Ferill 624. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1376 — 624. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um áfengis- og vímuefnameðferð.
1. Hve mörg meðferðarpláss eru hér á landi fyrir fólk sem á við áfengis- og vímuefnavanda að stríða í samanburði við önnur Norðurlönd?
Á Íslandi er 351 vistrými á meðferðarstofnunum og 211 á áfangaheimilum. Á vegum Barnaverndarstofu eru rými fyrir vímuefnaneytendur 35 en önnur vistrými sem nýtast meðal annars börnum og unglingum sem haldin eru fíkn eru alls 73.
Fólk sem á við áfengis- og vímuefnavanda að stríða getur nokkuð víða leitað sér hjálpar hér á landi. Þverfagleg meðferð við fíkn á vegum heilbrigðisþjónustunnar er fyrst og fremst hjá SÁÁ og Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Á Landspítala eru vistrými 84. Þar er starfrækt göngudeild áfengissjúkdóma, bráðaafeitrunardeild og göngu- og legudeild að Flókagötu í Reykjavík. SÁÁ rekur göngudeildir í Reykjavík og á Akureyri, afeitrunardeild á Vogi með 60 rúmum og nýja 11 rúma deild fyrir fíkla sem eru 19 ára og yngri. Sú deild ein þjónaði 294 einstaklingum á síðasta ári. Eftirmeðferð SÁÁ er svo rekin að Staðarfelli (36 rými) og í Vík (34 rými). Alls rekur SÁÁ vistrými fyrir 138 einstaklinga. Önnur vistrými fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur eru sem hér segir: Krýsuvík, 30 rými; Hlaðgerðarkot, 25 rými; Götusmiðjan – Ávellir, 20 rými og Byrgið, 54 rými. Áherslur eru nokkuð ólíkar á þessum stofnunum og sérhæfing þeirra nokkur. Sólarhringsvaktir lækna eru aðeins á Landspítala og hjá SÁÁ.
Því er oft haldið fram að innlagnir á meðferðarstofnanir hérlendis séu hlutfallslega mun fleiri en í nágrannalöndum okkar en skortur á tölulegum upplýsingum kemur í veg fyrir að hægt sé að sannreyna réttmæti þeirrar staðhæfingar. Hér á landi eru þó vel þekkt dæmi um að sömu einstaklingar séu lagðir margoft inn á meðferðarstofnanir en slíkt mun vera fremur fátítt annars staðar.
Vakin er athygli á því að fjöldi meðferðarplássa gefur takmarkaða mynd af umfangi þjónustunnar. Mjög sundurleitur hópur leitar til heilbrigðisþjónustunnar eftir meðferð á þessu sviði. Þar geta verið miðaldra einstaklingar með haldgóða menntun og starfsreynslu, í föstu starfi með góð fjölskyldutengsl sem eru eingöngu háðir áfengi, og ungir einstaklingar frá sundruðum heimilum sem hafa hætt snemma í skóla og sprauta sig með margvíslegum vímuefnum. Það gefur auga leið að slíkir einstaklingar þarfnast mismunandi meðferðar og nauðsynlegt er að skipuleggja alla þjónustu með tilliti til þess.
Sum þeirra úrræða sem gagnast best eru ekki á starfssviði heilbrigðisþjónustunnar, svo sem menntun, vinnuþjálfun, félagsleg aðstoð og húsnæði. Nauðsynlegt er að fleiri komi að málum og að samvinna sé góð milli þjónustuþáttanna.
Leitað var upplýsinga um fjölda meðferðarrýma fyrir þá sem glíma við áfengis- og vímuefnavanda annars staðar á Norðurlöndunum en án mikils árangurs. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Meðferðarpláss í nágrannalöndum okkar eru rekin af mörgum opinberum og óopinberum aðilum og litlar upplýsingar eru til um heildarfjölda þeirra. Þá er oft erfitt að greina þá sem lagðir eru inn vegna áfengis- og vímuefnaneyslu frá þeim sem fá meðferð við margvíslegum geðrænum vandamálum, en margar innlagnir eru af blönduðum toga. Einnig ber að geta þess að margir sjúklingar sem glíma við áfengis- og vímuefnaneyslu leggjast inn á aðrar heilbrigðisstofnanir en þær sem ætlaðar eru fyrir þessa sérstöku meðferð. Þetta eru innlagnir vegna alls kyns fylgikvilla ofdrykkju og vímuefnaneyslu, en eins og kunnugt er hafa þessi efni skaðleg áhrif á flest kerfi líkamans. Sums staðar liggja fyrir nákvæmari upplýsingar um innlagnir vegna vímuefnaneyslu en áfengisneyslu. Sem dæmi má nefna að í Danmörku fara rúmlega sjö þúsund einstaklingar í meðferð árlega vegna vímuefnanotkunar, þar af eru rúmlega þrjú þúsund lagðir inn á stofnanir. Ekki eru til sambærilegar tölur fyrir meðferð vegna áfengisneyslu. Samanburður milli landa er því erfiður.
Á þessi vandkvæði hefur oft verið bent í norrænu samstarfi á þessu sviði en enn sem komið er hefur ekki reynst unnt að búa til gagnasöfn sem varpað gætu ljósi á umfang þessarar þjónustu.
Mikil þörf er fyrir gagnagrunn um áfengis- og vímuvarnir á Íslandi, Norðurlöndunum og í Evrópu en til þess að gera hann þarf mikið fé. Evrópusambandið hefur sett á fót stofnun til að safna þessum upplýsingum í Lissabon í Portúgal, en nokkuð er í land að hún skili upplýsingum sem skyldi. Þátttökugjald í því samstarfi var lengi vel 50 millj. ísl. kr. á ári fyrir hverja þjóð, óháð fólksfjölda.
2. Hver margir fara í áfengis- og vímuefnameðferð hér á landi á ári hverju í samanburði við önnur Norðurlönd?
Engin ítarleg samantekt liggur fyrir um þetta efni. Í síðasta hefti NOMESCO um heilbrigðistölfræði fyrir Norðurlönd er þó reynt að nálgast samanburð af þessu tagi með því að skoða sölutölur fyrir áfengi, en þær eru að sjálfsögðu takmörkunum háðar við túlkun á drykkjuvenjum og segja enn minna um meðferðarmál. Sölutölur eru hæstar fyrir Danmörku (11,6 lítrar af hreinum vínanda á mann, eldri en 15 ára) og Grænland (13,2), en Finnland (8,7) fylgir þar á eftir. Ísland (5,6), Noregur (5,5) og Svíþjóð (6,1) reka lestina í þessum samanburði, og hefur svo verið um margra ára skeið. Meðferð við skorpulifur er algengari í Danmörku og Finnlandi en á hinum Norðurlöndunum, en það er í samræmi við selt áfengismagn.
Innlögnum fjölgaði mjög hér á landi á árunum 1976–1984, en frá 1985 hafa um 1500 manns af hverjum 100.000 farið árlega í meðferð á Íslandi. Áfengisneysla Norðmanna hefur verið einna líkust neyslu Íslendinga síðustu áratugina, en þar er sambærileg tala um 600 á ári. Hér er því mikill munur á.
Að undanförnu hefur verið rætt töluvert að efla þurfi göngudeildarþjónustu og eftirmeðferð og vel kann að vera að þróunin verði í þá átt hér eins og víðast annars staðar.
3. Hvað er lagt til grundvallar ákvörðun um innlögn á meðferðarstofnun vegna áfengis- og vímuefnavanda?
Hinn sjúki, nánustu ættingjar, aðstandendur og í sumum tilvikum atvinnuveitendur biðja um vistun á meðferðarstofnun. Fagfólk og reyndir meðferðaraðilar leggja mat á aðstæður hvers og eins á grundvelli upplýsinga um gang sjúkdómsins. Ákvörðun um innlögn byggist alla jafna á læknisfræðilegu mati, enda þótt upplýsingarnar sem unnið er með komi víða að. Að matinu loknu er tekin ákvörðun um hvaða meðferðarúrræði skuli beita hverju sinni og meðferð skipulögð.
Sem dæmi um innlagnarferli má taka göngudeild geðdeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir áfengissjúklinga og aðra fíkla. Þangað sækja þjónustu um 600 einstaklingar á ári, og hefur fjöldinn farið vaxandi, en heimsóknir eru um 6000. Á göngudeildinni taka læknar ákvarðanir um innlagnir sjúklinganna á móttökudeild en innlögnum á aðrar deildir sjúkrahússins er einnig stýrt af læknum eða reyndum áfengisráðgjöfum. Í öllum tilvikum liggur bæði skoðun og viðtal að baki ákvörðuninni.
Innlagnir á meðferðarstofnanir eru ekki samræmdar og á það raunar við um innlagnir á flestar sjúkrastofnanir. Í öldrunarþjónustu hefur verið þróað kerfi sem gefur kost á hlutlægu mati á þörf einstaklinga fyrir innlögn en slíkt er ekki til fyrir meðferðarstofnanir.
4. Er biðlisti eftir innlögn á meðferðarstofnanir vegna áfengis- og vímuefnavanda? Ef svo er, hve langur er hann?
Við fyrstu meðferð er biðin eftir innlögn á stærri meðferðarstofnunum venjulega stutt eða engin en á minni stofnunum er hún oft örfáir dagar. Þá hefur ungt fólk vissan forgang og jafnframt þeir sem hafa ekki farið í meðferð mjög lengi.
Biðlisti á SÁÁ fyrir aðra hópa sveiflast. Á honum eru oft um 150–350 manns en bið er hins vegar ekki mjög löng. Þetta byggist meðal annars á því að nú eru sjúklingar oft lagðir inn til skamms tíma. Nú er meðallengd dvalar á Vogi rétt tæplega 10 dagar en um 28 dagar í eftirmeðferð, fyrir utan stuðning á göngudeild.
Talið er mjög mikilvægt að hægt sé að mæta einstaklingi sem leitar sér hjálpar og er reiðubúinn að takast á við vanda sinn án mikillar tafar, því ljóst er að við slíkar aðstæður er tíminn dýrmætur.
5. Hvaða reglur gilda um endurinnlagnir vegna áfengis- og vímuefnameðferðar?
Líkt og fólk með aðra langvinna sjúkdóma þurfa margir áfengissjúklingar að leggjast oft inn. Þar sem hópurinn er afar sundurleitur gefur auga leið að mismikil sjúkdómsþyngd og misjafn bakgrunnur geta haft veruleg áhrif á batahorfur og hve oft komið er í meðferð.
Fíkn er í eðli sínu langvinnur sjúkdómur sem ekki batnar endanlega en verður haldið í skefjum ef sjúklingarnir neyta ekki vímuefna. Geðraskanir sem margir fíklar eru haldnir eru einnig langvinnir sjúkdómar. Þetta leiðir til þess að margir þessara sjúklinga þurfa á endurinnlögnum að halda.
Um endurkomur gilda önnur viðmið en við fyrstu innlögn. Þá er farið eftir líkamlegu og andlegu ástandi umsækjenda, dýpt krónískra einkenna og öðrum aðstæðum, en að auki er reynt að meta að hve miklu leyti meðferð getur gagnast viðkomandi og þá litið til fyrri reynslu.
6. Hve margir hafa farið 5–10 sinnum í áfengis- og vímuefnameðferð, hve margir hafa farið 11–20 sinnum, 21–30 sinnum, 31–40 sinnum, 41–50 sinnum og 51 sinni eða oftar?
Þetta mun síðast hafa verið kannað á landsvísu 1992 og 1993. Þá komu úr 350 sjúklinga hópi 187 einu sinni, 76 tvisvar og 87 oftar en tvisvar. Sennilega er meira um endurkomur nú um stundir, sérstaklega þar sem blönduð neysla áfengis og vímuefna hefur færst mjög í vöxt.
Frá SÁÁ bárust þær upplýsingar að árið 2001 hafi innlagnir á Vog verið 2248, en þar átti í hlut um 1791 einstaklingur. Af þeim hópi komu um 1476 einu sinni inn á árinu, 228 tvisvar, og 87 þrisvar eða oftar. Einn var lagður inn átta sinnum en enginn oftar en það. Alls komu 686 í fyrsta sinn inn á Vog þetta ár.
7. Hver er árangur áfengis- og vímuefnameðferðar hér á landi í samanburði við önnur Norðurlönd?
Sé litið til Svíþjóðar og Noregs, þá lætur nærri að um 20% þeirra, sem fara í meðferð takist að hætta neyslu alveg, 30% bæti líf sitt verulega, 40% nái óverulegum bata og 10% engum. Þetta er sennilega aðeins lakari árangur en hér á landi.
Fyrir um 15 árum hættu allt að 30% neyslu alveg við meðferð, en síðan hefur blönduð neysla skemmt verulega fyrir slíkum árangri.
8. Hvernig hefur kostnaður við áfengis- og vímuefnameðferð þróast á síðustu tíu árum?
Síðasta heildarúttekt á kostnaði við áfengisneyslu, beinum og óbeinum, var gerð á vegum Hagfræðistofnunar fyrir árin 1985–1989. Í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 er fjallað um þessa úttekt og minnt á að erfitt er að meta kostnað við áfengisneyslu. Þar skipta máli þættir eins og að byrði þjóðfélagsins eykst vegna ýmissa heilbrigðisvandamála, ótímabærra dauðsfalla, örorku, afbrota, slysa, óreiðu í fjölskyldum, sársauka og þjáningar, svo eitthvað sé nefnt. Í skýrslunni er lagt mat á kostnað vegna læknishjálpar, félagslegan kostnað og kostnað vegna tjóns, og nemur hann alls um 2,2 milljörðum króna. Við þetta má svo bæta óbeinum kostnaði sem er m.a. framleiðslutap vegna dauðsfalla, framleiðslutap vegna meðferðar, framleiðslutap vegna ótímabærrar örorku og fleira, alls um 5,7 milljarðar króna. Talið er fullvíst að þetta sé of lág tala, og með því að umreikna bandarískar tölur fyrir Ísland kemur út að beinn og óbeinn kostnaður samfélagsins vegna áfengisneyslu sé 7,7 milljarðar árlega. Í þessum tölum, sem eru orðnar gamlar, er ekki reynt að varpa ljósi á þann vanda sem við blasir vegna vímuefnanotkunar og blandaðrar neyslu, en hann er að sjálfsögðu líka mjög hár. Engar tölur liggja fyrir hér á landi um umfang þessarar neyslu, en margar smærri kannanir hafa verið gerðar, t.a.m. fyrir afmarkaða aldurshópa.
Árið 1993 var kostnaðurinn við rekstur meðferðarstofnana nálægt 590 millj. kr. en var árið 2000 kominn í 750 millj. kr. Nákvæmari tölur er að finna í skýrslu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um meðferðarstofnanir, sem lögð var fyrir Alþingi samkvæmt beiðni á 126. löggjafarþingi.
Hætt er við að kostnaður vegna fíknar fari vaxandi á komandi árum. Svo virðist sem æ fleiri séu útsettir fyrir áhrifum vímuefna og slíkt eykur að sjálfsögðu hættu á að menn ánetjist þeim.
Vaxandi áhersla hefur verið lögð á beitingu varnarráða á þessu sviði undanfarin ár af hálfu heilbrigðisyfirvalda. Forvarnir geta komið í veg fyrir mikinn kostnað, sársauka, alvarlega sjúkdóma, fjölskylduharmleiki og ofbeldis- og auðgunarbrot, sem leiða af stórfelldri neyslu áfengis og annarra fíkniefna.
Ljóst er að náist markmið þau sem sett eru í heilbrigðisáætlun um að draga úr áfengis- og vímuefnaneyslu má draga verulega úr fjárútlátum vegna þessa málaflokks.