Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1388 — 484. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Telur ráðherra koma til greina að lækka lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli að vetrarlagi í því skyni að auðvelda flugfélögum að bjóða upp á lægri fargjöld og lengja þannig ferðaþjónustutímann? Ef svo er, hyggst ráðherra beita sér fyrir slíkri lækkun?
Þau gjöld sem innheimt eru á Keflavíkurflugvelli eru innritunargjald sem rennur til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, lendingargjöld sem renna til flugvallarstjórnar, vopnaleitargjald sem rennur til sýslumannsembættisins á Keflavíkurflugvelli og flugvallarskattur sem rennur til flugmálaáætlunar.
Þrjú fyrstnefndu gjöldin gera vart betur en að standa undir þeim kostnaði sem þeim er ætlað. Þar koma meðal annars til síhertar kröfur í öryggismálum, auk þess sem lendingargjöldin standa undir rekstri flugturns, eldsneytisdreifingu o.fl.
Um flugvallarskattinn er það að segja að hann er innheimtur af farþegum, á grundvelli laga nr. 31/1987, um flugmálaáætlun og fjáröflun til framkvæmda í flugmálum, og er hann áætlaður tæpar 575 millj. kr. á þessu ári. Utanríkisráðuneytið ætlar sér ekki að meta hvort lækka megi þann tekjustofn, en verði skatturinn lækkaður, þarf væntanlega að finna tekjur á móti til að standa undir uppbyggingu flugvalla á landinu.
Því hefur verið haldið fram að Keflavíkurflugvöllur sé óeðlilega dýr og að það hamli flugi svokallaðra lágfargjaldaflugfélaga. Úttekt sem gerð var af óháðum aðila sýnir að af 12 flugvöllum í Evrópu og Bandaríkjunum sem bornir voru saman var Keflavíkurflugvöllur sá fimmti lægsti hvað þau gjöld varðar er fyrirspurnin snýst um.
Nú hafa þrír aðilar leyfi til flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli svo að þar ríkir samkeppni á frjálsum markaði og vonandi mun sú samkeppni leiða til lækkunar.