Ferill 706. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1379  —  706. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur og Jóhanns Ársælssonar um heildarskuldir og vaxtabyrði í íslenska lánakerfinu.

     1.      Hverjar voru heildarskuldir í íslenska lánakerfinu í árslok 1995 og 2001 og hvernig skiptust þær á
             a.      ríki,
             b.      sveitarfélög
             c.      einstaklinga,
             d.      fyrirtæki,
             e.      stofnanir, sjóði og aðra aðila?
    Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands voru innlend útlán og verðbréfaeign lánakerfisins í árslok 1995 og 2001 sem hér segir í milljörðum króna:

1995
2001
Ríki
145
149
Sveitarfélög
41
85
Fyrirtæki
328
988
Heimili
318
694
Samtals
832
1.916


     2.      Hver var heildarvaxtabyrði í íslenska lánakerfinu árin 1995 og 2001 og hver hefði hún orðið miðað við meðaltal vaxta á evru-svæðinu annars vegar og hins vegar meðaltal vaxta í OECD-löndum? Svarið óskast sundurliðað á sama hátt og í fyrri lið.
    Viðskiptaráðherra óskaði eftir upplýsingum frá Seðlabanka Íslands um þennan lið fyrirspurnarinnar. Seðlabanki Íslands hefur þó ekki á takteinum upplýsingar um vaxtatekjur lánakerfisins í heild og getur ekki veitt þær nema að undangenginni verulegri vinnu. Þá er hægt að reikna margs konar meðaltöl vaxta á evrusvæðinu og í OECD-löndunum en engar óyggjandi leiðir eru til þess að velja ,,rétta“ samanburðarvexti. Vaxtasamanburður er líka erfiður fyrir þá sök að vextir ráðast af fjölmörgum þáttum, svo sem stærð og dýpt markaða, lánshæfismati skuldara, stöðugleika og hve lengi hann hefur varað og síðast en ekki síst hvar viðkomandi hagkerfi er statt í hagsveiflunni.
    Í lok ársins 2001 voru stýrivextir Seðlabanka Íslands 10,1% en stýrivextir Seðlabanka Evrópu 3,25%. Samræmd vísitala neysluverðs hækkaði á Íslandi um 9,8% frá upphafi til loka ársins 2001 en aðeins um 2,5% á EES-svæðinu í heild.
    Evrusvæðið var ekki til 1995 en í því landi sem lægsta hafði vexti, þ.e. í Þýskalandi, voru stýrivextir þýska seðlabankans í árslok 1995 3,75%. Vextir í endurhverfum viðskiptum Seðlabanka Íslands voru þá 6,9%.
    Spurningunni verður því ekki auðveldlega svarað með öðrum hætti en þeim að vaxtabyrði hefði verið léttari á Íslandi 1995 og 2001 ef hér á landi hefðu gilt ,,sömu“ vextir og á evru-svæðinu eða í OECD-löndunum og að því gefnu að skuldirnar hefðu verið hinar sömu og greint er í svarinu við fyrri lið fyrirspurnarinnar. Þær kynnu hins vegar að hafa verið meiri ef vextir hefðu verið lægri.