er enn að störfum og áætlar að skila af sér í mars 2002. Verkinu lýkur þó ekki þar með því eftir er að bjóða út þekju og lagnir.
    Lokið var frágangi við flotbryggju sem unnin var á síðasta ári.
    Framkvæmdakostnaður: 124,0 millj. kr.

Stykkishólmur.
    Þar var ljósamasturs- og vatnshús í Skipavík á áætlun en var frestað til ársins 2002. Þó var unnið að hönnun og undirbúningi.
    Framkvæmdakostnaður: 0,3 millj. kr.

Dalabyggð.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Reykhólahöfn.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Vesturbyggð.
     Patreksfjörður: Þar var gert við innri hlið á Oddanum þar sem tjón hafði orðið í óveðri í byrjun janúar 2001. Skemmdirnar sem þá urðu fólust í því að sjávarkamburinn innan á Oddanum, sem skýlir höfninni, dróst niður á 250–290 m kafla. Verkið var mælt upp og lauslega áætlað að moka þyrfti upp úr innsiglingunni um 1.200–1.400 m3 af möl, jafna síðan fláann og leggja á hann grjótlag, 0,5 m þykkt um 10 m að breidd og 250–290 m að lengd. Umfang verksins var það lítið að ekki var ástæða til að bjóða það út heldur var samið við Norðurtak ehf. á Sauðárkróki, sem var með framkvæmdir á staðnum, á grundvelli einingaverða.
    Norðurtak ehf. hóf verkið í byrjun maí og lauk því í júní 2001.
     Bíldudalur: Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir 20 m lengingu á flotbryggju, en heimamenn ákváðu að fresta verkinu.
    Framkvæmdakostnaður: 6,3 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 6,3 millj. kr.

Tálknafjörður.
    Þar var sett þekja við stálþil ásamt lögnum og lýsingu. Í því fólst að steypt var um 320 m2 þekja og tveimur vatnsbrunnum og ljósastaur komið fyrir á bryggjunni.
    Verkið var ekki boðið út heldur samið við Trésmiðjuna Eik ehf. í september 2001.
    Verktakinn hóf framkvæmdina í byrjun september og lauk henni um miðjan október 2001. Auk tilboðsverksins var flötur á þekju aukinn og einnig flutti verktaki efni af svæðinu.
    Framkvæmdakostnaður: 6,0 millj. kr.

Bolungarvík.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að breikka og styrkja grjótvörn á Grundargarði. Samkomulag varð um það við heimamenn að þeir frestuðu framkvæmdinni um eitt ár og lánuðu fjárveitingu til Vopnafjarðar.

Ísafjarðarbær.
    Á Þingeyri og Flateyri voru gerðar bátaupptökubrautir, hvor um sig 0,2 m á þykkt, 5 m á breidd og 30 m að lengd. Verkin voru boðin út og tilboð opnuð hinn 31. júlí 2001. Samið var við Sigmund Þórðarson á Þingeyri um Þingeyrarverkið og var samningsverð 1.667.600 kr. Um Flateyrarverkið var samið við Eirík og Einar Val ehf. á Ísafirði og var samningsverð 1.672.000 kr.
    Báðar framkvæmdirnar hófust í ágúst og var lokið í endaðan september 2001. Á Þingeyri reyndist nauðsynlegt að grafa meira frá brautinni og fylla betur að henni en ráðgert hafði verið.
     Flateyri: Samkvæmt hafnaáætlun átti að ljúka framkvæmdum við lagnir og þekju á hafnarkant. Lítils háttar var unnið að undirbúningi, en verkinu að öðru leyti frestað.
     Suðureyri: Lokið var uppgjöri vegna grjótvarnar við Brjót sem gerð var á síðasta ári.
     Ísafjörður: Tekin var til uppgjörs framkvæmd við tengibraut Ásgeirsbakka. Ágreiningur hafði staðið í nokkur ár um styrkhæfni þessarar framkvæmdar, en við afgreiðslu hafnaáætlunar 2001–2004 fékkst niðurstaða um að svo væri.
    Unnið var að viðgerð á skemmdum sem orðið höfðu í óveðri 11. og 12. janúar 2001 er mikill vestansjógangur var á Vestfjörðum samfara stórstreymi og fékkst til þess tjónastyrkur að upphæð 5,3 millj. kr. Í viðgerðinni fólst að hækkaður var skvettmúr við Ásgeirsbakka og gert við skemmdir á þekju og þili auk þess sem hækkaðir voru fjörukambar við Safnahúsið og í Suðurtanga.
    Veggsteypa var boðin út og bárust tvö tilboð sem opnuð voru 5. nóvember 2001. Samið var við Eirík og Einar Val ehf. á grundvelli tilboðs þeirra um 911.500 kr. fyrir veggsteypuna. Önnur verk var samið um við verktaka á staðnum á grundvelli einingaverða og taxtasamninga. Norðurtak ehf. var að vinna að sjóvörnum á staðnum og var samið við fyrirtækið um sömu einingaverð og í sjóvörninni.
    Norðurtak ehf. flutti kjarna grjót og möl í fjöru. Við Safnahús 30 m3 af kjarna og 100 m3 af grjóti, 300 m3 af möl úr Hnífsdalsfjöru. Framan við skrifstofu Slippsins 500 m3 af kjarna og grjóti og utan á fjöru við Suðurtanga 2000 m3 af kjarna og grjóti. Trésmiðjan í Hnífsdal steypti í göt á þekjunni eftir að starfsmenn vélsmiðja höfðu lagfært vatns- og raflagnabrunna sem féllu niður úr þekjunni eftir óveðrið.
    Hluti viðgerðarinnar var unninn vorið 2001, en aðalviðgerðin var unnin í september og október 2001.
    Gerð var dýptarmæling til undirbúnings dýpkunar við Olíumúla sem er á hafnaáætlun 2003.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að halda áfram framkvæmd við lengingu Sundabakkans, ganga frá lögnum og steypa þekju, en heimamenn ákváðu að fresta því um sinn.
    Framkvæmdakostnaður: 32,3 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 5,3 millj. kr.

Súðavík.
    Þar var gerður 45 m langur skjólgarður við Suðurgarð. Í það fóru um 4.334 m3 af kjarna og 1.231 m3 af grjóti. Endurraðað var um 491 m3. Að auki var Suðurgarðurinn styrktur, sem fólst í því að grjótkápa var lagfærð, og þar var sett upp garðsendaljós.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð 5. september 2001. Þrjú tilboð bárust og var gengið til samninga við lægstbjóðanda, Jónas H. Jónbjörnsson í Súðavík, á grundvelli tilboðs hans sem nam 4.376.794 kr. er var 71,7% af kostnaðaráætlun.
    Verktaki hóf störf 12. október 2001. Verkinu var ekki lokið um áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 4,9 millj. kr.

Norðurfjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Drangsnes.
    Þar er áformað að steypa utan á bryggjuvegginn á um 19 m kafla næst landi. Gengið verður frá kanttré á bryggjubrún, settir tveir stigar og þybbur. Innan við vegginn verður fyllt upp og planið hækkað í sömu hæð og fremri hluti bryggju og síðan steypt um 400 m2 þekja yfir. Gengið verður frá vatnslögn undir þekju og ídráttarrörum fyrir rafmagn.
    Verkið var ekki boðið út enda kostnaður við það og umfang innan þeirra marka að ekki var skylt að fara útboðsleiðina. Í ágúst var leitað eftir tilboði í verkið hjá Grundarási ehf. á Hólmavík og 21. september var gerður samningur við fyrirtækið á grundvelli tilboðs þess. Í samningi er gert ráð fyrir að verki ljúki fyrir 6. júlí 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 0,5 millj. kr.

Hólmavík.
    Þar var í hafnaáætlun gert ráð fyrir endurbótum á smábátaaðstöðu, en samkvæmt ákvörðun heimamanna var framkvæmdum frestað.

Húnaþing vestra.
     Hvammstangi: Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir dýpkun hafnarinnar en heimamenn ákváðu að fresta þeim framkvæmdum um sinn.

Blönduós.
    Lokið var við að dýptarmæla höfnina eftir dýpkunina sem unnin var á síðasta ári og lagfærð þekja á tunnum sem brotnað hafði við dýpkunina.
    Samþykkt var að veita allt að 600 þús. kr. styrk af óskiptu fé til uppsetningar á fimm björgunarstigum á suðurhlið Blönduósbryggju. Samið var við Jón Eiríksson ehf. um smíði og uppsetningu á stigunum og lauk hann verkinu í apríl.
    Í október 2000 kom í ljós að pokahleðsla hafði brotnað undan norðurhorni Blönduósbryggju og töluvert hafði grafist undan fremsta kerinu. Sótt var um tjónastyrk úr Hafnabótasjóði til að gera við skemmdina og samþykkti hafnaráð að veita allt að 5,5 millj. kr. styrk til verksins. Í lok júní var samið við Jón Eiríksson um viðgerð sem fólst í að steypa undir kerið og steypa upp vegg á milli bryggjuhorns og stáltunnu. Alls fóru í viðgerðina um 70 m³ af steypu. Verkinu lauk í lok ágúst.
    Framkvæmdakostnaður: 6,4 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 5,5 millj. kr.

Skagaströnd.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að komið yrði á fót upplýsingakerfi fyrir sjófarendur og á fjárlögum var úthlutað 1,5 millj. kr. til að kaupa og setja upp búnað í því skyni, en heimamenn ákváðu að fresta framkvæmdinni.

Skagafjörður.
     Sauðárkrókur: Þar var 70 m stálþil syðst á Norðurgarði endurnýjað og kantur lengdur um 60 m til suðurs, alls sett 130 m langt stálþil sem hannað er fyrir 8,5 m dýpi.
    Í byrjun árs gerði Siglingastofnun Borro-borun í reklínu þils. Niðurstöður hennar bentu ekki til að von væri vandkvæða við reksturinn.
    Útboð fór fram í lok júlí 2001. Lægstbjóðandi var Elinn ehf. á Sauðárkróki og var gengið til samninga við fyrirtækið á grundvelli tilboðs þess er nam 29,9 millj. kr.
    Aðföng keypt til verksins voru 254 tonn af AZ18 stálþilsefni og 68 tonn af festingum.
    Verklok voru áformuð um miðjan desember 2001 en verktaki lenti í miklum erfiðleikum við rekstur þils og lauk verkinu ekki á árinu.
     Hofsós. Þar var þvergarður lengdur úr 20 m í 25 m. Útboð fór fram í ágúst 2001. Aðeins eitt tilboð barst og var gengið til samninga við bjóðanda, Víðimelsbræður ehf. Samningsupphæð var 4,5 millj. kr.
    Verkið hófst í byrjun september og því lauk um miðjan október. Grjót í lengingu garðsins var sótt í land Reykjarhóls í Fljótum en kjarni í land Bæjar á Höfðaströnd.
    Framkvæmdakostnaður: 52,8 millj. kr.

Siglufjörður.
    Á Siglufirði var aðsigling að Óskarsbryggju dýpkuð og lega við fyrirhugaða lengingu bryggjunnar einnig. Verkið var samningsverk og verktaki Björgun hf. Áætlað magn var 30.000 m3. Verkinu lauk á árinu.
    Óskarsbryggja var lengd um 75 m með þili er hannað er fyrir 10 m dýpi. Fylling í þil var um 21.000 m3 og steyptur kantbiti með pollum um 96 m langur. Verkið var unnið í samræmi við gildandi hafnaáætlun.
    Útboð fór fram í byrjun júlí 2001 og var samið við lægstbjóðanda, Stefán Einarsson á Siglufirði, á grundvelli tilboðsupphæðar er nam 29,4 millj. kr.
    Helstu aðföng er keypt voru til verksins voru 232 tonn af AZ26 stálþilsefni og 62 tonn af festingum. Verklok voru 12. desember 2001.
    Enn fremur var gerð viðgerð á togarabryggju á Siglufirði. Steypt var þekja ofan á upprunalega þekju, brunnar hækkaðir, lagt fyrir neyðarlýsingu við stiga o.fl. Samið var við Bása ehf. á Siglufirði og var samningsupphæð 6,1 millj. kr. Verkið hófst um miðjan júlí en lauk ekki að fullu á árinu.
    Framkvæmdakostnaður: 75,8 millj. kr.

Hafnasamlag Eyjafjarðar.
    Á Ólafsfirði var lokið uppgjöri vegna framkvæmda við Norðurgarð sem unnar voru á síðasta ári.
    Á Dalvík var lokið framkvæmd sem byrjað var á 1999 við stálþil á Norðurgarði og steypt var þekja á Suðurgarð. Framkvæmdin fólst í því að á Suðurgarði var undirlag jafnað, rafmagn lagfært sem og niðurföll og steypt 350 m2 þekja. Á Norðurgarði var fyllingarefni með ónógan burð fjarlægt, lagðar lagnir fyrir vatn, rafmagn, stigaljós, snjóbræðslu og innsiglingarljós og gengið frá úttaksbrunnum fyrir vatn og rafmagn. Byggð var tengiþró fyrir hitaveitu og ljósamasturs- og vatnshús. Gengið var frá samskeytum við gömlu þekjuna og steypt 890 m2 þekja. Sett var upp aðalraftafla og allt rafmagn tengt.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð 10. ágúst 2000. Tvö tilboð bárust og var gengið til samninga við þann verktakann er lægra bauð, Kötlu ehf. á Árskógsströnd. Samningsverð var 15.068.550 kr.
    Verkið hófst í september 2000 og var þekjan á Suðurgarði steypt og kláruð um haustið. Á Norðurgarði var lokið við að fylla í þil og þjappa. Lokið var við að steypa upp masturshúsið, leggja rör fyrir vatn og rafmagn og steypa rafmagnsbrunn. Er þarna var komið var ekki unnt að halda áfram vegna frosts. Verkið hófst svo að nýju í maí 2001 og lauk í september 2001.
    Þar sem um endurbyggingu var að ræða varð nokkuð um aukaverk. Verk utan útboðsverks fólust í raflögnum og sá Elektró Co ehf. um þau.
     Árskógssandur. Lokið var byggingu skjólgarða við ferjuhöfnina.
    Framkvæmdakostnaður: 16,2 millj. kr.

Grímsey.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Hafnasamlag Norðurlands.
     Hjalteyri: Unnið var að viðhaldsdýpkun.
     Akureyri: Þar var sett þekja á stálþil á fiskihöfn, lokið byggingu Lóðsbátabryggju o.fl. Verkið fólst í því að lagðar voru ídráttarlagnir fyrir rafmagn í sex stigaljós og þrír rafbrunnar steyptir upp og lagt í þá. Þá voru lagðar vatnslagnir og tengt í fjóra vatnsbrunna. Byggt var ljósamasturs-, vatns- og rafmagnshús. Að lokum var steypt þekja 2.258 m2 að flatarmáli. Sem aukaverk voru lagðar lagnir að Lóðsbátabryggju. Þekjan, ídráttarlagnirnar og masturshúsin voru hönnuð hjá Siglingastofnun Íslands. Þekjan er hefðbundin að gerð, með tvöfaldri járnagrind og styrkingum við kant.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð 3. ágúst 2000. Tvö tilboð bárust og var ákveðið að taka tilboði frá Möl og sandi ehf. á Akureyri. Upphæð samningsverðs var 21.252.510 kr.
    Framkvæmdin hófst í byrjun september 2000 og var lokið 7. febrúar 2001. Lokaúttekt fór fram 28. febrúar 2001. Nokkrar tafir urðu á verkinu vegna vetrarveðra.
    Verkþættir utan útboðsverks fólust í því að Rafveita Akureyrar setti upp bráðabirgðagötukassa og heimtaug. Vatnsveita Akureyrar sá um vatnsinntak og verktakafyrirtækið Rafeyri sá um raflögn. Samið var við Rafeyri á grundvelli tilboðsupphæðar sem var 2.560.049 kr., enda var upphæðin í samræmi við kostnaðaráætlun. Verktakinn hóf verkið í desember 2000 og lauk því á fyrri hluta árs 2001. Lokaúttekt fór fram í ágúst 2001.
    Á Akureyri fór einnig fram dýpkun fiskihafnar, II. áfangi. Framkvæmdin fólst í því að dæla upp um 18.000 m3 efnis og flytja í Krossanes og einnig um 40.000 m3 norðan flotkvíar. Verkið var boðið út og hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 27.100.000 kr. Aðeins eitt tilboð barst, frá Björgun ehf., sem bauð 22.504.000 kr. eða 83% af kostnaðaráætlun, og var samið við fyrirtækið á grundvelli tilboðsins. Verkið hófst 29. ágúst og lauk í desember 2001.
    Í hafnaáætlun sem samþykkt var vorið 2001 var heimilað að taka til uppgjörs dýpkun við norðurenda nýju bryggjunnar í Krossanesi. Hagtak hf. vann að þessari dýpkun sumarið 2000.
    Frestað var byggingu upptökubrautar sem var á áætlun 2001.
     Grenivík. Gengið var frá raflögn og lýsingu við flotbryggjuna sem sett var upp á síðasta ári. Frestað var byggingu upptökubrautar sem var á áætlun ársins 2000 en frestað þá einnig.
    Framkvæmdakostnaður: 75,2 millj. kr.

Húsavík.
    Á Húsavík hófust framkvæmdir við gerð brimvarnargarðs á Böku. Í verkinu felst að byggður verður um 300 m langur brimvarnargarður af bermugerð út frá fyllingu við Bökuna utan við Norðurgarð á Húsavík. Garðurinn nær út á 12 m dýpi. Hann er byggður upp úr fimm grjótflokkum auk sprengds kjarna. Í garðinn fara um 275.000 m3 af efni, þar af um 140.000 m3 og um 135.000 m3 af kjarna. Megnið af grjótinu skal koma úr námu í Hlíðarhorni á Tjörnesi en hluta af smærra grjótinu og kjarnann má einnig vinna í námu í Kötlum rétt sunnan Húsavíkur.
    Undirbúningsrannsóknir fólust einkum í líkanatilraunum sem gerðar voru á Siglingastofnun Íslands og námurannsóknum er jarðfræðistofan Stapi gerði.
    Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum vegna efnistöku í Hlíðarhorni á Tjörnesi var lögð fram í nóvember 2000 og Skipulagsstofnun kvað upp úrskurð sinn í febrúar 2001 þar sem fallist var á fyrirhugaða efnistöku.
    Verkið var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu og kynnt með auglýsingu á viðskiptavef þess í lok janúar 2001. Tilboð voru opnuð 20. mars 2001. Sex tilboð bárust og var gengið til samninga við lægstbjóðanda, Ístak hf. Samningsverð í verksamningi var 398.426.658 kr.
    Verkið hófst í byrjun ágúst 2001 og eru verklok áætluð eigi síðar en 30. september 2002. Framvindu verksins má ráða af því að við áramót var garðurinn kominn í stöð 230, en fremst á garði er stöð 455,8.
    Framkvæmdakostnaður: 113,1 millj. kr.

Tjörneshöfn.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Kópasker.
    Þar var bætt við þekju rétt neðan við Geflu hf. Ekki fór fram útboð heldur var óskað eftir tilboði frá Vökvaþjónustu Eyþórs ehf. á Kópaskeri og samið við þennan verktaka á grundvelli þess. Samningsupphæð var 2.070.000 kr., er nam 80,6% af kostnaðaráætlun. Verkið var unnið á tímabilinu 20. maí til 10. ágúst 2001. Steypa og tengijárn við eldri steypu reyndust meiri en við var búist og jókst verkið nokkuð vegna þess.
    Viðlegubryggju fyrir smábáta, sem gert var ráð fyrir í hafnaáætlun, var frestað samkvæmt ákvörðun heimamanna.
    Framkvæmdakostnaður: 2,8 millj. kr.

Raufarhöfn.
    Þar var unnið við þekju og lagnir löndunarbryggju sem byggð var árið áður. Útboð fór fram og voru tilboð opnuð 22. maí 2001. Samið var við lægstbjóðanda, Sandöxi ehf. á Raufarhöfn, er bauð 7.356.080 kr. sem nam 79,2% af kostnaðaráætlun. Verkið hófst í júníbyrjun og lauk 30. ágúst 2001.
    Fyrirhugaðri uppsetningu upplýsingakerfis um veður og sjólag var frestað til ársins 2002 er kerfið verður sett upp í tengslum við dýpkun á innsiglingarrennu.
    Unnið var að undirbúningsrannsóknum vegna fyrirhugaðrar dýpkunar innsiglingarrennu.
    Framkvæmdakostnaður: 17,1 millj. kr.

Þórshöfn.
    Boðin var út lenging Hafskipabryggjunnar og samið við lægstbjóðanda, Iðufell ehf., sem bauð 88,6% af kostnaðaráætlun hönnuða. Stálþilsefni hafði verði keypt skömmu fyrir áramót. Byrjað var á verkinu í maí og í desember var lokið við að reka niður þilið og steypa á það kant. Bryggjan var lengd um 15 m í átt að grjótgarði. Verkinu var ekki lokið um áramótin.
    Veittur var tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði að upphæð 500.000 kr. til viðgerða á timburþili Hafskipabryggjunnar sem skemmdist þegar togari lamdist við það í óveðri. Efni til viðgerðarinnar var keypt á árinu en verkinu var ekki lokið um áramót.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir dýpkun en heimamenn tóku þá ákvörðun að fresta framkvæmdinni og stefna á sameiginlegt útboð með Raufarhöfn á næsta ári. Jafnframt var samþykkt að lána fjárveitingu, sem fara átti í dýpkunina, til Vopnafjarðar. Unnið var að undirbúningsrannsóknum vegna dýpkunarinnar en framkvæmdinni að öðru leyti frestað.
    Framkvæmdakostnaður: 14,7 millj. kr.

Bakkafjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Vopnafjörður.
    Heimild fékkst til að flýta dýpkun innsiglingarleiðar innan Skipahólma, en í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að verkið kæmi til framkvæmda á næsta ári. Samkomulag var við hafnarstjórnir í Bolungarvík, á Þórshöfn, á Fáskrúðsfirði og í Sandgerði um frestun framkvæmda á þessum stöðum og í fjáraukalögum voru fjárveitingar færðar til Vopnafjarðar. Verkið var boðið út og tilboð opnuð 8. ágúst 2001. Samið var við lægstbjóðanda, Sæþór ehf. Í byrjun september hófust framkvæmdir við dýpkunina. Þeim lauk ekki á árinu og er stefnt að verklokum í febrúar 2002.
    Heimild fékkst til að vinna viðbótarverk sem fólst í dýpkun við Löndunarbryggju, en komið hafði í ljós að þar var nokkuð af lausu grjóti. Samið var við Sæþór ehf. um verkið.
    Unnið var að viðgerð á stálþili Löndunarbryggju en kafaraskoðun leiddi í ljós að þilið hafði skemmst mun meira en í fyrstu var talið þegar plötur í því gengu upp í sjógangi síðastliðið haust. Ákveðið var að skipta um þær tíu plötur á miðkafla þilsins sem verst voru farnar. Samið var við Sæþór ehf. um að annast viðgerðina. Framkvæmdir hófust um miðjan september og lauk í desemberbyrjun. Frágangi á lögnum og þekju við þilið var frestað fram á næsta ár.
    Framkvæmdakostnaður: 86,2 millj. kr.

Borgarfjörður eystri.
    Gert var við Skarfaskersgarð sem hafði orðið fyrir skemmdum, sbr. skýrslu fyrra árs, og hafði fengist tjónastyrkur til verksins. Ekki fór fram útboð heldur var óskað eftir tilboði frá Jóhanni Helga Sigurðssyni á Borgarfirði eystra og því tekið. Samningsverð var 2.970.000 kr. Verkið hófst 20. maí og lauk 3. september.
    Dýpkað var að utanverðu upp með gömlu bryggjunni við Hafnarhólma. Samið var við Jóhann Helga Sigurðsson um framkvæmdina. Verkið var unnið í júní og júlí. Fjarlægðir voru um 3.600 m³.
    Framkvæmdakostnaður: 9,7 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 3,1 millj. kr.

Seyðisfjörður.
    Í október lá fyrir úrskurður skipulagsstjóra um mat á umhverfisáhrifum vegna byggingar nýs ferjulægis. Framkvæmdir voru heimilaðar 31. október án skilyrða, en heimilt var að kæra úrskurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra til 5. desember 2001. Um sumarið var unnið að jarðvegsrannsóknum og mælingum vegna framkvæmdanna. Hinn 18. desember 2001 var undirritaður samningur milli hafnarstjórnar Seyðisfjarðarbæjar og samgönguráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins um byggingu nýs ferjulægis. Í framhaldi af því var skipuð samstarfsnefnd um byggingu ferjulægis með fulltrúum frá Seyðisfjarðarbæ, Siglingastofnun og Vegagerðinni. Í desember 2001 var boðinn út fyrirstöðugarður og ferging, en jarðvegsrannsóknir höfðu leitt í ljós að nauðsynlegt var að fergja svæði þar sem mannvirki eiga að koma og framkalla sig áður en bygging hefst. Dýpkun var boðin út skömmu fyrir áramót.
    Einnig dýpkaði fyrirtækið Stjörnublástur ehf. við trébryggjur framan við Strandberg, SR og Fjarðarnet á tímabilinu 20. júlí til 1. ágúst. Um 3.900 m3 voru fjarlægðir.
    Við Mjölhúsbryggju var unnið að frágangi á lögnum og lýsingu. Samið var við SR um framkvæmdina. Eftir er að ljúka við lýsingu við smábátahöfnina.
    Framkvæmdakostnaður: 18,6 millj. kr.

Fjarðabyggð.
     Neskaupstaður: Boðin var út lenging Togarabryggju í innri höfn og samið við lægstbjóðanda, Gáma- og tækjaleiguna ehf., um verkið. Keypt voru 199 tonn af stálþili af gerðinni AZ26 og 50 tonn af festingaefni. Þilið er 80 m langt hannað fyrir 9 m dýpi.
    Útboðsverkið fólst í að reka niður þilið, fylla að og steypa kant. Framkvæmdir hófust í byrjun september og var ekki lokið um áramót.
    Samið var við Sæþór ehf. um dýpkun í innri höfninni. Svæði fyrir flotbryggjur innan við nýja þilið var grafið í 3 m dýpi og grafið var burt nefið sem þrengdi innsiglinguna að Togarabryggjunni. Svæði við innsiglinguna var grafið í rúmlega 8 m dýpi. Efni úr dýpkuninni var losað á svæði undir væntanlegan skjólgarð utan við Loðnubryggjuna. Dýpkunin hófst 13. júní og lauk 21. júlí. Alls voru grafnir upp um 23.200 m³. Einnig voru grafnir upp 6.400 m³ við verðandi stálþil og þar fyrir framan.
    Unnið var að undirbúningi vegna byggingar ytri skjólgarðs og færslu innri skjólgarðs og efnistöku í Skuggahlíðarbjargi og af botni Viðfjarðar. Fyrir hönd hafnarsjóðs Fjarðabyggðar sendi Hönnun hf. á Reyðarfirði erindi til Skipulagsstofnunar um ákvörðun á matsskyldu á þessum framkvæmdum. Á miðju ári óskaði framkvæmdaraðili eftir frestun á afgreiðslu og var erindið tekið upp aftur í byrjun árs 2002.
     Eskifjörður: Samið var við Sæþór ehf. um að dýpka svæði framan við nýja stálþilið þar sem Björgun ehf. réði ekki við að dæla. Sæþór ehf. lauk dýpkuninni 4.–6. júlí og er nú 10 m dýpi að nýju bryggjunni.
    Í samræmi við ákvæði hafnaáætlunar var efniskostnaður vegna lengingar stálþils úr 80 m í 130 m tekinn til uppgjörs.
    Framkvæmdakostnaður: 81,9 millj. kr.

Fáskrúðsfjörður.
    Samkvæmt hafnaáætlun var ráðgert að byggja 40 m harðviðarbryggju við loðnubræðsluna, en heimamenn ákváðu að fresta verkinu um eitt ár. Samþykktu þeir að lána 18 millj. kr. fjárveitingu til Vopnafjarðar. Þótt framkvæmdum væri frestað var ákveðið að ljúka botnrannsókn og mælingum í bryggjustæðinu og var það gert á árinu.
    Framkvæmdakostnaður: 1,6 millj. kr.

Stöðvarfjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Breiðdalsvík.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að ljúka frágangi lagna og þekjusteypu við nýju stálþilsbryggjuna. Unnið var að hönnun og undirbúningi en heimamenn ákváðu síðan að fresta verkinu.
    Framkvæmdakostnaður: 0,2 millj. kr.

Djúpivogur.
    Dýpkað var í Innri-Gleðivík á svæði þar sem væntanlegur löndunarkantur skyldi koma. Fyrir var 6–9 m dýpi en gerð var krafa um 9 m dýpi við kantinn. Alls voru grafnir upp um 8.000 m3 af lausu efni. Enn fremur var gerð um 53 m löng rás fyrir stálþil.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð 20. desember 2000. Fjögur tilboð bárust, þar af eitt frávikstilboð. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda, Sæþór ehf., og var samningsverð 35.541.500 kr.
    Verkið hófst í byrjun mars og stóð til aprílloka 2001.
    Enn fremur var byggður löndunarkantur í Gleðivík og höfðu farið fram líkanatilraunir vegna hönnunar hans hjá Siglingastofnun Íslands. Í verkinu fólst að reknar voru niður 99 tvöfaldar stálþilsplötur, gengið frá stögum, steyptur 127 m langur kantur og settir pollar og þybbur framan á þil. Einnig var fyllt í þilstæði og það grjótvarið og vegur lagður frá loðnuverksmiðju niður að bryggjustæðinu. Alls fóru í þetta um 50.000 m3 af kjarna og um 11.000 m3 af flokkuðu grjóti.
    Framkvæmdin var boðin út og tilboð opnuð 16. janúar 2001. Alls bárust 17 tilboð, þar af fimm frávikstilboð. Tekið var frávikstilboði S.G. véla ehf. að fjárhæð 74.256.430 kr. Undirverktaki við stálþilsrekstur var Guðlaugur Einarsson ehf.
    Verkið hófst í byrjun febrúar og stóð fram í byrjun ágúst 2001. Grjót var sótt í land Hamars en kjarni tekinn úr klettum fyrir ofan víkina þar sem hreppurinn stóð í framkvæmdum vegna væntanlegs fiskeldis.
    Unnið var að uppsetningu innsiglingarljósa að höfninni í Gleðivík.
    Framkvæmdakostnaður: 120,0 millj. kr.

Höfn í Hornafirði.
    Þar var byggður Þinganesgarður milli Austurfjöru og Þinganesskerja. Garðurinn er um 300 m að lengd og á að hefta sandrek með Austurfjöru. Magntölur í verkinu eru eftirfarandi: Uppgröftur og jöfnun 1.900 m3, fylling 1.300 m3, kjarni 14.000 m3, grjótfl. IV 4.800 m3, fl. III 4.100 m3, fl. II 3.700 m3, fl. I 2.400 m3 og í rofvörn fóru 2.000 m3. Grjót var tekið úr Hálsendanámu við Litlahorn.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð 13. júní 2000. Tilboð bárust frá sjö aðilum og var tilboði lægstbjóðanda, Suðurverks hf., tekið, en það var 73,6% af kostnaðaráætlun. Samningsverð var 30.817.940 kr. Þar er um 5% hækkun að ræða frá tilboðsverði og stafar hún af töfum sem á verkinu urðu vegna málaferla er risu vegna eignarnáms á grjótnámu.
    Verkið hófst í mars og lauk í júlí. Ekki varð um aukaverk að ræða utan smávægilegt verk vegna tengingar við eldri garð í rofvörn.
    Áætlað var að hefja undirbúningsvinnu vegna Faxeyrarhafnar, umhverfismat og botnrannsóknir, en þeirri vinnu var að mestu frestað.
    Dæluprammi Hornafjarðarhafnar, Soffía, vann að venjubundinni viðhaldsdýpkun hafnarinnar. Alls var dælt upp úr höfninni um 15.000 m³.
    Boðin var út gerð smábátahafnar við Óslandsveg og samið við lægstbjóðendur, Rósaberg ehf., um verkið. Í því fólst að dýpka hafnarstæðið alls um 7.500 m³ og jafna og grjótverja fláa. Byrjað var á verkinu í nóvembermánuði. Því var ekki lokið um áramót. Þá var gerður samningur við Króla ehf. um kaup og uppsetningu á 2.15 m löngum flotbryggjum.
    Boðin var út í septembermánuði gerð leiðigarða við hafnarmynni og út í Mikley. Verkinu var ekki lokið um áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 61,4 millj. kr.

Vestmannaeyjar.
    Framkvæmdum við endurbyggingu stálþils í Friðarhöfn, sem hófust árið 1998, lauk að mestu á árinu 2000. Aðeins var eftir smávægileg frágangsvinna sem lokið var 2001.
    Endurbygging þekju og lagna í I. áfanga Nausthamarsbryggju var boðin út og gert var ráð fyrir verklokum fyrir áramótin 2001–2002, en vegna óhagstæðs tíðarfars hefur ekki verið hægt að vinna verkið og bíður það vors.
    Endurbygging II. áfanga stálþils Nausthamarsbryggju, sem unnin var samkvæmt hafnaáætlun, fór þannig fram að nýtt stálþil var rekið utan um bryggjuna, samtals 302 m. Ytri hlið bryggjunnar er hönnuð m.v. 9 m dýpi, en að innanverðu er hönnunardýpi 5 m. Verkið var boðið út í janúar 2001 og síðan gengið til samninga við lægstbjóðanda, sem var Gáma- og tækjaleiga Austurlands á Reyðarfirði. Útboðsverkinu lauk í nóvember 2001. Eftir er að bjóða út þekju og lagnir þessa áfanga.
    Stálþil og festingar voru keypt í gegnum Ríkiskaup að undangengnu útboði. Stálþilið vó 630 tonn og festingarnar 118 tonn.
    Heildarkostnaður við endurbyggingu Nausthamarsbryggju var um sl. áramót kominn í 174,2 millj. kr. Kostnaður á árinu 2001 nam um 63,2 millj. kr. Stálþil var keypt í tvennu lagi. Fyrri hluti kostaði 15,4 millj. kr., sá síðari var bókfærður í desember 2000 og nam 47,1 millj. kr.
    Í smábátahöfninni voru steyptir upp fjórir landstöplar, flotbryggjur færðar til o.fl. Landstöplarnir voru steyptir af verktakanum 2-Þ að undangengnu útboði. Keyptar voru tvær flotbryggjueiningar af Króla ehf. (lengd 11,7 m, breidd 3 m) og tveir landgangar. Gömlu flotbryggjurnar, sem voru við innanverða Nausthamarsbryggju, voru fluttar að þessum nýju landstöplum af starfsmönnum Vestmannaeyjahafnar og Króla ehf.
    Verkið hófst á árinu 2000 og var unnið að því áfram árið 2001. Því er ekki lokið þar sem gert er ráð fyrir að keyptar verði tvær flotbryggjur og tveir landgangar til viðbótar.
    Áfram var unnið við upplýsingakerfið fyrir veður og sjólag. Settir voru upp vind- og sjávarhæðarmælar á Skansfjöru og þeir tengdir við tölvu á hafnarskrifstofu. Uppsetningu kerfisins er enn ekki að fullu lokið. Kostnaður verður töluvert umfram upphaflega áætlun, aðallega vegna mæla á Skansfjöru, en tenging við þá verður dýrari en reiknað var með.
    Grafskip Vestmannaeyjahafnar vann að dýpkun framan við Nausthamarsbryggjuna og inn með Friðarhafnarkanti. Dælt var upp um 10.000 m³.
    Unnið var að hönnun stálþils við Ískant og suðurkant Friðarhafnar.
    Framkvæmdakostnaður: 79,3 millj. kr.

Þorlákshöfn.
    Þar var unnið að dýpkun hafnarinnar. Verkið fór fram í apríl og voru fjarlægðir tæplega 62.000 m3 af efni úr höfninni.
    Verkið var boðið út í mars 2001 og af fimm aðilum sem gerðu tilboð varð Björgun ehf. lægst. Dæluskip Björgunar, Perlan, lauk útboðsverkinu í júlí. Eftir dýptarmælingu í höfninni var ákveðið að dýpka þar annað svæði og var það gert í ágúst. Heildarefnismagn fór þá upp í um 75.000 m3. Var það að mestu fínn sandur sem fjarlægður var.
    Í hafnaáætlun var heimild til að fara í mun meiri dýpkun sem fól m.a. í sér klapparsprengingar að væntanlegri loðnubryggju. Fjárveitingu ríkisins var hins vegar dreift á fjögur ár og kusu heimamenn að fara hægar í sakirnar og miða framkvæmd ársins við þá fjárveitingu sem var til ráðstöfunar.
    Framkvæmdakostnaður: 29,0 millj. kr.

Grindavík.
    Þar stendur yfir bygging brimvarnargarða vestan og austan við innsiglingarrennuna. Heildarefnismagn í garðana er um 167.000 m3. Verkið var boðið út í mars 2001 og samið við lægstbjóðanda, Suðurverk hf., í byrjun maí. Samningsupphæð var 146,7 millj. kr. Verklok eru áætluð í lok október 2002. Samkvæmt útboðsgögnum átti einungis að vinna við Vesturgarð á árinu 2001.
    Vegna grjótnáms í Eldvarpahrauni vestan Grindavíkur, þar sem efnis var aflað í garðana, voru gerðar jarðfræðirannsóknir með borunum á námusvæðinu og grjótnámið fór einnig í umhverfismat.
    Framkvæmdir við flotbryggju og rif Þverbryggju við Svíragarð voru teknar til uppgjörs. Einnig fór fram fullnaðaruppgjör vegna dýpkunar sem gerð var innan hafnar árið 1999.
    Framkvæmdakostnaður: 100,4 millj. kr.

Sandgerði.
    Boðin var út dýpkun innan hafnar og samið við lægstbjóðanda, Hagtak hf. Framkvæmdir hófust í lok nóvember og lauk ekki á árinu.
    Lokið var hönnun á 50 m stálþilsbryggju sem byggja á við enda Norðurgarðs en útboði frestað þar til á næsta ári.
    Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir framkvæmdum við styrkingu og endurröðun grjótvarnar á Suðurgarði. Heimamenn ákváðu að fresta því verkefni. Samþykkt var að lána hluta fjárveitingarinnar til Vopnafjarðar.
    Framkvæmdakostnaður: 18,0 millj. kr.

Hafnasamlag Suðurnesja.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Hafnarfjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. Sjá kafla hér á eftir um framkvæmdir sem voru ekki ríkisstyrktar.

Garðabær.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Kópavogur.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Reykjavík.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. Sjá kafla hér á eftir um hafnarframkvæmdir sem voru ekki ríkisstyrktar.

HAFNARFRAMKVÆMDIR SEM VORU EKKI RÍKISSTYRKTAR

    Í höfnum landsins var unnið að ýmsum framkvæmdum sem voru ekki ríkisstyrktar. Eftirfarandi hafnir hafa komið upplýsingum um framkvæmdir á þeirra vegum á framfæri við Siglingastofnun Íslands.

Grundartangi.
    Unnið var að athugun á möguleikum til stækkunar á höfninni og lítils háttar viðhaldi hafnarmannvirkja.
    Framkvæmdakostnaður: 0,5 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Frágangur og uppgjör vegna d/b Hamars, 15 millj. kr. Fyllingar og aðrar framkvæmdir á Hvaleyrarbakka 19 millj. kr. Dýpkun innri hafnar, sem Sæþór ehf. gerði, 8 millj. kr.

Reykjavík.
    Í fjárhags- og framkvæmdaáætlun Reykjavíkurhafnar fyrir árin 2001 og 2002 er gert ráð fyrir að ráðstöfunarfé hafnarsjóðs verði að meginhluta varið til uppbyggingar hafnarmannvirkja og lands í Sundahöfn vegna áætlanasiglinga. Helstu framkvæmdir á vegum hafnarinnar undanfarin tvö ár hafa falist í þessu og lýkur þeim flestum á árinu 2002.
    Unnið var að lengingu Kleppsbakka í Vatnagörðum fyrir farmstöð Eimskips. Lokið var samningsverki um byggingu hafnarbakka og hann tekinn í notkun í árslok 2001, en ýmsum frágangi, svo sem lagnakerfum og yfirborði bakka, mun ljúka vorið 2002. Samhliða bakkagerð var unnið að landgerð og fergingu lands sunnan bakkans, en þar hefur Eimskip verið úthlutað 5 hektara viðbótarlandi.
    Unnið var að lengingu Vogabakka til norðurs fyrir farmstöð Samskipa í Kleppsvík. Lokið var samningsverki um byggingu hafnarbakka og hann tekinn í notkun í árslok 2001, en ýmsum frágangi, svo sem lagnakerfum og yfirborði bakka, lýkur síðan vorið 2002. Samhliða lengingu bakka var unnið að landgerð og fergingu lands á baksvæði bakka, en þar hefur Samskipum verið úthlutað 2 hektara viðbótarlandi.
    Hafnar voru framkvæmdir við dýpkun nýrrar innsiglingar að Kleppsvík og í árslok 2001 var þessi nýja siglingaleið tekin í notkun og verður unnið fram til vors 2003 að frekari dýpkun og frágangi aðsiglingar. Allt efni sem upp kemur við dýpkun er nýtt til landgerðar á nálægum svæðum.
    Aðrar helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurhafnar á árinu voru ýmis verkefni við þróun hafnarlands og landgerð, bæði í Gömlu höfninni og í Sundahöfn. Húseign Slysavarnafélagsins Landsbjargar við Grandagarð var keypt og fenginn var nýr dráttarbátur í stað tveggja eldri báta sem seldir voru.
    Framkvæmdakostnaður: 456,9 millj. kr.

FERJUBRYGGJUR

    Ekki voru neinar framkvæmdir við ferjubryggjur árið 2001, en lokið var uppgjöri vegna framkvæmda við Mjóafjarðarbryggju árið 2000.

SJÓVARNARGARÐAR

     Ólafsvík: Sameiginlegt útboð Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar Íslands á sjóvörn meðfram Ólafsbraut og vestan við Ytra-Klif, þar sem félagsheimili staðarins stendur, fór fram í desember. Þessi framkvæmd er á sjóvarnaáætlun.
    Verkið var ekki hafið um áramót. Til þess voru ætlaðar 1,8 millj. kr. á fjárlögum. Það mun verða framkvæmt undir eftirliti Vegagerðarinnar.
     Grundarfjörður. Í samræmi við sjóvarnaáætlun var þar gert ráð fyrir sjóvörn á tveimur stöðum árið 2001, við Sæból 16 og Framnes. Hafnarstjórn Eyrarsveitar sótti um til hafnaráðs heimild til að breyta röð framkvæmda og láta gera sjóvörn við Skallabúðir og var veitt leyfi fyrir því. Samið var við Ísar ehf. án útboðs um sömu einingaverð og fyrirtækið bauð í grjótgarðinn í tengslum við lengingu Stórubryggju.
    Framkvæmdir hófust fyrir áramót 2001/2002 og var lokið við Sæból 16 en verið var að vinna við Framnes um áramótin. Lítils háttar kostnaður vegna undirbúnings féll á verkið fyrir áramót en verktakareikningar bárust allir á árinu 2002.
    Verkinu var ekki lokið um áramót.
     Patreksfjörður: Þar var haldið áfram með sjóvörnina fyrir utan Oddann og fullbyggður um 45 m langur varnargarður og lagað á um 150 m bili. Alls fóru í garðinn um 3.285 m3 af grjóti og um 210 m3 af kjarna og grafin um 140 m löng rás fyrir fæti.
    Norðurtak ehf. frá Sauðárkróki hafði unnið síðasta áfanga sjóvarnarinnar og þar sem fyrirtækið var að vinna að vegagerð á Kleifaheiði var haft samband við það og óskað tilboðs í sjóvörnina. Norðurtak ehf. bauð 3.804.000 kr. en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir 6.000.000 kr. Verksamningur var gerður á grundvelli tilboðsins og um leið bókað að unnið yrði fyrir a.m.k. 6,2 millj. kr. enda var tilboðsverð óvanalega hagstætt, 64% af kostnaðaráætlun sem m.a. skýrist af því að verktaki gat boðið grjótið á mjög hagstæðu verði þar eð það féll til við vegagerðina.
    Verkið hófst í mars og var lokið í endaðan apríl.
     Ísafjarðarbær: Á Ísafirði var sjóvarnargarður gerður við Sundstræti milli Norðurtanga og Mávagarðs. Grafið var fyrir fæti 232 m og endurraðað um 1.650 m3. Úr grjótnámu á Dagverðardal komu um 7.237 m3.
    Á Flateyri var sjóvarnargarður gerður við Brimnesveg að íþróttahúsi. Lagður var um 400 m langur garður, um 100 m lengri en áætlað var. Endurraðað var 1.470 m3 úr garði sem fyrir var, 2.045 m3 komu af lager á Flateyri og stórgrýti úr námu á Dagverðardal var 532 m3 .
    Í Hnífsdal var gerður sjóvarnargarður frá Bakka og inn fyrir byggðina, um 240 m í stað 170 m sem gert hafði verið ráð fyrir. Grafið var fyrir fæti um 70 m og endurraðað um 550 m3 en úr grjótnámu komu um 4.852 m3 .
    Framkvæmdin var boðin út og tilboð opnuð 30. júlí 2001. Samið var við lægstbjóðanda, Norðurtak ehf. á Sauðárkróki, sem bauð 18.902.400 kr. er nam 76,6% af kostnaðaráætlun hönnuða. Verkið hófst 17. september og lauk í desember 2001. Byrjað var á Flateyri, svo tekið til á Ísafirði og að síðustu í Hnífsdal. Aukaverk voru fá og smá en magnaukning talsverð.
     Árneshreppur: Byggð var sjóvörn á Djúpavík á um 120 m kafla meðfram sjávarbakka við plan hjá olíutönkum. Framkvæmdin var unnin af Ásbirni Þorgilssyni hótelhaldara á Djúpavík.
     Hólmavíkurhreppur: Í janúar lauk Fylling ehf. við að setja sjóvörn á 60 m kafla við Kópnesbraut. Sjóvarnargarður er þá kominn meðfram ströndinni frá Hlein norður fyrir hús nr. 21 við Kópnesbraut. Rúmlega 400 m3 af grjóti fóru í þennan síðasta áfanga sjóvarnarinnar. Grjótið var tekið úr skriðu ofan við flugvöllinn.
     Blönduós: Í ársbyrjun var samið við Norðurtak ehf. um gerð sjóvarnargarðs norðan við ós Blöndu framan við skolphreinsistöð sem þar er risin. Verkinu lauk í mars. Byggður var 211 m langur garður sem nær frá ósnum og um 70 m norður fyrir hreinsistöðina. Vantar þá um 120 m kafla til að tengja saman sjóvörnina neðan við byggðina norðan Blöndu. Grjót í sjóvörnina var sótt í námu við Hólabak, alls 3.850 m3.
     Dalvík: Lokið var við sjóvörn frá Brimnesá neðan Sæplasts og Blika að hafnargarði sem hafði verið unnið að mestu árið 2000.
    Verktaki var Jarðverk ehf. á Dalvík. Magn var 600 m3 og kostnaður 1.038.200 kr. Afgangur varð af fjárveitingu og var hann notaður í sjóvörn neðan við býlið Árhól en þar hafði gömul sjóvörn raskast verulega. Grjótmagn var 750 m3 og endurraðað 400 m3. Kostnaður varð 2.142.494 kr. Þar af var keypt grjót í námu fyrir 650.000 kr.
     Árskógssandur: Gerður var 160 m langur sjóvarnargarður norðan við bryggju. Í hann fór um 2.850 m3 af grjóti og kjarna. Annar sjóvarnargarður, um 90 m langur, var gerður í framhaldi af eldri garði við bæinn Brimnes. Í hann fóru um 2.100 m3 af grjóti og kjarna. Efnið var sótt í námu í landi Hellu í um það bil 3,5 km fjarlægð frá aðalhafnargarði.
     Grýtubakkahreppur: Þar var unnið við sjóvörn sunnan Gömlubryggju sem gerð var í framhaldi af fyrri áföngum. Jarðverk ehf. á Dalvík annaðist verkið sem unnið var í framhaldi af smábátagarðinum á Grenivík. Við upphaf verksins var unnið að losun á grjóti úr Bárðartjarnarnámu en verki svo frestað til hausts, en þá var tekið til aftur og lauk verkinu í febrúar 2002.
    Í verkið fóru um 2.720 m3 af grjóti og 1.100 m3 af kjarna. Leggja þurfti veg í fjöru og einnig var sett niður ræsi í læk. Heildarlengd á garðinum varð um 190 m.
     Fjarðabyggð: Gerð var sjóvörn við Neseyri neðan við verkstæðishús sem þar standa. Verkið fór fram í október. Samið var við Haka ehf. um að vinna það í tímavinnu.
     Ölfushreppur: Malarkambur við Jarðefnavinnsluna var styrktur með því að byggt var ofan á garðinn sem fyrir var á um 115 m kafla og á um 200 m kafla við Sporið. Einnig var gerður um 160 m varnargarður við fiskeldi sunnan Þorlákshafnar og um 820 m langur flóðvarnagarður frá vegi við Hafnarberg að Sporinu.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð 3. apríl 2001. Samið var við lægstbjóðanda, Suðurverk hf., á grundvelli tilboðs sem hljóðaði upp á 18.676.500 kr. og nam 75,1% kostnaðaráætlunar. Suðurverk hf. hóf störf í apríllok og lauk verkinu 16. ágúst. Tekin var ákvörðun um að breyta legu flóðvarnagarðs og hliðfæra hann u.þ.b. 15 m til norðurs sem leiddi af sér talsverðar magnaukningar. Efnið var tekið úr námu í landi Ölfushrepps um 1 km frá syðri enda flóðvarnargarðs og eru helstu magntölur þessar: Grjót fl. I 2.570 m3, fl. II 4.000 m3 , fl. III 3.810 m3, fl IV (kjarni) 3.500 m3. Burðarhæft efni 8.500 m3, mold og sáning 3.800 m3.
     Gerðahreppur/Sandgerði: Fjárveiting var til gerðar sjóvarnar frá Garðskaga að bæjarmörkum við Sandgerði og á u.þ.b. 120 m kafla Sandgerðismegin við bæjarmörkin í átt að Lambarifi. Lítils háttar var unnið að hönnun og undirbúningi verksins, en þar sem ekki var lokið við greiðslu á heimahluta Gerðahrepps vegna framkvæmda ársins á undan var framkvæmdum við fyrrgreinda sjóvörn slegið á frest.
     Vatnsleysustrandarhreppur: Í sjóvarnaáætlun var gert ráð fyrir að ráðist yrði í gerð sjóvarnar á milli Brunnastaðahverfis og Skjaldarkots, en sveitarstjórnin fór fram á að framkvæmdaröð yrði breytt þannig að fyrst yrði gerður sjóvarnargarður frá Minni-Vogum í átt að Grænuborg, en vinna átti að þessum kafla árið 2003 samkvæmt sjóvarnaáætlun. Hafnaráð samþykkti þessa breytingu á framkvæmdaröð og í október var boðin út sjóvörn á um 180 m kafla á framangreindu svæði. Í lok nóvember var gerður samningur við lægstbjóðanda, SEES ehf. Verkið stóð enn yfir um áramót.

RANNSÓKNIR SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS Í HAFNAMÁLUM

    Á vegum Siglingastofnunar var unnið að rannsóknum á sviði hafnamála fyrir 32,4 millj. kr. árið 2001. Með rannsóknum er átt við öflun ýmissa grunnupplýsinga, mælingar og athuganir sem stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvörðunum við val á lausnum við mannvirkjagerð.
    Dýptarmælingar voru gerðar á Reykhólum, Ólafsfirði, Vopnafirði og Fáskrúðsfirði og unnið var úr fyrirliggjandi gögnum úr mælingum á Hornafjarðarósi. Inn í landskerfið voru mældir grunnpunktar á Raufarhöfn og Þórshöfn. Unnið var áfram að uppsetningu sjávarfallalíkans með þéttu neti fyrir Suðvesturland. Í samvinnu við Landmælingar Íslands var unnið að greinargerð um kvörðun sjávarfallamæla í höfnum og tengingu þeirra við landskerfið.
    Byggt var líkan af höfninni í Neskaupstað. Líkanið var notað til að kanna hugmyndir um stækkun hafnarinnar, hvernig hægt væri að auka rými við togarabryggju, en viðhalda jafnframt kyrrð við kanta. Niðurstaða tilraunanna var að færa hafnargarð við togarabryggju út þannig að dýpka megi 100 m breiða rennu upp með bryggjunni. Þá voru lögð drög að skjólgarði sem kæmi austan við loðnubryggjuna og lægi til suðurs. Hugmyndin er að afla reynslu af kyrrð í höfninni án skjólgarðs áður en endanleg ákvörðun verður tekin um byggingu hans. Jafnframt var áfram unnið að tilraunum með hreyfistöðugleika skipa.
    Unnið var áfram að öldufarsrannsóknum fyrir fiskihöfnina í Neskaupstað. Enn fremur voru gerðir öldufarsreikningar fyrir Kópavog. Á síðari hluta ársins var unnið að öldufarsrannsóknum fyrir Þorlákshöfn. Í tengslum við þingsályktunartillögu um rannsóknir á ferjuaðstöðu við Bakkafjöru, sem samþykkt var í desember 2000, var hafinn undirbúningur að rannsóknum við Suðurströndina. Öldufarsreikningar voru undirbúnir með vinnslu stafrænna gagna úr sjókortum, en þessi vinna nýtist einnig við öldufarsreikninga fyrir Þorlákshöfn og við áhættumat á siglingum stórra skipa við Suðvesturland.
    Gerðar voru botnrannsóknir á Akureyri.
    Á árinu var birt greinin „PIANC Working Group No. 40: Guidelines for the Design and Construction of Berm Breakwaters“ á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var af The Institution of Civil Engineers í London. Greinin er byggð á drögum að skýrslu nefndar um hönnun og byggingu bermugarða.
    Á alþjóðlegum vinnufundi í Japan, International Workshop on Advanced Design of Maritime Structures in the 21 st Century, var kynnt grein um bermugarða, „Stable Berm Breakwaters“, sem unnin var í samvinnu við jarðfræðistofuna Stapa og rannsóknastofnunina SINTEF í Þrándheimi.
    Á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var af The Royal Institute of Naval Architects var lögð fram greinin „Safe Operation of Fishing Vessels Based upon Continuous Measurements of Environmental Conditions and Vessel Stability“, sem unnin var í samvinnu við norsku sjóslysanefndina og háskólann í Þrándheimi.

STARFSEMI SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS ÁRIÐ 2001

    Starfsemi Siglingastofnunar Íslands skiptist í þrjá höfuðþætti: Hafnamál, skipamál og vita- og leiðsögumál. Í þessari skýrslu er fjallað ítarlega um verkefni Siglingastofnunar á sviði hafnamála en hér á eftir er lítillega drepið á nokkra aðra þætti í starfsemi stofnunarinnar árið 2001.
    Á hverju ári gefur Siglingastofnun út skrá yfir þilfarsskip og opna báta miðað við 1. janúar. Útgáfan er samkvæmt lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985. Um síðustu áramót voru 2.465 skip á aðalskipaskrá Siglingastofnunar. Þilfarsskipin voru 1.136 en opnir bátar 1.329. Heildarfjölgun í flotanum var 37 skip og mælt í brúttótonnum stækkaði flotinn um rúm 10 þúsund tonn.
    Skoðunarsvið Siglingastofnunar er með sjö umdæmisskrifstofur um land allt sem annast eftirlit með skipum samkvæmt lögum nr. 35/1993. Aðalskoðun skips skiptist í árlega búnaðar- og vélskoðun, bolskoðun, sem gerð er annað hvert ár, og öxulskoðun á fjögurra ára fresti. Aðrar skoðanir eru t.d. skyndiskoðanir, skoðanir á fjarskiptatækjum og brunavarnarkerfum, hallaprófanir, rafmagnsskoðanir, skoðanir vegna nýsmíði o.fl.
    Tilgangur Parísarsamkomulagsins um hafnarríkiseftirlit með skipum, sem Ísland er aðili að, er að stemma stigu við siglingum skipa sem ekki uppfylla alþjóðakröfur um aðbúnað, öryggi, hollustuhætti og atvinnuréttindi áhafna kaupskipa og mengun frá skipum. Í samræmi við ákvæði samkomulagsins eru ár hvert skoðuð a.m.k. 25% þeirra erlendu kaupskipa sem hingað koma. Árið 2001 voru skoðuð samtals 120 skip frá 25 þjóðlöndum. Fimm skip voru sett í farbann.
    Af öðrum verkefnum á sviði skipamála má nefna útgáfu atvinnuréttindaskírteina og ýmsa þjónustu við mönnunar- og undanþágunefndir. Þá er alþjóðasamstarf á sviði siglingamála mikið og tekur Siglingastofnun m.a. þátt í starfi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, IMO.
    Á árinu 2001 var samþykkt á Alþingi fyrsta langtímaáætlunin í öryggismálum sjófarenda er gildir fyrir árin 2001–2003. Stefnt er að því að treysta öryggi íslenskra skipa og áhafna þeirra sem og farþega á íslenskum skipum og skipum sem sigla í íslenskri efnahagslögsögu. Siglingastofnun var falið að gera framkvæmdaáætlun fyrir hvert ár sem miði að því að hrinda í framkvæmd tillögum langtímaáætlunarinnar.
    Til að reka vita- og leiðsögukerfi við Ísland fær Siglingastofnun til ráðstöfunar vitagjald sem öll skip greiða sem sigla við Íslandsstrendur og hafa hér viðkomu. Fjárhæð gjaldsins tekur mið af brúttótonnatölu skipsins.
    Starfsmenn Siglingastofnunar sinna árlegu eftirliti og viðhaldi á búnaði vita og bauja og á vitabyggingum. Að jafnaði er reynt að sinna viðhaldi á fimmtu hverri vitabyggingu árlega en alls rekur stofnunin 104 ljósvita meðfram strönd landsins. Auk hefðbundins eftirlits og viðgerða á vitakerfi landsmanna voru teknar ljósmyndir af vitunum, m.a. fyrir væntanlegt rit um sögu vitamála á Íslandi.
    Siglingastofnun sendir út leiðréttingarmerki (DGPS) við staðsetningarkerfið GPS frá sex radíóvitum umhverfis landið. Leiðréttingarkerfið gerir notendum við Ísland kleift að staðsetja sig með 1–10 metra nákvæmni. Til að auka útbreiðslu og minnka hættu á truflunum var sendingartíðni merkjanna breytt í allri Evrópu í september 2001.
    Upplýsingakerfi Siglingastofnunar um veður og sjólag gefur sjófarendum kost á nýjum upplýsingum um veður og sjólag á klukkustundar fresti. Upplýsingarnar er hægt að nálgast á vef stofnunarinnar og í síma.
    Fréttabréf Siglingastofnunar, Til sjávar, og vefur hennar, www.sigling.is, mynda kjarnann í upplýsingastarfsemi hennar. Fimm tölublöð komu út af Til sjávar árið 2001. Áskrift að fréttabréfinu er ókeypis og er því dreift til allra skráðra skipa og báta, útgerða, hafna, sveitarfélaga, alþingismanna, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Í blaðinu er að finna greinar og fréttir um það helsta sem er að gerast á vettvangi stofnunarinnar.
    Á www.sigling.is er einnig að finna allar helstu upplýsingar um starfsemina, lög og reglur, útboð, fréttabréf o.fl. að ógleymdu upplýsingakerfinu um veður og sjólag.

Tölur úr rekstri Siglingastofnunar árið 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).


Tekjur Almennir
viðskiptavinir
Af
fjárlögum
Tekjur
samtals
Ýmsar tekjur, bókhaldsþjónusta, þóknun, vaxtatekjur 29 5 34
Vitar og leiðsögukerfi, rekstur og stofnkostnaður 21 123 144
Rannsóknir 0 43 43
Hafnasvið, framkvæmdir og áætlanir 81 20 101
Skipaverkefni 6 50 56
Skoðunarsvið 46 101 147
Hafnarríkiseftirlit 0 11 11
Tækjaleiga og vörusala 12 0 12
Tekjur samtals      195 353 548

Gjöld Gjöld
Launakostnaður 314
Önnur gjöld 161
Stofnkostnaður 21
Gjöld samtals      496
Tekjuafgangur 52
Samtals      548

Tafla I. Hafnarframkvæmdir 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).

Höfn      Styrk hlutfall Heildarkostnaður Ríkishluti
I. Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir
Snæfellsbær Arnarstapi: Lenging grjótgarðs 75% 7,4
Ólafsvík: Lenging á flotbryggjum 60% 7,6
Rif: Slitlag 60% 3,5
Rif: Skjólgarður 75% 3,6
Rif: Dýpkun 75% 6,9 29,0 20,1
Grundarfjörður Lenging Stórubryggju, stálþil 60% 80,3
Lenging Stórubryggju, grjótvörn 75% 43,6
Flotbryggja 60% 0,1 124,0 80,9
Vesturbyggð Patreksfjörður, tjón 100% 6,3
Tjónastyrkur 100% -6,3
Stykkishólmur Stykkisbryggja: Styrking landgangs, lýsing 60% 0,3 0,3 0,2
Tálknafjörður Upptökubraut 60% 6,0 6,0 3,6
Ísafjörður Ísafjörður: Ásgeirsgata, uppgjör 60% 20,8
Ísafjörður: Dýpkun við Olíumúla 75% 0,9
Flateyri: Stálþil 60% 0,4
Flateyri: Uppsátur fyrir smábáta 60% 2,2
Þingeyri: Uppsátur fyrir smábáta 60% 2,6
Suðureyri: Grjótvörn við Brjót 75% 0,1
Tjón 100% 5,3
Tjónastyrkur 100% -5,3 27,0 16,4
Súðavík Viðlegubryggja við Suðurgarð 75% 4,9 4,9 3,7
Drangsnes Drangsnesbryggja, veggur, þekja 60% 0,5 0,5 0,3
Blönduóshöfn Dýpkun hafnar 75% 0,9
Tjón 100% 5,5
Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði 100% -5,5 0,9 0,7
Skagafjörður Sauðárkrókur: Stálþil 60% 48,0
Hofsós: Lenging þvergarðs 75% 4,8 52,8 32,4
Siglufjörður Óskarsbryggja 60% 56,9
Togarabryggja endurbætt 60% 7,0
Dýpkun 75% 11,9 75,8 47,3
Hafnasamlag Dalvík: Norðurgarður, stálþil 60% 9,3
Eyjafjarðar Ólafsfjörður: Norðurgarður, styrking 75% 0,1
Árskógssandur: Skjólgarður, Hríseyjarferja 75% 6,8 16,2 10,8
Hafnasamlag Akureyri: Fiskihöfn, stálþil 60% 29,5
Norðurlands Akureyri: Fiskihöfn, dýpkun 75% 27,3
Akureyri: Lóðsbátabryggja 60% 3,2
Akureyri: Dýpkun við Krossanes, uppgjör 75% 11,8
Hjalteyri: Dýpkun 75% 0,3
Grenivík: Flotbryggja 60% 3,1 75,2 51,0
Húsavíkurhöfn Brimvarnargarður 75% 113,1 113,1 84,8
Kópasker Endurbygging steyptrar þekju 60% 2,8 2,8 1,7
Raufarhöfn Leiðarmerki 75% 0,6
Dýpkun 75% 4,7
Hafskipabryggja: Lagnir og þekja 60% 11,8 17,1 11,1
Þórshöfn Hafskipabryggja: Stálþil, lenging 60% 10,8
Dýpkun 75% 3,9
Tjón 100% 0,5
Tjónastyrkur 100% -0,5 14,7 9,4
Vopnafjörður Stálþil 60% 20,3
Dýpkun innsiglingar 75% 62,7
Dýpkun í höfn 75% 3,2 86,2 61,6
Borgarfjörður eystri Dýpkun sunnan gömlu bryggju 75% 6,6
Tjón: Skarfaskersgarður 100% 3,1
Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði 100% -3,1 6,6 5,0
Seyðisfjörður Ferjulægi 60% 6,4
Mjölhúsbryggja. Frágangur, lagnir, lýsing 60% 1,1
Dýpkun rennu við Fjarðarhöfn 75% 11,1 18,6 12,8
Fjarðabyggð Eskifjörður: Stálþil, uppgjör og frágangur þekju 60% 20,9
Eskifjörður: Dýpkun 75% 2,8
Neskaupstaður: Skjólgarður 75% 6,5
Neskaupstaður: Dýpkun við færslu flotbryggju 75% 12,7
Neskaupstaður: Stálþil 60% 39,0 81,9 52,4
Fáskrúðsfjörður Stækkun loðnulöndunarbryggju 60% 1,6 1,6 1,0
Breiðdalsvík Lagnir, lýsing og þekja 60% 0,2 0,2 0,1
Djúpivogur Gleðivík: Dýpkun 75% 39,5
Gleðivík: Stálþil 60% 80,4
Innsiglingarmerki 75% 0,1 120,0 77,9
Hornafjörður Smábátahöfn 60% 10,0
Faxeyrarhöfn, umhverfismat 75% 0,1
Viðhaldsdýpkun hafnar 75% 9,7
Þinganesgarður 75% 40,6
Leiðigarðar 75% 1,0 61,4 44,6
Vestmannaeyjar Friðarhafnarkantur: Endurbyggt stálþil 60% 1,2
Friðarhöfn: Stálþil, ískantur, suðurkantur 60% 0,3
Nausthamarsbryggja; endurbygging 60% 63,2
Upplýsingakerfi 75% 1,1
Dýpkun hafnar við Nausthamar og Friðarhafnarkant 75% 4,4
Smábátaaðstaða, landstöplar, o.fl. 75% 9,1 79,3 48,4
Þorlákshöfn Dýpkun hafnarsvæðis 75% 29,0 29,0 21,8
Grindavík Brimvarnargarðar 75% 54,4
Flotbryggja og rif á þverbryggju v. Svíragarð, uppgjör 60% 21,0
Dýpkun innan hafnar, uppgjör 75% 25,0 100,4 72,2
Sandgerði Norðurgarður, lenging stálþils 60% 0,7
Dýpkun 75% 17,3 18,0 13,4
Af óskiptu fé Blönduós, björgunarstigar 60% 1,0 1,0 0,6
Alls ríkisstyrktar framkvæmdir 1.164,5 1.164,5 786,2
60% 583,1
75% 581,4
Samtals 1.164,5


Tafla II. Framkvæmdir við sjóvarnir 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).

Sveitarfélag Framkvæmdakostnaður Hluti ríkisins
Snæfellsbær 0,1 0,1
Eyrarsveit 0,2 0,2
Vesturbyggð 14,5 12,7
Ísafjarðarbær 28,0 24,5
Hólmavíkurhreppur 0,8 0,7
Árneshreppur 0,9 0,8
Blönduós 9,2 8,1
Dalvík 3,3 2,9
Árskógssandur 6,7 5,9
Grenivík 4,4 3,9
Fjarðabyggð 1,2 1,1
Ölfushreppur 18,9 16,5
Garður 0,3 0,3
Vogar 1,8 1,6
Samtals 90,3 79,3

Tafla III. Rannsóknaverkefni 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).

Almennar rannsóknir
Rannsóknir óskipt 1,8
Fræðigreinar 0,3
Erindi frá samgönguráðuneytinu 0,7
Brimvarnargarðar 0,6
Húsavík. Verklok við líkanatilraunir 0,3
Neskaupstaður. Líkanatilraunir 6,9
Undirstöðurannsóknir á sjólagi 0,7
Alda á ferjuleið 0,2
Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur 0,8
Sjávarföll, sjávarflóð 0,8
Hreyfistöðugleiki skipa 0,7
Sameiginlegur kostnaður 3,4 17,2
Rannsóknaverkefni í höfnum
Rannsóknir í höfnum óskipt 0,5
Snæfellsbær 0,2
Reykhólar 0,4
Hofsós 0,1
Hafnasamlag Eyjafjarðar 0,5
Hafnasamlag Norðurlands 1,7
Raufarhöfn 0,1
Þórshöfn 0,1
Vopnafjörður 1,2
Seyðisfjörður 0,1
Fjarðabyggð 1,5
Fáskrúðsfjörður 0,3
Höfn í Hornafirði 0,8
Kópavogur 1,9
Þorlákshöfn 5,8 15,2
Samtals 32,4

Tafla IV. Staða ríkissjóðs vegna hafnargerðar 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).

Staða ríkissjóðs í árslok 2000 Ríkishluti framkvæmda Fjárveiting Staða ríkissjóðs í árslok 2001
Höfn Vantar Ónotað 2001 2001 Vantar Ónotað
Akranes 0,1 0,1
Borgarnes 0,1 0,1
Snæfellsbær1 2,9 20,1 42,3 25,1
Grundarfjörður 13,7 80,9 83,1 15,9
Stykkishólmur 9,9 0,2 8,8 1,3
Reykhólahöfn 0,1 0,1
Búðardalur 0,9 0,9
Vesturbyggð 0,4 1,6 2,0
Tálknafjörður 2,3 3,6 1,5 0,2
Bolungarvík 5,9 0,8 6,7
Ísafjarðarbær 29,3 16,4 8,6 21,5
Súðavík 0,6 3,7 3,6 0,5
Drangsnes 0,3 0,3 4,5 3,9
Hólmavík 6,8 6,8
Húnaþing vestra 13,1 13,1
Blönduós 1,6 0,7 0,0 0,9
Skagaströnd 1,0 2,2 1,2
Skagafjörður 2,2 32,4 39,2 9,0
Siglufjörður 3,8 47,3 49,5 6,0
Hafnasamlag Eyjafjarðar 6,9 10,8 18,4 0,7
Grímsey 1,7 1,7
Hafnasamlag Norðurlands 8,3 51,0 61,1 18,4
Húsavík 40,7 84,8 225,2 99,7
Kópasker 1,2 1,7 2,4 1,9
Raufarhöfn 5,0 11,1 4,6 1,5
Þórshöfn 8,7 9,4 1,3 0,6
Vopnafjörður2 3,5 61,6 99,3 41,2
Borgarfjörður eystri 5,0 5,6 0,6
Seyðisfjörður 3,5 12,8 37,9 28,6
Fjarðabyggð 9,8 52,4 89,9 27,7
Fáskrúðsfjörður 0,7 1,0 1,9 0,2
Stöðvarfjörður 2,4 2,4
Breiðdalsvík 5,3 0,1 5,2
Djúpivogur 33,4 77,9 46,8 2,3
Höfn í Hornafirði 33,7 44,6 41,9 31,0
Vestmannaeyjar 34,3 48,4 126,5 43,8
Eyrarbakki 1,0 1,0
Þorlákshöfn 1,5 21,8 19,4 3,9
Grindavík 298,0 72,2 208,0 162,2
Sandgerði 21,7 13,4 86,0 50,9
Hafnasaml. Suðurnesja 16,1 00 9,4 6,7
Hafnarfjörður 9,0 9,0
Óskipt 10,2 0,6 1,2 10,8
Samtals 451,7 199,9 786,2 1341,5 177,4 480,9
1 Snæfellsbær fékk aukafjárveitingu til að flýta framkvæmdum á Arnarstapa 3,9
2 Vopnafjörður fékk aukafjárveitingu til að flýta dýpkun innsiglingar 84,4
88,3
Snæfellsbær og Vopnafjörður fengu aukafjárveitingu vegna frestunar framkvæmda á eftirtöldum stöðum:
1. Bolungarvík 14,0
2. Þórshöfn 54,0
3. Fáskrúðsfirði 18,0
4. Sandgerði 2,3
88,3


Tafla V. Fjárveitingar til hafnarframkvæmda 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).

Almennar hafnir 1.157,2
Lendingarbætur
Búðir á Snæfellsnesi 0,3
Haukabergsvaðall 0,2
Hesteyri 0,2
Lagarfljótsbrú 1,0
Breiðdalsvík 0,7
Reykjafjörður nyrðri 0,2
Gjögur 0,2 2,8
Ferjubryggjur 5,7
Samtals fjárveitingar 1.165,7

Tafla VI. Fjárveitingar til sjóvarna 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).

Sjóvarnargarðar (fjárlagaliður 10-333)
Snæfellsbær 1,0
Eyrarsveit 5,1
Vesturbyggð 6,0
Ísafjarðarbær 23,0
Árneshreppur 0,9
Blönduós 8,8
Dalvíkurbyggð 4,4
Hríseyjarhreppur 0,1
Árskógssandur 0,7
Grýtubakkahreppur 5,7
Sveitarfélagið Ölfus 10,2
Sandgerðisbær 0,6
Gerðahreppur 2,2
Reykjanesbær 0,1
Vatnsleysustrandarhreppur 5,0
Leira 2,8

Samtals
76,6


Tafla VII. Úthlutanir Hafnabótasjóðs 2001 (fjárhæðir í millj. kr.).

Styrkir
a. Styrkir til nýframkvæmda
Snæfellsbær vegna Arnarstapa 0,9
Grundarfjörður 19,3
Súðavík 0,7
Hafnasamlag Skagafjarðar vegna Hofsóss 0,7
Hafnasamlag Eyjafjarðar 0,4
Húsavík 14,7
Kópasker 0,4
Raufarhöfn 3,5
Þórshöfn 0,5
Vopnafjörður 5,9
Borgarfjörður eystri 1,0
Seyðisfjörður 1,4
Djúpivogur 23,1 72,5
b. Tjónastyrkir
Vesturbyggð 6,3
Hafnasamlag Ísafjarðar 5,3
Blönduós 5,5
Borgarfjörður eystri 3,1
Þórshöfn 0,5
Grundarfjörður, leiðrétting við 1999 -0,2 20,5
Styrkir alls 93,0
Lán
a. Lán vegna heimahluta í nýframkvæmdum 0,0
b. Bráðabirgðalán út á væntanlega fjárveitingu 0,0
Lán alls 0,0
Samtals lán og styrkir 93,0