Ferill 737. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1386 — 737. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um ábyrgðasjóð launa.
Frá Kristjáni Pálssyni.
1. Hver er sjóðseign ábyrgðasjóðs launa sem stofnaður var samkvæmt lögum nr. 53/1993?
2. Hve háar hafa greiðslur úr sjóðnum vegna vangreiddra lífeyrisréttinda launþega verið sl. þrjú ár?
3. Hve háar hafa kröfur í sjóðinn vegna vangreidds lífeyrissparnaðar launþega verið sl. þrjú ár?
4. Hvaða lífeyrissjóðir hafa krafist greiðslna úr sjóðnum og hve hárra sl. þrjú ár?
5. Hafa verið gerðar kröfur í ábyrgðasjóðinn um greiðslur á séreignarlífeyrissparnaði vegna gjaldþrota fyrirtækja. Ef svo er, hve háar?
Skriflegt svar óskast.