Ferill 700. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1368 — 700. mál.
Svar
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um þátttöku Landsvirkjunar í menningartengdu starfi.
1. Hversu miklum fjármunum hefur Landsvirkjun varið til menningarstarfsemi og menningartengdra verkefna, í eigin nafni og í samvinnu við aðra, á árabilinu 1998–2002, sundurliðað eftir árum og verkefnum?
Landsvirkjun hefur á undanförnum missirum látið til sín taka með markvissum hætti í ýmsum verkefnum sem snerta samfélagsmálefni. Þetta er lið ur í breyttri stefnu fyrirtækisins sem snertir vinnubrögð á flestum sviðum. Það er niðurstaða mats á starfsemi Landsvirkjunar að kjarninn í samfélagsábyrgð fyrirtækisins tengist þeirri staðreynd að fyrirtækið er frumkvöðull í uppbyggingu inni á hálendinu og hefur opnað það fyrir ferðamönnum með samgöngubótum. Þá er starfsemi fyrirtækisins dreifð um land allt og mikilvægur hlekkur í smáum samfélögum víða og myndar þar ákveðna kjölfestu. Þá hefur hörð umræða um virkjanir, stóriðju og umhverfismál undanfarið undirstrikað mikilvægi þess að fólk geti kynnst áformum og starfsemi Landsvirkjunar af eigin raun. Fyrirtækið hefur af þeim sökum lagt áherslu á aðgengi að mannvirkjum og starfsemi fyrirtækisins ásamt fræðslu og kynningu á orkumálum og umhverfismálum þeim tengdum. Samstarf við aðra á sviði menningarmála er snar þáttur í öllu þessu starfi.
Með fyrrgreint að leiðarljósi hefur Landsvirkjun eflt þátttöku sína í menningarverkefnum sem falla að þessum markmiðum. Það er einnig niðurstaða fyrirtækisins að þessu starfi sé best sinnt í samstarfi við aðra. Galdurinn er að finna verkefni þar sem markmiðin falla saman og samstarfsaðilarnir styðja hver annan.
Landsvirkjun hefur varið rúmlega 107 millj. kr. til mennningarstarfsemi og menningartengdra verkefna sem tengjast fræðslu og listum á árunum 1998–2002. Í svari fyrirtækisins til ráðuneytisins kemur fram að á sviðum eins og rannsóknum, umhverfismálum, ferðamennsku, útivist og líknarmálum eru fjölmörg verkefni sem fyrirtækið hefur tengst og gætu fallið undir menningarstarfsemi. Á tímabilinu skiptust verkefnin með eftirfarandi hætti, í þús. kr. á verðlagi hvers árs:
| 1998 | ||
| Landsbókasafn, landsaðgangur að gagnagrunnum | 1.800 | |
| Leifur Eiríksson Publishing, bókagjöf til Vesturheims | 1.050 | |
| Íslenska óperan | 480 | |
| Rannsóknastofnanir atvinnuveganna, rafbílaráðstefna | 300 | |
| Vopnaskak, hátíð á Vopnafirði | 200 | |
| Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | 200 | |
| Myndlistar- og handíðaskóli Íslands, vistvænn og listrænn bíll | 200 | |
| Hvassaleitisskóli, tölvugjöf | 100 | |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljóðfærakaup | 100 | |
| Smærri framlög | 230 | |
| Listir | 100 | |
| Samtals | 4.780 | |
| 1999 | ||
| Reykjavík, menningarborg | 4.000 | |
| Þjóðveldisbær, kirkjubygging | 2.400 | |
| Landsbókasafn, landsaðgangur að gagnagrunnum | 1.800 | |
| Minjasafn Akureyrar | 1.500 | |
| Scandinavian House | 560 | |
| Íslenska óperan | 480 | |
| Landvernd, Vistvernd í verki, þýðing á handbók um vistvænt líferni | 400 | |
| Ferðamálaráð, ráðstefna | 300 | |
| Verkfræðingafélag Íslands, tæknidagur | 200 | |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljóðfærakaup | 100 | |
| Kammersveit Reykjavíkur | 100 | |
| Karlakór Akureyrar | 100 | |
| Laugaskóli, söguritun | 100 | |
| Háskóli Íslands, ráðstefnubæklingur | 100 | |
| Tækniskóli Íslands, átaksverkefni í fræðslu | 100 | |
| Töðugjöld, hátíð Rangæinga | 100 | |
| Listir | 385 | |
| Fræðsla/ráðstefnur | 360 | |
| Samtals: | 13.085 | |
| 2000 | ||
| Háskóli Íslands, staða prófessors í orkuverkfræði | 5.500 | |
| Reykjavík, menningarborg | 4.000 | |
| FÍM | 2.070 | |
| EXPO 2000 | 4.000 | |
| Ferðamálaráð, útgáfa | 2.000 | |
| Landsbókasafn, landsaðgangur að gagnagrunnum | 1.800 | |
| Skátasamband Reykjavíkur, átaksverkefni | 1.600 | |
| Gunnarsstofnun | 1.500 | |
| Landvernd, Vistvernd í verki, þýðing og útgáfa á handbók | 500 | |
| Íslenska óperan | 480 | |
| Sveitarfélagið Hornafjörður, jöklasýning | 500 | |
| Pjetur Stefánsson, kvikmyndagerð um sýningu FÍM | 500 | |
| Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, sýningin Refsingar á Íslandi | 200 | |
| Vélskóli Íslands, kynning á vélstjóranámi | 250 | |
| Minnisvarði um Nínu Sæmundsson | 270 | |
| Háskóli Íslands, Konur til forystu | 200 | |
| Héraðsnefnd Austur-Húnvetninga, kvikmyndagerð | 200 | |
| Fiskistofa, útgáfa bókarinnar Hið sanna ástand heimsins | 100 | |
| Kammersveit Reykjavíkur | 100 | |
| Óperustúdíó Austurlands | 100 | |
| Töðugjöld, hátíð Rangæinga | 100 | |
| Landvernd, ráðstefna um Vatnajökulsþjóðgarð | 100 | |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljóðfærakaup | 100 | |
| Jöklarannsóknafélag Íslands , ráðstefna | 100 | |
| Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, kvikmynd | 100 | |
| Sjónvarpsþáttur um Jóhannes Nordal | 100 | |
| Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar | 100 | |
| Fræðslumál | 485 | |
| Listir | 235 | |
| Samtals | 27.290 | |
| 2001 | ||
| Þjóðminjasafn Íslands | 8.000 | |
| Stofnun Gunnars Gunnarssonar | 6.500 | |
| Háskóli Íslands, staða prófessors í orkuverkfræði | 4.530 | |
| Hugsjón ehf. / RÚV vegna umhverfisþáttarins Spírall | 2.000 | |
| Landsbókasafn, landsaðgangur að gagnagrunnum | 1.800 | |
| Ferðamálaráð, útgáfa | 1.260 | |
| Fjölnir, kvikmyndagerð um urriðann í Þingvallavatni | 1.000 | |
| Sveitarfélagið Hornafjörður, jöklasýning | 1.000 | |
| UMFÍ, göngudagur fjölskyldunnar | 500 | |
| Íslenska óperan | 500 | |
| Reykjavíkurborg, Gullna jafnvægið | 500 | |
| Jarðhitafélag Íslands, ráðstefna | 400 | |
| Ljóstæknifélag Íslands, ráðstefna | 350 | |
| Norræna ráðherranefndin / Fræðslumiðstöð Reykjavíkur Vinnuhópur kennara um uppbyggingu á fræðslu um orkumál |
350 |
|
| Kirkjulistahátíð Hallgrímskirkju | 200 | |
| Háskóli Íslands, Konur til forystu | 200 | |
| Digranesskóli, stærðfræðidagurinn | 180 | |
| Bachsveitin Skálholti | 150 | |
| Skógræktarfélag Reykjavíkur, skógræktarþing | 150 | |
| Félag leiðsögumanna, kynnisferð | 140 | |
| Kammersveit Reykjavíkur | 120 | |
| Heimili og skóli, bráðger börn | 100 | |
| Menntaskólinn á Akureyri, ráðstefna um íslenskt mál | 100 | |
| Félag skógbænda, þing | 100 | |
| Hreindýrasýning á Skriðuklaustri | 100 | |
| Töðugjöld, hátíð Rangæinga | 100 | |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljóðfærakaup | 100 | |
| Listir | 430 | |
| Fræðsla | 165 | |
| Samtals | 31.025 | |
| 2002 | ||
| Þjóðminjasafn Íslands | 10.000 | |
| Háskóli Íslands, staða prófessors í orkuverkfræði | 4.600 | |
| Háskólinn á Akureyri, staða prófessors í jarðhitafræðum | 4.600 | |
| Gunnarsstofnun | 3.000 | |
| Hrafn Gunnlaugsson, kvikmyndagerð um samspil manns og náttúru | 2.500 | |
| Háskólabókasafn, gagnagrunnur | 1.800 | |
| Reykjavíkurborg, vetrarhátíð | 1.500 | |
| Íslenska óperan | 500 | |
| Jarðhitafélag Íslands, ráðstefna | 400 | |
| Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, v. vetrarhátíðar | 125 | |
| Samtals | 29.025 | |
2. Hvaða opinber og hálfopinber fyrirtæki og stofnanir hefur Landsvirkjun styrkt fjárhagslega á árabilinu 1998–2002, sundurliðað eftir árum og verkefnum?
| 1998 | ||
| Landsbókasafn, landsaðgangur að gagnagrunnum | 1.800 | |
| Rannsóknastofnanir atvinnuveganna, rafbílaráðstefna | 300 | |
| Myndlistar- og handíðaskóli Íslands, vistvænn og listrænn bíll | 200 | |
| Hvassaleitisskóli, tölvugjöf | 100 | |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljóðfærakaup | 100 | |
| 1999 | ||
| Reykjavík, menningarborg | 4.000 | |
| Þjóðveldisbær, kirkjubygging | 2.400 | |
| Landsbókasafn, landsaðgangur að gagnagrunnum | 1.800 | |
| Minjasafn Akureyrar | 1.500 | |
| Scandinavian House | 560 | |
| Ferðamálaráð, ráðstefna | 300 | |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljóðfærakaup | 100 | |
| Laugaskóli, söguritun | 100 | |
| Háskóli Íslands, ráðstefnubæklingur | 100 | |
| Tækniskóli Íslands, átaksverkefni í fræðslu | 100 | |
| 2000 | ||
| Háskóli Íslands, staða prófessors í orkuverkfræði | 5.500 | |
| Reykjavík, menningarborg | 4.000 | |
| FÍM | 2.070 | |
| EXPO 2000 | 4.000 | |
| Ferðamálaráð, útgáfa | 2.000 | |
| Landsbókasafn, landsaðgangur að gagnagrunnum | 1.800 | |
| Sveitarfélagið Hornafjörður, jöklasýning | 500 | |
| Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, sýningin Refsingar á Íslandi | 200 | |
| Vélskóli Íslands, kynning á vélstjóranámi | 250 | |
| Háskóli Íslands, Konur til forystu | 200 | |
| Héraðsnefnd Austur-Húnvetninga , kvikmyndagerð | 200 | |